Heimskringla - 02.08.1922, Side 4
*. BLAÐSÍÐA.
H EIM S K RIN G L A.
WINNIPEG, 2. ÁGLST, 1922.
HEIMSKRINQLA
Otofuuö 188«)
Kemur 6t fl kverjam mlívIkadegL
ÚtCf/endur og eÍRfHdur:
THE VIKING PRESS, LTD.
8S3 »C 855 SAKGEKT AVE, WISS1PB6,
Talxfmli .8-8537
V.rS U>*nl» er (3.M írgaiíurliiii ker«-
lat fyrtr fram. Allar boreaulr' •»•**a*
rttaminul blaKalma.
RsísmaSur:
BJÖRN PÉTURSSON
Ri t s t j ó r a r :
BJÖRN PÉTURSSON
STEFÁN EINARSSON'
UtaaSakrlft tlli blaðulnKi
THB VIKIItul PKBSS, Ltd, Boi 3171.
WlmatmrB, Maa.
. UtamflKkrltt tll rltatjðrama
EDITUK UEIHSKRIV6LA, lol 3171
Wlaalvec, Mia
The “HeimskrinBl*" i» printod uad i»Hb-
Hsbe by the Viklne Press, LimiteS, at
863 og 8E5 Sargent Ave., Wlnnipes, Mant-
toba Telephaae: It-4537.
WINNIPEG, MANITOBA, 2 ÁGÚST, 1922.
Samvinna.
Eitt af því, sem mönnum var tíðrætt um
í kosningunum, var samvinna milli bæjanna
og sveitanna.
Samvinnustefnan er einn liðurinn á stefnu
skrá bændaflokksins. Og það var einmitt
vegna þess, að þetta mál — samvinna milli
bæja og sveita — var svo oft á vörum
manna um kosningaleytið.
En ménn greindi mjög á um þetta mál.
Voru’bæjarmenn emkum þeirrar skoðunar,
að samvinna milli þessara tveggja aðila,
sveita- og bæjafólks, væri með öllu ófram-
kvæmanleg, hversu ákjósanleg sem hún
kynni að vera.
Þetta er mjög víðtækt mál. Að fara út
í öll atriði, er ttf grema koma í sambandi við
það, er ekki hægt hér að sinni. Á ýmislegt,
sem umhugsunar er vert, þegar um það efni
er að ræða, skal hér reynt að benda.
Iðnaði hvers lands er aðallega skift niður
í tvær greinar: Frumiðnað eða fyrsta flokks
iðnað og afleiðsluiðnað eða annars flokks
iðnað. Frumiðnaður þessa lands er t. d.
búskapilr, skógarhögg, fiskiveiðar og náma-
gröftur. Á þessum frumiðnaði 'hvílir allur
afleiðsluiðnaður. En það er verksmiðjuiðn-
aður, verzlun o. s. frv.. Það er með öðrum
orðum allur bæjariðnaðurinn. En við það
skal strax kannast, að þó að frumiðnaðurinn
sé undirst^ðan undir þeim iðnaði, og hann
sé því fyrsta skilyrðið til þess, að iðnaður
geti risið á fót á eðlilegum grundvelli í þjóð-
félaginu, þá er hinu samt ekki hægt að
neita, að annars flokks eða bæjariðnaður-
inn er einnig nauðsynlegur. Án bæjanna
eru löndin aldrei fjölmenn. En fjölmennið
er |>a2S, sem þarf til þess að frumiðnaðurinn
geti orðið arðvænlegur. Það þarf með
öðrum orðum sölu fyrir landafurðirnar. En
hún fæst ekki nema með því, að neytendur
þeirra séu fleiri en þeir, sem frumiðnað
stunda, því þeir framleiða meira en þeir
sjálfir þurfa með. Auk þess er frumiðnað-
urinn þannig oftast, að allri vinnu við hann
er eigi lokið með framleiðslu efnisins.- Það
þarf að breyta efninu og umskapa á marg-
an hátt, áður en hægt er að nota 'það. Það
þarf að gera skó úr leðrinu áður en hægt er
að nota það. Og eins er því farið með ná-
iega alian frumiðnað. Bæjariðnaðurinn er
því nauðsynlegur, frá hvaða hlið sem skoð-
áð er., Hann er virkilegur vegna þess, að
hann breytir efninu og bætir það, og eykur
með því gildi þess. Og hann er þjóðfélaginu
til góðs, vegna þess, að án han6 yrði efninu
ekki breytt og lífið yrði fáskrúðugra. Verka-
maðurinn í bænum er því vel verður launa
sinna, því hann hefir Ieyst af hendi vinnu.
sem verðmæt er. Þetta ætti að nægja til að
sýna fram á, að afleiðslu- eða annars flokks
iðnaður er réttmætur og eigi síður nauðsyn-
legur í þjóðfélaginu en frumiðnaður.
