Heimskringla - 13.02.1929, Qupperneq 8
t. BLAÐSlÐA
HBIUtKRINfitA
WINNIPEG, 13. FEBR., 1929
Fjær og nær.
MESSUR
Séra Þorgeir 'Jónsson messar að
Arborg næstkomandi sunnudag, 17.
þ. m. kl. 2 e. m.
MálfundafélaigiS heldur fund næsta
sunnudag í Labor Hall, Agnes Str.
kl. 2 e. m. Björn Magnússon flytur
þar erindi um skógræktarmál Is-
lands. Þaö er óskaS eftir aS sem
flestir vildu sækja þenna fund, þar
eS þetta er eitt af áhugamálum Is-
lendinga. Öllum er heimilt aS taka
þátt í umræSum á eftir.
Hr. Sigurjón B. Johnson frá Fram
nes P. O. Man. kom til bæjarins í
gær. MeS honum kom uppeldis-
systir hans Gíslína Gíslason er skor-
in veröur upp viS hálseitlabólgu.
R 0 s E
THEATRE *
Sargpnt and Arlington
The West End«
Theatre.
Fineat
THIJR—FRI—SAT., Thlii Week
GEORGE O’BRIEV
ESTELLE TAYLOR
—IN—
‘Honor Bound’
—ALSO—-
“WHY SAILORS
GO WRONG,f*
A BK* DöUBLE PROGRAM
“YELLOW CAMEO” No. U
M«n—Ttiex—Wed. Next Week
SPECIAL ATTRACTCION
Our D4NGING
DAUGHTERS
—WITH—
JOAN CRAWFORD
JOHN MACK BROWN
COHEDY NEWS
Rokið á Sargent
Þaö er ólukkans þefur
þarna á Sargent enn.
Skafrenningurinn skefur
skarniö framan í menn.
—(Fundiö á Sargent).
Thorsteinn Thorsteinsson frá Les-
lie, Sask. og kona hans, fóru á miS-
vikúdaginn var norður til Arborgar
-aö heimsækja kunningja sína þar.
Þau komu utan frá Westfold þar
sem þau voru viö jaröarför Mrs.
Stefaníu Jónsson, stjúpmóSur Önnu,
konu Thorsteins.
Þann 22. janúar 1929, lézt aS heim
ili sínu aö Westfold, konan Stefanía
Jónsson. Hún var á 81. aldursári.
Syrgja hana auk eiginmanns henn-
ar, Björns Jónssonar, tvö börn þeirra,
Einar og Jónína, sem tekin eru viS
búsforráöum foreldra sinna. Enn-
fremur Mrs. Augusta Olson, dóttir
Stefaníu af fyrra hjónabandi henn-
ar. Fyrri maöur Stefaníu var Jón
Torfason. Var hann tvígiftur og
átti þrjú börn, sem enn eru á lífi:
Torfa, Skúla og Önnu. Var Anna
stjúpdóttir Stefaníu viö jarSar-
förina ásamt manni sinum hr. Thor-
steini Thorsteinssyni í Iæslie, Sask.
Stefanía sál. var jarSsungin 27. jan.
1929 af séra G. Árnasyni.
Stefán Jónsson frá Hallspn, Nt
Dakota, kom til bæjarins utan frá
Westfold, á þriöjudaginn i vikunni
sem leiS. Hann var við jaröarför
Mrs .Stefaníu Jónsson, konu Björns
bróSur síns. • Býst Stefán viS aS
halda vestur tiL Foam Lake Qg Les-
lie að sjá systur sína Mrs. Jórunni
Johnson, og tengdafólk sitt þar
vestra.
Pétur Bjarnason frá Hekla P. O.,
Man., leit inn á Heimskririglu síöast-
liöinn mánudag. Hann hefir veriö í
bænum undanfariö aö leita sér lækn-
inga viS meiösli í hendi; hann er á
batavegi en óvíst hvenær hann getur
farið heim.
IÐUNN KOMIN
Síðasta hefti, 12. árg. (1928) og
sendi ég það tafarlaust til allra út-
sölumanna og kaupenda. Þessi árg.
