Heimskringla - 21.02.1918, Qupperneq 1
Mr. Merchant:
IF YOU have anythingr to sell to the
Icelandic speaking element in this
Western Country, you can addresr
this entire field more effectively
«.nd economically through the adver-
lising pages of the weekly Heims-
kringla than in any other way. Has
gone into the Icelandic homes of West-
ern Canada for 32 years.
This Space For Sate
How About It?
How would your Ad. look here?
For terms and other information
Phone G. 41 10. The Viking Press,
Ltd. 729 Sherbrooke St.
This Space For Saie
XXXII. ÁR.
WINNIPEG, MANíTOBA, 21. FEBROAR 1918
NOMER 22
Styrjöldin
Frá Frakklandi.
Orustur eru nú tíðari en áður á
vestur-vígstöðvunum. Ekki hafa
Þjó'ðverjar enn sem komið er hafið
stóra sókn á neinum svæðum, en
smááhlaup eru l>eir stöðugt að
g’era hér og ]>ar og J>annig eins og
að þreifa fyrir sér hvar bandamenn
muni veikastir fyrir. ^kki virðast
þó áhlaup þossi hafa verið ger í
stórum stíl og að líkindum hefir
fótgönguliðið tekið þátt í fæstum
þeirra.
Vafalaust hlýtur útlitið að taka
breytingirm á Erakklandi engu síð-
ur en annarsstaðar verði áfrarrthald
stríðsins á milli Þjóðverja og Rúss-
anna. Eins og nú 'horfir eru fylstu
líkur til að þeir þýzku verði að
hætta burtflutningi liðsins frá
austursvæðunum, því þó Rússar
fiéu nú fáliðaðri en áður, or ekki ó-
hugsandi að þeim enn hepnist að
veita töluverrt viðnám. Getur jafn-
vel svo farið áður en lýkur, að
Þjóðverjar verði að flytja austur
aftur stóran hluta þess herliðs, sem
þeir tóku þaðan. Ef svo kynni að
fara, er hætt við að þessi marg-
auglýsta sókn á vígvöllum Frakk-
lands og Relgiu eigi lengra í land,
en búkst hefir verið við —og þegar
sókn þessi loksins nær að rætast, er
ekki víst, að hún verði eins stór-
kostleg og gert var ráð fyrir.
Alla vikuma voru Þjóðverjar 'hér
og þar að gera smá-áhlaup gegn
Bretum og voru áhlaup þessi einna
öflugust á evæðunuim suður af
Scarpe ánni. En ekki fengu þeir
brotið niður vörn Breta á neinum
þessuin stöðum, og virðist flestum
viðureignunum hafa lyktað þannig
að þeir Jiýzku hafi orðið að hörfa
undan aftur við meir og minna
mannfall. Ytfirburðir Breta i öllu
lofthernaðinum viðkomandi vott-
ast nú þetur og betur með degi
hverjum. Loftmonnirnir brezku
eru óragari að þreyfca flugið en þeir
þýzku og árásir þeirra því tíðari.
Einn í daginn síðustu viku voru 17
flugvélar skotnar niður fyrir Þjóð-
verjum á einu svæðinu.
Þann 12. þm. gerðu Canadamenn
áhlaup í grend við Hargiscourt og
brutust þar í gegn um fremstu
skotgrafir óvinanna, tókú nokkra
menn fanga af liði þeirra og sömu-
leiðis náðu þeir á sitt vald tveimui
vélbyssum þeirra og fjórum stærri
byssum. Á sama tfma og áhlaup
þefcfa var, átti sér stað annað á
hlaup, einnig gert af Canadamönn-
um, á svæðinu í grend við borgina
bens. Tóku þeir í því áhlaupi færri
fanga, en fleiri byssur. Yíðar hafa
Canada hermennirnir gengið fram
ihreystilega og fleiri áhlaup hafa
þeir gert, en sem ljósar fregnir
hafa ekki borist af er þetta er skrif-
að. Sir Douglas Haig, æðsti herfor-
ingi Brefa á Frakklandi, hefir sent
þakkarskeyti þeim Canada her-
deildum, sem þátt tóku 1 áhlaupinu
við Hargiscourt.
Stærsta áhlaupið, sem gert var á
Frakklandi síðustu viku, var gert af
Frökkum á Ohampagne svæðinu.
