Heimskringla - 04.03.1931, Blaðsíða 3
WINNIPEG 4. MARZ 1931.
HEIMSKRINGLA
3 BLAÐSIÐA
að, en mig létu þau ekki gjalda
Þess í neinu, og tóku við mér um-
yrðalaust, sem væri og lambið henn-
ar Maríu.
Þegar nú við vorum komnar í
góða höfn, var fyrsta verk okkar
að leita uppi bílstjóra Klements —
1)0 r&a honum farareyri okkar, og
koma farangri okkar í tjald þeirra
Brímnes hjóna, að því búnu fórum
við litast um og taka eftir því,
sem fyrir augu og eyra bar, með
öðrum orðum — gefa okkur að
hátiðahaldinu.
Hegranesþing.
Svo stóð á því, að þeir Skagfirð-
lngar sem farið höfðu á Alþinishá-
^íðina suður, komu sér saman um,
að kalla til^ þings á þessum forn-
fræga sögu- og þingstað Skagfirð-
inga. Skyldu þeir er Alþingishátið-
ina sóttu, þar skýra þeim er heima
sátu, frá því er þar fór fram. Hafa
Skagfirðingar jafnan notað Hegra-
nesið til allra stærri mannfunda,
Þegar veður leyfir. Var þvi eðlilegt
aö þeir mundu gera það nú. Enda
er staður sá sérlega vel til þess
fallinn vegna afstöðu hans. Geta
öienn er langt eiga að sækja kom-
ist þangað sjóleiðis, utan af Skaga-
strönd og beggja megin Skagafjarð-
ar- alt norðan frá Siglufirði — já,
n°rðan og vestan, þaðan sem slík
ferð er þægilegri og styttri en land-
leiðir. Heyrði eg sagt, að þenna
dag, hefði fólk verið þar úr fjórum
næstu sýslum á báða vegu, auk
ferðafólks, lengra að, o. s. V.-lsl.
sem voru þar fjölmennir, og að allur
mannsöfnuður þar samankominn hafi
ei verið undir tvö þúsundum. Hefir
mig furðað á því, að sjá ekkert
um ' þessa f jölmennu samkomu í
Vestur-lsl. blöðum. Getur það kann-
ske, hafa farið framhjá mér?---
Frh.
FRÁ ÍSLANDI.
HORFURNAR f I>VSK\LANDI
I danska blaðinu “Ber-
lingske Tidende’’ birtist
nýlega grein eftir Ebbe
Munch og heitir “Tysk-
iand veð Aarsskiftet”.
Hún lýsir í fáum orðum
horfunum í Þýskalandi
núna. og er bví birt hér
í lauslegri þýðingu.
stjórnmálalífi og viðskiftalífi Þýska-
lands? Skyldi herhlaup Nazista rífa
á þessu ári grunnin undan 12 ára
líkamlegu og andlegu erfiði þjóð-
arinnar ?
Þegar bæjarstjórnarKosningamar
fóru fram i Bremen, aðeins tveim
mánuðum eftir hinar furðulegu þing-
kosningar 14. sept., juku Hitlers-
NÝTT ÚTSÝNI
Nýtt útsýni opnast fyrir þeninga manninum. Ef þér
hafið dregið saman $1,000.00 þá getið þér litið með
fullu trausti á framtíðina,—byrjið á sparisjóðs innileggi
strax.
$1,000.00 á 4 árum—kosta $940.16 með
$4.52 innileggi á viku.
$1,000.00 á 3 árum—kosta 956.28 með
$6.13 innileggi á viku.
$1,000.00 á 2 árum—kosta $970.32 með
$9.33 innileggi á viku.
The Rpyal BanK
of Canada
Prepare Now!
Better times will come, much sooner
than most people anticipate. The re-
sult will be a keen demand for. steno-
graphers, secretaries and bookkeepers,
to fill the openings made vacant by the
late financial depression. Right now,
office staffs are cut to the limit, and
many who have been dismissed have
gone into other occupations, or have
left the City. Besides, the number now
training for business is considerably
below the average.
A Thorough School!
