Norðurljósið - 01.05.1963, Page 8
40
NORÐURLJÓSIÐ
HOLL RÁÐ
Jesús sagði: Ég kam oftur. (Jóh. 14. 3.)
GERÐU EKKERT,
sem þú vildir ekki vera að gera, þegar
DROTTINN JESÚS KEMUR. —
TALAÐU EKKERT,
sem þú vildir ekki vera að tala, þegar
DROTTINN JESÚS KEMUR. —
FARÐU ALDREI
ÞANGAÐ
þar sem þú vildir ekki vera, þegar
DROTTINN JESÚS KEMUR. —
HUGSAÐU ALDRE I
NEITT,
sem þú vildir ekki vera að hugsa um, þegar
DROTTINN JESÚS KEMUR. —
Vertu viðbúinn. Hann kemur.
,,Hver, sem hefir þessa von til hans,
hreinsar sig." (I.Jóh. 3. 3.)
OFANSKRÁÐ
„Holl ráð hafa reynzt blessunarrík þeim, sem gefa sér tóm til að
íhuga þau og leitast við að breyta eftir þeim.
Þau hafa verið sérprentuð, og það er hægt að fá þau hjá ritstj.
Norðurlj. OKEYPIS vegna örlætis einnar systur í söfnuðinum á
Sjónarhæð. Meðan birgðir endast, getur áhugasamt fólk fengið
svo mörg eintök, sem það vill, til að dreifa út meðal vina, ættingja
og annarra, sem blessun gætu haft af því að vera minntir á endur-
komu Krists. Allmörg eintök hafa verið prentuð á „karton" til
þess að festa megi þau á vegg. Þeir, sem það vilja, geta sent eitthvað
af ónotuðum frímerkjum fyrir póstgjaldi.
Endurkoma Krists er hin „sæla von“ sannkristins manns. Ekkert
hvetur hann fremur til bænrækni, hreinsar hann og helgar eins og
sönn eftirvæning komu Drottins Jesú.
•x
NorSurljósið, 12 blöð á ári, kostar 30 kr., vestanhafs 1 dollar,
í Færeyjum 7 kr. færeyskar.
Vitnisburður
Mér er bæði Ijúft og skylt að verða við þeirri ósk þinni,
er þú óskar, að ég gefi þér leyfi til að birta í „Norður-
ljósinu" þá hjálp, sem ég fékk hjá mínum hjartkæra vini
Jesú Kristi, þegar ég í þrenging minni leitaði til hans. Og
hann er ástvinur, sem aldrei bregzt, ef leitað er til hans
af einlægu hjarta. Eg var búinn að vera svo lengi í vetur,
að ég gat ekki unnið nema með köflum, og það ekki
þrautalaust. Eg var að hugsa um, hvað ég ætti að gera
í þessu efni. Læknir var búinn að segja mér, að hann gæti
ekkert meira gert fyrir mig. Hvað átti ég að gera? Fara
norður á Akureyri til Ólafs Tryggvasonar? Eða gefast
upp? Það vildi ég ekki gera.
Þá fannst mér eins og hugur minn segja: „Þú hefir
lækni hj á þér“. Ég geng upp á loft, þar sem ég sef, og krýp
við bekk, sem ég hefi þar, og ég bið Jesúm Krist af öllu
hjarta mínu að hjálpa mér. Ekki stóð á því, að hjálpin
kæmi, því að hvenær bregzt hún frá mínum hjartkæra
vini, þegar til hans er leitað af einlægu hjarta? Honum
sé lof um aldir alda.
Ég fór svo að hátta um kvöldið, en vakna kl. 2. Þá
líður mér svo ljómandi vel, að mér finnst ég hvergi finna
til. Ég sofna svo aftur og sef, þangað til ég fer á fætur,
og finn ekkert til. Ég þakka mínum himneska föður í
nafni Jesú Krists fyrir hans miklu náð, sem ég hefi fengið
að njóta, og hans kærleika, sem ég vissi fyrri en þetta, að
voru úti látin í ríkum mæli.
Ég fæ aldrei fullþakkað mínum góða Guði í nafni Jesú
Krists fyrir hans gæzkuríku hönd okkur til úrbóta. Kristn-
um mönnum er skipað sem Ijósberum á leiðinni til himna.
Þeir eiga að endurvarpa Ijósinu, sem um þá leikur frá
Kristi. Líferni þeirra og skapgerð ættu að vera þannig, að
aðrir fái af þeim rétta hugmynd um Krist og þjónustu
hans.
Ef við erum fulltrúar Krists, ber okkur að láta sjást,
hve hrífandi þjónusta hans í rauninni er. Kristnir menn,
er sveipa um sál sína myrkri og hryggð og kveina og
kvarta, sýna öðrum ósanna mynd af Guði og kristilegu
líferni. Þeir láta í það skína, að Guði sé það ekki þóknan-
legt, að börn hans séu hamingjusöm, og þannig bera þeir
ljúgvitni gegn okkar himneska föður. . . .
Steján Gíslason.
ATH.SEMD: Höfundur þessa vitnisburðar er aldraður
maður, sem fann Drottin Jesúm vegna smáritsins „Smakk-
aðu og finndu“. Hann sýndi brátt trú sína í verki, er hann
fór langa leið til að taka þá skírn, sem tíðkuð er hjá þeim,
er fylgja vilja sem nánast fyrirmynd frumkristni nýja testa-
mentisins. —•- Vitnisburður hans er efnislega óbreyttur,
þótt ritháttur sé á stöku stöðum ekki alveg eins og hann var
í bréfinu. — S.G.J.
Ritstjóri og útgefandi: Sœmundur G. Jóhannesson, Akureyri.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.