Heimskringla - 14.01.1931, Qupperneq 1
DYERS & CLEANERS, LTD
SPECIAL
Men’s Suits Dry * aa
Cleaned & Pressed3 I
(Cash and Carry Price)
Delivered, $1.25
Buttons Tightened, Replaced
and all Minor Reparirs Free
DYERS & CLEANERS, LTD.
SPECIAL
Ladies’ Plain Silk d AA
Dresses Dry Cleaned 4^ liUU
& Finished
(Cash and Carry Pricel
Delivered, $1.25
Minor Repairs Free
XLV. ARGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 14■ JANtrAR 1931.
NOMER 16
Stefán Jón Pétursson
Sá sorglegi atburður vildi til laug-
ardagskvöldið 3. janúar s.l., að Ste-
fán Jón Pétursson, að 744 Banning
St. hér í bænum, fannst örendur í bíl-
skýlinu að húsabaki, þar sem hann
hafði verið að ganga frá bíl sínum
Hafði hann farið út kringum kl. 3
um daginn með bréf á pósthúsið, og
dvalið siðan hjá kunningjum sinum
lengi dagsins, án þess að nokkur undr-
aðist um hann', með þvi að hann var
slíku vanur, þar sem hann var at-
vinnulaus í svipinn og hafði verið það
I tvo mánuði. Vita menn ekki glögt
um hvenær hann kom heim. En um
kl. 9.40 um kvöldið ætlaði systir hans
Edith, að bregða sér út í búð, og verð-
ur um leið litið inn í bílskýlið, og sér
hún þá sér til undrunar að bíllinn er
kominn heim. Opnar hún þá hurðina
og skyggnist nánar um, og finnur hún
þar bróður sjnn liggjandi á grúfu við
stærri hurðina, er einnig var lokuð,
með engu lífsmarki. Fónaði hún þeg-
ar eftir hjálp og læknum, en allar lífg
unartilraunir reyndust árangurslaus-
ar. Gáfu læknarnir þann úrskurð, að
hann hefði látist af gaseitrun (carbon
monoxide gas). Hyggja menn að
Stefán muni hafa komið heim um
níu leytið. Var það siður hans jafn-
an, að loka stærri hurðinni á bílskýl-
inu áður en hann slökkti ljósin á bíln-
um og tók vélina úr gangi. Hafði
þetta aldrei komið honum að sök. En
annaðhvort hefir minni hurðin á bil-
skýlinu slegist aftur undan stormi, og
innibyrgt þannig hina eitruðu loftteg-
und, eða hann hefir dvalið óvenjulega
lengi inni meðan hann lét vélina
ganga. Hvort heldur sem hefir verið,
þá hyggja menn, að meðan hann laut
niður til að reka slagbrand fyrir hurð
ina að neðan, hafi hann andað að sér
gasinu, sem réði honum bana. En gas
þetta er svo baneitrað, að það drep-
ur á augabragði.
Stefán Jón Pétursson var fæddur á
Stóru-Þverá í Vestur-Fljótum í
Skagafjarðarsýslu á Islandi, 10- júní
1902, sonur hjónanna Björns Péturs-
sonar, sem lengi var póstur hér i
Winnipeg, og Dorothy Jóelsdóttur, er
nú býr að 744 Banning St., Winnipeg.
Björn hefir nú dvalið rúmlega hálft
á.r á íslandi.
Til Canada fluttist Stefán með for-
eldrum sínum rúmlega' tveggja ára,
og komu þau hingað til Winnipeg
seint á sumrinu 1904, og hefir hann
dvalið hér lengst af síðan. Var hann
við nám í Jón^ Bjarnasonar skóla
veturna 1924 og 1925. Annars lærði
hann málaraiðn (sign painting) ung-
ur og hefir síðan stundað það starf
öðruhvoru. En lengst af, eða í átta
ár alls, hefir hann unnið hjá félag-
inu Famous Players Canadian Cor-
poration Ltd., á leikhúsum þeirra oft-
nst nær.
