Heimskringla - 15.06.1916, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 15. JÚNÍ 1916.
H E I M S K R I N G L A.
?±A 7.
Merkileg landabréf.
Vér höfum séð stórskotalið berj-
ast, — vér liöfum séð barlst mcð
handkúlum (hand grenades),— vér
höfum verið reknir úr jarðholum
(dugouts) 1 mesta flýti til að forðast
óvina sprengingu, — já, og vér sáum
myndina í fjórðu skólabók vorri af
Patagóníu negranum, sem var að
reyna að skella strútsfugll með því
að vefja reipi sínu um fætur hans,
en 'sem ekki tókst, — og vér höfum
undrast alt þetta stórlega. En það,
sem vér stöndum gapandi af undr-
un yfir og getum ómögulega lokað
munninum utanum, eru hin nýju
landabréf (maps) Frakka. Já, oss
sýnast landabréfin vera stærsta
furðuverk; — já, næstum að segja
kraftaverk (en eg trúi að krafta-
verk hafi ekki átt sér stað í átján
hundruð ár?) — kraftaverk stríðs-
ins. Og þetta furðuverk er prentað
landabréf, sem sýnir hvern einasta
krók og kima, fallbyssu og skofcfæra
búr, skotgrafir, vírflækjur og mask-
ínubyssur Þjóðverja á móts við
Verdun.
Ilppruni þessara landabréfa eru
ljósmyndir teknar af flugmönnum
hátt uppi í lofti, og þessar ljós-
myndir eru svo nákvæmar, að fall-
byssur sjást í 15 metra fjarlægð á
þeim. Verður það því auðveldur
reikningur fyrir Prakka, að finna
vegalengdina frá einhverri af þeirra
eigin fallbyssum; enda hitta þeir
oft fallbyssur Þjóðverja, skotfæra-
búr þeirra og margt annað.
En það merkilega við þessi landa-
bréf er, að þau eru prentuð eins og
vanaleg landabréf; en það er nú
nokkuð löng saga, sem lýtur að því,
og maður skyldi ætla, að það borg-
aði sig ekki, að taka ljósmyndir og
búa undir prentun á þeim af stöð-
um og útbúnaði, sem kanske er
breytt um á hverri nóttu; en Frakk-
ar eru að mörgu einkennilegir, og
hafa yndi af að reyna sig við ýmsar
verkfræðis-gátur.
Það er ofurlítill gluggi á botnin-
um á flugdrekum Frakka, og í þess-
um glugga er gagnsæ “celluloid”.
himna. Svo þegar flugmaðurinn sér
í gognum þenna glugga, að hann er
yfir þessum eða hinum stað óvin-
anna, opnar hann gluggann og ljós-
myndavél skreppur fram í gatið;
en það er ei augljóst orðið, hvernig
þessi ljósmyndavél er; en hún er
sannarlega viðkvæm og nákvæmari
en vanalegar ljósmyndavélar. ,Þjóð-
verjar hafa iíkan útbúnað, en ekki
nærri eins fullkominn. Þegar flug-
maðurinn kemur til baka úr leið-
angri sínum eru “negativen” tekin
og fullkomnuð á vanalegan hátt;
svo er “negatívið” sett í maskínu,
sem sýnist að hafa meira en meðal-
manns skynsemi Svo er sterkur raf-
magns ljósgeisli, sem beint er neðan
undir “negatívið”, sem kastar
strykum og blettum í “negatívinu”
á vaxaðan pappír. Þetta blað er lát-
ið hallast nákvæmlega með sama
haiia, sem var frá flugdrekanum nið-
ur að staðnum, sem myndaður var;
einnig er blaðinu haldið nákvæm-
lega jafn marga þumlunga frá “nega
tívinu” eins og flugdrekinn var
marga metra frá jörðu.
Svo skoðar maður blaðið f gegn-
um ákaflega sterkt stækkunargler,
og sést þá depill, sem ekki var
stærri en prjónsoddur á negatívinu,
®em er kanske ein af stærstu fall-
byssum Þjóðverja, vel falin.
