Heimskringla - 06.06.1912, Side 7
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. JÚNt 1912.
7. BLS,
íslands fréttir.
Utnræðufundur um kolamálið
var haldinn nýverið í fél. ‘Pram .
Málshefjandi var Ilannes Hafstein
bankastjóri o» flutti hann langt
erindi um máliði og færði fram
varnir fyrir tíllögum skattanefnd-
arinnar. Næstur honum talaði
próf. Lárus H. Bjarnason, og tjáði
hann sig mjög andvígan nefndar-
álitinu. Haiði hann góðar vonir
nm, að takast mætti, að kippa
fjárhag landsins í lag til storra
muna með margs- konar Siparnaði,
og nefndi til þess ýms dæmi. Loks
gerði hann margar fyrirspurnir til
nefndarinnar, Og varð þá Klemens
landritari Jónsson fyrir svörum.
Auk þessara manna töluðu þeir
þórður Bjarnason verzlunarstjóri,
Jón þorláksson verkfræðingur og
voru þeir báðir mótfallnir tillög-
um nefndarinnar. Jón þorláksson
lauk máli sínu á þá leið, að ís-
landi gæti staðið háski af ýmsum
þeim ákvæðum frumvarpsins, er
snertu aðrar þjóðir. Hann tók til
dæmis, að Norðmenn væru nú
farnir að vinna kol á Spitsbergen,
og lagði hann fram skilríki fyrir
því, að það væri von þeirra, að
þau kol gætu kept við ensk kol á
íslenzka markaðnum. þess vegna
væru líkindi til, að þeir mundu
mótmæla slíkri lagasetning í
Kaupmiannahöfn og viðlika mót-
mælum gætum við búist við frá
fleiri þjóðum. Mundi slíkt gefa
andstæðingum íslands í Danmörku
átyllu til, að gera alt, sem þeir
gætu til þess að spilla fyrir sjálf-
stæðismáli voru.
— Frá Eyjafirði segir Norður-
land, að nú gangi 16 þilskip til
þorskveiða. Skipin lögðu í fyrsta
skifti iit um og eftir 20. marz.
— Bæjarstjórn Rvíkur samþykti
nýverið, að taka hafnarlánið hjá
bönkum hér og dönskum bönkum
gegn 6 prósent vöxtum. Annað
lánstillboð með lægri vöxtum —
frá Englandi — var felt. Skilmál-
arnir þóttu þar óaðgengilegri.
4 _ Nýtt hlutafélag er myndað í
Rvík fyrir nokkru. það hefir þegar
leigt veitingasafi Hótel íslands, og
aetlar að sýna þar lifandi myndir,
Kaffisölu verður því hætt þar, en
gistisölu og, matsölu haldið áfram.
— Fjórar sögur eftir séra Jónas
Jónasson hefir Margrét Löbner
Jörgensen þýtt á dönsku og Gyl-
dendal gefið út. Sögurnar, er hafa
verið þýddar, erti : Brot úr æfi-
sögu og Gletni lífsins (báðar úr
Tðunni). Eiðurinu (úr Eimreið-
inni og Hnngurvofan (úr þjóð-
ólfi). — Einkennilegt er það, að
fyrsta bókin eftir séra Jónas með
sögum hans, kemur ekki út á ís-
lenzku. Islendingar verða að tína
þær satnan úr mörgiun ritum. —
það bendir á, að bókaverzlun
vorri sé eigi sem bezt háttað. En
ætli þetta geti ekki vakið bóksal-
ana.
— Kalksteinsgerð í Sauðlauks-
dal. Séra þorvaldur Jakobsson á
Sauðlauksdal hefir nj'skeð, að
fengnu samþykki ráðherra íslands,
veitt Pétri konsúl Ólafssyni á Pat-
reksfirði og Guðm. sýslumanni
Björnssyni á Patreksfirði, einka-
ré.tt — um 50 ára skeið — tii þess
að taka Skeljasand í Sauðlauks-
dal, og vinna úr honum kalkstein
eða önnur efni.