ISúnnar er yfir 400 bls. og er það
SO.bls. meira en kaupendur áttu til-
kall til. AuSvitaö er þaö fyrir
vaxandi vinsældir ISunnar aS þessi
stækkun varð möguleg, því tímarit,
eins og hvert annaó fyrirtæki, á sitt
lif og þroska undir vinsældum fjöld-
ans. Og það er ekkert skrum eSa
flapur þótt ég segi, aö ISunn er svo
gott rit aS öllu samlögöu, ab hún
ætti aö vera velkomin á hverju ein
asta íslenzku heimili hér vestanhafs.
VerS árgangsins er aöeins $1.80 sem
Eorgist bara einhverntíma á árinu.
• Sérstök kostaboö til nýrra kaupenda.
Öllum bréfum svaraö tafarlaust.
Magnús Peterson,
313 Horace Street,
Norwood, Man.. Canada.
Voru menn á undan Kristi frelsað-
ir á sama hátt og nú á títnum, verS-
ur umræöuefniö í kirkjunni, nr. 603
Alverstone stræti, sunnudaginn 17.
febrúar kl. 7. síðdegis. Allir vel-
komnir.
VirSingarfyllst,
Davíð Guðbrandsson.
Siguröur VopnfjörS frá Framnes
P. O., Man. fór í dag suöur til
Bandarikjanna til þess að vitja veikr-
ar systur sinnar Jónu VopnfjörS,
sem heima á í grend viS Detroit.
UmboSsmaSur Heimskringlu í
Blaine er hr. Jónas Sturlaugsson.
Tekur hann við starfi af hr. S. O.
Eirtksson, sem Megna heilsubiluríar
hefir beöiS, aS hafa sig afleystan því
starfi. Eru kaupendur blaSsins vin
samlega beðnir aS hafa þetta í huga.
Studio Club ungfrú Freda Simon-
son, efnir til hljómleika á þriöju
heldur hljómleika að námsstofu henn
ar, 411 Winnipeg Piano Bldg., föstu
daginn 14. febrúar, kl. 8.30 síðdegis.
KveldiS verður helgaö norrænum
tónskáldum. Gestir klúbbsins verða
Björgvin tónskáld Guðmundsson og
söngkonan Rósa M. Hermannsson,
með aöstoð ungfrú Þorbjargar Bjarna
son. — Ungrú Edith Levin, piano-
leikari. leikur Variations og Fugue,
eftir Björgvin GuSmundsson.
Studio Cltib ungfrú Freda Simon-
son, efnir til hljómleika, á þriSju-
daginn, síödegis, 19. febrúar, að Fort
Garry gistihúsinu, og standa ýngri
nemendur að hljómleikunum, sem
verða heligaöir rússneskum tónskáld-
um. Mrs. B. H. Olson, soprano, og
séra R. Katsunoff, tenor aöstoða,
með aðstoS Mrs. L. Hovey og Mrs.
R. Katsuno£f. Ennfremur taka þátt
í skemtiskránni Elsa Sikerbol, Sarah
Levine, Ella Gagnon, Rita Harris,
Betty Wolch, Helen Segal, Edith
Levin og Bertram Pearl.
Mrs. Ingibjörg Johnson frá Oak
Point var í bænum yfir helgina í |
heimsókn hjá skyldfólki og kunningj I
um.
WONDERLAND
"EftirtektaverSasta myndin, af
eftirtektaveröasta hluta einnar eftir-
tektaverSustu bongar heimsins.”
Þannig farast blööum orö um mynd
ina “Four Walls,” sem nú er sýnd á
.Wonderland. Borgin sem átt er
viS er New York, og hvað þar fer
fram "innan fjögra veggja,” verðá
allir aS sjá.
Ein sú töfrafegursta en jafnframt
sú hráðhættulegasta og djöfullega
ófyrirleitnasta kvenpersóna, sem
heimurinn hefir þekkt, er Lapouk-
hine, hin rússneska, sem næstu viku
er sýnd á Wonderland. Myndin
heitir “The Patriot’’ og Vera Veron-
ina leikur aðal hlutverkið.
Eftirfylgjandi meðlimir voru sett-
ir í embætti í stúkunni “Heklu” af
' •
umboSsmanni H. Skaftfeld 1. febrúar
1929:
F. Æ. T. — S. Eycjal
Æ. T. — G. P. Magnússon
V. T. — H. B. Grímsson
Rit. — S. Einarsson
Á. R. — S. B. Benediktsson
F. M. R. — B. M. Long
Gj. K. — J. Th. Beck
Kap. — S. Sigurdsson
D. — V. Magnússon
A. D. — S. Sigurdsson
V. — O. Benediktsson
Mr. H. B. Skaftason frá Glenboro,
Man. var staddur í bænum í gær í
viðskiftaerindum.
