Heimskringla - 09.04.1924, Blaðsíða 1
.
VERÐLAUN GEFIN FVRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
SenditS eftir verfiiista til Roynl
Crown Soap Ltd., 654* Main St.
Winnipeg.
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
ROYAt,
CROWN
Sendií5 eft^ir veríSlista til Iloynl
Crown Soap I-td., 654 Main St.
Winnipegr.
XXXVin. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 9. APRÍL, 1924.
NÚMER 28.
n a M i i n a i—
1 u ft n P l L) H l=:
Þriðjud. 1. apríl.
Mr. Queen skoraði á þingið í
langri ræðu, að veita aukaviðbót
til ekkna og munaðarleysingja, er
heyrðu undir uppbótalög vetka-
nianna (Workmen’s Oompensation
act) kvað atvinnurekendur ihafa
nóg efni á að leggja meira af mörkr
um og var þungorður í garð þeirra,
er teldu bændum trú tím, að há-|
verðið á nauðsynjavörum lieirra
væri að kenka háu kaupgjaldi
verkamanna- Sýndi fram á með
tölum, að laun þeirra eru hneyksl-
anlega lág. Þrátt fyrir mælsku
hans týndust þingmenn út úr
salnum, unz ekki voru efir nema
um 20. Ávítaði hann liarðlega þing
deildina fyrir lítilsvirðingu þá, er
hún sýndi þessu imálefni. — Mr.
Tanner tók í sama strenginn;
kvað þetta verða að skoðast sem
tilkynning frá þinginu, um a£
verkam.enn mættu lítils af því
vænta- — Mr. Craig varði þmgmienn
ok kvað þá vera kunnuga málinu-
Hann kom með uppástungu um,
að setja málið í 15 manna nefnd
yfir sumarið; skyldi sú nefnd vera
skipuð 5 þingm., 5 atvinnurekend-
um og 5 verkamönnum, og skyldi
hún komá fram| með tillögur á
næsta þingi. — Þessi tillaga var
samþ- y
11. marz hafði Taylor oddviti
Oons. gert fyrirspurn um símskeyti,
er farið hefðu á miilli stjórnarinnar
og Mr. iWaugh, er hann var ráðinn
forstjéri vínkaupa. Lagði Bracken
forsíBtisráðherra þau gögn fram
og sýndu þau, að Waugh hafði
viljað fá $15,00 í árslaun, en farið
að lokum niður í $12,000.
Miðvikud. 3. apríl.
Mr. Haig hamaðist að stjórninni.
Kvað hlægiiogt að þessi stjóm hefði
-sérstaklega átt að spara, og legði
svo fram áætlun um $11,000,00 gjöld,
er væri hæsta áætlun er nokkurn-
tíma hefði verið gerð í sögu fylk-j
isns|. — Löggjöfin væri öll að fara i
á ringulreið vegna þess, hve mörgl
ný lög væru leidd í gildi; vissu nú
varla eiztu og æfðustu lögfræðing-
ar hvað væru lög og hvað ekki.
3>á ávítaði hann stóórnina, er í
fyrstu hefði viljað biorga Mr. Waugh
$15,000, en hefði sVo farið niður í
$12,000 af ótta við almenningsálitið.
Myndu ýmsir háttv- þingm. (Mr.
Little) Ihafa ærst hér á árunum, ef
Norrissjómin hefði boðið einhverj-
um $15,000 laun —
Þá réðist Mr. Bayley á greinam-
ar “Under the Dome” í ‘Free Press’,
er skýrðu frá þingstörfum. Þótti
þær fuilar af léttúð og til þess eins
að rýra álit þingsins meðal manna.
— Mr. Queen og Mr. Norris and-
mæltu og töldu þinginu enga hættu
stafa af spaugsyrðum.
Fimtud. 3- apríl.
Mr- Haig réðist grimmiilega á próf-
Lee frá landbúnaðarháskólanum
tyrir að hafa látið 1 ljósi bréflcga
við Mr. Bumeli, eitthvað á þá leið,
að bændum stæði engin hætta af
að fara inn í hveitisamlbandið. Próf.
Lee væri borgað af almanna fé, og
hvaða rétt hefði nokkur rnaður í
rfkisþjónustu til þess, að blanda
sér f sitjórnmál? Mr. Bayley frá
Assiniboiia andæfði Mr. Haig hvast.
