Heimskringla - 10.11.1926, Síða 1

Heimskringla - 10.11.1926, Síða 1
XLI. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MAN, MIÐVIKUDAGINN, 10. NÓVEMBER 1926. NÚMER6 Erlendar Bandaríkin. Þar fóru frarn kosningar til old- ungaráðsins 2. nóvember, í 33 ríkj- um; skyldu 34 kosnir. Svo fór aö kosningarnar eru bersýnilegur sigur fyrir Demókrata, sem unnu 9 sæti. Þykir Demókrötum sem þar Iýsi sér vel hin sívaxandi óánægja yfin, “meS almensku’’ Coolidge forseta, sem er aö veröa fræg um allan heim, fyrir þrákelkna viðspyrnu viö allri fram- sókn, og fyrir að halda hlífiskildi yfir hverjum stórbófa,. sem stolið hefir af almenningsfé og mútað sig áfram. — Eini maðurinn, sem Cool- idge sjálfur lagði liðsyrði i 'kosn- ingunum, Butler öldungaráðsmaður frá Massachussetts, beið þar stór- kostlegan ósigur fyrir David I. Walsh. — Þá var og A1 Smith ríkis- stjóri í New York endurkosinn, með stórkostlegum meirihluta atkvæða (um miljón). Er nú svo komið í öldungaráðinu, að helzt er búist við að “uppreistar- Repúblíkarnir" úr vesturríkjunum. sem kallaðir eru, muni hafa töglin og hagldirnar. Sérstaklega ef svo fer, sem Demokratar fulyrða, að Frar^k L. Smith frá Iillinois, og William S. Vare frá Pennsylvania, fái aldrei að setjast í öldungaráðið, sökum stórkostlegra mútugjafa, er báðir urðu vísir að ekki alls fyrir löngu. Enn er ekki frétt með vissu frá Marylánd, Missouri, Oregon, Indiana og Colorado. Ef Demó- kratar vinna í fjórum ríkjum af þess um fimm, þá hafa þeir einfaldan meirihluta í öldungaráðinu á næsta þingi. Italía. Mussolini alræðismanni hefir verið sýnt eitt banatilræðið enn. Ung- lingspiltur, 15—18 ára að aldri, skaut á hann með sxammbyssu þar sem hann sat í bíl sínum. Hítti skotið hann í síðuna eða brjóstið, en gerði honum ekki annað mein en að rífa klæði hans. Er það þakkað leðurskyrtu, er hann gangi með innan yfirklæða. En sennilegra mun vera að hann sé í panzara. Múgurinn er nærstaddur var, drap piltinn á augabragði, og limlesti hann svo að hann var vart þekkjanlegur. — Varð þetta upphafið að hinum mesta gauraagngi um all Italíu. Ærðust Fscistar hvarvetna, og réðust á alla er á vegi þeirra urðu, sem þeim fanst eigi láta nægilega í ljós hollustu sína við Mussolini. Berast óljósar fregn- ir frá Italíu, því að þar er ritvarzla og símvarzla, svo að ekkert sleppur í gegn, er yfirvöldunum ekki þókn- ast. En svo mikið er víst, að tugir, ef ekki hundruð manna hafa verið myrtir víðsvegar um landið, er of- stopamönnunum hafa grunsamlegir þótt. — Ventimiglia er lítijl bær ít- alskur rétt við landamæri Ftalíu og Frakklands. Þar var alt i sjóðandi uppnámi og Fascistar gengu grenj- andi um borgina og bitu i skjaldar- rendur. Allmargir franskir verka- menn eru í þessum bæ. Nokkrir þeirra sátu að hádegisverði á fyrsta lofti í veitingahúsi einu, er ólætin stóðu sem hæst. Gengu nokkrir þeirra út að glugganum að horfa á Fascistana, er gengu þar með fá/i~ ann á lofti. Sá þá einhver Fascist- anan að Frakkarnir voru með húfurn ar á höfðinu. Grenjaði hann þá að þetta væri bein óvirðing við ítalska fánann og hét á rnenn að taka Frakk ana í karphúsið. Lét skrillinn ekki segja sér það