Heimskringla - 06.06.1912, Side 6
6.-BLS. WINNiPEG, 6, JÚNl 1912,
HEIMSKRIM GLA
m. LOND
C.P.R. Lfind til böIu, í town-
ships 25 til 32, Ranges 10 til 17,
að b&ðum meðtöldum, vestur af
2 hádgisbaug. Þessi lönd fást
keypt með 6 eða 10 ára borgun-
ar tfma. Vextir 6 per cent.
Kaupendum er tilkynt að A. H.
Abbott, að Foam Lake, S. D. B.
Stephauson að Leslie; Arni
Kristinsson að Elfros; Backland
að Mozart og Kerr Bros. aðal
sölu umboðsmenn,alls heraðsins
að Wynyard, Sask., eru þeir
einu skipaðir umboðsmenn til
að selja C.P.R. lönd. Þeir sem
borga peninga fyrir C.P.R. lönd
til annara en þessara framan-
greindu manna, bera sjálfir
ábyrgð á þvf.
Kaupiö þessi lönd nú. Verð
þeirra verður bráðlega sett upp
KERR BROTHERS
QENEKALSALESAGENTS
WYNYARD :: :: SASK.
MARKET HOTEL
146 Princess St.
á móti markaönam
P. O’CONNELL, elgandl, WINNIPEQ
Beztn vlnfðng vindlar og aöhlynning
góö. Islenzkur veitingamaöur P S.
Anderson, leiöbeinir lslendingom.
JIMMY’S HOTEL
BEZTU VÍN OQ VINDLAR.
VÍNVEITARI T.H.FRASER,
ÍSLENDINGDR. : : : : :
James Thorpe, Eigandl
Woodbine Hotel
466 MAIN ST.
Stmsta Billiard Hall I NorövestnrlandioD
Tln Pool-borö.—Alskonar vfnoR vindlar
Glatln^ og fæOI: tl.00 á dag og þar yflr
Leunoii & lletoo.
Eigendnr.
MARTYN F. SMITH,
TANNLÆKNIR.
Merkilegur fundur.
Ég er einn af smaelingjunum og
á því lítiö undir mér ; en samt
þykir mér ætíö gaman, að vera
með, þegar stórmenni koma sam-
an, og set ég mig því aldrei úr
færi, að vera á funditm, þar sem
vissa er fyrir, að margir garpar
og- andans ofurmenni verði og leiði
saman hesta sína. Og fylgi ég þá
ætíð þeim að málum, sem meira
má eða mest fylgi hefir, þvi það
er ætíð meira í munni að hafa
fylgt þeim, sem borið hefir sigur
af hólmi. Og þó ég segi sjálfur frá,
þá hefi ég margt þrekvirkið unnið
á bak við tjöldin. Já, og margur
höfuðpaurinn liefir klappað á öxl-
ina á mér og gefið mér <ltár” ; —
jafnvel hefi ég tvíhlaðið suma dag-
ana upp á annara kostnað, en þá
var nú líka gott í ári og enginn
hörgull á centunum. Annars er
þetta nokkuð út frá efninu, sem
ég ætlaði að tala um, og verð ég
að biðja skynbærar manneskjur
velvirðingar.
það var íslendingadagsnefndar-
kosningafundurinn, sem ég ætlaði
að segja frá.
Ég kom, þegar verið var að
setja fundinn. Hafði ég verið nokk-
uð lengi að búa mig, því ég vildi
vera fínn og ‘‘impónera’’ dónun-
um. Ég var því uppskafinn og £ág-
aðnr og bar mig sem gagnfræða-
skólasveinn frá Akureyri, nema
hvað mig vantaði stafprik og gler-
augu. Sæti tók ég mér aítarlega
og horfði yfir söfnuðinn.
Á upphækkuðum palli sátu þrír
menn, allir lágir vexti ; einn var
stuttur, feitur og digur og rauður
í andliti, var sá í æstu skapi og
auðsjáanlega Templar. Var mér
sagt, að sá héti Gunnlaugur Jó-
hannsson og væri formaður fund-
arins.