Kvað próf. Lee vera*gérfræðing éin-
oiifet á þeim sviðum, er bréf
hans lyti að, Hver væri fær-
ari? Og til hvers væri hann
1 embættl ef ekki til þess,
að leggja mönnum ráð um slíka
hluti- Mr. Bayley kvað bjartari
^ága myndu renna upp yfir fylkið,
þegar ráðin um hin og þessi mál-
efni væru sótt í hendur sérfræð-
inganna á þeim sviðum, í stað þess,
að bera alt undir stjórnmálavizk-
una. — Mr. Downes vildi láta sam-
þykkja áskoruif til samlbandsstjórn-
j arinnar um, að lækka toll og neyzlu
skatt á vínum, brennivínum og
maltdrykkjum, niður í það, sem var
1914. Kvað samlbandsstjíunina
græða of mikið á fylkjunum. íbú-
ar þeirra fylkja er vínsöiu leyfðu,
væru að borga skatta til þeirra
fylkja, er væru á ólögmlætu kendi-
ríi- Þar að auki lækkaði aldrei
bjórverðið fyri en þesisu væri al-
varlega sint.
Föstud. 4- apríl.
Út af $3,000, er ganga skyldu til
vistráðningaskrstofu ríkisins, gerði
Mr. Bernier þá fyrirskipun, hvort
þessar vistráðningaskrifstofur
kæmu að nokkru haldi. Fjöldi
manna efaðist um, það og neitaði
því. Ef þær væru gagnslausar, til-
hvers þá að fleygja peningum i
þær? — Hlon- Neil Cameron kvað
þær stórum hagfeldari, en gömlu
ráðningastofumar, er reknar voru
af einstökum miönnum. Bændur í
hans kjördæmi væru ánægðir. Það
var Mr. Norris þar á móti ekki. Að
vísu hefði hann sett upp skrif-
stofurnar, eftir beiðni samþands-
stjómar, en vildi samt fara aftur
í gamla lagið. — Willis, Kennedy og
Hamelin töldu skrifstofum þessum
mjög ábótavant. Mr. Farmer var
mótfailinn að láta þær aftur í hend-
ur einstaklinga, sem oft flægju at-
vinnuleitendur án þess að útvega
þeim vinnu. — Mr- Esplen frá
Dauphin kvað menn í því hér^ði,
vera ánægða m|eð fyrirkomulagið
— Mr. Tayior spurði hvort leggja
ætti niður niokkrar vistráðninga-
stofur. — f Dauphin og Portage,
svaraði Braoken.
Frá Ottawa er símað þ. 8. þ. m.,
að þangað séu komnir flestir með-
limir sendinefndar þeírrar frá
Manitoba og Saskatchewan, er
eiga að reyna að fá sambands-
stjórnina til þess að hrinda áfram
Hudson Bay járnbrautinni. —
Bracken, Norris og Taylor frá
Manitoba, er búist við að komi til
Ottaw’a í dag.
■Þriðjudaginn í fyrri viku, réðust
ræningjar á bíl Hócheloga bank-
ans, drápu ökumanninn og rændu
$142,000._ Einn af ræningjunum var
drepinn áður en þeir sluppu með
ránsfeng sinn. Haldið or að náðst
hafi í þá flesta.
Önnur lönd.
Frá London er símað 7. apríl, að
MacDonald ráðuneyifeið beið ósiig-
ur í smiámáli, með 221 atkv. mót 212.
M-acDonald er þó ákveðinn f, að
sleppa ekki stjórnartaumunjum
fyr en ihann bíður ósigur á ein-
hve’rju mikilsvarðandi máli, og
blöðin ensku sýnast yfirleitt
styðja hann í því máli.
Fá London er símað þ. 8. þ. m., að
Gen. Smuts hafi slitið þingi í Suð.
ur-Afríku og að sennilegt sé, að
stjómarskifti verði, og að Gen.
Hertzog foringi lýðveldissinna og
ihans flokkur muni krefjast full-
koimins skilnaðar frá Englandi og
réttar til þess að mynda óháð lýð-
veldi. Taiið er víst að sá flokkur
verðl í miklum meirihluta.