— Islenzka orðabókin, sem al-
þingismaður Jón Ólafsson hefir
haft í smíðum, er nú í prentun, og
á í vor, eða sumar, að koma út
25 arka hefti í 4. blaða broti, en
áframhaldið er svo áformað að
kómi út smámsaman á næstu ár-
um,
— Aðfaranótt 20 apríl strandaði
enskur botnvörpungur í grend við
Sólheimasand í V.estur-Skaftafells-
sýslu, — fyrir vestan mynni Jök-
ulsár á Sólheimasandi. Skipið
rakst á sker og brotnaði að mun.
Talið er líklegt, að skipverjar hafi
komið sér í skipsbátinn, en allir
farist. Nafn skipsins er ‘‘Kingfish-
et”, og var það frá Hull.
— Sláturfélag Suðurlands hélt
nýlega aðalfund sinn að þjórsár-
túni í Rangáráallasýslu. Félagið
hefir nú í huga, að koma sér upp
írystivélum.
— Hús brann í Keflavík i Gull-
bringusýslu 14. apríl. 1 húsi þessu
Var rekin verzlun, og brann þar
inni talsvert af vörum, eign Vilh.
Chr. Hákonarsonar. Bæöi húsið og
vörurnar kvað hafa verið í elds-
.voða-ábyrgð.
— Á Borg í Skötufirði við tsa-
fjarðardjúp brann til kaldra kola
apríl íbúðarhús bóndans þar, Lár-
usar Magnússonar. H'eimil sfólkið
var alt í svefni, og varð ekki elds-
ins vart fyr en hann hafði læst
sig um alt húsið, og slapp fólk út
með naumindum.
— Akveðið er, að prestastefna
norðlenzkra presta verði sett að
Hólum i Hjaltadal í Skagafjarðar-
sýslu 30, júní næstk.
— Afli áreykvíksku botnvörp-
ungana hefir v.erið ágætur. þessir
botnvörpungar eru nýkomnir inn :
A. G. með 20,000, Bragi með 43,-
000, Skúli fógeti með 22,000,
Skallagrímur með 26,000, íslend-
ittgur með 18,000, Hrómundur Jó-
! sefsson með 25,000 og Guðtti, Sig-
urðsson með 27,000,
— Áformað er, að Hrísey í Eyja
firöi v,erði bráðlega komið i síma-
' samband. Veitti sýslunefnd Eyfirð-
inga hreopsnefndinni í Árskógs-
hreppi í þvi skyni nýskeð 3000 kr.
lántökuleyfi.
— Silfurberg hefir nýlega fundist
í Hvallátrum, eyju á norðanverð-
um Breiðafirði. Hvort hér er um
mikið silfurberg að ræða, eða eigi,
er þó eigi kunnugt, enda mun það
enn eigi rannsakað til hlýtar.
— Úr Rangárvallasýslu er skrif-
Nað 13. apríl : “Veturinn hefir ver-
ið eitimunagóður, — elztu menn
muna ekki annan slíkan —, og eru
heybirgðir og fénaðarhöld því í
góðu lagi. Um bænadagana gerði
dálítinn snjó, og var svo í viku
hæg landátt með frosti, en á fimtu
daginn var kom hláka og hefir
síðan verðið sunnanátt og hlýtt
veður. — Engin almenn fyrirtæki
eru nú á prjónum hér um sveitir,
en hinsvegar starfa menn almikið
; að jarðabótum, og allmargir bænd
ur hafa fengið sér ýms búnaðar-
j verkfæri, svo sem sláttuvélar,
1 plóga, herfi o. fl. Mönnum er nú
| farið að skiljast það, ■ að bættar
aðferðir við jarðræktina og bætt
meðferð á fénaði er undirstaða
búnaðarframfaranna, og þá fyrst
standa búin á föstu grundvelli,
þegar heyfengurinn er mestallur af
ræktuöu landi og allar skepnur
eru fóðraðar svo vel, að þær geri
| fult gagn”.
— Bændanámsskeið var
haldið á Eiðum dagana 15.—22.
febrúar siðastliðinn. — Sátu það
kringum 90 manns. — Erindi
j fluttu þar Metúsalem skólastjóri
Stefánsson, Benedikt Blöndal kenn
| ari, Benedikt Kristjánsson ráða-
' nautur, Guttormur Pálsson skóg-
vörður á Ilallormsstað, Guttorm-
ur Vifrfíisson í Geitagerði, Jónas
Eiríksson á Breiðavaði og Ólafur
læknir I.árusson á Eiðum. Voru
að jafnaði flutt 4 erindi á dag. —
j Málfundir vortx haldnir síðari
hluta dags, alla dagana, og þar
rætt m.a.: um berklaveikis rann-
sóknir á kúm, landbúnaðarlöggjöf,
lýðfræðslu Og bókasöfn. Var sam-
! þykt að gera ráðstafanir til út-
' rvmingar verklave.ikishættu þeirri,
j sem stafar af sjúkum kúm, og skor
að á Búnaöarsamhand Austur-
lands, að hefjast handa í þvf efni.
