Heimskringla - 21.11.1912, Side 7
'éééééééééééééééééé éét
HEIMSKB.I V GL A
WINNIPEG, 21. NÖV. 1912.
r. BLS.
ATHABASCA
Vöxtux Athabasca er hraðskreiðari en vinnukraftur og
byggingaefni leyfa. tíéi skulu nefndar nokkrar bygg-
ingar, sem eru 1 smfðum ogftætlun um verð f>eirra:
ínnflyténdahöll §10.000, Bank of Commerce Í10.000,
Imperial Bank $8,000, Hudsons Bay-búðin $35,000, þrjfir
business blokkir $10,00, ISkóli $40,000. Yfir hundrað
ibúðarhús vafnsleiðslu og holræsa gröff er kosta yfir
$150,000—darðgas er nö farið að leiða inn f húsin.
Verð ft fasteignum flýgur upp. Nú er timinn til að
kaupa lóðir frá $200 og upp, 8kilmfilar handhægr.
Finnið mig, eða skrifið sem fyrst til;
S ARNASON,
310 MclNTYRE BLOCK - - WINNIPEC.
Kornyrkjumenn!
Korny.rkjendur Vesturlands-
ins, hver er skylda yð-
ar gagnvart GRAIN GROW-
BRS GRAIN COMPANY?
Vér höfum nú í varasjóði
260,520.50 með uppborguðum
$600,000 höfuðstól, og auk
þess sem vér borgum hlúthöf-
iúm vorum viðunanlega árs-
veixti, þá höfum vér á sl. 6
árum gefið um $40,000 til
Western Grain Growers Asso-
ciation, og annara mentalegra
starfa meðal bændanna.
Ef kornið, sem veitt hefir
þennan gróða, hefði verið sent
til annara félaga eða umboðs-
sölumanna, þá hefði hagnað-
urini;, sem hluthafarnir liafa
fengið, og gjafirnar til korn-
yrkjufélaganna, gengið til þess
að auðga prívat umboðssala
kornverzlunarmenn.
Auk þessa höfum vér skap-
að samkepni í kornverzlan-
inni, sem ekki hefði fengist á
neinn annan hátt. Útflutning-
ur vor á korni hefir gefist vel
í að halda Winnipeg prísum á
korni í hámarki þvi, sem
framboð og eftirspurn veitti
bændum rétt til að njóta.
Gætið þess, að á þessu ári
hefir fjöldi umboðssölufélaga
og annara lagt sérstaka á-
herzlu á, að halda fjölda korn-
kaupenda á öllum sölutorgum
* bygðum landsins. Alt þetta
kostar peninga og bændur
horga það í umboðssölulaun-
um. Ef þér sendið kornvöru
yðar til vðar eigin félags, þá
>
borgið þér sölulaunin til yðar
eigin umboðssala og alt sem
er umfram nauðsynlegan
starfskostnað Grain Growers
Grain félagsdns, er lagt í vara
sjóðinn, til að borga hluthöf-
unum ársvexti, og til að halda
uppi mentastarfi til heilla fyrir
kornyrkjendur.
Vér starfrækjum kornhlöður
Manitoba stjórnarinnar, og
starfsmenn vorir taka korn
yðar til geymslu, kaupa það
úr vögnum á götunni yðar,
eða í vagnfermi á járnbraut-
arsporinu.
Bændur hafa jafnan álitið,
að Grain Growers Grain fé-
lagið ætti að eiga hafnstaða
kornhlöður til J>ess að tryggja
hámark kornverðs, og til þess
að koma korni J>eirra óblönd-
uðu á aðalheimsmarkaðinn.
þér hafið nú yðar eigin
kornhlöður, og vér skorum
því á yður, að hjálpa nú til
þess, að þessi starfsemi tnegi
tærða happasæl, með því að
|>ér sendið kornvöru yðar til
Grain Growers Grain Com-
pany kornhlöðunnar í Fort
William. Einnig, að þér kaup-
ið hluti í félaginu, Aukinn
höfuðstóll er mjög nauðsyn-
legur, ef vér eigum að geta
orkað strangri samkepni. Og
J>ess utan eru hlutakaupin
trygt gróðafvrirtæki.
