Heimskringla - 01.06.1916, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 1. JÚNl 1916.
HEIMSKRINGLA
BLS. 5.
EKKERT JAFNTEFLI
Eftir
FREDERICK PALMER.
Ritgjörð um stríðið, og hvernig Bretar og Bandamenn þeirra fari að
vinna, eftir einhvern merkasta fregnrita Bandaríkjanna. Um hann
segir Roosevelt: “Mr. Frederick Palmer hefir verið sjónarvottur að
meiri og fleiri bardögum, en nokkur annar núlifandi rithöfund-
ur í Ameriku. Hann hefir haft beztu tækifæri til aö sjá og kynnast
hernaöi og bardögum og hefir sjálfur fyrirtaks hæfileika til að
taka eftir og kann að meta það, sem hann hefir séð”.
(Eramhald).
Digurmæli Þjóðverja.
Þeir töluðu mikið um að ráðast
inn á England og um Zeppelin-
órásir; um að sópa Lundúnum al-
veg burtu; um fallbyssur, sem gætu
skotið yfir Dofrasund frá Prakk-
landi og molað og brotið borgir og
kastala á Englands ströndum. Þeir
voru einlægt að tala um sigurvinn-
ingar sínar, svo að allur lieimur
heyrði og skildi, að þeir væru að
vinna, en þó einkum alþýða manna
á Þýzkalandi. Þeir voru að reyna
að slíta út óvinum sínum og gjöra
bá hrædda o gleiða á stríðinu; að
neyða þá til að hafa hermennina
nieira til varnar cn sóknar. Þeir
höfðu sama lagið á þessu og Grant
kamli í herförinni til Wicksburg og
síðar til Appomatox í þrælastríð-
inu, að lemja einlægt með þungum
höggum á óvinunum, eins og þegar
járn er rekið af kappi.
Þjóðverjar gjörðu alt sem þeir
kátu til þess að mæða og þreyta
Breta og fá þá til að senda hermenn
þeirra hingað og þangað út um
heiminn. Allir voru þeim veikomnir
°k elskulegir vinir og bandamenn,
hvort heldur það yoru Tyrkir eða
■Búlgarar, Arabar eða Egyptar. Þeir
■tsngu Tyrki í lið með sér og hótuðu
*>ð ráðast á Egyptaland og taka
failbyssum, sem hægt og auðvelt
væri að flytja úr einum stað í ann-
an, og fjöida af þessum smáu, hrað
skeytu maskínubyssum; en Frakk-
ar höfðu ekki þessa trú, og gjörði
þetta mikinn mun í byrjuninni. Nú
er ekki að tala um minna en 10 þús-
Und fallbyssur og 50 þúsund mask-
ínubyssur fyrir þenna her, sem BreÞ
ar hafa vígbúinn.
Þegar Þjóðverjar byrjuðu vór-
kviðuna að vestan 1915, þá lokuðu
þeir landamærum Hollands, eins
og væru þeir að hugsa um, að byrja
eina árásina enn á hafnirnar við
Dofrasund. En þetta var að eins til
að blekkja Bandamenn, meðan þeir
reyndu eiturspýjuna á Bretum og
Frökkum. Þeim hepnaðist að blása
eitrinu og fyrir það unnu þeir í
Flandern mest af landi því, sem að
þeir hafa unnið seinastliðið ár á
vesturkantinum, og var þó ekki
mikið. Bretar urðu órólegir og
hræddir um, að með þessum fítons-
krafti myndu þeir brjóta hergarð-
inn. En þeir ætluðu það til annars,
— til þess nefnilega, að draga huga
manna frá gjörðum þeirra annars-
staðar.
