Heimskringla - 11.09.1929, Blaðsíða 2
X. BLAÐSÍÐa
HEIMSKRINCL A
WINNIPEG, 11. SEPT., 1929
Silfurbrúðkaop.
Þeirra, hjóna GuSmundar og Þor-
bjargar Anderson í Vancouver,
B. C., 30. júlí, 1929
“R'óSuU gyllir gnýpur fjalla,
geislum vaggar aldan bláa,”
söng ég í hálfum hljóðum, þegar
ég og konan mín stigum af sporvagn-
inum á horni aðalstrætisins og 23. ave.
í Vancouver, B. C., þriöjudagskveldið
30. júlí síðastliðinn. Þegar ég lit-
aðist um og sá hversu fagurt var, að
vanda, að lita yfir borgina fögru við
Burrard sund, yfir til fjallanna,
blárra, í rökkurmóðunni, sem breidd-
ist hægt og mjúklega um skógi vaxn-
ar hlíðiar, með dældum og dölum,
giljum og gljúfrum, og mismunandi
litum, sumstaðar dökkleitum, nærri
svörtum, en annarsstaðar lifrauðum,
eða þá ljósbláum, og svo með ýmsum
öðrum blæbrigðum þar á milli sem
erfitt er að lýsa; aðeins dást að list-
argáfu málarans mikla. Sólin var
að hníga í heiðbláan reit, hljóðlega
nóttin á jörðina leit; 'hugsaði ég, en
þagði þó; og þá sá ég líka hana —
The Sleeping Beauty,—
Nú sé ég þá fyrst hvar hún sefur
á svalbarði fjallsins efst.
Þar rekkju hún hlotið hefur
sem himinsins blátjöldum vefst.
Hún sefur þar svefninum langa,—
sagði ég upphátt, en komst ekki lengra
því konan min hnippti fast í hand-
legginn á mér, og sagði: “Nú ertu
kominn upp á hjólið, — farinn að
yrkja! og það á íslenzku; og úti á
miðri götu, þar sem allir heyra til
þín, og glápa á þig eins og tröll á
heiðríkju! Á hvað ertu annars að
horfa? Hefirðu aldrei séð fjöllin
þarna fyrri, og hvar svo sem er hún
þessi Sleeping Beauty?” Þér er nú
nær, góði minn að fara að hugsa um
hvað þú vilt segja i kveld ef á þig
verður kallað, til að tala eitthvað til
silfurbrúðhjónanna, auðvitað vil ég
helzt að þú þegir, en ég þekki þig
nú, — og ykkur — ef einn talar
þurfa allir að láta til sín heyra. Og
svo stendur úr ykkur orðabunan,
hvort sem nokkur kærir sig um eða
ekki. En umfram alla hluti farðu
nú ekki að yrkja, þú getur það hvort
sem er ekki, svo nokkur mynd sé á.”
—Já, jæja, en þú verður þá lika að
passa upp á mig, því ekki get ég nú
gert að því ef skáldskaparandinn úr
einhverjum öðrum hleypur í mig, ó-
viðbúinn, og alveg óvart. Svo þú
verður að ábyrgjast að ég haldi mér
saman.
‘fHallo!” var þá sagt rétt við
eyrað á mér, með íslenzkum mál-
hreim. —“Ertu ekki á leiðinni til An-
dersons? Ætlarðu ekki að vera
með? Fólkið er að þyrpast heim
að húsinu, en annars er nú nógur
tími enn þá. En segðu mér nokkuð:
Ertu með kvæði'? — Þau Andersons
hjónin eiga það sannarlega skilið, að
þeim sé allur sómi sýndur í kveld,
bæði með ljóðum og lausu máli. Þú
mátt til að segja eitthvað.”
En minn kæri, bezti, ég hefi lofað
konunni minni statt og stöðugt að
mjæmta ekki né skræmta í allt
kveld; og hana má ég ekki svíkja.
“Uss, blesaður vertu, hvað gerir
það til þó maður svíki konuna sína!
Þær stökkva ekki á fjöll; eða þær
koma þá til baka. Svíkja konuna
sína! Huh!”
Nei, út á hina hálu braut skáldlist-
arinnar hleypi ég mér ekki; — þar er
svo ansvki hyltu hætt. — En hitt er
satt sem þú sagðir um Andersons
hjónin. Þau eru alls góðs verðug;
en ég fyrir mitt leyti er alveg gal-
tómur. En hvað um þig? Þú ert,
held ég, fullur af andagift í kveld.
Hvað finnst þér ætti við að segja?
