Norðurljósið - 01.07.1935, Side 8
32
NORÐURLJÓSIÐ
sjest á þessu, að það er alls ekki rjett, að gera svo
mikið úr henni, að hún sje látin sundra Guðs
bömum, sem eru sameinuð um öll þessi mikil-
vægari atriði.
Jafnvel meðan tungutalið var leyfilegt í söfn-
uðinum, gerði postulinn harla lítið úr því, eins
og sjest á þessum tilvitnunum úr I. Korintubrj.:
»Þótt jeg talaði tungum manna og engla, en
hefði ekki kærleika, yrði jeg hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla,« (Í3.1.) ; »tungur, þær munu
hætta«, (13. 8.) ; »sá, sem tungu talar, uppbyggir
sjálfan sig«, (14. 4.) ; »jeg vildi, að þjer töluðuð
allir tungum, en þó enn meir, að þjer gætuð
spáð«, (það er: talað til uppbyggingar) (14. 5.);
»en þótt jeg nú, bræður, kæmi til yðar talandi
tungum, hvað mundi jeg gagna yður, ef jeg þa
ekki talaði til yðar annaðhvort með opinberun,
eða með þekkingu, eða með spámannlegri gáfu,
eða með kenningu?« (með öðrum orðum, tungutal
er út af fyrir sig gagnslaust), (14. 6.) ; »ef þjer
mælið ekki með tungu yðar fram skilmerkileg
orð, hvernig verður það þá skilið, sem talað er?
Því að þjer talið þá eins og út í bláinn,« (14. 9.)
(með öðrum orðum: menn tala »eins og út i blá-
inn«, er þeir tala tungum); »Jeg þakka Guði, að
jeg tala tungum öllum yður fremur; en á safn-
aðarsamkomu vil jeg heldur tala fimm orð með
skilningi mínum, til þess að jeg geti frætt aðra,
en tíu þúsund orð með tungu,« (14. 18.—19.)
(Það er að segja: postulinn talaði á ferðum sín-
um mörg tungumál, en á kristilegri samkomu
vildi hann heldur tala skiljanleg orð, til að fræða
aðra, sem hann telur 2,000 sinnum gagnlegra en
að tala tungum) ; »ef nú allur söfnuðurinn kæmi
saman og allir töluðu tungum, og inn kæmu fá-
fróðir menn eða vantrúaðir, mundu þeir þá ekki
segja: »Þjer eruð óðir«? En ef allir töluðu af spá-
mannlegri gáfu, en inn kæmi einhver vantrúaður
eða fáfróður, yrði hann sannfærður af öllum og
dæmdur af öllum. Leyndardómar hjarta hans
verða opinberir; og síðan mun hann falla fram á
ásjónu sína og tilbiðja Guð, lýsandi yfir því, að
Guð er sannarlega hjá yður,« (14. 23.—25.)
(Hjer segir postulinn, að ávöxturinn af tungu-
talinu verði sá, að menn hneykslast, en ávöxtur-
inn af því, að töluð sjeu skiljanleg orð í krafti
Andans, verði sá, að menn snúa sjer til Guðs.)
I 28. versi er bannað að tala tungum, ef ekki sje
útlistað um leið, og í 34. versi er kvenmönnum
algerlega bannað að tala á safnaðarsamkomum og
staðhæfir postulinn í 37. versi að þetta sje »boð-
orð Drottins«. En hjá Hvítasunnumönnum tala
margir kvenmenn tungum á safnaðarsamkomum
og brjóta þannig þetta boðorð Drottins, enda er
leiðtogi flokksins kvenmaður, (sbr. rit hennar
»Tapað og uppbætt«, sem Hvítasunnumenn hjer á
landi vitna til sem heimildarrits).
(Framhald).
Hausimótið á Akureyri.
Trúaðramótið á Sjónarhæð byrjar þetta ár, ef
Guð lofar, á fimtudaginn, 2U. október, en að ölíum
líkindum verður aukasamkoma haldin kvöldið áð-
ur. Samkomurnar verða haldnar fimtudaginn,.
föstudaginn, laugardagskvöld og allan sunnudag-
inn, eins og áður hefir verið. Þessi mót hafa verið
öllum þátttakendum mjög blessunarrík, undan-
farin ár, og allir, sem elska Drottin og orð hans
í heilagri ritningu, eru hvattir til þess að sækja
mótið í haust, ef þeim er það með nokkru móti
mögulegt. Allir lærisveinar Drottins hjer í ná-
grenni eru ámintir um, að láta sig ekki vanta.
Hver veit, nema þetta verði hið síðasta sinn, sem
slíkt mót verður haldið, áður en Drottinn Jesús
Kristur kemur? Vjer söfnumst ekki saman í nafni
nokkurs flokks eða safnaðar, heldur á hinum sam-
eiginlega grundvelli allra sannra lærisveina Krists.
Æskilegt er að sem flestir tilkynni þátttöku
sína, ef hægt er, en ekki er það nauðsynlegt, ef
því verður ekki við komið, tímans vegna. Ekki
er ómögulegt, að vjer gætum útvegað langferða-
mönnum húsnæði, meðan á mótinu stendur, ef
þeir skrifa eða síma i tíma.
Biblíunámskeið.
Það hefir komið til orða, að stofna til biblíu—
námskeiðs snemma á næsta ári hjer á Akureyri,
handa ungum mönnum, sem langar til að auka
þekkingu sína á grundvallaratriðum Guðs orðs, í
þeim tilgangi, að geta frekar starfað fyrir hann
í framtíðinni. Það er gert ráð fyrir, að það
standi yfir tvo mánuði, febrúar og mars. Ritstjór-
anum þætti vænt um, að heyra frá ungum, trú-
uðum mönnum, sem vilja og geta offrað tveim
mánuðum til þess að afla sjer slíkrar þekkingar.
Geta þeir þá fengið frekari upplýsingar.
Aðaláherslan verður lögð á það, að gera þátt-
takendurna færari um, að starfa fyrir Drottin,
og verður farið aö mestu leyti eftir fyrirmynd
erlendra biblíuskóla, en auövitað í smáum stíl,
vegna þess, hve tíminn er stuttur. En ef námskeið
þetta verður vel sótt, höfum vjer í huga, að
stofna biblíuskóla, með þriggja vetra námi, meö
miklu víðtækara starfsviði. Þá verður tími fyrir
kenslu í íslensku og öðrum tungumálum og ef til
vill í grísku nýja testamentisins, auk annara
námsgreina, sem að gagni mættu verða, til þess
að menn sjeu færari um að starfa fyrir Drottin
og »fara rjett með sannleikans lærdóm«.
Norðurljósið kemur út annan hvorn mánuð, 48 blaðsíður
á ári. Árgangurinn kostar 1 kr. og greiðist fyrirfram.
Verð í Vesturheimi, 40 cents.
Ritstjóri og útgefandi: ARTHUR GOOK, Akureyri.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.