Björgvin GuSmundsson biSur hlut-
aöeigendur í Selkirk og Winnipeg aö
leggja á minniö, aö sökum brott-
ferðar og burtveru um helgina, verS-
ur engin söngæfing haldin meS
barnaflokkunum föstudaginn 15. febr.
í Selkirk, laugardaginn 16. né mánu-
daginn 18. febrúar, í Winnipeg.
^ftirfylgjandi meölimir voru sett-
ir í embætti í stúkunni “Skuld” af
umboðsmanni hennar, Gunnlaugi Jó-
hannssyni:
F. Æ. T. — Asbj. Eggertsson
Æ. T. — Einar Harald
V. T. — O. G. GuSmundsson
Rit. — Helgi Jónsson
A. R. Thor. Eyford
Fjárm. Rit. — Sig. Oddleifsson
G. _K. — Magnús Jónsson
Kap. — Asdís Jóhannesson
D. — Anna Eyford
A. D. — Lillian Eyolfsson
V. — Sig. Markússon
U. V. — Sigurjón Björnsson
ROSE
“Our Dancing Daughters,” er nafn
ið á myndinni sem sýnd verSur á
Rose leikhúsinu fyrri hluta næstu
viku. Er mynd sú ágæt skuggsjá
mannlífsins í vissum myndum.
Seinni hluta þessarar viku er
myndin “Honor Bound’’ sýnd og
leika George O’Brien og Estelle Tay-
lor aSal verkefnin. Einnig “Why
Sailors go Wrong,” sem er hinn
skemtilegasti.
-----—-------------—— ----<>
Drewry’s Standard Lager, Am-
erican Style Beer, Old Tavern Ale
og Old Stock Ale, er hægt aö
kaupa í öllum stærri vínbúSum
stjórnarinnar í Winnipeg
CASH AND CARRY
12 til 24 flöskur í hverjum
pakka.
ÚR BRJEFI
Leslie, 'Sask.,
Jan. 30,' 1929
...Nú er unniö af kappi miklu aS
undirbúningi Þorrablóts hér aS Les-
lie. Eftir öllum undirbúningi aS
dæma, lítur út fyrir aö þetta veröi
eitt meg þeim allra beztu Þorrablót-
um sem hér hafa veriö haldin.
Föll af hreinkynjuðum verSlauna-
sauöum og þverhandar-þykkir mag-
álar, reyktir af sérfræðing í þeirri
grein, hanga hér í matbúri nefndar-
innar. Einnig getur þar að líta
rúllupylsur og speröla í al-íslenzku
sniöi. Tvær sortir af bezta Gríms-
eyjar harSfiski, sem hægt var að fá,
er þegar komiö í búriS. Er önnur
sortin fyrir hina eldri og vel-tenntu
íslendinga; hin fyrir ynigra fólkiS.
Fjölda margar sortir af íslenzku
brauði, svo sem laufabrauö, pott-
brauö, vöfflur o. fl. verSur á borðum
hátíSiskveldiö.
Þá þarf enginn að efast um að
ekki verði nóg af skyri og rjóma til
aS mýkja meö kverkarnar áöur en
j gengiS veröur frá bdröum.
Þá verSur prógramiö ekki síSur
vandaS. Ræöur haldnar, rímur
kveðnar, sögur sagðar, sungið og
kvæSi flutt.
Þá verSur einnig sýnt nýtt málverk
málaS af ungum listamanni hér í
byggSinni. Ræða verður haldin,
sem skýrir söguleg atriði, sem gerst
hafa á þeim stöðum, sem málverkiö
sýnir.. .
ÞorrablótiS verður haldiö föstudag
inn 15. febr. Komiö og étið, drekk-
ið, hlustið og skemtiS ykkur vel.
—Lesliebúi
—----------x-----------
V
Björgviin GuSmundsson tónskáld.
óg ritstjóri þessa blaSs fara vestur í
Vatnabyggðir, sem gestir á Þorrablót-
ið í Leslie, er haldiS veröur á föstu-
daginn 15. þ. m.
“Ramona,” myndin sem á minna en
sex mánuSum varð heimsfræg, verð-
ur sýnd af John S. Thorsteinson á
eftirfylgjandi stööum:
ÁRBORG, febr. 19.