Stefán var eigi aðeins elskaður af
fjölskyldu sinni og vinsæll af félög-
um sínum, heldur og í mjög góðu á-
liti hjá yfirmönnum sínum, sem töldu
að eigi yrði til hans jafnað um sam-
vizkusemi og áreiðanleik. Hann var
fremur dulur i skapi og óframur, góð-
lýndur og gæfur að hversdags fari, en
lundin þó hreint ekki lítil, þegar máli
skifti. Má taka það til marks um
kapp hans, að hann lét innritast í 197.
herdeildina vorið 1916, þá aðeins 13
ára gamall, og dvaldist hann við her-
æfingar fram á haust, en fékk þá eigi
að fara yfir um sökum æsku.
Er hans sárt saknað af mörgum
vinum sem góðs drengs í hvivetna.
—Auk foreldra hans lifa hann og eiga
honum á bak að sjá, sex syst-
kini: fjórar systur: Mrs. Freysteins-
son, Mrs. Ölafsson og Miss Edith Pet-
erson, sem búa með móður sinni hér
í bænum, og Mrs. Paul, sem búsett
er í Chicago, og tveir bræður, Jóel,
hér í Winnipeg og Pétur bóndi á Mýr-
um í Sléttuhlíð á Islandi.
Jarðarförin fór fram frá kirkju
Sambandssafnaðar í Winnipeg mið-
vikudaginn 7. jan. s.l., að viðstöddu
miklu fjölmenni. Fluttu þeir, séra
Benjamín Kristjánsson og séra Philip
Pétursson ræður, en Mrs. K. Jóhann-
esson og séra Ragnar E. Kvaran
sungu einsöngva.
B. K.
SIGURÐUR SKAGFIELD SYNGUR.
Eins og skýrt var frá í síðasta blaði,
dvelur Sig. Skagfield óperusöngv-
ari hér á meðal landa sinna vestra um
þessar mundir. Er það í fyrsta sinnl
sem hann kemur til Vesturheims, en
samt mun hann hér mörgum kunnur,
því hróður hans sem söngvara var
hingað kominn á undan honum. Og
með göldrum nútímans hafa einnig
allmargir hér heyrt söng hans. En
þeir sem það hafa gert, munu eigi
síður en hinir, sem nú eiga von á að
hlusta á hann í fyrsta sinn, með ó-
þreyju bíða þess, að sjá og heyra
manninn sjálfan syngja. t>ó að nokk-
ur tími sé enn þar til hann hefir sam-
komu hér, getum vér samt ekki stillt
oss um að segja íslendingum frá þvi,
að Mr. Skagfield hefir nú ákveðið að
syngja hér mánudagskvöldið þann
26. janúar, í fyrstu Lúthersku kirkj-
unni á Victor stræti hér í bæ.
Mr. Skagfield hefir tjáð oss, að
hann hafi hingað komið aðeins til að
sjá sig um í Vesturheimi og kynnast
Islendingum hér, en ekki til þess að
syngja. En þar sem að það er nú á
vitorði Islendinga, að hann sé einn
með beztu íslenzkum söngvurum, verð
ur ekki hjá þvi komist að hann syng:
hér; ætti hann og að gera það sem
viðast. En tími hans er naumur, því
hann er fyrirfram ráðinn um fleiri
ár að syngja í Evrópu.
En fari nú svo, að hann komi þessu
við, ættu íslendingar ekki að sitja
sig úr færi með að hlýða á hann og
kynnast manninum persónulega, því
þeim mun það einnig til ununar verða
eins og söngur hans.
Aðgangur að skemtun hans höfum
vér heyrt að væri aðeins 50 cents.
Borið saman við það, sem vér höf-
um átt að venjast, er erfitt að trúa
þessu, en það sem auðsjáanlega vakir
fyrir með þvi, er að gera sem flestum
sem auðveldast með að sækja sam-
komuna.
BENNETT SPARAR
MANITOBA $700,000.
A fundi 6. janúar, er Rt. Hon. R. B.
Bennett sat með forsætisráðherrum
Sléttufylkjanna, í Winnipeg, lýsti
hann þvi yfir, að hann ætiaðl að efna
loforð sitt í kosningunum í júlí s. 1.
sumar, um að ellistyrkurinn yrði
greiddur af sambandsstjórninni.
Þetta sparar fyljunum feikna mikið
fé, því samkvæmt núverandi lögum
greiða þau helming ellistyrksins. —
Nemur hlutur Manitobafylkis eins
$700.00. En við þann kostnað losnar
nú fylkið að öllu leyti, nema að því
leyti sem eftirlit eða framkvæmdir á
lögunum snertir, sem ekki mun þó
meiru nema en sem svarar 5% af
öllum kostnaðinum.
