Heimskringla - 04.03.1931, Qupperneq 8
.■Értfiffffifr'iii.
HEIMSKRINGLA
WINNXPEG 4. MARZ 1931.
Fjær oí> Nær
Laugardaginn 28. febrúar s.l. voru
gefin saman i hjónaband af séra
Benjamín Kristjánssyni, þau Guð-
laug Ingibjörg Hallson og William
John Sweeney, bæði úr Winnipeg.
Hjónavigslan fór fram á heimili Mr.
og Mrs. Jakob Kristjánsson, 788 In~
gersoll St. að viðstöddum nokkrum
vinum og vandamönnum brúðurinn-
=ar og var sezt að ágætum mann-
Tagnaði að henni iokinni. Framtíðar
’heimili ungu hjónanna verður 756
Ellice Ave.
• * •
Sjónleikurinn “Astir og miljónir”
verður sýndur i Riverton þriðjudag-
inn 10. marz, kl. 9 síðdegis.
* * *
Séra Ragnar E. Kvaran flytur
guðsþjónustu i Árborg sunnudaginn
8. marz kl. 2 e. h.
ROSE
THEATRE
Phone 88 525
Rarg-ent and Arlingft.on
Thur., Fri., Sat., Mar. 5-6-7
( H AKLIK MURH \ V nnil
GEOKOE SIDNEY
in
The Cohens and
Kellys In Africa
Added
lst Chapter of a New Serial
SPELL OF THE CIRCLS*’
Comedy — OmwuUI Carloon
LOOK! KIDDIES! LOOK!
Special Saturday Matinee
March 7
FREE oOO Flve CentM Choco-
late Bnrn.
“SELL OF THE CIRCl'S’*
“COHENS AND KELLYS
l.\ AFRIKA"
>1 on„ TueM., Wed., Mnr. 0-10-11
CONSTANCE BE\\ETT
a n <1 LEW AtíNES
in
Common Clay
Comeúy
News
Variety
Jóns Sigurðssonar félagið heldur
fund þriðjudaginn 10. febrúar, kl.
2.30 e. h., að heimili Mrs. T. J. Ste-
venson, 497 Talbot St.
* * *
Séra K. K. ólafsson frá Seattle,
Wash., var staddur í bænum yfir
helgina. Hann sat á prestaráðstefnu
sem hér var haldin um þær mundir.
• • *
J. K. Jónasson frá Vogar, Man.,
hefir verið í bænum undanfarna
daga. Hann sat Þjóðræknisþingið.
Heim heidur hann seinni hluta þess-
arar viku.
• • •
Á Þjóðræknisþinginu var fjöldi
utanbæjar gesta, er vér kunnum
færsta að nefna. Auk þeirra, sem
áður eru taldir, urðum vér varir við
þessa: Kristján Pétursson frá Ár-
borg; Hjálm Thorsteinsson frá Gimli
Björn Sigvaldason frá Arborg; Jón
Gillies frá Brown; Gísla Arnason frá
Brown; Halldór Gíslason frá Leslie;
J. J. Myris frá N. Dakota, og svo
ótial marga fleiri, er vér munum
ekki eftir í svip.
THOMAS JEWELRY CO.
627 SARGENT AVE.
SIMI 27 117
Allar tegundir úra seldar lægsta
verði. — Sömuieiðis water
man’s Lindarpennar.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
Heimasími 24 141
UNCLAIMED CLOTHES SHOP
Karlmennn föt ng yflrhafnlr, nniöuö
-cftlr mfill. Niðurhoricanlr haf fallift tlr
Kiidl, oK fötln MejaMt frfi 9D-75 tll 924.50
upphaflej?a »elt fi 925.00 ok upp 1 900.00
471 £ Portage Ave.—Sími 34 585
fslenzka Bakaríið
hornl Mctíee ok Snrgent Ave.
Fullkomnasta ogr bezta bakning:
kringlur, tvíbökur og skröliir A
mjög: sanngrjörnu verði. Pantan-
ir utan af landi afgrreiddar móti
ávísanir.
Winnipeg Electric Bakeries
Sfml 25170—051 Sargent Ave.
-------------------»----------
The
City FishCo.
