Heimskringla - 10.05.1922, Qupperneq 1
XXXVI. AR ....... WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 10. MAI 1922 Nl MER 32
CANADA
sitt eigið barn. Hverjum rugling-
ur þessi var að kenna á sjúkra-
húsinu á börnunum er ekki kunn-
ugt. En sekt skoða margir þetta
Sambandsþingið.
Ekkert sérstaklega markvert skeytingaleysi varða.
virðist hafa gerst á sambands-,
þúnginu s. 1. viku. INiðurstaðan
sem komist hefir verið að um
stofnun kornsölu-nefndar, er sú,
Kvenprestur í Halifax.
Söfnuður St. Johns presbytera
kirkjunnar íHalifax hefir útnefnt
íst, að fylkisiþing landsins sam-
þykki hana fyrst og síðan sam-
að því aðeins geti hún lögieg tal-[ kvenmann til þess að vera að-
stoðarprest safnaðarins. Heitir sú
ungfrú Bona Mills er embaettið
bandsþingið. Ef það væri gert, hlaut. Hún er ættuð frá Sidney og
er álitið að krúnan mundi ekki útskrifuð af Mount Alliscn há-
setja sig upp á móti stofnup þess J skóla. Prestur kirkjunnar heitir
arar nefndar. Engin niðurstaða i J. Y. Mackinnon.
er heldur fengin í málin með
flutningsgjald járnbrauta.
W. G. McQuarrie þingm. frá B.
C. bar upp tillögu þess efnis, að í
E. H. Muir
hefir verið útnefndur þing-
mannsefni í Lakeside kjördæmi
banna að Japar og Kínar flyttust' við. næstu kosningar af íhalds-
inn í landið. Hann sagði um 70,-
000 majms af þessum þjóðflokk-
um vera í Canada og í B. C. fjölg-
aði þeim svo óðum, að útlit væri
að fiskiveiði og fiskiniðursuða,
sem væri ein aðal atvinnugrein-
in þar lenti í þeirra hendur. Sem
flokknum þar.
Vatnsflóð í Brandon
Um 150 fjölskyldur í útjaðri
Brandon bæjar hafa orðið að
flýja úr húsum sínum vegna á-
flæðis úr Assiniboia-ánni. Húsin
sýnishorn af því, hversu ört þeir; er fólk þetta bjó í voru dreyfð um
fjölguðu, sagði hann að árið 1910
hefðu fæðingar japanskra barna
ekki verið nema I af hverjum
252 fæðingum. Nú væri ein af
hverjum 13 börnum er fæddust
Japar. Þingmaðurinn hafði með
sér frá B. C. þinginu tillögur er
samþyktar höfðu þar verið í
þá átt, að banna innflutning
þessara Austur-Asíu þjóðflokka.
Dómara-útnefningu mótmælt.
Lögmannafélagið í Winnipeg
samlþykti á fundi er það hélt ný—
lega, að mótmæla útnefningu J.
E. Adamson í yfirdómi (King
Bench) Manitobafylkis. Færir fé-
lagið til þá ástæðu, að Adamson
2 fermílna svæði. Flóðið er hald-
ið að aukist ekki úr þessu; óþæg-
indum hefir það valdið, en ekki
mjög miklum skaða, að sagt er.
H. B. fél. í Síberíu.
Hudson Bay félagið er að setja
upp viðskiftastöðvar í Anadir í
Síberíu. Staður þessi er við sam-
nefndan flóa sem skerst inn í
landið að norðan. Afskekt kvað
hérað þetta enn vera og í raun og
réttri ekki undir eftirliti neinnar
stjórnar hvorki Rússa né Japana.
En loðvöruverzlun og veiði mun
félagið ætla að reka þarna. Á er
þar í dalnum ein, sem haldið er
að ekki sé ómögulegt að gull
sé ekki hæfur til að leysa verkið | geymi [ farveg sínum. Ef til vill
af hendi. Forsætisráðherra King
var tilkynt þetta og var hann mint
ur á, að stjórnmálaafstaða hefði
hlotið að ráða þessari útnefningu.