tvisvar, heldur óð inn til Frakkanan og barði þá til óbóta. En við það komst múgurinn í enn meiri vígamóð,. og með því að Fasc- istar hafa fullyrt að flestar árásir á Mussolini séu ráðgerðar á Frakk fréttir. landi, þá sýndist þeim nú maklegast að ráðast á konsúlshúsið franska. Gerðu þeir það, brutu alt og bröml- uðu, börðu starfsmenn og drógu niður franska fánann og tróðu hon- um í leirinn. Franska stjórnin brást við hið versta, sem vonlegt var, og krafðist fyrirgefningarbónar. Lét Mussolini ekki á henni standa, og það því held ur, sem málstaður italskra Fascista stendur ærið höllum fæti í Frakk- landi. Hefir leynilögreglan franska komist á snoðir um, að Riccio Gari- baldi höfuðsmaður, sé forgöngu- maður að stórkostlegum leynisamtök- um, er hafi að markmiði, að svíkja Itali, búsetta í Frakklandi, í hendur ítölsku stjórnarinnar, ef hún telur þá mótstöðumenn Fascismans og Mussolinis, og þess vegna nauðsyn- legt að koma þeim fyrir kattarnef. — Er nú búið að taka Garibaldi fastan og bíður hann yfirheyrslu og dóms í Paris. --------X--------- Frá íslandi. Kvikmynd eftir Guðmund Kamb- an. — Kvikmynd Guðmundar Kamb- an, “Det Sovende Hus’’, er nú verið að sýna í Kaupmannahöfn og fær hún góða dóma í blöðunum. Rvík 13. okt. Mannfjöldi á Islandi í árslok 1925 — Samkvæmt siðasta manntali í Reykjavík og manntali prestanna ut- an Reykjavíkur, hefir mannfjöldi á Islandi um síðustu áramót verið 99,863. Þar af voru í kaupstöðum (7) samtals 35,640, en í sveitum, sjávarþorpum ag kouptúnum 64,223. — I árslok 1924 var mannfjöldinn talinn 98,370. — Eftir þessum tölum að dæma hefir fólkinu í landinu fjölgað um utn 1493 manns eða um 1,5% síðastliðið ár og er það óvenju- lega mikil fjölgun. Mismunurinn á tölu fæddra og dáinna árið 1925 mun hafa verið um 1330. Eftir þvi hefðu um 160 manns átt að bætast við mannfjöldann við innflutning síð- astliðið ár. * En næsta ár á undan var mannfjölgunin aftur á móti ó- venjulega lítil, mikht minni heldur en mismunurinn á tölu fæddra og dáinna. Þó má vera að fólksfram- talið hafi verið eitthvað lakara þá, heldur en um síðastliðin áramót. — Annars sést það á aðalmanntölunum 10. hvert ár, að ársmanntölin eru aldrei fyllilega nákvænt, og að æfin- lega vantar í þau allmarga menn, siðustu árin líklega um 600—700 nranns. I rauninni mun þvi tala landsmanna hafa verið búin að ná 100 þúsunduum fyrir siðastliðin ára- mót. Sanrkvæmt manntalsskýrslunum hef ir fólkinu í kaupstöðunum fjölgað rúmlega um 2000 manns siðastliðið ár (þar af í Reykjavík um 1365), en í sýslunum hefir fækkað um rúmlega 500 rnanns. — Gengur þetta í sörnu átt og undanfarin ár, nema hvað fjölgunin í kaupstöðunum hefir ver- ið miklu meiri þetta ár heldur en undanfarið (6%, en 2,8% árið 1924, og 4,3% árið 1923). — I sýslununr hefir fækkunin einnig orðið miklu mfeiri heldur en undanfarin ár.” (Úr Hagtíðindum.) Rvik 14. okt. Bruni á Hólum. — í nótt brann gamla skólahúsið á Hólum í Hjalta- dal, tvílyft timburhús, stórt, orðið nokkuð gamalt. Xar voru svefnstof- ur skólasveina og íbúðir (þriglgja kennara bg ráðsmanns. Veður var kyrt og gott og tókst að verja önnur staðarhús. Fólk bjargaðist, en einu maður