Heimskringla - 22.08.1923, Page 1
Senðit) eftir vertillsta til
Royal Cruwn Soap l>td.
654 Maln St.. Wlnnlpes.
VerðlaQB
gefi*
fyrir
Coupons
og
umbúðir
VerSlaon gefi*
ROYAI-
fyrir CROWN
Conpunj SOAP
1 verTSUata til rt ii > h i Crown tíoap Ltd. Aialn St., Winnipeg
XXXVII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 22. ÁGÚST, 1923.
NÚMER 4é—ifj
Canada.
Home Bank of Canada gjaldþrota
Þær furðulegu fréttir bárust út
tim landið s. 1. laugardag, að búið
væri að loka Home bankanum f
■Canada vegna þess, að hann væri
gjaldþrota. Purðulegar eru þær
fréttir vegna þes,s, að 2. júlí s/ 1.
voru reikningar bankans gefnir út
aJmenningi til fróðleiks og undir-
skrifaðir af yfirskoðunarmönnum.
Er hreinn ágóði bankans þá talin
‘fyrir starfsárið er þá lauk $232,539.
17. Svo rúmum mánuði seinna er
'þefta hljóð komið í strokkin.n. Að-
alstöðvar Home bankans voru í
Toronto, en svo voru útibú hans
um alt land. í sumum afskektum
néruðum var engin banki annar og
kemur sér þvi afar illa l>ar, að
þannig er komið. Seðlar bankans
eru leystir út ennþá á hvaða banka
sem er, og að þeir sern fé áttu inni
hjá .bankanum eða skiftu við hann
tapi ekki inneign sinni, er alment
álitið. Er nú byrjað á að rann-
saka bækur og hag bankans. Verð'a
fyrst goldin vinnulaun banka-
þjóna, þá reykningur Ontario-fylk-
testjórnarinnar, sem við bankan-n
skifti og síðast reikningar allra
annnara er fé geymdu í bankanum.
15 m»la af erkrunni.
Akuryrkjudeild iManitoba stjórn-
arinnar gerir ráð fyrir 15 mælum af
’hveiti af ekrunni til jafnaðar í
þessu fylki. Af grófari kornteg-
undum og kartöflum er uppskeran
með bezta móti.
Á barkarbát til N ew Orleaus.
Pyrir helgina lögðu tveir ungir
menn af stað frá Norwood-bryggj-
unni í þessum bæ í barkarbát á-
leiðis tll New^Orleans suður við
Mexiko-flóa í Banclaríkjunum. Æf-
intýrra rnenn þessir heita Standley
Battley og Hanry Sadder. Annar
22 ára en hinn 21, báðir til heimil-
is f Winnipeg. Bátur þeirra er
15 fet-a langur og með sér hafa þeir
tjald og vistir. Allur farangur
þeirra er um 150 pund að þyngd.
Halda þeir upp Rauðána til Tra-
verse-vatnsins, þaðan niður Minne-
sotæána til Missisippi og niður
eftir Missisippi til NewOrleans.
Vegalengdin er um 3000 mflur og
munu þeir þurfa 5-7 mánuði til að
komast hana. Fyrir einu ári datt
piltunum ferðalag þetta í hug og
hafa þeir verið að búa sig undir
það síðan. Syndir eru þeir sem sel-
ir, enda er sagt, að þeir þurfi á
því að halda sem í drápskænum
þessum — barkar-bátunum ferðast.
30,000 manns frá Englandi.
C. P. R. félagið er sagt að flutt
tiafi um 30,000 manns frá Bretlands
■eyjunum nú þegar til þess, að
vinna að uppskéru og von sé á
þessa dagana 10,000 f viðbót. Af
nærri þremur og hálfu þúsundi
manna er komu s. 1. miðvikudags-
kvölds fengu víst fáir uppskeru-
virrnu, en var í þess stað boðin
járnbraut.arvinna fyrir $2.50 á dag,
og af því á maðurinn að fæða sig
— og fjölskyldu sfna ef nokkur er.
Breytingar innan ráðuneytisins.
