Heimdallur - 01.05.1884, Side 4

Heimdallur - 01.05.1884, Side 4
68 Mörg eru síðan orðin ár, ætla jeg meir, enn tylftir þrjár: Hropta-týs nú hróðr dvín, hanga-guðs er dofnað vín: |><5 í huga æ mjer er enn, sem fyr, að þakka þjer, sem að fyrst á æskuárum orðin göfug kenndir mér, kveðin dýpst af sefa sárum sem og títt af hetjumóð — Jökuls *) man eg enn þá óð — sem að vaktir Óðins á, og sem fyrstr manna þá komst við heiða Hrímnis lá «hollr at helgu fulli hrafnásar mér» **) jafnan. Hafðu, Konráð, þökk fyrir það, það og allt, sem Bragi kvað; fyrir Hómers lýða ljóma, "ljósið þjóðar,- sem þú fyr kallaðir þá Dvalins dóma, dróttar óð um Tróju styr! fyrir Yiðris veiga sjó, Virgil bæði og Stilichó! fyrir allt, sem einn þú skildir allra manna bezt í heim, og mjer sýna veslum vildir, víst þá ngoðin stýrðu beim!» Hafðu þökk fyrir Yils og Vagna vitran brag — en eg mun þagna! 30. Aug. 1883. Gísli Brynjidjson. Mómýri Eptir Alexander L. Kielland. Gísli Guðnmndsson þýddi. Hátt uppi yfir lyngflákunum flaug roskinn og ráðsettur hrafn. Ferðinni var heitið margar mílur í vestur, allt *) Jökuls Bárðarsonar, móðurbróður Grettis. **) Orð Skáld-Refs urn Gizur Gullbrárskáld, er hann telr fyrst bafa kennt sér skáldskap, i kvæði því, er hann orti eptir fall, Gizurar með Ólafi konungi á Stikla- stöðum. að sjávarströndu; þar hugðist krummi að grafa upp svínscyra, sem hann hafði falið í sláturtíðinni. f>að : var þegar mjög liðið á haustið og lítið um æti. ' pegar einn krummi er kominn — segir Páll ; karlinn — þarf ekki annað en líta við, þá er annar ; í nánd. En menn máttu skima og skima; roskni og ráðsetti hrafninn kom einn, aleinn. Og án þess að skipta sjer af neinu, sveifhann steinþegjandi á afl- : miklu, kolsvörtu vængjunum um hið regnþrungna lopt beint í vestur. ; Jafnt og stillilega leið hann áfram og rendi ; hvössu augunum yfir sveitina; eptir því sem vestar - dró, varð gamla fuglinum gramara í geði. Ár frá ári fjölguðu og stækkuðu grænu og gulu s smáskikarnir í sveitinni; allt af smásaxaðist á lyng- ; móana, og jafnframt skaut upp húskitrum með \ rauðum þaksteinum, lágum eldhússtrompum og kæf- andi móreyk — hvervetna menn og mannvirki. ' Hann mundi svo glöggt, þegar hann var ungur — en það voru nú sjálfsagt nokkur ár síðan — þá ! var lafhægt fyrir duglegan hrafn með hyski sínu j! að hafa hjer ofan af fyrir sjer: lyngbreiður svo ; langt sem augað eygði, ungir hjerar og smáfuglar hópum saman, við sjávarsíðuna æðarfuglar óg stóru \ gómsætu eggin þeirra; í einu orði nægtir af als : konar sælgæti. ; Nú var bær við bæ, gular akurreinar og grænar < sljettur og svo lítið um æti, að roskinn og heiðvirð- ; ur hrafn varð að fljúga mílum saman vegna ljelegs ; svínseyra. fessir menn, þessir menn — gamli fuglinn vissi hvernig þeir voru. Hann hafði alizt upp hjá mönnum og það enda ; hjá mjög fínu fólki. Á höfðingjasetrinu rjett við j kaupstaðinn hafði hann eytt æsku og bernskuár- um sínum. En í hvert sinn sem hann átti nú leið fram hjá höfðingjasotrinu flaug hann hátt uppi, til þoss að enginn skyldi þekkja hann. ]>ví að sæi hann kvenn- mann úti í trjágarðinum, hjelt hann að það væri unga heimasætan með hárhveiti og band um fljett- < urnar, en í raun og veru var það dóttir hennar með snjóhvítar hærur og ekkjuskikkju. Hafði honum liðið vel hjá fína fólkinu? jJað var nú eptir því sem á það er litið. Nóg fjekk hann að jeta og mikið að læra; ekki vantaði það; en ! hann mátti heldur ekki um frjálst höfuð strjúka;

x

Heimdallur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.