Phone 28 835 632 Notre Dame
Smoked Goldeyes, lb........25c
Lake Winnipeg Whites, lb.14c
Northern Whites, lb.........9c
Pickerel Fillets, lb.......18c
Haddie Fillets ib..........18c
Finnan Haddie, Ib..........14c
og fleiri tegundir
Símið — Vér flytjum heim til yðar.
M.R. MAGNt>SSON,
eigandi.
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
F.xpert Repatr and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
• B»tteries, Etc.
^oeoeeeððesooososGGCOooececcosccccoccccoecoecccoccccQ
• KOMIÐ SJÁIÐ YÐUR EÐA VINI
YÐAR A WNGVÖLLUM.
FYRIRLESTUR UM ÍSLAND MEÐ HREYFIMYND AF
VANALEGRI LEIKHÚSASTÆRÐ OG
LIT-SKUGGAMYNDUM.
Thorstína Jackson Walters
Goodtemplars Hall, FIMTUDAGINN, 12. marz, kl. 8 e.h.
HREYFIMYNDIN sýnir aðal þætti Alþingishátíðarinnar á
Þingvöllum, flug Graf Zeppelin yfir Reykjavík og annað fleira
á Islandi, endar með hreyfimynd af Vilhjálmi Stefánssyni.
Skuggamyndir eru flestar teknar og allar litaðar af Emile
Walters, aldrei áður sýndar meðal Islendinga. t
Inngangur 50 cent.
>ssccccocccccceccccoccccc:
General Electric Radio
$159 0n,y- $10 Down’ $2 Week,y
LOWET TERMS EVER OFFERED
E. NESBITT Ltd.
Sargent at Sherbrook
The Best in Radio
LOWEST TERMS IN CANADA
Charlie Marino Johnson frá Gimli
andaðist s.l. þriðjudag á almenna
sjúkrahúsinu í Winnipeg. Banamem
ið var botnlangabólga. Hann var 14
ára gamall, hin nefnilegasti drengur.
• • •
Þann 9. þ. m. verður almennur
fundur haldinn í fundarsal Good-
templarahússins til þess að ræða Is-
lendingadagsmál. Núverandi nefnd
skilar þar af sér til almennings
skýrslum og reikningum fyrir síðast
liðið ár og ný nefnd verður kosin.
Fólk ætti að sækja vel þenna fund,
því ekki er ólíklegt að þar verði
margt að heyra. Fundurinn byrjar
kl. 8 að kvöldinu.
• • •
Laugardaginn 28. febrúar voru
þau Jón Vigfússon og Jónína Þor-
björg Gíslason, bæði frá Riverton,
Man., gefin saman i hjónaband af
séra Rúnólfi Martetnssyni 'að 493
Lipton St. Heimiii þeirra verður að
Riverton.
• • •
Guðmundur Fjeldsted frá Gimli
er staddur hér í bænum í dag. —
Hann situr fund með fiskinefnd fylk-
isins, sem auk annars hefir 1 hyggju
að framlengja tímann á þessu vori
til fiskiveiða.
• • •
Guðm. Pálsson frá Narrows, Man.
hefir verið í bænum undanfarið. —
Hann sat Þjóðræknisþingið. Hánn
lagði af stað í vikunni austur til
Hekkla, Ont., og býst við að dvelja
þar tvær vikur hjá mági sínum, Ja-
kobi Einarssyni.
• • •
Samkoma verður haldin í I. O. G.
T. Hall, Lundar, föstudaginn þann
13. marz. Þar verða sýndir gaman-
leikirnir: “Annarhvor verður að gift-
ast”, og “Biðlarnir hennar Betu
framku”. Milii þess að leikirnir fara
fram, verður skemt með söng og
hijóðfæraslætti. Byrjar kl. 8.30. —
Inngangseyrir 35c fyrir fullorðna,
25c fyrir börn. Arðinum verður var-
ið til hjálpar nauðstöddum.
• • •
Mánudaginn 9. marz n.k. verður
að tilhlutun einnar deildar Kven-
félags Sambandssafnaðar, spilafund-
ur haldinn í fundarsai kirkjunnar,
horni Sargent og Banning, til ágóða
fyrir vorbazaar kvenfélagsins. Hefst
kl. 8 e. m.