KORNYRKJUMENN ! Alt
þetta er í yðar umsjá. Ilvað
ætlið þér að gera ?
*
The GRAIN GR0WERS GRAIN C0., Ltd.
WINNIPEG
CALGARY
MANITOBA
ALBERTA
:: haust og vetrar fatnaður.
*
-»
1»
Vér höfum miklar birgöir ai karla kvenna og
barna nærfatnaði, peysum, skóm og stígvélum. —
Einnig mikið af karlma nnafatnaði.
Komið og skoðið. Verð vort tnun falla yður í geð.
the corner clothing í dry goods store
688 Notre Dame, (Rorni Maryland.) f
Hver er skreðari þinn?.
Fyrir bezt gerð föt úr beztu efnum
sem hægt er að fá frá ^útlöndum
eða hérlendis
hnnið mig
_ W. ROSEN, 48» Notre Dniue
&1MI Garry 4186.
yi11 1-111
~»K0RNVARA«~
< * . ^'na táðið fyrir Vesturlands bóndann til að tryggja sér
u t verð fyrir kornvöru sína, er að senda heilar vagnhleösl
ur til Port Arthur eða Fort William, og láta umboðssala
annast um söluna. — Vér bjóðum bændum þjónustu vora í
.cn'*nKn. °f> kornteg-unda þeirra. Vér gerum þetta fyr-
lr .. verð, sem er 1 cent hvert bushel. Skrifið oss um
sen mga upplýsingar og markaðsverð. Vér borgum rlflega
> rir ram borgun. — Um áredðanlegleik vorn og hefileika,
visum vér til hvers bankastjóra sem er í Vestur-Canada.
THOMPSON, SONS & CO.
Orain Commission Merchants,/
703 L. Grain Exchange, Winnipeg.
z
Frá íslandi.
Blaðið Norðurland segir þamnig
frá hieyskapnum og sumrinu norð-
anlands :
“það hefir verið' fullyrt af vitr-
um mönnum, að menn væru langt
um ntinnugri á það illa, er fyrir
kæmi, en hið góða. Ekki mun
þetta þó sízt eiga við tiðarfarið.
Mörgum hættir til, að vera óþol-
inmóðir nokkuð í þeim sökum.
Einkum kveður að því, J>egar
veðrátta er stirð að sumrinu.
Bændum og sveitafólki er líka mik
il vorkunn í því efni. Bviskapurinn
í sveitunum byggist á fjárrækt-
inni, en fjárræktin á heyfengnum.
I>ess vegna er svo afar mikið und-
ir þvi komið, livernig veðráttunni
er farið, því að tíðarfarið hefir
svo mikil áhrif á vöxt og gæði
heyjanna. — þetta sumar, sem nú ;
fer bráðum að kveða okkur, hefir ]
vrerið einmunalega gott lengst af. j
Vorharðindin, sem svo oft baka j
þessu’ landi tjón, gerðu ekki vart
við sig. Geasspretta varð i betra
lagi hér í nærsveitunum, og slátt-
urinn byrjaði óvanalega snemma.
‘Bara að við fáum nú þurk á hey-
in okkar’, sögðu bændurnir, en á
bví varð nú nokkur misbrestur hér j
í Eyjafirði. Mikinn hluta ávúst- i
mánaðar voru óþurkar og kuldar, j
er kvað svó mikið að, að snemma
í ágúst v'oru mokhríðar og alsnjó- (
aði. Sögðust gamlir menn ekki
tnuna aðra evns tíð á þeim tíma j
árs. Hev hröktust bá allmiVið og
munu víða hafa farið illa verkuð í j
hlöðurnar. Hætt er því við, að út-
hev revnist nokkuð mikilgæft í
vetur, og ættu hændur að ltafa j
bað hugfast, er þeir setja á heyin
i haust. 1 þeim sökum getur það
verið þarflegt, að vera minnugur
á hið illa. Yfirleitt mun heyfengur
manna hér nærlendis vera með
mesta móti, að vrö'xtunum til. Nú
ti lanpa hríð hafa verið s;feld j
blíðviðri, — oftast hlýjar sunnan-
golur og hægar”.