Til þess að mæta útgjöldum, sem
af ellistyrknum stöfuðu, lagði Mani-
tobastjórnin þeim mun hærri skatt á
sveitar- og bæjarfélögin. Ætti hún
nú að lækka sveitarskattinn að
minnsta kosti sem þessu nemur, þar
eð byrðinni er nú af fylkinu létt.
VERKAFÖLLIN A ENGLANDI
Astandið á Englandi er nú eitt hið
erfiðasta- Síðan um nýár hefir víð-
tækt kola verkafall staðið þar yfir,
og síðast í gær voru engin líkindi til
að sættir komust á milli verkamann-
anna og námaeigenda. Verkfailið var
hafið út af þvi að námueigendur vildu
lengja vinnutímann i hverri viku án
þess að hækka kaupið. En verka-
menn skoða þetta leið til þess að
færa kaupið niður, án þess að það
kæmi í baga við lögin, en samkvæmt
þeim er bæði kaup og vinnutímj á-
kveðið. Um 200,000 manns taka þátt
í þessu verkfalli.
Og svo er nú ekki nóg með þetta.
Viku seinna gengu um 300,000 verka-
menn út úr ulla-verksmiðjunum og
gerðu einnig verkfall. I ullarverk-
smiðjunum fóru eigendurnir fram á
að vefstólum væri fjölgað á hvern
mann, sem auðvitað hafði það í för
með sér að gefa færri vjnnu. Þessu
mótmæltu verkamenn með því að
gera verkfall. Er þvi með þessum
verkföllum hálfri miljón manna bætt
við í hóp þeirra, er atvinnulausir voru
áður.
Stjórnin virðist ekkert við þetta
geta ráðið. En eftir því sem að verk-
fallið stendur lengur yfir, eftir því
versnar hagur verkamannanna. Og
nú er ekki annað sjáanlegra, en að
stjómin verði jnnan skamms að
standa straum af öllu saman, ef eng-
in ráð verða fundin til að binda enda
á verkfallið. En allar tilraunir stjóm-
arinnar að koma sættum á milli verk-
amanna og vinnuveitenda, hafa al-
gerlega misheppnast til þessa. A-
standið má þvi yfjrleitt iskyggilegt
heita.
BOLLALESTUR TALINN
GLÆPSAMLEGUR.
Það er erfitt að gera sér grein
fyrir þvi í fljótu bragði, þegar maður
situr við kaffiborð með hóp af ung-
um og glaðværum stúlkum utan um
sig, þyljandi forlög manns af bolla-
lestri, að þá sé maður í raun og veru
umkringdur af glæpafólki. En þetta
er nú það, sem lögin segja samt um
það-. Og hver sem bollalesturinn
fremur, hefir unnið sér til eins árs
betrunarhússvistar með því.
I Winnipeg var kona ein nýlega köll
uð fyrir dómstólana til þess að svara
fyrir brot af þessu tæi. Heitir hún
Margrét Krafield og játaði hún sekt
sína, með því að hún hafði ekki haft
hugmynd um að hún væri að fremja
lagabrot. Hún hafði lesið í bolla og
spil heima hjá vinum sínum og á
kirkju-bazaars og setti ekkert fyrir
það, en tók þó við því, ef eitthvað
var gefið og jók með því tekjur baz-
aarins Fyrir sjálfa slg hafði hún ekki
tekið við peningum fyrir þetta starf.
Við tughúsvist slapp konan þó, með
því að þetta var svo nýstárlegt laga-
brot. Sagði dómarinn að sér hefði
ekki fyrri dottið það í hug, svo al-
gengt sem það væri að fólk læsi i
bolla, að það væri lögum gagnstætt.
En um það væri þó ekki að villast, að
forlagalestur væri það-
LAGLEG GJÖF.
Sir Thomas Lipton, auðmaðurinn
mikli, gaf borginni Glasgow á Skot-
landi $50,000 nýlega, með þeim um-
mælum, að þeim væri útbýtt milli
fátækra mæðra og barna í fæðingar-
borg hans.
Gjöf þessa kvað hann gefna til
minningar um móður sína, “sem verið
hefði leiðarstjarna lífs síns”, og í við-
urkenningarskyni fyrir velvild þá, er
borgin hefði svo oft sýnt sér.