Þeir ætluðu sér ekki, að gjöra
neina verulega árás á vesturkantin-
um. Þeir höfðu þar að eins 1,500,000
menn, eða 3,000 menn á míluna, og
er það nú talið nægilegt til varnar.
að hver skipsfarmur vopna, sem
kemur frá Ameríku, getur snúið
stríðinu svo að við töpum”. Og þá
fóru þýzku neðansjávarbátarnir að
herða sig. Því að Þjóðverjar vissu
þá eiginlega ekkert, hvað vopna- og
skotfærabyrgðum Breta og Frakka
leið. Og þeim kom sfzt til hugar, að
þá voru Bretar í vandræðum með
sprengikúlur; en höfðu nóg af
þeim tveimur mánuðum seinna og
gátu þá steypt regninu yfir Þjóð-
verja seinastliðinn séptembermán-
uð. Þýzkir voru þá ekki vissir um,
að þeir gætu tekið á móti Banda-
mönnum á vesturkantinum, ef þeir
réðust á þá. En þeim var bráð-
nauðsynlegt að fara á móti Rúss-
um, hvað sem vesturkantinum liði.
Grimd og sóðamenska Þjóðverja.
l>að af Bretum, og með því ætluðu' En ]>eir létu svo, sem þeir væru ein-
l>eir að hleypa upp öllum þessum lægt að sækja á. Og hvenær, sem á
300 milíónum mahómetsmanna í þá var ráðist í skurðunum, þá réð-
Brctaveldi, svo að þeir réðust á
Breta og rækju þá burtu bæði úr
Indlandi og Egyptalandi og víðar,
°g svo ætluðu þeir að hleypa stór-
Um Tyrkjaher á Rússa í Kákasus-
löndunum.
Alt þetta ráðabrugg hjálpaði þeim
niikið í fyrstu. Því að Bretar þurftu
að brúka feykilegan fjölda af flutn-
>ngsskipum og ausa út peningun-
Um; en höfðu mikið manntjón við
Hellusundin. — En aftur kom lið
Mirra þar að miklu gagni. Því að
ust þeir á aftur á móti. Því að þeir
vildu ekki sitja rólegir í gröfunum,
meðan óvinir þeirra steyptu yfir þá
sprengikúlna-regninu, og þeir höfðu
þá eins mikið af sprengikúlum og
Frakkar, og mikið fleiri en Eng-
lendingar.
Eftir því, sem menn komast næst,
þurfti að eins fjögur hundruð þús-
und hermenn til þess að mæta Itöl-
um, og á móti Bretum og Belgum og
Frökkum höfðu þeir að eins 1,500,000
með feiknafjölda af maskínubyss-
Bretar héldu þar föstum stórum um, og gátu því haldið föstu miklu
her Tyrkja, sem annars hefði verið á
herðum Rússa í Kákasus. En hefðu
þesvsar sveitir Sir Ian Hamiltons
'arið til Serbíu, til þess að loka stál-
hringnum utan um Þjóðverja við
Lóná, þá hefði það komið sér afar-
>Ua fyrir Þjóðverja. Og Búlgarar
hefðu þá farið til liðs með Banda-
niönnum en ekki með Þjóðvcrjum.
En Þjóðverjar höfðu einiægt haft
augun á hinum nýju herflokkum,
sem Bretar voru að koma á fót og
íeiknamiklum vopna- og skotfæra-
hyrgðum, sem þeir voru að smíða
°E kaupa Bretarnir; því að nú voru
smiðjur og verkstæði farin að vinna
íyrir þá bæði í Canada og í Banda-
ríkjunum.
Þjóðverjar höfðu lagt sig alla
Iram að vinna svo mikið, sem hægt
'’æri, áður en óvinir þeirra gætu
Verið verulega viðbúnir. En það
vissu Þjóðverjar, að sá tími myndi
koma, að þeir næðu sér. Þess vegna
voru þeir einlægt að berjast við tím-
ann, eins mikið og við Bandamenn.