Einnig kosin nefnd til að koma
! fram með tillögur viövíkjandi
landbúnaðarlöggjöfinni, og skyldu
|j*r leggjast fyrir þingmálafundina
í vor. — Talið var nauðsynlegt,
að koma upp lýðskóla í Iléraði, og
j kosin nefnd til að hlutast um, að
skólanefnd búnaðarskólans á Eið-
j um legði það til við sýslunefndir
Múlasýslnanna, að þær kemu upp
! slíkum skóla á Eiðum. — Um
bókasöfn var samþykt svohljóð-
j andi álvktun :
‘‘Fundurinn álítur : í fyrsta
lagi : Að góð og velvalin hrepps-
bókasöfn séu mikilsverð menning-
arfæri, og beri því að koma þeim
j á fót á sem ílestum stöðum.
1 öðrit lagi : Að fyrirkomulag
I fjórðungsbókasafnanna ætti að
vera þannig, að úr þeim sé sér-
staklega að fá þær bækur, sem
eru ofurefli hreppsbókasöfnunum
aö stærð og dýrleika. Telur hann
mega ná því með auknu tillagi úr
landssjóði.
t þriðja lagi : Að æskilegt væri
aö Búnaðarsamböndin kæmu sér
smátt og smátt upp búnaðarbóka-
söfnum, er stæðu meðlimum
þeirra opin til afnota”.
Nokkur fleiri mál voru tekin til
meðferðar, en þessi hér töldu
skifta mestu. — Námsskeið þetta
fór hið bezta fram, og varð þeim,
er sátu, til gagns og skemtunar.
Kvað Og einn bóndinn fast að þvl,
hve heilsusamlegt það væri, að
geta svona lyft sér upp úr vetrar-
drunganum og deyfðinni, með því
að eiga kost þess, að sækja slík
námsskeið — sér til uppbyggingar.
Vorvísur.
Sungnar í sumargildi stúdenta.
24. apríl 1912.
Kæra vor, þú blessar enn bæinn.
Börnin taka kát þína hönd.
þú tókst með þér sunnar yfit sæ-
inn
sólskinskvöld og blóm á fjalla
strönd.
Tíndu til hvern geisla, sem þú
getur,
gefðu hverjum bros í augu sín.
Ilvernig ættu að vaka heilan vetur
vonir okkar, nema bíða þín ?,
Flýt þér nú, að dreifa blómum
dalinn,
dragðu’ að efstu brún hin nýju
tjöld,
leiddu’ á bláa bogann yfir salinn
bjarta morgna’ og roðafögur ,
kvöld.
Láttu glaða sönginn öllum óma,
örva sumarhug og létta spor.
Enginn veit við nýrrar Hörpu
hljóma
hverir stíga dansinn næsta vor.
Ileilum vetri, þótt hann væri
þungur,
þevta má á einni sumarnótt.
Gáttu’ í leikinn — þá ertu’ enn þá
ttngur.
Út í hornið kemstu nógu fljótt.
Glaða vor, við þurfum blíða blæ-
inn.
Börnin vona, þegar sólin skín.
Fífill kemur. það er bros í bæ-
inn :
blessuð fagra sumargjöfin þin.
þ. E.
Sundurlausir þánkar.
EPTIK AÐ HAFA HLUSTAÐ Á
Elbert Hubbard.
Ilver sá, sem útrýmir hatri, öf-
ttnd og ótta úr lífi sínti, verður
mikilsvirtur, í hvaða stöðu sem
liann er. Hið góða hlutskifti verð-
I ttr hans. Lífsgæðin streyma til
hans.
Máttur verðttr hans, sem með
j hann kann að fara. Elska er hið
liæsta og voldugasta form máttar.