M ANITOB AÞIN GIÐ.
Manitobaþjngið kemur saman 27.
janúar n- k.
Helztu málin, sem fyrir þingið
verða lögð, snerta fjármálin. Lög-
gjöf viðvíkjandi gerðum stjórnarinn-
ar í atvinnuleysismálinu, verður að
samþykkja. Nemur féð, sem fylkið
hefir nú þegar lagt fram til þeirra
mála, $1,200,000. Einnig verður þjng-
ið að samþykkja aukalög þau, sem
sveitirnar urðu að semja án þess að
spyrja skattgjaldendur að því, og að
þvi lutu að • heimila sveitunum að
styrkja þá með fjárveitingu, er í nauð
kynnu að vera staddir.
Eitt af því sem þingið verður að
greiða atkvæði um, er talsverð fjár-
upphæð fyrir kaup á orkuverinu, The
Brandon Gas and Electrjc Co., þó
féð fyrir það komi að nokkru annars-
staðar frá.
Vegna loforða um að lækka sveitar-
skattinn, er gert ráð fyrir að hækka
þurfi skatta, og er hækkun á hækk-
un ofan á gasólínskatti fyrirhuguð.
Fleiri nýja skatta kvað einnig þurfa
að uppgötva- Auk ábyrgðarinnar,
sem fylkið tók sér á herðar fyrir
Hveitisamíagið, er bújst við miljón
dollara tekjuhalla á liðnu ári.
BYLTINGU AFSTYRT
I ræðu er Rt. Hon. David Lloyd
George hélt nýlega í Bornemouth á
Englandi, komst hann svo að orði,
að það hefði fyrir löngu verið skoll-
in á bylting á Englandi, ef stjórnin
hefði ekki séð atvinnulausum mönn-
um fyrir framfærslueyri (dole).
En með því kvað hann þó ekkj þar
með sagt, að slík fjárveiting væri
hin ákjósanlegasta. Hann kvaðst
heldur hefði viljað sjá féð veitt á þann
hátt, að ráðist hefði verið í einhver
störf er mönnum veittu atvinnu.
Hann var að leggja hornstein í sjó
herskála-byggingu er kostar um 650-
000. og sem mörgum veitir atvinnu
er hann hélt þessu fram. En atvjnnu-
leysi var han nhræddur um að væri
að færast yfir heiminn vegna ofmik-
ils auðs, ofmikils korns, járns, kola,
stáls og annarar framleiðslu. En
eins lengi og brauðmylsna væri í eld-
hús skáp þjóðfélagsins, ætti enginn
þegnanna að svelta.
SVERTINGI BRENNDITR.
I Maryville, Missouri í Bandaríkj-
unum, var svertingi nýlega brenndur
á báli. Hafði hann það til saka unn-
ið að myrða 19 ára gamla stúlku,
skólakennara þar í sveitinni, er hið
mesta illverk þótti, svo að mlnn mynd
uðu samtök sín á» milli, fóru til og
tóku svertingjann úr höndum lögregl-
unnar, og líflétu hann á þann hátt
sem hér segir. Hann var bundinn
uppi á þaki skólahússins, þar sem
hann hafði framið morðið. Var síð-
an kveikt í húsinu, sem var timbur-
hús, og logaði brátt húsið og svert-
inginn upp. Um þrjú þúsund manns,
karlar, konur og börn, tóku þátt i
þessari athöfn.
LANDSSTJÓRI VOR KVEÐUR.
Willingdon landsstjóri Canada lagði
alfarjnn af stað í morgun frá Otta-
wa, til þess að takast á hendur hina
nýju stöðu sína sem vísikóngur Ind-
lands.
MOKAR HVEITINU
INN I BANKANN.
Bóndi nokkur í nánd við Edmonton,
Alta., fór með æki af hveitikoml s.l.
mánudag til bæjarins til að selja
það. En hveitið hafði verið veðsett
banka einum 1 Edmonton. Bóndi fór
til þriggja kornkaupmanna i Edmon-
ton og reyndi að selja þeim hveitið.
En þeir vildu ekki kaupa nema því
aðeins að bankinn fengi andvirðið.