En af öllu má of mikið gera. Stjómir
flestra landa þafa nærri ávalt látið sig þenna
annan flokks iðnað meiru skifta en frumiðn-
aðinn. Þær hafa álitið það beztu leiðina til
að byggja upp þjóðfélagið. Stjórnir þessa
lands og þessa fylkis hafa ekki verið nein
undantekning frá þessu. Þær hafa meira
hlúð að bæjariðnaði og verzlun en að frum-
iðnaðinum. Og það er álit margra, að þar
hafi verið gengið of langt, að farið hafi ver-
ið lengra í því efni en eðlilegt var eða að
ytri ástæður leyfðu.
Hér í fylkinu hefir mörgum 'bæjariðnaði
verið komið á fót, sem efnið í hefir verið
sótt langt a&. En eðlilegast væri, hvaða
grein iðnaðar, sem byrjað væri á, að efnið
væri tekið sem næst sér. Hér hafá stálverk-
stæði t. d. rrsið á fót, sem hráefnið til rekst-
ursins hefir orðið að sækja til annara landa
og stundum mjög langt að. En skógerð og
ullarverksmiðjuiðnaður hefir verið látmn
eiga sig. Og þó er hráefnið í hvorntveggja
þenna iðnað við hendina. Ull og húði-r hefir
svo orðið að selja til útlanda. En það hefir
oft misjafplega blessast. Sú er að minsta
kosti raunin á orðin nú, þar sem bændur
grafa húðir sínar í jörðu, af því að sala er
ekki til fyrir þær. En þó þurfa allir sí og æ
að vera að kaúpa skó. Væri ekki ögn eðli-
legra, að þeir væru nú unnir hér í Winnipeg
t. d. úr húðunum, sem engin sala er fyrir, en
að þeir séu keyptir langt að. Væri ekki
eðlilegra, að verkalýður bæjarins ynjii að
skógerð, þar sem hráefnið er við hendina
og fæst fyrir. sama sem ekki neitt? Hvernig
væri nú, að meiri samvinna kæmist á milli
bóndans í sveitinni og verkamannsins í bæn-
um, í þessu efni? Við skulum segja, að
stjórnin kæmi hér upp skógerðarverkstæði,
keypti húðirnar af bændum og gæfi Verka-
manninUm hér vinnu með því. Verkamað-
urinn og bóndinn gera aðalvinnuna við
þetta. Með þjóðeignarfyrirkomulagi eða
stjórnareftirliti á þessum rekstri ættu þeir að
sitja að hagnaðinum af þessum atvinnu-
rekstri mestmegnis, eða nærri eingöngu. Er
hægt að hugsa sér nokkuð æskilegra en
samvinnu bæjanna og sveitanna í þessu efni?
Og hvers vegna ætti þessi samvinna að vera
L ómöguleg þeirra á milli? Það er einmitt
sam'vinnuleysið, sem hér er aðal þrándurinn
í götunni. Með samvinnu, bygðri á fyrir-
hyggju, er hægt að ryðja steininum, sem nú
er bæði þesáu og mörgu öðru til fyrirstöðu,
úr vegi.
Þetta er aðeins eitt dæmi af því, hverju
má til I<ðar koma með samvinnustefnunni.
En það er svipað með hveft annað starf í
þjóðfélaginu. Stjórnarreksturinn sjálfur er
háður samvinnulögmálinu. Það þarf eigi
síður að gæta þess, að hann svari til ein-
hverrar þarfar í þjóðfélaginu, en annað.
Ef t. d. allar skrifsl'ofur stjórnarinnar í þessu
fylki eru nauðsynlegar, stendur þeim éngin
hætta af samvinnustefnunni. En séu þær
óþarfar, þá erum vér hræddir um, að ilt
verði fyrir stjórnirnar að segja, að þær hafi
drotnað yfir syndum sínum.