— “Iladdapadda” heitir nýtt
leikrit eftir Guðmund Kamhan, ís- j
lenzkt skáld í Kaupmannahöfn. —
það er ástarharmleikur í 4 þátt-
um og gerist hér á landi. Höf. hef-
ir sent leikíélagi R'evkjavíkur leik-
ritið, en félagið hefir líklega ekki
tök á að sýna það, þar eð það
kvað vanta til J>ess nægan útbún-
að. Leikritið ltefir ekki verið prent-
að enn, og því ekki birzt um það
dómar. — En líklega kemur J>að út
bráðum, en þá sjálfsagt fyrst á
dönsku!
— Gagnfræðaskólinn á Akureyri
vTar Siettur 1. okt., og sóttu hann
120 nemendur. Aðsóknin að skóla
Jæssum fer vaxandi með ári hverju
og er nú skólahúsið nýja farið að
verða oflítið og heimavistarher-
bergin of fá. Ilin mikla aðsókn að
skólanutn er að rniklu leyti að
miklu leyti að þakka vinsældiun
skólastjórans Stiefáns Stefánsson-
ar.
— Síldarveiðin norðanlands hefir
á þessu sumri verið með bezta
móti. Við Eyjafjörð (og á Raufar-
höfn lítið eitt) hefir verið veidd
síld, sem. söltuð hefir verið svo
sem hér sevir : Norðmenn hafa
veitt 69,061 tn., íslendingar 35,738
tn., Svíar 13,666 tn., þjóðverjar
11,342 tn. og Danir 9,873 tn.; sam-
tals 139,680 tn. Til samanburðar
má geta J>ess, að i fyrra veiddu :
Norðmenn 72,119 tn., íslendingar
21,183 tn., Danir 14,007, þjóðverj-
ar 10,302 tn. og Svíar 6,888 tn. ;
samtals 124,499 tn. Auk þessa hiefe
ir í sumar verið veitt mikið af
síld til hræðslu, en um það hafa
ekki fengist nákvæmar skýrslur
cnn.
— Nú hyggja Siglfirðingar á að
raflýsa bæinn. þeir hafa fengið Jón
fsleifsson mannvirkjafræðing fra
Hafnarfirði til J>ess að koma og |
athuga þar vatnsmagn og raf-
magnsframleiðslu. Mannvirkja-
fræðingnum lízt ekki erfiðlega á að
fá vatnsmagnið, en hefir enn enga
fasta áætlun gert. Siglfirðingar
verða á undan Akureyringum að
raflýsa bæ sinn, og máske Hjalt-
eyringar og Dalvíkingar líka!
— Haust'.'cðrátta norðanlands er
einmunagóð fram um 15. okt. ; á
Suðurlandi var úrfellasamt, er á
leið haustið.
— Sláturfé yfirlei'tt fremur rýrt
nyrðra ; en verðlag á kjpti með
hærra móti, svo nú er kjöt eins
dýrt á Aktireyri og i Reykjavík.
— Kartöflutippskera var í löku
meðaUagi víðast á Akureyri og
þar i kring, og olli því meðfram
mikið frost snemma í sept.
— Hafishröngl nokkurt hafði
stranferðaskipið Austri séð fyrir
Norðurlandi er hann fór norður
ttm miðjan okt.
— Vélav.erksmiðjti eru Vest-
manneyingar að koma upp hjá sér
í félagi við Tóhann Hiansson verk-
smiðjueiganda í Reykjavík. Hefir
Jóhann keypt allar vélarnar i út-
löndum, og íór hann til Vestm.-
eyja með einn af sveinum sintun,
Karsten Jörgensen, með Ceres síö-
ast. Jóhann ætlar að dvelja í Vest-
mannaeyjum í vetur og gera við
vélar í bátum eyjaskeggja, þegar
á þarf að halda. Hefir nú síðustu
árin, síðan bifbátum fjölgaði svo
mjög við Vestmannaeyjar, verið
mikil vöntun á slíkri vélaverk-
smiðju, sem nú er reist þar. Verk-
smiðja J>essi er nokkru minni en
verksmiðja Jóhanns Hanssonar í
Reykjavík, sem hann lætur jafn-
framt halda áfram störfum undir
stjórn Friðbjörns Hólm.
