Heimskringla - 31.08.1921, Blaðsíða 5

Heimskringla - 31.08.1921, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 31. ÁGÚST, 1921 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSÍÐA Látið drauma yðar rœtast. Frfrii atS safna fynr — húsitS sem þú býst vitS atS eignast, skemtifertSina sem þig langar atS fara, verzl- unina sem þig langar atS kaupa, hvíldarstundimar er þú býst vitS atS njóta? ByrjatSu atS safna í sparisjótSsdeildinni viS þennan banka og stö'Sugt inrJegg þitt mun vertSa lykill að framkomu drauma þinna. ÍMPERIALBANIC OF CAN.VDA Riverton bankadeild, H. M. Sampson, umboðsmaður Útibú að GIMLI (309q ma; hafði ferð þess tekist hið versta, en var þó búið að komast í gegnum alla erfiðleika að þeir héldu. Seinna strandaði það þó, og fórst skömmu sfðar. I nokkra hættu komst ‘‘ísbjörninn” eftir að hann skildi við þetta aminsta skip, en með frábærum dugnaði og þrautseigju tókst kapt. Guðmunds son að sigrast á þeim, og í mynn- ið á Kolma fljótinu var hann kom- inn 4. ágúst í fyrra. lbúarnir í Kolyma höfðu gefið upp alla von um að þeim mundi nokkur björg berast og fljótið sem þeir bjuggu fram með, var ókannað og ekk- ert til leiðsagnar við að sigla inn eftir því, þar sem bygðaíbúar að- allega voru. Varð kapt. Guð- mundsson því að treysta á fram- sýni sína og lukku, með að komast upp eftir fljótinu. En sú ferð tókst slysalaust. Þegar til Nizhni kom, sem var lendingarstaður skipsins, gekf kapt. Guðmundsson á tal við rúss- nesku yfirvöldin þar.og tjáði þeim erindi sitt. En yfirvöldin bönnuðu þá öll viðskifti við landsfólkið. Leist Guðmundsson nú ekki á blikuna. En því undarlegra þótti honum þetta, sem landslýðurinn þarna var aðframkominn af harð- rétti og hafði um langan tfma ekki haft sér annað til matar en hrein- dýrakjöt og fisk, enda fagnaði komu skipsins þangað með vörur. Mjöl, te, tóbak og fatnaðar vörur höfðu íbúarnir verið afar lengi. Við komu þessa ameríska skips, söfnuðust þeir niður að áribakkan- um og héldu þar bænir og þökk- uðu guði fyrir að hafa sent skipið með vörur þeim til hjálpar; með- an sú þakkargjörð fór fram krupu allir á kné. Kirkjuklukkum var hringt og flögg dregin á stöng. Þennan dag tóku sér einnig allir frí frá verkum. Yfir skipshöfnina rigndi bænum og þakklæti, svo var fögnuður fólksins mikill. Til þess að geta gert því einhverja úrlausn og veita því nokkra á- heyrn, tók kapt. Guðmundsson til þess ráðs, að gefa hverju ein- asta heimili dálítið af vörum; gaf hann hverri fjölskyldu dálítið af brauði (Pilot Biscuit), te, eitt pund af sykri og hálf pund af tó- baki. Skömmu seinna kom rúss- neskt skip er Belinda hét inn á höfnina. Samdist svo með kapt. Guðmundsson og því og stjórn- inni, að það skiftist á vörum við hann. Voru þær borgaðar í safala eða loðvöru og dýra tönnum, vegna þess að gengi rússneskra peninga var sama sem ekkert og peningar þeirra einskis virði í Ameríku. Loks sá stjómin sér ekki fært að setja sig á móti viðskift- um skipanna og fólksins og leyfði þau með því að þau borguðu henni 1600 rúblur fyrir leyfið. Ekki mátti þó neitt heimili kaupa meha en því sjálfu nægði í þann og þann svip. En viðskifti þessi voru ekki auðveld; þarfrr fólksins voru margar, en möguleikarnir til að borga vörurnar litlir. En þar sem ferð þessi var gerð með það fyrir augum, að bæta úr nauð. þurft fólksins, lét kapt. Guðmunds son það gott heita að taka loð- vöruna hjá því á hæsta verð, eða meira oft en á BEindaríkja mark- aðinum var gefið fyrir hana. Auk þess lánaði hann vörur fyrir 1200 dali gegn þeirri ábyrgð frá stjóm- mni í Kolyma, að stjórnin í Moskva borgaði