Heimskringla - 15.06.1916, Page 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 15. JÚNl 1916.
Auction
Sale
Everi) Second and Fourlh Salurday
monthli/ will be held al Clarkleigh
this year from 2 to 6 p. m.
B. RAFNKELSSON.
Tax Sa/e.
Hér með tilkynnist, að Tax Sale
Gimli bæjar hefir verið frestað til
5. júlí 1916. Verður þá haldin í
ráðhúsi bæjarins kl. 2 e. h.
Swan ManufacturingCo.
676 SARGENT AVE. PHONE SHERBR. 494.
Býr til og selur hin velþektu SWÁN WEATHER STRIPS.
Gjörir gamla húsmuni eins og nýja.
Smíðar vfrglugga (Screens) af öllum stærðum.
HURÐIR
Sérstök kjörkaup nú um stuttan tíma: —
Útidyra-hurðir úr furu og birki, með 3 glerrúðum. stærð:
2.8x6.8. Vanaverð $8.00 til $10.00. Eyrir . $3.50
Innidyra-hurðir af öllum stærðum. Vanaverð $4.00. Nú $2.00
Sérstakt athygli veitt pöntunum utanaf landi.
Swan Manufacturing Company
676 SARGENT AVENUE. WINNIPEG, MAN.
HALLDÖR METUSALEMS.
Fréttir úr Bænum.
Capt. H. M. Hannesson og Serg’t
H. Axford, frá 223. herdeildinni. eru
komnir heim eftir mánaðarferð til
að safna liði, og koma í lag liðsöfn-
unarstöðvum í Alberta. Á þessari
ferð sinni voru þeir önnum kafnir
og varð mikið ágengt við starf þetta
og settu upp margar nýjar stöðvar
til liðsöfnunar í Aiberta fylkinu.
3?eir hafa sent hingað marga nýja
liðsmenn og von á hópum á eftir, og
stafar það alt af ferð þeirra.
223. herdeildin liefir fengið 25
menn í Wynyard og Eoam Lake og
sveitunum í kring. Fóru þeir í her-
mannaskála þar, sem konur bygðar-
innar höfðu útbúið að öllu leyti, er
með þurfti. Og héldu drengirnir þar
dans nýlega og liöfðu upp úr dans-
inum 46 dollara í liðsöfnunarsjóð
handa lierdeildinni.
Mr. Nikulás Snædal, Reykjavík P.
O., Man., var hér á ferðinni. Lét
hann vel af öllu þar vestra. Gras-
spretta all-góð; rigningar í 11 daga
áður en hann fór. Samgöngur að
batna. Gasólin-bátur gengur nú frá
Steep Iiock, sunnanvið Eairford, og
suður til Sigluness, og tekur menn
og flutning (einkuin rjóma) og flyt-
ur til járnbrautarinnar. Báturinn
gengur einu sinni í viku, og er hann
eign Ásmundar Frímanns, sem er
kapteinn á bátnum og hefir lengi
stýrt bátum á vatninu. — Manitoba
-stjrnrin styrkti Mr. Frlmann eitt-
hvað, tii að setja vél í bátinn. As-
mundur bygði bátinn í upphafi og
hafði fyrir seglbát; en þegar til tals
kom að flytja rjómann, var ómögu-
legt að notast við segibát og þurfti
að setja vél í hann. Þetta gjörði Ás-
mundur og fékk einhvern styrk frá
stjórninni. — Vér óskum Ásmundi
til hamingju; hann er drengur góð-
ur og dugandi, og starf þetta liið
þarfasta fyrir sveitunga hans.