Þeir vildu þvf helzt dreifa þessu
nýja liði í ailar áttir. Reyndar láta
tjóðverjar svo, sem þetta nýja lið
Breta sé lítilsvirði; en í raun og
Veru óttast þeir það. Þeir hafa feng-
að kenna á brezku hermönnun-
Uln, og eru að gjöra sér góðar vonir
u®, að foringjarnir gjöri einhver af-
klöp. Dess vegna hafa þeir verið að
hjálpa Búlgörum og Tyrkjum, í
beirri von, að geta haldið Bretum
sem lengst í Mesópótamíu og her
í'rakka og Breta við Saloniehi, og
bóta að ráðast á Egyptaland og æsa
Asíu-þjöðimar til uppreistar gegn
Bretaveldi.
-állur heimurinn hélt, að Banda-
nacnn gætu farið að sækja frarn á
nióti Þjóðverjum snemma á sein-
a«ta vnri 1915. En foringjar Banda-
r*anna vissu, að það var ómögulegt.
bjóðverjar höfðu haft trú á léttum
fleira liði óvina sinna. En allir her-
menn Austurríkis, að fráskildum
þessum 400,000 móti Itölum, voru
sendir austur á móti Rússum, og
stórir og margir herskarar Þjóð-
verja af vesturkantinum, og aðrir,
sem dregnir voru saman hér og hvar
um Þýzkaland. Með þessu ætluðu
þeir að troða Rússa undir fótum
sér. Þetta var svo ofur einfalt, það
þurfti enga napóleonska herkunn
áttu til þess; þeir gátu á hinum
miklu fléttum járnbrauta sinna
haugað saman vopnum, skot-
um og mönnum á vissum, ákveðn-
um stöðum á miklu sk^mri tíma en
Rússarnir, sem höfðu miklu færri
járnbrautir og miklu færri járn-
brautarvagna að flytja mennina og
vopnin til þess að taka á móti Þjóð-
verjum.
Vandræði Rússa.
Rússar voru einlægt í standandi
vandræðum með skotfæri og vopn.
Vopnlausir biðu hermennirrir í
aftari skotgröfunum, að taka vopn-
in úr höndum þeirra, sem féllu í
hinum fremri gröfum. Og eiulægt
voru Rússar fáiiðaðri á vígvöllun
um heldur en óvinir þeirra, sem alt
kom af þessu vopnleysi; því að þeir
höfðu feikna fjölda óvopnaðra og
því ónýtra hermanna á bak við her-
sveitirnar. Járnbrautirnar voru all
staðar með einföldum teinum, sem
þeir fiuttu vopnin og skotfærin eft
ir frá Japan, jafnóðum og Japanar
gátu smíðað þau. En sigurinn vinst
ekki með mannfjölda ríkjanna, held
ur tölu hinna vopnuðu hermanna
og fjölda sprengikúinanna.
En þegar þetta var að gjörast,
sögðu herforingjarnir þýzku við
sjóliðsforingjana: ‘Nú þurfið þið
að fara að gjöra eitthvað. Þið eruð
búnir að sitja nógu lengi aðgjörða
lausir inni á höfnum. Gætið þess,
Hirðflokkur keisarans í Berlin
var einlægt sístarfandi í Petrograd,
að vinna Rússum það ógagn, sem
hægt var, og það á meðan fallbyssur
Þjóðverja gjörðu hinar grimmu og
látiausu hríðar á hersveitir Hússa.
Einmitt á meðan voru Þýzkir að
kaupa og tæla með loforðum hina
æðstu embættismenn Rússa til að
tefja fyrir hermanna- og skotfæra-
sendingum og njósna um herskipun
alla og hvað hermennirnir áttu að
gjöra þenna og þenna daginn á þess
um og þessum staðnuin.