Annar var stuttur, miðlungi dig-
ur og í sæmilegum holdum, svart-
ur í sjón, með gleraugu og
skrambi íbygginn. Sagði kona sú,
er hjá mér sat, að hann héti Nef-
land ; seinna fann ég út, að það
var lýgi, því Runólfur Th. New-
land er rétta nafnið. Hann var
skrifari fundarins.
Palrbalrn Blk. Cor Maln & Selklrk
Sérfræðingur f Grullfyllingu
og öllum aðgerðum og tilbún
aði Tanna. Tennnr dregnar
&n s&rsanka. Engin veiki á
eftir eða gómbólga. —
Stofan opin kl. 7 til 9 á kveldin
Offica Haimilis
Phone Main 69 4 4. Phone Main 6462
A. S. TORBERT’S
RAKARASTOFA
Er 1 Jimmy’s Hótel. Besta verk, áK»t
▼erkfœri; Rakstur 15c en'Hársknröur
25c. — óskar viöskifta íslendiuga. —
I
I
A. N. IIAltllAli
Selur llkkistur og annast um dtfarir.
Aliur dtbúuaöur sA bezti. Enfreraur
selur hann aliskouar minnisvaröa og
legsteina.
121 Nena St. Phone Garry 2152
Það er
alveg
víst
að það borg-
ar sig að aug-
lýsa i Heim-
skringlu !
Sá þriðji og yngsti var stuttur
Og grannur, fölleitur og ljós á-
svndum, og bauð af sér góðan
þokka ; glotti þó tíðum um tönn,
o,g vrar auðsjáanlega ekki allur þar
serti hann var séður. Mér var for-
vitni að vita, hver sá hinn snotri
maöur væri, og var mér sagt að
það væri hinn alræmdi skamma-
kjaftur og meðritstjóri Heims-
kringlu, Gunnl. l'r. Jónsson, sem
riðið hefði að velli 66 leirskáld í
einni burtreið á Ilagyrðingavöll-
um, ekki alls fyrir löngu. Ég hugs-
aöi strax með mér, að ég skyldi
koma mér vel við snáða og biðja
hann fvrir smápistla í Kringluna
við og við.
Fundurinn var nú byrjaður, og
tók fundarstjóri fyrstur til máls,
nem lög gera ráð fyrir, og brýndi
fyrir mönnum, hversu afar þýðing-
armikið starf lægi fyrir höndum,
nefnil. að kjósa 9 manna nefnd, er
standa ætti fyrir þjóðhátíðinni 2.
ágúst. 1 þessa nefnd dygði ekki að
velja neina skussa ; þar yrðu að
vera menn, sem væru þéttir á
velli og þéttir í lund, — “sem
hann sjálfur”, gall einn af fundar-
mönnum við. “Já, sem ég sjálfur
eða Newland ; en það verðið þið
að muna”, og nú brýndi fundar-
stjóri raustina, “að hver kjörseðill
er ógildur séti ekki á honum full 9
nöfn".
En nú byrjaði gamanið. það
voru sem sé margir menn, sem
vildu í nefradina komast, og höfðu
þeir verið búnir að agitera dug-
lega meðal vina sinna þannig, að
kjósa að eins sig, og tvo eða þrjá
aðra, en hafa alls eigi fleiri nöfn á
kjörseðlinum ; því fyltu þeir seðil-
^nn með 9 nöfnuim, væri það sama
og greiða atkvæði móti sér. Marg-
ir höfðu leikið það áður, að kom-
ast í nefndina á þann hátt, og énn
þá fleiri ^jldu leika það nú, og var
því yfirlýsing fundarstjóra tekið
illa, Og vildi hálfur þingheimur
þegar taka til máls Og andæfa.
Fyrstur fékk fásteignasali orðið.
Taldi hann þetta óhæfu mikla og
brot á persónufrelsi, og krafðist
þess í nafni hins heilaga ICaífasar,
að þessu væri þegar breytt, svo
að vinir sinir fengju komið sér inn
í nefndína, — Fanst mörgum hon-
um segjast spaklega og varð mik-
ið um lófaskelli.
Fundarstjóri kvað það áður
samþykta tillögu, að kjörseðill
skyldi ógildur, væru ekki á hon-
um 9 nöfn, og neitaði að bera upp
breytúigartillögu.