Sót*u Frakkar þarna fram á nærri
míiu svæði og erftir ali-harðan slag
á báðar hliðar fengu þeir hrint
þeim 'þýzku aftur á bak á öllu
þessu svæði og tekið um 200 fanga.
A þessu svæði var haldið, að Þjóð>-
verjar myndu ef til vill byrja hina
mikiu sókn sfna og þar með láta
fyrsta höggið ríða á Frökkum.
Hægra megin við Meuse fljótið
voru einnig all^snarpir slagir og
víðar. En að srvo komnu er ekki að
sjá annað en Frakkar séu fyllilega
f^erir um að halda sínu fyrir þeim
þýzku og fara hvergi halloka.
Bandaríkja herdeildirnar sækja
‘fram knálega á þeim svæðum, sem
þær halda, og láta óvinina epgan
frið hafa nótt eða dag. Þjóðverjar
hafa gert gegn þeim áhlaup mörg
og sfór, en enn sem komið er hafa
þeir hvergi megnað að brjóta varn-
argarð hermannanna frá Banda-
rikjunum.
------o-------
Stórt barnahæli brennur
í Montreal.
Þann 14. þ.m. brann stórt nunnu-
klaustur í Montreal og fórust í eldi
þossum margir tugir ungbarna, er
voru á barnai.æli þjsra Idausturs.
Eldurinn kom upp síðla kvölds og
haldið er að hann hafi orsakast af
neistum úr rafvél. Alt fullorðio fólk
komst úr uyggingunni og sökum
hreystilegrar framgöngu slökkvi-
liðsins, 'heimkominna hermanna og
nunnannna sjálfra varð mörgum af
börnunum bjargað — en haldið er.
þó, þegar þetta er skriað, að um 75
—Í00 börn hati farist. Er þetta sá
hrylliiogasti eldur, sem átt hcfir sér
stað í sögu Montreal borgar, og
mörg foreidri eiga þar nú um sárt
að binda.
-------o-------
Frá Rússum.
örðugt er nú að fá nokkurn
botn í fréttum frá Iiússiandi. Það,
sein sagt er í dag er tekið til baka
á morgun og stundum berast það-
an samhliða ineð öllu ósamræman-
legar fréttir.
Um miðja síðustu viku var sagt
frá því, eins og ekýrt var frá í
seinasta blaði, að friðarstefnan f
Brest-Litovsk hefði lyktað þannig,
að Rússar og Miðveldin hefðu sam-
ið frið, en Bolsheviki stjórnin hefði
þó neitað að undirskrifa samning-
ana formlega. Fulltrúar Ukrainiu
aftur á móti áttu að hafa undir-
skrifað samninga þossa og alt því
að vera klappað og klárt þar á
milli. Var um tíma gengið út frá
þessu sem sönnum réttum og óef-
að hafa þær haft mikil áhrif um
aillan heim. Uppistand töluvert
varð í þinginu á Englaindi og hefir
Lloyd George sjaldan átt jafn fult
í fangi að stilla þar til friðar.
Ekki leið þó á löngu að kvisast
tók að fréttir þessar hefðu verið
eitthvað orðuin auknar. Biátt kom
svo að því, að þær voru algerlega
bornar til baka og var þá friðar-
stefnan ofannefnda sögð að hafa
endað í sundrung og versta ósam-
komulagi; stjórn Rússa fiefðl fast-
lega neitað að ’samþykkja frið
Þjóðverjanna og í stað þess að
heimkaJla her sinn væri hún tekin
að undirbúa þann til vai-nar gegn
væntanlegri árás frá þeim þýzku.
Vopnahlé því, sem samið var um,
átti að vem sagt slitið af Þjóð-
verjum og þeir í þann veginn að
hefja öfluga sókn gegn Rússum
með óvígum her. Austurríkisnienn
voru þó sagðir lítt fúsir á áfram.
hald stríðsins á austur svæðunum
og var þetta almenfc talið sundur-
lyndis vottur á milli þeirm og
Þjóðverja.
