Heimskringla - 04.03.1931, Page 7
I
WINNIPEG 4. MARZ 1931.
HEIMSKRINGLA
7 BLAÐSIÐ^
FRÁ fSLANDI.
ATVINNUUEYSIÐ
Allir eru nú sammála um að sjald-
an eða aldrei hafi verið jafnmikið
atvinnuleysi og nú. Sú eina vinna,
sem hér er, er bæjarvinnan, vinnan
við þjóðleikhúsið og hin fáu vöru-
skip, sem hingað koma. Það var lika
lærdómsríkt að sjá, er timburskipið
kom til Völundar og kolaskipið til
Gasstöðvarinnar. Þarna stóðu menn
mörgum hundruðum saman mörg-
um klukkustundum áður en vinnan
átti að hefjast. Þegar verkstjórinn
kom, færðist líf í fjöldann og nærr:
lá, að ryskingar yrðu. Hver tróðst
um annan þveran nær verkstjóranum
til þess að reyna að vekja athygli
á sér, og það lá við að maður vor-
kendi verkstjóranum meir en þessum
atvinnulausu mönnum, þvi verkstjór-
arnir voru í stökustu vandræðum
með að skipa á.
Togararnir fiska nú í is og er þvl
engin vinna við affermingu þeirra.
Grjótvinnan hjá bænum er næstum
það eina, sem verkamennimir geta
haldið sér að, en það eru bara nokk-
rir menn.
Sumir trúa því ekki, að mikill
fjöldi sé atvinnulaus nú. En hvar er,
vinnan, sem þeir vinna nú, sem unnið
hafa við togarana, byggingarnar o.
s. frv? Svarið við spurningunni ligg-
ur opið fyrir: Hún er ekki til. Sá
fjöldi, sem við þessa vinnu hefir unn-
ið, er atvinnulaus. Verkamenn ganga
fram og aftur um hafnarbakkann,
þungir á brún vegna áhyggna út af
heimilum sínum, sumir þeirra fylla
Verkamannaskýlið. Sitja þar daginn
ht og daginn inn eða rölta um gólf-
ið og gá út á sjóinn, eins og þeir bú-
ast jafnvel við því, að björgin fyrir
heimili þeirra komi fremur utan úr
hafsauga en frá forráðamönnum ríkis
eða bæjaarfélags. Það er nú svona
hjá verkamönnum, að þeir mega ekki
missa vinnu i einn dag, þvi þá kemur
eyða í heimilishaldið. Launin eru svo
skammarlega lág að þau nægja að
eins fyrir brýnustu lífsnauðsynjum
meðan þau renna stöðugt inn í heim-
ilið, og ef vinnan stöðvast gerir skort
urinn vart við sig.
láta nærri að vera 75 kr. á mán-
Verkamenn, sem stunda eyrarvinnu
hafa að meðaltali 250 kr. á mánuði,
þvi slík vinna er aldrei stöðug.
Húsaleiga flestra verkamanna mun
uði. Þá eru eftir 775 kr. til allra
Framhald á 8. síðu
Veróníka.
“vers vegna ekki? Hann er,
hygg eg, ekki verri en fólk er flest.
mHún sómdi sér vel sem greifafrú
af Lynborough. Mér geðjast ekki
að honum, hann er hennar ekki verð-
ur. En hvaða maður er verður nokk-
urrar konu ? Á eg að stinga upp
á því ? Varla nauðsyniegt. Honum
dettur það sjálfum nógu fljótt í
hug, grunar mig.” Hann glotti og
hætti við upphátt: "Veroníka er
orðin fögur stúlka, eða finst þér
það ekki, Talbot?”
Talbot gaut augunum til hvíta
andlitsins, sem var svo líkt sfinx-
unum í Egyptalandi. Því næst sagði
hann festulega og innilega: “Hún er
índæi stúlka. Eg varð alveg hissa,
Þegar hún kom inn í stofuna í gær-
kvöld, það var orðið svo langt síðan
e'g hafði séð hana.”
“Hún verður góður kvenkostur,”
sagði jarlinn gletnislega. “Það er
ekki of mikið sagt, að hún sé að-
dáunarverð. Þótt hún hefði ekki
fengið þessar eignir, hefð hún sjálf-
sagt fengið góða giftingu.”
“Alveg áreiðanlega,” sagði Talbot
og stóð á fætur. “A eg ekki að
leiða yður inn í dagstofnua, Sir?” j
“Þökk, nei. Ef þú vilt gera svo
vel að hringja á þjóninn minn, ætla
eg að fara að hátta. Eg vil ekki
ónáða ykkur Veroníku.”