Lelddist bónda þóf þetta, og til þess
að losna við hveitið, ekur hann upp
að byggingu banKans, brýtur rúðu i
glugga, sem var á skrifstofu banka-
stjórans og eys hveitinu inn á skrif-
stofugólfið. Bankanum var lokað
þessa stund dagsins og voru þvi eng-
ir inni, er þetta skéði. En hveitið
flaut yfir skrifborð og stóla. Þegar
bóndi hafði lokið þessu verki, og ók
í burtu, heyrðu þeir, er leið áttu þarna
um, hann tauta við sjálfan sig, að
helv.... bankinn gætj nú ekki sagt,
að hann hefði ekki fengið hveitið.
En af bankastjóra er það að segja,
að þegar hann sá hvað orðið var, lof-
aði hann sinn sæla fyrir það, að hafa
ekki einnig haft veð á nautpeningi
bóndans.
ERFIR EINN DOLLAR.
Kona nokkur, er Mrs. Hulda E.
Tingle heitir og heima á í Philadel-
phia, afhenti skjftaréttinum erfða-
skrá sína nýlega- Eignir hennar
námu 2,150 dollurum, og skiftást á
milli ættingpa hennar. Eiginmann á
hún á lifi, er hún gleymdi ekki, þó
hún hafi mikið liðið hans vegna, og
þau hafj ekki um langt skeið búið
saman, því i erfðaskránni ánafnar
hún honum einn dollar, en með þeim
ummælum þó, “að hann sé fyrir kað-
alspotta handa honum til að hengja
sig í”.
FRÁ ÍSLANDI.
Siglufirði, 4. des.
Afaróstilt tíð og stormasöm. Má
heita, að óslitinn jarðbönn hafi verið
hér frá veturnóttum, þar til blotaði
um siðustu helgi. Snjór þá talsverð-
ur. Ofsarok í nótt að suðvestan. Fauk
járn af einu íbúðarhúsini og skemdist
lítils háttar á fleirum. Sjaldan gefur
á sjó, en ágætis afli, þegar gefur.
Síðast — fyrir fjórum dögum — afl-
aði hæsti báturinn 8 þúsund pund.
Suðvestanrok í dag og snjóél- Tveir
botnvörpungar leituðu hafnar hér í
nótt.
* * *
Rvík. 9. des.
Úr Dýrafirði er skrifað 27 f. m.:
Hér hefir verið stormasamt og oftast
margir botnvörpungar inni í firði. —.
Almennur áhugi er fyrir útvarpsmál-
inu, og samþykti sveitarfundur hér að
setja upp tæki í þinghús hreppsins
og gæti svo almenningur safnast þar
saman sér til fróðleiks og menning-
arauka, til að hlusta á það, sem menn
vona að á boðstólum verði, þ- e. hið
bezta af andlegri framleiðslu þjóðar-
innar. Hér er mentamálum sýnd mikil
rækt. Stofnaður var unglingaskóli
hér á Þingeyri í haust og starfar i
kenslustofum barnaskólans. Nemend-
ur eru 21. Ennfremur var stofnuð
kensludeild fyrir börn innati 10 ára
aldurs. Eru þar 17 börn.
• * *
Rvík. 9. des.
Cr Mýrasýslu er skrifað: Fénað-
arhöld hafa verið fremur góð yflrleitt
Bráðapest gerði víða vart við sig i
haust, en allir bólusettu fé sitt, svo
pestin gerði ekki neitt verulegt tjón.
Margir hafa reynt islenzka bóluefnið,
en ekki er hægt að segja um það
enn, hvort það reynist eins vel eða
betur en það danska. Ymsir hættu
líka við að nota það, sem voru búnir
að kaupa það, vegna þess, að eitt
"númer” reyndist of sterkt, drap á
einum bæ helming af því, sem bólu-
sett vár.
• * *
Leitin að togaranum Apríl.
Rvik. 6. des.
Leitin hefir ekki borið árangur, enn
sem komið er. Varðskipið “óðinn’
var árdegis í dag búið að leita á
svæðinu frá Vestmannaeyjum 115 sjó-
mílur þaðan til suðausturs og frá
þeim stað I stefnu á Ingólfshöfða og
með fram ströndunum í Meðallands-
flóanum- Einnig hefir “öðinn” leit-
að djúpt og grunt á svæðinu innan
við þá línu, sem áður greinir. “Ægir”
kom austan með landi, leitaði með
fram strönduum Mýraflóans og alt
að 50 sjómílur út til hafs. — Leit-
inni er haldið áfram.