Öðlist maðurinn nokkurntíma ó-
endanlegan kraft, verður hann
fvrst að öðlast guölegan kærieika.
Til að losast tir böndum sjálfs
og öðlast fult frelsi, þarf mefra en
að taka gott taumliald og ákveða
að breyta rétt. Annars þarf frekar
— en það er, að gleyma öllu nema
verkinu. Sé það áforrn, að vera
sannur og réttur, þarf ekki að ótt-
ast, að útkoman verði önnur en
rétt.
Himnaríki og helvíti eru ekki
staðir eða stöður, heldur ástand
hugarins.
Sú var tíð, að vinna þótti plága
og bölvun. Nú er öldin önnur. Nú
finnum vér ljóslega, að starfsnauð-
synin er dýrmæt gjöf. Sönn á-
nægja er það, að nota starfskrafta
sína á gagnlegan hátt. Sá, sem
forðast starfið, fær heldur ekki
launin.
Vér erum að vakna til meðvit-
undar um, að samvinna er betri
en kepni. Vér þurfttm hvers ann-
ars við ; og gefandi mikið, verðum
vér einnig móttakendur mikils.
Alt, sem vér látum af hendi rakna
hefir sín gjöld. Gef kærlejk og kær-
leikur verður þinn. Vér töpum ein-
mitt þvi, sem vér þrifum og höld-
um fast í.
þá þrifumst vér hezt, er vér
þjónum ; en ekki skvldum vér
þjóna sem áhangendur. H'vers og
eins tilvera er sérstök og óháð.
Mentun og mentastofnanir nú-
orðið heimta meira en v.erðlaun
og próf-stafi. Meir og meir er það
að verða spursmálið : Hvað get-
urðu gert ? Ekki ; Hvað hefirðu
lært ? Með timanum verður ment-
un án notkunar að eins lítilsvirð-
ing. Sá, er bezt mentaður, sem
mest af hendi leysir. Og hin sanna
reynsla mentunar er það : hver
er bezti þjónninn.
Taktu á þig enga króka til að
gera öðrtim gott. þess gerist ekki
þörf. Vinn bara samvizkusamlega
að þvi, sem fyrir hendi liggur. —
þeim, sem gera það að starfi, að
gera gott og hjálpa, hættir til að
amast við öðrum með sömu
stefnu. Sjálfsfórn og sjálfsafneitun
eru alls ekki nauðsynleg.
Bara að hugurinn ljómi af vel-
vild Og kærleika, þá sjá verkin fyr-
ir sér sjálf. Hugsun um að gera
gott, þarf ekki frekar við en hugs-
un um meltinguna.
Vertu alls ekki angraður út af
sál þinni. Sé hún þess virði, að
gevmast, týnist hún varla sem
prjónn undir kistu. Gleymdu hentti
Vinn að verki þínu. Hugsaðu
fagrar hugsanir. Og hið illa, sem
er hið vanheilaga og óeðlilega,
hverfur eins og þokan fyrir geisl-
anum.
H.F.B.
1 TÓMSTUNDUNUM
t>AÐ ER SAHT, AÐ MARGT
megi gera sér og sfnum „til gdðs
og nytsennls, f tómstundunum. Og
það er rétt. Sumir eyða öllum
sínum tómstundurn til að skemta
sér; en aftur aðrir til hins betra;
að læra ýmislegt sjálfum sér til
gagns í lffinu. Með þvf að eyða
fáum mínútum, i tómstundum, til
að skrifa til HEIMSKRINGLU
og gerast kaupandi hennar, gerið
þör ómetanlegt gagn, — þess fleiri
sem kaupa þess lengur lifir fs-
lenzkan Vestanhafs.
ík.
\
i f
\ Ég undirritaður hefi,til sölu ná-
lega allar íslenzkar bækur, setn til
eru á markaðinum, og verð að
hitta að I.undar P.O., Man.
Sendið pantanir eða finnið.
Neils E. Hallson.