Varð nú óp mikið og háreisti og
töluðu margir annarlegum tung-
um. Toks kom þó kyrð á, og tók
þá til máls fyrverandi kvenfrelsis-
postuli, fyrv. anarkisti, fyrv. rit-
stjóri m. m. Sigfús B. Benedi(ts-
son. Er hann skýr maður og fjöl-
kunnugur. Kvað hann fundarstjóra
fara hér með lögleysu, og heimt-
aði í nafni stjórnleysingja og
Freyju fylgjenda, að honum væri
þegar vikifj úr sæti. Kvað hann
það vanvirðu hraustum drengjum,
ef þeir létu “tyranísera” sig af
öðrum eins manni. Settist svo
niður og var sveittur mjög.
Voru nú hróp mikil og köll og
stóð svo í tvær mínútur.
þá stóð upp Ásmundur, fundar-
stjóra bróðir, skarpur maður og
skörungur, og mælti hann bróður
sínum bót, sem von til var, og
sýndi fram á, að hann hefði á
réttu að standa.
Lárus Guðmundsson talaði næst
og var sammála síðasta ræðu-
manni.
Sigfús Benedictsson talaði aftur
og var samrnála sjálfum sér.
þar næst stóð upp Sigurður Vil-
hjálmsson skósmiður. Talaði hann
af þjósti miklum og andagift.
Kvaðst hafa margt brallað um
dagana ; verið í kongsins Kaup-
mannahöfn og leikið sér að prins-
essum og drukkið ákaviti með
fríðkvendum í Holmens-götu ; og
hér.vestra hefði mann marga svað-
ilförina farið, — en það gæti hann
þó full}rrt, að fundarstjórinn væri
sá mesti bögubósi, sem uppi væri
unni fyrir utan_sjálfan sig og séra
5Iatthías. Kvað nú þjóðfrelsi og
lýðfrelsi og allskonar frelsi, jafn-
vél náttúrúfrelsi, svo mikið í öll-
um hinum mentaða heimi, að
fundarfrelsi ætti einnig að komast
á, og það Sem fyrst. Rann nú út
í fyrir ræðumanni af umhugsun-
inni um alt þetta frelsi, og kafn-
aði ræðan að síðustu í málfrelsi.
Nú töluðu margir bæði með og
móti frtndarstjóra, en meðan þeir
voru að rífast, hafði Heimskringlu
maðurinn farið ofan af pallinum
og útbýtt kjörseðlum, og áður en
ræðugarpana varði, var kosning-
unni lokið, og farið að telja at-
kvæðin.
Fundarstjóri var þá ,ekki seinn
á sér, að bera upp- tillöguna, að
sér }rrði vikið frá íundarstjórn :
“þeir, sem eru með tillögunni, gefi
merki”. þeir voru tveir. — Á
móti : Níutíu hendur á lofti.
“Ég sit k.yr”, var úrskurður
fundarstjóra. Vaknaði þá fundur-
inn sem af svefni, þvi meirihlutinn
af andstæðingum fundarstjórans,
svo sem frelsiskempan, fasteigna-
salinn og þorsteinn trésmiður, —
höfðu verið svo djúpt hugsi yfir
því, sem þeir ætluðu að segja, að
þeir greiddu atkvæði á móti sjálf-
um sér í leiðslu.
En þá varð hlátur í herbúðum
hinna, og ég hló líka, því ég sá,
að þeir voru í meirihluta.
En á|ður en hinir höfðu náð sér
aftur og hafið bardagann á ný,
voru kosningaúrslitin kunngerð og
fundi sagt slitið.
C. P. R. félaginu þóknast að láta
^ gera það, og hverjum það felur
verkið á hendur, er ennþá óvíst ;
en vonandi, að þvri verki verði lhk-
ið á þessu sumri.
