Heimskringla - 26.09.1928, Side 4
4 M’-T ..
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 26. SEPT. 1928
»
^eimskringla
(•to(>»« 1HS«)
KrMnr ■( I hTfrJnm mlUTlkodrgl
EIGENDUR:
VIKING PRESS, LTD.
«K R55 SARGBNT AVE . WINNIPBG
TALSIMIl S6 537
V»r* blaBstna er »3.00 íirgangurlnn borg-
l«t fyrirfram. Allar borganír aendtst
THE VIKING PIiESS LTD.
STGFÚS HALLDGRS trá Hötnum
Rltstjóri.
VtonAnkrKI «11 bluSstnei
THK VIKING PKIÍS8, LAd., Bol Sl«5
IJtanðnkrlft ttl rltatlöranm
BDITOR HBIMSKRINGLA, Boi 3105
WIIVNIPEG, MAN.
“Hetmskrlngla ls publtshed by
Thr Vlklnn I’rena L.td.
and printed by
CJTV PHIIMTING £ PIJBI.ISHHVG C'®.
868-855 Snrtrent A ve., Mlnnlpea, Hao.
Trlephonn .S6 58 T
WINNIPEG 26. SEPT. 1928
frá upphafi til enda þessa sorglega skrípa
leiks, er svo ósamboðin lýðræðismanni og
framsóknarforingja sem mest má verða.
Hann er að undirbúa þenna samn-
ing í vetur, meðan fylkisþing stendur yf-
ir, þrátt fyrir það, að hann með hverri
yfirlýsingunni á fætur annari, fram til
síðasta, styrkir almenning í þeirri trú, að
engin hætta væri hugsanleg á slíkum
samningi. Þingið fær ekkert um þetta
að vita. Honum dettur ekki í hug að
virða fulltrúa almennings þess, jafnvel
ekki fulltrúa Slíns éigin flokks, að því
er séð verður, að ráðgast nokkuð um
þetta við þá.
Og með mússólínsku sjálfræði vinn-
ur hann að því með oddi og egg, frá því
að fylkisþingi er slitið, að þessir samning
ar nái fram að ganga. Hann vill ekki
láta fylkisþing né almenningsatkvæði
hafa hið minnsta úrskurðarvald í þessu
efni.
“Plaudite Amici!”
Þá er tjaldið loksins fallið, og á
enda viðbjóðslegasti pólitízki skrípaleik-
urinn, er lengi hefir verið leikinn hér í
Manitoba. Og um leið og vatnsvirkjun-
arhákarlarnir stinga í vasa sinn virkjun-
arleyfinu fyrir Sjö-systra fossunum, þess-
um gimsteini Manitobafylkis, sem “hæst- !
virtir” hlaupadrengir þeirra hafa undan-
farið verið að kasta á milli sín, framan
í dottandi áhorfendum, þá standa aðal-
trúðarnir, Mr. Stewart og Mrfftracken á
leiksviðsbrúninni og mala ánægjulega til
áhorfenda um leið og þeir drepa titlinga
hvor framan í annan: Plaudite Amici,
comedia finita est! Eða að minsta kosti
er varla hugsanlegt annað en að báðum
hafi dottið í hug, að þessi andlátsorð
Ágústusar keisara ættu betur við leiks-
lokin en nokkur önnur setning.
Já, klappið þið vinir, kómedían er á
enda! Sjö-systra fossarnir komnir í
hít Northwestern Power Company, þ. e.
a. s. Winnipeg Electric Company, þ. e. a.
s. The Power Corporation of Canada,
sem drottinn svo má vita, eins og Winn-
ipeg Tribune kemst að orði, hvaða valdi
lýtur, en sem vér hyggjum að æði miklar
líkur séu til, að sé grein eða sambands-
félag hins blygðunarlausa og alræmda
vatnsvirkjunarhrings í Bandaríkjunum.
Það er erfitt að segja hvað vekur
mesta andúð og andstyggð hjá manni.
þegar litið er yfir allar aðfarirnar; undan-
brögð Stewarts; þrálæti Bl-ackens og
einræði, eða dusilmennska fylkisþing-
manna hans og hirðuleysi kjósenda.