• • •
SAMKOMU held eg undirritaður
sunnudaginn 8. marz kl. 3 e. h., i
Fyrstu íslenzku hvítasunnukirkjunni
603 Alverstone St. —Efni: Hvað
sagði Marteinn Lúter um skírnina?
Eða er fermingin guðs orði sam-
kvæm?
Einnig verður samkoma kl. 7 að
kvöldinu. Verður þá beðið fyrir veik-
um samkvæmt guðs orði.
Allir velkomnir.
Yðar einlægur,
Páll Johnson.
• • •
HI BOY! LOOK!
Another Big Free Student “Sam-
koma”! The vitai question of the
day. What is going to become of
pants, vests, coats, red flannel un-
derwear? “Resoived that men’s dress
reform should come into effect”.
Hear the soap box oratory of the
affirmative, Frank Gillies and Gytha
Hallson, and hear the hickling and
cackling of the negative supported
by Harald Johannson og Alla Guð-
mundson.
A dramatic monologue, varied
musical programme followed by re-
freshments.
Friday, March 6, 8.15 p.m.
First Federated Church.
Collection.
Icelandic Student Society.
Fálkar 7 — Natives 6
Fálkar sigra eftir harða orustu.
Var sóknarlið þeirra mjög áberandi.
skutu þeir Ingi og Matti Jóhannes-
synir oft í höfn. Albert Johnson gaf
Natives litla hvíld, sem og gerðu
þeir Eggert Bjarnason og Kjartan
Johnson.
Wally Bjarnason lék, eins og hann
á vanda til, af frábærri snild, sem
og gerði Arni Jóhannesson.
Kaffi — Whist Drive og Dance
(Verðiaun gefin)
Iþróttafélagið Fálkinn efnir til
samkomu á laugardagskvöldið þann
7. marz í Goodtemplarahúsinu. —
Gefst íslendingum þar tækifæri til
þess að styðja góðan félagsskap og
verða um leið aðnjótandi góðrar
skemtunar, alt fyrir 25 cents. —
Fyllið húsið, landar góðir!
A. G. M.
KVEÐJITORÐ FRA VIN.
Brynjólfur Hólm er burtu liðinn
á brautina sem enginn sér, •
þar sem að allir finna friðinn,
þá ferðinni héðan snúið er.
Hann var mesti dáða drengur,
dygðum prýddur lífs um skeið,
en hjá oss ekki hér er lengur:
hans er enduð sómaleið.
Gísli Papfjörð.
MOIJNT RAINI’ER.
(Nálægt Tacoma, Wash.)
Þú risajökuli! sveiptur sólar skrúða,
með silfurhvítan himinháan tind,
1 morgunroða gullnum geisladúða
þú gnæfir hátt á himintærri lind;
á þínum tind er þögn og ró og frið-
• ur
og þrek og frelsi, er þráir manns-
ins sál.
Þar þekkist ekki tál og töfrakliður.
Þar heyrist ekki tímans spilta mái.
ó, heill sé þér um aldur og um æfi,
þú öðling fjalla, allra fjalla tröll,
á meðan eyjar girðir saltur sævi
og sólin hjúpar hóli, dali og völl.
Þá ertu undur furðulandsins fríða,
hvar feyknum timans fagnar strönd
og sund.
Þú geymir máske gimstein gleymdra
tíða
og goðasögn frá lífSins morgunstund.
J. B. Holm.
FRÁ ÍSLANDI.
Bridgman Electric Co.
Winnipeg — Furby og Portage — Sími 34 781
RAFLAGNING Á GIMLI
Látið oss gera raflagninguna í húsunum hjá yður
og kaupið hjá oss ljósaáhöldin. Verk og vörur á ódýr-
asta verði.
Vér skulum með ánægju veita upplýsingar um
kostnaða áætlun hvenær sem er. Lítið inn í búðina hjá
oss, við hliðinaá símastöðinni á Gimli og talið við herra
J. Ásgeirsson.
FALKAFLUG.
Rvík. 21. jan.