hana, því sjálfri var henni (stjórninni í Kolyma) ekki hægt að greiða það fé, svo var hún fjármunalega að þrotum komin. Meðan að þessum viðskiftum fór fram, var skipshöfninni sýnd mikil góðvild og greiðvikni á all- an hátt bæði af alþýðu og stjórn- inni. 28. ágúst var þeim viðskift- um lokið, og Iagði skipið “ís- björninn” þá af stað. Ætlaði kapt. Guðmundsson þá að sigla til Nome í Alaska. En þá var svó mikill ís kominn þar fyrir utan fjörðinn, að skipið varð að snúa aftur eftir að hafa brotið hann 62 mílur vegar. Einnig gerði þá af. taka verður og varð ferð skipsins gegnum ísinn helmingi hættulegri en áður. Þá hljóp og í frostgrimd mikla og bætti það ekki úr skák. Og þar kom Ioks að, að skiþið sat fast í ís og komst ekki áfram. Þaðan var því ekki að hugsa að hræra það fyr en næsta sumar. ísbirnirnir sóttu það iðulega heim, en ekki gerðu þeir neitt ilt af sér. Kapt. Guðmundsson sá nú hætt- una sem yfir þeim vofði ef þeir ættu að haldast þarna við yfir1 veturinn, og tók því að ráðfæra! sig við skipshöfn sína hvað gera skyldi, hvort þeir skyldu hafast við í skipinu, eða leita fótgang- andi til baka til Kolyma. Það kusu allir að freista heldur hins síðara. En áður en þeir lögðu af stað, dreifðist ísinn dalitið. Sneru þeir þá skipinu við og brutust út úr ísnum og komust aftur inn á flóa skamt frá Kolyma og fraus “Is- björninn” þar inni. Skipið Be_ linda var þá dregið á þurt land um 70 mílur í burtu. Skipshafn- irnar báðar komu nú saman, og sáu að nú var ekki um annað að gera, en að setjast þarna að og gera sér að góðu veruna þar yfir veturinn. . u; i ; ; _ En þá kom annað fyrir, sem ekki gerði skipshöfninni veruna þarna sem ánægjulegasta eða ró- legasta. Sú skipun kom alt í einu frá stjórninni í Omsk, að gera upp tæka alla loðvöruna er á báðum skipunum var. Yfirvöldin í Nizhni Kolyma tóku þessa skipuri mjög nærri sér, og þótti ódrengilegt að fara svona með velgerðarmenn sína, en þorðu þó ekki annað en að hlýða henni. Fór kapt. Guð- mundsson þá til yfirvaldanna í Nizhni og Sredni.Kolyma, sem er bær 200 mílur upp með Kolyma ánni, og átti tal um þetta við þau. En þau gátu enga ásjá veitt. Tókst hann þá ferð á hendur til Yakutsk, sem er aðsetursstaður yfirstjóm- arinnar í Yakutsk héraði, og var 2400 mílur inni í landi. Kapt. Guðmundsson setti ekki það ferða lag fjTÍr sig þó um vetur væri; hann hafði áður oft reynt svipað í Alaska.. Hann fékk sér því sleða og beitti hundum fyrin lagði af stað frá “Isbirninum" í lok október mánaðar, með Olson túlkinn með sér, áleiðis til Yak. utsk. Fóru þeir upp eftir Kolyma- ánni þar til þeir komu til Shredne- Kolyma. En þá beygðu þeir út af ánni og fóru þvert yfir landið. urðu þar þrisvar sinnum afar háir fjallahryggir á leið þeirra sem þeir fóru yfir. Þess á miLli komu þeir niður í dali og héruð bygð ínn- fæddu fólki algerlega. Á meðal mannflokka þeirra er þeir þama kyntust voru Chuskis-flokkurinn, sem eru hinir mnfæddu menn Sí- beríu strandarinnar, þá Totmutes; I þeir eru fjölmennir og búa í af- I dölum Yakutsk héraðisins. Tungus j er einn flokkurinn; hann býfl í hreindýra héruðum og hefir oft j miklar hjarðir af þeim. Alla þessa mannflokka segir kapt.Guðmunds J son mjög ólíka innfæddu flokk- unum í Alaska, sem þó eru taldir i skyldir þeim. Einkum segir hann : Tctrnutes ogTungusflokkana þeim ! ólíka og standa á miklu hærra i stigi menningarlega en hina inn- fæddu Alaska búa. Kapt. Guð- j mundsson var alstaðar vel tekið j og sýnd ö'll kurteisi. Bæði Rússar og innfæddir menn létu mjög á- nægju sína í ljósi yfir því að hafa gesti að segja sér fréttir frá svo