Þeir þóttust sjá það, Þjóðverjarn-
ir, að ef að þeir lömuðu Rússa, svo
að þeir kæmu og beiddust griða,
t>á hefðu Frakkar og Bretar orðið
að berjast einir, og þá myndu þeir
brátt verða leiðir á öllu saman og
láta undan og semja frið. Því að
menn verða að hafa það hugfast, að
síðan 4. ágúst 1914, hafa Þjóðverjar
einlægt verið a5 berjast fyrir friði,
með það eitt fyrir augum, að geta
náð sem beztum kostum og samið
frið. En þeir hafa aldrei viljað ann-
an frið en þann, sem láti þá koma
út úr stríðinu svo sterka og öfluga,
að þeir fyrri eða seinna gætu ráðist
á erkifjandann, Bretann, með góðri
von um, að geta brotið hann þá
undir sig.
Stríðið er ekki annað en afl og of-
beldi, og standi nógu miklar ógnir
og skelfingar af frainkomu eins eða
annars, þá er hálfur sigur unninn
eða meira. Þessu treystu Þjóðverjar,
og því sýndu þeir svo mikla grimd
og fúlmensku, hvar sem þeir kom .
fram. — Þegar fregnin barst um
Balkanríkin, að þýzkur neðansjalv-
arbátur liefði sökt Lúsitaníu, þá
var þetta hin bezta auglýsing fyrir
Þjóðverja og sýndi, hvað þeir voru
duglegir og hættulegir og Banda
menn meinlausir og ráðalitlir. Og
þetta var svo átakanlega aðvörun
til Bandaríkjanna í Am^ríku, og
sýndi þeim, að ekkert í heiini myndi
geta staðið á móti Þjóðvcrjum, —
hvorki á sjó eða landi.
Aldrei báru Bandaríkin hærra
hlut í stjórnmála- eða sendibréfa-
viðskiftunum við Þjóðverja. Það
voru engin líkindi til þess, að Þjóö-
verjar færu í stríð við Ameríku.
Þýzkir voru hygnari en svo, að æsa
upp á móti sér Bandaríkin með öll-
um þeirra auði. Og þeir voru að
þukla fyrir sér og vita, hvað langt
þeir mættu fara, og hvað þeir
mættu bjóða Bandaríkjunum. En
ef að menn taka eftir atburðum
stríðsins, þá sjá menn, að þegar
neðansjávarbátar Þjóðverja fóru að
sökkva skipunuin sem óðast, hverju
af öðru, þá byrjuðu þeir líka um
leið herferð sína á móti Rússum. —
Yfirforingjar Þjóðverja þurftu að
hjálpa sér með öllu mögulegu móti
í herferðinni, og þá sendu þeir neð-
ansjávarbátana út. Þeir drógu liuga
þjóðanna til sfn og fyltu heiminn
skelfingu. En á meðan rendu Þjóð-
verjar á Rússann og keyptu æðstu
embættismenn f Petrograd til að
stela og svíkja og njósna. — Þetta er
hin ekta þýzka aðferð.
En þýzki hirðflokkurinn í Petro-
grad varð uppvís að klækjunum,
og Þýzkir gátu aldrei tekið Riga, en
urðu að stöðva herinn mikla f fló-
unum á Rússlandi. Og svo amaði
þeim annað, því að þó að hver
neðansjávarbáturinn af öðrum
legði út frá Kiel eða Xeebrugge, þá
voru þeir rækalli fáir, sem nokk
urntíma kæmu aftur. Þeir lögðu út
og sáust ekki framar. Sjómálastjórn
Breta mintist aidrei á þá. Þeir
hurfu. Þetta fór Þýzkum ekki að
lítast á og fóru að verða varasamir.
— Neðansjávarbátarnir brugðust
Þjóðverjum. Þeir gátu ekki stöðv-
að flutning vopna og skotfæra frá
Amerfku til Englands, sem þá var
rétt að byrja. En Þýzkir gátu varast
að lenda í ófriði við Bandaríkin, og
var það heppilegast fyrir Þjóðverja,
því ef að Bandaríkin hefðu farið á
stað, þá hefðu Búlgarar aldrei far-
ið með Þjóðverjum, og þá hefði
Serbía aldrei verið undir fótum
troðin.