The “Success” is Canada's Largest
Private Commercial College, and the
finest and best eqiuipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for study.
hi twenty-one years, since the founding of the “Success” Business
Lollege of Winnipeg in 1909, approximately 2500 Icelandic stud-
fnts have enrolled in this College. The decided preference for
Success” training is significant, because Icelanders have a keen
sense of educational values, and each year the number of our
icelandic students shows an increase.
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS C0LLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PH0NE 25 843
Verður á þessu ári bylting í
menn atkvæðamagn sitt um helm-
ing — á tveimur mánuðum hafði
fylgi þeirra tvöfaldast. Hið “reip-
um harðgreipaða” þýska jafnaðar-
manna samband stóðst ekki áhluapið,
og verkamenn hlupu uppvörpum i
flokk Hitlers, Þess vegna er enginr.
í efi um það hvemig kosningar til
ríkisþingsins myndi fara á þessu
ári, og hverja byltingu það myndi
gera í ríkisþinginu. Þess vegna
hafa miðflokkarnir og jafnaðarmenn
sameinast. Og enginn efast um hvað
Theodor Wolff á við í nýársgrein
sinni í “Tageblatt” þar sem hann
óskar þýsku þjóðinni þess, að “þetta
ár fari kosningar ekki fram.”
Stjórnin veit það vel, ag forðast
ber nýjar kosningar. 1 nýársávarpi
sínu segir Brúning, ríkiskanslari, að
þeir, sem tali um það, að Þýska
land sé nú að sigla á blindsker, hafi
rangt fyrir sér og viti ekki hvað
þeir sé að tala um. Með þessu á
hann sjálfsagt við það, að nýjar
þingkosningar þurfi ekki að fara
fram.
Það er alveg satt, að Hitler hefir
margsinnis lýst yfir þvi, að hann
ætli ekki að hrifsa til sín völdin í
Þýskalandi á ólöglegan hátt. En
Nazistar hafa séð það á seinustu
kosningum, bæði þingkosningum og
bæjarstjórnarkosningum, að þeim
hríðvex fylgi, og að nú er svo komið,
að hinir 107 fulltrúar þeirra í rikis-
þinginu hafa ekki aðeins að baki
sér 7 miljónir kjósenda, heldur 12
miljónir, þvi er efamál að um næstu
kosningar muni farið fram á “lög-
legan hátt”. Borgarstyrjöld er ljótt
orð, en því verður ekki neitað, að
jafnvel rólegir og gætnir borgarar,
gera ráð fyrir hinu versta. Það
getur farið á hinn veginn! Og eitt
er víst: Þýskaland á örðuga tíma
fyrir höndum. Striðið og byltingin
hefir leyst úr læðingi margvíslegt
öldurót, er seint mun sjatna, Hér
er eigi aðeins um að ræða það von-
leysi og þá gremju, sem gripið hefir
alþýðu, heldur liggja hér að baki
sálfræðilegar ástæður. Þjóðinni er
gert að skyldu að borga árlega i
60 ár hernaðarskaðabætur, og þess
vegna finst henni hún vera eins og
þræll, sem verður að vinna áratug-
um saman fyrir Frakka, svo að þeir
geti haldið uppi hernaðaryfirburðum
í álfunni. Þetta finst þýsku þjóðinni
sér ósamboðið, hvernig sem á er
litið. Crt af þessu er hún örvílnuð.
Sumir setja alla von sína á einræði,
aðrir á kommúnisma, en svo eru
en aðrir, sem trúa og treysta á
bræðralag þjóðanna, trúa því að á
komist fransk-þýsk tolleining, jafn-
vel hernaðarbandalag við Frakka.
En í þessari angist og örvílnun.
rís þjóðin gegn hinni erlendu kúg-
un og slæmri utanrikisstjórn, sem
kölluð er. Og kröfurnar um það, að
Versala-friðarsamningarnir sé endur-
skoðanir, eru orðnar að alheimsmáli,
því að viðskiftakreppan i heiminum
er kend hernaðarskaðabótunum. Þess
vegna telja flestar þjóðir að kröfur
Þjóðverja sé á rökum bygðar, þær
sé sameiginlegt mál allra þjóða. Og
í Bandaríkjunum og Englandi er það
nú rætt af engu minna kappi en í
Þýskalandi, hvernig eigi að breyta
Versalasamningunum. Hollenditag-
urinn Collijn, sem var forseti sein-
ustu verslunarráðstefnunnar í Gen-
éve, hefir sagt, að yfir vofi alment
fjárhagshrun i Evrópu ef þjóðimar
taki ekki upp viðskiftasamvinnu, og
mun hann þar hafa talað fyrir munn
allra ráðstefnumanna.