Á laugardaginn kemur, 17. þ. m.,
verður hið árlega PICNIC sunnu-
dagaskóla Tjaldbúðar safnaðar, að
þessu sinni í KILDONAN PARK.—
Komið verður saman við kyrkju
safnaðarins kl. 1.45 e. m. Strætiskar-
ið, sem tekur fólkið norður, fer frá
horninu á Victor Street og Sargent
Avenue étundvíslega kl. 2 e. m. Á-
ríðandi að vera þá kominn á stað-
inn, því snunudagaskólinn gefur
öllum börnunum, sem á því kari
fara, frítt far báðar leiðir. Óskað er
eftir, að sem flestir af aðstandend-
um barnanna og kunningjum þeirra
verði með; og þó að þeir geti ekki
farið þá strax, að þeir komi seinna,
til að gjöra börnunum daginn sem
ánægjulegastan. — Verðlaun fyrir
kapp verða börnunum gefin, sem að
undanförnu.
Laugardaginn þann 17. júní halda
sunnudagaskólar Fyrsta lúterska og
Skjaldborgar safnaðar PICNIC í
KILDONAN PARK. Fóik mætist
hjá Fyrstu lútersku kyrkjunni kl.
9.15 að morgninum, og verður þá öll-
um börnuin gefið frítt far með
strætisvögnum fram og til baka. —
Góðar skemtanir. Allskonar ‘sports’,
svo sem Baseball, hlaup o. s. frv. —
Fóik beðið að hafa með sér mat fyr-
ir sína.
Vér viljum benda bæjarfólki á
auglýsingu frá Manitoba and Sas-
katchewan Produee Co. Það borgar
sig að kaupa af þeim egg og smjör
og aðra bændavöru, sérstaklega fyr-
ir J)á, sem þurfa mikið að kaupa í
einu. I>eir fá sína vöru beint frá
bændunum og því er að eins einn
milliliður. — Reynið þá.
Miss Sigríður Frederiekson heldur
samspii með nemendum sínum
næsta þriðjudagskveld, 20. júni, —
byrjar kl. 8.30 á Y.M.C.A., Eilice
Avenue Samskot tekin við dyrnar
til að borga kostnað. Fólk ætti að
fjölmenna, því góð skemtun er í
boði, og Miss Frederickson svo vei
kunn nú fyrir list sína.
Sergeant Guðin. O. Thorsteinsson,
fyrrum kennari við Lundar, Man„
fer vestur til Markerville, Alberta,
um iniðjan jiinímánuð, tii að safna
iiði fyrir 223. herdeildina. Sergeant
Thorsteinsson var fyrir nokkrum
árum kennari við skóla nálægt Lun-
dar, og á þar marga vini meðal bygð
armanna.
Málverk.
Alskonar litmyndir (“Pastel” og olíu-
málverk) fást keyptar hjá I»or»telni 1».
l>OrMtelnHMynl, 7‘.i‘2 MeCiee St. — TnlMfml
H. 41M>7. — Ljósmyndum, bréfspjalda-
myndum o s. frv. breytt í stórar lit-
myndir fyrir mjög sanngjarnt vert5.
Efalaust eiga allir einhverja mynd
svo kæra, aó þeir vilja geyma hana
met5 lifi. pví, sem höndin og litirnir
skapa, til minja í stofunni sinni.
Á hermannaskólanum hér í borg-
inni tóku þeir Sergeants-próf nýlega
Sveinbjörn Árnason, Winnipeg, og
Mr. Herinannsson, frá Selkirk, báðir
úr 108. herdeildinni. 1 næsta blaði
birtum vér hersöng (“Kyijan”) sem
Mr. Sveinbjörn Árnason hefir kveð-
ið. Sveinbjörn líkist þar hinum
fornu forfeðrum vorum, að hann
gjörir hvorutveggja: að berjast og
yrkja.
íslendingadagurinn.
Isiendingadagsnefndar fundur
verður haldinn í Dr. Brandson’s
Office mánudaginn 19. júní kl. 7 e.
h. Allir i^fndarmenn ámintir um að
mæta í tíma.
Hr. Björn Björnsson, frá Elfros,
Sask., kom til borgarinnar nýlega.
Hann kvað bændur jiar vestra hafa
verið að ljúka við sáningu á ökrum
sínum og útlit gott. Hveitiakrar vel
komnir upp og vöxtur góður. Sum-
ir Elfros bæfldurnir liafa nú rriikla
akra; og almenn vellíðan þar.