Borgarastyrjöldin heldur áfram
látlaust. Hersveitir Bolsheviki
stjórnarinnar sækja gegn Ukrain-
íu og fá áður iangt líður tekið
borgina Kiev, við ógurlegt mann-
fall á báðar hliðar. Þjóðverjar
eiga þá að hafa sent sfcóran her
Ukrainiu til hjálpar.------
Svo kemur fréttin á þriðjudag-
inn f þessari viku—eins og þrumu-
skúr úr kolsvörtu lofti—að Þjóð-
verjar hafi tekið á sitt vald borg-
irnar Lutzk og Dvinsk á Rúss-
iandi og er borgir þessar voru her-
teknar virðist ótta miklum hafa
slegið ytfir alt Rússland,—Nýr bylt-
ingaflokkur á að vera kominn þar
til sögunnar og sem steypt hafi
þeim Lenine og Trotzky frá völd-
um og eiga þeir að vera lagðir á
flótta til Riga. — Samtímis þessu
eru Rússar sagðir neyddir til að
semja frið við Þjóðverja og ganga
að skilmálum þeirra.
Frá þessu verður betur skýrt í
næsta blaði, er Ijósar fréttir hafa
fengist.
-------o--------
Tvær árásir á England.
Á laugardaginn var gerðu þýzk
ir loftbátaflotar árás á England og
komst ein af fíugvélum þeirra alla
leið tii Lundúnaborgar. Eignatjón
hlauzt taisvert af þessu og 11
manns biðu b na, 5 konu og 3
börn. Á sunnudagintn gerðu þeir
þýzku samskonar árás aftur og í
það sinn fengu þcir banað 16
manns og sært 37. — Hvaða hagn-
að herstjórnin þýzka sér í því að
myrða þannig konur og börn á
Engirndi, er öilum hulin ráðgáta.
-------o--------
Spor í rétta átt.
Með því markmiði að efla fram-
ieiðslu landbúnaðarins í Canada
hefir sambandsstjómin keypt eitt
þúsund “Ford dráttvélar” (Ford
tractors) og eiga dráttvélar þess-
ar að skiftast á milli fylkjanna.
Landbúnaðar deild Manitoba hcf-
ir verið tilkynt kð þessu fylki beri
tvö hundruð af vélum þessum og
vafalaust verða þetta gleðifréttir
mörgum bónda hér. Vélar þessar
er öllum stærri bændum ómiss-
andi eign, stuðla að aukning frain-
leiðslunnar og draga úr vinna-
kostnaðinum. Samkvæmt hinui.i
nýju tolllögum flytjast þær to'i
frífct inn f landið og fá bændnr
þær á sama verði og stjórnin borg-
aði. Kosta þær, sendar heiin til
bænda, kring um $800 hver og er
þetta um $500 spamaður fyrir
hvern bónda. Slík samvinna á
milli sambandsstjórnarinnar og
fylkisstjórnanna er óneitanlcga spor
í rétta átt og ótrúlegt er, að bænd-
urnir verði seinir að færa sér þetia
í nyt.
-------o-------
Misskilningur.
í Heimskringlu, sem út kom 7. þ.
m., var sagt tfrá verði hveitimjöls
þess, scm nú er lögákveðið hér í
Canada. Tókum vér þetta úr ensku
blaði, og af því þar var sagt, að
þetta væri verðið “í búðunum” (in
the stores)—-en ekki minst á heild-
sölu. — skildist oss að hér væri átt
við smásöluverð. En nú er oss sagt,
að verð það, sem vér sögðum frá, sé
heildscluverSiS. Smásöluverð verð-
ur vi anlega hærra og fer að sjálf-
sögðu eftir því hve langt þarf að
fly ja mjölið. — Þetta biðjum vér
legendur að athuga og biðjum þá
velvirðingar á villu þessari.
-------o--------
Ferðalýsing
Grein með þessari yfirskrift stend-
ur í Heimskringlu 7. þ.m. eftir heim-
kominn hermann, H. E. Magnússon.
Þegar eg las þessa grein, fanst mér
hún lýsa a hugun, sanngirni og ó-
hlutdrægni höfundar. Af þvf lý~-,
ing þessi yfileitt féll mér svo vel í
geð, ias eg hana yfir í annað sinn.—
Kom mér þá til 'hugar, að hnýta fá-
einum athugsemdum við sum at-
riði, seon minst er á í téðri grein.
Skal þá fyrst taka til íhugunar
meðferð á Canada hermönnum við
herætfingar þar í herbúðum á Eng-
landi. 1 brófm þeim, sem vinir og
vandamenn hér í landi ihafa fengið
frá hermönnum við heræfingar yfir
á Englandi, hefir heilmikið fundist
af óánægju yfir vistinni þar í her-
búðunum. Þeir sem rita þessi bréf,
hafa -sjaldnast látið þess getið, hvað-
an orsakirnar væri runnar. S-vo
þegar fólkið hér í Canada fer að
ræða um þetta sín á milli, með
auðvitað talsverðri gremju, er
vanalegast barin hin gamla og al-
genga trumiba, nefnilega að út-
húða stjórninni. Ekki stjórninni
f herbúðum 1 þessum, heldur
stjórnum landanna. Enska stjórn-
in er oft eins vel og Oanadastjórn
harðdega ásökuð í þessu efni. Hr.