“—Ja, þetta góðlátlega gaspur, um
allt og ekkert sem menn oft láta nú
fjúka, af því það er eins og hendi
næst, ætti samt ekki að bjóða Ander
sons hjónunum við þetta tækifæri;
bæði er Mr. Anderson sjálfur vel máli
farinn maður, og þau bæði góðum
gáfum gædd, og auk þess fyrirmynda
hjón,— sambúðin ágæt, heimilið
skemtilegt og aðlaðandi; gestrisnina
þekkjum við öll, og glaðlyndið. Þá
ENROLL NOW
for the
FALL TERM
of
The DOMINION
Business College
A Complete Educational Service
With the erection of two new buildings to house our
Branches in Elmwood and St. James, The Dominion
Business College places at the service of the people of
Winnipeg and Manitoba facilities for commercial educa-
tion unequalled in the whole of Canada.
Each building of the “Dominion” is fully equipped to
render a complete service to its students.
INDIVIDUAL INSTRUCTION
DAY AND EVENING CLASSES
DOh4INION
BllSINWœUKE
Branch Schools
in Elmwood and St. James
er líka félagslund og starfsemi þeirra
að félagsmálum öllum, og ósérplægnin
framúrskarandi! Börnin þeirra öll
hvert öðru myndarlegra og uppeldið
ágætt. — Að ala upp átta börn á
þessari dýrtíðaröld og gefa öllum
mentun í betra lagi, ber líka órækast
vitni um dugnað Andersons og ráð-
deild Mrs. Anderson, sem móður og
húsmóður. Og svo eru þau bæði
svo hrein-islenzk að betur getur ekki
verið.”
Já, sagði ég, þetta er hverju orði
sannara. — En finnst þér ekki að
betra sé að þegja um þetta þanigað
til þau eru dáin, en setja heldur eitt-
hvað útá fyrir þeim. Það er hvort
sem er öllu almennara að menn aldrei
heyri gott orð um sig sagt, í lifandi
lífi, en þá fyrst, þegar þeir eru
dánir sé þeim unnað sannmælis.—En
annars held ég að þú hafir hitt nagl-
ann á höfuðið með því sem þú hefir
sagt, og að það sért þú, fremur. en
ég, sem ættir að segja eitthvað í
kveld, og sért líka betur við því bú-
inn.
“Nei, ekki ætla ég nú að gerast
svo glannafenginn á igamals aldri;—
En því villt þú ekki segja það?”
Nú, má ég það?
“Já, það mátt þú. Guðvelkomið!”
En nú vorum við komin heim
að húsinu nr. 55-23rd. ave., sem allt
var upp ljómað inni og prýtt á eink-
ar smekklegan hátt, af högum hönd-
um iheimasætnanna. En þau voru
sjálf ekki heima; enda máttu þau
ekkert um allt þetta stúss vita, fyr
en þau kæmu heim að þessari opin-
berun.
Það sem ég tók eftir, meðál ann-
ars, þegar inn kom var, að kvenfólk-
ið var í óða önn að faðmast og
kyssast, — en við karlmennirnir
fengum ekkert af þvi, svo að ég
snéri mér að því að heilsa með
handabandi, telja fólkið og taka eftir
hverjir komnir voru. Meðal þeirra
sem ég tók fyrst eftir voru þær syst-
ur Mrs. Emily Thorson og Mrs.
Aurora Jóhannsson, — dætur Mr.
Andersons af fyrra hjónabandi, báð-
ar mætar og menntaðar konur. Guð-
rún Emily útskrifuð B.A. af Manitoba
Colloge, er gift Hafsteini Júlíusi
Thorson, húsabyggingameistara í
Vancouver, hinum efnilegasta manni
og bezta dreng.
Aurora tók miðskóla undirbúnings-
próf hér í Vancouver en þá kom Jó-
hann sonur góðskáldsins Sigurðar
Jóhannssonar fram á sjónarsviðið,
ungur og glæsilegur og nýútskrifað-
ur frá iðnskólunum miklu í Scranton,
P. A. og gerði henni igóð boð um
betri kjör sem hún auðvitað þáði.
Jóhann er nú verkstjóri á járnþynnu
og blýsmíðaverkstæði Cunningham &
Trapp í New Westminster, B. C.
Hann er ötull og vinsæll verk-
stjóri, og auk þess góður drengur í
hvívetna. Mr. Anderson kom til
þessa Iands meðan liann enn var á
æskuskeiði, og er því að mestu alinn
upp í þessu landi. Kvæntist víst
ungur, fyrri konu sinni, sem ég hef
heyrt að verið hafi greind kona og
vel látin, en missti hana eftir tiltölu-
lega stutta sambúð.
Gæfan hefir, að því er ég held, á-
valt verið Mr. Anderson hliðholl og
velviljuð, ag vel fórst henni við hann
1904 þegar hún sendi honum nýtt
konuefni: Þorbjörgu Guðnadóttur úr
Borgarfirði, austur, þá í blóma lífs-
ins og miklum marmkostum búna;
—hina núverandi konu hans. 1907
fluttust þau hjón frá Winnipeg, Man.
hingað til Vancouver, B. C., og hafa
búið hér ávalt síðan. . Þeim hef-
ir orðið átta barna auðið — sjö af
þeim eru stúlkur, og einn sonur, —
öll einkar myndarleg og vel gefin.