Bókaútgefandinn danski Hassel-
balch og forstjórar Gyldendalsbóka-
verslunar, hafa nýlega lent í deilu
út af því, að Hasselbalch auglýsti
bók Kambans, “Jómfrú Ragnheiði” á
mjög óvenjulegan hátt. 1 einhverju
fremur ómerkilegu blaði hafði í haust
birst grein um nokkrar nýútkomnar
bækur; m. a. um bók Kambans og
bók Gunnars Gunnarssonar “Jón
Arason.” 1 grein þessari var gerður
samanburður á hinum nýútkomnu
bókum þeirra Gunnars og Kambans.
og var Kamban hælt á hvert reipi,
en Gunnari hallmælt að sama skapi.
Hasselbalch tók nú stúf úr grein
þessari, með hól um Kamban, og
skömmunum um Gunnar, og gerði
úr auglýsingu fyrir “Jómfrú Ragn-
heiði”. Er ekki sýnilegt, hvernig
Hasselbalch hefir álitið sæmandi eða
sér hagkvæmt að auglýsa hnjóðið
um bók Gunnars sem hnoum kemur
ekkert við. Gyldendalsbókafélagið
svaraði með því, að taka allar for-
lagsbækur Hasselbalchs úr bókabúð-
um þeim, er hafa sérstakan samning
vð Gyldeindal. Þær eru um 400 í
landinu. Bókaverslanir þær fá ekki I
bækur Hasselbaichs til sölu, nema!
gegn staðgreiðslu.
—Mbl.
Afstaða Hockeflokka íþróttafélags
ins er þessi:
Fálkar, 15 mörk; Natives 13;
Geysir 9, Víkingar, 7.
Geyslr 7 — Víkingar 3
Geysismenn sýna frábæra leikni
og verða Víkingum yfirsterkari. Bar
einna mest á þeim Wally Sigmunds-
son og Harold Gíslason í sókn, en
Sverri Hjartarson í vörn. Svellið
var ekki í sem beztu ásigkomulagi
sökum hláku, er hefir gengið undan-
farna daga, og gerði það að verkum
að samspil var ekki eins gott og ella
hefði mátt búast við.
Endurminningar
Framhald frá 5 síðu.
Mig vantaði talent og temperament
og talsvert af þekkingu líka.
Það fylgdi þessari viðburðasögu
til mín, að þegar hér var komið sög- j
unni, þá hefði sýslumaður skrifað j
Kristjáni og kannast við það, að
eins og hann hefði byrjað þessa
sennu, þá taldi hann sé nú skylt að
lofa honum að hafa seinasta orðið
og þakka honum fyrir skemtunina,
og skildu þeir svo vera vinir. Var
svo og um talað í minni sveit, að
væru þeir mestu mátar altaf síðaa.
Áður en eg lýk endurminningum
minum um Kristján Jónsson, sem
að mestu eru bygðar á umtali sveit-
unga okkar, eftir að eg var orðinn
svo stálpaður, eð eg tæki rétt eftir
hlutunum, þá vil eg þó taka það
fram, að eins lengi og eg þekti til,
þá töldu Fjallamenn sér Kristján á-
valt til gildis, þó þeir í rauninni
ættu minna tilkail til hans en Keld-
hverfingar, þar sem hann var fædd-
ur og uppalinn alt til hálfmyndugs-
aldurs. En af þvi hann fór í skóla
af Hólsfjöllum, og átti stúlkuna,
sem hann unni, í þeirri sveit, þá
mun hann hafa talið heimili sitt þar
þegar hann kom til Reykjavíkur og
þar af leiðandi verið kallaður Fjalla
skáld. Það má í fljótu bragði virðast
einkennilegt, að sýslumaður kallar
Kristján í annari þessara vísna
“prestsefni Möðrudala”; en fyrir
þeim, sem til þekkja, er þetta ekk-
ert skrítið. Möðrudalur er á Efri-
Fjöllum, sem svo er kallað, og þar
er kirkja, sem var altaf annexía frá
Hofteigi á Jökuldal þangað til Fjalla
þingin urðu sérstakt prestakall. —
Hins vegar var það altaf álitið sjálf-
sagt, að fátækir piltar, sem í skóla
gengu, mundu verða prestar, af því
að enginn annar embættisskóli var
til í landinu sjálfu, en mjög dýrt að
sækja Hafnarháskóla. Að öðru leyti
held eg hreint ekki að Kristján hafi
verið búinn að ákveða að verða
presturf þó hann hefði komist I
gegnum skóla eða enzt aldur til
þess.