En Rússar höfðu fengið skelli
mikla. Undanhald Nikulásar var
meistaralega af hendi leyst. En
Þýzkir hröktu þá og héldu landinu.
En við þetta fóru Rússar að vakna.
Þeir vildu ákafir halda stríðinu á-
fram, því að þeir hötuðu Þjóðverja.
Fln þeir sáu, að hér var eitthvað
rangt, — eitthvað í ólagi. Og svo
þegar Nikulás stöðvaði Rússa, þá
fór hann frá herstjórninni og tók
við stjórn yfir hernum í Kákasus,
því að þar voru Rússar líka í
hættu. En Þjóðverjar vissu það
mánuði á undan Rússum, að þeir
gátu ekki komist lengra, gátu ekki
brotið sundur hrygginn á Rússum.
Það er æfinlega svo; óvinirnir, sem
á sækja, vita æfinlega betur, hvað
öllu líður, heldur en hinir, sem
verjast.
En nú þurfti að fá Þýzkum eitt-
hvað að gjöra á vesturkantinum tii
þess að létta þunganum á herðum
Rússa. Og svo byrjuðu Frakkar á-
lilaupin á Champagne og Bretar við
Loos, hinn 25. september 1915. Þá
voru Bretar loksins búnir að fá
töluverðan forða af sprengikúlum.
Allir þeir, sem Bandamönnum voru
hlyntir, óskuðu og vonuðu, að þeir
gætu nú brotið hergarð Þjóðverja.
Þeir reyndu ]>að og náðu rúmum 25
þúsundum fanga og nokkrum
hundruðum yarda af landi, og auk
þess liafa víst töluvert flelri failið
af Þjóðverjuin en Bandainönnum.
En garðurinn var óbrotinn.
En alt fyrir ]>að, þó að arðurinn
yrði ekki meiri af þessu áhlaupi
Bandamanna, ])á græddu ]>eir þó
stórmikið, því það sýndi, að þeir
gátu sigrað Þýzka, og að falfbyssur
og maxim-byssur þeirra voru öllu
betri en Þjóðverja. En það, sem
hjálpaði Þjóðverjum, var það, að
þeir vissu um áhlaupið í tíma og
gátu komið 300,000 hermanna að
austan til þess að mæta áhlaupun-
um. Og svo kom húðarrigning ann-
an dag áhlaupsins, svo að illfært
var að koma mönnum, en ófært að
koma fallbyssum yfir jörðina. —
Hefði þetta tvent ekki verið, þá
hefSu Þýzkir aS likindum orSiS aS
halda þarna undan á stóru svæSi
Það er enginn efi á þvf, að þetta
var alt annað en þeir höfðu búist
við, og nú var það auðséð, að óhugs-
andi var fyrir Bandamenn að sækja
fram á vesturkantinum vorið 1915.
Það varð að bíða. Og þegar liaustið
kom, þá héldu Bandamenn sínu að
vestan, en fram höfðu þeir ekki sótt.
Hersveitir Bandamanna héldu öll-
um skotgröfunum og voru öruggar,
því að baki þeirra voru 2 milíónir
hermanna, ef á þyrfti að halda, og
Parísarborg var eins óhult fyrir
Þjóðverjum eins og New York. En
þetta var alt annað en að vinna sig-
ur; það var engu minni sigur fyrir
Bandamenn, en það var sigur fyrir
Þjóðverja að vinna Warshau og
Brest Litowsk.
En nú kemur annar veturinn.
Þýzku foringjarnir töluðu mikið
Úlfur í Sauðargæru.
Eg þekki mann, sem heilsar ávalt eins,
Með unaðs bros á vör, sem alla kætir;
Hann tekur ofan hattinn undireins
I auðmýkt fyrir hverjum, sem hann mætir,
En leggur sæta silkitungu að eyra
Og svarar eins og hver vill fá að heyra.