Og þó tekur auðvitað hverjum ær-
legum framsóknarmanni sárast til fram-
komu Mr. Brackens og þingmanna hans,
þegar á allt er litið. Mr. Stewart kom
seinna fram á leiksviðið, og framsóknar-
menn höfðu eðlilega ekki eins mikils af
honum að vænta. Þó virðist óneitan-
lega hart að mega ekki reiða sig meira
á loforð manns í hans stöðu, því loforð
er það engu að síður, þótt bakdyrum sé
á laun haldið opnum svo skjótast megi
um þær undan loforðunum, til að reyna
að skýla nektinni, þegar tími þykir kom-
inn til þess að fella af sér dulartötra
fláttskapar og falshyggju. Og vér þurf
um ekki að orðlengja það nú, sem hér
hefir nýlega verið skýrt frá, að Mr.
Stewart lét sér þannig orð um munn
fara í sumar, og að því er nú sýn-
Jæja; einstaka manni kann þó að
minnsta kosti að hafa fundist þetta djarf-
mannleg tilþrif, þótt ekki séu þau í
samræmi við lýðræðishugsjónir eða
stefnuskrá framsóknarflokksins. En svo
sviftir hann jafnvel vini sína þeirri hugg-
un, að þarna sé þó karlmenni á bak við,
með hinum auðvirðilega skrípaleik sín-
um við Mr. Stewart, frammi fyrir al-
menningi, sem ómögulegt er að skilja á
annan veg en þann, að honum hafi fund-
ist einhver handaþvottur nauðsynlegur.
En karlmenni með góða samvizku finnur
aldrei hjá sér siíka kisuþvottarþörP.
Karimennið finnur það eitt, að hann verð
ur að standa eða falla með tilverknaði
sínum. Hitt ávinnur honum aðeins að-
hlægi og fyrirlitningu.
Ósennilegt er að Mr. Bracken vinni
sér fyrirgefningu nokkurs ærlegs fram-
sóknarmanns með þeirri afsökun, að
hann hafi þó að síðustu ráðgast um þetta
mál við þingmenn sína. Því aumkvunar
verðari skipshöfn er erfitt að hugsa sér
að nokkur fyrirliði hafi nokkru sinni
haft að baki sér. Það er sorglegur
vottur um “framsóknar”andann hér í
Manitoba, að ekki skuli einn einasti
þeirra hafa vogað, að andmæla í nokkru
opinberlega gjörðum leiðtoga síns í
þessu máli frá upphafi til enda. Það
er trú vor, að hefði aðeins einn einbeitt-
ur, framsýnn og hreinskilinn maður í
þeim hóp risið upp opinberlega, þótt ekki
væri nema til þess, að draga í efa henti-
semi samninganna og aðferðarinnar sem
staðfesti þá, þá hefði ekki tálið og ein-
ræðið fengið starfsfrið til þess að ríða
þenna endahnút til handfestu fyrir vatns
virkjunarhákarlana. — Hefði aðeins séra
Albert E. Kristjánsson nú átt sæti á
Manitobaþingi! En hvað á líka að segja
um þá kjósendur, sem ekki hafa vit á öðru
en að láta hann sitja heima er þeir eiga
kost á slíkum starfshæfileikum? Sjálf-
sagt ekki mikið, því slíkri heimsku fyr
irgefst iíklega allt að kalla. Annað mál
er ef til vill hver orð eru heppilegust
til þess að lýsa þeim “lýð”foringjum, er
notuðu sér fáfræðina í kjördæminu tii
þess að stía honum frá kosningu, og
þeim leiðtogum flokksbræðra hans er
með glaðasta geði sátu hjá auðum hönd-
um, af því að þeir þekktu svo á hann, að
hann væri dálítið annað og meira en af-
skíiftaiaust flokkstól, síjankandi hverju
því, er leiðtoganum kynni að detta í hug
að fá framgengt.
* * *
Mr. Bracken og þingmenn hans hafa
með framkomu sinni í þessu máli áreið-
ist á móti betri vitund.
að
menn
anlega tapað trausti hvers ærlegs fram-
trúðu því afdráttarlaust yfirleitt, að Sjö-
sóknarmanns í fylkinu, og veitt banatil-
systra fossarnir væru undanskiidir
í ræði framsóknarhreyfingunni.