Nú er það engin launung, að stjórnirnar
hafa blátt áfram stofnað, eða komið á fót
skrifstofum, • sem með öllu eru óþarfaY og
svara til engra brýnna þarfa,. nema þeirrar,
að gefa vildarvinum þeirra vinnu. Þetta
hefir átt sér stað í þessu fylki. Ein brýnasta
þörfin er að ko.ma í veg fyrir þetta, því það
befir gengið svo Iangt, að óþarfa kostnaður,
sem því er samfara, gengur Iangt fram úr
hófi. . í stefnuskrá bændaflokksins er ekki
gengið framhjá þessu atricf. Þar er gert
ráð fyrir, að haga skrifstofustarfi eftir þörf,
en ekki að fjölga' skrifstofum í það óend-
arilega, til þess eins að afla sér pólitískra
vina, og hrúga skuld á skuld ofan í fylkinu
með því. t
En svo að aftur sé vikið að hinu atriðinu,
því, hvernig tilhögun’stjórnanna hefir verið
á iðnaðarrekstri Iandsins, er auðséð, hvað
hann hefir haft í för með sér. Með.því að
sækja efnið til reksturs iðnaðarins Iangt að,
hefir varan oftast orðið dýr og dýrari en
hægt var að kaupa hana annarsstaðar, eða
að minsta kosti dálítið nær sér. En svo hef-
ir, til þess að tij/yggja þenna iðnrekstur, orð-
ið að gefa þeim ýmiskonar hlunnindi, eins
cg það, að leggja tolla á samskonar iðnað
annarsstaðar frá. Markaðurinn hefir þeim á
þenna hátt verið trygður. Og úr þv'í að hann
var trygður og salan vís, þá gátu þessi iðn-
félög borgað verkamönnum sínum'dálitið
hærra kaup, en þeim var unt að gera, sem
frumiðnað ráku. Með þessari umhyggju
allri fyrir annars flokks iðnaði beið frumiðn-
aðurinn ósigur. Bændur fóru með öðrum
orðum halloka í samkepninni fyrir eigendum
bæjariðnaðarins. Og verkamenn iðnstofnana
gáðu ekki að því, að þarna var orsökin til
þess. Þeir aðeins litu á kaupið, er þeim
var goldið. Og vegna þess að bændur gátu
ekki gert þeim sömu skil, borgað þeim eins j
hátt kaup og iðnstofnamr þessar, sem stjórn-
in ávalt studdi á kostnað allrar alþýðu
tóku verkamenn bæjanna að Vonzkast við
bændur og hafa um langt skeið skoðað þá
eikióvini sína. Þannig var fleygurinn rek- '
inn á milli tveggja stétta þjóðfélagsins, er ;
að allri framleðslu unnu. Stjórnirnar og auð-
valdið stokkuðu þannig spilin, að trompin
urðu öll í þeirra höndum og spilið var unnið
fyrir þeim. Hve áþreifanlega þetta hefir
tekist, sást síðast greinilega í fylkiskosning-
unum nýafstöðnu. Verkamenn skoðuðu
bændur óvini sína. Voru sannfærðir um, að
þeir væru að brjótast til valda, til 'þess að
setja kaup þeirra niður. Auðvitað gengur
bændum það til, með stjórnmálastarfi sínu,
að 'hlúa að frumiðnaði fylkisins. En það er
ekki framleiðslan ein, sem þeir skoða rétt að
h:ynna að; það er sala á þeim einnig, sem
fyrst og fremst fyrir þeim vakir. En hvað
þýðir það? Það þýðir, að koma á samvinnu
rrilli bæjariðnaðarins og frumiðnaðarins.
Það þýðir að. koma á fót íðnaði, sem hönd-
um tekur saman við þá og tryggir þeim
markað og verkalýð bæjanna vinnu. Það
þýðir, að koma á fót samvinnu milli þeirra,-
er að framleiðslu vinna, hvort heldur er í
bæ eða sveit, og að þeir njóti hvorirtveggja
hagsmunanna fyrst og fremst af starfi sínu,
en séu ekki þjónar auðfélaga, sem hingað
til hafa ekki aðeins lifað á sveita þeirra,
heldur ausið upp fé með því, og trygt sér
| svo vald með því, bæði til að gjalda hærra
kaup en bændur og til hins, að ráða sölu-
í verði á vörum, sem vanalega hefir nokkuð
j meira gert en að jafna reikninginn á hlið
I verkamanna. Og í raun og veru er það\vald
í þeirra yfir verðlagi vörunnar, sem bæði
Verkamenn og bændur hafa. framieitt, sem
; setið hefir fyrir, en kauphækkunin komið
I sem afleiðing af því. Ef svo væri ekki,
hefðu verkamenn ekki þurft að stríða svo
fyrir kauphækkun sinni, að til byltinga
| horfði eins oft og raun hefir á orðið út um
í allan heim síðustu árin.