En ef þú lítur fast í augun inn,
Þá áttu víst að sjá hans gleði skerta:
Hann snýr þá undan, kafrjóður á kinn, —
Þú komst við streng, sem ekki mátti snerta;
Því bakvið mannsins ytra útlit sefur
I illum draumi slunginn bragðarefur.
Og heyr þú, vinur, veldu aldrei skjól
Til varnar þér í neyð hjá slíkum herra;
Það gæti dregið flóka fyrir sól,
Þér findist kannske brosið milda þverra.
Því hann er alt af viss að vega að baki
Og varpa þér til grunns á þrælataki.
H. E. Magnússon.
t
•f
i
•f
4
■f
4-
t
4
♦
•f
4-
I
um að lialda herferðinni áfram inn í
Rússland; en það var engin ai-
vara, því að þeir sáu það vel,~ að
þetta áriS var þeim algjörlega ó-
mögulegt að sigra Rússa. Þeir Urðu
þarna að taka 300 þúsundir her-
manna að austan, til að styrkja her-
garðinn að vestan. Og þeir höfðu í
fleiri horn að líta, því þeir ætluðu
sér suður til Serbiu.
Þeir réðu því af að hætta við að
sækja fram á báðum hliðum, bæði
að austan og vestah. En þeir héldu
því leyndu, svo lengi sem þeir gátu.
Og þegar þeir hættu framsókninni,
þá komust þeir af með helmingi
færri menn í skotgröfunum. Þannig
gátu þeir sparað sér menn til suður-
ferðar. Þeir höfðu lengi og mikið
verið að tala um Serbíu-ferðina, svo
að margir héldu, að það væri ein-
tómur ropi úr þcim og myndi aldrei
neitt af verða. En þeir vissu, hvað
þeir gjörðu, og fyrir allar þessar aug
lýsingar fengu þeir nú Búigara í lið
með sér. Þeir töldu þeim trú um, að
þeir lilytu að vinna sigurinn f stríð-
inu.
Þeir höfðu fengið áreiðanlega
vissu fyrir því tveimur cða þremur
vikum áður, en þeir réðu af að fara,
að Búlgarar myndu fara á stað með
þeim. Þeir fóru því ekki í neinni ó-
vissu. Og l>að var ekki klaufaskap
hinna brezku stjórnmálamanna að
kenna, að Búlgarar fóru mcð Þjóð
verjum, heldur kom það alt af
þeirri sannfæringu Búlgara, að Þjóð
verjar myndu vinna. Rússar féllu í
tigninni hjá þeim, þegar þeir urðu
að hörfa undan Þjóðverjum inn á
Rússland, og þegar Þjóðveriai
hröktu þarna undan sév liersvcitir
arar Serba út af iífinu, og þarna var
tækifærið. Þýzkir réðust frainan að
þeim, og þá gátu Búlgarar komið
aftan að þeim. Þetta tækifæri máttu
Búlgarar ómöguiega missa.
En l>egar 300,000 Búlgarar stukku
þarna á SCrbana, þá þýddi það
hvorki meira né minna en það, að
Bretar.yrðu að taka 300,000 hermenn
af þessum nýja licr, sem þcir voru
að mynda, og senda þá til að hjálpa
Serbum á móti Búlgörum. Þeim var
illa við þenna nýja her Breta, Þjóð-
verjunum. Þó að þeir töluðu illa
um Breta, þá var þeim ekki sama
um herinn; þeir liöfðu aidrei búist
við því, — aldrei tekið það með í
reikninginn. Þeir óttuðust ]>essar
5 eða 6 milíónir hinna brezku “bola-
hunda”, þó að þeir vildu ekki kann-
ast við það. Og þeir vissu það vel,
að ef að Bretar þessir hefðu nóg af
byssum og skotfærum, þá myndi
þýzki hergarðurinn á vesturkantin-
um brotinn verða. Og eins vita þeir
það nú, að svo framarlega sem að
Rússar leggist á með afli að austan
og tíni til hinar nýju hersveitir sín-
ar með vorinu eða sumrinu, þá geta
þeir ekki og mega ekki taka nokk-
urn mann að austan til þess að
hjálpa sér á vesturgarðinum. Þess
vegna var þeim um að gjöra, að
koma sem flestum Bretum langt í
burtu: Til Gallipoli, Serbíu, Egypta-
iands, Mesópótamíu. Þeir þurftu ])á
ekki að berjast við þessa menn á
Frakklandi eða á Rínarbökkum.