Magnússon flettir hér ofan af ó-
sómanum og sýnir ótvírætt hverja
er um að saka, nefnilega þá, sem
eiga yfir að ráða þar sem þetta á
sér stað, en sem betur fer er alls
ekki algengt.
Mjög vel lýsir höf. þeim hlýhug,
sem þrunginn er af þakklætistil-
finningu hjá hinni ensku þjóð,til
canadisku hermannanna. Auðvit-
að vottar þjóðin þakklæti og virð-
ing sínum eigin hermönnum, sem
hafa offrað ýmist lítfinu, limum
sínum og í mörgum tilfellum
heilsunni á bezta aldurskeiði lffs
síns. Skiljanlegt er samt, að í
sumum tilfellum komi fram tilfinn-
ing hjá ensku þjóðinni, sem lýsl
svo sterkri þakklætis viðurkenn-
ingu til Oanada hermannanna, sem
af fúsum viija lögðu sig í slíkar
mannraunir úr fjarlægu landi.
Hr. Magnússon minnist á Que-
bec-búa. Kemur þar greinilega
fram andi sá, sem þar stjórnar orð-
um og gjörðum Frakka hér í landi.
Nefnilega, að vilja ekkert ieggja til
þessa voðalega veraldarstríðs. —
Þetta dæmi, sem M. dregur fram,
er auðvitað grófasta hliðin á fram-
komu Frakkann'a. En alt fyrir það
er alt ruhnið frá sömu rótum,
nefnilega einstökum hugsunar-
hætti og framkomu, sem enginn
annar þjóðflokkur er þektur fyrir
svo svívirðilega.
Á einum stað segir höf.: “Það
mundi koma fyrir sama hvaða
stjórn sæti að völdum nú í Ott-
awa; hún mundi sæta sama dómi
frá þessum óvinum” o.s frv. Já,
hún er oft dæmd af íhugunar-
lausri aiþýðu, sem oft er leidd af
mönnuin með síngjarnar skoðanir.
Fólkið talar, eins og það ætli9t til
að stjórnin, yfirstjórn landsins, sé
ásakandi fyrir og eigi að vaka yfir
hverjum einstaklingi, sem hofir á
hendi einhverja umsjón fyrir
hana. En eg vil spyrja: Er ekki
þjóðin tsjálf vítaverð fyrir af-
skiftaleysi?
Þegar einlhver óstjórn, hirðuleysi,
svilc eða rangindi koma fram í
ráðsmensku stjórnarþjónanna, þá
ætti þjóðin, þ.e. einstaklingar í
þeim landsihluta, sem slíkt á sér
stað, að tilkynna slfkt yfirstjórn í
þeirri deild, sem þetta liggur und-
ir og þar með heimta betri ráðs-
mensku.
Scm eitt dæmi af mörgum vil eg
setia hér fram eina tegund af ráðs-
rnensku stjórnarþjónanna hér í
ves urfyfkjunum, nofnilega her-
málastjórnin. Það er öllum Ijóstt,
að ihér í tfylkjunuip voru margir
innritaðir til herþjónustu á sjáltf-
boðaliðs tímabilinu, sem voru ó-
færir til þeirrar stöðu. Fram-
kvæmdir á sjálfboðaiiðs svæðinu
urðu að samkepni milli heideild-
anna; vildu þá fyrirliðar hverrar
deildar ná sem flestum inn í sína
deild, en var síður umihugað um
að fá úrvalalið. Þessum óliðgengu
mönnum í hermanna klæðum var
haldið á mála frá 12 til 18 mánuði
áður þeim var snúið iheim sem ó-
hæfuin liðsmiönnum. Dæmin eru
til, að mönnum og fjölskyldum
þeirra er enn haldið á mála eftir
tvö ár, þar senn þó sönnun er fyrir
því að téðir menn gota aldrei orð-
ið að þeim notuin, sem eru aðal-
skilyrði fyrir að njóta málans. og
það í rffum mæli.
f mörgum svona löguðum mis-
fellum æ“tu þeir menn, leiðandi
menn, sem næstir eru og bezt
þekkja til, að snúa sér til yfir-
stjórnar þossara s*jórnarþjóna og
heim'a befri ráðsmensku. Ef þá
er ekki sint málum, er ástæða til
að álasa yfirstjórn landsins.
