Heimskringla - 14.08.1929, Síða 5
WINNIPEG, 14. ÁGÚST, 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
Og mér birti fyrir augum;
iVafurloga lagði af haugum
Landnámsmanna nærri þar.
fGulliö var, sem grófst þar meS
þeim,
Gildir vöövar — afl var léS þeim—
Þeirra allt, sem aldrei getur
lOrku neytt á Sandy Bar.
Viö getum neytt orku þar sem þeir
gátu iþag ekki. Og við eigum ork-
una, en hún má ekki hverfa í sand
sérhyggjunnar og sundurlyndisins,
eins og hún er nú að gera.
Islandsfréttir.
HARÐUR LANDSKJÁLFTI
um hálft landið
R’vík. 24. júlí'
Ákafur landskjálfti reið hér yfir
foæinn kl. 5.45 siödégis i gær. Þeir,
sem muna landskjálftan 18%, ætla að
'þessi hafi verið ö>llu meiri.
Flestum virtist hreyfingin koma úr
norðaustri, en ekki veröur aö svo
stöddu sagt, hvar upptök landskjálft-
ans voru, þvi aö landskjálftamælir-
inn í 'Sjómannaskólanum fór svo úr
skorðum, að ekki varð á hann 'lesiö.
'Nokkurar skemdir urðu hér i bæn
um eins og vænta mátti. Alþingis-
húsiö mun hafa skemst einna mest.
Þar komu sprungur i suma innveggi
og loft sprungu í flestum herbergjum,
og listar hrundu niður, einkum í sal
neðri deildar. Þá sprakk og kon-
ungsmerkið yfir dyrum hússins oig
féll brot úr þvi niður á gangstétt-
ina.
A landjsimastöðínni (garrda póst-
húsinu) urðu og talsverðar skemd-
ir- Loftið í miðstöð bæjarins sprakk
og steinar yfir tveim gluggum þver-
brotnuðu, en duttu ekki niður. Eitt
simaborðið laskaðist eitthvað. Þá
hrundu og ndkkurir reykháfar, en
ekki urðu slys að því.
Á einum stað laskaðist gamall
brunagafl. Sprungur munu hafa
komið í nokkur steinhús.
Nýji hafnarigarðurinn hefir sigið
lítilshátrtar um fremstu samskeytin, en
ekki mun það koma að sök.
Sprunga kom í botninn á sundlaugun
Um og f jaraði skyndilega í þeim. Mun
viðgerð ekki lokið fyrr en á laugar-
<3ag.
Nokkurar skemdir urðu á glervöru
i sumum búðum og rúður brotnuðu á
nokkurum stöðum.
Landskjálftinn fannst allt austan frá
Skeiðarársandi og vestur á Snæfells-
nes. Hann var allharður á Suður-
landi og Borgarfirði, en gætti litið eða
ekki norðan lands. Á Reykjanesi
gætti hans og lítið. Ekki hefir
^rézt, að hann hafi valdið neinu
tjóni utan Reykjavíkur.
Tveir kippir fundust hér nálægt kl.
? og 8 í igærkveldi, og smáhræringar
hafa fundist undanfarna daga.
Eins og áður er sagt, vita menn
ekki hvar upptök landskjálftans voru,
en vel getur verið, að þau megi sjá
a landskjálftamælum i öðrum lönd-
um, og munu Veðurstofunni þá ber-
ssit þ;er fregnir innan skamms.
—Vísir.
Haraldur Sveinbjörnsson
orSinn fimleikakcnnari Milton Sills
Haraldur Sveinbjönsson, bróðir
Valdimars sundskálavarðar, fór til
Ameríku fyrir nokkurum árum q®
hefir stundað þar fimleikakennslu síð-
an- I bréfi, sem er nýkomið frá
honum, segir hann svo:
“Eg byrjaði að vinna við Columbia
háskólann síðari hluta vetrar og held
þar áfram itil hausts, ef ekkert betra
býðst. I>ó geri ég varla ráð fyrir
að betra bjóðist, því að kjörin eru
allgóð.
Um skó'lalokin í vor var ég svo
heppinn að komast í samband við hinn
f^æga kvikmyndaleikara Milton Sills.