King svarar aftur, að ekkert slíkt
hafi átt sér stað og að hann álíti
manninn færann til að gegna em-
bættinu. Lögmannafélagið hefir
aftur knúið á King, að leggja það
undir dóm lögfróðra manna hvort
Adamson sé hæfur til að gegna
stöðunni. Svar Kings er ekki kom-
ið.
Ruglingur.
er þarna önnur Klondyke.
BANDARÍKIN.
Falsaðir bréf-peningar.
Sagt er að þúsundir dollara af
fölsuðum bréfpeningum séu á
gangi í Bandaríkjunum og hefir
stjórnin aðvarað fólk um að vera
aðgætið í peninga víxlun. Ekki
hefir tekist enn að ná þeim seka.
Nýlega kom í ljós, að undar-
legur ruglingur hafði átt sér stað
á sjúkrahúsi einu í Montreal.
Tvær mæður höfðu orðið að
senda börn sín á sjúkrahúsið. Þær
hétu Mrs: Dyke og Mrs. Bartlett.
Þetta var í Nóvember. 12. des.
fær Mrs. Dyke orð um að barn
hennar sq orðið frízkt; hún sækir
það. En þegar henni er fengið
barnið kveður hún það ekki vera
sitt barn. Alt sem hún færði á
móti því, var samt ekki tekið til
greina og læknarnir töldu þá
breytingu er hún sá á barninu
stafa af veikinni. Konan tekur
svo barnið heim með sér. Litlu
síðar er Mrs. Bartlett sagt að
sækja sitt barn. Hún bar hinu
sama við og hin konan að barn
það er henni var fengið væri ekki
sitt barn. En á móti því tjáði
ekkert að mæla. Hún fór því
með barnið heim, en var sann-
færð um, að einhver ruglingur
hefði þarna átt sér stað.
Svo liðu fjórir mánuðir. Að
þeim tíma liðnum voru mæðurnar
báðar orðnar fyllilega sannfærðar
um að það væri ekki börnin þeirra
sem iþær hefðu tekið við af sjúkra
húsinu. Var þá farið að rekast í
þessu. Árangurinn varð sá, að
í ljós kom að börnum þeirra hafði
verið ruglað saman. Mæðurnar
skiftu nú á börnunum og urðu
hvor í sínu lagi glaðar, að finna
Radiosamband gegnum rafmagns-
Ijós.
Major General George 0. Squ-
ire forstjóri Army Signal Corps
hefir ehpnast að komast í radío
samband með því að samtengja
hefir hepnast að komast í radio-
magnsljós í húsum og eru nú ýms-
ir yfir alt landið að reyna þessa
splúnku nýju aðferð, og sagt að
hepnist furðu vel.
New York orðin fólksfleiri en
London á Englandi
Eftir síðustu manntalsskýrslu
frá stórborginni New York að
dæma er íbúatala þar orðin meiri
en í Lundúnum, ef sama lands-
stærð er tekin til greina og gert
er þar.
Fengu ekki að matast vegna
fatasniðsins.
Vegna þess að þau voru ekki
klædd í kvöldbúning (Evening
dress) var þeim hjónum Mr. og
Mrs. Herbert E. Rau skipað á
burt úr matstofu eins fínasta hó-
telsins í New York. Þau hafa nú
höfðað mál á móti eiganda hótels-
ins og krefjast $10,000 skaða-
bætur fyrir.
$1,000,000 hjálparsjóður.
Til þess að verja til hjálpar
þeim nauðstöddu og koma í veg
fyrir hörmungar er af flóðum
stafa hefir Washington þingið
samþykt að veita miljón dollara
er hægt sé að grípa til nær sem
vera skal. Tiliit við fjárveitingu
þessa var gert af stórflóðum
Mississippi elfunnar sem valdið
hefir enn á ný skaða og manntjóni
Bómullar akrar eyðilagðir
Tvö hundruð þúsund ekrur af
bómullar ökrum hefir flóð Missi-
sippiárinnar eyðilagt í Mississippi
og Louisiana ríkjunum; er sagt að
taugaveikin geysi um stöðvar þær
sem flóðið æddi yfir.
