Heimskringla - 10.02.1926, Blaðsíða 1
/#
Vel launuð vinna.
Vér viljum fá 10 íslendinga í
hreinlega innanhúss vinnu. Kaup
$25—$50 á viku, í bænum eða i
sveitaþorpum. Enga æfingu, en vilja
•og ástundun að nema rakaraiðn. —
Staða ábyrgst og öll áhöld gefins.
Skrifið eða talið við Hemphill
Barber College, 580 Main St., W in-
nipeg.
Staðafyrir lSislendinga
Vér höfum stöður fyrir nokkra
menn, er nema vilja fara með og
gera við bi!a, batterí o. s. frv. Við-
gangsmesti iðnaður í veröldinni. —
Kaup strax. Bæklingur ókeypis. —
Skrifið eða talið við Hemphill
Tra'de Schools, 580 Main, Street,
Wininpeg.
XL. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN, 10. FEBR., 1926.
NÚMER 19
| C A N
Frá Sambandsþinginu.
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði, biðu conservativar ósigur, með
10 a.tkvíeðum, 1. þ. m., er þeir hugð-
ust að fella stjórnina í Ottawa.
Var og ekki vift öðru að búast.
Fyrst og fremst verður það tæplega
séð, a.ð Meighen sé kænn ‘herforingi,
hvað sem um aðra kosti hans er. A
hinn þóginn mátti ganga að því vísu,
að framsóknarflokkurinn, myfidi ætl-
ast svo til að útséð verði uni efndir
forsætisráðherrans í þeim málum er
framsóknarflokksins voru, áður en
þeir að svo búnu greiddu stjórninni
vantraustsyfirlýsingu, úr þvi þeir
ekki gerðu það þegar er fyrsta árás-
in vann sitt má að fresta þingi um
Meighen. Alveg • sama máli er að
gegna um þingmenn verkamanna, og
Mr. Bourassa, enda- kom þetta á
daginn á föstudaginn var, er stjórn-
in vann sitt mál að fresta þingi um
sex vikur, til ráðurteytis ráðstöfun-
ar, og vann með 8 atkvæða meiri
hluta.
Sýnir það, að framsóknarflokkur-
inn, verkamenn og óháðir ætla sér
að láta. stjórnina sitja, unz greinilega
kemur i 1 jós hverjar efndir þeir
hafa um loforð sín.
Þingmenn verkamanna, Mr.
Woodsworth og Mr. Heáps h.afa lof-
að kjósendum sínum aðgerðum :
málum, sem hásætisræðan fór fram
hjá; t. d. ellistyrk, meðlag með at-
vinnulausum mönnum, endurbætur á
innflytjendaiögunum, hegningarlög-
unum og þegnréttindalögunum. Fer
orð af því, að þeir muni fá töluverðu
framgengt í þeim efnum. Vist er
um það, að forsætisráðherr.ann hef-
ir lofað þeim því, að lög um eili-
styrk skuli lögð fyrir þetta þing.
Nefnd, sem skipuð var síðasta ár tfl
þess að a.thuga hve heppilegt litist
að hreifast til löggjafar um þau
efni, lét það álit í ljósi, að heppilegt
myndi að greiða $20 — á mánuði
hverjum þeim til eHig:yrks, sem
kominn væri yfir sjötugt, og hefði
ekki tekjur af eignum sínum, eða
nyti góðs af neinni eftirlaunastofn-
un. Enn fremur lagði nefndin til
að samhandsstjórn og fylkisstjórnir
skiftu þessum styrk til helminga á
milli sín, en þó fylgdi sá böggull, að
ef ffitthvert eitt fylki neitaði sam-
vinnu í þessu, þá skyldi ekkert úr
verða.
Eftir því sem séð verður nú af
sólarmerkjum, þá mun hið fyrirhug-
aða frumvarp stjórnarrnnar sjá fyr-
ir því álcvæði, að þótt eitthvert fylk-
ið ekki vilji aðhyHast þessa uppá-
stungu, þá skuli það engin áhrif
hafa á ,aðal innihaJd frumvarpsins.