Það er því ekki aðeins auðséð, að iðnað-
l arstefna stjórnanna hefir verið órettlát og
: óhagkvæm fyrir þjóðfélagið, heldur hefir
I einnig haft það í för með sér, að sundra
| þjóðfélaginu og skifta því í flokka, sem
hvorir hata annan. Og það eftirtektar-
verðasta við þá sundrungu er það, að þeir
flokkar þjóðfélagsins, verkaínenn í bæjun-
um og bóndinn í sveitunum, sem bað eiga
sameiginlegt, að vinna að framleiðslu —
gera alla nauðsynlega vinnu, þjóðfélaginu til
viðreisnar og vaxtar, — skuli ekki geta kom
ið auga á, hve mikið ósamræmi er í því
þeirra á milli, og hve eðlilega þeim er iagt
upp í hendurnar að vinna saman og líða súrt
og sætt hvorir með öðrum.
Samvinna og samhagur allra borgara
er eitt af æðstu lögmálum þjóðfélagsins. Og
| að koma henni sem víðast að í verki, er eigi
| aðeins hagkvæmast og réttlátast fyrir alla
borgara þjcjðfélagsins, beldur elur hún og
fóstrar samhug og bræðraþel þeirra á milli.
Hún sameinar þjóðfélagið á þeim grundvelli,
sem einn er óskeikull að ^ameina það á —
á grundvelli kærleikans.
Vér minstumst á það í stjórnmálapistlum,
er vér skrifuðum í þetta blað fyrir nokkru,
að oss furðaði á því, ef heilt þjóðfélag
gæti ekki lifað saman samkvæmt því Iög-
máli, er eitt heimili lifði eftir — Iögmáli ást-
úðar og velvildar. Vinur minn einn brosti
að þessu, og hélt að það ætti ekki við í
stjórnmálum. En hvers vegna að það gæti
ekki átt við samlíf allra borgara þjóðfélags-
ins, fengum vér ekki neina gilda ástæðu fyr-
ir, því véf vorum ófúsir að játa það, að
það háleitasta, sem í meðvitund mannsins
byggi, ætti ekki skylt við samlíf manna í
þjóðfélaginu.
Lar.gt er frá oss að halda, að sú stjórn',
sem komin er-til valda í þessu fylki, geti
orkað því, að breyta þjóðfélaginu ti! hlítar í
bessu efni. Það er mikið starf, sem fyvir
henni liggur. Og sumt af því er henni þaún-
ig Iagt upp í hendurnar, að breyting á því er
ekki auðveld á stuttum tíma. Það má því
ekki búast við of miklu af henni í bráðina.
Stefna Norrisstj^rnarinnar, sem annara eldri
stjórna í þessu fylki, brjóta í bág við stefnu
bænda og hindra stjórnina, sem nú er, að
framkvæma stefnu sína til Jilítar. Grund-
völlurinn er annar, sem þær lögðu, enda var
ekki ætlast til, að eins yrði ofan á hann bygt.
En hvert heilbrigt spor, sem nýju stjórninm
kann, þrátt fyrir það, að takast að stíga í
samvinnuáttina, er spor til framfara og í átt-
ina til fullkomnunar í þjóðfélaginu.
Með það, sem á hefir verið minst, í huga.
sést, að stefna bænda í tilliti „til iðnaðar, er
gerólík stefnu fráfarandi stjórnar og í raun
og veru állra eldri stjórna í þessu fylki.
Samt eru lesendur íslnezkra blaða hér frædd-
ir um það af Skottum og Mórum NorrissQórn
arinnar, að stefna hennar sé hin sama og
bændaflokksins. En auðvitað verður að
sýna þeim umburðarlyndi, sem ekki vita
betur.
Hér hefir aðeins verið mmst á einn lið
stefnuskrár bændanna — samvinnuhug-
myndina. Skiljum vér ekki í, að þeim, sem
af alvöru athuga hann, geti dulist að sam-
vinna bæjar- og sveitarfólks sé, að því er
iðnaðarástand snertir — ekki aðeins mögu-
leg, heldur blátt áfram eðlileg og nauðsyn-
leg almenningi til velferðar. Samvinna er
samhagnaður. Samhagnaður eflir samhug.