Fellibylur.
Fellibylur drap níu og meiddi
38 er hann hljóp yfir Oak Hill
héraðið skamt frá Austin í Tex-
as ríkinu nálægt hálfrar miljón
dollara eignatjón er sagt að hann
hafi einnig valdið.
------o------
BRETLAND
Breta kon. heimsækir Belgíu.
Bretakonungur og drotning,
Haig hershöfðingi og aðmíráll
Beatty lögðu af stað til Belgíu s.
1. mánudag. Eru þau að heim-
sækja Albert konung og Elizabetu
drotningu. Áður en Brtakonungur
heldur heim, ætlar hann til Ypress
og annara staða þar sem fallnir
hermenn eru grafnir.
J. R. Clynes
leðtogi verkamannaflokksins í
neðri málstofu þingsins á Englandi
hefir nýlega lýst því yfir á þing-
inu, að hann sé >með því að á-
búðarjarðir, námur og járnbraut-
ir landsins séu gerðar að þjóð-
eign.
Setið um líf De Valera.
Samsæti er haldið að fjöldi
manna á írlandi hafi efnt til í því
skyni að ráða deValera af dög-
um. Er haft eftir sumum, að
þeir álíti hann “betur kominn neð
anjarðar en ofan.” Aðalástæðan
fyrir þessu er sú, að deValera er
eigr.að, að hafa staðið á bak við
morðtilraun Collins. Griffiíh og
Collins stjórnin kvað ætla að reyna
að koma í veg fyrir þetta morð-
áform ef unt er, og fylgismenn
deValera vakta hann nótt og dag.
--------------o------
ÖNNURLÖND.
Genúa
Á Genúa-fundinum gengur alt
í sama stappinu og áður. Frakkar
og Belgir kref jast þess, ef þeir eig ^
að gera nokkra samninga við
Rússa, að eignaréttur útlendinga
á jörðum og byggingum sé við-
urkendur. En að því ganga Rúss-
ar ekki. Lloyd George reynir að
gera alt sem í hans valdi stendur
til að koma á samkomulagi milli
þjóðanna á fundinum, en sem
stendur virðist það ómögulegt.
Hann er þess fullviss, að svo sé
um hnúta búið, með samningum
sem þarna hafa verið gerðir, að
Þjóðverjar muni ekki heyja stríð
að fyrra bragði. En Frakkar
leggja ekkert upp úr þeirri trygg-
ingu. Nýir skilmálar hafa enn ver
ið dregnir upp milli Rússa og
Frakka og Belga, en með því að
þeir samningar eru svo kröfu-
harðir gegn Rússum, eru engin
líkindi til að þeir verði samþyktir
af þeim. Haldið er að fundinum
verði slitið þessa viku.
atríðið í Kína.
1 Kína hefir staðið yfir stríð
undanfarið. Er sagt að hálf önn-
ur miljón manna sé undir vopnum.
Hvernig á því stríði stendur, er
erfitt að átta sig á hér. En það er
víst að nokkur undanfarin ár,
héfir kínverska þjcðin verið all-
skift í skoðunum. Þar hefir mynd
ast sterk þjóðernissinna hreyfing.
Og þar eru aftur aðrir sem horft
hafa í náð til Japans og álitið bezt
fyrir Kína, að láta þá stjórna sér
og annast viðskifti landsins. Stríð-
ið sem þar er nú háð, er á milli
manna þeirra er heita Wu Pei Fu
og Chang-Tso-Lin. Hinn fyrnefndi
hefir nú tekið Peking af Chang
eins og hann gerði 1920 er hann
velti Anfu stjórninni frá völdum.