I^efndin, sem fjallaði um þetta i
fyrra, áætlaði að árleg útgjöld i
þenna ellstyrkta.rsjóð myndu nema
$23.000.000 Margir þeir, sem hafa
kynt sér þetta májefnr, eru þó á
þeirri skoðun, að það muni ekki
nema svo miklu. Á F.nglandi hef-
ir reynslan verið sú, að 7—40% af
manneskjum yfir sjötugt Ihafa ekki
komist á styrkþegjatölu þessa sjóðs,
sökum undantekninga þeirra,'
sem getið er um þér að ofan, og
A það álit rnargra, að tala slíkra
manna í Canada myndi verða mikl-
um mun hærri.
Þingmenn verkamanna gerðtt bréf-
lega fyrirspurn til hinna flokksfor-
ingjanna tveggja auk Mr. King, um
þetta og önnur mál. Sagt er að
Mr. Meighen hafi lofað að athuga
þetta með samúð, og Mr. Forke lof-
að ítrasta stuðningi flokks síns til
allra umbóta í þessu máli er þeim
virtust nauðsynlegar.
Ennfremur fóru þingmenn verka-
manna fram á meðlag til atvinnu-
lausra mann?. Sem kunnugt er
‘hefir stjórnin undanfarin ár viljað
ADAi
»-(>'«a»(>'«H»'()'«B»'<>'aa»0'«aB'0«B»(0
líta svo á, sem slíkt væri algerlega
sérmál hvers fylkis, og heyrði undir
löggjöf þeirra. Nú hefir stjórnin
lagt svo eyra við mál verkamanna
þingmannanna, að hún hefir látið í
ljós, að hvenær sem’til alvarlegs at-
vinnuleysis kærni, þá skuli stjórnin
reiðubúin að leggja til sinn skerf
einn þriðja hluta til móts við fylkin
og sveitarfélögin.
Ennfremúr er búist við breytingum
á þeim hluta innflytjendalaganna*
sem ákveður, að hver manneskja,
jafnvel brezk fædd eigi á hættu að
verða send a.ftur til síns fæðingar-
lands, ef brotið hafi á móti vissum
lögum canadiskiytn. Sömuleiðis er
búist við breytingu á þeim hluta
þegnréttindalaganna, sem ákveðiur,
að inna.nríkisráðherrann geti, ef vill,
nurnið úr gildi borgarabréf manna.
Fullyrt er að framsóknarflokkurinn
ætli nú í ár, að hefja á ný orustuna,
sem þeir töpuðu í fyrra, um að fá
kornlögum (Canadian Grain Act)
breytt svo, að hveitisamlagsbændunx
verði auðveldara að koma. frá sér
korni sínu. Baráttan hefir staðið
um það, hvert samlagsbændum skyldi
leyft að senda. hveiti til samlagsins
gegnum hveitilyfta í 'Sveitunum,
þannig að þeim sé ábyrgst vog og
flokkun. Arið Sem leið kom það
á daginn að margir bændur urðu áð
senda hveiti sitt til lyfta, sem sa.m-
lagið átti ekki, og. vildu viðtakend-
ur þá ekki ábyygjast vog né flokkun,
og báru fyrir sig að þeir töpuðu á
þeirri samkepni er ætti sér stað af
hálfu samlagsins. I fyrra. var þó
kornlögunum breytt á þá leið 'að
héraðslyftarnir skyldu ábyrgjast alt
konn sem uin þá færi, hvert sem á-
fangastaðurinn væri miðstöðvarlyft-
.a.r samlagsins eða miðstöðvarlyftar
einsta.kra manna. Öflug sendi-
nefnd frá kornkaupmönnum í W'inni-
peg barðist af alefli á móti þessari
lagabre'ytingu og svo fór, að öld—
ungafáðið ónýtti lagabreytinguna.
tæmdi,* unglingsmaður að sjá, hafði
þá lokið verki sínu í sama bili og
hurfu þeir félagar þá út. Johnson
fónaði lögreglunni samstundis, en
þrír vikadrengir er nærri voru, fóru
í bumátt á eftir þeim langa. leið, en
sáu engan lögregluþjón og engan er
gat eða vildi hjálpa, unz þeir týndu
þeirn norður og austur í bæ. Um
$150 dali sluppu þeir með.
En Johnson lá ekki á liði sínu.