Frh.
ATTVINNULEYSIÐ.
Frh. frá 7. bls.
þa^fa fjölskyldunnar, hita, ljóss, fæðu
klæðis o. s. frv. Allir sjá, að þetta
er ekkert sældarlíf. Það er eymdar-
og sultar-líf. Og þeir, sem eru að
tala um, að þeim leiðist sé kvörtun-
artónn, sem sifelt sé hjá verkamönn-
um um þessa hluti, ættu að skamm-
ast sín og spenna sjálfir sultarólina
um kviðinn heldur en að kasta
hnútum um barlóm, nöldur og hug-
leysi að fátækri alþýðu.
Það er mjög undarlegt, að for-
ráðamenn bæjarfélagsins skuli ekki
en hafa hrint af stað atvinnubótilm.
Væri ekki sfmra fyrir bæjarfélagið
að fá nokkra atvinnulausa og líð-
andi verkamenn til að grafa fyrir
skrifstofuhúsi handa bænum, heldur
en að láta einn mesta burgeis bæjar-
ins plokka út úr bæarsjóði 16.000 kr.
á hverju ári i ófyrirsjáanlegan tima
fyrir húsaleigu. Væri ekki nær fyrir
bæinn að eiga sína eigin pípugerð
og láta atvinnulausa fátæklinga fá
þar fasta vinnu, heldur en vísvitandi
um óhag sinn og tap auðga einn
mann með því að kaupa pípurnar
af hanum.
—Alþb. 13. jan. 31.
VlNLANDS BLÓM
heldur samkomu í fundarsal Sambandskirkjunnar, Ban-
ning and Sargent, föstudagskvöldið 13. þ. m., kl. 8.
Myndir verða sýndar af skógargróðri Norður-Can-
ada, ásamt nokkrum myndum af skógargróðri íslands,
Annað prógram verður auglýst í næsta blaði.
Inngangur ókeypis; allir velkomnir. Samskot verða
tekin.
'<eOS0eð6OSððð999SO99eSS0eQðSQðð6eSO9S0eð090ðCC6OS0^
Tilkynning
Þar sem eg hefi keypt eldiviðarverzlun herra S. F.
Ólafssonar á horni Sargent Ave. og Toronto St., þá bið
eg alla hans gömlu viðskiftavini, og hina aðra, sem eldi-
viðar þarfnast eða kola, af hvaða tegund sem er, að láta
mig vita, og mun þörfum þeirra verða sint fljótt og
skilvíslega, og fyrir sanngjarnt verð.
Sími á sölustaðnum: 34 137, og heima: 36 763.
A. FREDERICKSON.
CCOSOðSCOCCCOSOSCCCOSOCCCOOCOOOOOSOSOOOCCOSCOGOOOOSeC
I
‘KINGFISHER’’
GILL NETTING
Made by JOSEPH GUNDRY and CO. LTD.
BRIDPORT, ENGLAND
ESTABLISHED OVER 250 YEARS
BEST QUALITY LINNEN GILL NETTING
SUPER QUALITY SEA ISLAND COTTON
FÁIÐ OKKAR PRÍSA ÁÐUR EN ÞÉR KAUPID
Office and Warehouse: 309 Scott Block, Winnipeg
W. Flowers,
SALES REPRESENTATIVE
PHONE 86 594
NU ER TIMINN TIL AÐ KAUPA
RÚMFATNAÐ YÐAR
og borga fyrir hann nú og yfir sumarmánuðina.
Vf;R HÖFUM AGÆTT ORVAL AF
Eiderdown Stoppteppum, Ullarteppum, Bómullarteppum
Rúmteppum, Gólfteppum
— og Linoleum dúkum. —
Simið og umboðsmaður vor mun koma til yðar.
"YOIJR CREDIT IS GOOD WITH US”
Gillies Furniture'íCo., Ltd.
956 MAIN ST. PHONE 53 533