Bæði Anfu og Chang stjórnirnar
kváðu vera með Japan. En Wu
Pei Fu er alger heimstjórnarmað-
ur. Ræður hann nú líklega meiru
í Kína en nokkur annar. Stríði
þessu er þó ekki enn lokið. Wu á
í höggi við þessa menn ennþá og
Cantonstjórnina jafnframt. Ef til
vill er þessi Wu að koma þarna
á fólksstjórn og reyna að gera
ladnið stjórnárfarslega sjálfstætt.
ÍSLAND
Eftir “Degi” Akureyri.
— til 6. apríl. —
Lungnabólga
allskæð hefir gengið víða um
Íand í vetur. Óvíða mun hún þó
hafa verið jafnskæð eins og í Ör-
æfum. Þar létust á tímabilinu frá
12. sept. og til 2 janúar 1 Imanns:
IJppgjafaprestur Gísli Kjartansson,
Páll Bjamason bóndi á Hnappa-
töllum og systur hans tvær Guð-
rún og Kristín, Guðrún Þorsteins-
dóttir húsfreyja á Hnappavöllum,
(Halldóra Davíðsdóttir, Jón Sig-
urðsson á Svínafelli og Guðrún
Sigurðardóttir s. st., Páll Þor-
steinsson Hnappavöllum, SigurjSur
Þorsteinsson bóndi í Hofsnesi, og
hreppsnefndaroddviti Þorsteinn
Þorsteinson á Hnappavöllum hinn
mesti merkis og sæmdarmaður.
Hörmulegt slys
“Talisman” ferst með 12 mönnum
Þilskipið “Talisman”, 44 tonn,
eign Ásgeirs Péturssonar, fór héð-
an frá Akureyri á leið suður til
Vestmannaeyja sunnudaginn 19.
þ. m. Skipverjar voru 16 og skip-
stjórinn var Mikael Guðmunds-
son ættaður úr Hrísey en til heim-
ilis hér í bæ, kvongaður Gunn-
laugu Kristjánsdóttur lögreglu-
þjóns, þau hjón eiga 3 börn og
hið elzta á fjórða ári. “Talisman”
fór frá Siglufirði fimtudaginn 23.
kl. 9,30 og hrepti stórhríðargarð
um miðjan dag. I Húnaflóanum
fékk það áfall; brotnaði þá ofan
af káetunni og hana fylti af sjó.
Skipið hélt síðan áfram vestur fyr-
ir land. Á laugardagsnóttina sáu
skipverj^ar vita og álitu það vera
Straumnesvita. Beygðu þeir þá að
landi og ætluðu að hleypa inn á
Isafjarðardjúp. En vitinn, sem
þeir sáu var ekki á Straumnesi,
heldur vestan megin Súganda-
fjarðar og af þessum ástæðum
sigldu þeir til skipbrots upp á
Sauðanes milli Súgandafjaðar og
Önundarfjarðar, Súgandafjarðar-
megin. Þar gekk óbrotinn sjór á
land. Skipið brotnaði þegar all-
mikið og gerðu 7 af skipverjum
tilraun að komast á stórsiglunni
til lands. 4 af þeim komust lífs
af og heilir á húfi, en 3 fórust.
Þeir 9, sem eftir voru á skipsfjöl,
fórust allir, því skipið brotnaði
mjög fljótt. Alls fórust því 12
menn en fjórir komust af. Þeir
4, sem lifa, eru þessir: Einar
Guðbjartsson frá Grenivík, Jakob
Einarsson héðan úr bænum, Jó-
hann Sigvaldason úr Hörgárdal og
Arinbjörn Árnason úr Möðruvalla-
sókn. Þeir tólf, sem druknuðu,
voru þessir: 1. skipstjórinn Mika-
el Guðmundsson, sem áður er
getið. 2. stýrimaðurinn, Þorst.
Jónsson, frá Grímsnesi, ógiftur.