írtidyrnar voru opnar og Talbot
fór út og gekk þar um gólf nokkra
hrið, áður en hann fór inn í dag-.
stofuna. Hann hafði ekki náð sér
eftir fregnina, sem hann hafði fengið
Hann og enginn annar vissi, hve
mjög hann þurfti á peningum að
halda. Það var beinlínis ómögulegt
fyrir hann að vera án þeirra. Lof-
ræða jarlsins um Veroníku hafði
heldur ekki verið þýðingarlaus. Já,
hún var yndisleg kona. Hann hataði
það, að kvænast, vildi draga það í
lengstu lög, en —
Hann leit inn l gegnum gluggan
á dagstofunni. Veroníka sat þar
við píanóið, og studdi annari hend-
inni léttilega á nótumar, en lék þó
ekki. Hinni hendinni studdi hún
undir kinn. Hún horfði beint fram
undan sér og var auðsjáanlega hugsi.
Hún var hrífandi fögur, en Talbot
frænda hennar hitnaði þó ekki um
hjartaræturnar. Hann bar hvorki
aðdáun né ást í brjósti. Hann sá
einungis stúlkuna, tökubamið, sem
hafði rænt hannfé frænda hans. Hann
varpaði ólundarsvipnum, og gekk
siðan brosandi inn í dagstofuna.
“Viljið þér gera svo vel að syngja
fyrir mig, Veroníka?” spurði hann.
Veronika varð dálítið hissa á þvi.
hve rómurinn var hýr og vingjam-
legur. Henni datt ekki í hug, að
jarlinn hefði sagt honum, að hún
væri erfingi jarlsins. Þótt henni
hefði dottið það 1 hug, hefði hún
þó aldrei getað grunað neinn mann
í Talbots stöðu um, að hann léti
slíkt hafa áhrif á sig.
Hann stóð upp við píanóið, á með-
an hún söng fyrir hann og vottaði
henni þakklæti sitt I sama hlýja og
vingjarnelga rómnum.
“Söngrödd yðar hefir tekið miklum
framförum,” sagði hann. “Hún var
ávalt fögur og skær, en nú syngið
þér eins og listamaður.”
“Eg hefi notið yðar kenslu,’ sagði
Veroníka, sem var glöð yfir lofi
hans, enda þótt henni geðjaðist ekki
að honum. “Lynborough lávarður
hefir verið mér svo góður.”
“Það er ekki undarlegt,” svaraði
hann. “Hvernig gæti hann —
hvernig gæti nokkur verið öðruvísi
við yður?” Hann hallaði sér áfram
og horfði í augu hennar með auð-
sýnilegri aðdáun.
Hann sá það á undrunarsvipnum,
sem kom á andlit hennar, að hann
fór of geyst á stað, og byrjaði þvi
að tala um heilsu karlsions og fólkið
á heimilinu.
Talbot sá, að hann yrði að fara
hægt og gætilega. Það var ekki
hægt að veiða hana með of snöggri
ást, hversu vel sem honum tókst að
gera sér hana upp. Þegar hann
leit inn í djúp fjólublágráu augn-
anna hennar, sá hann, að maður
yrði að leggja sig í framkróka eftir
henni til þess að vinna hjarta henn-
DUSTLESS
COAL and COKE
CHEMICALLY TREATED IN OUR OWN YARD
Phone 87308
THREE
LINES
D. D. WOOD « SONS
LIMITED.
WARMING WINNIPEG HOMES
SINCE “82”
ar. Þess vegna fór hann sér hægar.
Morguninn eftir, þegar Veroníka
hafði svarað bréfum jarlsins, fór
hún upp til herbergja sinna og leit
út um gluggann og var hugsi. Hún
beit á neðri vörina og roðnaði lítið
eitt. En sú kona, sem hikar, hefir
tapað.
Hún var afráðin í því, að fara
ekki niður að ánni, en fór þó úr
músselíns-morgunkjólnum sínum og
í gráan kjól úr heimaunnu efni. Því
næst gekk hún út í gegnum aftara
anddyrið.
Talbdt stóð í varpanum. Hann var
að lesa í blaði og reykti vindling.
Þegar Veroníka gekk fram hjá hon-
um og fór niður þrepin, leit hann
upp.
“Eruð þér að fara á skemtigöngu?
Má eg koma með yður?” spurði hann
og bjóst við greiðu samþykki. En
Veroníka brosti og hristi höfuðið.
“Nei, þökk,” svaraði hún svo
kuldalega, að hann varð hissa. “Eg
er í einveruhug í morgun.”