— Fiskafli er nokkur á bifbáta á
Austttrlandi, J>egar gefur á sjó, en
gæftir hafa verið slæmar undanfar-
inn hálfan mánuð, þótt einmuna
tíð hafi vexið til landsins.
— Lögrétta hefir hevrt, að Sam.
gufuskipafélagið hafi ságt upp
samningnum um skipaferðir Lil ís-.
lands, er gerður var 1969, eins og
rtu-un muna, til tíu ára tírna. A-
stæðan, senr félagið ber fyrir sig,
kvað vera sú, að gjald er lagt á
innflutt kol með vörutollslögun-
mn, sem alþingi samjfykti í sum-
ar, og mun félagið þá ætla að
halda 'því fram, að með Jk/ssu sé
lagt hér á sig gjald, sem sanrning-
urinn geri ekki ráð fyrir.
— öll lög síðasta al'þingis fengu
konungsstaðfestingu nýlega, nema
lotterí-lög’in ; ]>au bíða enn. Jretta
er símskevti frá ráðherra til land-
ritara. Með J>essu er þó alls cigi
sagt, að lotterí-lögÍTi verði ckki
staðfest, en þau hafa, eins og áður
er kunnup't um, mætt mótspvrnu
í dönskum blöðum.
— BLaðið Suðurland segir, að
nær 100 sláttuvélar muni liafa ver-
ið starfandi í sumar í sýslunum
Jjremur austanfjalls, og hafi milli
70 og 80 komið tvö síðustu árin.
Til mikilla hagsmuna segir blaðið
bær hafi verið ; engjar sumstaðar
slegnar því nær eingöngu með
sláttu\xlum. Notkun rakstrarvéla
segir blaðið aftur á móti að eins í
byrjun þar eystra. Heysnúnings-
vélar segir það að notar sétl á
H'vanneyri og á Reynistað í Skaga
firði, og muni hafa gefist vel.
— Fyrir nokkru kviknaði í húsi,
sem Kaupfélag J>ingeyinga á á
Húsavík, og skemdist það allmik-
ið ; og eins brann þar nokkuð af
miinum og bókutn, sem íhúandi
átti, Ben. Bjarnarson kennari.
— í hjúskap gengu nýlega í R vik
Andrés augnalæknir Féldstied og
ungfrú Sigríður Blöndahl (dóttir
M. Bl. íramkvæmdarstjóra og fyr-
verandi alþm.), meö þeitn hætti,
að þau gerðu sín á milli samning,
er nú er þirtglesinn, um að lifa
saman sem hjón, og skulu allar
reglur hjúskapar um þau gilda,
eigur J>cirra og börn Jæirra. Upp-
segjanlegttr er þó hjúskaparsamn-
inpur J>essi með nokkurra mánaða
fyrirvara, og eru sérstök ákvæði
(um geröardóm), ef eigi verða
hjónin ásátt J>ar um. Iír Jætta ný-
lunda hér, op mun eipi hafa komið
fvrir áður, að J>essi aðferð væri
viðhöfð. Vel getur átt sér stað, að
að hún fari að tíðkast, og er að
ýmsu leyti eigi óviðkttnnanleg,
þótt löghelguð sé hún ekki ennjm
sem hjónaband.
— þann 12. okt. andaðist i
Rieykjavík fræðimaðurinn alkunni,
Jón Borgfirðlngttr, 86 ára gamall.
— Hetðárslaun úr sjóði Krist-
jáns ix. hafa nýlega verið veitt
Birni sýslumanni Bjarnasyni á
Satiðafelli og Ingvari þoesteins-
syni bónda á Sólheimum í Ilúna-
vatnssýslu, 140 kr. hvorum.
— þann 3. okt. var kveikt á vit-
anum nvja á Hafnarnesi við Fá-
skrúðsfjörð.
— Bráðabirgðaruppbót presta-
kalla hafa J>essi brauð hlotið ;
Hjaltastaður 100 kr., Bjarnanies
400, Torfastaðir 400, Mosfell í Mos
fellssveit 200, Reynivellir 150 kr.,
Héstaþing 400, Lundur 500, Mikla-
holt 300, Iljarðarholt 275, Sandar
375, Dýrafjarðarþing 375, Bægisá
475, Vellir 100, Grenivík 200, Lauf-
ás 100 og Suðurdalsþing 150 kr.