Hann vantaði æfingakennara ogt þjálf
ara í sumar, og kjöri mig til þess,
eftir það, að hann hafði vísað tveim
óðrum fimleika- og þjálfkennurum á
braut. Nú er ég hjá honum, æfi
hann í leikfimi á morgnana oig læt
han hafa húðstrokur (Massage). A
daginn förum við svo saman í út-
eeiðar eða á veiðar. — llann á hér
heimili hjá gullfallegu vatni, sem er
skógi kringt, og er vatnið fullt af
fiski, en i skógunum nóg af hrein-
dýrum, björnum, úlfum og fleiri
veiðidýrum. Þetta er hið bezta
sumarfrí sem ég hefi átt völ á um
æfina, og svo fæ ég meiri toorgun
fyrir þetta, en nokkuð annað, sem
ég hefi igert, 12 dollara á dag, en það
lætur nærri 50 íslenzþum krónulm.
Eg man þá tíð að það þótti hátt
kaup á viku heima.
,1 vor ferðaðist ég með íþróttaflokki
frá Columbia-háskólanum, sem keppti
við alla íþróttaflokka stærstu há-
skólanna í Bandaríkjunum. Á því
ferðalagi lærði ég meira viðvíkjandi
íþróttúm, en á nokkru öðru, sem ég
hefi séð og kynst hér í landi.—Mbl.
R’vík. 19. júlí
Undirbúning^nefnd /í\!fh'ngishájíff-
arinnar tilkynnir: Samkeppni lista-
manna um minnispeninga og merki
var lokið 15. þ. m. Úrskurður dóm-
nefndar féll á þá leið, að tíu króna
peningar verða gerðir samkvæmt hug
mynd Einars Jónssonar myndhqggv-
ara, fimm króna peningar samkvæmt
hugmynd Baldvins Björnssonar gull-
smiðs og Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal, en tveggja króna pen-
ingar samkvæmt hugmynd Ba'ldvins
Björnssonar og Tryggva Magnússon-
ar málara. — Merkið gerir Tryggvi
Magnússon.
Dómnefnd skipuðu Ásgeir Asgeirs-
son fræðslumálastjóri, Magnús Jóns-
son prófessor og Magnús Kjaran,
framkvæmdastjóri undirbúningsnefnd-
ar Alþingishátíðar.—Mibl.
TILKYNNING
frá undirbúningsnefnd Alþingis-
hátíðar
Reykjavík 13. júlí.
Á fundi Norðurlandaþingmanna í
'Osló, þar sem Ásg. Ásgeirsson alþm.,
var staddur fyrir hönd íslands, var
ákveðið að halda næsta þingmanna-
fund fyrir Norðurlönd í Reykjavík
næsta sumar 30. júní og 1. júlí. A-
kveðið var að hafa tvö umræðuefni,
l.)iÞingræðið og 2.) Landbúnaðínn
o|g| afstöðu hans til annara atvinnu-
vega.
Fundinn munu sækja þingmenn frá
Finnlandi, Sviþjóð, Danmörku og
Noregi, sennilega um 15 frá hverju
landi.
Afráðið var, eftir tillögu Mowin-
kels, forsætisráðherra Norðmanna, að
leigja sérstakt skip til fararinnar, og
munu gestirnir toúa í skipinu á með-
an staðið er við í Reykjavík. Al-
iþingishátíðanefndin hefir ákveðið að
tojóða Norðurlandaþingmönnunum á
Þingvallahátíðina og mun þeim auk
þess gefinn kostur á að ferðast, ýmist
um Suðurland eða Borgarfjörð, á
milli 'hátíðarinnar 0|g fundarins, og að
fundinum loknum.
• —Vísir.
Borgarnesi, 11. júlí.
I fyrradag var byrjað á að steypa
torúna yfir Brákarey. Er búist við,
að brúin verði fullgerð í ágústlok
eða byrjun september. Yfirleitt mið-
ar hafnargerðinni vel áfram.
Grasspretta er ágæt í Borgarfirði
og sláttur almennt byrjaður. Eru
menn víða langt komnir með tún.
Hvað verður næst?
Vísindamönnum nægir ekki lengur,
að geta notað “radio” til þess að víð-
varpa hljóðfæraslætti, fréttum og
þessháttar, mönnum til skemtunar og
fróðleiks. Þess 'háttar verður brátt
algert aukaatriði í notkun víðvarps-
ins.