Hessar breytingar gerði forsætis-
ráðherra Canada innan ráðuneytis
síns s. 1. föstudag:
Hon. Jas. A. Robb, sem verið hef-
ír verzlunarmálaráðgjafi síðan
KingtStjómin tók við völdum, hef-
ir verið gerður að innflutnsmála-
ráðgjafa. Við hinu fyrra embætti
hans tekur Hon. T. A. Low, sem
ráðgjafi var áður, en án stjórnar-
deildar. Verður hann því að sækja
um endurkosningu í kjördæmi sínu
Renfrew. Hon E. M. Macdonald tek
ur við landvarnarráðgjafa embætti.
Var hann ráðgjafi án stjórnar-
deildífr áður. Hans kjördæmi er
Picton og sækir hann þar um end-
urkosningu.
Kornnefnd Alberta-fylkis.
Bráðabirgðarnefmlin, sem kosin
var í Alberta til þess, að hafa um-
stjórn með kornsölunni er þessi: H.
W. Wood frá Calgary, forseti
bændafélagsins, forinaður; W. J.
Jackson frá Bremner, ritari: Step-
hen Lunn frá Pincher Creek, Col.
C. W. Robinson frá Munson; I.ew
Hutchinson frá Duhamel; C. C.
Jensen frá Margnath; Hans Lau-
sen frá Carsland. Að þrem múnuð-
um liðnum verður fastanefndin
kosin. Til þessa kornsölufélags er
efnt af bændum og stofnsett er
það samkvæmt lögum um sam-
vinnufélög í Alberta.
Herforingi áður, nú vinnumaður.
Einn í hópi þeirra manna er hing-
að liafa nýlega komið frá Englandi
til þess að taka sér uppskeruvinnu
fyrir liendur, er Basil Tchestlovsky
herforingi úr keisara hemum rúss-
neska. Hann var síðast í hex
Dennikens, er ósigurinn beið fyrir
bolshevikum. Plýði hann þá, en
veiktist af taugaveiki og varð að
liggja á sjúkrahúsi, þar til hann
var heill heilsu. En þar komst upp
hver hann var; hann vissi hvað
sín beið og strauk því úr sjúkr.a-
húsinu eina nóttina. Til Póllands
var ferðinni heitið. Klæddist hann
flökkukarls-flíkum og var að ári
liðnu komin til Póllands. Gekk
hvern spotta af leiðinni. Þeir sem
liann hltti og gisti hjá, álltu hann
aumingja, sem ekkert vissi. Hann
komst þannig heilu og höldnu til
Póllands. Þaðan hélt hann til Eng-
land og var þar vinnumaður hjá
bónda. þar til að hann lagði af stað
með þeim er uppskeru vinnu sækja
hingað. Hann mun vinna að upp-
vSkem í haust. Að því búnu gerir
hann ráð fyrir að fá atvinnu hjá
rússneskum hestasala hér, því hann
hefir gott vit á hestum. Hann
kveður tímana einu sinni hafa ver-
ið aðra fyrir sér, en í raun réttri
sé það heimska, hve margir veigri
sér við vinnu og hann segist ætla
að vera verkamaður það sem eftir
sé æfinnar. Hann er hámentaður
ín.aður og umgekst keisara-skyldu-
liðið iðulega á Rússlandi.
Skoskt!
Þrjátíu og átta drengir frá Skot-
landi, á aldrinum 18—21 árs komu
nýlega til Toronto, til að taka við
störfum sem bíðu þeirra hjá Dom-
inion bankanum.
G. G. byrjar.
Saskatchewan Grain Growers fé-
lagið afhenti s. i. fimtudag stjórn-
arnefnd samvinnu kornfélagsins,
sern þar hefir verið stofnað. sem í
Alberta og væntanlega einnig í
Manitoba $10,000 til þess að byrja
fyrirtækið með.
Meighen kemur vestur.
Rt. Hon. Arthur Meighen fyrrum
forsætis ráðherra Canada kvað ætla
að ferðast um VesturCanada yfir
septemhermánuð allan eða lengur
og halda ræður um stjórnmál.
----------xx----------
Önnur lönd
De Valera í varðhaidi.
