Heimskringla - 04.03.1931, Blaðsíða 5

Heimskringla - 04.03.1931, Blaðsíða 5
WINNIPEG 4. MARZ 1931. HEIMSKRINC^A ekki um að ræða, að breyta neinni skoðun heldur vana, sem oröið hefir til vegna hirðuleysis og skilnings- skorts. Og enginn gæti haft neitt á móti því, þó að brýnt væri fyrir okkur að tala íslenzku eins vel og við getum, þegar við tölum hana, og ensku líka eins vel og við getum, þegar við þurfum að tala hana eða býður svo við að horfa. öneitanlega væri það spor í áttina til meiri menningar, ef eitthvað væri unt að gera í þessu efni. Islenzku blöðin hér gætu veitt afar mikinn stuðning 1 þessu, ef þau vildu, ekki aðeins með þvi að vanda málið sjálf á öllu, er þau flytja, auglýsingum eþki síður en öðru, heldur og með því að brýna fyrir fólki hversu mikils vert það sé frá menningarlegu sjónarmiði, að tala hreint og fallegt mál. Að þessu hefir ekkert verið gert. Við höfum hingað til aðeins hlegið að smekk- leysunum í daglegu máli sjálfra okk- ar. En í rauninni eru þær ekkert hlátursefni, heldur þvert á móti raunalegur vottur um andlegt ó- sjálfstæði og margra ára hirðuleysi. Flestir, sem lesa íslenzkar bækur, blöð og tímarit, munu vera sam- mála um, að nú séu fleiri menn uppi á tslandi en nokkru sinni áður, sem rita rétt; hann er blærinn, sem hvíl- er óblandin ánægja að lesa sumt af af því, sem þar er ritað, aðeins stílsins vegna. Stíll á ej^kert skylt við það að rita rétt; hann gf blærinn, sem hvíl- ir yfir hinu ritaða máli. Allir, sem fást við að rita, hafa auðvitað ein- hverskonar stíl, því enginn maður ritar svo neitt að ráði, að ritverk hans, hvort sem þau eru stutt eða löng, hafi ekki einhvern séstakan blæ. En það er til margskonar still: ljós stíll og myrkur stíll, léttur still og þunglamalegur stíll o. s. frv. Sumir mjög gáfaðir rithöfundar, t. d. Carlyle, hafa haft mjög myrkan stil. Flestir íslenzkir rithöfundar hafa haft þunglamalegan stíl. í>eir, sem nú rita bezt íslenzkt mál, hafa ljósan stíl og sumir mjög fjörugan eða léttan.»Fyrir þann, sem les, er auðvitað mest um það vert að stíll- inn sé ljós. Ef við t. d. lesum bæk- ur, sem ritaðar voru fyrir, látum okkur segja, hundrað árum, þá finn- um við fljótt að stíllinn í þeim er flókinn og myrkur. Það er erfitt að komast að efninu, vggTia þess að setningarnar eru langar og orðin of mörg. Aftur á móti má segja, að það sem nú er ritað, sé flestalt fram úrskarandi ljóst og þægilegt aflestr- ar. Jafnvel efni, sem er í sjálfu sér þungskilið, er venjulega auðskílið i íslenzkum bókum og ritggrðum nú •á tímum, vegna hins ljósa stíls. Hitt er ekki eins algengt, að stíllinn sé fjörugur. Sumir hinna yngstu rit- höfunda hafa lagt mikla áherzlu á stílinn og notað ýms brögð til þess að gera hann sem eftirtektarverð-1 astan, svo sem nokkuð óvenjulegt orðaval, enkennilegar samlíkingar og setningar, sem koma lesandan- um alveg á óvart. Gallinn á þeim stil er sá, að hann getur orðið of ónáttúrlegur og, sökum þess hvað hann er sláandi, getur dregið at- hygli lesandans frá efninu og að sjálfum sér. En það er víst, að eftir honum er tekið. Og fyrsta skilyrðið TM£ BLUr -*TOB£ BRUNA bóta ÚTSALA STENDUR NÚ YFIR. TAPIÐ EKKI AF ÞESSARI ÓVANALEGU KJÖRKAUPA SKRIÐU. K a r 1 m a nna og drengja föt, kápur, hattar, húfur, nær- fatnaður, o. s. frv., o. s. frv. $75,000 virði af Kvenna loðskápur, Hudson Seal, Per- bezta varningi, sian Lamb, Musk- rat, Selskinn, Near selt á lágverði Seal o. s. frv. Ref- I skinnstreflar $14.95 sem brunagóss. og yfir. Alt verðlag í búðinni svarar 50 af 100. Aðeins um stuttan tíma. — FLÝTIÐ YÐAR! til þess að nokkur rithöfundur fái á- heyrn nú, á þessari