Dans ætiar 223. herdeildin !að halda
föstudaginn iiinn 16. júní kl. 9 e. m
í Fort Garry hótelinu hér i borg. —
Aðgöngumiðar fást hjá hermönnum
deildarinnar og á hótelinu. — Kom-
ið og skemtið yður með hermönnun-
um; þér hjálpið þeim um leið.
Aðgöngumiðar að eins einn dollar
og er kveldverður þar í.
Vér viljum benda bændum á aug-
lýsingu D. G. McBean Co. f þessu
blaði. í>eir borga hæsta verð fyrir
egg, smjör og hvað annað, sem bónd
inn hefir að selja, og eru árciðan-
legir í viðskiftum. Getið um, að þér
hafið séð aúglýsinguna í Heims-
kringlu, þegar þér skrifið þeim. —
Það skaðar ekki. ,
Sölunni á heimabökuðu brauði,
sem konurnar í Tjaldbúðar söfnuði
höfðu ákveðið að haida á laugar-
daginn þann 17. þ. m. f búð hr. Jón-
assonar í Fort Rouge, hefir verið
frestað til laugardagsins þann 24. b.
m. — sökum þess að þann 17. júní
verða þrjú sunnudagaskóla Picnic
frá íslenzku kyrkjunum.
Árni Christiansson frá Minneota,
Minn., og Ethel Stephenson frá
Winnipegosis, Man., voru gefin sam-
an í hjónaband 30. marz 1916 af síra
F. J. Bergmann, að heimili hans,
259 Spence Street.
Nikulás Halldórsson og Sveinbjörg
Einarsson, bæði til heimilis í Winni-
peg, voru gefin saman í hjónaband
5. maí 1916, að 259 Spence Street, af
síra F. J. Bergmann.
John Helgi Johnson og Guðrún
Magnússon, bæði til heimilis að
Gardar, N. Dak., voru gefin saman í
hjónaband á heimili systur brúðar-
innar, Mrs. A. Thorsteinsson, 254
Rutland Street, af síra F. J. B«rg-
mann, föstudaginn 8. júní sl.
Ef að einhver skyldi vita utaná:
skrift og verustað Júlíusar Alfred,
sem nú er nýlega særður og er ann-
hvort á Englandi eða á Frakklandi,
þá óskum vér að sá maður eða kona
tilkynni það féhfrði “Jón Sigurðs-
son” félagsins, Miss C. L. Hannes-
son, 523 Sherbrooke St., Winnipeg;
talsími Sherbrooke 4966; — eða þá
einhverri félagskonunni f “Jón Sig-
urðsson” Chapter, I.O.D.E.
Atvinnu-tilboð.
Stúlka, sem getur brúkað ritvél
(typewriter), skrifar góða hönd og
er góð í reikningi, getur fengið
vinnu STRAX. Semja má við ráðs-
mann Heimskringlu.
TIL LEIGU
Stórt framherbergi uppi á lofti;
hentugt fyrir einhleypan mann eða
konu. Renta $6.00 um mánuðinn.
— 670 Lipton Street.
Frá 223. herdeildinni.
Eftirfylgjandi menn hafa nýlega
gengið f 223rd Scandinavian Over-
seas Battaliön, sem Lt.-Col. Albrecht
sen, O.C., er foringi fyrir: —
Nfels Gfslason.
Louis Hodne. v
Aibert Alm.
Clem Orlowski.
Konrad L. Person.
J. C. Brostrom.
Iver Finseth.
Norman McBay
Henrick Petri
Gosti Risto
W. E. Tuhkanen.
H. W. Gurnsey.
John Eck
E. Carlson.
J. F. Linden.
Bernhard Larson.
N. Prestlien.
Artiiur Movold.
R. Ingimundarson.
Joe Moor.
Jens Sörensen.
John Grímsson.
Erick Broen.
V. Grímsson.
O. E. Haroldson.
M. A. Samuelson.
John R. Jóhannsson.