En samhugur gerir samlíf borgaranna unaðs-
legra, léttir vinnuna, eykur fögnuðinn yfir
árangri hennar, víkkar sjóndeildarhringinn,
cykur kærleikann. Gerir lífið, í fáum orðum
sagt, þess vert að lifa það.
Bandaríkin fyrirmynd.
Yfirherforingi Wu Pei Fu, sem
nú hefir Nórður-Kína alt á sínu
valdi, hefir lagt til, áð Kína taki
sér Bandaríkin til fyrirmyndar,
og komi á hjá sér sama stjórn-
skipulagi og þau hafa.
Ef hugmynd þessi verður fram-
kvæmd, er hún sigur fyrir hug-
sjónir Bandaríkjanna. En svipað-
ur sigur er þeim enganveginn nýr.
Þetta er ekki í fyrsta skiftið, sem
aðrar þjóðir sníða stjórnarfyrir-(
komulag sitt eftir stjórnarskipun
Bandaríkjanna.
Blaðið “New York Sun” segir:
Svissland, Canada, Ástralía og
þýzka lýðveldið hafa öll orðið
fyrir áhrifum frá mönnum, sem
siman komu í Philadelþhia sum-
arið 1787 óg lögðíi grundvöll
undir stjórnarskipun Bandaríkj -
anna. Hugmyndin um tvíveldis-
sliórn, eða það fyrirkomulag, að
fylkin og ríkið skifti með sér öll-
mikilsverðum störfum og
Dodd’s nýmapillur eru bezta*
nýmameíSali'S. Lækna og gigt,
Bakverk, hjartabilun^ þvagteppu.
og önnur veikindi, sem stafa frá
nýrunum. — Dodd’s Kidney PilU
kosta 50c askjan eða 6 öskjur fyr.
ir $2.50, og fást hjá öllum lyfsöl-
um eða frá The Dodd’s MedickaB
Co., Ltd., Toronto, OnL
um
en
valdi og vinni í sameiningu,
ekki hvert að öðru fornspurðu,
að almennri heill, hefir í öllum
þessum löndum orðið undirstöðu-
steinninn í stjórnskipulagsbýgg-
iugu þeirra.
Alt þetta ber þess merki, að
skynsamleg undirstaða að stjórn-
skipun og samboðin nútíðinni, sé
smátt og smátt að ryðja sér til
rúms í stað hinna gömlu, kostn-
aðarsömu, hættulegu og óskyn-
snmlegu stjórnskipulagshugmynda
Evrópu.”
fari nú að birtast í óháða blaðintt
Lögbergi.
Viljum vér svo að endingu
biðja hr. Ingimarsson að hrista af
sér leiðinain, (sem á honum liggja
út af því, sem birtist í Heims-
kringlu. Hvað oss nertir, getum
vér sannfært þann um það, að
bréfin, sem henni berast daglega,
eru oss meiri vissa um vinsældir
henna,r í seinni tíð, en bréfin, sem
t*i hennar eru stíluð í Lögbergi.
Lúalegt.
Mannákaðinn mikli á
Islandi.
Milli 60 og 70 manns farast.
, , ,, . Getur nokkur lesið svo þá sorg-
Lúaleg er hún ljoður -grem- jegu frétt j ÍSl]enzku blöðunum um
m hans M. Ingimarssonar i siðasta hinn mik)a mannskaða við Norður
Lögbergi. Þessi postullegi vand-
lætari er að setja ofan í við Hkr.
fsland í vor, að hann ekki komist
við og setji hljóðan. Því meir.
ú*: af því, að þar hafi átt að vera sem hugsað er um þann atburð>
haldið *fram, að biblían sé rugl.
Þótt vér munum ekki eftir, að
þess sárari verður hann. Er hægt
að hugsa sér tilfinnanlegra tap
það orð hafi "okkru sinni verið fyr;r Ktjg þjóðfé,ag. Frá almennu
um biblíuna haft í blaðinu, þy Í", sjónarmiði virðist það sárara, þeg
umst vér vjta, að átt se við grein * ar SVQ st6r hópur góðra drengja
þá, er H. W. Wells reit um biliuna f„j|a - va] bjns miskunnarlausa
og birtist í fleiru en einu af stor- Ægis> sem bæð; er jff Qg dauðj fs_
blöðum Bandaríkjanna og ver ,enzku ^ar[nnar beima.