Árið 1915 barst í fyrsta skifti rödd
yfir Atlanzhafið. Nú er svo langt
komið, að menn, sem eru sinn hvoru
megin við Atlanz'hafið, geta talast
við með víðvarpi alveg eins og þeir
væru í sama herbergi. Fyrst lengi
vel var sá ljóður á þessu, að hver
víðvarpsnotandi, sem vildi, gat hlust-
að á samtölin. Nú hefir vísinda-
mönnum tekist að búa svo um hnút-
ana, að iþetta er ómqg'ulegt. A
bylgjunum breytast öll 'hljóð, til
dæmis þannig, að hátt og hvelt hljóð
verður lágt og dauft og óviðkom-
andi hlustendur heyra ekkert annað
en óskiljanlegt garg. Nú getur fólk
í Stokkhólmi og San Francisco talast
við með “leyndarmálsheldum” víð-
varpssíma. Víða geta menn, sem
eru á ferð í hraðlest, talað við kunn
ingja sinn í fjarlægri borg.
Þá má nefna myndavíðvarps-send-
] ingarnar. Þær eru nú komnar á
þann rekspöl, að álitið er, að bráðleiga
verði 'hægt, með mjög litlum tilkostn
aði, að toæta myndamóttakara við
jafnvel ódýrustu víðvarpstæki. En
ekki er allt þar með búið. Til er
radio-dýptarmælir, sem gerir aðvart
ef skipið, sem hefir hann innanborðs,
kemur skyndilega á grunnsævi, ljós-
myndavél, sem stjórnað er með radio
og gerir aðv^rt, ef innbrotsJ)jólur
gengur milli hennar og örlítils raf-
magnsljóss sem er andspænis henni,
og svo radio-jhljóðfærið. HHjóð
þess eru framleidd með þvi, að veifa
hægri hendinni í grend við tein,
hægra mqgin á tækinu, og tónninn er
afmarkaður með því, að halda hinni
hendinni misjafnlega langt frá málm-
lykkju, sem er hinumegin. A þetta
tæki getur prófessor Theremin, sá
sem fann það upp, leti'kið ýmisleg
lög, svo sem “Söng bátsmannanna á
Volga” og “Ave Maria” eftir Goun-
od, með svo mikilli hljómfegurð, að
hljómlistamenn eru hrifnir af. Ein
grein víðvarpsins er enn ótalin og
ekki þýðingarminnst. Er það firð-
stjórn ýmsra farartækja. Verk-
fræðinganefndir 'hafa verið skipaðar,
til þess að athuigva möguleika til fram
kvæmda í þessu efni, og hafa þær
talið, að á sumum sviðum væri tals-
vert öruggara að ferðast með farar-
tækjum sem stjórnað væri með radio.
—Þegar skipum, flugvélum og bif-
reiðum hefir verið slept mannlausum-
og smyglarar í Ameríku nota firð-
l stjórnarvéLbáta, til þess að koma á
land vörum sínum, þá er þar með
sýnt að möguleikar radio-bylgjanna
eru furðulegir.
Enn er þó eftir ótalinn allra undra-
verðasti möguleikinn — að víðvarpa
vinnuorku! iHuigsið ykkur landkönn
uði einhversstaðar uppi á Grænlands-
jökli, eða á Norðurpólnum. I stað-
inn fyrir að vera úti í frostinu og
kuldanum, taka þeir upp úr pjönkum
sinum víðarpstæki og stilla það,—
ekki til þess að taka á móti hljóð-
færaslætti eða fyrirlestrum, heldur
Ijósi í tjaldið sitt og hita til að ylja
það upp og sjóða matinn fyrir sig.
—Um nokkurn tíma hafa nienn lit-
ið á þetta sem möguleika og upp-
fundningamenn hafa starfað að
því, að gera “möguleikann” að veru-
leika. — Nú hefir nýlega í Ameríku
verið búin til “spóla”, sem menn gera
sér miklar vonir um að muni — eí
ekki leysa þrautina að fullu — þá að
minnsta kosti vera svo þýðingarmikil,
að ekki vanti mikið á að hugmyndin
verði frámkvæmanleg. Við tilraun-
irnar sem gerðar voru með tækið
skeði meðal annars þetta: “Rafmagns
“pera,” sem tekin var í fyrsta sinni
úr umbúðunum, lýsti með fullri birtu,
án iþess að nokkurir þræðir væru
tengdir við hana, koparstöng sem Iá
á gólfinu varð brennheit, egg voru
sett í glerpípur, soðin og borin á
'borð fyrir áhorfendur, pylsa var
steikt og epli 'bakað alveg í gegn.