fjarlægum stöðum sem Ameríku. Á allri leiðinin frá Kolyma til Verkhoyansk hlaut kapt. Guð- mundsson hinar beztu viðtökur. Og þjónar rússnesku stjórnarinn- ar gerðu sér far um að greiða fyrir ferð hans. Föggur hans .voru alls I ekki rannsakaðar, jafnvel ekki þar sem þess að öðru leyti var þó krafist af stjórninni. Eftir að kom inn í Landið til muna, varð hann að fá sér hreindýr til að draga sleðana; hundarnir reyndust þar ekki nógu skjótir í förum. Er tveim ur hreindýrum beitt fyrir sleðann og sá er á sleðanum situr verður sjálfur að stýra þeim, því sleð- arnir eru aðeins gerðir fyrir einn mann. Flreindýrin eru greið í för-. um. Segist Guðmundsson hafa far ið 74 mílur á dag stundum á þeim. Mjög slæmum byljum lenti hann ekki í á leið sinni til Verkhoyansk, enda var veðrir talið strlt um það leyti. Samt var frostið oftast 96 gráður fyrir neðan frostmark. I Verkhoyansk taldist það að jafn- aði 75 gráður fyrir neðan frost- mark meðan Guðmundsson stóð þar við. Af þessum helkulda, leið- ir 3'mislegt sem eftirtektavert er, j segir Guðmundsson, jafnvel fyrir! þá sem vanir eru miklum kuldum. Eitt af því er það, að utan um menn og skepnur sem úti eru, myndast nokkurskonar mistur eða þoka, þegar hita útgufunin og kuldinn mætast. Kveður svo mik- ið að þessu, að útlit eða lögun j þeirra sem úti eru breytist og sýn- ist alt annað en það er. Af þessu leyðir aftur það, að ómögulegt er. að taka myndir þarna úti að vetr- arlagi,, hvort sem veður er bjart og heiðskýrt eða ekki. Kapt. Guð- mundsson reyndi að taka þarna talsvert af myndum bæði af mönn um og hlutum og landslagi, en þær reyndust allar ómögulegar. Þessi mikli kuldi getur verið afar hættulegur fyrir lungu manna. Ganga því allir þar með verjur fyrir munni og nefi, svo kalda loftinu sé ekki andað of fljótt að sér. Ekki gat Guðmundsson gert sér grein fyrir hvernig á þessum mikla kulda stendur þarna í Verk- hoyansk, sem talinn er meiri en á nokkrum öðrum stað í heimi. Bærinn er við Yana-fljótið á 67. 45 breiddarstigi að norðan og 136 lengdargráðu að austan.mjög skamt frá suður línu íhafs-baugs- ins. (Framhald) Bót í máli. Eftir Elbert Hubbard. Mannkynið er enn svo skamt á veg komið, að það er ósanngjarnt að kveða upp áfellisdóm um það. Maðurinn er ekki fullskapaður— hann er að skapast. Emerson sagðist aldrei hafa séð mann. Þetta er svo að skilja, að hann hafði aldrei séð mann, sem komist gæti í nokkum samjöfnuð við það> sem hann gæti kallað fullkominn mann. Náttúran vinnur að því að fram leiða fullkominn mann. Allir menn sem nú eru uppi, eru aðeins menn að nokkru leyti — brot af mönnum. Ef vér eigum að hugsa oss verulegt mikilmenni, þá verð- um vér að tína saman dygðjr fjölda manna og gefa honum, ep sleppa göllum þeirra. Mikilmennið skarar ekki mjög fram úr fyr en eftir að hann er dá- inn, eða ef vér sjáum hann í fjar- ,lægð. Þeim, sem umgangast hann dag ,lega, verður Ijóst að hann er galla. gripur; hann er ok á herðum vins sinna. Náttúran er ekki örlát við ein- staklinginn; hún miðar alt við hag heildarinnar. Nát túran vinnur að því að fram leiða fullkomna menn og galla- lausar konur. Vér vitum að hún stefnir að þessu marki, því að æðsta ósk allra mestu og beztu kvenna og manna er sú, að vaxa, þróast og verða að einhverju verulega miklu Eftir hverja unna þraut kemur óánægja. Að baki hvers hjalla gnæfa nýjar hlíðar. Sí og æ erum vér hvött til fram- sóknar. Vér vonumst eftir, biðj- um um og þráum fullkomnun. Inst í sálu vorri býr óljós vitund um það, að vér séum br-ot af hin- um guðlega vilja. Gamla kenningin sem alt hugs- andi fólk nú á dögum hafnar, að