Eainonn de Valera, aðalforingi
lýðveldissinnanna á frlandi var
tekinn af hermönnum Frí-ríkis-
stjórnarinnar s. 1. miðvikudag og
hneptur í varðhald. De Valera
var að halda ræðu í kosninga-bar-
áttunnl er stendur yfir á Irlandi.
Komu þá hermenn andstæðinga
hans að vffandi og létu skothríð
ganga yfir höfðum þeirra, er þarna
voru saman komnir. Skaut það
möngum skelk i bringu og tvfetr-
ust áheyrendur de Valera brátt, en
sjálfur féll hann í ómeginn. Halda
iSumir fram að hann hafi særst.
Þegar hann sá hvað verða vildi
gekk hann ofan af ræðupallinum
og gaf sig óvinunum á vald. Er
þar með lokið aðgerðum frá hans
hálfu fyrst um sinn, því í varðhaldi
er sagt að honum verði haldið þar
til eftlr kosningar. De Valera var
áður búinn að lýsa því yfir, >að
hann ætlaði ekki hér eftir að
sækja mál sitt með hervaldii, held-
ur einungis á friðsamlegan hátt.
iHefir hann því ekki átt von á þess-
ari atför.
iDe Valera er fæddur á írlandi.
Eaði.r hans var spánskur, en móðir
hans írsk. Áður en hann gerðist
foringi lýðveldfesinna var liann
kennari við háskólann í Dubiin.
Þegar til þess kom, að semja við
Breta um stjórnarskrá fyrir írland,
var hann einn í hópi þeirra er frá
liálfu lýðveldissinna áttu að semja
við Breta. En þegar kröfur lr-
l>ands voru ekki heyrðar til fulln-
ustu, vildi de Valera engum sætt-
um taka og skildi við sína fyrri
félaga Griffith og Collins, er sættu
sig við tklboð Breta og urðu stjórn-
endur Erí-ríkisins. De Valera kvað
írtsku þjóðina um ekkert annað
hafa beðið, en lýðveldi, og sá er
þ-am á annað færi, brigðist henni.
Undir forustu hans héldu svo lýð-
jfrefete kröfurnar áfram eftir sein
áður.
De Valera er gáfumaður sagður
ag mentaður vel. Þá ®em nokkuð
hugsa er sagt, að hann geti með
óhrekjandi sögulegum rökum sann-
fært um réttmæti lýðveldfe-krafa
írlands. En svo vill til sem oftar,
að þeir eru i minni hluta.
Námaslys.
Hryllilegt námaslys varð s. 1.
laugardag í Keminerer í Wyoma.
Við sprengingu níérri mílu niður í
jörðinni, féll námaopið saman og
fórust þar inni 97 mann.s. Opning-
ar þær er lofti var veitt um niður
f námuna fyltust upp. En svo get-
ur verið að ]>að hefði að litlu haldi
komið, því margt af líkunum bar
það með sér, að mennirnif höfðu
orðið fyrir meiðslum af sprenginig-
unni og dáið strax. Áttu jafnvel
eiginkonur þeirra, er til námastað-
arins söfnuðust, sorgmæddar og
kvíðafullar, er fréttin barst út af
slysinu, erfitt með að þekkja líkin.
Gagnskifti.
Verkamáladeild Soviet stjórnar-
innar á Rússislandi hefir farið fram
á það við verkamáladeild Canada
stjórnarinnar, að þær skiftist á
skýrslum þeim er deildirnar gefa
út.
Frægur flugmaður.
Sadi Lecointe, franskur flugmað-
ur, komst s. 1. miðvikudag 10,800
fet í flugvél sinni upp frá jörðu. Er
það hærra en nokkur hefir áður
komtet. McCready hét sá er áður
hélt þesssum heiðri og átti heima
í Bandaríkjunum.
K-K-K- eignast skóla.
Ku-iKlux-Klan félag í Bandaríkj-
unum, hefir samið við eigendu"
Valparaiso-háskólans í Indiana um
að taka skólann í sínar hendur.