Fyrst gaf hann ágætlega glögga. lýs-
ingu á. ræningjunum, sem voru
grítnulausir, og fór síðan með leyni-.
lögreglumönnum um ýmsar holur
bæjarinS. Og á mánudagskvöldið
rakst hann á aðalbófann inni í litlu
matsöluhúsi á Logan Ave. Var hann
tekinn tafarlaust, og fundust á hon-
um 40 dalir. Heima. hjá honum
fanst skammbyssa og um þrjátiu kúl-
ur. Náungi þessi er skozkur að
ætt. Hann hefir þverneitað að
þessu, en verður vonandi látinn láta
undan. . \
frá Osló 30. f. m. lenti í New York
í gær, og siglir þaðan aftur 18. þ.
m., og frá Halifax þann 20..
Stanton og Nazar, sem dæmdir
voru til dauða fyrir morð, framin á
John Penny og Louis Landy voru
hengdir hér í Winnipeg í gærmorg-
un. • Stanton játaði aldrei á sig
morðið, kvað annan hafa gert það
en að hann hefði verið í húsinu og
vita-g um, er það var framið. Báðir
urðu vel við dauða sínum. — Blaða-
strákar uku dagskaup sitt með því að
auglýsa aftökuna hárri og skærri
röddu, fyrir fróðleiksþyrstum les-
enduni.
Fallið hafði úr nafn séra Ragn-
ars E. Kvarans við ræðuna sem byrj
ar á 2. bls., og flutt var í Sambands-
kirkju sunnudaginn síðasta er hann
var hér.
ímyndunarafl skáldsins fær laus-
an tauminn í hinni stórfenglegu
mynd "The Lost World” sem sýnd
er á Wonderland fyrstu'þrjá dag-
ana i næstu yiku. Sýningarnar eru
dásamlegar bæði frá skáldsins og
myndarans hendi, og”eru sánnarlega
þess virði að sjá þær.
Síðustu þrjá dagana í næstu viku
ieikur Tom Mix í “The Luckv
Horseman” ágætis mynd, eins og
hans eru allar.
Hveitisamlagið.
Hvað hveitisamlagig hefir orkað.
(Ritstjgr: úr North Battleford
, Optimist.)
Þingma.ður Selkirk - kjördæmis,
Marinó ofursti Hannesson, hélt
“jómfrú” ræðu sína í Sambands-
þinginu á fimtudaginn var.^ Talaði
hann á móti sex vikna þingfresting-
unni, sem samþykt var daginn eftir.
Ræðan er skipuleg og gefur sérstak-
lega ’fyrri partur hennar vonir urn
góða þingmælsku, er timar líða.
Tillaga stjórnarinnar, að fresta
þingfundum, til 15. marz þegar lok-
ið væri umræðum um hásætisfæð-
una,’var samþykt með 119 atkvæðum
móti 112. Breytingartillaga. frá
Hon. H. H. Stevens frá Mið-Van-
couver, (cons.) var feld með 120 at-
kvæðum gegn 112. Er nú ekki ta!-
ið liklegt, að conservativar reyni að
tefja mikifi lengur umræður um há-
sætisræðuna.: siái að það muni fyr-
ir gýg. Fregnir brárust þó um að
Sutherland frá South Oxford (conS.)
ætli sér að l»era upp breytingartill.,
ti! vantrausts, við hásætisræðuna, út
af því að Astralíusamnmgurinn sé
skaðlpgur kanadiskum smjörlfúa-
þrifum. —
RAN
A laugardagskvöldið var, um kl.
10 réðust tveir vopnaðir ræningjar.
að Mr. Bergþór E. Johnson, kaup-
manni að Sargent stræti 888, beint
á móti Heimskringlu, og skipuðu
honum að rétta upp hendurnar, með-
an annar tæmdi periingakassann.
Johnson neitaði en hinn ræninginn
þrekinn og veðurbarinn náungi, rak
skammbyssuhlaupið milli rifja hans,
og stjakaði honum þannig aftur í
búðina. Jóhnson hafði þá djörf-
tmg að segja vikadreng sínum, er
var í herbergi þar innar af, að leita
hjálpar. En rætiinginn, er kassann
“Hafið þér tekið eftir hvernig
bóndanum er létt í skapi þessa dag-
ana ? Kannske þag sé af því að
uppskeran var góð. Kannske það sé
af því að hann getur boðið bankan-
um byrgin þegar ag skuldadögunum
kemur.
Og þvi skyldi honum ekki líða. vel.