mennirnir elski myrkrið meir en Ijós ð. er neilun á vísdómi og gæzki' inar eilífu vizku. Menn hafa hnept bræður sína í þræl- dóm. Þeir hafa brotist svo hart um í fjötrunum og gripið til svo margra óyndisúrræða, að oft hef- ir litið út fyrir að þeir mundu glat- ast. En eftir því sem vér frekast vitum um æfi mannkynsins á jörð- inni, þá he'fir þó náttúran eða heimsmátturinn stöðugt fylt hug og hjörtu manna fullkomnunar- þrá, svo að nú á dögum grenslast miljónir manna eftir sögu liðinna alda til þess að reyna að forðast fótakefli forfeðranna. Náttúran skeytir lítið um ein- staklingurinn, hún veit að maður- inn fer ekki forgörðum þó hann deyi. Hann hefir aðeins breyst. Sú staðreynd, að vér erum nú að kynna oss fortíðina til þess að skilja nútímann og geta gert áætl- un um framtíðina, og að vér hjálp um sjálfum oss me ðþví að hjálpa öðrum, er sönnun þess, að mann- kynið er á réttri leið. Vér lítum svo á, að vér séum öll eitt, hver einstaklingur hluti stærri heildar. Vér sjáum, að ef vér sköðum aðra, þá sköðum vér oss sjálf. Samvinna og gagnskifti eru ríkj- andi hugsjónir vorra tíma. Það er siðferðislega rangt, að aðeins annar málsaðill græði á viðskiftunum. Samhagur er einkunnarorð nú_ tíðarinnar. Stjórnarvöldin eru sett til þess að auka hag þegnanna. Fáir voru þeir fyr á tímum, sem sáu þetta og skildu og þéir, sem þorðu að ympra á þvi, voru líf- látnir. Nú eru þessar kenningar á hvers manns vörum og þær eru að festa rætur í hug og hjörtum kynslóðanna. “Sá sem er mestur yðar á meðal, skal verða hinna þjónn.” Það kemst bráðum upp í vana að vera réttvís og sanngjarn. Vér sjáum, að það borgar sig bezt. (Lausl. þýtt af E.E.) ----------o---------- Ljósálíar. Sönglög eftir Jón Friðfinnsson, prentuð í Gutenberg prentsmiðj- unni á íslandi. Lögin eru 24 tals- ins. Það hefir verið einskonar regla hjá þeimsem um söngbækur skrifa, að fara snuðrandi um bók- ina eftir jafnleiddum kvintum og oktöfum, að eg tali ekki um ef fannast kynni septúna, spm væri upplleyst öðruvísi en vanalega ger- ist, eða áannan hátt en hinar elstu reglur segja fyrir um. Þetta ómak ætla eg að spara mér í þetta sinn og treysta Jóni til að forðast þess- ar gildrur þegar hann svo fýsir. Eg hygg að til séu bæði söng- lög og kvæði, sem sniðin eru eftir ströngustu reglum, en eru þó ekki til, með öðrum orðum, andlausar reglu jitgerðir. Margt gott má segja um lög Jóns, það helzta þó að lögin eru aiþýðleg og engin tilraun gerð til að skrúfa þau upp eða niður fyrir raddsvið almennings. Einnig eru iögin tilgerðarlaus og blátt áfram. Rilmusinn og fallandinn vanalega eðlilegur og l'éttur, samsvarandi orðunum, enda er Jón prýðisvel skynsamur maðui og hefir gott vit á skáldskap. Beztu lögin í bókinni áilít eg að séu nr. 14 og 24, nefnilega Jdnas Hallgrímsson og Vögguljóð. Það síðarnefnda þá langbezt. Frum- legur, sem kompónisti, getur Jón ekki talist, hvorki að anda né bún- ing. Máli mínu til stuðnings vil eg þar til nefna sérstaklega nr. 1, 6 og nr. 12. Auðsætt er að Jón hefir orðið fyrir sterkum áhrifum af anda Mozarts og Haydns, benda mörg lögin sterklega í þá átt, þar á meðal ekki hvað sízt Jónas Hallgrímsson. En gleymum ekki, að það tekur margga ára áreynslu •'g elju að blaða í sjálf- umsér, þar til eitthvað sjálfstætt og nýtt getur til orðið. Flest skáld, bæði ljóð og söngskáld, hafa lifað langa æfi án þess að skilja eftir sig nokkuð verulega sjálf- stætt. Eg get ekki lokið við þessar fáu línur án þess að minnast frek- ar á Vögguljóð. Það er eitt af þeim fáu lögum sem þrýstir sér nær og nær hjartarótum manns, þess oftar sem það er haft