Einnig hefir verið stungið upp á
því að “spólan” nýja kunni að vera
þýðingarmikil við lækningar..
Nokkurum mánuðum áður en þetta
varð, kom prófessor A. M. Low,
frægiur vísindamaður, með þá tillögu
að hægt myndi vera að hreyfa bif-
reiðar, með straum sem sendur væri
eftir þráðum undir veginum, og tók
Mlarconi, hinn ítalski, í sama streng-
inn. Einn ,af radnoHsérfræðingum
Ameríku, Mr. Nicola Tesla, hefir
skýrt frá því að hann geti víðvarp-
að 100,000 hestöflunt með aðeins 5%
orkumissi við sendinguna. I sam-
bandi við það spáir hann því, að
flugvélar muni einhverntíma geta flog
ið miklu lengri áfanga, en hingað til,
nefnilega í það óendanlega, með því
að nota afl, sem þær fenigju með
víðvarpi. — Hvað verður næst?
—Vísir.
Heill og vanheill.
Það er svo ljúft að lifa
að lesa, vinna, skrifa,
að elska og una sér,
þegar að hressist hjarta
við heilsuljósið bjarta,
sem dýrsta gjöfin drottins er.
En þegar þjáist lyndi
og þjaka vanheilindi
og þrautir þröngva sál,
Þá verður þungt að vinna,
þá vill ei andinn sinna
um gleðihót né gaman mál.
A. Þ. Eldon.
Samlagsfréttir.
Union Stock Yards,
St. Boniface, Man.
13. ágúst, 1929.
Mr. I. Ingaldson, M.L.A., fram-
kvæmdarstjóri “Central Livestock
Co-operative Limited,” kom í fyrradag
aftur hingað til bæjarins úr ferða-
lagi um Ontario og Quebec-fylki, þar
sem hann hafði viðdvöl á hinum miklu
gripamarkaðsstöðum í Toronto og
Montreal — og um eystri miðríkin,
sunnan landamæranna, þar sem hann
hafði viðdvöl á hinum miklu gripa-
markaðsstöðum — Chicago og St.
Paul. Ferðin var farin í því
augnamiði að kynna sér möguleika
fyrir afsetningu átökugripa (feeder
and stocker cattle) og þá einnig til
þes sað fá upplýsingar um gripa-
markaðshorfur yfirleitt.
I Ontario eru uppskeruhorfur mjög
góðar. Ágætt útlit er með hey og
aðrar fóðurjurtir. Hafa framleið-
endur í Ontario í hyggju að kaupa tölu
vert af átökugripum.
Uppskeruhorfur i Quebec mega
heita hinar sömu og í Ontario. Eitt-
hvað af átökugripum kaupa Quebec-
bændur, þó ekki eins mikið og Ontario
bændur.
1 eystri miðríkjunum má búast við
gríðarmiklum heyfeng, að því er
skýrslur herma. Maískorn stendur
misjafnlega, sumstaðar ágætlega;
sumstaðar í meðallaigi, og mjög lé-
lega, er vestar dregur. Eftirspurn
átökugripa t Bandarikjunum verður
mjög hin sama og síðastliðið ár.
Alstaðar varð vart við það, að veru
leg eftirspurn eftir átökugripum, er
King’s Ltd.
Ágúst útsala
Á LQÐFATNAÐI OG
LOÐBRYDDUM KÁPUM
10° o—20° n afsláttor
Aðeins yfir ágúst mánuð
Vægir Skilmálar
Loðbryddar
KÁPUR
Nýjasta snið og
efni, allar ný-
lega lagðar
beztu loðfeldunt
$15.50 til $85
á ágúst út-
sölunni
LOÐKÁPUR
Wombat
Geitarskinn
Electric Seal
Muskrat
o. s. frv.
$58. tU $225
á ágúst út-
sölunni
King’s Ltd.