Þessir menn eru á togaranum:
Jón Sigurðsson, skipstjóri,
Jón ö. Jónsson, 2. vélstjóri.
Kjartan Pétursson, háseti.
Helgi Guðmundsson, háseti.
Pétur Asbjörnsson, háseti.
Magnús Brynjólfsson, háseti.
Einar Guðmundsson, háseti.
Kristján Jónsson, kyndari.
Páll Kristjánsson, háseti.
Sigurgísli Jónsson, háseti.
Theodór ólafsson, loftskeytamaður.
Einar Eiríksson, 1. vélstjóri.
Magnús Andrésson, háseti.
Eggert Ketilbjarnarson, kyndari.
Þórður Guðjónsson, matsveinn.
Auk þess er talið, að 2 farþegar
hafi verið með skipinu frá Englandi.
• • •
Rvik. 8. des.
Leitinn að “Apríl” var hætt í gær-
kveldi og höfðu varðskipin þá verið
að leita hans í 3% sólarhing, en á-
rangurslaust- Var siðast leitað djúpt
út og suður af Vestmannaeyjum. Hef-
ir verið leitað alla leið astur fyrir
land og vestur fyrir Vestmannaeyjar
til hafs.
Farþegar á “Apríl” eru Pétur Haf-
stein bæjarfulltrúi og Ragnar Kristj-
ánsson, Sæmundssonar, héðan úr
Reykjavik.
Auk þeirra skipverja á togaranum,
sem blaðinu var kunnugt um I fyrra
dag, er Einar Hannesson, Laugavegi
11, hjálpmatsveinn, 17 ára.
Fálkaflug.
Einn hinn snarpasti bardagi er Fálk-
arnir hafa lent I, var háður við Vík-
inga þann 7. þ. m. Þegar i byrjuu
var leikurinn háður af miklu kappi.
Sóttu Fálkarnir fast fram og var auð-
séð, að hér var um vel hugsað áhlaup
að ræða og enginn leikur til ónýtis
gerður; enda klufu Fálkarnir ljð Vík-
inga, og Robert Jóhannesson skaut
plötunni í mark, og var það fyrsti og
eini vinningur sem Fálkarnir fengu I
leiknum.
Víkingar rumskuðust nú nokkuð
við þetta áfall, en hér var ekki við
lambið að leika sér, því Fálkarnir
voru komnjr í vígamóð og óðu nú
hvað eftir annað I gegnum sóknarlið
Vikinga, en Vikingar höfðu tvo bak-
verði, er ekki létu sig, þá Halldór
Bjamason og Jón Peterson, og vom
þeir sem Þrándur í Götu, og gátu
Fálkarnir ekki brotið þá á bak aftur.
Gekk því skothríðin mest frá mið-
svelli á hafnvörð Víkinga, er varði
markið af mjklum fimleika. Þessu
áhlaupi var haldið áfram í 59 mínút-
ur, og voru Fálkarnir mest af þeim
tíma við bláu röndina, sem dregin er
framan við bakverði. Sýnir það, að
leikurinn var mestmegnis háður á
landareign Vikinga.
Þóttust nú Fálkarnir vjssir um sig-
ur, því nú var ekki nema ein min-
úta eftir til leiksloka. En allt ieinu
brutust Víkingar fram, og var sú
atrenna svo snörp, að Fálkarnir fengu
engri vörn við komið, og var nú sótt
all snarplega að markverði Fálkanna
en hann varðist sem bezt, en að lokum
skaut Karl Thorsteinson plötunni I
markjð fram hjá Jóni Bjamasyni,
markverðinum, og um leið var merk-
ið gefið að leiknum væri lokið. Stigu
því Víkingar og Fálkar af svellinu
jafnir að vinningum.
Annað jafnvígi var og háð milll
Natives og Geysjr, og höfðu hvorir
fimm vinninga. Var sá leikur háður
fyr um kvöldið. Má telja fremsta i
þeim leik Wally Bjarnason frá Na-
tives og Skúla Anderson frá Geysir;
en yfirleitt gerðu þó allir flokksmenn
mæta vel.
Fálkarnir efna til íþróttasýningar
þann 22. þ. m. A þeirrj samkomu
heldur ræðu dr. J. T- Thorson, K. C.
Allir Islendingar, er vetlingi geta
valdið ættu að sækja þá samkomu.