meiddist lítilsháttar. Litlu var bjargað af neðstu hæð, en engu teljandi af lofti. Brunnu rúm og rúmföt sem skólinn átti. Skólasvein ar munu hafa orðið fyrir talsverðu tjóni. Okunnugt er um upptök elds- ins. Húsið var vátrygt fyrir 60— 70 þúsundum króna. Seyðisfirði 14. okt. Jón Kristjánsson frá Skálanesi andaðist í nótt. Veðrátta er vetrarleg. Hefir snjó að hér í fjöll síðan um helgi. Sildarvart hefir hér þar til urn helgina síðustu, en ekki á suðurfjörð ununt. Þorskveiði er nokkur á Aust- fjörðum, þegar gæftir eru. Slátrun er lokið að mestu. Mun mega teljast í meðallagi eða svipuð og í fyrra. Rvík 14. okt. Islenzkir söngvarar. — Eggert Stefánsson hefir nýlega sungið (í Berlín) íslenzk lög á plötur fyrir “Polyphon” og “Skandinavisk Gram mofon”, sama félagið, sem áður hef- ir fengið Einar Markan til að syngja á plötur. I fyrra söng Sigurður Skagfeldt fyrir “Polyphon”, og eru þá, að Pétri Jónssyni meðtöldum, er fyrstur söng á plötur, fjórir ágætir íslenzkir söngmenn komnir á grammó fón-plötur. Allar nýrri plöturnar eru teknar með rafmagnsaðferðinni (ra- dio-mikrofon) eins og yfirleitt allar plötur, sem teknar eru nú. x. Rvik 16. okt. Bruni. — Um kl. 3 í nótt varð vart við eld í pakkhúsum Jóh. Olafssonar & Co. Þau eru tvö og standa milli Laugavegs og Hverfisgcftu, vestan við Traðarkotssund. Trégrind er í báðum húsunum, annað er járnvarið, en á hinu útveggir úr steini. Uti fyr ir húsunum voru kassar og eitthvað af viðarull. Þar mun hafa í, en eldurinn síðan læst sig í húsin. Slökkviliðinu tókst að drepa eldinn áður en húsin féllu, en alt, sem þar var inni, skemdist eða ónýttist, og er tjónið mikið, því að bæði húsin voru full af alslkonar varningi. — Hús og varningur var vátrygt. — Telja má víst, að kviknað hafi í af vangá einhverra manna, sem hafi komið að húsunum í nótt. Rvík 5. okt. Háskólinu. — Innritun nýrra há- skólaborgara fór frarn 2. þ. m. — -----Mintist rektorinn í ræðu sinni Bjarna Jónssonar frá Vogi og starfs hans fyrir mál háskólans, og bauð velkominn nýjan kennara, Niels Dun- gal dócent innan læknadeildarinnar, og Svía einn, sem hér verður um stund og flytur fyrirlestra um sænsk ar bókmentir Flestir nýju stúdent- arnir lesa læknisfræði, ýrnsir lög- fræði, en guðfræði líklega fáir eða engir. Rvik 18 okt. Steingrímur Jónatanisson, 'fyrrum bóndi, andaðist á sjúkrahúsinu á Blönduósi laugardaginn 16. þ. m., eftir langa vanheilsu. Hann var tæpra 73 ára að aldri, fæddur 24. febrúar 1854. Vestmannaeyjum 16. okt. Byrjað er á lagningu vegar úr kaupstaðnum suður í Stórhöfða. — Ríkissjóður leggur 15 þús. kr. til vegarlagningarinnar 'Jtetta ár. KoÍM^ysið horfir til vandræða fyrir bæj^búa. Eina vonin að Rvík eða hinir k^upstaðirnir geti miðiað Vestmannaeyju'm kolum. Heilsufar gott í Eyjum. Isafirði 16. okt. Þingmaður Norður-Isfirðinga hélt þjóðmálafund í Bolungarvík í fyrra- dag. Gerðu fundarmenn eindregið góðan róm að máli hans. A fund- inum voru samþykt mótmæli gegn út- gerðarleyfi Færeyinga til Itala. Taugaveiki er enn komin upp hér. Hafa tveir menn veikst nýlega og grunur um að fleiri séu sýktir. Smokkveiði er talsverð í djúpinu og þorskafli ágætur er gefur á sjó. Kjötverð kr. 1.10—1.20 kg. Unglingaskólinn hér var settur í gær og eru báðar deildir í honum fullskipaðar og aðsókn rneiri að skólanum en hægt er að sinna. Vestmananeyjum 18. okt. ....