Hann er meðlimur í einu stærsta
verzlunarfyrirtæki heimsins — Sem
hann og stéttarbræður hans hafa
stofnað, og sem hefir fest svo rætur
ab velgengni ha.ns í framtíðinni er1
trygð. Honum er ekki framar leikið
sem peði á skákborði viðskiftanna 1
Hann hefir lyft sjálfum sér úr lítils-
virðingu, til sjálfstæðrar framleiðslu,
og er einvaldsherra afurða sinna.
Þétta hefir samlagið gert fyrir
bóndann; yeitt starfsútsýni; lyft
vonleysisokinu og gefið í staðinn
léttlyndi og sjálfstraust.
Merkasti viðburðurinn.
(Eftir A. J. M. Poole,
j\4erkasti viðburður ársins er vel-
gengni samlaganna. Osíngjörn,
djörf forysta, hefir ekki mist sjánar
á markinu. Bændur verða að
fylgjast skynsaflega með samlags-
málum. Þá er vissa fyrir öflugri
sparsemdarstjóm, bg aðgæzlu á all-
ar hliðar við hvort nýtt skref. Vel-
ferg allra og starfsþrá til almenn-
ingsheilla, á ag vera oss leiðar-
stjarna.
Verði svo. er það örugg spá, að
•samlagsaðferð vor, mun æ leiða til
batnaðar, og mikilla áhrifa — í átt-
ina að félagsþróun og sameiningu
þjóðar vorrar í eina heijd.
Úr bænam.
Hingaö til borgarinnar komu í gær
Sveinn kaupmaður Thorvaldson frá
Rive'rton, og Ingjaldur Ingjaldsson
frá Arborg, til þess að sitj,a. aðal-
fupd smjörbúafélaganna í Manitoba,
sem fulltrúar frá Riverton og Ar-
borg.
E-s “United States” sem sigldi
Frá íslandi.
'■■tmd. Enskur togari Walboraug,
strandaði 16. des á Mýrlandssandi.
Skipshöfnin. 13 manns, komst af og
hafðist við í tvo sóla-rhringa á sand-
inum, en komst síðan til Víkur.
Kenslubók í íslenzku (nútiðarmál-
inu) er Clarendon Press í Oxfofd
nú að gefa út. ' Höfundurinn er
Islendingur, en hefir notið aðstoðar
próf. W. A. Craigie við verkið.
Bókin mun verða í tveim bindum.
Fornislenzk málfræði eftir Miss
Helen Buckhurst,' sem hér var um
eitt skeið við íslenzkunám, er nýkom-
in út. Utgefendurnir eru Macmill-
an & Co. í London. Sú bók mun
einntg vera samin undir handleiðslu
próf. Craigie og þa.rf þá varla frek-
ari meðmæla. Ekki er hún kom-
in hér í bókaverzlanir enn þá.
Lögrétta mintist lítillega á hina
forníslenzku lesbók eftir próf. Crai-
gie í fyrra vetur áður en prentun
hennar var lokið. Sú bók, fær serfl
vænta inátti hinar beztu viðtökur.
t. d. skrifaði magister Bogi Melsteð
um hana í Berlingske Tidende 25.
júni s. 1. og taldi hana hiklantst hina
beztu íslenzku lesbók sem út hefir
komið. Fleiri hafa tekið í sama
strenginn. i ‘ Titill bókarinnar er
Easy Readings in Old Icelandic og
útgefandinn er I. B. Hutchen, 22
Eildon Street, Edinborg. Bókin ntun
nú þegar vera notuð eitthvað lítils-
háttar í íslenzkum skólum.
Snjóflóð féll fyrir skömmu á bæ-
inn Sviðning í Kolbeinsdal í Skaga-
firði og varð tveimur mönnum að
bana: Sölva Kjartanssyni og bónda
á Sviðningi og barni hans, en kona
Sölva náðist úr fönninni eftir sólar-
hrng, mikið meidd, en þó lifandi.
Gömul kona náðist úr flóðinu
skömmu eftir að það, féll. Kotu;
það yfir bæinn að næturla'gi, kl. ná-
lægt 4, í blindhríð. Var tvíbýli á
Sviðningi og stóð annar bærinn eft-
ir, og bóndinn þar, Anton Gunn-
laugsson, bjargaði gömlu konunni,
en f.a.nn ekki konu Sölva fyr en sól-
arhringi síðar.