Enda
samningunum milli sambands- og fylkis-
stjórnar um afhendingu auðuppsprettna
Manitobafyikis.
bendir ýmislegt til þess að leiðtogunum.
sé hvorutveggja ljóst, hvað sem liðsmönn
unum líður, og sjái sér ekki annan far-
ráðuneyti Mr. Brackens. En aUðvitað
sækir hann sem liberal. Og þá er tví-
flokkaskiftingin gamla og góða aftur á
uppsiglingu.
U. M. F. á auðvitað eftir að láta til
sín heyra. Og fastlega vonum vér, að
bændaflokksmenn sýni þá dáð af sér, er
til kosninga kemur næst, að spýta með
hrolli úr munni sér, sem óþroskuðum
grænjöxlum, eins og vér sögðum um dag-
inn, þessum “fulltrúum” sínum, er svo
herfilega hafa brugðist stefnuskrá og
hugsjónum framsóknarmanna.
En hvað sem um það verður; hvort
sem framsóknarflokkurinn nær sér aftur
fyrir næstu kosningar, eftir þetta tilræði,
svo að hann verði samstöðufær, þá er
það trú vor, að þingsaga Mr. Brackens
og flestra þingmanna hans sé á enda
við næstu kosningar, eins og vér höf-
um áður tekið fram. Því svo hafa þeir
farið að ráði sínu, að jafnvel þótt lirein-
ir framsóknarmenn geti ekki hafist aftur
til valda fyrst um sinn, þá væri þó hrein
og bein sársaukasvíun að sjá konserva-
tíva komast að um tíma, í stað þessara
vesalinga, er nú eiga að heita fulltrúar
vorir á fylkisþinginu.
& «
í sambandi við þessa “guðdómlegu
kómedíu,” má minna á það, að helzta
vopn Mr. Bracken var álit það, sem sér-
fræðingurinn, Dr. T. H. Hogg, samdi
Winnipeg Electric í vil. Hin glæsilega
pólitízka heimskona, Free Press, var ó
spart látin syngja það viðkvæði á stræt-
um og gatnamótum, að hér væri svo sem
ekki hundrað í hættunni, þegar slíkur af-
bragðsmaður, ráðunautur fylkisvirkjunar
innar í Ontario, leggði blessun sína yfir
fyrirtækið. Henni hefir náttúrlega ver-
ið gersamlega ókunnugt um það, bless-
uðu sakleysinu, sem systir hennar “The
Saskatoon Star” Ijóstar nú upp í ein-
feldni sinni, að dr. Hogg er einnig ráðu-
nautur “Calgary Power Company,'’ sem
er ein grein þessa volduga vatnsvirkjunai-
kolkrabba, sem er að bera sig að því að
lykja örmum sínum smámsaman um vatns
orkuverin í Vestur-Canada. Forseti C.
P. R. er Mr. T. W. Killam, (býsna við-
eigaridi nafn) sem líka er formaður Roy-
al Securities Co., fjárgróðastofnunar í
Montreal, sem er einn bakhjall vatns..
virkjunarhringsins.
Það kann enginn tveim herrum að
þjóna svo andstæðum sem opinber virkj-
un og einkavirkjun eru. Þó er “Saska-
toonstjarnan” svo einföid að bera það
á borð fyrir lesendur sína, að einmitt
það, að Dr. Hogg skuli vera starfsmaður
C. P. C., sé frekari sönnun þess, að hann
hafi verið algerlega óvilhallur í álitsgerð
sinni um Sjö-systra fossana! Mikil er
trú þín kona.