Nú, þegar búið er að draga upp
landabréfið, er það tekið tM þýzkra
fanga og þeir allra auðmjúkleg-
aist (;) beðnir að leiðrétta það, sem
rangt kann að vera á því. Eðlilega
eru þeir nú líklega ekki mjög mikið
áfram um að gjöra það, en góður
vindill orkar oft miklu, en ef hann
dugar ekki, eru náttúrlega önnur
meðul við hendina; — og svona er
það, að fangar eru ekki alténd
byrði heldur hagnaður. En það er
ckki oft, að “Fritz” dugar ekki að
fá góðan vindil og hlýlegt viðmót,
til þess að hann leysi úr öllum
spurningum, svo langt sem hann
veit, því hann man vel úr hverju
hann hefir sloppið, og hann veit
einnig, hvað hann hefir ihrept; og
hann er viss um þægilega líðan, þar
til stríðið er á enda, þrátt fyrir það,
að hann er fangi. Já, og vindillinn
hefir sterk áhrif á “Fritz”, því Þjóð-
verjar eru i miklum tóbaksskorti.
Þegar frönsku herforingjarnir eru
búnir að tala við “Fritz”, er landa-
bréfið vanalega orðið svo fullkomið
og nákvæmlega rétt, að því skeikar
varia um fet, með nokkurn einasta
hlut, hús eða skotgröf é þeim parti
vigvallarins, sem ljósmyndirnar
voru teknar af, og svo koma alt af
nýjar myndir og nýir íangar til að
leiðrétta landabréfið.
IJað eru auðvitað fleiri tegundir
Ijósmynda teknar og brúkaðar til
að skýra fyrir þeim afstöðu óvin-
anna, isvo sem margra álna langar
lengjur af “panoramic views”; en
hið ofanskráða um landabréfin er
«vo merkilegt og vísindalegt, að
undrum sætir og flýtirinn á þeim
nð búa til þessi landabréf er næst-
um óskiljanlegur. Eg hefi séð slik
landabréf alprentuð og útkomin
eftir einn dag frá því að myndirnar
komu til jarðar.
Dánarfregn.
Point Roberts, 31. maí 1916.
Herra ritstjóri Heimskringlu, M.
J. 8kaptason!
Viltu gjöra svo vel, að taka eftir-
fylgjandi dánarfregn í þitt heiðr-
aða blað.
Þann 5. þ. m. andaðist á heimili
sonar síns hér á Point Roberts Berg-
þór Jónsson. Hann var fæddur á
Kyrkjubóli við Skutulsfjörð 26. maí
1843. Foreldrar hans voru heiðurs-
hjónin Jón Þórðarson, gull- og silf-
ursmiður, og Þóra Eyjólfsdóttir. Jón
var Eyfirðingur að ætt og uppruna.
En Þóra var dóttir sírá Eyjólfs Kol-
beinssonar, er seinast var prestur
að Eyri við Skutulsfjörð, ásamt
Hólaþingum, og er ætt sú þjóðkunn
á Vesturlandi.
Bergþór misti föður sinn á ungum
aldri, og var hjá móður sinni, þar til
hann íór til Þorvarðar Þórðarsonar
og lærði hjá honum snikkaraiðn,
og tók sveinsbréf 13. maí 1864. Fjór-
um árum síðar kvæntist hann ung-
frú Jónfnu Halldórsdóttur. Hún
var af góðum ættum, enda gæða-
kona með afburðum. Þau eignuðust
7 börn, hvar af 4 liía í þessu landi;
hin dóu í æsku. Þau sem lifa eru: —
Guðrún, gift Hjalta Sigurðssyni;
•Jón Halldór, giftur Svanborgu Sig-
urðardóttur, ættaðri af Seyðisfirði
eystra; Eyjólfa, gift Jóni Hjaltalin
Sigurðssyni, og Þóra ógift.
Einn bróður átti Bergþór á lífi
heima: síra Janus Jónsson, seinast
prestur að Holti við önundarfjörð
og prófastur í ísafjarðarsýslu.
Bergþór var fjör- og gleðimaður til
seinustu stundar; hafði fjölhæfar
gáfur og lagði gjörva hönd á hvað
sem hann reyndi. Bagga sína vildi
hann sjálfur binda; vissi sem var,
að það voru hans eigin byrðar. Gall-
steinar urðu honum að fjörtjóni og
var hann rúmfastur að eins sein-
ustu vikuna.
Börnin gráta góðan föður og vinir
og kunningjar finna sárt til, því
þeir vita, að hér er góður drengur
sjónum horfinn.