— Nýlega druknaði maður í
irnífdalsvík vestra, Guðm. Sig-
Írðsson að nafni ; var að fara út
ivélarbát þar á víkinni með öðr-
vm manni.
— Skipstrand. Fvrir skönnmu
rak upp í þorlákshöfn seglskipið
Svend, eign Lafollis-verzlunar á
IfyTarbakka, og brotnaði það. það
ætlaði með vörur upp til Eyrar-
bakka, en komst ekki þar inn og
hleypti þá inn á þorlákshöfn. —
Skipstjórinn haiði meiðst nokkuð,
er slysið varð.
— þeir stórkaupmennirnir F.
Holme og þórarinn Tulinius, hafa,
að sögn, mvndað öflugt verzlunar-
jfélag, er nær yfir allar verzlanir
| þeirra á ■ Islandi, og höfum vér
heyrt, að verzlunarfélag J>etta eigi
að heita “Hinar sameinitðu ís-
lenzku verzlanir”. Framkvæmdar-
stjóri félagsins kvað þórarinn Tul-
inius verða, en Otto kaupmaður
bróðir hans yfirumsjónarmaður
verzlananna hér á landi, og selur
hann þá liklega felaginu verzlun
sína á Akureyri.
lagður, og £er aftur á bak í verð-
gildi. Alt er niðurtroðið peninga-
lega og álitslega, sem fyrir bæinn,
en í staöinn er skapað tækifæri
fyrir eftirlitslitla óreglu í vin-
nautn, og ennþá máske verri starf-
rekstxi fyrir bæinn.
Horfurnar á Gimli.
Ileiðraði ritstjóri Heimskringlu.
Viljið þér gera svo vel, að ljá eft-
irfarandi línum rúm í yðar heiðr-
aða blaði.
Bæði íslendingar og annara
þjóða menn Jækkja Gimli bæ, aö
meira og rninna leytL Eins og
tekið var fram í sumar í Hkr.
eru bæjarbúar um 600, er heimilis-
festu hafa árið um kring. Um 5—6
ár hafa margar fjölskyldur frá
Winnipeg átt þar sumarbústaði og
fer fjölgandi. í sumar mttn fólks-
fjöld-i bar hafa verið um 1600, og
hér að ræða ttm talsvert bæjarlíf
á sumriit. Tvö hótel eru á Gimli,
sem kunnugt er, og hefir ]>eim ver-
ið stjórnað fvrir gesti og gang-
andi, og bæjarbúa, að lýtalausu
frain ú )>ennan dag. í sumar kem-
tir ny vandlætinga alda fram á
sjónarsviðið, sem óefað er risin frá
prastlingi, er nefnist Carl Olson,
sem foringja, þó fleiri karlar og
konur eigi hlut í róöri og fylgi.
Eðlilegt er» það, að prestlinga-
flakkarar kenni guðsorð, náung-
ans kærleika og hófsemi innan
kirkjti, — ttm þvera og endilanga
guðsvegi —, en inn í heimilislíf
hjóna, sem foreldra og barna, og
borgaralegan félagsskap ei ekki
eðlilegt að prestlingar fari að vas-
ast í. T>að er komið svo langt, að
bænarskjöl liggja fvrií bæjarráð-
inu á Gimli um afnám Jæssara
tveggja hótela. Undirskriftir um 50
karla og kvenna. Hér er komið á
stað æsing, en ekki einasta milli
þorpsbúa, heldur og svo á meðal
helgustu og instu familíubanda,
og er óvist, hvað úr kann að
verða.
It'g skoða rétt, að kennendur
vinni innan kirkju að guðsorða-
lestri og góðu siðferði, en að vas-
ast utankirkju í verzlegum mál-
um, er þvert ofan í kristilegar
kenningar. Og sé ég ekki betur en
|>eir kristilegu snuddarar, sem
bað gera. hafi stigið hænufet út
fvrir kærleikans og friðarins verka
hring.