Að vísu eru forstjórar auðvalds-
hringanna engir víðsýnir stjórnmála-
menn eða þjóðfélagsfræðingar. Þeir
þurfa ekki á þeim hæfileikum að halda, en
einungis því, að sauðsvartur almúginn
trúi því einlæglega. En þeir þekkja
þess betur allt sitt heimafólk. Þeir vita
nákvæmlega hvar mútunnar er þörf eins
og komið he*fir svo oft og átakanlega í
ljós og nú síðast í rannsókninni á starf-
semi vatnsvirkjunarhringsins í Banda-
ríkjunum. Og það má hver sem vill
trúa því, að Calgary Power Company
greiði fé til þess að hafa í þjónustu
sinni mann, sem það veit ekki með fullri
vissu, að muni heldur styðja þess hag en
keppinauts þess, hins opinbera, í hvert
skifti, sem um það er að velja.
En öll framkoma Mr. Brackens og
þingmanna hans í þessu máli, er þyngri
en tárum taki. Fyrst og fremst hefir
honum ekki tekist að færa nokkra sönn-
un fyrir því, að þessi samningoir við
Winnipeg Electric væri að nokkru leyti
haganlegur fyrir fylkið eða bæinn. En
það skiftir jafnvel minnstu máli. Hann
gat þrátt fyrir það verið sannfærður um
að svo væri, hvort sem það í raun og
veru var svo eða eigi, því sannarlega á
hann jafnt skilið fyrirgefningu og tillits-
semi til þess að honura geti missýnst,
se maðrir menn. En öll aðferð hans
borða mögulegan en að selja allt í hend-
ur fylkisklíku liberalanna, sem hann og
þeir hafa stuðst við í þessu makki. Sí-
fellt heyrast fleiri raddir og háværri um
það, að leiðtogarnir séu að efla til sam-
vinnu við næstu kosningar, í von og trú
um það, að það sé eina ráðið til að halda
sér innanborðs á stjórnarskútunni gegn
réttla tri reiði kjósenda.
Síðasta og ótvíræðasta spáteiknið
er það, að Donald G. McKenzie tollnefnd
armaður sæki um kosningu í Dands-
downe kjördæminu, er Norris, fjarver-
andi leiðtogi fylkisliberala hefir nú sagt
lausu, og með þeim skilningi, að nái hann
kosningu, þá skuli hann öðlast sæti í
Hafði Mr. Bracken í raun og veru
enga hugmynd um það að dr. Hogg þigg-
ur laun af vatnsvirkjunarhringnum, þeg-
ar hann kallaði á þenna alveg sérstak-
lega “óvilhalla” sérfræðing sér til að-
stoðar?
Líklega hefir nú samt enginn þing-
manna hans uppburði til þess að bera
fram þá spurningu opinberlega. En
hversvegna líka að vera fjargviðrast við
leiðtogann út af slíkum smámunum.
Þessi sumarkómedía er á enda hvort sem
er. Höfuðtrúðarnir búnir að hneigja
sig framan í lýðinn. Tjaldið fallið.
Kiappið þið vinir!
Jón og breytiþróunin
“The trouble wíth most folks
isn’t so much their ignorance
as knowin’ so many things
that ain’t so.”—Josh Billings.
“Brej’tiþróunarkenningin o. fl.”
heitir afarlöng ritgerö eftir hra. Jón
Einarsson bónda og fræðiniann í
Foam Lake, sem ‘birtist í tveimur
tölublööum Lögbergs nú nýlega. Eft-
ir allri efnismeðferð og frágangi rit-
gerðarinnar að dæma hefir maðurinn
verig að flýta sér þegar hann samdi
hana, þótt hann raunar afsaki hvað
hún hafi verið lengi i smíðum. O
—jæja, bændur hafa náttúrlega fleira
að gera um haannatímann en að
sitja við að semja vísindalegar (!)