Þór tekur botnvörpunga í land- helgi■ — Þór tók tvo botvörpunga að veiðum í landhelgi og hafði með sér hingað. Annar er belgiskur, frá Os- tende, og heitir Oscar Hillegaardt, en hinn er þýzkur frá Bremerhaven, og heitir ‘Violette. Báðir fengu 12.500 kr. sekt og alt upptækt. Isafirði 19. okt. Óðinn tekur botnvórpung. — Oð- inn kom hingað í gærkvöldi með ensk an togara, Girard frá Hull, er hann tók við veiðar í landhelgi út af Skaga. Mál hans verður rannsakað í dag. Rvik 19. okt. Frú Elín Briem Jónsson, er sjötug í dag. Hún er ein af þjóðkunnustu merkiskonum landsins og veitti lengi forstöðu kvennaskólanum í Ytri-Ey. — Var orð á því gert hversu rögg- söm hún væri í því starfi og skóla- stjórn hennar öll merkileg. (Vísir.) -----------x---------- Tagore á Ítalíu. I sumar var indverska skáldið Ta- gore boðinn til Rómaborgar af stjórn inni, og tekið forkunnar vel. Eitt af leikritum hans var sýnt þar í einu leikhúsinu, og fyrirlestur flutti hann í háskólanum, að viðstöddu öllu stór- menni úr stétt ítalskra mentamanna, og alstaðar var mikið úr því gert hversu vinveittur Tagore væri fasc- ismanum. En Tagore sjálfur var ekki vel ánægður með þetta og birti seinna grein um fascismann. Kom hún í Corriefe degli ItaliapS, sem er aðalblað þeirra Itala, sem and- vígir eru fascismanum, og er gefið út í París, því heima á Italíu er ekki heimilt að gefa út andstöðublöð gegn stjórninni. — I grein sinni segir Tagore m. a.: “Mér þykir sár ó- virðing að því, að gerð sé tilraun til þess að gera mig að fylgismanni flokks, sem með verkum sínum hefir framkvæmt samfelda röð af sam- vizkulausum glæpum. — Aðferðir og grundvallarkenningiar fascistaJ stefnunnar snerta alt mannkynið. Það er fjarstæða að hugsa sér, að eg geti nokkru sinni stutt stefnu, sem vægð- arlaust bælir niður frelsi manna til þess að láta í ljós skoðanir sínar, já, jafnvel gerir mönnum ómögulegt að hugsa frjálst, stefnu, sem á alla braut sina blóði roðna og fulla af glæpum og lygum.” (Eftir Lögréttu.) -----------x---------- Bj örgvinssj óð urinn. Aður auglýst ...............$2066.34 Jóhannes Baldvinsson, Lang- ruth 10.00 Frá Hensel P. O.: H. Thorlakson 1.00 F. Erlendsson 1.00 Sigurgeir Stefánsson .... 0.50 Steffán Scheving 0.25 Helgi Johnson 0.50 Tryggvi Johnson 0.25 Jóh. Sæmundsson 1.00 H. Anderson 0.50 Elías Stefánsson 1.00 Th. Thorlakson 0.50 S. Th. Björnsson 1.00 T. Anderson .. 0.50 Wnt. Bernhoft 0.50 Fred Johnson 1.00 B. Austfjörð 1.00 J. Nortnan 0.25 J. J. Magnússon .... ... 1.00 J. J. Erlendsson 1.00 Frá Akra: Paul Nelson 0.50 H. Nelson 0.10 John Hannesson .... ... ...... 1.00 Wm. Pleasance ... 1.00 ’B. Thorvardson 0.50 G. Thorlakson 2.00 Frá Svold: K. G. Johnson 2.00 S. V. Johnson 2.00 Guðný G. Johnson 2.00 Ásbjörn Sturlaugsson 1.00 J. Jóhannesson," Hallson .. 0.50 B. Thorvaldson Cavalier .. 