394 Portage Ave.
(Næst Boyd Byggingunni)
ekki væntanleg fyr en i lok ágúst-
mánaðar. Fyrirspurnin í sambandi
við fyrirhugaðar breytingar á gripa
tollinum leiddu í ljós, að ennþá er
ekkert fullráðið um það. Manni
var gefið í skyn af ýmsum sæmilega
vel metnum mönnum að tollur á átöku
gripum myndi að öllum líkindum
haldast óbreyttur frá því, sem nú er,
nefnilega lyí cent á pundið í gripum
undir 1050 pund og 2 cent á pundið
fyrir þyngri gripi. En hvernig sem
fer þá verður engin breyting á þessu
fyr en undir áramótin.
Sumir af framleiðendum gripasam-
lagsins í vesturfylkjunum eru í vand-
ræðum með beit og fóður fyrir gripi
sína, og verða af þeim orsökum að
koma þeim til markaðs hið fyrsta.
Vér vildum ráðleggja þeim, sem beit
hafa sæmilega nóga, að þeir haldi
gripum sínum heima enn um stund,
þar eð vér búumst við all mikilli qg
jafnri eftirspurn allskonar gripa. Vér
búumst ekki við verulegri verðhækk-
un, 'heldur, sem sagt, allmikilli eða
mikilli eftirspurn. Þar sem um
góða gripi er að ræða, fitna þeir
vafalaust og auka á þyngd sína.
Auk þess að leita sér upplýsinga,
var markmiðið með ferðinni það, að
koma sér í fast sambönd við önnur
gripasamlög eystra og syðra til þess
að höndla átökugripi. Vér erum í
sambandi við ýms mjög öflug gripa-
samlög qg erum sannfærðir um að
samvinnuumleitanir samlagí vors
verði öllum aðiljum til arðs og heilla.
Það þarf dálítinn tíma til þess að
afsetja svo að verulega um muni, en
skilningurinn er sá, að sambönd vor
leiti viðskifta við oss og snúi sér til
samlags vors að verða við eftirspurn
þeirra.
Eitt vandamálið, er gripasamlag á
við að stríða, er sú staðreynd, að oss
berst til markaðs töluvert af mjög
lélegum gripum. Vildum vér því
með þessu bréfi hvetja hvern einasta
Skrifið eftir
astco
Ástæðulaust að þjást þegar bati fæst
með tveimur skömtum af Asco. Þús-
undir kvenna er iþjást af höfuðverk
og toakverk toafa fundið ASCO bæta
sér. ASCO er ekki aspirin, það er
méira og betra.
Kostar 10 cent í lyfjabúðum
---------Skrifið-
ASCO PHARMACIAL CO.
WINNIPEG, MAN.
framleiðanda til þess að reyna að bæta
aligripakyn sitt. Um leið og vér
byggjum upp gfripasajmlags markað
vorn, ættum vér að bæta aligripakyn
vort. Félagsskapur framleiðenda er
alltaf að reyna að bæta söluskilyrðin
fyrir framleiðslu sinni. Framleið-
endur sjálfir geta aðstoðað oss mikil-
lega í þessu efni með því að fastráða
það við sjálfa sig, að þeir afhendi
samlaginu sem bezta gipi til afsetning
Hér í Winnipeg voru stödd í vik-
unni sem leið, á leið til Oakland i
Kaliforniu, Mr. og Mrs. Righ frá
Minneapolis. Ætla þau alfarin til
Oakland. Mr. Righ hefir í mörg ár
lesið fyrir og kennt hlutafélagslög-
fræði við háskóla Minnesotaríkis.
Mrs. Righ er Islendingur að ætt og
uppruna, dóttir Mr. Theo. Halldórsson
(af fyrra hjónabandi) er nú er bú-
settur í Winnipeig.
TIL STEINS H. DOFRA
Áður meðtekið ...........$135.55
Mrs. A. E. Eldon, Wallaston,
Mass................. 2.00
Alls .................... $137.55
eeeeðeoððsc
| Tækifæri er menn ættu
I —..................
| ekki að missa
| Stiles & Humphrie’s
Vöru útrýmingar
Afsláttar Fata Sala
Á karlmannaklæðnaði, Höttum og öðrum
Fatnaði
—Á verði sem þér getið ekki staðið yður við
að tapa af.
Athugið verðlistann í dagblöðunum.
Stiles & Humphries
261 PORTAGE AVE.
Rétt við Dingwalls
MACDONALD’S
Fine Qct
Bezta tóbak í heimi fyrir þá,
sem búa til sína eigin vindlinga.
HALDID SAMAN MYNDASEDLUNUM