Byrjun þessarar brautar hefir
haft þau áhrif nú þegar að lönd
eru að hækka í verði, og nokkurir
hafa þegar látið lönd sín fjúka. —
Ný-lslendingar ættu ekki að hraða
sér um of, að selja lönd sín, þótt
þeim finnist vel sé boðið í þau,
því innan fáera ára verða þau
komin í 2K5-falt meira verð enn
nú er boðið í þau. Ný-íslendingar
hafa lengi beðið með þolinmæði og
þrautsegju, og þeir ættu að bíða
ennþá 2—3 ár, og sjá hvað löndin
stíga í verði ; þvi áreiðanlega
stio-a þau mest í verði, þegar járn-
brautin er komin í starfrækni og
hún er biiin að vera það í fáein
ár. þetta er að eins bending til
fanda minna, og lauslega sýnt, að
þeim liggur ekki á að selja, því
löndin stíga ár frá ári, en falla
ekki í verði.
Ég hraðaði mér heim til kon-
unnar minnar, og ætlaði að segja
henni tíðindin, en hún svaf þá sem
skata, og hafði kattarskratta í
holunni minni. Hafði hann krækt
klónum í náttkjól hennar og svaf
vrært sem hún. Eg þorði ekki fyrir
mitt auma líf, að taka kysa í
burtu, því ég var hræddur um, að
konan mín mundi vakna, — og þá
vissi ég, hvað ég myndi fá.
Ég settist því niður í kjafta-
stólinn og reyndi að sofna, en er
það tókst ekki settist ég við skrif-
borðið og ritaði ofanskráð um
þennan merkilega fund.
Að því loknu skreiddist ég upp í
hjá konunni minni, því kysi var
þá farinn, og sofnaði.
En ég vaknaði við það, að ná-
grannakona mín var að Ijúga
kerlingu mína fulla af fregnum frá
fundinnm.
Af reynslunni vissi ég, að þa£5
var jjýðingarlaust, að fara að
segja konunni minni sannleikann,
eftir að vinkona hepúar hafði stút-
fvlt liana af lýgi ; og biö cg því
IIei.mskringlu fyrir þessa lauk-
réttu frásögu af fundinum.
Jerimías Zakaríasson.
Fréttabréf frá Árdal.f
Iláttvirti ritstj. Ileimskringlu :
Hin margþráða járnbrautar
framlenging norður frá Gimli til
Riverton er nú komin það á veg,
að búið er að mæla brautarstæð-
ið. því var lokið þann 29. ma’, og
stóð verkið yfir í mánuð. Ég hafði
umboð til að flytja mælingamenn-
ina áleiðis norður. Yegstæðið er
frekar slétt o,g greiðfært. 'fvacr
brýr þarf að byggja á leibinni ;
aöra vfir svronefnda Árnesá og
liina yfir Fljótið. Vegstæðið liggur
aðallega eftir þjóðveginum, en
beygir þó lítið eitt til vesturs ná-
lægt Eyjólfsstöðum. Yegstæðis-
mælingin er 26 mílur, nefnilega frá
Gimli og norður í Riverton bæjar-
stæði. .
Margt mætti fleira segja um
framtíðarhorfur Nýja íslands, en
vregna tímak-ysis og annara á-
stæðna, lætéég hér staðar numið í
bráðina.
Tryggvi Ingjaldsson.
Geysir pósthás
Bændafélagsfundur var haldinn í
Gevsirbygð 14. maí sl. Eitt af
malum þeim, sem áar komu til
umræðu, var viðvíkjandi Geysir
l’.O. það póstaígreiðsluhús hefir
italdið hr. Sveinbjorn P.álsson, sem
hefir sagt upp þeirri stööu. Geysir
pósthús er yfir 20 ára gamalt, og
þekt yfir alt Canada og víðar. —
Bygðarbúum er afar ant um, að
pósthúsið geti haldið áfram, en
vegtia Iág.ra launa póstafgreiðslu-
mannsins, virtist enginn í bygðinni
vilja taka að sér þessa stöðu. Var
þá skorað á hr. Sigurð Nordal,
velþektan og góðan mann, að taka
að sér þessa stöðu, en hann var
þess ófús. Um lleiri var talað i
nágrenninu, en allir voru sam-
róma um, að launin væru of lág.