Jarðarför hans fór fram 29. maí, að
viðstöddum síra Sigurði Ólafssyni
og flestum íslendingum þessarar
bygðar.
Fækkar frumherjum,
fylking rofnar,
tínast árlega
íturmenni.
Göngum gráfcklökkvir
til grafa þeirra,
eftir árin fá
af öllum gleymdar.
Tínast tápmiklir,
traustir, djarfir,
glaðir, vongóðir,
giftusamir
Verða vonbrigði
víkings ættum:
Eiðast, útþynnast
og að engu verða.
Lagt var frá landi
með ljúfar vonir,
bliðar, barnslegar
birtu dætur.
Munu þær flestar
hjá mönnum eldri
bónleiðár hverfa
til búðar hinstu.
Verður víðförlum
vegfarendum
örðug öræfi
til áfanga
Dugar lítið
á dauðastundu
ónýtt orðskrípi
allra landa.
Vakna vanir
þá vegfarendum
eyðist útsjón
og óðum fækki;
berast þær beint
að betri löndum,
þar sem sannleikur
sjálfur ræður.
Gekk eg grátklökkur
frá gröf þinni,
vinur vondjarfi,
unz varstu fallinn.
Fækkar frumherjum,
fylking rofnar;
sækir að sjóndepra,
svíður í auga.
S. Jóhannsson.
Fá orð um Akranes-
ekkju-sjóðinn.
Fyrir nokrum árum var hreyft efa
um það, hver væri réttur eigandi að
sjóðnum, og hverjum bæri að njóta
hans.
í sama sinn úrskurðaði Mr. Bald-
vin Baldvinson, þáverandi ritstjóri
Heimskringlu og aðal hvatamaður
að söfnun sjóðsins, að peningarnir
væru “óneitanlega ekkjunnar eign”.
Henni væru peningarnir gefnir skil-
yrðislaust.
Ef peningarnir voru óneitanleg
eign ekkjunnar daginn þann, þá
eru þeir það daginn í dag.
Það finst saga í íslenzku þjóðsög-
unum um það, þegar einhvern
langaði til að koma sér upp Skolla-
buxum — “fabrikera” Skollabuxur
— var «á hinn sami neyddur til að
stela silfurpeningi frá bláfátækri
ekkju á hvitasunnudag, þegar prest-
urinn var búinn að lesa pistilinn og
áður en hann fékk tíma að lesa guð-
spjallið.
Heyri eg að sú tegund af buxum
sé gengin úr móð. Þess vegna engin
þörf á dollarnum.
Eg gaf henni dollar.
Bjarni Bjarnason.
Rödd Sálarinnar.
Hið menningarlega ástand mann-
kynsins framleiðir hinar grimdar-|
legu atliafnir tímans.
Líttu í kringum þig með aðgæslu,
og þú munt sjá hina ósýnilegu hönd
rita hina miklu lærdómsgrein á
borðflöt lífsins.
Orsök og afleiðing er eðlislögmál
tilverunnar. Orsök og afléiðing, og
afleiðing og orsök, eru aðalleikend-
urnir f þessum mikla sorgarleik lífs-
ins.
Þetta mikla veraldarstríð er nátt-
úrleg afleiðing af misbrúkun mann-
kynsins á löguin náttúrunnar (lög-
um guðs).
Mannkynið hefir ekki stjórnað
sjálfu isér í samræmi við þau lög.
Og nú hefir dagur endurgjaldsins
komið. Nú er það að borga fyrir sín !
brot. Þessi dagur kemur til sumra í
hinu hryllilega stríði, til sumra í
þjóðfélagsbyltingu, og til allra í sið-
ferðisbyltingu.
En þessi bylting er að eins eitt af
þessum stóru stigum í hinni miklu
framþróun. Mannkynið er að þrosk-
ast frá hinu efnislega hugsunar-1
ástandi, til andlegra hugsana.
Það er meira en framþróun. Mað-
urinn er kominn út úr myrkri efnis-
ins inn í ljós andans. Óttastu ekki,
vertu hughraustur. Yeröldin er ekki
að sökkva í myrkur og eyðilegging.
Meistarinn er nú að innleiða nýtt
og stærra ljós, en heimurinn hefir
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ um
heimilisréttarlönd í Canada
og NorÖvesturlandinu.
Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu a?5
Já efcur karlmaöur eldri en 18 ára, get-
ur tekitS heimilisrétt á fjórtSung úr
section af óteknu stjórnarlandi í Mani-
toba, Saskatchewan og Alberta. Um-
sækjandi eröur sjálfur aö koma á
landskrifstofu stjórnarinnar, et5a und-
Irskrlfstofu hennar 1 því hérat5i. í um-
bot5i annars má taka land á öiium
landskrifstofum stjórnarinnar (en ekki
á undir skrifstofum) met5 vissum skil-
yrt5um.
SKYLDUR:—Sex mánat5a ábút5 og
ræktun landsins á hverju af þremur
árum. Landnemi má búa met5 vissum
skilyrt5um innan 9 mílna frá heimilis-
réttarlandi sínu, á landi sem ekki er
minna en 80 ekrur. Sæmilegt íveru-
hús vert5ur at5 byggja, at5 undanteknu
þegar ábút5arskyidurnar eru fullnægt5-
ar innan 9 mílna fjarlægt5 á öt5ru landi,
eins og fyr er frá greint.
1 vissum hérut5um getur gótjur og
efnilegur landnemi fengit5 fol*kaups-
rétt, á fjórt5ungi sectionar met5fram
landi sínu. Vert5 $3.00 fyrir ekru hverja
SKYLDUR:—Sex mánat5a ábút5 á
hverju hinna næstu þriggja ára eftir
at5 hann hefir unnit5 sér inn eignar-
bréf fyrir heimilisréttarlandi sínu, og
auk þess ræktat5 50 ekrur á hinu seinna
landi. Forkaupsréttarbréf getur land-
nemi fengit5 um leit5 og hann tekur
heimilisréttarbréfit5, en þó met5 vissum
skilyrt5um.
Landnemi sem eytt hefur heimllis-
rétti sinum, getur fengit5 heimilisrétt-
arland keypt í vissum hérut5um. Vert5
$3.00 fyrir hverja ekru. SKYLDUR:—
Vert5ur at5 sitja á landinu 6 mánut5i af
hverju af þremur næstu árum, rækta
50 ekrur og reisa hús á landinu, sem er
$300.00 virt5i.
Bera má nit5ur ekrutal, er ræktast
skal, sé landit5 óslétt, skógi vaxit5 et5a
grýtt. Búpening má hafa á landinu í
stat5 ræktunar undir vissum skllyróuin.
W. W. CORY,
Deputy Minister of the Interior.
Blöt5, sem flytja þessa auglýsingu
leyfislaust fá enga borgun fýrir.
nokkurntíma áður séð. I>essir hin-
ir dimmu dagar eru að eins enclur-
gjald, og endir hins mikla sorgar-
leiks.
Með því að mannkynið fari að
™? D0M1NI0N BANK
Hornl Notre Dome og Sherbrooke
Street.
vinna í fullu samræmi við hin al-
fullkomnu náttúrulög, þá kemur
það í veg fyrir alt ranglæti og finn-
ur frið jafnvel í þrautum frainsókn-
arinnar.
Sérhver kynslóð ætti að vinna að
breytingu á ásigkomulaginu í heim-
inum. Sérhver sál ætti að ljá öfl sín
til þess að endurnýja og þroska
lífið.
Sérhvert sæði mun framleiða jurt
af sinni tegund. Kjóstu rétta sæð-
ið, “því eins og þú sáir muntu upp-
skera".
(Lauslega þýtt af M. J.).
Hðfunatðll uppb...„.„„ »6,000,000
Varaajöflur .......... »7,000,000
Allar ellfnlr. .......... . . .»78,000,000
Vér óskum eftlr viósklftum ver*-
lunarmanna og ábyrgjumst aB gefa
fcelm fullnœgju. Sparlsjóðsdeild vor
er sú stærsta sem nokkur bankl hef-
lr í borglnni.
lbúendur þessa hluta borgarinnar
óska aB sklfta vlb stofnum sem þelr
vita aó er algerlega trygg. Nafn
I vort er fulltrygglng óhiutlelka.
I ByrJiB sparl lnnlegg fyrlr sj&lfa
yBur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, RáSsmaíur
PIIONE GARRY S450
Þrengist í búi hjá Þjóðverjum.