Hún« roðnaði, þegar hún fór að
hugsa nánar um svar sitt. Einveru-
hug! Var hún ekki að fara niður
að ánni til þess að hitta Ralph
Farrington ?
Ef það var ætlun hennar að finna
Ralph, þá varð hún fyrir vonbrigð-
um. Það bar engan íturvaxinn mann
við himin. ‘Einveruhug’ hennar var
fullnægt.
Hún gekk eftir bakkanum, reyndi
að telja sjálfri sér trú um, að hún
hefði ekki orðið fyrir vonbriðum.
Hún sætti sig þó brátt við einveruna,
og var í þann veginn að leggja af
stað heim aftur, þegar hún heyrði
fótatak fyrir aftan sig og sá Ralph
koma með veiðistöngina i hendiifhi.
Blóðið steig henni ekki til höfuð-
sins — en konurnar einar vita hvað
það kostar að hamla því þess — og
þegar hann tók ofan fyrir henni
hneigði hún höfuð sitt hægt og
kurteislega.
“Góðan daginn, Miss Denby,” sagði
hann frjálslega og rólega, sem hann
var vanur. “Leitt að þér skylduð
ekki koma í gær. Það var ágætt
fiskiveður og eg veiddi fulla körfu,
enda þótt eg geymdi alla bestu
veiðistaðina handa yður — sem eg
sé eftir.”
“Eg er komin núna,” sagði Ver-
oníka.
“Já”. mælti hann, “og eg hefi
skilið stöngina yður eftir heima. Eg
fann eina létta og laglega, sem var
hentugri fyrir konur en þessi hérna.
Eg ætla að skreppa eftir henni.”
“Nei”, sagði hún í skipunarróm.
“Eg get ekki beðið. Eg ætla að nota
þessa.”
“Eine og yður þóknast,” svaraði
hann glaðlega. Hann leit með á-
nægjusvip á kjólinn hennar, sem var
líkastur vinnubúningi, en horfði með
afsvip á skóna hennar. “Þeir eru
ekki vatnsheldir, ímynda eg mér.
Nei, kvenskór eru það aldrei. Þér
getið ekki vaðið. Það gerir ekkert
til. Hér er stöngin. Kastið nú öng-
linum rétt fyrir neðan steininn þarna,
þar sem gárarnir eru ávatninu. Já,
ágætt.”
Hún kastaði hvað efatir annað og
sagði því næst óþolinmæðislega:
“Hvers vegna bítur hann ekki á?”
"Það er enginn fiskur þama,”
mælti hann þurlega. “Það var einn
þar, en öngulinn yðar féll eins og
blýlóð niður í vatnið og fældi hann
burtu. Þér verðið að kasta létti-
legar.”
“Sýnið þér mér það þá,’ ’sagði hún
í skipandi róm.
Hann tók við stönginni — hand-
fangið var ennþá volgt, af því að
hönd hennar hafði verið heit, og sá
hiti rann eins og rafmagnsstraumur
upp handlegg hans í hjarta hans —
og sýndi henni hvernig maður átti
að kasta önglinum.
“Sjáið þér?”
"O-o, eg sé,” hreytti hún úr sér
mjög firtnislega, "en eg get aldrei
gert það.”
“Aldrei en langur dagur,” svaraði
hann og var uppörfandi. “Þetta er
þegar betra.”
Hann horfði á hana um hríð og
sagði því næst: “Þér eruð heldur
skjálfhent. Eg ætla að lofa yður
að vera einni dálitla stund.”
“Eg hefi aldrei verið skjálfhent
á æfi minni,” ansaði hún og leit
á hann, undrandi yfir dirfsku hans.
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Blds.
Skrlfstofusíml: 23674
Stund&r sérstaklega lungn&sjúk*
dóma.
Er &T5 finna & skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimill: 46 Allow&y Ave.
TalHfml t 33158
DR
A. BLONDAL
602 Medlcal Arts Bld(.
Talsfmi: 22 206
Stundar sérstaklesa kvensjúkddma
og barnasjúkdóma. — A0 hitta:
kl. 10—12 » h. og 3—5 e. h.
Helmlll: 806 Vlctor St. Sfmi 28 130
DR. B. H. OLSON
216-220 Medlcal Arta Ð(<1&.
Cor. Graham and Kennedy St.
Phone: 21 834
Vit5talstími: 11—12 og 1_5.30
Heimlli: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Dr. J. Stefansson
216 NBDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stnndar elo&ÓKiiru auj&ia* eyrna •
nef- og kverka-ajðkdðma
Er atJ hitt& frá kl. 11—J2 f. h
og kl. 3—5 e h.