Nú er það sameiginleg ósk allra í
Geysirbygð, aö hr. Sigurður Nor-
dal tæki pósthúsið að sér, af því
liann býr í miðpunkti bygðarinnar
— en sé hann ófáanLegur, að veröa
við þessari ósk sveitunga sinna,
þá er hér bent á tvo menn, sem
búa veStar í iniðri bygöinnii þeir
eru : hr. Tómas Björnsson og hr.
I’áll Ilalldórsson, sem báöir eru
fyrir menn, að leysa verkið vel af
hendi.
þetta er sameiginlegt mái allra
bvgðarmanna, og er engin undan-
færingin, ^ið taka þetta mál til al-
varlegrar umræöu og framkvæmda
eins fljótt og hentugleikar leyfa,—
því sú vanvirða má ekki spyrjast,
að þetta pósthús íslendinga sé
lagt niður, eftir starfsemi í meira
enn 20 ár. þetta mál er fallið á
hendur bygðarbúum i Geysirbygð,
og verður af mér og öðrum sótt í
það ýtrasta. >
j
Geysis-búi.
Mælingamennirnir voru æfðir og
duglegir tnenn, og því gekk mæl-
ingin svona fljótt.
Aths.—þessi grein átti að vera í
síðasta blaði, en kom of seint.
Ritstj.
Eftir er að höggva og ryðja
timbri af vegstæðinu, og er það
ósk og vifji bygðarbúa, að það
verði gert hið bráðasta. Ég hefi
gert íboð í þetta verk, en hvenær
JÖN HOLM, gullsmiður á Gimli
gerir við allskyns gullstáss og býr
til samkvæmt pöntunum. — Selui
einmg ágæt gígtarbelti fyrir $1.25.
Sherwin - Williams
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningn.
Prýðingar-tfmi nálgast nú.
Dálftið af Öherwin-Williams
húsm&li getur prýtt húsið yð-
ar utan og innan. — B rú k ið
ekker annað mál en þetta. —
tí.-W. húsmálið málar mest,
endist lengur, og er áferðar-
fegurra en nokkurt annað hús
mftl sem búið er til. — Komið
inn og skoðið litarspjaldið,—
CAMERON & CARSCADDEN !
QDALITY IIAKDWARE *
Wynyard, - Sask. •
f-l-H-H-l-l-i-H-i-l-i-i-M-i-i-i:
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
3
Y1EITIÐ
ÞÉR l LAN
I*J
Ef svo, þá tryggið hags-
muni yðar með þvf að ger-
ast áskrifandi að “Dun’s”
Legal and Commercial Re-
cord.
Allar upplýsingar veittar
er óska.
R. G DUN&CO.
Win/upeg, Man.
9-5-?.
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□c
S.D.B.STEPHANSON
Fasteignasali.
LESLIE, - SASK.
Ræktaðar bújarðir til sölu
með vægu verði og góðum skil-
tnftlnm. TJtvega lán mót veði f
fasteignum. A g e n t fyrir Lffs
og Eldsftbyrgðar félög.
PAIÍL BJÁMSON
* FASTEIGNASALI
i—— * m-
SELUR ELDS- LÍFS- OG
SLYSA- ABYRGÐIR OG
ÚTVKGAR PENINGALAN
WYNYAKD : : SASK.
KLONDYKE HÆNUR Klondyke hæna verpir 250 eiígjura á ári, íiöriö af Deim er eins og bezta nll. Verö- mætur hænsa bæklingur er lýsir Klon- dyke hcvmnn veiöur sendur ókeypis hverjum sem biöur þess. Skrifiö; Klondyke Ponltry Ilnnch MAPLE PARK, ILLINOIS, D. S A.
Sagan af Naton persneska 5
einum, og er því líkast, að hvorki hún né ég sé af
háum stlgum komin’.
Dvalin svarar : ‘það kann ég þér að segja, að
mógir þín er kongsdóttir, og þú, eig-i einasta kongs-
son, heldur og arfborinn til tveggja’ miklugra kongs-
ríkja. Móðir þín er einbirni Gylva kongs af Sýr-
landi, en þú réttur erfingi Sóars kongs i Persíu’. —
Innir hann honum nú alls af ástandi móður hans.