Hr. Magnússon segir: “Eg jafn-
vel vildi, að þeif menn hér f landi,
sem álíta þýzka stjórn engu verri
heldur en stjórn þessa lands, væru
kornnir til Þýzkalands.” Og á öðn
um stað segir hann: “Eg vil ráð-
leggjia þeim, som halda fram Þjóð-
verjum, að fara til Frakklands og
sjá þar rjómiann af þýzkri menn-
ingu.”
Einn »f betri bændum hér í
bygðlnni sagði við mig .síðastliðið
sumar: “Eg sé ekki hver munir
er á Borden og Þýzkalandskeisara.
Báðir skipa beztum hluta þjóðar-
innar út f steypandi blóðbað og
brennandi eldhviður, annar í gegn
um herlög, sem hafa verið viður-
kend af þjóðinni í margar aldir,
en hínn mieð persónulegu valdi,
sem hann hefir ólöglega hrtfsað til
sín seim æðsti valdsmaður þjóðar-
innar. Borden er þvf verri, að
hann tfylgir ekki landslögunum.”
Svipað þessu hafa margir talað
við mig í sambandi við herskyldu-
lögin. Nokkir menn hér í landi
ganga með þá innflogna flugu úr
þjóðverzkum anda f höfðinu, að
Þjóðverjar hafi verið neyddir til
að hefja þetta voðastríð. Þeir sem
svona hugsa og tala, sjáandi gang
málanna tfá fyrstu byrjun, eru alls
ekki verðugir að litfa undir brezku
fliaggi.
Og enn vil eg segja: Er ekki
stjórnarfar hér í landi og öðrum
brezkum sambandslöndum meira
líkt þjóðstjóm (democracy) heldur
en nokkurri annari stjóm?
Með þakklæti fyrir rúmið í blaði
yðar. Virðingarfylst,
J. H. Lindal.
Takið eftir!
Eins og auglýst var í íslenzku
blöðunum 24. jan. síðastl., þá
verður hinn ákveðni ársfundur
Eimskipafélags íslands til þess
að útnefna menn í stjórn félags-
ins fyrir hönd Vestur fslendinga
haldinn í skrifstofu Drs. Brand-
>
son og Björnsson á Sherbrooke
stræti í Winnipeg, 27. þ.m., kl.
8 eftir hádegi.
Samkvæmt þeirri sömu aug-
lýsingu þá hafa þeir Árni Egg-
ertsson og A. P. Jóhannsson
einir verið útnefndir. En til þess
að gjöra þá útnefning löglega
verður þessi fundur að haldast.
Árni Eggertsson.
Jón J. Bildfell.
(Etftir Vísi 14.—27. jan.)
Þau tíðindi eru sögð austan úr
Landeyjum að það hafi tvö liross
tfrosið í hel, standandi í haganum
eina nóttina. — Henr fix>stgrimdin
verið þar miklu hærri þessa dag-
j ana en menn Jnuna dæmi til, eins
og annaris staðar á larif linu og hross
l»ar óvanari miklunn kulda en t.d.
nyrðra,—Hér í Reykjavik gengur
íjöldi hrossa úti dag og nótt, en þau
gefa leitað sér skjóls milli húsanna
og má vera að það bjargi þeim sum-
um, sem ekki þyldu kuldann úti á
víðavangi.
“Lagarfoss” kom inn á Fáskrúðs-
fjörð í gær (13.) um hádegi. Hann
fór héðan á mánudaginn var og
sást fara fram hjá Djúpavogi á mið-
vikudag, en síðan fréttist ekkert til
hans fyr en í gær. Hann áfcti að
koma við á Seyðisfirði á norðurleið,
en hefir lfklega ekki fundið hann
fyrir dimmviðri og verið að velkjast
fyrir Austurlandi þesssa daga. —
Þegar hann kom til Fáskrúðsfjarö-
ar var hann að sjá eins og hads-
jaki.—Það fréttiist af honum í morg-
un, að hann hefði verið orðinn svo
ísaður, er hann kom til Fáskrúðs-
fjarðar, að skipverjar hafi óttast að
hann myndi sökkva. Voru fengnir
menn úr landi til að höggva ísinn
af skipinu, áður en lengra yrði
haldið.