0.25 John Björnsson, pósthús ó- þekt 0.50 $2102.44 T• E. Thorsteinson. Avarp td gjaldcnda í Bifröstsveit. Um nokkur undanfarin ár hefir hagur þessarar sveitar verið slæm- ur, og virðist fara versnandi — skatt ar háir, innheimta á þeim léleg og því erfitt að mæta útgjöldum til skóla o. s. frv., þrátt fyrir það þótt fleiri þúsundir spöruðust sveitinni, þegar skólarnir gáfu það eftir að stytta kenslutimann um tvo mánuði á ári. Sú hugsun hefir verið að grafa um sig hjá fjölda af gjaldendum, að vandræði þessi væru að sumu og jafnvel að allmiklu leyti sveitar- stjórninni að kenna. Var eg frum- kvöðull að því, ásamt nokkrum öðr- um gjaldendum, að kalla til almenns fundar hér í Arborg síðastl. júní, til að ræða um ástand sveitarinnar, og heppilega úrlausn þeirra mála. Aður hafði eg kynt mér nokkuð þessi mál. og mætt á fundi bæði í Framnes- ög Víðirbygðum, samkvæmt ósk þeirra, til að ræða þau. A Arborgarfundin- um mættu á þriðja hundrað manns víðsvegar úr sveitinni. Var þar sam- þykt tillaga að biðja sveitamálaráð- gjafa fylkisins (Municipal Commis- signer) að rannsaka ítarlega alt á- stand bg fjárhag sveitarinnar, og níu manna nefnd — 4 Rútheniutnenu og 5 Islendingar — kosin til að fylgja þessu fram. Tók nefndin þegar til starfa og samdi skýrslu (brief) þar sem ástandinu er lýst, kærur bornar á sveitarstjórnina, og að endingu nokkrar bendingar gerðar til að kippa þessu í lag. Að þessar kærur hafi við nokkuð að styðjast, mun flestum, ekki síður en okkur nefndarmönnum, finnast, þegar tillit er tekið til þess að sveitarskrifarinn I. Ingaldson, sem er einn af nefndar- mönnum, skrifaði ttndir þær, og hefir hann verið skrifari þessarar sveitar síðastliðin tiu ár, ,og því eðlilega allra manna kunnugasíur sveitar- málum. Nokkru seinna var skjal þetta af- hent “Municipal Commissioner” og lofaði hann að lita inn t þessi mál. A sarna tíma var honum afhent bæna skrá, sem bað einnig um rannsókn og ennfremur að fylkið tæki yfir sveitina, og sem upptök sín átti hjá Rútheníumönnum, og var undirrituð af yfir fimm hundruð búsettum gjald endurn, bæði Islendingum og Rúth- eníumönnum. Þar sem nú nefndin hefir ekki fengið nægilega rannsókn á þeim kærurn, sem hún bar fram, og þar sem hún álítur nauðsynlegt að halda þessu máli til streitu, hefir hún, eftir að hafa leitað álits hjá mönnum viðs vegar um sveitina, beðið mig að sækja sem oddviti við í hönd farandi sveitarkosningar, og hefi eg látið til leiðast að lofa því. Aherzluat- riðið frá minni hálfu verður því, að fá 'itarlega rannsókn af fylkisstjórn inni, samkvæmt kærum þeim, sem nefndin lagði fram. Ennfremur held eg mér við tillögur þær, sem hún gerði, og sem hljóða þannig: 1. Að öll útgjöld sveitarinnar séu minkuð að mun, og skattar þar rheð lækkaðir alt hvað unt er. 2. Að skattar séu innheimtir ajla tíma með látlausum dugnaði og óhlut drægni. 3. Að ný og sanngjörn virð;ng, gerð af einum færum manni, fari fram eins fljótt og hægt er. 4. Að engin skifting á sveitinni eigi sér stað eins og stendur. 5. Og til þess að korna þessum breytingum í framkvæmd, þegar teka ar eru til greina hinar margvíslegu og erfiðu kringumstæður hér, álítum við að umboðsmaður (adminstrator; með stjórnina að baki, hafi betra tækifæri en sveitatráð að laga og bæta ástand sveitarinnar. Fyrir utan það, hvað Rútheníu- menn eru yfirleitt á móti sveitar- ráðinu, og sem það að sumu leyti er eflaust valdandi að, hallaðist eg að þessari niðurstöðu, aðallega sök unt þess, að stjórnin i gegnum “ad- ministrator", hefir að öllu leyti betri aðstöðu en sveitarstjórn, til þess r.