Frá Bóm er símað 7. apríl, að
Mussolini og Fasoistar liafi unnið
stórkostlegann kosningasigur og
útlit sé fysir að hann muni eig i
langa þingstjórn fyrir höndum
Um 40% af öllum greiddum al
kvæðum féliu honum í skaut.
Frá Berlín er símað 3. apríl, að
keisarasinnar séu nú í algleymingi
um alt landið. í nálega hverri borg
eru daglega uppþot og mann-
fundir á strætum og gatnamótum,
þar sem allur fjöldinn krefst þess,
að hætt sé við lýðveldisstjórn
Flokkur Stresemanns kanzlars,
%
hefir til dæmis opiniberlega lýst því
yfir, að þeir séu fylgjandi þinÉ-
bundinni konungsstjórn.
skairandi óeigingirni, er Bandaríkja-
stjórnin á stríðsárunum tók hann í
sína þjónustu, og han ákvað sér
aðeins einn dal í árskaup, af því
að hann væri að vinna föðurland-
inu. Hafi nú nefndin rétt fyrir sér
hefir heiðursmanninum tekist að
margfalda þenna dal tufetugu og
fjórum miljónum sinnum. Gott
hver það. getur!
Bandaríkja þingið hefir ákveðið
að verja $10,000,000 til hjálpar börn-
um, sem daglega eru að verða ihung-
urmorða í Þýzkalandi.
Nefnd sú, er sett var til þess að
rannsaka kröfu þá, er Ch. Schwab,
stáikongsins frá Bethlehem, þótí-
ist hafa á hendur siglingaráðii
neyti Bandaríkjanna, eV hann
reiknaði að ríkið skuldaði sér 13.
377.403 dollars, toefir nú komist að
þeirri niðurstöðu, að svo fjarstætt
sé að Schwab eigi nokkuð hjá rík-
inú, að hann hcfir þvert á móti
dregið sér á ólöglegan hátt rúma
$11,000,000, er honum beri nú að skila
afitur. —Schwab þótti sýna framúr-
Frá New York er símað, að I. P-
Morgan hafi nýlega í Nizza í Frakk-
landi í blaðinu Eelaireur, gert þá
furðanlegu yfi?lýsingu, að Frakk-
land væri einmitt nú að sýna öðr-
um þjóðum stórkostlega fagurt
dæmj til eftirbreytni, um hvemig
friðinn eigi að vinna, og að Frakk-
ar miegi jafnan reiða sig á aðstoð
Bandaríkjaima, þair eð allir viti að
þeir séu forkólfar og riddarar allra
frelsishreyfinga. Þessi fjármiálahá-
karlsyfirlýsing hefir vakið al-
menna gremju í Bandaríkjunum,
þar sem menn hafa með mikilli
athygli fylgt öllum athöfnum
Frakka í Ruhrmálinu.
GOÐAFOSS.
er stærsta skip og sterkasta, sem
nú siglir á íslenzkar* hafnir. Auk
þess er það fegurst. iSkipið og
skipstjórinn hafa getið sér mikjð á
ltt innan lans og utan. í hitteð fyrra
braust Goðafoss gegnum þykkan
ís á Kristjaníufirði eða 'óslófirði,
inn á höfn. Um 30 skip lágu föst
í ísnum og sum farlama með
brotnar skrúfur en aðeins 3 kom-
ust álla leið. Vakti þá Goðafoss,
þetta tiitölulega litla skip I hóp
erlendra skipa, mikla eftirtekt
vegna styrkleika síns, orku og á-
gætrar stjórnar- Þegar skipið fór
frá Kaupmannahöfn var Eyrarsund
stappað þykkum ís, því mikil frost
liafa verið í Danmörku. Þar lágu
þá mörg sikip og * komust hvorki
aftur né fram unz ísbrjótur ruddi
þeim leið. Sklp og skipstjóri hafa
og getið sér orð fyrir þrifnað og
regluseiVii enda er skipshöfnin úr-
valsllð og istýrimenn allir röskir
menn, ábyggilegir og kurteisir.
Norðlendingum er d^rmætt, að
hvorutveggja megi treysa skipi og
skipstjóra. Goðafoss annast áhættu-
mestu siglingar við ísland og flytur
oft dýrmæta farma.