Danir greiöa Rússum féð.
f Ivaupmannahafnar bankanum I
Danmörku hafði Rússa-keisarinr.
sæli geymdar nokkrar miljónir
króna af fé ríkteins. Soviet stjórnin
fór fram á, að landinu yrði grdtt
þetta fé, en bankinn neitaði því
vegna þess, að Rússland væri ekki
viðurként af Danmörku. Nú eftir’
að Danir gerðu verzlunarsamninga
við Rússa, fór Soviétstjórnin enn
fram á, að féð yrði greitt og hefir
bankinn nú tjáð sig fúsan til að
verða við því.
Hárlyf.
B. 1. föstudag voru teknir upp
2448 kassar af hárlyfjum f borginni
Chieago af bindindis eftirlits
mönnum. Hárlyf þessi voru álit-
inn helsti sterk til notkunnar, því
það voru 93 procent af alkoholi í
þeim.
Bretar veita írum láu.
Bretland er mælt að ætli að
veita írlandi (Frí-ríkinu) lán er
nemur 6,<XK),000 sterlings-pundum.
Kato heilsutæpur.
Baron Kato, forsætisráðherra í
.Tapan er í þann veginu að segja af
sér vegna heilsubrests. t>ó hann sé
ekki talin hættulega veikur, er full-
yrt að hann sé ekki fær um að
gegna forsætisráðherra embættinu
lengur. Hann var á Washington
ráðstefnunni og kom þar ágætlega
frain og hefir nú fengið þjóð sina
til að samþykkja samninga þá er
þar voru gerðir. .
.. * ■ u A.
Henry Ford segir:
í staðinn fyrir gamla kosninga-
framferðið ætti að koma nýtt fyr-
irkomulag, sem í því væri fólgið, að
menn biður hver í kapp við annan
í staffið, sem þeir ætla að leysa af
hendl fyrir þjóðina. Komi repu
blikar og segi þjóði.nni frá því, sem
þeir eru reiðubúnir að gera, og gefi
verðbréf, sem skuldbindingar fyrir
að verkið verði gert eins og um er
samið. Demokratar og hver annar
flokkur sem er, ætti einnig að gera
þetta. Árangurinn skyldum við
sjá, að yrði drjúgum betri, með
þessum hætti af stjórnar%starfinu,
en oft vill verða. Ræðuhöldin og
flaggsýningarnar f kosningum koma
stjórnar-framkvæmdunuin lítið við,
eftir að ræðumennirnir hafa snúið
sér frá fólkinu og hafa lokað munn-
inum og hætt að veifa fánanum.
En þetta fyrirkomulag myndi
knýja stjórnmálamennina til að
kynna sér þarfir landsins, einmitt
það sein þeir eru oftast grátlega
fáfróðir um. Kosningar eru til þess,
að viss störf iséu framkvæmd á á-
kveðnum tfma.Hvernig þau störf
eigi að vera leyst af liendi, ætti að
vera skráður samningur um og
tryggingar-fé lagt við ef út af kynni
að bregða. Þá greiðum við fyrst
atkvæði með raunverulegri stefnu-
skrá, en ekki með embættte-sjúkum
nieðbræðrum.
Esperanto.
Oft befir um það verið talað, að
gera eitthvert eitt tungumál að al-
heimsináli. Hefir mál það er Esp-
eranto er kallað þótt líklegasta
málið til þess. Fyrir nokkru var
l>að lagt fyrir alþjóðafélagið, hvort
ekki væri heppilegt, að það væri
nú þegar gert alheimsmál og byrj-
að væri með því að tala það á al-
þjóðafundum og rita alla samn-
inga par á því. Félagið setti nefnd
í málið og er úrskurður liennar sá,
að enda þótt æskilegt sé að hafa
eitt alheimsmál, sé of mörg van-
kvæði á því sem stendur að gera
Esperanto, eða nokkurt annað mál
að alhelinsmáli.
Eftirlaun.
Mrs. Warren G. Harding, ekkju
forsetans nýlátna í Bandaríkun-
um, er mælt að þingið muni veita
$5000 lífstíðareftirlaun á ári.
Giftingar-viðbúnaður.
Sagt er að verið sé að undirbúa
giftingu Paul prins f )Serbíu og
Olgu prinsessu. elztu dóttur prina
Nieolas á Grikklandi. /
Með málstað Breta
Mikla athygli hefir það vakið, að
eitt af aóalblöðuin katólskra
manna í Belgíu hefir eindregið
mótmælt aðförum Frakka og Belga
í Ruhrhéraðinu. Krefst blaðið
þess að Belgía gangi í lið rneð Eng-
landi um að hefja nýja stefnu í mál-
inu.