þýddum. Ver ætlum ekki að elt-1* £n sem betur fer snúast fjestra
ast við hr. Ing.marsson um hvort h)igir frá þjóðbeimilinu og mn á
að það sé birtandi i íslenzku einstbk beimi]in föðurlausri þar
blaði, er þessi heimsfrægi rithöf-
undur skrifar. En skoðun vor er
sem móðirin grátbó'lgin grúfir sig
ofan að börnunum Sínum, sem
sú, að það væri Heimskringlu ekki, ^ gráta> sum af því að sjá móð.
meiri vansi, að birta "það, heldur,ur sina gráta> og önnur “skynja,
en trúmálalega óháða (! !) blað- hyað sker þau j hjarta”.
: inu Lögbergi að birta illkvitnis
| vaðal M. Ingimarssonar. Heims-
kringla flytur stöku sinnum grein-
ar um trúmál. en þær greinar hafa
avalt verið frá þeirri hliðinni, er
frjálstrúaðir menn líta á trúar-
brögð. Ef Onítaratrúin á þar
meiri ítök og greiðari samleið en
Það eru yfir 30 slík heimili
fíakandi í sárum. BjargarKtil til
frambúðar. Ef til vill sum þegar
tékið út á fengsæld fyrirvinnunn-
ar, sem svo sorglega brást.
Geturðu ekki, lesari góður,
rcynt að setja þig að örlitlu leyti
í spor óeigingjarnrar móður, sem
onnur truarbrogð, þa stafar það urátt fyrir ástvinamissinn gleym-
ai því, að hún er frjálsari en þau. | jr opnu sárinu af umhyggjusemi
Þeð situr því illa á þeim, er sjálf-j fyrir framtíð barnanna sinna, og
n eru svo trúarlega tjóðraðir, að, ^ kennir hún sárasta sviðans.
frjálsar trúmálaumræður eru
þyrnir í boldi !þeirra, að vera að
bera öðrum á brýn, að þeir séu á
trúarklafa bundnir.
“Það er leiðinlegt, að Heims-
kringla, svo vinsælt og skemtilegt ( þeim það eru
blað, sem hún hefir verið, skuli ^ föðurlaus börn, sem
nú vera bundin við vissan andans bvfjjr á fátækum,
tjóðurhæl,” segir M. Ingimarsson.' mæðraböndum. Auk
Getum við nú ekki, til að
gleðja okkur sjálf, rétt þessum
bágstöddu mæðrum hjálparhönd?
Við getum ekki grætt sárin mörgu
við gehim Iinað sviðann í
milli 80 og 90
framtíðin
þreyttum
þess eru
en
Vér efumst ekki um, að þetta; um 3Q beimib> er mist bafa upp
kcmna syni og á sumum einu fyr-
irvinnuna, og eftirskilið gömul
örvasa foreldri. Oft hafa Vestur-
sé skrifað af sterkri trúarsa|nfær-
ingu og áhuga fyrir velferð Hkr.!
Samt detta oss í hug orðin: “Ó,
þér hræsnarar,” í sambandi við yendingar sýnt hluttekningu í
erum svo tniaðir á; svipuöum kringumstæðum. Sem
biblíuna, að vér erum vissir um, betur fer virðast vera svo margir
að þau orð eiga enn heima um meða) Vestmanna, sem skilja kjör
sjómannsekkjunnar, að þeim hlýt
ur að vera ánægja, áð geta rétt
hjálparhönd, þó hún sé ekki sterk,
með iþeirri einu mögulegu hjálp,
fjárframlagi.
Vilja nú ekki blöðin, eða em-
hver einstakur maður í Winnipeg,
gangast fyrir samskotum á meðal
Vestur-Islendinga ?
Árni S.
vissa menn.
En ástæðan fyrir brígslyrð>i
hr. Ingimarssonar í garð Heims-
kringlu er ekki af þeim háfleyga
toga spunnin, er hann gefur í
skyn. Hann hefir, eins og marg-
ir muna, verið að senda blaðinu
vísur og annað til birtingar.
Nokkuð af því höfum vér álitið
“meinlaust og gagnslaust”, og
það hefir verið birt, þó langt sé
írá að oss hafi ekki verið láð það.
En fleira liggur en óbirt af því,
af ástæðum, sem þeim eru ljósar,
sem höfundinn þekkja. En vér
viljum taka það fram, að það er
oss þykkjulaust með öllu, þó það
Heimskringla vill fúslega ljá
máli þessu lið sitt og taka á móti
samskötum 'í slíkan sjóð og koma
þeim til skila. Og hún viH hVetja
menn til að bregðast Vel við og
fljótt. Fyrir gjafirnar verður