En hvað líður þeim nú, við árs-
byrjun 1916? Hversu mikið eru
Þjóðverjar búnir að vinna? Og hve
miklu af því geta þeir lialdið, ef að
þeir koma nú og biðja um frið? —
Rússanna, ])á liéldu Búlgarar og i £n fari svo, að þeir biðji um frið eða
trúðu því fastlega, að þcir væru al , æski eftir friði, eða bjóði frið, þá er
veg óvinnandi. Og svo vildu Banda- þag um ieið yfiriýsing frá þeirra
ríkin ekki faia í stríðið með vinum hendi, að þeir séu uppgefnirog von-
sínum, Bretum og Frökkum. Þaö lausir um sigur. En l>á munu Banda
var ískyggilegt; l>vf að svo fiamai- j menn svara undir eins og segja:
lega, sem Bandaríkin hefðu farið^“j>jg getið stiknað þarna eða rotn-
með Frökkum og Bretum, ])á hefðu ag f gröfunum eitt árið ennþá!” —
Búlgarar aldi'ei farið með Þjóðverj-| (Það er aðgætandi, að Palmer skrif-
um, og liorfur stríðsins hefðu orðið ar þetta fyrir einum 3 mánuðum, —
alt aðrar, — og stríðið liefði orðið ( og hversu líkt er það ekki því, sem
mikiu styttra. En nú hötuðu Búlg- nú er að koma fram!). (Frh.).
Fáið McKenzie fræ hjá kaupmanni yðar.
...HYER FRAMTAKSSAMUR KAUPMAÐUR í Yesturland-
inu hefir ætíð nægar birgðir af þessu ÚRVALS FRÆI.
McKENZIE’S AFBURÐA FRÆ er sérstaklega hentugt fyrir
Yestur-Canada af eftirfylgjandi ástæðum:
1. Við lifum í Vestur-Canada, og okkar tuttugu ára reynsla
gjörir okkur mögulegt að þekkja til hlýtar þarfir Vestur-
landsins.
2. Það, að búið okkar eru í Brandon og Calgary er sönnun
þess, að við getum æfinlega afgreitt pantanir án tafar. Allar
pantanir eru sendar út innan 24. klukkutfma.
3. Alt fræ er valiS sérstaklega, með því augnamiði, að það sé
haganlegt fyrir jarðveg og loftslag Vesturlandsns.
4. Alt McKenzie’s free er af beztu tegund, vandlega endur-
hreinsað með nýjustu vélum, og hefir sterkasta vaxtar lífs-
afl, sem hægt er að fá.
Dálítill fræ-böggull er í sjálfu sér ekki mikið, en það er mik-
ils virði, þegar það er komið í garðinn þinn.
Beans, Beet, Carrots, Corn, Cucumber, Lettuce, Onion
Peas, Parsnip, Radish, Squash, Turnips, Tomatoes.
Einnig úrval af Sweet Peas og öðru blóma-fræi eftir vigt.
SkrifiS eftir VerSlista (Catalogue) í dag.
A. E. McKenzie Cc., Lt
Brandon, Man. Calgary, Alta.
i
W '-•