Þjóðverji hættir lífi sínu til að
bjarga frönskum mönnum.
Þessi fyrirsögn kemur talsvert í
bága við það, sem alment er gert
sér í hug uin samlindi Frakka og
Þjóðverjá. En eigi að síður er hún
sönn.
Það er satt, að andi hefnigirn-
innar er mjög ríkur milli þessara
þjóða. Það er satt, að nálega alt
sem þær hafast að, ber vott um ó-
liuginn sem þær bera hvor til ann-
arar. En saga þessi er þó fögur
og eftirtektarverð undantekning
frá þeirri reglu.
Frakkar hafa tekið land af Þjóð-
verjum austanmegin Rínárinnar.
Þeir ætluðu sér það sem nokkurs
konar vígi. En á ánni var engin
brú, þar sem bentugast var yfir að
komast og króka minst. Frakkar
lögðu því brú yfir ána úr flatbotna
bátum. En meðan á þeirri brúar-
lagningu stóð, vlldi svo til, að tveir
franskir menn, er að henni unni\
lentu í ána. Hvorugur var eyndur,
en áin straumhörð þar og báðum
var því dauðinn vís. En austan-
megin á árbakkanum stóð gistihús
og var eigandinn þýzkur. Þegar
hann sér menn þessa í hættu
stadda, bregst tiann við, og fer úr
treyju sinni og syndir út að mönn-
imum. i Og þó kraftaverki gengi
næst, gat hann bjargað þeim báð-
um fiá druknun og komið til lands.
En óskaplegri áreynslu þurfti að
belta til þeess. jafnvel þó Þjóðverj-
inn væri vel syndur.
Að tveim dögum liðnum kemur
^firhershöfðtngi Frakka að hitta
Max Fladt, svo hét Þjóðverjinn, að
máli. Þakkar hann honum björg-
un mannanna ineð inörgum fögr-
um orðum, og hann biður Þjóð-
verjann að óska sér launa, og þau
munu verða veitt honum, þvl
Frakkar séu honum mjög þakklát-
ir.
Nú var úr vöndu að ráða. Frægð
og fé beið þarna Þjóðverjans. En
hann kærði sig um hvorugt sér til
handa. í Ruhr héruðunum leggja
Frakkar dauðahegningu við þvi, ef
Þjóðverji veldur af ásettu ráði
skemdum á eignum. Sjö manna
eru í fangelsi fyrir þessar sakir hjé
Frökkum og bíða dauða síns. Fladt
svaraði herforingjanum franska,
að þar sem að frökkum og yfir-
mönnum þelrra væri björgun þess-
ara mannslífa svo mikils virði, l>á
æskti hann einskis fremur en að
lífum þeirra manna, sem nú biðu
dauðahegningar væri bjargað. Og
svo göfugmannlega tók hinn
franski herforingi ósk þessari, að
hann saijði liar.a varða meira, en
nokkra aðra ósk. er hann hefði get-
að upphuc«að og kvaðst skildi ljá
henni alt það fylgi sem hann gæii.
Um úrslltin er ekki kunnugt. En
þetta atriði er fagurt dæmi af þvi,
bverníg að t.-ær þjóðir, sein avo að
segja berast á banaspjótum, geta
alt i einu orðið vicrai og mannúð-
legar í garð hverrar annarar, þeg
ar kærleikurinn kemst til valda i
bijóstum þeirra.
Frá Færeyjum.
1 blaði sjálfstæðisflokksins í
Færeyjum, sem heitir Tingakross-
ur, birtist nýlega mynd af venju-
legri póstávfaun. Peningaupphæð-
in var, eins og venja er, rituð með
bókstöfum á póstávteunina. En
það var gert á færeysku. Þetta
hefir hneikslað svo mjög danskan
póstmann þar í eyjunum, að hann
hefir strykað undir nieð feitu og
ritað fyrir neðan: “Skal skrives
paa Dansk", þ. e. “á að rita á
dönsku.” — Eins og vonlegt er eru
sjálfstæðismennirnir í Færeyjum
æfareiðir yfir þessari kúgun. Ritar
Jóhannes kóngsbóndi Patursson í
Kirkjubæ, flokksforingi sjálfstæð-
ismanna, harðorða mótinælagreln
gegn þessu.