ritöld, er það, að máli hans sé veitt eftirtekt. Hér er flest það, sem ritað er, illa ritað, í samanburði við það, sem rit- að er á Islandi. Vestur-íslenzkir rit- höfundar, með nokkrum undantekn- ingum, hafa ekki stíl. Venjulegasti gallinn á ritsmíðum okkar er sá, að þær eru óljósar. Sumir, sem fást við að rita í blöð hér, eru svo mærð arfullir, að það er ill-mögulegt að fylgjast með þeim og maður verð- ur steinleiður á mælginni; einkum eins og oft vill verða, ef með henni er barnalegt sjálfshól, væmið lof um aðra eða hégómlegar hugleiðingar um eitthvað, sem er viti höfundarins ofurefli. En til þess að stíllinn geti verið ljós, þarf hugsunin, sem á bak við hana er, að vera ljós. Höfundur inn þarf fyrst og fremst að vita, um hvað hann ætlar að skrifa. Það lítur út fyrir, að jafnvel ritstjórar, sem hafa það fyrir atvinnu að rita, viti það stundum ekki. Til dæmis má stundum sjá fréttagrein, sem aftan í er hnýtt athugasemd, sem kemur auðsjáanlega frá ritstjóranum sjálf- um. Hvað sem líður þeirri hlut drægni að skjóta sínum eigin at- hugasemdum inn í fréttir, skemmir það fréttina fyrir lesandanum, sök- um þess að óviðkomandi efni ruglar frásögnina og samhengið tapast. — Mörg fréttabréf eru þannig úr garði gerð, að þau verða ólæsileg, sökum þess, að það sem ætti að vera auka- atriði, yfirgnæfir aðalefnið. öll þessi ofmælgi og útúrdúrar stafa af þvi, að höfundunum er alls ekki ljóst í byrjun, hvað þeir ætla að segja. Nú eru einmitt vel ritaðar fréttir, hvort sem þær eru austan úr Kína eða ut- an úr einhverri íslenzkri bygð hér í Manitoba, með því aðgengilegasta og um leið gagnlegasta til fróðleiks fyrir allflesta blaðalesendur. Hörmu- legast af öllu er þó að sjá sumar ritgerðirnar, sem samdar eru um ýms almenn mál, svo sem stjórnmál og trúmál. Eg á ei við skoðanirnar er í þeim birtast, þvi hver er sjálfráður að sinum skoðunum í þeim efnum. En framsetningin öll er svo klaufa- leg. Fyrst og fremst hafa höfund- arnir ekkert að segja, því hugsun þeirra hefir ekki náð neinu haldi á efninu í heild sinni, heldur í ein- hvern skika af þvi, sem hún hangir á, og svo er þeim ómögulegt að gera nokkurt höfuðatriði sæmilega Ijóst. Röksemdafærslan fer öll á ringul- reið, og það, sem mann grunar, að þeir hafi ætlað að segja, hverfur i þoku vaðals og vitleysu. Jafnvel margar ritstjórnargreinar eru með þessu marki brendar, og ætti maður þó líklega að halda, að Að tilkynna að komin sé í EAT0N búðina tt tt Hin “Konunglega” Fjölskylda Ryksugusópa Royal” Purifier “Super Royal Royal” Princess “Royalette” Þessi Royal húshreinsunar samstæða er hin hagnýt- asta viðhót við rafáhalda safnið á þriðja gólfi. Ryk og óhreinindi geta hvergi falið sig fyrir þessum vold- ugu og verkmiklu vélum. Svo léttar'eru þær að barn getur farið nieð þær. .Þær vaxbera og fægja gólf — hrcinsa það um leið og eyða öllun sýklum, — f einu orði, þær gera alt, sem sog- sópar fá orkað, bæði fljótt og veL “ROYAL” PURIFIER Hann er útbúinn með hólfi fyrir efnalög er eyðir öllum sóttkveikjum, drepur sýklana sem felast í rykinu um leið og það er sogað inn í belginn. Hann kostar $73.50. Gólf fægarinn ásamt hreinsunar tækjunum $15.00. Með öllu saman $88.50. “ROYALETTE” Tengið það við rafstrauminn, og með því má gera allskonar hreinsun, — svo sem að hreinsa UPP mola á borðinu, — ösku ef niður hefir fallið — ryk af húsbúnaði, fatnaði og þess hátt- ar- Sogpípan fellur inn í allar misfellur og hrufur. Kostar aðeins $17.50. ‘SUPER ROYAL” Einnig mjög handbær samstaða, með hólfi fyrir efnalög, er sendir frá sér gufu og hreinsar loftið og eyðir gerlum er 'felast í rykinu. Kost- ar $62.50. Hreinsunartækin