Fellur Naton hér af í mestu forundran og harm-
ar mjög raunir móður sinnar. — þá mælti Dvalin :
‘Viljir þú, kongsson, þiggja tillögur mínar og hlýða
minni forsjá, þá skal ég vera með þér í ráðum, og,
legg»ja fram þaðl ég má’.
Naton bað hann hafa þökk fyrir og kvaðst það
þicrgja vilja. — Mælti þá Dvalin : ‘Strax á morgun
skalt þú taka orlof af móður þinni og fóstra. Svo
skalt þú héðan ganga í suður til sjávar. Liggur
þar við land á fimm skipum sonur kongsins af Cap-
padosía, er Salander heitir. Hann er mikill kappi og
drengur góður. Kom þú þér í sveit hans og \ it svo
hversu til vill takast. En vitja máttu mín nær þér
á liggur. Kann ég þér það að segja, að Gylva,
móðurfaðir þinn, hefir þrisvar herjað á föður þinn,
og viljað hefna dóttur sinnar ; — en jafnan hefir
hann heðið ósignr og orðið að flýja- þó hefir hann
enn í hyggju eftir tvö ár, að byrja þangað herferð
á ný. En herklæði þessi skaltu jafnan bera, og
munu þau þér happasöm verða. Hér er og einn dúk-
ur, er þú skalt um þig vefja. Muntu þá ei mæðast
á sundi, né særast í orustum. Og farðu nú heill og
vel’. _ KveðurNaton síðan karl og heldur heimleiðis.
þegar til bæjar kom, kallar hann móður sína á
tal, biður hana að segja sér ætt sína og uppruna.
Hún gerði svo, og bar það alt saman við það, sem
Dvalin hafði sagt honum. — þá mælti Naton : ‘því
sagðir þú Inér þetta eigi fyr, mó6ir ?’
6 Sögusafn Heimskringlu ^
Móðir hans svarar : ‘því éo- óttað st það, er
nú mun verða, að þú munir hér eigi fengur una, þá
þú fengir aö vita ætt þína og óðal’.
Ilann svarar : ‘Rétt lieyr þú þar til getið, því
strax á morgun vil ég héðan fara og vita hvað fyr-
ir mér liggur’.
‘Svo mun verða að vera’, segir hún, ‘þó mér
þyki mikið fyrir að sjá af þér’.
Naton gengur þá næst til fóstra síns og segir
honum fyrirætlun sína. Varð hann dapur við þá
fregn, en kvaðst þó eigi vilja tálma áformi hans. —
Taka þær nii að búa hann af stað. Og að morgni
komandi, er hann var ferðbúinn, kvaddi hann móðii
sína og mælti:
‘þess vil ég biðja þig, móðir, að þú dveljir hér
kyr, svo ég eigi ætíð víst, hvar þig er að hitta’. —
Húa kvaðst svro mundi gera. Bað honum grátandi
allra virta, ojr gekk siðan mcð Gerði harmþrungin i
bæinn.
J
IV. KAFLI.
Nú fylgdi Njótur Naton lang<t á leið. Og áður
en þeir skildu mælti hann : ‘Lítið lið má ég þér
veita, en tígulhníf þennan skaltu þiggja, og ber þú
hann jafnan á linda þér og kann hann þér þá eitt-
hvert sinn að gagni koma. ar nú heill um tíma
alla’.
Hér eftir skilja þeir, og gengur Naton nú leið
síiía fram undir kvöld. En á liðnum degi kemur
hann fram á nes eitt. Sér hann þar fljóta á vogi
fimm skip og mannfjöldi á landi, sem er þar að leik-
um. Naton sér, hvar maður situr á stóli í rauðum
i aUíLl
Sagan af Naton persneska 7
«
silkihjúp með gullroðinn hjálm á höfði, mjög tigiileg-
ur. — Naton gengur fyrir hann og kveður hann
virðulega. Hann tók kveðju hans.
Naton mælti : ‘Ilyer er þessi veglegi riddati ?’
Ilinn svarar : ‘Salander heiti ég, sonur kongsins
af Cappadosíu. Og ræð ég fyrir skiptim þessunt. —
En hvert er nafn þitt og erindi á vorn fund?’