------------x------------
Frá íslandi.
16. júlí. '
Hingað eru nú komin 10—12
síldveiðaskip og fjölga þau óðum.
Ber vel í veiði, þvi að síldin kom
óvenju snemma og virðist gangan
mikil. Hofir síld vaðið hér uppi
rétt fyrir framan við bryggjusporð-
ana. Alls munu nú kömnar á
land um 6000 tunnur. Hsestur er
“Magni”, sem veitt hefir 1200 tunn-
ur. — Nokkuð af hinni veiddu síld
er þegar farið af stað áleiðie til
útlanda á Botníu og Sirius. '
Hafíss heir nýskeð orðið vart á
Skagafirði. Rak spöng upp að
Kálfshamarsvík og varð * til þesa
að tefja Sirius um fjórar klukku-
stundir. Sem betur fór komsit skip-
ið þó um síðir heilu og höldnu út
úr ísnum, og er nú komið til Ak-
ureyrar.
l «4; Rr I r i --4- -«»-■ , 'S’.VJTsJi
Mikll laxveiði hefir verið f ölfusá
undanfarna daga. Stærsti lax.
9em þar hefir veiðst í sumar, vóg 3.3
pund. Hann veiddist fyrir Hellfe-
landi. jj,
Hörmulegt slys varð við Elliða-
vatn f gær, er þar druknaði þriggja
ára gamall drengur, yngsta barn
hjónanna frú önnu og Brynjúlft*
Björnssonar tannlæknte, eem nú er
á heimleið frá Danmörku. Hann
var ásamt bróður sínutn 12 ára
gömltim, á leið frá sumarbústað
foreldra sinna þar efra til næsta
bæjar, að sækja mjólk, og lá leið
þeirra yfir brú á Hólmsá, sem fell-
ur í Elliðavatn. En girt hafði ver-
ið fyrir brúna, til þees að vama
vögnum yfir hana, því að hún var
nýbiluð og var eldri bróðirinn að
losa svo um, að hann kæmist í
gegnuin girðinguna, en á meðan
datt litli drengurinn gegn um gat
á brúnni; en áin er þar djúp og
nokkuð breið. Móðir drengsin®
kom tiil hjálpar örstuttn síðar, og
hætti lffi sínu til að bjarga barninu
en aðstaðan svo örðug, að það varð
árangurslaust, og var henni bjarg-
að á bóti, en lfk drengsins náðist
litlu síðar. Hann hét Sverrir og
var einkar fagurt bam og efnilegt.
Blaðamenn, erlendir, hafa verið
hér undanfarið, til þess að kynnast
felenzkum högum. Með síðustu
ferð 'Sirius komu fjórir, tveir frá
Ameríku, nfl. Miss Maurine RoW>
frá Christian Science Publishing Co.
í Baston og Miss Knowlton frá
blaðinu New York Herald. Fóru
þær báðar áfram með Sirius. Með
sama skipi voru tveir sænskir blað-
ritarar, frú Garm-Fex frá Stock
holms Dagblad of frk. E. Björklund
fró Dagens Nyheter í StokkhólmL
Dvöldu þær hér eina viku og ferð-
uðust austur í Fljótshlíð og upp í
Borgarfjörð. Með skemttekipinu
sem hingað kom frá New York,
var blaðaeigandinn og ritejórinn,
Mr. Washburn. Er hann útgefandi
11 blaða í Boston og nágrenni.
Og þessa dagana dvelur hér
danskur blaðamaður frá “Nation-
altidende” Knud Holmboe. Hefir
hann dvalið í írlandi undanfarnar
vikur og ratað þar í ýms ævintýri.
Hjefir hann jafnvel í hyggju að
halda hér fyrirlestur um Irland og
skýra frá áistandinu þar og verður
þangað eflaust inargan fróðleik að
sækja.
------------x—2— ---:---
\
t