U N Ó TT H
Nótt þú átt gott að geta séð
í glitrandi straumsins ósum,
1 döggvotum runna_ af rósum.
Draumlandsins undur máluð með
Mánans og stjörnuljósum. "v
Nótt þú átt gott við græðisdjúp,
Að grúfa þinn hljóða anda i
Við úthafsins yztu granda,
Og hverfa í dimmbláum huliðshjúp
Til himinsilns blíðu landa.
oigiiiniiiiiiwiiiiiiiiiiiiimiii
v o r *:
Kvakar loft og lóur vaka
Lækur þylur sínar bækur
Pjólur gægjast fram mót sólu
Foss þeim heilsar ástarkossi.
Andar blærinn ljúft frá landi
Lundinn skrýða blóm og grundir.
Vakna: máttar vetur saknar
Vorið er í heiminn borið.
Ef þú gætir gefið ljós
Gleði og kæti frá þér,
Blessuð sæta sumarrós ,
Sit þá ætíð hjá már. , <■
; Í
S. E. Björnsson.
* . rd
* *
. \ .
Rvík 8. marz.
Sigurður Eggerz forsætisráíherra segir af sér.
Konungur snýr sér til Jóns Þorlákssonar.
FRÁ ALÞINGI.
Tryggvi Þórhallsson þingmaður
Strandasýslu, vill leggja niður sendi-
herrann í Kaupmannahöfn. Þrír aðr-
ir Framsóknarmenn vilja leggja nið-
ur prófessorsembættið í hagnýtri
sálarfræði og grískudósentsembætt-
ið. '
Þrír þrn. úr Ihaldsflokknum vilja
lækka dagpeninga þingiamnna of-
an í 12 kr-, og fastsetja ferðakoetn
að við 400 kr. hámark og 40 kr. lág-
mark.
Jón Þorláksson flytur frv. um
breytingu og samfærslu háskólans,
þanniig að toann sé framvegis að,eins
3 deildir, guðfræðisdeild, læknadeild
og lagadeild og heimspökisdeild
sameinuð. Nokkrir þingmenn vilja
hækka iaun Sigurðar Ndrdals pró-
fessors um 2—3,000 kr., til þess að
missa hann ekkj frá háskólanum til
Noregs, þar sem bíður hans kenn
araembætti í norrænum fræðum
við Kristjaníuháskóla, með 3000 kr-
hærri launum en hann hefir nú vié
háskóla íslands.
Húshitunin í Reykhúsum. — Á
óðali Hallgríms Kristinssonar býr
ekkja. hans, frú María Jónsdótt-
ir. 1 brekkunni neðan við íbúðar-
toúsið er allstór og heit laug. Frú
María réðist f það á síðastl. hausti,
að láta gera tilraun til að hita upp
húsið með lauginni og tók bygg-
ingafræðingur Sveinbjöm Jónsson
að sér að finna úrlausn málsins og
koma verkinu í framkvæmd. Laug-
in er 10 metrum lægra yfir sjáVar-
flöt en húsið- Nú hefir Sveinbjörn
komið þessu í kring á mjög- frum-
legan og kostnaðarlítinn hátt.
Hann hefir notað vatn, sem leitt
var úr torunni ofan við íbúðarhús-
ið, ofan -í baðhús, <or áður var bygt
hjá lauginni. Vatn þetta leiðir
hann gegnum, mjög langa pfpu,
sem vafin er upp í rnarga hringi og_
látin liggja í þró fyltri laugarvatn-
inu. Á leiðinni gegnum pfpuna
verður vatnið jafnheitt og laugar-
vatnið og kemur inn í íbúðarhúsið
ins á Veðramóti, sem einnig er n-'
dáinn. Björg var áttræð að aldri.
Hún var vinsæl og vel að sér ger.
Hafði óvenjulegan áhuga á því, er
gerðtöt í þjóðfélaginu og fylgdist
vel með í öllurn áhugamálum dótt-
ur sinnar, og var mjög kært með
þeim mæðgum.
Katrín Thoroddsen cand. med.