‘Naton heiti ég’, segir hann, ‘lausingi einn af
landi ofan. Vildi ég koma mér í sveit annara manna
og afla ntér svo fjár’.
Salander mælt : ‘Ertu nokkur íþróttamaöur
eða röskur til vopna?’
‘Eigi má ég það vita’, svaraði Naton, ‘því ald-
rei hefi. ég vopn brúkað, né mannsblóð séð. Er ég
bóndason, sem efgi hefi öðru vanist en gæta fjár og
gefa svínum fæðu’.
‘Vera kann að svo sé’, niælti Salander, ‘en eigi
verður þú mér lítill fyrir augum. Hefir þú eigi
bóndalegt yfirbnagð, og skal ég að vísti við þér
taka’.
Naton bað hann taka þökk sína. Var nú gengið
til borða og eftir það til náða. — Um morguninn
býður Salander þeim að svifta tjöldum og halda til
skipa. ‘Munuin vér’, segir hann, ‘halda undir Ind-
landsskaga. þar er von þess manns, er Greipur heit-
ir. Er hann illur viðureignar og víkingur mesti. Hef-
ir hann herjað á ríki föður míns og á ég honum
hefndir að gjalda’.— Halda þeir nú Ttil skipa, vinda
upp segl og halda til Indlands. Og er þeir þar
komu, sjá þeir fyrir sér fimm skip og dreka það
sjötta. þá mælti Salander : ‘Nú skulu menn til
bardaga búast ; en ef þú, Naton, ert óvanur orust-
um, máttu vera undir þiljulnl niðri, ojf haf þig eigi í
neinni hættu’.
‘Heldur vil ég standa með félögum mínum’,
mælti Naton, ‘en að liðsmenn bregði mér um hug-
8 Sögusafn Heimskringlu __________________
F i*i-*!fi!^ I ’■'*•**» "* '* u :
levsi’. Gcngtir hann þá brott, en kemur aftur bráð-
lega. Er hann þá klæddur í svo traust og fögur her-
klæði, að þeir þóttust aldrei slík séð hafa. þá mælti
Salander : ...
‘Eigi hefir sá húsbóndi verið fésínkur, er þér hef-
ir goldið slik herklæði í gæzlulaun svína’.
‘Oft koma af svínum höpp’, mælti Naton, ‘og
gera menn oit verðugleikum betur’.
Nú sér Gr.eipur skipin, sem að koma, og bað nú
menn sína að vopnast. Tókst nú áköf orusta mæð
ópi og eggjan. Sjá menn Salanders, að Naton kann
sv.erði að beita, því hann veður í gegn um lið heið-
ingja og heggur á hendur tvær, svo ekkert fær við
staðist. — Salander berst og fræknlega og Tellir
m;trgan mann. Sér m't Greipur, að lið hans ellur
lirönnum. Tryljist hann þá, æðir öskrandi fram,
eggjandi rnenn sína með ógnar-hljóðum. Verður nú
áköf orusta og fellur margt Salanders manna, svo
að á stuttum tíma vortt þrjú skip hans hroðin. —
I>á mælti Naton viö Salander : ‘Við skuluim ráða
til uppgöngu á drekann’. Svo gera þeir. Renna
þeir upp stafnljáina og komast upp. Verður þar
hörð sókn, og sækja þeir með sínu borði hvor aftur
eftir þilfarinu. þetta sér Greipur og æðir fram móti
Salander. Hygst þá ’ kongsson að höggva til vík-
ingsins, en í því fellur maður' fyrir fætur honum,
svo hann hrasaði við. Greipur hygst að tvíhenda
sverðið í höfuð homnn. þetta sér Naton,, æðir fram
og leggur til Greips ; kom höggið á öxlina og sneiddi
búkitjn að heltisstað. Lét Greipur þar líf sitt.
Eftir þetta gáfust víkingar upp og háðust griða.
Tóku þeir þá öll skip Greips og fertgu þar ógrynni
fjári
þá mælti Salander til Natons : ‘Fyrir þá frægð
og liðsinni, er þú mér sýndir, i skaltu eignast allaa
helming fjár og skipá móti mér. Og skulu allir