Flest eru þau nú upp komin; dæturnar
5 gjafvaxta, 2 af þeim giftar, 2 skóla
kennarar, ein vinnur við verzlun sem
stendur, eða þangað til kalliS kemur.
Tvær eru enn á unga aldri, og því ó-
ráðnar gátur, en fallegar og efnileg-
ar eins og hinar. Drengurinn, Bald-
vin að nafni, 16 ára að aldri, er
efnilegur nemandi hjá ágætum fiðlu
og slaghörpukennara Bjarna Frið-
leifssyni, hér í borg. Baldvin á
ekki langt að sækja þó honum láti
vel að fara fínum fingrum um strengi
gigjunnar, því faðir hans gat það
lika, svo að til þess var tekið á yngri
árum sínum, og var þvi talinn hrókur
alls fagnaðar i samkvæmum og 4
mannamótum; auk þess lipur ræðu-
maður; hefir enda aflað sér víðtæk-
ari upplýsingar en almennt er um ó-
skólagengna alþýðumenn. Hann er
ótrauður starfsmaður í öllum góðum
félagsskap, sem íslendingar fást við;
var enda hátt settur emlbættismaður
Goodtemplara reglunnar meðan hann
var i Winnipeg.
Nú heyrðist þytur á götunni fyrir
framan húsið. Ök nú skrautvagn
með miklum hraða, og vatt sér lið-
lega að gangstéttinni, og stigu þá
Andersons hjónin út úr honum, en
voru þá gripin af mörgum vina-
höndum sem bókstaflega báru þau
inn og settu þau á brúðarbekkinn sem
beið eftir þeim, þakin mjúkum blóm-
saumuðum sessum, fyrir miðju borði
sem skreytt var fögrum og vönduð-
um silfurborðbúnaði.
iSteig þá fyrrum kaupmaður Árni
Friðriksson fram, gagnvart brúðhjón
unum, sem hvorki datt eða draup nú
af, hafði orð fyrir gestunum og bað
um að sunginn yrði sálmurinn nr.
589 í sálmabókinni: “Hve gott og
fagurt og indælt er,” o. s. frv., gaf
svo merki þeim B. Friðleifssyni, sem
beið með bogann á gígjunni og Lauru
dóttur sinni (Mrs. G. Johnson) sem
hafði hendur á nótnaborði slaghörp-
unnar, og svo ómuðu strengir gigj -
unnar, og hljómuðu tónar slaghörpunn
ar allt í einu og allir tóku undir sem
gátu, og svo vel sem þeir máttu því
allir virtust vera í essinu sínu þetta
kveld — hluttekningin einlæg ag al-
menn.
Þegar búið var að syngja sálminn
flutti Mr. Friðriksson laglegt og vel
viðeigandi ávarp til silfurbrúðhjón-
anna, og afhenti þeim að lokum dá-
lítinn sjóð — $100.00 í silfri sem
vinsemdar og þakklætisvott til þeirra
frá viðstöddum vinum sem þátt áttu
í að heimsókn þessi átti sér stað..
Allt fórst Mr. Friðrikssyni þetta svo
hönduglega að auðsætt var að hann
er enginn viðvaningur, heldur kann
reiprennandi alla þarna viðeigandi
takta og nótur samkvæmislífsins,
pnda er hann þaulvanur ræðumaður
og félags-frömuður. Næst flutti Mr.
Halldór Friðleifsson einkar eftir-'
tektarvert erindi í bundnu og óbundnu
máli. Þar næst Mrs. Durkin, sem
gengur á háskóla suður í Californiu,
stutt en fallegt erindi.
síðustu með ísköldum kryddflautum
eða freðflautum.
Silfurbrúðhjónunum bárust bréfleg-
ar árnaðaróskir víðsvegar að; hrað-
skeyti frá vinum og venzlafólki í Ár-
borg og Leslie, Sask.
Falleg og skáldleg hugvekja frá Mr.
og Mrs. Lyngholt í Ocean Falls, B.
C. Skrautritað þakklæti og árnaðar-
ósk frá stúkunni Heklu í Winnipeg.
Vandaður silfurborðbúnaður frá
börnum þeirra. Skrautrituð skrá
með yfir 80 nöfnum vina þeirra í Van
couver og grendinni, sem þátt tóku í
samkvæminu, bundin í vandaða leður
kápu, — skrautlegur gripur, gerður af
miklum hagleik.