og gólffægarinn $12.50. Með öllu saman $75.00. “PRINCESS ROYAL” Samstæða sem hentug er til að hreinsa með lítil hús eða íbúðir á skömmum tíma. A henni er hreyfanlegur bursti, sem sópar upp stufi og rusli á svipstundu. Kostar $50.00. Hreinsun- artækin og gólffægarinn $12.50. Allt til samans $62.50. I Rafáhaldadeildinni á þriðja gólfi fyrir miðju. <*T. EATON C°u LIMITED til þeirra væri vandað sem bezt má verða. Bezt held eg að skammimar séu venjulega skrifaðar hér. 1 þeim halda menn sér bezt við efnið, enda fylgir þar víst oftast hugur máli; í þeim eru tilþrif, sem sjaldan sjást ann- arsstaðar, nema hjá þeim fáu, sem rita vel, um hvað sem þeir rita. Þrátt fyrir öll gífuryrði, fjarstæður og vitleysur skammagreinanna, hafa þær þenna kost, frá sjónarmiði rit- mensku, fram yfir margt annað, og það er kröftuglega að orði komist í þeim, þær eru ekki eintóm innihalds- laus mælgi og froða, sem mann velg ir við að lesa. Eg er ekki með þessu að mæla bót blaðaskömmum um eitt eða ann að — langt frá þvi. Þær bera vott um ofstæki og þjösnaskap, sem er alveg ósamboðinn mönnum, sem ættu að geta litið sanngjörnum aun um á málavexti í hverju sem er, en fyrst þær eru til, og verða víst um langt skeið enn, ber að skoða þær sem hverja aðra andlega iðju, og tala sanngjarnlega um þær. Það væri ó- neitanlega skemtilegra, að þeirri andlegu orku, sem varið er' til að semja þær, væri varið til ofurlítið göfugri ritmensku, en meðan það er ekki, verður þó ekki fram hjá þeim gengið. Einskis betra væri unt að óska þessum félagsskap en þess, að hon- úm gæti auðnast að leggja drjúgan skerf til menningarlegs þroska hér í landi. Og hann getur gert það, með því að beita áhrifum sinum í þá átt, að reyna að gera andleg störf Islendinga hér ögn glæsilegri en þau eru. Það þarf ekki aðeins að kenna börnunum að lesa íslenzku. Það þarf líka að menta fullorðið fólk, menta það til þess að meta það, sem vel er gert í akri vitsmuna og listar eins og vera ber. Vitagkuld eru það blöðin, sem hér standa bezt að vígi, en þau rækja það starf illa. En auð- vitað ná áhrif félagsskapar eins og Þjóðræknisfélagsins langt, sé þeim vel beitt og viturlega. SINDUR. Greinar kvað vera von frá Sig. Júl. Jóh. i næsta Lögbergi um lib - eral leiðtogana i Sask. * * • Margir spyrja hvenær ársþing Sjálfboðanna muni verða haldið. Það hefir ekki ennþá verið auglýst. * « • Bæklingamenn. Fyrst kom Hjálmar, Fúsi svo; fer nú aukast gaman. Væri bezt þá báða tvo binda á sporðum saman. Endurminningar Frh. Kristján var þunglyndur og fáskift inn og gjarnt til að draga sig í hlé. Eitt sinn var hann boðinn í brúð- kaupsveizlu ásamt mörgum öðrum. Þá var ekki búið að byggja kirkjuna á' Víðirhóli, svo að brúðhjónin urðu því að fara ofan að Skinnastöðura í Axarfirði til hjónavígslunnar, og ætluðu þau að vera komin heim til sín, þar sem veizlan átti að fara fram, seinni hluta dags. Attu þá veizlugestirnir að vera þar til stað- ar; og svo var stundin komin, og fjöldi af veizlugestunum mættir, en brúðhjónin sáust hvergi koma. Alt- af leið tíminn, það var orðið fram- orðið, og margir höfðu við orð, að þeir færu að halda heim. Menn héngu úti og inni og í öllum var ólund. Þá er kallað á hlaðinu og sagt að Krist- ján Jónsson ætli að tala við fólkið áður en hann fari. Allir þyrpast á augabragði inn í bæjardyrnar og stofuna. Kristján stóð á miðju gólfi og sagði fram og lék í bundnu og ó- bundnu máli, svo að menn og konur grétu af hlátri. Eg var þá ungur, líklega fjögra ára, og það er víst að eg kunni ekki að meta það, sem gerðist, en glápti ýmist á Kristján eða þá, sem eg hafði aldrei séð hlæja fyr, og eg hafði