yfir. Melódían svo látlaus og blátt á- fram, laus við alla fordild, og er prýðilega raddklætt. Eg get varla hugsað mér að íslenzkar mæður geti fengið annað- betra meðal til að koma börnum sínum í værð, heldur en Vögguljóð Jóns Frið- finnssonar. Eg hefi reynt þetta sjálfur. Ekkert lag sem eg kann hefir lokað litlu augunum yngstu dóttur minnar fljótara en einmitt þetta umtalaða lag.. Fari eg hér með rétt, er auðvit- að um verulegan skáldskap að j ræða og höfundurinn um leiðj skáld. Mér finst eg geta sagt ó-j hikað að lag þetta sé eitt af þeim allra beztu, sem af íslenzku bergi eru brotin. Enda tel eg það feg- ursta blómið í garði Jóns. Lagið er að vísu ekki stórt, en list má tæpast dæma eftir vigt. Eg mæli hið 'bezta með bók þessari, og vona að allir af fólkt voru, sem hljóðfæri hafa, eignist bókina, sem er í alla sta,ði hint eigulegasta, og viss að gefa marg- ar skemtistundir, þeim sem eígrt- ast. Pappír og allur ytri frágang- ur er í bezta lagi. JóN.AS PÁLSSON Spámaðurinn. Hann flutti lýðnum boðskap- fagran og fagnaðarríkan. Lýður- inn hlustaði á hann; og hann lýsti því hvernig úr hinum feysku hreysum nútímans mundu með tímanum rísa fagrar hallir, hvernig. að stríðsvellinum yrði breytt í ald- ingarða friðar og kærleika, og; hvernig að þyrnar tilverunnar yrðu að fagurjblómguðum ilrrt- andi rauðum rósum. Þegar hann lauk máli sínu, sagði lýðurinn við hann: “Þetta er fögur hugsjón, óneitanlega, en þú ert hundrað ár á undan tíman- um! Framtíðin nýtur þeirrar dýrð- ar, er draumar þínir lúta að, erv nútíðin ekki. Þú fæddist of snemma. »- Spámaðurinn ungi varð dapur er hann heyrði þetta. Von hans hafði ávalt verið sú, að boðskap- ur sinn yrði lýðnum þyrsta á eyði- mörkinni ómetanleg svalalind. AS breyta boðskapnum, var honumr alt annað en geðfelt. En til annErra ráða var þó ekki að grípa. Hann breytti því mörgu og slepti sumu úr, en spann í staðinn nýtt inn í hina fyrri drauma sína; með því bjóst hann við, að verða við kröfum sinnar tíðar. Hann gekk á ný fyrir lýðinn. Og lýðurinn hlustaði aftur á hann með eftir- tekt fyrst í stað, en varð að öðru leyti ekki hrifinn af kenningu hans. Þegar hann hafði lokið máli sínu, heyrði hann 1 ýðinn segja sín á milli: “Hann er hundr. að ár á eftir tímanum!” Jón Trausti Guðmundur Magnússon Þú verður að virða mér þetta Til vorkunar, Guðmundur minn, Að eg á ei efni né orku I yrki um skáldskapinn þinn. Þú skilur það skýrar en aðrir, Að skáld eru van-nefnuð enn, Því hugsjón er hámarksins grunur Of hár fyrír alLflesta menn. Og þegar að þangað skal keppa + Er þrautreyndum óvissan leið, Því verðgangur samhliða seppa Er sannleikans alfara leið. Um alþekta aldeyðu-hreppa Er einstæðings förin ei greið. Og þú hefir hulið þig hálfan En hlaust af því bita og spón, Og svona er sagan hans fróða, Og svona er traustur hann Jón. I þinghúsi óþektur er hann — Með alvepni skáldanna “Rán” Á eftirlaun á hann að fara Og að því varð Guðmundi lán. — En konan í Kvanndalabjörgum Er kærastan min, skalt þú sjá: “Úr harðlæstum tröllanna hörgum ‘, Eg henni skal daglega ná. — Með Hálfdáni herja á vörgum Eg hræðist ei Grana að sjá. — JAK. JÓNSSON SKVsRING—Þess var getið, þegar Guðmundi Magnússyni voru veitt skáldalaun, að andmæl herfðu átt sér stað — jafnvel í þinginu — svohljóð- andi, að sæmra væri að styrkja Jón Trausta, heldur en að ausa út peningum fyrir helvítis bullið úr hon- um Guðmundi Magnússyni. “Konan í Kvanndalabjörgum” er fyrírsögn á kvæði eftir G. M. Hendingin er úr þvi kvæði; og þar er Grána getið. Höf. i í í í i í í 3- I I I

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.