3. vélarstjóri Stefán Ásgrímsson
héða núr bænum frá konu og 5
börnum. 4. Sigurður Þorkellsson
frá Siglufirði, ókvæntur. 5. Jó-
hannes Jóhannesson frá úlgili í
Þorvaldsdal, ókvæntur. 6. Bene-
dikt Jónsson héðan úr bænum frá
konu og fjórum börnum. 7. Sæm-
undur Friðriksson úr Gleráéþorpi
frá konu og fjórum börnum. Ás-
geir Sigurðsson fóstursonur skip-
eiganda, ókvæntur. 9. Sigtryggur
Davíðsson frá Dalvík frá konu og
börnum. 10. Bjarni Emilsson frá
Hjalteyri, ókvæntur. 1 1. Gunnar
Vigfússon frá Siglufirði, ókvænt-
ur og 12. matreiðslusveinn Stefán
Jóhannsson frá Nunnuhóli > Möðru
vallasókn. Lík allra þessara manna
eru fundin og er gert ráð fyrir að
“Helgi magri”, skip Ásgeirs Pét-
urssonar, sem fer suður um þess-
ar mundir, flytji þau hingað, þeg-
ar það kemur til baka. “Talisman”
hafði meðferðis síldarfarm til
Vestmannaeyja og var skip og
farmur hvorttveggja óvátrygt.
Alllangt er síðan Ægir hefir
unnið Akureyri og grend hennar
þvílíkan geig. Fimm af þeim, sem
druknuðu, voru frá Akureyri og
Glerárþorpi, þar af 4 kvæntir og
dánir frá konum og alls 15 börn
um. Auk þess hefir ein kona í Dal
vík orðið ekkja við þennan at-
burð, en blaðinu er ókunnugt um,
hversu mörg börn hennar eru.
Margir eiga nú um sárt að binda
og við fátækt að stríða og reyn-
ir nú á örlæti þeirra og samúð,
sem virðast hafa fullar hendur
fjár, hvenær sem skemtanir og gjá
lífi er annarsvegar. Stórar stundir
og hörmulegar koma yfir bæi og
landshluta við þvílíka atburði.
Sameiginlegur harmur margra
legst eins og alvaran yfir bæina
með flöggum í hverja stöng hálfa.
Og þvílíkar stundir þoka alvöru-
gefnum mönnum saman undir
byrði missis og harma, sem öllum
er á herðar lögð fyr eða seinna.
Og Dagur efast ekki um, að yfir
þennan bæ renni dagur almenns
harms og hluttekningar, þegar
“Hegi magri” skilar á land líkun-
um tólf.
Frú Guðrún Indriðadóttir fór
suður til Rvíkur með Sterling
síðast. Eins og áður hefir verið
skýrt frá, kom hún hingað norð-
ur að tilhlutun Leikfélagsins, til
þess að leika Höllu í “Fjalla-Ey-
vindi”. Hún gerði því kleift að
sýna leikinn hér. Enginn efast um,
að leikur frúarinnar var í veru-
legum atriðum stórmikil list, þó
að mætti finna og munu Akureyr-
arbúar vera frúnni stórþakklátir.
Viðurkenning. Styrktarnefnd
sjúkrahússins Gudmanns Minde
hér. í bænum afhenti nýlega —
fyrir hönd sjúkrahússins — frú
Júlíönu Friðriksdóttur hjúkrunar-
konu, að gjöf mynd af sjúkrahús-
inu utan og innan í vandaðri um-
gerð með áletrúðum silfurskildi.
Var mynd þessi gefin í viður-
kenningarskyni fyrir vel unnið
starf hennar til umbóta á sjúkra-
húsinu, bæði með bættri hjúkrun
og fjársöfnun til þess, hér á landi
og vestan hafs.
Ólafur Túbals listmálari kom frá
Húsavík hingað til bæjarins með
Sterling síðast. Hefir dvalið í
Húsavík mánaðartíma og málað
þar. Hann hefir opnað hér mál-
verkasýningu í stóra salnum í
“Hotel Akureyri”. Ólafur er ætt-
aður frá Múlakoti í Fljótshlíð.
Hann er náttúrubarn í list sinni og
gefur sig lítið að hinum nýju öfga
stefnum í þeirri grein. Ólafur hafðí
málverkasýningu í Reykjavík í
vetur og hlaut mikið lof í biöðun-
um. í Húsavík hafði hann og
sýningu og seldi þar allmörg mál-
verk.