ð taktuarka 'kenslutímabil , i skólunum eftir þvi hvað innkallast af sköttum í hinum ýmsu héruðum. Og einnig og sér í lagi hefir stjóru in ntiklu betra tækifæri að innkalla skattana, en innheimtan hefir verið, er og verður okkar erfiðasta viðfangs efni. Og sé það rekið, eins og nú- verandi kringumstæður óhjákvíæniiú lega krefjast, af látlausum dugnaði og óhlutdrægni, er ólíklegt að það afl? neinum oddvita eða ráði vin- sælda eða fylgis, fremur það gagtt- stæða, og í því liggur hættan. Væri af alvöru og einlægni utmið í sveita- jnálum, og meiri hluti gjaldenda léti sig þau ntiklu varða lengur en rétt í svipinn, má vel vera að það hepnað ist að kippa þeim í lag með sveitar- stjórn, en þó aðeins, að eg hygg, með því móti að bærileg samvinna náist milli þjóðflokkanna '— sem nú virð ist vanta — og að fylkið styðji sveit- ina meira en að undanförnu, — með frekari tillögur til skólanna, sérstak lega þeirra, sem verst eru staddir, og til vegagerða. Að þessu hvoru- tveggja mun eg vinna af fremsta ntegni, nái eg kosningu. Að endingu langar mig til að draga athygli ykkar að nokkrum atriðum í sambandi við ráðsmenskuna og fjár- haginn. Með skuldabréfum skólahéraðanna munu skuldir sveitarinnar nema fylli lega kvart miljón dollara. $60,000 hafa verið strikaðir út af sköttum síðastliðin fjögur ár, og af því hefði rnátt ná 30% að áliti skrifara. Yfir- skoðunarmaður leggur áherzlu á það í siðustu ársskýrslu sinni, að slikt sé ekki leyfilegt nema með sam- þykki sveitamálaráðgjafans. $26,000 hafa verið teknir til láns til góðra vega (good ' roads), áh samþykkis gjaldenda, sem þó eiga æfinlega að greiða atkvæði um slíkar lántökur. Má óhætt álita, að sveitin hafi ver- ið urn $30,000 á eftir um síðustu ára- mót, þótt gengið sé út frá því að 75% af útistandandi sköttum géu innkallanlegir, sem mjög er vafasamt. Qg nú hefir sveitin beðið skólahéruð in að strika út um $17,000 af þvi sem hún skuldar þeim, til að rétta reikninga. Eg vona að eg fái tækifæri til að ræða þessi mál við gagnsækjanda, hver sem hann kann að verða, á sameiginlegum fundum víðsvegar um sveitina, frá 16. til 25. þ. m. Verða auglýsingar urn fundina sendar út til hinna ýmsu pósthúsa nú þegar. Með ósk urn fylgi og áhrif allra þeirra, sem eru ekki ánægðir tneð ásigkomulagið eins og það er, er eg Ykkar einlægur, Bjórn I. Sigvcddason. Arborg 4. bóv. 1926. Heimskringlu er mál þetta alger- lega ókunnugt, en. veitir þvi fúslega viðtöku, eins og líka þeim, er kynntt að. vera á annari skoðun en Mr. Sig- valdason. Er það einmitt ágætt, að tnenn noti blöðin til að ræða kurteis- lega um slíkan ágreining og hér er auðsýnilega á ferðinni, þar sem sveitarskrifarinn hefir ekki séð sér annað fært, en að rita un.dir einskon- ar vantraustsýfirlýsingu, að oss skilst, á sveitarstjórnina, er hann sjálfur situr í. -----------x------------ \

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.