JÖN JÖNSSON, járnsmiður, aC
790 Notre Dame Ave. (horni Tor-
onto St.) gerir við alls konar
katla, könnur, potta og pönnui
fyrir konur, og brýnir hnífa og
skerpir sagir fyrir karlmenn. —
Alt vel af hendi leyst fyrir litla
+
+
Prentun
VÉR NJÓTUM, sem stendur, viðskipta margra
Winnipeg starfs- og “Business”-manna,—
En þó erum vér enþá ekki ánægðir. —
Vér viljum fá alþýðumenn sem einatt notast við illa
prentun að reyna vora tegund. — Vér ábyrgjumst
að gera yður ánægða. — Sfmið yðar næstu prent.
pöntun til —
PHONE GkAERIRT 334
fZ
* OKEYPIS BOK UM
MANITOBA
AKL RYRKJU og innflutninga deildin mælist til
samvinnu allra fbúa fylkisins til þess að
frygKja faðsetur í þessu fylki, nokkurs hluta
þeirra mörgu innflytjenda sem nú koma til
Vestur-Oanada.
Þetta fylki veitir duglegum mönnum óviðjafnanleg
tækifæri. Hér eru þúsundir ekra af ágætu landi til
heimilisrettartöku ásamt með stórum land svæðum sem
fást keypt á lágu verði.
Margar ágætar bættar bújarðir eru fáanlegar til kaups
me3 sanngjörnu %-erði, og aðrar bújarðir fást leigðar gegu
peninga borgun eða árlegum hluta uppskerunnar.
Gróða möguleikinn f Manitoba er nákvæmlega lýst í
nýju bókinni, sem akuryrkju og innflutninga deildin hefir
gefið út og sem verður send ókeypis hverjum sem um
hana biður.
Allir þeir sem láta sér annt um framfarir Manitoba
ættu að senda eintak af bók þessari til vina sinna og ætt-
ingja f beimalandsins, ásamt með bréfi um lfðan þeirra og
framför hér. Slík bröf ásamt með bókinni um “Prosper-
ous Manitoba” mun suglýsa þúsundum komandi inn-
flytjenda kosti þessa fylkis.
Skrifið f dag eftir bókinni til undirritaðra sem svo
senda yður hana tafarlaust,
é
J. J. OOLDEN, Deputy Minister of Agrículturt, Winnipeg,Manitoba
JOS. BXJRKE, 178 Logm Aienve. IVinnipeg, Manitoba.
JAS. HARTNET, 77 Tork Street, Toronto, Ontario.
J. F. TENNANT. Oretna, Manitoba.
W. IV. UNSWORTH, Einerson, Manitoba; og allra, vmboðsmanna
Dominion stjómarinnar vtanríkis.
MeO þvf aO biOja nflalega mn
‘T.L. CIGAR,” þá ertu viss aö
fá ágœtaa vindil.
T.L.
(CMON MADE)
Western Ulgar Factory
Thomas Lee, eÍKandi Winnnipea
r~
Tlie Winuipeg SafeWorks,
LIMITED
50 Priucéss SL, Winnipeg
VERZLA MEÐ
Nýja, og brúkaða öryggis skápa [safes],
Ný og brúkuð “Casli Registers”
Verðið lágt, Vægir söluskilmálar,
m
L
VÉR BJÓÐUM YÐUR AÐ 8KOÐA VÖRURNAR.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ 2
♦ \/ITUR MAÐUR er varkár með að drekka ein- 5
* göngu hreint öl. þér getið jafna reitt yður á. «
! DREWRY'S REDWOOD LAGER "
þaB er léttur, frey 6andi bjór, gerfiur eingöngu 4
úr Malt og Hops, Biðjið ætíð um hann.
♦
♦
«
4'
»??♦???»????»«????»?? ???????????????????^
E. L. DREWRY, Manufacturer, WINNIPEG.
©
A LDREI SKALTU geyma til
morguns sem hægt er að gera
f dag. Pantið Heimskringlu f dag.
♦
-f
4
-f
-f
+ . THE ANDERSON CO.
+ T PROMPT PRINTERS
♦ 555 Sargent Ave. Winnipeg, Man. -f
+-f-f-M-f-H+-f-M-f-f-f-M-f-M-M-f-f-f-f-M-Mf-f-f-f-M-M-f-f-M-M
^AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^A
-H-I-I-I-H-I-I-I-H-H-I -HH-PUHi
STRAX
í dag er bezt að gerast kaupandi
að Heimskringlu. Það er ekki
seinna vœnna.
rH"I-W-H"IMI"H"H"I"H-I"H"H"þ rl-H-H-H. I H-H n II I I I !■ Hi