& chir., hefir fengið veitingu fyrir
Flafeeyjarlæknishéraði- Er hún
fyirsti kvenmiaðurinn', sem verður
konunglegur embættismaður á
landi voru. Hún er dóttir Skúla
heitins Thoroddsen, og útskrif-
aðist af háskólanum sumarið 1921.
Hefir síðan dvalið erlendis á spí-
tölum.
Hinn 27. febr. var Guðm. J. Hlfð-
dal verkfræðingur skipaður síma-
verkfræðingur landsins og forstjóri
bæjarins í BeykjaYík, frá 1- marz
að telja.
Fangahúsið á ísafirði brann, til
kaldra kola 29. febr. Einn maður
brann inni, er hét Björn Kristjáns-
son, 17. ára gamiall.
Vestmannaeyjum 6. marz
Austanhríð og aftakaveður var
hér í gærkvöldi og nótt. Tveir
bátar komu ekki að í gærkvöldi og
fór “Þór” að leita, Fann hann
annan f morgun. Báturinn “Björg"
er talinn af-
í skeyti, sem sent var nokkru
síðar segir, að skipshöfnin af vél-
bátnum “Björg” hafi komist í ensk-
an togara. Báturinn sökk í rúmsjó.
Akureyri 8. marz-
í stórhríðinni í fyrri viku lenti
vestanpósturinn héðan, Guðm.
Ólafsson, í slæimim hrakningum,
svio að við lá, að hann yrði úti.
Hafði hann iagt upp frá Víðimýri
laust eftir hádiegi á fimtudaginn
og skall hríðin yfir, er hann var
kominn upp á Vatnsiskarð- Hrakt-
ist hann brátt af réttri leíð og
gekk svo alla nóttina, að hann
varð ekki var toæja, en síðdegis á
föstudaginn komst hann ioksins að
Skottastöðum í Svartárdal, illa til
55° heitt- Er skemjst af því að segja,
að þannig fæst ágætur hiti í alt
húsið eða al'ls 10 herbergi, og auk
þoss heitt vatn í eidhúsinu til
þvotta of* matreiðslu. Fær frú
María v-el launað áræði sitt og
kostnað endurgreiddan í ágætri
hústoi;tun og þægindum Ibeintt úr
'skautj jarðarinnar. Sveimbjörn er
allmerkiWgur maður, ötull og ó-
sérplæginn; gefinn fyrir að finna
nýjar leiðir til úrlausnar á okkar
mörgu vandkvæðum. Verða þeir
menn aldrei um of viðurkendir.
Hann er uppfyndingamaður r-
steinsins, sem nú er mikið notaður
og nú hefir hann á merkilegan hátt
fundið ráð til þess að nota laugar
til Vatnshitunar, hversu sem að-
-stöðu er háttað. Ættu þeir, sem
búa nærri laugum og hverum, að
nýta hvorttveggja meira en orðið er.
Er örðugt að mefca til fjár þann
spamað og þá heilsuverndun, sem
slíkt veitir í okkar eldsneytis
snauða 'andi
Aðfarsnótt 8. febr. andaðist í
Reykjavík frú Björg Jónsdóttir,
móðir Halldóru Bjamadóttur
kensflukonu,-en systir Björns heit-
reika og kalinn á höndum, fótum
og andíiti. Póstflutningurinn var
allur í góðu iagi, en einn hesturinn
hafði orðið viðskila við lestina í
hrfðinni og kom hann til haka að
Víðimýri á föstudagsmorguninn.
Eftir að hafa hvflt sig næturlangt
á Skottastöðum, hélt pósturinn of-
ato á Blönduós og komst þangað
síðdegis á sunnudaginn. Fékk liann
þar mann til þess að fara með
póstflutninginn ofan á Blönduós
og komst þangað síðdegis á sunnu-
halda heimleiðis með póstflutning-
daginn. Fókk hann þar mann til
þess að fara með póstflutninginn
vesfeur til Staðar, en varð sjálfur
oftir undir læknishendi. En er
I>ósturinn kom að vestan aftur, var
Guðmlundur búinn að ná sér svo eft-
ir volkið, að hann þóttist fœr að
geta haldið heimleiðis með póst-
inn, og er hann væntanlegur hing-
að á morgun- Hefir Guðmundur
sýnt fádæma dugnað og harðfengi i
ferð þessari, er verðskuldar hina
fylstru viðurkenningu.