Carl Olson.
C. Erickson.
Thos. Done.
Frank Stenberg.
Mike Jacobs.
E. R. Foster.
J. Varrette.
Neil Mackinnon.
O. Hansson.
Jens Trunnes.
Magnus Hiilestad.
W. T. Jermer.
C. C. Peterson.
Simon Wick.
C. Swiggum.
D. Benson.
J. Wienekowski.
Barney Hansson.
J. A. Strindlund.
Peter Carlson.
H. Hansson.
E. Sunberg.
R. H. Hugall.
A. Henning.
Olaf Olstadt.
F. Hellerstad.
Jorgen Skeel.
H. J. Josephson.
E. Minikkinen.
E. Larson.
M. Halvorson.
E. Kolberg.
B. Christianson.
G. Bergstrom.
G. M. Peterson.
Thos. Abonen.
Roy Carruthers.
Carl Nordal.
T. Bjornerud.
Bernhöft Hansson.
J. S. Thorarensen.
E. Talmanen.
S. Sölvason.
W. D. Woodruff.
.1. J. Kaura.
Peter O. Peterson.
Peter Matthew.
A. Jörgensen.
Frank Eliing Benson.
Gulibrúðkaups vísa
Til Jóns Bjarnasonar og
Helgu Thorláksdóttur.
Heil og sæl í hárri elli
hjónin trygg og glöð í lund.
Yfir ykkur allir helli
óskum beztu á hverri stund.
Fyrir dygðir fleiri en taldar
flyt eg ykkur þakkar-brag:
liafið þökk fyrir hálfrar aldar
hamingjusamt ferðalag.
V. J. Guttormsson.
Frá 197. herdeildinni.
Heiðraði ritstjóri Heimskringlu!
1 nafni Lt.-Col. A. G. Fonseca og
197. herdeildarinnar þakka eg þér
fyrir vingjarnieg ummæli í síðasta
blaði. Eg gleðst af því, þegar eg líð
yfir sólskinsreiti sansanna, að sjá
þig í anda, og vita að þú hefir nú
öðlast rétta og sannari þekkingu á
foringja vorum A. G. Fonseca, en þú
virtist hafa á köldum Þorradögum.
Eg veit, að þú ert maður, sem úti-
iokar ekki lífgandi og ljósfærandi
sólskin, þá loks að það getur gjört
vart við sig fyrir frosinni rúðu
flokkarígs, — þó þú prentir ekki
með svörtum húðþykkum prent-
svertustöfum “Sólskin” og sólskin í
einu og sérhverju blaði Heims-
kringlu, — þá sér þó andlega sjá-
andi drengur oft til sólar í hugskoti
þínu, sérstaklega þá þú hleypir til
skeiðs í Berserkjahrauni íslenzk-
unnar. Þá duna stundum hölkn
undir broddum. En eg ætla ekki að
tjóðurhæla þig í glótúnum gull-
hamranna, að þessu sinni, síra
Magnús Hnausatröll.
Úr herbúðum Vfkinga er smátt
um stórfregnir. Nokkurir nýir liðs-
menn bættust í síðustu viku. Nú
erum vér komnir á síðari helftina.
Hér spilar herbandið ár og síð og
alla tíð. Hljóðfæri 197. herdeildar-
innar eru væntanleg 15. þ. m. — í
hljóðfæraflokk deildarinnar eru 15
eða 16 íslendingar og nokkurir ann-
ara þjóða menn. Þó skortir ennþá
nokkra drengi af betra tagi. Ættu
10 til 12 söngnæmir íslendingar að
nota tækifærið tafarlaust, og ganga
í hljóðfærasveitina. Þar geta þeir
notið beztu tilsagnar og kenslu hjá
hljóðfærameistara Sigurði H. Tiiing-
holt. Hann er óefað sá söngfróðasti
og taktnæmasti meistari, sem völ er
á í Vestur-Kanada. Það er athuga-
leysi og fásinna fyrir þar til henta
menn, að grípa ekki þetta tækifæri.