Arið sc4n leið var það aðalvið-
fangsefni þýsku stjórnarinnar að
koma fjárlögunum á réttan grund-
völl, og það má þakka Brúnings-
ráðuneytinu — eða öllu helst Diet-
richs fjármálaráðherra — að það
hefir tekið föstum tökum á því
mikla vandamáli. Og eftir svo sem
tvo mánuði munu sjást hinar góðu
afleiðingar þessara fjárlaga. En
langt er þó þess að bíða að fjár-
málin sé komin í gott horf, og eins
og kanslarinn hefir sjálfur sagt, er
þetta aðeins byrjun. Og hún er í
því fólgin, að á fjárlögunum 1931,
er eins milljarðs sparnaður, og meira
verður varla krafist af fjárlögum,
sem eru 11 miljarðar.
Alt kapp verður lagt á það að
| framkvæma hina nýju fjármála-
stefnu stjórnarinnar, sem miðar a8
því að kveða niður uppgang Nazi-
manng. — Ef sv fer, að þessar til-
raunir hepnast, er ekki ósennilegt,
að stjórninni aukist fylgi, og áhug-
inn fyrir Nazistahreyfingunni kólni
dáliitið. Og fari nú svo, að þessar
ráðstafanir beri árangur, getur vel
verið að trúin á stjórnina dafni, og
heldur kólni hrifningin af Nazistum.
En þótt maður sé bjartsýnn á fram-
tíð Þýskalands, verður þess að gæta,
að nýja ríkisþingið er ekki jafn-
starfhæft og önnur fyrri þing, þvi
að flest þau lög, sem nú hafa verið
samþykt, hafa fengið staðfestingu
sina á óþingræðislegum grundvelli,
út úr neyð. Þess ber líka að minn-
ast, að atvinnuleysið í Þýskalandi.
þetta óheyrilega atvinnuleysi, þar
sem menn búast við því, að þegar
út á vpturinn kemur, muni þar vera
5 miljónir atvinnuleysingja, af þessu
leiðir truflun og stöðvun viðreisn-
arstarfsins, og mun það gefa at-
vinnuleysingjum byr í seglin.
Horfurnar eru því ekki góðar, en
ekki má ganga fram hjá þvi, að á
árinu sem leið, benti margt til betri
tíma. írtflutningsverslun Þýskalands
hefir aukist á þessum vandræðaár-
um, og um áramótin 1930 var út-
flutningur rúmlega einum miljarð
marka meira en innflutningur.
Og nú er svo komið, að það er
létt að ná í fé á alþjóða peninga-
markaði. Hefir það stórkostlega
þýðingu fyrir Þýskaland, sem rek-
ur þjóðarbúskap sinn með stuttum
lánum og skul<jar ekki meira en átta
milljarða í þessum lánum. En nú
er það nýjasta: Heimtað er, samkv.
Young-samþyktinni, og tej^ið skuli
tillit til gengishækkunar gullsins. Nú
eiga Þjóðverjar og borga 1.8 mill-
jarða marka sem fyrstu afborgun
af hernaðarskuldunum, en ef markið
stendur nú i miklu meira gildi held-
ur en í maí 1929, þegar afborgun-
Þjóðverja af hernaðarskuldunum var
ákveðin, þá hljóta afborganimar að
minka sem því svarar. Þetta vonar
stjórnarflokkurinn I Þýskalandi, og
þess vegna er sparnaðarstefnunni
haldið áfram hiklaust.
—Mbl.