Það er fyrir löngu haft fyrir satt,
að Þýzkir hafi étið hunda og ketti,
rottur og refi og alt það, sem á fót-
um fjórum hafi gengið. En nú er
sagt, að stjórnin hafi látið það boð
út ganga, að skjóta smáfugla alla,
sparfugla og grátitlinga, krákur og
hrafna sér til matar, og drýgja fæð-
una þannig. — Vilhjálmur ætti
sjálfur að hafa saina borð og hinii
aðrir þegnar hans.
223. Canadian
Scandinavian
Overseas Battalion
Lieut.-Col. Albrechtsen O.C.
HEADQUARTERS: 1004 llnion Trust Bldg., Winnineg
Æðri og lægri foringjar og bermenn verða Scandinavar
Sveitina vantar hermenn.
Skrifið yður í hana.
MARKET HOTEL
146 PrlncesN Streot
á móti markat5inum
Bestu vínföng, vindlar og at5-
hlyning gót5. íslenkur veitinga-
maöur N. Halldórsson, lei^bein-
ir lslendingum.
P. O'CONNEL, Eigandi Winnlpes
Sérstök kostabot5 á innanhúss-
munum. Komit5 til okkar fyrsl, þit5
munit5 ekki þurfa at5 fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
59S—395 NOTRB DAME AVEXUE
TnlMfmi: Garry 38S4.
Shaw’s
Stærsta og elsta brúkat5ra fata-
sölubút5 í Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
GISLI GOODMAN
TINSMIÐUR.
Verkstæt5i:—Horni Toronto St. og
Notre Dame Ave.
Phone Ileimilla
Garry 21)88 Gnrry 800
FÍNASTA SKÓVIÐGERÐ.
Mjög fín skó vlt5gert5 á met5an þú
bít5ur. Karlmanna skór hálf botn-
at5ir (saumati) 15 mínútur, gútta-
bergs hælar (don’t slip) et5a let5ur,
2 mínútur. STEWART, 103 Paclfle
Ave. Fyrsta bút5 fyrir austan atSal-
stræti.
J. J. BHDFELL
FASTEIGNASALI.
Unlon Bank 5th. Floor No. 520
Selur hús og lótiir, og annati þar atl
iútandl. Útvegar peningalán o.fl.
Phone Maln 2685.
PAUL BJARNASON
FASTEIGNASALI.
Selur elds, lifs, og slysaábyrgt5 og
útvegar peningalán.
WYNYARD, - SASK.
J. J. Swanson H. G. Hinrlksson
J. J. SWANSON & CO.
FASTEIGNASALA R OG
peninan mlhlar.
Talsími Main 2597
Cor. Portage and Garry, Wlnnipeg
Graham, Hannesson & McTavish
LÖGFREÐINGAR.
215—216—217 CURRIE BUILDING
Phone Main 3142 WINMPEG
Arni Anderson E. P. Garland
GARLAND& ANDERSON
LÖG FR.EÐ IN GAR.
Phone Main 1661
Clectrxc Railway Cbamten
Talsími: Main 5302.
Dr. J. G. Snidiil
TANNLÆKNIR.
614 SOMEIISET BLK.
Portage Avenue. WINNIPEG
Dr. G. J. Cizi, son
Physlcian and Surgcin
Athygli veitt Augna, Eyr-ia og
Kverka Sjúkdómum. Á.«amt
innvortis sjúkdómum og upp-
skurt5i.
18 South 3rd St., Grand Foi Km, N.D.
Dr. J. Stefánsson
401 BOYD BUILDING
Horni Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kverka-sjúkdóma. Er aö hitta
frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 5 e.h.
Phone: Main 3088.
Helmili: 105 Olivia St. Tals. G. 2316
*
Vér höfum fullar birgölr hrein-
ustu lyfja og meíala. Komiö
meö lyfseöla yöar hingaö, vér
gerum meöulin nákvœmlega eftir
ávísan læknisins. Vér slnnum
utansveita pöntunum og seljum
giftingaleyfi. : : : ;
COLCLEUGH <& CO. <
Notre Dame Sherbrooke Sta.
Phone Garry 2690—2691
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaöur sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina. : J
813 SHERBROOKE ST.
Pnone G. 2153 WINNIPEG