Ishröngl alllmikið rak hér inn á
ytri höfnina í gær innan lir Kolla-
firði og myndaði það samanhang-
andi ísbreiðu frá Örfirisey meðfram
hatfnargörðunum, tfyrir hafnarmynn-
ið og alllang inn eftir. Er viðbúið
að höfnin lokist þá og þegar utan
frá á l>enna hátt. morgun (15.)
sýndist höfnin nær allögð út fyrir
eyjar.
Merkur maður látinn
Þann 15. þ.m. andaðist á almenna
sjúkrahúsinu hér í bænum Halldór
Eggertsson, cítir að hafa verið skon
inft upp við botnlangabólgu. Er
hér f valinn hniginn góður drengur
óg vinsæll og við fráfall hans höggv-
ið stórt skarð í vorn fámenna hóp.
Hefir hann me9t af tímanum dvalið
hér í Winnipog siðan árið 1878, að
hann fluttist með foreldrum sfnum
frá íslandi til þessa lands, þá níu
ára gamall. Fékst hann lengi við
fasteignasölu og í seinni tíð var
hann starfsmaður Mufcual Life fé-
lagsins. Um eitt skeið iðkaði hann
fasteignasölu í félagi irleð bóður sfn-
um, Árna Eggerfcssyni. .— Halldór
heit. var kvongaður Ingibjörgu,
dóttur Árna Sveinssonar, bónda í
Argyle: varð þeiin hjónum þriggja
barna auðið, sem enn eru í bernsku.
—Hans verður nánar getið í náesta
blaði.
sig þá frá Batterísgarðinum að ból-
virkinu og ruddi sér sjálft braut
gegnum fsinn. Ekipið er ófarið enn
(17.) og mun eiga að taka hér eitt-
hvað atf tfiski.
Ingólfur kom aftur frá Borgarnesi
í gær með póstana. Á Borgarfirðin-
um var sama sem enginn lagís,
liafði hann brotið upp allan og
rekið burtu undanfarna daga.
27. jan,—Nærri logn um alt land í
mongun. Frost ihér tæp 2 stig og líkt
á Seyðisfirði og í Vesbinannaeyjum,
á ísatfirði 6.5 stig og Akureyri og
Grímsstöðum 8 stig., — Laftþyngd
meiri í Færeyjum en hér, og nokk-
urn veginn trygt gegn norðangaröi
á meðan afstaðan er svo. — Annars
líklega9t að þetta sé að eins hlé á
milli bylja. Nákvæmlcga sama veð-
ur nú og var fyrlr óg um sfðustu
tungltfyllingu og er rétt að búaet
við samskonar „breytingu upp úr
stórstraumunuim eins og þá var.
Frostið var með minsta móti í gær
og fór minkandi eftir því sem á dag-
inn leið. Um miðnættið var það að
eins 101/* stig á landsímaimælirinn
og 13 f stjórnaráðiinu. Á morgun
(15.) var það mjög líkt.
"Geysir” komst út úr ísnum við
bólvirkið snemima dags f gær og
lagði'.st síðan fyrir utan garða, en
lagði ekki af stað héðan til útianda
fyr en f morgun.
16. jan.-—Samfeldur ís, eða svo rð
segja, er sagður um allan Húnatflóa
og Skagaíjörð, ein íshella. — í gær
var síinað frá Blönduo«i, að í.-björn
hefði gengið á land á Skagaströnd-
inni einbvern daginn. Hann var
Vcgar s'iotinr: og hirtur o? vóg fall-
ið purd. — Hvalii h:,ra sézt í
\ök á Tlúnaflóa. og er ráðgert að
vega að þeim bráðlega.
Frá Siglufirði og Akureyri var
símað f gær, að ís og veður væri
þar óbreytt. 1 Ólafsfirði og Hrísey
hefði gert brim i fyrrakvöld, og get-
ur ísinn þá ekki hafa Vfcrið þéttur
þar úti fyrir. — Frost var talið raest
á Akureyri í morgun 2.15 stig en
logn. Á ísafirði var einnig logn og
18.9 st. frost. Á Grímsstöðum norð-
anhíð og 21 st. frost, og á Seyðis-
firði norðanJiríð og 13.4 »t. frost.