víst eins og aðrir nóg að gera. Lengi var það, sem hann lét svona, og ekkert var talað um að fara heim; enda komu þá brúðhjónin og presturinn á Skinna- stað, sem altaf var siður að bjóða i veizlur. En þá hvarf Kristján og öllum þótti sem veizlan væri bú- in, og heyrði eg aldrei vitnað í hana eftir að brúðhjónin komu heim, þó að allar veitingar færu fram eftir það. Kristján var nógu tilfinningaríkur og góður drengur til að yfirvega það hvað vonsvikin brúðhjónin yrðu, ef allir veizlugestir þeirra yrðu farnir þegar þau kæmu heim, og fann hann hjá sér kraftinn til að koma í veg fyrir það. Aftur á bak og áfram gegnum alla bókina sína eða ljóðmæli sín kannast K. við það að vera drykkju- maður, og undir áhrifum áfengis var hann sérstaklega fyndinn og hríf- andi. Nokkrar af drykkjuvísum hans bera vitni um þetta, einkum í sam- bandi við þá atburði er að vísunum standa. En það kann að vera mörg- um viðkvæmt mál að ýfa það upp, enda margt klúrt í sambandi við það. Ljótustu vísur sínar orti Kristjáu á Vopnafirði og bar margt til þess. 1 nærliggjandi sveitum var um hann talað sem alveg sérstakan mann, og þegar hann sem vinnumaður kom oft á Vopnafjörð, þá keptust menn um það að sjá hann og heyra hann segja eitthvað, og jafnvel hagyrð- ingar urðu svo djarfir að kasta til hans 'hálfum og heilum leirhleifum, en það þoldi hann sízt af öllu, og endurgalt þá stundum of þungum steinum. Og þegar hann seinasta missiri æfi sinnar gisti á Vopna- firði, þá var það altalað að honum hefði leiðst þar, og er ekki ólíklegt að honum hafi hrotið óheflaðar hend ingar af munni. En þrátt fyrir slíka misbresti var Kristján vel skilinn og mikilsvirtur á Hofi, sem sjá má meðal annars á þvi, að séra Hall- dór hafði fengið hann til að yrkja eftir dóttur sína, sem bók Kristjáns ber með sér. Þeir Jón ölafsson, Matthías og Steingrímur munu allir hafa verið í latínuskólanum áf sama tima, og þeir bekkjarbræður Jón og Kristján, og þegar Kristján í eitt skifti lá veikur í skóla, þá yrkir Matthías til hans kvæði, sem endar þannig: ‘‘Hér með kraftakvæðið linni, sem Kristjáns nefnist heilsu minni”. Af þessu álykta eg að Matthías hafi verið í skóla á sama tima og Kristj- án', og Matthías talaði altaf um Steingrím sem skólabróður sinn. — Þegar þetta er athugað þá má mik- ið af því marka, hvaða álit var é, Kristjáni sem skáldi í skólatíð hans. Rektor skólans, Bjama Jónssyni er haldin veizla, og Kristján er valinn til að yrkja ávarpið til rektors, þó hinir þrír stæðu hjá. Og svo var stundin komin, að lesa skyldi upp kvæðið,, en Kristján sást ekki. Jón ólafsson hafði þó fljótt upp á hon- um, en hann hafði fengið sér of mikið í staupinu og hafði svo hall- að sér út af til þess að vera betur undirbúinn. Jón vinur hans vakti hann og minti hann á að gera hvorki sjálfum sér né piltunum yfir höfuð það til skammar, að láta sig vanta, eða nokkuð það, sem af honum hefði verið vænst. “Geturðu skrifað fyrri mig fáeinar línur?” spurði K. “Ekki skal standa á því,” svaraði Jón, “en láttu þá eitthvað til _ þín heyra.” Eg held að erindið eigi varla sinn jafningja, þegar á alt er litið, og þó að það sé í bókinni, þá set eg það hér, til hægðarauka fyrir menn, af því eg vona að eg kunni það rétt. En það hljóðar svo: Fræðagyðju mögur mær, móðurjarðar sonur kær, þýðri minning þinni þetta helgast minni. Gæfan fríða, bjarta og blíða, um braut þig leiði æfitíða. Þú sem sælu suðri frá svæði klaka glæðir á mentablómin blíðu, Búin skrauti fríðu. Heims um daga á hörpu Braga hljóma nafn þitt lætur Saga. öðlingur kær, ástvinur hreinn, ættjörð ei fær æðri þér neinn. Heill sé þér um ár og aldur. Gleðin