ritgerðir, og er þá sízt furða þótt
einhversstaðar verði fljótaskrift á
verkinu. En Jón bóndi huggar les-
endnr sína með því, að t framtíð-
inni muni hann ef til vill fara nokkr-
um orðum um breytiþróunarkenning-
una, til þess að leiða þá í enn meiri
sannleika, þótt maður eigi erfitt með
að sjá, að þess sé veruleg þörf,
jafn mikill sannleikans ljómi og hef-
ir stafað af ritsmíðum hans nú að
undanförnu. Hann getur þess þó,
að það sem hann skrifar um þetta
mál framvegis muni ekki verða stíl-
að til mín. Fyrir það fyrirheiti er
ég honum Ihjarltanlega þakklátur;
því þótt ég sé ekki bóndi, get ég
ýmislegt þarfara gert með tíma
minn en það, að svara skrifum hans
um þetta mál. En þar sem þó
þessi síðasta ritgerð hans er óneitan-
lega stíluð til mín, finn ég mig
knúðann til að svara henni, þó ekki
væri til annars en að leiðrétta í ein-
hverra augum sumar allra verstu
skekkjurnar. En lítið skemtiverk er
það; því eins og kunningi minn
einn kemst að orði í bréfi til mín
nýlega, er það allt “heldur þversum
og sérstaklega staglkent og leiðin-
legt.”
Þegar ég lít yfir alla dálkana 12
eða 13 í Lögbergi, sem þessi ritsmið
fyllir, dettur mér í hug saga af
presti nokkrum, sem var vanur að
flytja langar ræður. Einn sunnu-
dag spurði hann vin sinn einn, sem
við messu var, hvernig honum hefði
líkað ræðan. Vinurinn svaraði þv’
að hún hefði mátt vera helmingi
styttri. ‘‘Og hvort hefði ég þá átt
að fella framan af henni eða aft-
an ?” spurði prestur. "Það stendur
öldungis á sama hvorum helmingti-
um þér hefðuð sleptj’ svaraði vin-
urinn. Eíklega dettur engum í hug
nema Jóni sjálfum, að það sem hann
skrifar um breytiþróunarkenninguna
sé til nokkurs nýtilegt, nema þess að
vera dálkafyllir í blöð, sem við þess-
konar andans harðmeti vilja taka; og
þau eru áreiðanlega fá, sem ‘betur
fer, af þeim sem á íslenzku máli erit
gefin út. ítaunar hefir hann orð
á því að efnið hjá sér sé í drýgra
lagi, og er sýnilega ekki óánægður
með þessa afurði vitsmuna sinna oig
þekkingar. Væri illa gert að
reyna að raska þeirri trú hans, því
hún er víst hvort sem er eina hugg-
unin, sem hann hefir í þessum erjum,
eins og reyndar mun ekki óvanalegt,
þegar hann leggur út í ritdeilu.
Það sýnir bezt innræti Jóns í
þessari deilu, að hann endurtekur ó~
sannindin, sem ég var áður búinn að
leiðrétta. Hann segir ekki hvaða
dómsorð ég hafi kveðið upp yfir
hiblíunni í formálum fyrir fyrirlestr-
inum, eins og hann kallar það, en
dylgir, eins og er siður slúðurkerl-
inga. Sannleikurinn er sá, að ég
mintist ekki á neitt annað en sköp-
unarsöguna, eins og ég hefi áður
tekið fram, lagði alls engan dóni á
biblíuna. Þetta vita allir, sem á
fyrirlesturinn hlýddu. Eg tek þetta
fram af því að Jón fer þarna með
ósannindi, en alls ekki af því að það í
sjálfu sér skiíti nokkru máli.
Jafn skýr maður og Jón er, ætti
að geta ritað svo að maður sé ekki
i vafa um við hvað hann á; en ég
verð samt að iáta, að ég á stundum
bágt með að skilia hann, t. d. þessa
setningu: “Enn er það einkennilegt
við greinar G. A. sumar, hve erfitt
er að nota þær sem ábyggilega und-
irstöðu viðtekinna vísindalegra sann-
inda.”
Mér hefir aldrei dottið í fiug að
ég gæti lagt undirstöður að vísinda-
legum sannindum. Eg er ekki vís-
indamaður, en undirstöður í þeim
efnum geta engir lagt nema vísinda-
menn. Sízt af öllu dettur mér (
hug að skrifa greinar til þess að
þær notist sem undirstaða undir við-
tekin vísindaleg sannindi; mér skiist
að þess þurfi ekki. Vísindalegu
sannindin eru sjálf undirstöður.