Hannes Þorsteinsson þjóðskjala-
vörður var á fundi heimsspekis-
deildar Háskólans 19. f. m. kosinn
heiðursdoktor í heimsspeki fyrir rit
sín og rannsóknir á íslenzkri sögu,
ættvísi og mannfræði.
Dagblaðið “Visir” hefir stækkað
allrniki|> nú um áramótin og farið. í
sama brot og Morgunbl. Hann er
nú 15 ára, er elzta dagblaðið Tiér á
landi og hefir jafnan haft mikla út-
breiðslu í Reykjavík. Stofnandi
hans var Einar heitinn Gunnarpson
ög einnig ritstjóri hans nokkur
fyrstu árin.
>SOOS<SCCCOOðOSOeC<Se09GOSCCOSOCCOCOC>SOSOOeOðCOQCOSOSOOQ
> I
Jóhann Yigfússon.
í kyrðum vex liljan, sem kætir á grund
og kærleikans blómstur í göfugri lund;
en heimsbörnin tíðum svo glapsýn því gleyma,
um glaumlífsins tómleik er sælla að dreyma.
Því hátt er ei látið, né hrópað um það,
ei hærra en falli í skóginum blað,
þó skarð sé í hópnum, sem veginn þann velur,
að vinna í kyrþey og sporin ei telur.
Með hávaða mönnum ei hlutskifti hlauzt,
§em hrópa um störf sín og lofa við raust;
þó auglýsist jafnan er æfinni lýkur,
að orðunum tómum var maðurinn ríkur.*
Með hinum frá árdegi lagðir þú leið,
sem láta ei mikið, en þreyta sitt skeið,
og valdir þér frændi, þann veginn, sem liggur
til vegpemdar meiri en lýðurinn hyggur.
Þú hvarfst ei frá marki, sem hafðir þér sett
ef hjartað þér sagði, að gott væri og rétt.
I íslenzkri fortíð það æðsti var hróður.
sem ómar þér látpum: Hann drengur var góður.
Richard Beck.
ekki, en annars^ eru ekki komnar
nánar fregnir um slysiö.
Nýdáin er frú Kristín E. Sveins-
dóttir í Stykkishólmi, kona Tómasar
Möller póstafgréiðslumanns, 46 ára
gömul.
t
2. þ. pi. andaöist á Húsavík Ás-
geir Blöndal læknir, fæddur 10. febr.
1858, merkur maöur og vel metinn,
elzti sonitr Lárusar Blöndal amt-
manns.
3. þ. m. andaöist frú Elisabeth
Bjerring ekkja Hinriks Bjerring
vejj£lunarstjóra í Borgarnesi, en
dóttir H. A. Linnets fyfrum kaup-
mnans í HafnarfirSi.
“Alþýðublaöiö” hefur fyrir
skömntu fengið nýja prentsmiöju. j
með setjarjivél, og er nú eina blaöið i
hér á l.andi,-sem prentað er í eigin;
prentsmíðju. Alþýðuflokkurinn
hefir kornið henni upp með alntenn-
um samskotum og hefir reist handa
henni hús til bráðabirgða á nokkr-
um hluta af lóð þeirri við Hverfis-
götu, sem hið fyrirhugaða samkomu-
hús Alþýðuflokksins á aö reisast á.
Saga islcnskra stúdenta í Kh'ófn
heitir bólý. eftir dr. Jón Helgason
btskup, sem nú ér að koma. út á
donsku í Khöfn að tilhlutun Dansk-
íslenzka félagsins.
Rétt fyrir’ iólin brann til kaldra
kola verzlunarhús Jóns Guðmunds-
sonar kaupntanns og bónda á Skál-
um á Langanesi. Mannskaði varð
Bækur.
EIMREIÐIN; 4. hefti 31. ár-
gangs e. komið. Stenciur það tæp-
lega jafnfætis fyrri heftunum. Það
. S .9
hefir inni að halda “l 'ertu hjá oss’
ræðuna er Einar H^Kvaran hélt hér
í Sambandskirkjunni í fyrra ;Sálris,
kvæði eftir R. Beck; Þjóðbandalag-
ið, eftir frú Kristínu Matthíasson á
Akureyri; Nýjar uppgötvanir, eftir
ritstjórann; Norrœn sál, eftir Ja.kob
Jólu Smárg.; Helfró, sögu eftir Jón
Jokktra; Asgrlmur málari, nteð 4
myndum, eftír ritstjórann; L'ifið og
heimssmiðin eftir dr. Helga. Péturs;
Arstraumurinn og uppsprettau, eftir
^löfu á Hlöðum; “Við pjóðveg-
innj' eftir Bjarna Jónsson frá Vogi:
Sigurður Guðmundssoti málari, eft-
ir Asmund Jónsson frá Skútustöð-
um; Skáldhvöt, kvæði eftir Sig.