Talitlmi t 21884
Heimili: 688 McMlll&n Ave. 42691
Talsfml t 28 888
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
•14 Somerset Block
Portaire Avenue WINNIPHG
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
HEALTH RESTORED
1 Lækningar án lyfja
UK. 8. G. SIMPSOS, N.D., U.O., U.C.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
MOORE’S TAXI LTD.
Cor. Donnld and Graham.
50 Cents Taxi
Frá einum stat5 til annars hvar
sem er í bænum; 5 manns fyrir
sama og einn. Állir farþegar á-
byrgstir, allir bílar hitatJir.
Sfmi 23 806 (8 lfnur)
Kistur, töskur o ghúsgagna-
flutningur.
Brynjólfur
Þorláksson
Sími: 86 762 67Ó Victor St.
Stillir PIANOS og ORGEL
Hann reyndi að halda niðri í sér
hlátrinum. Gekk svo nokkrar stikur
frá henni og fleygði sér niður í
grasið. Hún hélt áfram að kasta
önglinum, þangað til hún hætti því
alt í einu. Hann reis á fætur og
gekk til hennar, þvi að hann hélt, að
færið hefði flækst.
“Nokkuð að?” Hún var kafrjóð
og var að fáta við eitthvað. “Ha,
já. Þér hafið krækt önglinum i
úlfliðinn á yður.’
“Já, og eg get ekki losað hann.
Gerið þér svo vel að reyna að ná
honum,” sagði hún og rétti drembi-
lega að honum höndina. Hann tók í
hönd hennar og hnyklaði brýnnar.
“Hægara sagt en gert,” svaraði
hann alvarlega.
“Hann hefir stungist upp fyrir
agnhald. Eg er hræddur um að eg
verði að meiða yður, Miss Denby.”
Hún brosti fyrirlitlega. “Þetta lítil-
ræði að meiða mig! Viljið þér ekki
gera svo vel að draga öngulinn út.”
Hann hörfði fast á hvíta úlfliðinn,
sem öngulinn stóð fastur í. Hann
leit ekki upp en fór ofan í vasa sinn
og tók upp úr honum lítil skæri.
“Eg get ekki dregið hann út. Eg
verð að skera fyrir honum. Það
veldur sársauka, en eg skal fara
svo gætilega sem eg get.”
Hún hló aftur og sagði: “Þetta
lítur ekki út fyrir að vera neitt
voðalegur skurður.”
Hann leit allra snöggvast i augu
hennar. Það var eitthvað það í
augnaráði hans, sem kom henni til
að blóðroðna. Hún sá að hann var
fölur, og að hann klemdi saman var-
irnar, eins og hann væri að reyna
að halda sér í skefjum. Hún fann
líka að hönd hans titraði.
"Horfið eitthvað frá,” sagði hann
næstum hörkulega. “Það verður ekki
mjög sárt.”
Hún átti í stríði með sjálfa sig,
en horfði þó á öngulinn. Hann var
5 þann veginn að klippa skinnið í
sundur og losa öngulinn, en hætti
í miðju kafi og leit aftur upp.
“Horfið eitthvað annað,’ mælti
hann lágt. “Eg get ekki gert það,
ef — ef þér horfið á mig.”
Hún brosti ertnislega yfir þessum
nýju vandræðum hans.
“Eigið þér svona bágt með að
sjá blóð?” sagði hún hálf-gletnis •
lega. “Og þér sem eruð skógarvörð-
ur!”
Hann hrdsti höfuðið, klemdi fastar
saman varirnar og hló kuldahlátur.
“Eg gæti séð heil úthöf af því,”
svaraði hann. ”En að valda yður —
konu sársauku. Það er annað mál.”
Hún var fljót að taka eftir þessu
‘yður’, sem hafði komið ósjálfrátt.
Hún brosti lítið eitt. “Þér ættuð
að láta mig gera það. Eg er ekki
smeik við sársaukann.”
‘‘Nei, nei”, svaraði hann. “Þér
gerið úr því sár, en eg get það svo,
að varla sjáist skinnhrófl. Það væri
slæmt —”
Hann hélt áfram með setninguna,
en hún fann, að hann horfði á úlf-
liðinn hennar, hún fann undarlega
hlýju leggja frá handtaki hans upp
eftir handleggnum.
“Jæja, þá!” mælti hann og and-
varpaði eins og nú ætti til skarar
að skríða. Hana kendi til undan
oddinum á skærunum og fann mik-
inn sársauka, þegar harin dró út
öngulinn. En hún lét sér ekki bregða.