Dánardægur. Þessir menn eru
nýlega látnir: Halldór Stefánsson
bóndi á Skútum á Þelamörk, Páll
Jónsson á Sörlastöðum í Fnjóska-
dal, báðir á áttræðisaldri, Bjarni
Helgason vélstjóri, Norðurpól hér
í bæ, frá konu og fjórum börnum
í ómegð. Ennfremur er nýlátið
stúlkubarnið Ninna Hjartardóttir
á Stóruvöllum hér í bæ eftir mikl-
ar þjáningar. 27. þ. m. lézt á
heimili sínu, Gamla spítalanum,
Sigurður Eiríksson, góður og gam
all. borgari þessa bæjar.
Eldur kviknaði nýlega í húsi
Guðm. Björnssonar fyrv. . land-
læknis í Reykjavík. Tókst slökkvi
liðinu að kæfa eldinn en ekki fyr
en rúsið var orðið stórskemt, svo
að eigandinn varð að flytja úr því.
----------------o--------
Þjóðræknisfélagsdeild stofnúð
á Gimli.
Almennur fundur var haldinn í
bæjarráðshúsinu á Gimli þ. 27.
apríl s. 1. Fundurinn var boðaður
af séra Guðmundi Árnasyni, með
því augnamiði að stofna hér á
Gimli deild af Þjóðræknisfélagi ís-
lendinga í Vesturheimi. Séra Guð-
mundur skýrði tilgang fundarins
og í hverju það lægi að Þjóð-
ræknisfélagsdeildir væru nauðsyn"
legar í hverju plássi sem íslend-
ingar byggju í; sérstaklega væri
það uppfræðsla unglinganna í ís-
lenzkum fræðum og bókmentum
sem ætti að vera aðalstarfið.
Ymsir aðrir tóku til máls, og létu
allir í ljósi ósk sína í því efni hve
æskilegt væri að stofna deild á
Gimli. — Var síðan leitað eftir
því hve margir af þeim sem á
fundi voru vildu gerast meðlimir,
og gáfu sig þá fram 1 5 manns, og
var deildin síðan stofnuð.
Þar næst var ákveðið að kjósa
5 manna nefnd til að starfa að
undirbúningi laga fyrir deildina,
og að sú nefnd að loknu starfi
boðaði til almenns fundar, en ekki
þó seinna en innan tveggja vikna.
Þessir voru kosnir í nefndina:
Mr. B. Þórðarson,
Mr. G. Thorsteinsson,
Séra Sig. Ólafsson,
Séra E. J. Melan,
Mr. G. P. Magnússon.
Þann 4. maí boðaði svo nefnd
þessi til fundar og var hann hald-
inn í bæjarráðshúsinu. Lagði
nefndin fyrir fundinn uppkast af
lögum fyrir deildina, sem síðan
voru samþykt með litlum breyt-
ingum. Ákveðið var að nafn
deildarinnar væri “ Á r b r ú n ’
— Einnig var ákveðið að reglu-
legir fundir skyldu haldnir einu
sinni í mánuði yfir sumarmánuð-
ina, en tvisvar í mánuði á vet-
urna.
Síðan var gengið til kosninga
í embætti fyrir yfirstandandi ár,
og hlutu þessir kosningu:
Forseti: Séra Eyjólfur J. Melan,
Vara-forseti: Mr. B. Þórðarson,
Skrifari: Mr. C. A. Nielsen,
Vara-skrifari: Mr. G. P. Magnúss.
Féhirðir: Mr. G. Thorsteinsson.
Yfirskoðunarmenn: Séra Sigurður
ólafsson og Mr. B. B. Olson.
Þrír nýir meðlimir gengu inn í
deildina á fundi þessum.
Þegar fundarstörfum var lokið,
las séra Sig. ólafsson upp kvæði
eftir skáldið Einar Benediktsson,
og var síðan fundi slitið.
-------o--------