Góður hljóðfæraleikari getur átt
völ á atvinnu í þeirri list, þó öll
heimsins stríð líði undir lok. Það
er ekki efa undirorpið, að band 197.
herdeildarinnar verður eftir lærdóm
og æfingu snjallasta herlúðra-band
í Vestur-Kanada, ef ekki víðar.
Einn grísk-kaþólskur maður hefir
dáið í deildinni. Veikindi ekki tíð
og sízt hættuleg.
Meira síðar.
Á hvítasunnu 1916.
K. Ásg. Benediktsson.
Herskipið ‘Warspite\
Brynskipið Breta ‘Warspite’ er
viðlíka stórt og ‘Queen Elizabeth’,
og koin seint í bardagann, en tók
rösklega til starfa, þegar það komst
í slaginn, og barðist þá um stund á
móti öllum flota Þjóðverja.
Það hefir verið nálægt miðri or-
ustunni, að herskipið ‘Warrior’ var
iamað orðið. Vélarnar voru brotnar,
skipið var að fyilast af sjó og her-
mennirnir náðu ekki skotfærur.um,
því að þar var alt fult af sjó, sem
þau voru. Skipverjar voru því orðn-
ir sannfærðir um, að þeir myndu
sökkva með skipinu eins og önnur
skip, sem þarna voru nýsokLin. En
þeir biðu rólegir þess sem konis
myndi og æðraðist enginn maður.
En í þessum svifunum sáu þeir
reyk af skipi í fjarska og f erðist.
hann nær með feikna hraða. Jeili-
coe aðmíráll hafði sent skip á undan,
því hann bjóst við, að Bretar væru
liðsþurfar. Skipið strikaði áfram
og fossaði brimaldan snjóhvít und-
an báðum bógum þess. Þeim var
alvara Bretunum að komast í leik-
inn. 15 þumlunga falibyssurnar
göptu við Þjóðverjum. Lyptist þá
brún á hermönnunum á ‘Warrior’,
því nú sáu þeir, að sín myndi þó
hefnt verða; og þegar ‘Warspite’
rendi fram hjá þeim, milli þeirra og
óvinanna, þá dundu gleðiópin frá
‘Warrior’, og tóku þá hermennirnir
á ‘Warspite’ undir. En ‘Warrior’ lá
þarna hjálparlaust á sjónum, þvf að
Hospital Pharmacy
Lyfjabuðin
sem ber af öllum öðrum.---
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasafn; mjög ódýrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávisanir, seljum frímerki og
gegnnm öðrnm pósthússtörfum
818 NOTRE DAME AVENUE
Phone G. 5670—4474
CANADA’S FINEST SUBURBAN THEATRE.
Föstudag og Laugardag: —
Olga Petrova í “THE VAMPIRE”
Einnig “Graft” 15. partur.
Mánudag og Þriðjudag: —
Hazel Dawn í “THE SALESLADY.
Miðvikudag og Fimtudag: —
Fanny Ward í “FOR the DEFENCE”.
stýrisvélar voru allar brotnar, svo
skipið gat ekki hreyft sig. En ‘WTar-
spite’ tók til starfa, og þegar það
skreið meðfram hliðinni á ‘Warrior’,
þá var ölluin 15 þumlunga fallbyss-
unum skotið á næsta skip Þjóð-
verja, sem búið var að brjóta ‘War-
rior'; það þurfti ekki meira, því að
það sökk óðara, og nú fór allur
þýzki flotinn að skjóta á ‘Warspite’.
En hið mikla skip svaraði þeim öii-
um. Sprengikúla ein kom í stýris-
vélina og braut hana; en ‘Warspite'
brá sér ekki við það, en fór hring
eftir hring f kringum ‘Warrior’, sem
móðir væri að verja barn sitt og ein-
lægt stóðu hinir logandi blossar úr
gini fallbyssanna. Þegar Beattie sá
þetta, þá bauð hann ‘Warspite’ að
snúa undan, því að þetta væri að
hætta skipinu. En skipið gat ekki
undan snúið fyrir skemdunum á
stýrisvélinni; en það gat farið hring
eftir hring utan um hið hálfbrotna
skip ‘Warrior’ og það gjörði það.