Gttðm, ntálara; Hvað cetli biskup
scgif þýdda sögu eftir Bernardine
King; Laxá við Mývatn, gott kvæði
eftir Axel Guðmundsson, og svo
Ritsjá, eftir ýmsa. —
SKlRNIR 99. hefti hans er ný-
kotnið, ágætlega úr gat'ði gert. Hef-
ir það þessar ritgerðir inni að halda;
Gttðmundur prófessor Magnússon
lceknir, æfiminning eftir prófessor
Sætmund Bjarnhéðinsson; Kirkjutal
Páls ' biskups Jónssonar, eftir Ola.f
prófessor Lárusson; Þróun auð-
magnsins, ágætlega skýr og fróðleg
greinargerg í stuttu máli, eítir Héð-
inn Valdimarsson; Benidikt Jónsson
Gröndal yfirdómari og skáld, hundr-
að ára dánarminning, eftir Hannes
Þorsteinsson; Um rannsóknir á Her-
jólfsncsi, þjóðjegt yfirlit um lík-
fundina á Herjólfsnesi á, Græn-
lnndi eftir Matthias' Þórðarson:
Undir straumlivörf, skáldskapar-
stefna. og verk Einars H. Kvaran
gagnrýnd af Sigurði prófessor Nor-
dal;Eðlisfar Islcndinga, hin ágæta
ritgerð dr. Guömundar Finnboga-
sonar; Utn nokkrar vísur Egils
Skallagrimssonar, eftir sama; Adam
og Eva rcktn úr. Paradis, eftlr séra
Gunnar Benediktsson :■ Uppreisn
Austurlandaþjóða, eftir Hjallgrím
Hallgrímsson sagnfræðing; Nols-
eyjar-Páll, æfisaga og þjóðernisbar-
áttu þessarar þjóðhetju Færeyinga,
prýðilega samin af ritstj. Arna
Pálssyni sagníræðing; Ritfrcgnir
eftir ýtusa.
IÐUNN 3. og ,4. hefti 9. árgangs
eru nýkomin. En efni þeirra er
þetta: Þjóðarfrœgð; ágæt ritgerð
eftir Guðntund Finnbogason; Sjá-
orustan við Jótland, einkar skemti-
leg og glögg lýsing á sjóorustunni
miklu milli Breta og jÞjóöverj'a;
eftir Þorstein Jónsson bróðir ritstj.
Skvrtusöngurinn, góð þvðing á hinu
fræga kvæði Thomasar Hood, eftir
Sigurjón Jónsson: Landið kallar,
afbragðs hugvekj.a. eftir Agúst pró-
fessor Bjarnason. Sú nótt hún
er löngu liðin. kvæði; Vordýrð,
kvæði. Grímur fjósamaður, saga
eftir Soffíu Ingvarsdóttur; Ehta
óðal á Islaudi. lýsing á Skarði á
Skarðströnd. eftir öla f prófessor
Lárusson; Krishtr cða Þór, eftir
I Einar H. Kvaran, svar til Sig. Nor-
dal: Tvö kvæði. eftir Böðvar Guð-
jónssfm: Brot úr ferðasögu, frá
Vesturheimsför ungfrú Ingu L. Lár-
usdóttur; Mcra Grímur, saga eftir
Einar Þorþelsson skrifstofustjóra;
Jólasveinninn. saga eítir Jakob
Jónsson; Ritsjá, eftir ritstjóranri.
Ennfrenntr hefir Heimskringlu bor-
ist Almanak Olafs S. Thorgeirsson
og Nýi Sáttmáli, stórmerkileg bók
eftir Sigurð Þórðarson, fvrrum
sýslumann i Arnarholti. Verður
þeirra beggja minst siðar, og éf til
vi-11 drepið á fleira.