• • •
L.JÓTITR SIÐJJR
Eg er nýkominn norðan af Strönd-
um hingað i menningu stórborgar-
innar. Viðbrigðin eru mikil, eins
og gefur að skilja, því að þar norð-
ur á hjaranum, í kjördæmi forsæt-
isráðherrans, vantar flest þægindin.
sem fólkið sækist eftir, og dýrðina,
sem borgin hefir að bjóða. — Þar er
lítið um rafmagnsljósin, engar ma!-
bakaðar götur, enginn borgarstjóri,
engar barsmiðar eða upphlaup, engin
háreist gisthús með rökkur-dansi,
engir ljósum prýddir og skrautlegir
búðargluggar, engir borðalagðir og
hátíðlegir lögregluþjónar, engir
spreng-virðulegir ráðherrar, engir
fjármálavitringar, ekkert hegningar-
hús, engar bláar, grænar, gular eða
rauðar bifreiðar í fleygiferð, enginn
tíkar-brandur, ekkert fyllirí, engin
kvxikmyndahús, engir fankar úttroð-
nir af peningum, engin sönglist
ölóðra mann um nætur, ekkert þjark
i myrkraskotum, engin stefnumót,
enginn hjálpræðisher, og — því mið-
ur — fátt af prúðbúnum og lagleg-
um ungum stúlkum. —
Þrátt fyrir alla þessa vöntun og
skort komumst við Strandamenn af
þolanlega. Við erum nægjusamir,
líttllátir, eins og sjá má á þing-
manninum okkar. Og eg er ekki
viss um, að við unum lífinu hótinu
ver en blessað fólkið, sem rápar
hérna aftur og fram um göturnar
alla daga kveld og nætur.
En borgin er merkileg — að
minsta kosti í augum fáviss af-
dalasnáða. Og mér er nær að halda,
að eg gæti lært listirnar hérna —
sumar að minsto kosti —: á mjög
skömmum tima. En eg er hræddur
um, að blessaður þingmaðurinn minn
vilji ekki láta mig læra neitt hér.
Hann er sco skelfilega grimmur í
garð Reykvíkinga, þegar hann kem-
ur norður.
Eitt hið fyrsta, sem eg veitti at-
hygli, þegar eg hafði dubbað mig
svo lítið upp — keypt mér ný föt,
nýjan svartan, barðastóran hatt,
hvítt um hálsinn, nýja skó, frakka
og staf, og tók að rangla hér um
göturnar eins og aðrir — var það,
að æðimargir, sem eg mættií ekki
ÞÓ ÞÉR KAUPIÐ DÝRARA LYFTIDUFT FRÁ AUSTUR-
CANADA EÐA BANDARÍKJUNUM, GRÆÐID ÞÉR EKK-
ERT Á ÞVÍ. — BLUE RIBBON ER UPPÁHALDSTEGUND
WINNIPEGBORGAR OG ÁBYRGST AÐ GEFAST Æ VEL.
Blue Ribbon Limited
síst strákar og ungar stulkur, voru sí
tyggjandi eða japlandi. Hvert þó í
heitasta, hugsaði eg — eru allir borg-
arbúar farnir að taka upp í sig —
blómarósirnar ekki síður en aðrir. —
I fyrradag mætti eg þremur ljóm-
andi fallegum ungum sfúlkum, svona
á að giska mili lfermingar og tvi-
tugs. Þær voru hver annari yndis-
legri, litlu skinnin, og eg varð bál-
skotinn í þeim öllum. En allar voru
þær japlandi. 1 gærkveldi fór eg í
Nýja Bíó. Á næsta bekk við mig
sátu ungar stúlkur — fallegar og
blómlegar, eins og flestar stúlkur í
þessum bæ. Þær mösuðu óþarflega
mikið, blessanirnar, en yrði hlé. á
orðaflóðinu tugðu þær í ergi og gríð.