Og svo kom bráðlega hinn flotinn;
en áður en hann lcæmi var allur
þýzki flotinn á fiótta. — Þetta hefir
verið orsökin til þess, að Þýzkir
stóðu lengi á því fastara en fótum
sínum, að þeir hefðu sökt ‘War-
spite’ og ‘Warrior’; þeir gátu ekki
þolað það, og gátu ekki trúað því,
að nokkurt skip Breta gæti komist
af, sem hafði óðara sökt dreka
þeirra, barist við alian flotann og
brotið flest herskip þeirra meira og
minna, en bjargað ‘Warrior’, sem
þeir töldu áreiðanlegt f fyrstu að
þeir væru búnir að sökkva.
Herskipið ‘Hampshire/
Fregnir eru nú farnar að koma um
herskipið “Hampshire”. Kitchener
hafði farið út í skipið frá Orkneyj-
um. En klukkutíma eftir að hann
var kominn um borð, var skipið í
logandi báli. Menn á fiskiskipum,
sem voru þar nálægt, segjast hafa
heyrt sprengingu í herskipinu. Veð-
ur var hvast og sjóar stórir.
Mennirnir 12, sem voru á flekanum
sem rak að landi, voru mjög illa til
reika og gátu varla talað í fyrstu.
Að eins gátu þeir sagt: “Kitchener
var á skipinu!” Svo er sagt, að bát-
urinn, sem Kitcheruer með fleirum
fór út í, hafi fylst af sjó og sokkið,
er hann lagði frá borði. — 80 lfk
voru rekin.
Þessir nafngreindir menn voru
með Kitchener á skipinu: Hugh
James O. Beirne, ráðunautur sendi-
herra Breta í Petrograd og áður
sendiherra Breta í Búlgaríu; O. A.
Fitzgerald, skrifari og fylgdarmaður
Kitchener’s; Brigadier-General El-
iershaw og Sir Frederick Donald-
son. Þessir menn eru allir taldir
látnir.
BORÐVIÐUR MOULDINGS.
Við höfum fullkomnar byrgðir
al öllum tegundum.
VerSskrá verSur send hverjum, sem
æskir þess.
THE EMP/RE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511
Tímaritið “Iðunn,\
Nokkur eintök af öllum 1. árg. Ið-
unnar (öll 4 heftin bundin í eitt)
hefi eg nú til sölu. Kostar $1.00, er
fylgi pönt'un. Pantanir sendist sem
fyret til undirritaðs.
Stefán Pétursson,
696 Banning Stréet, Winnipeg.
Hvert Stefnir ? í
fyrirlestur eftir síra Frið-
rik J. Bergmann. 68 blað-
síður þéttprentaðar á góð-
an pappír. Verð í bandi 50
cents. Til sölu hjá undir-
skrifuðum og bóksölum ísl.
hér vestra.
Ólafur S. Thorgeirsson.
678 Sherbrooke St., Winnipeg
Auction Sale
Það verður uppboðssala á öllum
innanstokks-munum í
Hotel Como, Gimli
17. Júní
næstkomandi; byrjar kl. 2. e. !>•
Salan fer fram í hótelinu, og alt
verður að seljast, svo sem:
12 “bar-room” stólar.
14 pör “Lace Curtains”.
Gólfdúkar.
Alt Leirtau. !
Borstofu Stólar og Borð.
Borðdúkar.
Rúmfatnaður.
Eldastó.
Myndir.
“Cash Register.
Vínglös.
Gluggablæjur.
Olíulampar.
“Toilet Ware”.
Rúmstæði og Svefndýnur.
Kommóður.
Og margt fleira, sem oflangt yrði
upp að telja..
Allar frekari upplýsingar fást hjá:
HULL, SPARLING & SPARLING
325 Main St., Winnipeg.