Sú hefir verið reynslan í Banda-
ríkjunum og Canada, að þar sem
vínbann hefir verið drifið á með
ofbeldi og aulahætti, þá' hefir það
haft vondar afleiðingar fyrir þorp
og nágrenni, samanber Glenboro
og Swan River í Manitoba, og
flesta bæi í N. Dakota. Yerði vín-
banni þröngvað á, á Gimli,, kyrk-
ir það bæinn í öllum framförum.
Vínföng verða flutt þangað í stór-
slumpum cftir sem áður, og nær
sjálfsagt, að vínsöluhús verður
bvrrt rétt utan við bæjarlínuna
eins fljótt og hægt er. Bærinn tap-
ar $600—$700 árstekjum af hótel-
unum ; vinnulvður þar missir at-
vinnu, eigendur rændir atvinnu
sinni, og lögreclu eftirlit er af-
numið. Vinið flóir inn eftir sem
áður undir Htlu eða engu eftirliti ;
bærinn er hálfdrepinn eða eyði-
Gimli-búar, sem unna framtíð
Gimli, ættu alvarfega að gæta sín,
J>egar til atkvæðagreiðslu kemur i
Jiesstt máH. Afleiðingar verða sem
ég hefi drepið á, cvg seint er að
byrtrfa brunninn, þá barnið er í
hann dottið.
G. E. Sólmundsson.
Seinasta orðið.
En hatursfult hjarta með
horaðri sál
í hálfvöxnum heila oft
kveikir það bál,
sem ætlar menn alveg áð
æra.
Herra ritstjóri : —
Ég ritaði þér nokkrar línur 23.
ágúst sl. og gat þess þar, að
tnenn færu ó g æ t i 1 e g a með
sannleikann á stundum, og tók til
dæmis fregn þá frá Bertdale, að
þar “úaði og grúaði” af einbú-
u m. Ilöfundi þeirrar fregnar fanst
þetta nóg ástæða fyrir sig til að
rita meiðyrða grein til mín, sem
birtist í blaði þínu 26. sept. E'g
svaraði J>eim höfundi á nokkuð ó-
vanalegan hátt, og urðu afleiðing-
arnar þær, sem J>ér og lesendum
blaðs 1víns eru allareiðu kttnnar.
T>að líta nú sumir svo á, ef til
vill, að ég ætti þar að auki að
svara greininni og bera til baka
ýmsar villur í hénni, sem ekki
heyra til meiöyrðum. En margir
málsmetandi menn hér æskja ]>ess
að ég leiði slíkt hjá mér, því það
geti ekki leitt til annars en ófriðs
og úlfúðar í héraði.
Eg verð því að biðja höfund
greinarinnar til mín, ef hann vill
endilega komast í blaðastælur við
mig, að rita grein sína upp aftur,
eins að orði og anda (að undan-
teknum meiðyrðum), og mun ég
þá láta það eítir honum i að
svara. þetta ætti ekki að vera
neinn neyðarkostur, þvi “sjaldan
er góð vísa of oft kveðin”, og ég
þykist þess fullviss, að höf. beri
engan kinnroða fyrir því, sem
hann ritar í blöðin.
En svo hann sálist ekki í biH af
skorti leirs og hortitta,
þá ætla ég að setja hér eina visu
um síðustu ritgerð hans :
I Músikið “highclass”,
H»áróima landinn,
Drund’ undir “B. Bass”,
Drumbu sló fjandinn.
í von um að þú ljáir línum
Jyessum rúm, því ég er e k k i
hræddur við stóra menn.
þinn einl.
J. Janusson.
JÖN JONSSON, járnsmiður, aS
790 Notre Dame Ave. (horni Tor*
onta St.) gerir við alls konar
katla, könnur, potta og pönnur
fyrir konur, og brýnir hníía og
■kerpir aagir fyrir karlmenn. —
Gamli sjómaðurmn
■■ i „ 111 "■■■ -Tl
EMPIRE
NAVY
PLU6
CHEWING
TOBACCO
Hvað gamli sjó-
maðurinn segir:
“Ég hef stundað
sjómensku í mörg ár
og eins og flestir
sjómenn einatt tugg-
ið tóbak.
Allir segja þeir eins
og ég EMPIRE
NAVY PLUG
munntóbak er hið
bezta.”