himinhrein hjá þér búi ein. Harmagustur kyrrist kaldur. Lifðu langa stund, lýstu feðra grund. Þér góða elli gefi alvaldur. Allir eldri menn að minsta kosti kannast við orðið glímuskjálfti, og hafa líka orðið fyrir þeim áhrifum sem valda honum. Það er einskonar vígahugur, undur ákveðin löngun til að jafna sakir við mótstöðumann sinn, eða til þess að afla sér frægð- ar, með því að stíga feti lengra fram en hinn, sem meira trausts nýtur eða þykist sjálfur meiri. — Glímuskjálfti er náskyldur reiði- skjálfta og hræðsluskjálfta, og er dálítið af hvorutveggja þessu. Hann er orsakaður af von og kvíða og niðurbældu hugrekki, og getur al- veg eins ráðist á manninn, þegar um andleg átök er að ræða. Mér finst að þannig muni hafa verið ástatt fyrir Kristjáni Jóns- syni, þegar hann hitti skáldið og sýslumanninn Jón Thoroddsen. Jón sýslumaður var á ferð suður til Reykjavíkur, og heyrir mikið tal- að um þenna skólapilt norðan úr Þingeyjarsýslu, og að hann sé 1 skóla kallaður Fjallaskáld, og aS hann hafi á sér álit sem mikill hæfi- leikamaður. En þá ber svo við einn dag, sem Jón stanzar í Reykjavík* að Kristján kemur snöggvast i hús það, sem sýslumaður hélt til i, og I hann fær að vita hver maðurinn er. Þá er sagt að hann hafi kastað fram hálf leiðinlegri gletnisvísu. A þá Kristján að hafa sett hljóðan dá- litla stund; gengur síðan fram að dyrum hússins og hefir yfir fremur ljóta vísu, svo að sýslumaður heyr- ir, og gengur síðan út; verður þá ekki meira um kveðjur i bráðina. Sýslumaður hefir ekki verið á- nægður með niðurstöðuna; og ann- aðhvort er það, að hann hefir ætlað sér að siða drenginn, af því að hon- um hefir fundist hann um of borg- inmannlegur, eða hann hefir viljað vita fyrir vist, hvaða efni byggi i honum, því nú settist hann niður og skrifaði á blað þessa visu, setti hana i umslag og sendi Kristjáni hana, og hika eg ekki við að láta. vísurnar sjást, þær eru svo hraust- lega orðaðar, en geta ekki heitiðs ljótar. A hinn bóginn veit eg ekkú til að þær séu áður prentaðar. Þaft; væri líka þýðingarlaust að prenta svona vísur aðeins á aðra hliðina, þær bera ekkert með sér, nema á- tökin, sem þurfa þá að sjást eins á báðar hliðar, að sínu leyti eins og glímubrögð og hnefahögg. Vísan- hljóðar svo: Þú hinn níðskældi Kristján kjaftur, komdu þér vel við biskupinn. En komdu hingað aldrei aftur, því afllaus er buxnastrengur þinn. Þú gerir rétt að gyrða þig, en gefðu ekki um að ýfa mig. Kristján fær vísuna og sendir þetta svar til baka: Hvað vilt þú vera að skrækja í skugga, skjáhrafnakóngur, vittu til, þinna mun eitruð tannatugga týnast i smánar forarhyl. Þinn hroki skelfir furðu fátt, flórhalanum þú veifa mátt. Sýslumaður fær bréf Kristjáns og- virðir það svars á þessa leið: Það er skritilegt, hrafn með hala, hverjum vargi eg sýna vil. Merkis prestsefnið Möðrudala mun fugl þann hafa búið til. Skrattinn fór líka að skapa manov skáldið varð ekki minna en hann. Þetta tekur Kristján til greina me& svona svari: Það er skrítilegt, hrafn með hala, hingað til Víkur suður fló, er áður fyr við dúfur Dala daðraði hægt með spekt og ró; og Barðastrandar brúðum hjá brýndi sinn gogg á hverjum skjá. Hér af geta menn dálítið skiliðt betur, hvort Kristján var að orðt hafður að ástæðulausu. Þessi or- usta við einn vinsælasta og fræg- asta mann landsins, sýnir það ljóst að Kristján var hugrakkur maður,. að honum var í ríkum mæli gefitS; það, sem Páll ölafsson kvartar uitt að sig vanti, þar sem hann kemst: svo að orði: A Alþingi var mér alls ekki hent, að yrrast við höfðingja slíka. (Framh. á 8. síðu*

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.