Um klukkan tólf fór fólkið að
kveðjast og kveðja hjónin, óskandi
og vonandi að mega sitja gullbrúð-
kaupið þeirra. Hvort sú ósk rætist
veit sá einn er gaf þau saman upp-
haflega. En heimleiðis fóru víst
bæði ég og aðrir þakklátir og glaðir
í huga yfir því að hafa notið svona
ósvikinnar ánægju og skemtunar
þetta eftirminnilega kveld. — Lamg
fjölmennasta mannfögnuðinn af því
tagi, sem ég minnist að hafa verið
við riðinn hér í Vancouver, þó oft
hafi vel verið.
—ViSstaddur.
Lögberg er vinsamlega beðið að
birta framanskrifaða frétt.
Til Mr. og Mrs. Anderson
25 ára hjónabandsminning
sjálf við skiljum fátt;
undir lögum lífið breytir högum,
lagast blitt og strítt,
friður heima hann mun gleði geyma,
eignast eitthvað nýtt.
íslendingur oft þó reynist slingur
einn er gallinn hans,—
gleyma að safna, vilja vegi jafna
Hin nýjasta allra rafhljóm
véla — Victor Radio með
Electrola, nýfundin upp
er eitt hið merkilegasta á-
hald nútímans og ári á
undan öllu öðru á markað-
inum. Þú þarft að heyra
hana til að geta öðlast
hugmynd um hina óvið-
jafnanlegu hljómfegurð.
$375.00
Hér er efni, aðeins eitt ég nefni,
efni í nýjan brag,
ljóð að vanda vil í hreinum anda,
vinna lífi hag;
minnast stunda, góðra gleðifunda;
greinir hjartans þökk
fyrir gæði, sem þið sýnduð bæði,
minning muna klökk.
Fjórðung aldar lágu leiðir valdar
lífs af æðri mátt,
lögum settar, saman leiðir fléttar,
$25.00 niðurborgun og 20
mánaða afborganir
Vægustu skilmálar
í Canada
gar^ent Ave, at gherbrook.
A:;;; t I M
The Empire Sash & Door Co., Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
B U R
KA UPIÐ
AF
Þá flutti Sigurður skáld Jóhannes-
son ræðu og hið fallega kvæði er
fylgir þessu skrifi.
Að síðustu sagði sá, er þessar lín-
ur ritar, nokkur orð, samkvæmt bend
ingum þeim frá kunningja sínum,
sem getið er um í upphafi þessa
máls.
Silfurbrúðguminn stóð þá upp, á-
varpaði gestina fyrir hönd sina og
konu sinnár, þakkaði velvildina, viður
kenninguna og vinsemdarmerkin, sem
þeim voru sýnd, og fórst það vel,
eins og við mátti búast.
Eftir þetta skemti fólk sér við
söng íslenzkra ljóða og laga, hljóð-
færaspil o.g samræður. Söngnum
stýrði Mr. Bjarni Friðleifsson, að-
stoðaður af Mrs. Gales en aðrir sungu
sem mest þeir máttu og varð af þessu
glaumur og gleði mikil því allt fór
fram á okkar eigin hljómfagra ís-
lenzka máli.
Um kl. 11 voru víst flestir orðnir
hásir, — nema hljóðfærin, —en kven-
þjóðin bætti úr þvi með íslenzku
kaffi og margvíslegu sælgæti, og að
Skrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
STUCC0 semábyrgst er
The TYEE STUCCO WORKS gefur þér fimm ára
ábyrgð á Tyee Stucco þegar notað er samkvæmt þeirra
ráðleggingum.
Þó ábyrgðin nái aðeins til fimm ára, er auðvitað
varan góð alla æfi þína.
Skrifið eftir nöfnum þeirra plastrara
sem nota það samkvæmt þessari á.
byrgð.
i
E=r.. I
Tyee Stucco Works
ST. BONIFACE MANITOBA
Góð Mjólk er
ódýr á ölluverði
Ódýrasta og sparnaðarsam
asta fæðan fjrir fjölskyld-
una er—
C I T Y
MILK
Skamtið hverjum á heim-
ilinu pott á dag af CITY
MILK.
1 I
Stofnað 1882.
Löggilt 1914.
! D. D.Wood& Sons, Ltd.
▲ * 9
VICTOR A. WOOD HOWARD WOOD LIONEL E. WOOD
President Treasurer Secretary
(Plltnrnlr nem Allum rejnn n* þAknnnt)
Verzla með:-
BYGGINGAREFNI — KOL og KOK
Búa til og selja:-
SAND-LIME BRICK — CONCRETE TILE
SAND — MOL OG MULID GRJOT
Gefið oss tækifæri
SÍMAR 87 308 — 87 309 — 87 300
Skrifstofa og verksmiðja:
1028 Ariington Str. (milli Ross og Elgin) Winnipeg.
É
MC