Vilji Jón sjálfur ekki bygigja á þeim
undirstöðum og allar véfengingar
hans á visindalegum niðivrstöðum
benda á að hann vilji það ekki, þá
má hann min vegna byggja á sandi'
hleypidómanna og sjá! fbirgingskap-
arins. Hversu traust það smíðí
verður, er annað mál. Annars er
þessi setning og margar fleiri hjá
honum helber þvættingur, sem engin
jgetur botnað neitt í.
En þá mun vera bezt að komast að
aðalefni ritgerðarinnar, en það er
tilvitnanirnar, sem Jón hefir smalaS
saman og hygst að nota til þess að
gefa breytiþróunarkenningunni það
rothögg sem dugi. Ekki vantar þá3,
að nógu eru þær margar„ En
í fátinu hefir hann gleymt að nefna
bækurnar, sem þær eru teknar úr.
Það er þó ífræðimanna siður að
nefna bókatitla og blaðsíðutal, þegar
þeir vitna til annara rithöfunda.
Eg skal svo sem kannast við að ég
hafi ekki lesið nándar nærri allar
bækur, sem 'um breytiþrpunarkenn-
inguna hafa verið ritaðar. Það
væri sjálfsagt nóg meðalmannsverk,
þótt hann gerði ekkert annað. En
ég hefi nokkuð um það lesið, og
mestallt isíðan ég útskrifaðjst / úr
skóla, þótt Jón dylgi með að ég muni
ekki hafa gert það. Vitanlega get-
ur hann ekkert um það vitað; og>
ef að hann veit um einhver ný sann-
indi í þessum efnum, sem mér eru
ókunn, væri nógu fróðlegt að fá að
vita hver þau eru. Eftir því að
dæma, sem hann skrifar, hefir sitt
af hverju farið fram hjá honum,
sem er á vitorði þó nokkurra 'rriæoi-
manna.
Fyrsti höf., sem Jón nefnir, er
Alexander nokkur Winchell. Eg
hef ekki verið svo heppinn að heyra
hans getið fyr. Það getur verið
að hann sé frægur vísindamaður; en
þótt hann sé heiðursdoktor í löffutn
og hafi verið Chancellor við syra-
cuse háskólann, sem er kirkjustofn-
un, þá er ég engan veginn saririfærður
um að hann sé sérstaklega fróður um
breytiþróunarkenninguna, og þaðan
af síður er ég sannfærður um að
hann skrifi um hana hlutdrægnis-
laust.
Það er vist skaði hvað fáir eiga
Harmsworth’s Encyclopaedia og My-
er’s Fremmedordbog. Eg er nú
samt i dálitlum vafa um að þær bæk-
ur séu stórum betri en t. d. Brittan-
ica og Webster eða þá Chamber’s og
Standard. En Jóni finnast þessar
bækur nauðsynlegar vegna málfræð-
islegu þýðingarinnar, sem er ekkí
það sama og einhver önnur þýðing.
Eg verð að segja, að þegar ég hafði
lesið þennan kafla, var mér “sítúa-
sjónin næsta óljós.”
En nú kemur Jón að stærri spá-
mönnunum og er ekki feiminn að fara
með orð þeirra. Eftir J. A. Thom-
son hefir hann þessi orð: “Fjálg-
leysið og undrunarskorturinn sýmr
sig hjá þeim, er minnst vita—ekki
hjá þeim, sem mesta hafa þekking
una.” Það hlýtur að vera meir en
lítið teygjanlegt imyndunarafl, sem
finnur í þessum orðum andmæli
gegn breytiþróunarkenningunni. Það
er vel trúlegt að sumir af formæl-
endum hennar séu ekki yfirfallnir af
fjálgleik, en það er léleg röksemdar-
færsla, að halda því fram, að skoð-
anir þeirra séu þessvegna rangar.
Það er röksemdafærsla, sem Jóni er
trúandi ti! að nota.en þaðer ótrúiegt
að prófessor Thomson geri það.
Þessi sami J. A. Thomson hefir
ásamt prófessor Patrick Geddes sam-
ið bók, sem heitir Evolution. Fyrstu
tveir kapítular bókarinnar fjalla um
“sannanirnar” fyrir breytiþróunar-
kenningunni. A bls. 41 segja þeir
þetta: “Almenna hugmyndin um
breytiþróun lífsins, sem svo lengi