RIVERTON, febr. 20.
GIMLI, febr. 21.
HNAUSA, febr. 22.
Sagan .geristí Californíu um
miðja 19. öld, eða um það leyti sem
gulltekjan stóS þar sem hæst. Sagan
meSal annars gengur út á kúgun Ind
íána og ásts kynblendings stúlku til
tveggja vina — annars Indíána en
hins af hvítum ættum. Mrs. Thor-
steinson syngur “Ramona” og mörg
af gömlu góöu angurblíðu löigunum
sem viS — hverfandi kynslóðin raul-
uðum fyrir svona tuttugu til þrjátiu
árum síðan — áður en “Jazz” og
“Blackbottoms” tóku við stjórninni.
Mr. Telmer spilar á piano. ASgang-
ur 5c—50c—25c.
xr»
MiSvikudaginn 6. febrúar lézt, að
heimili sínu í Seattle, Mrs. Kristrún
ólafsdóttir Björnsson, kona Sveins
Björnssonar Péturssonar prests, og
alsystir Jóns heitins Ölafssonar
skálds, en hálfsystir Páls Ölafssonar
og þeirra systkina af fyrra hjónabandi
séra Olafs IndriSasonar á Kolfreyju
staS. VerSur hennar sennilega
nánar getið hér í blaöinu síöar.
Frá Laugaskóla
(FYh. frá 1. bls.
Allar skólastúlkur ganga í snotr-
um kjólum meS sama sniði allar, og
fer vel. Árný hefir gert sniðin aS
kjólunum og upphugsað og tetkr.aS
allt útflúrið á þeim.
Yfirleitt hreif það huga minn aö
sjá alla þessa vinnu í einum skóla.
að sjá alla nemendur þjóna sér sjálfa
og læra af kennurunum og hver af
öðrum hin nauösynlegustu heimilis-
störf, smíSar, hegurð og hannyrðir.
og það mest í frítímum og til hvíldar
frá ýmsu bóklegu námi.
Eg óskaSi meS sjálfum mér, aö
ég hefði ungur gengiö í slíkan gagn
fræSaskóla; því þarna er sannkail-
aSur gagnfræSaskóli. Og hefir
hann þann kost meðal annara, aö
nemendur mega kjósa sér aöalnáms-
grein og stunda hana af kappi, en
sleppa í þess stað billega frá sumum
hinna. Mér flaug í hug, aS gaman
.hefSi mér þótt í latínuskólanum
forSum, aS mega sleppa viö and-
styggðina hann Lisco og sumar grein
ar stærðfræðinnar, sem ég aldrei hef
haft brúk fyrir síðar. Hér er nýi
timinn með gömlum óskum uppfyllt-
um.
Hér er góSur vilji vakinn og yfir
vötnunum svifur hollur drengskapar-
andi, sem hin góSu hjón, Arnór og
Helga, hafa heiIlaS inn í hús sín.
Auk kennaranna, sem ég nefndi, á
skólinn góða leiStoga æskulýðsins
þar sem eru KonráS hinn málsnjalli
Erlendsson og Hermann klerkur
Hjartarson, sem kunnur er aS and-
ríki, og ungfrú Guöfinna .Jónsdóttir
frá Hömrum, sem kennir söng og
hljóðfæraslátt og ferst þaS prýSilega
aS sögn.
E:g hjó eftir því, að Hermann
prestur les meS nemendunum kafla
úr guðspjöllunum og skýrir þau og
gagnrýnir.
Annars má í Ársriti Laugaskóla
sjá, hve fjölbreytt eru skólafögin og
mikiö er fariö yfir á ekki lengri t;ma
en tveim árum. Þar má einnig sjá
sýnishorn góðra ritgeröa eftir nem-
endur eins og til dæmis ritgeröina
um Skarphéöinn eftir Sigrúnu Ingólfs
dóttur frá Fjósatúngu, þá, er birtist
í fyrsta árgang ritsins. Eg hef
aldrei lesið frumlegri eða skemtilegri
ritgerS eftir neinn skólanemanda, þó
eldri væri, því frágangurinn og hugs-
unarfestan myndi jafnvel sæma sér
vel við meistarapróf í norrænum fræð
um.
Sumir segja (og ég hef sjálfur
hugsaö svo smásálarlega áður>:
HvaSa gagn er aS þessum skólum út
um allar sveitir? ÞaS setur landiS á
hausinn og kemur á staS hringlanda
og hálfmentun og teymir fólkiö frá
þörfum sveitastörfum til iðjuleysis.