Var í þann veginn að draga að sér j
. .,, j hvort eg veiði ekki.
höndina, en henm til mikillar und-1 6
runar hélt hann hendinni fastri.
“Bíðið þér við,’ ’sagði hann. “Flug-
an var orðin gömul, eg hafði notað
hana oft. Þær verða stundum eitrað-
ar. Mér þykir það leitt en það má
til!’
Áður en hún vissi hvaðan á sig
stóð veðrið, hafði hann beygt sig
niður að úlfliðnum, og fann hún
heitar varir hans koma við sárið.
Blóðið steig henni til höfuðsins, en
leitaði þaðan brátt aftur.
“Var þetta — nauðsynlegt ?’ ’spurði
hún hann.
“Það var það. Eg hefi vitað blóð-
eitrun koma af lítilf jörlegum orsök- | Veroníka kafroðnaði, var að því
um. Hún getur stundum orsakast af komin að segja: “Hvað varðar yður
Nafnspjöld |
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 24 587
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islenzkir lögfraðingar
709 MINING EXCHANGB Bld§
Simi: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstofur aö Lundar,
Piney, Gimli, og Riverton, Man.
Telephone: 21 613
J. Christopherson,
Islenskur Lögfrteðingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
sjálfan sig. Að lokum sagði hann
j óþýðlega:
Eg ætla að taka stöngina, og vita
Hann óð upp eftir ánni og byrjaði
að veiða. Veronika stóð sem steini
lostin og horfði á rauða blettinn á
úlfliði sínum, sem varir Ralphs höfðu
snert. Alt í einu heyrði hún nafn
sitt kallað upp. Hún hrökk við og
leit um öxl. Talbot stóð við hlið
hennar og horfði á hana köldum
undrunarsvip.
“Hvað eruð þér að gera hér með
þessum náunga?” spurði hann og
benti á Ralph.
VII.
“Hvað eruð þér að gera hér með
þessum náunga?”
títuprjónsstungu, og eg vildi ekki
eiga það á hættu. Það er dálítið far
eftir, en það grær fljótt.”
Hann slepti hönd hennar svo
snögglega, að minstu munaði, að
A. S. BARDAL
selur likkistur og ann&st um útf&r-
ir. Allur útbúnaöur sá beitt.
Ennfremur selur h&nn allskon&r
minniev&rt5& og legsteina.
848 SHERBROOKE ST.
Pbonet 86 607
WINNIPBQ
Björevin Guðmundson
a. r. c. M.
Teacher of Mueíc, Composítion,
Theory, Counterpoint, Orche»-
tration, Piano, etc.
555 Arlington SL
StMI 71621
MARGARET DALMAN
TBACHBR OF PIANO
854 RANNING ST.
PHONE: 26 420
Ragnar IH. Ragnar
Pianókennari
hefir opnað nýja kenslustofu a8
STE. 4 NORMAN APTS.
(814 Sargent Ave.*
TALStMI 38 295
TIL SÖLU
A ÖDÝRU YBRÐI
“FURNACB” —bœT5i viTJar og
kola “furnace" lftit5 brúkatJ, &r
tll sölu hjá undirrttutJum.
Gott tœkifœrl fyrir fólk út 4
landl er bœta vllja hitun&r-
áhöld & heimtllnu.
GOODMAN A CO.
786 Toronto St. Slml 28847
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
B«Kg:affe and Fnrnltare Mnrfif
762 VICTOR ST.
SIMI 24.500
Annast allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
100 herbergi metl etla &n ba(>
SEYM0UR HOTEL
verO sanngjarnt
Slml 2- 411
C. O. HCTCHISOM, elgandl
Market and Klng St„
Winnlpeg —:— Man.
um það, Mr. Denby?” En hún stilti
sig, rétti úr s^r og leit á hann með
stoltri fyrirlitningu og undrun. Flest-
um karlmönnum verður nóg boðið af
slíku augnaráði. Svo sneri hún við
hann hrinti henni frá sér. ÞaS var ( honum baki og gekk hægt upp hæð-
eins bg hann ætti í hörðu stríði viS ina.
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. »( 4.
fimtudagskveld í hverju«l
mánuSi.
Hjálparnefndin: Fundir fyrtta
mánudagskveld 1 hverjum
mánufii.
Kvenfélagið: Fundir annan þritjtt
dag hvers mánaCar, kl. S »8
kveldinu.
Söngflokkuri**: Æfingar 4 trrerja
f imtudagsxveldi.
Sunnudagaskólinn:— A hverjum
sunnudegl, kl. 11 t. h.
I