Nýtt stjórnarblaS byrjar að koma
út í dag (26.) Heitir það “Frón” og
gefa það út “Sjálfstæðismenn** (Sig.
Egg. o.fl.). Ritstjórinn eT Grímúlí-
ur Ólafsson.
Látinn er Bergur Þorleitfsson söðla-
smiður, gamall og heiðv.irður borg-
ari þessa bæjar, 76 ára að aldri.
Varhugaverð ráðstöfun.
Landsstjórnin hefir nú fcekið á-
kvörðun um það að kalla Jón Sí-
vertsen heim en senda Gunnar Eg-
ils9on skipamiðlara vestur í hans
stað.
Orsök til þesearar ráðbreytni
stjórnarinnar mun tortrygni sú í
garð hr. Árna Eggetrssonar, seia
mjög hefir verið alið á hér í Rvík í
hóp vissra manna, en réttlætingin
á að vera ósamkomuiag það sein
er á milli Á. E. og Jóns Sívertsen.
“Tíminn” verður að átelja þessa
stjómarráðstöun þar eð hún virð-
ist með öllu ástæðulaus og eigi til
annars en kasba fé í sjóinn, au*
þess sem sú gæti orðið afleiðingin,
að vér miistum við þess manmsins,
®em þegar hefir sýnt það í verki að
hann or manna bezt fallinn til
þessa trúnaðarstartfa, þar sem Árni
Eggertsson er. — Tíminn.
Tveir hvalir hafa þegar verið
drepnir á Húnaflóa, en margir eftir,
þar á meðal sfórhveli nokkur. sem
sézt hafa þar í vökum.
Frá Breiðafirði var símað ígær að
póstur hafi verið flutfur nýloga á
sleðum frá Flatey á Breiðaflrði upp
á Barðas*Töndina. Það héfir ekki
komið fyrir f manna minnum.
Enginn efi er á þvi, að frosthörk-
urnar eru nú miklu meiri hér á
landi en nokkru sinni áður í nú-
lifandi manna minnum. Lengi hefir
verið brugðið við “harða vetrinum”
1‘frostavetrinum mikla” 1880—1881,
en bæði sést það í veðurskýrlsum
frá þeim vetri (td. í fsafold). að
frostið hefir þá verið miklu vægara
en nú, og eins kemur öllum eldri
mönnum, sem þá voru komnir til
vits og ára og muna vel eftir þeim
vetri, saman um það. — Við saman-
burð veðurskýrslna frá þeim tíma
ber þess þó að gæta, að þá var ein-
göngu miðað við Remeur-mælir, en
nú við Celcius. Til þcss að fá sam-
anburð ré*tan verður því að hækka
sMgatöluna frá 1880 uin 1-5.. T. d.
15 stig á veðurskýrslúnni frá 80—81
jafngilda 18 st. á veðurskýrslum nú.
Kolaskipið franska fór héðan ekki
í fyrradag, eins og til stóð, en flutti
(Lögr. 12. des. til 9. jan.)
Hannes Hafstein bankastjóri heí-
ir verið veikur frá því seint í sum-
ar, smn leið, lagðist skömmu áður
en þiingi stfeit. En nú á síðkastið
var hann farinn að hressast. Hann
fer út til að leita sér lækninga á
spítala í Khötfn.
29. des.—Veðrið hefir verið gofct
um jólin, og nú tvo síðustu dag-
ana mikil hláka um alt land leys-
ingar eins og á vori væri.
Maður varð nýlega úti á Möðrur
dal9heiði eystra, á leið niður á Jök-
uldal, Steinþór Jónsson að nafni.
vinnumaður frá Möðrudal.
19. okt. í haust lagði á stað frá
Khöfn seglskipið “Rutfhy”, fermt
kartöflum til landstjórnarinnar
hér. Hingað kom það á aðfanga-
dagsmorgun, eftir langa hrakn-
inga hér sunnan við land. Skipið
var þrímastrað en hafði f hrakn-
ingunum mist tvö möstrin. að ein«
afturmastrið eftir, er hingað kora.
Möstrin fóru í stórviðrinu, sera
skall á 12. þ.m. En 23. þ.m. hittí
skipið enskan botnvörpung, “Con-
an Doyle”, og dró hann það inn tll
Keflavíkur. Þangað sótti Geir það;
sagt, að farmurinn sé lítt skemdur.
(Niðurlag á 8. bls.)
\