Norðurljósið - 01.05.1963, Qupperneq 1
44. árg.
Maí 1963
5. tbl.
B I LLY GR AH AM SPYR :
ER GUÐ ÞÉR NOKKURS VIRÐI?
Sú spuming, sem ég vil spyrja þig núna, er þessi: „Er
GuS þér nokkurs virði í lífinu?“ Biblían kennir, að einu
sinni var sá tími, þegar maðurinn þekkti Guð, gekk með
Guði og elskaði Guð. En biblían kennir einnig, að maður-
inn hefir misst samband sitt við Guð. Mannkynið allt hefir
nú á dögum misst þetta: samband sitt við almáttugan Guð.
Biblían segir oss, að syndin kom og skilur að manninn og
Guð.
Jæja, þú spyr: „Hvað er synd?“ Það er synd, þegar vér
brjótum siðferðislögin. Hún er siðferðislegur og andlegur
sjúkdómur. 011 erum vér sýkt af honum. Vér höfum brotið
gegn boðum Guðs. Vér höfum syndgað á móti Guði, og
biblían segir: „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.1)
Þú ert syndari. Ég er syndari. Vér höfum brotið lögmál
Guðs. Vér höfum kosið að syndga. Vér höfum iðkað synd.
Vér erum fædd í synd. Og biblían kennir, að syndir vorar
Hafi gert skilnað á milli vor og Guðs vors. En biblían
kennir, að vér getum aftur komizt í samband við Guð.
Biblían kennir, að þú getir eignazt eilíft líf.
„Jæja,“ segir þú, „það þætti mér gott. Mér þætti gott,
að Guð væri með mér í lífinu. Mér þætti gott, að Guð fyrir-
gæfi mér syndir mínar og gerði mig að nýjum manni. Mér
þætti gott, að Guð leysti vandamál mín og létti af mér byrð-
um mínum. Hvernig get ég fundið Guð? Ég hefi leitaö að
Guði, en ég hefi aldrei getað fundið Guð.“
AÖeins með einu móti getur þú komizt í samband við
Guð. Það er með því að koma til Jesú Krists, af því að
hann dó á krosinum fyrir syndir okkar fyrir meira en
1900 árum. Með dauða sínum tók hann á sig syndir þínar,
dóm þinn og refsingu. Nú segir Guð: „Ég vil mæta þér
við krossinn. Ég mæti þér hvergi annars staðar, en ég vil
Uiæta þér við krossinn, ef þú snýr þér frá syndum þínum
°g kemur í trú. Ég skal mæta þér við kross sonar míns
Jesú Krists.“ Jesús sagði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn
°g lífið; enginn kemur til Föðurins nema fyrir mig.“2)
Enginn maður getur þekkt Guð án Jesú Krists. Ef þú
V|^ þekkja Guð, komdu þá að krossinum. Veittu Kristi
Hðtöku sem frelsara þínum. Biblían segir, að sál þín geti
frelsazt. Hún getur hreinsazt af syndum sínum, hún getur
fengið fyrirgefningu, og hún getur öðlazt nýtt líf með því
að koma að krossi Jesú Krists, af því að Jesús dó fyrir
þig. Hann kom til að gefa oss eilíft líf. Hann kom til að
breyta ævi vorri.
Þú segir: „Jæja, hr. Graham, hvernig get ég vitað þetta?
Hvernig get ég haft Guð með mér í lífinu? Hvað þarf ég
að gera?“ Biblían segir, að þú verðir fyrst af öllu að viður-
kenna, að þú ert syndari. Það er erfitt. Þú verður að lítil-
lækka þig, gleyma drambi þínu og viðurkenna, að þú hefir
syndgað á móti Guði. Og síðan verður þú að snúa þér frá
syndum þínum. Þú þarft að brenna brýrnar að baki þér
— syndsamlegu brýrnar þínar — og þú verður að vera fús
til að hætta syndugu líferni þínu, lygum þínum, svikum
þínum, ósiðferði þínu, hatri þínu og sérhverju öðru. Þú
verður að snúa baki við því öllu saman og veita síðan
Kristi viðtöku í trú.
Þú segir: „Herra Graham, ég trúi á Krist. Ég trúi á
Guð. Er það ekki nóg?“ Nei, því að biblían segir, að illu
andarnir trúi. Þú segir: „Ég er einlægur.“ Ég þekki margt
fólk, sem er einlægt, en það er einlægt í villu sinni. Þú
segir: „Ég breyti samkvæmt samvizku minni, er það ekki
nóg?“ Samvizka þín getur verið dauð og forhert af synd.
Biblían segir, að þú verðir að snúa þér frá syndum
þínum og að þú verðir að koma í trú, fela líf þitt Jesú Kristi
og gefa honum það. Þetta er að afhenda honum sjálfan
þig. Þetta er val. Þetta er uppgjöf, þar sem þú gefur þig
á vald Jesú Krists, að hann verði Drottinn þinn og frelsari.
Og einmitt hér, á þessu andartaki, getur þú í kyrrð hjarta
þíns fengiö að þekkja Krist. Þú getur veitt honum viðtöku
sem frelsara þínum.
Hvort sem þú ert ríkur eða fátækur, hverjar svo sem
þarfir þínar eru, í hvaða kringumstæðum sem þú ert, þá
bið ég þig að gefa hjarta þitt Jesú Kristi. „Því að svo elsk-
aði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess
að hver, sem á hann trúir, glatizt ekki, heldur hafi eilíft
líf“3)
i) Róm. 3. 23. Jóh. 14. 6. ») Jóh. 3. 16.