Mér leiddist þetta japl og smjatt —
eg er svo ómentaður — en nú er eg
þó kominn svo langt áleiðis, að eg
veit hvernig á þessum ósköpum
stendur. Það er svo sem ekki sak-
laust og blessað og ilmandi munn-
tóbak, sem ungdómurinn í henni
Reykjavík er að tyggja, heldur eitt-
hvert fjárans “góðgæti”, sem mér
er sagt að vitringar og skriftlærðir
kalli “töggur” eða eitthvað sem þvx
sætir. Ungdómurinn kallar það vísj
bara “tyggegummi” eða eitthvað
þessháttar og er drepsólginn í þenn-
an skolla, álíka og gamall fylliraftur
í brennivín. Eg er nú ekki svo
lærður enn sem komið er, að eg viti!
hvort fólkið muni hafa nokkurt gagn
af að vera að jóðla þetta, en mér
þykir ákaflega leiðinlegt að horfa
á það. Sérstaklega þykir mér ó-
yndislegt að sjá ungar og fallegar
stúlkur vera að þessu jór^ri. Það
er sök sér, þó að stúlkur leyfi sér
slíkt og fer þó illa á því. — En
búast má við, að innan skams hafi
allur æskulýður Islands “töggur” i
munninum, og gott ef tannlaus
kerlingaskörin fara ekki að jóðla
með. Það vantar svo sem ekki, að
sveitafólkið stæli Reykvikinga • í öllu
sem það getur, bæði illu og góðu,
þó að það lasti þá svona annað veif-
ið sér til hugarhægðar. Eg sár-
kviði fyrir, þegar sveitungar mínir
— og þó einkum stúlkurnar, þvi að
þær mega í rauninni ekkert missa
—fara að “taka upp í sig” með
þessu hætti. Það er ekki hótinu
betra en að “tyggja upp á dönsku”,
og allir vita hversu geðslegt það er.
Strandmaður. —Vísir, 15. jan. 31
ó
*60 ALLOWANCE ON Y0UR
OLD RADIO OR PHONOGPAPM
Reo.ardless ,of its ðQe.make or con -
dition as part p.ayment on a Victor ’
Combinatfon H'om'e Recórdino Radio-
Electrola $337^ 2yearstopay
the balance. Phone 22-685. Open till Í1
&;Ve<íéÍttUd. She%nraok.
THE BEST IN RADIO
Lowest Terms in Canada
þér sem
notifi
TIMBUR
KA UPIÐ
The Empire Sash & Door Co, Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Bkrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.
^>ur dollars buy AAORE at E ATO N’:
tf CAToer* my —4T. Me! WWm • t
i>.4iiM p»r tUa p«
l< CATOfTS MT
Ow/ *I*IT VHn o4 M
»tur *«» Kt n»Ki joo*.
_ M, and r.|Mbifcr- Tbte «*Oa
•oct CATOfTV -
• THE HOME OF VALUE
IS
°m
THEPRICEGUIDE
0FCANADA
^T.EATON CÝ-
WINNIPEG • CANA
MARGIR HLUTIR Á
L LÁGU VERÐI
Hit5 lága vertS er eftirtektarvert hvar-
vetna í bókinni, í mörgum tilfellum
lægra en þaö hefir veriö svo árum
skifti og er þatS yhur i vil. Látiö vöru-
skrána sýna yt5ur hvatS þér spartö á
hverju dollarsvirtSi er þér kaupiö hjá
EATOBí. Vér mitSum vertSitS viti af-
Æláttinn sem vér fáum meti því atS
kaupa i stórum stíl fyrir peninga út í
hönd.
Á mörg hundrutS blatSsítSum á voru-
skránnl er getitS um varning sem er
alveg nýmótSins og ábyrgstur er af
EATON Leysir þatS úr mörgum vand-
rœtSum.
Vér bitSjum ytSur atS hera saman vertS
og gætSi vitS vörur annarstaöar, þar er
eini rétti mælikvartSinn. Allur varning
ur er talinn er upp, hefir verit5 ná-
kvæmlega athugaöur, atS honum sé
rétt lýst, af eftirlits skrifstofu vorri,
svo atS þér megitS treysta þvi atS
EATOAi hútsin ber ábyrgtS á öllu sem
þar er, og vill eigi bjótia vestan fólki
annatS en hits bezta.
Tækifærit5 er ytSar, atS fá þessa vöru-
skrá — senditS aðeins póst spjald metS
áritutiu nafni ytSar og heimilisfangi og
EATON 'sendir ytSur vöruskrána ó-
keypis um hæl.
Dragið það ekki—Skrifið í dag