HvaS á þessi eyðsla? sagði Júdas, og
þetta er rangt hjá þessum mönnum
eins og hjá honum. Hálft er betra
en ekkert og hitt er skröksaga. Satt
er það aö skólar kosta fé og öll
skólaganga unga fólksins eigi síSur.
En látum oss þakka guði vors lands
fyrir, að þjóðin hefir fengiö ráS til
aS eignast fleiri skóla og fleiri sjúkra
hús aS tiltölu en nokkur önnur þjóS.
Látum ljósið loga meðan lifir. Is-
lendingar geta nú skotiö skjólshúsi
yfir og hjúkraö á sjúkrahúsum rúm-
lega 700 sjúklingum, móts við 4—5
fyrir 50 árum síðan. Og á ýmis-
konar skólum eru nú árlega kostaðir
til náms eitthvaö á annaS þúsund
. piltar og stúlkur, sem þá urðu að
sitja heima og læra ekkert aS gagni.
ÞaS er verið að harma þaö, aS
urfga fólkiS gangi á skóla, og
vilji eigi tolla á sveitabæjunum, og
vinna þar í sveita síns andlitis. HiS
sanna er, aö unga fólkið fær enga
vinnu sem borgar sig í sveitunum á
vetrum. Vel sé því fyrir, aö það
kýs þá fremur að fara á skóla og
vinna þar að andlegri vinnu, en
igleöiefni er þaS nú í tilbót, aS kost-
ur er á skólavist, þar sem því býSst
tækifæri að læra aS vinna í sjálfum
skólanum.
Eg samfagna Þingeyingum að eiga
Laugaskóla. Þar er laglega á staS
fariS og áreiöanlega í rétta átt stefnt,
og vildi ég óska hverri sýslu annan
eins.
Arnór og kona hans fóru utan meS
litlum efnurn en mentuöust vel, eink
um í SviþjóS þó dvöl væri stutt, og
þaðan sóttu þau fordæmi til kennslu-
fyrirkomulagsins á Laugum. Þau
hafa unniS þrekvirki í aS skapa skól-
ann og láta sína drauma rætast.
Þau hafa, að' mér finst, dregið
heim yfir Islandsál laglegan reit og
dýrmætan úr andlegri óSalsjörS Svía,
og þurfti gott átak “svát af renni-
rauknum rauk” likt og þegar “Gefjun
dró frá Gylfa” o. s. frv.
Stgr. Matt.
* * *
Heimskringla þakkar Stgr. lækni
Matthíassyni fyrir þessa ágætu hug-
vekju, því það er greinin í orösins
bezta skilningi.—
Stiles & Hnmphries
TILKYNNA
sína árlegu 10 daga
S ÖLU
A
a
FATNAÐIÁ HÁLFVIRÐI
^SOSOSOSðCOSOOSðCOOððOCOSOeOSOOOSOðSOSðSOOSCOSðOOððð!
GERES HYEITI
Verst ryði betur en aðrar brauS-hveiti-tegundir. Móönar
tveim dögum fyr en Marquis. Skírteini frá Dominion Seed
Branch sýnir aS frjósemi þess er 95 af hundraöi. Grade No. 2
Northern. VerS $2.50 mælirinn í Glenboro, Man. Pokar auk-
reitis 25c hver.
Pöntunum veitt móttaka af
H. B. SKAPTASON,
Box 206 Glenboro, Man.
Samkvæmt voru vanalegu viðskiftareglum, verður að
selja alla fatnaði og yfirhafnir í búð vorri, áður en nýar
vor-vörubirgðir koma í hana.
FÖT OC YFIRHAFNIR
Vanaverð $25, söluverð bara hálfvirði ........... $12.50
Vanaverð $30, söluverð bara hálfvirði ........... $15.00
Vanaverð $35, söluverð bara hálfvirði ..........„..... $17.50
Vanaverð $40, söluverð bara hálfvirði ........... $20.00
Vanaverð $45, söluverð bara hálfvírði ........... $22.50
Vaaaverð $50, söluverð bara hálfvirði ..........:..... $25.00
Vanaverð $55, söluverð bara hálfvirði ................ $27.50
Stiles & Humphries
Winnipeg’s Snuirt Mens Wear Shop
261 Portage Ave.( Next to Dingwalts)