Heimskringla - 11.03.1931, Síða 4

Heimskringla - 11.03.1931, Síða 4
4 BLAÐSJÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 11. MARS 1931. ^--—-------------------— Hctmskringk StofnuO 188«) Kemur ú,t á hverjum miOvilcudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. 833 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537 VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist fyriríram. AUar borganir sendist THE VIKING PRESS "LTD. Ráðsmaður. TH. PETURSSON Utanáskrift til blaOsinf. Manager THE VIKING PP.ESS LTD.. 853 Saraent Ave.. Winniveg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til rilstjórans : EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent A oe., Winnipeg. "Heimskringla’’ is published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 S'trgent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEG 11. MARS 1931. ÁHRIF BANDARfKJANNA ÚT Á VIÐ. t>að hefir eflaust, öðrum en þeim, sem þetta ritar, komið margt af því einkenni- lega fyrir sjónir, sem sagt hefir verið og ritað um Bandaríkin á seinni árum. Þjóð- in hefir stígið þau risaspor í framfara- og velmegunaráttina, að allur heimurinn hefir horft á það með undrun og sjálf- sagt að einhverju leyti með aðdáun, en eflaust einnig með nokkurri öfund. Að minsta kosti hefir ýmsum, sem þá vel- megun hafa á orði haft, oft verið gjarn- ara að líta á hana sem afleiðingu af blindri og harðsvíraðri mammonsdýrkun, sem hertekið hafi hugsunarhátt banda- rísku þjóðarinnar, en nokkrum ákveðn- um þjóðlífsstefnum, sem grundvöllur hafi þar verið lagður að- og slík þroska- skilyrði ætti í sér fólgin. Og rotnun ýmis- konar og glæpi, sem eigi sér stað í þjóð- lífinu af þessu, er þá jafnhliða bent á, enda þótt eflaust megi segja, að á þvf beri sízt meira í Bandaríkjunum en ann- arsstaðar, þar sem feikna auðssöfnun á sér stað. Á þessum hugsunarhætti gagnvart Bandaríkjunum mun einkum hafa farið að bóla eftir stríðið. Auðvitað er það op- inbert leyndarmál, að konungsvaldinu út um allan heim hefir frá því fyrsta búið uggur og ótti í huga af lýðstjórnarstefnu Bandaríkjanna. Þjóðþrifin og velmegun- in, sem ekki var hægt að bera á móti, að spratt upp og blómgaðist í skjóli hennar, var órækur vottur um ágæti hennar og yfirburði í augum almennings f flestum löndum yfir, alt annað þekt stjórnskipulag þjóða, konungsvaidinu auð vitað til hugarangurs og ergelsis. En á móti því var ekki auðið að mæla, enda þótt hættan sýndi sig eins ótvírætt eins og í því, að aðrar þjóðir, t. d. Frakkland, færu að dæmi Bandaríkjanna og settu lýðstjórn á stofn hjá sér. En — þegar svo var komið, að hægt var að sýna fram á bölvun auðssöfnunarinnar að einhverju leyti, gafst tækifærið að minsta kosti til að gagnrýna lýðstjórnarstefnuna og rýra trúna hjá almenningi á hana. Og með það fyrir augum hafa smáir og stórir glæpir, sem í Bandaríkjunum hafa átt sér stað. verið auglýstir svo uppihalds- laust út um allan heim> að engin mótvon er þó menn færu yfirleitt að festa trún- að á það, að þar í landi væri ein sú mesta óstjórn og ósliyn glæpaöld upp runnin, sem nokkursstaðar fyndist á jarðríki. Og hinn andlegi jarðvegur var, eins og allir ríta, eftir stríðið í órækt og fyrir alt móttækilegur. Til þessa hvors- tveggja mun það eiga rætur að rekja, að jafnvel þeir, sem í aðalatriðunum eru lýð- stjórn hlyntir, eins og alþýða manna mun í raun og veru víðast hvar vera, virðast algerlega hafa mist sjónar á því, í þess- ari moldviðrisgagnrýni á auðsöfnun, sem í ljós hefir að vísu leitt, að ýmsar illar afleiðingar eru henni samfara í Banda- ríkjunum, en sem yfirleitt mun þó frem- ur undantekning mega teljast en algild regla, og ekki er vitund frábrugðin því, sem aijnarsstaðar er. Og það munu fáir. er til þekkja, í alvöru vantryesta Banda- ríkjaþjóðinni sjálfri nokkum hlut fremur að vaka yfir slíkum þjóðlífsbrestum hjá sér og hefta þá, en öðrum þjóðum yfir sinni eigin hættu í því efni. í sögunni er það alment viðurkent- að á þeim tíma sem Bandaríkjaþjóðin fór að eiga með sig sjálf, hafi hún lagt horn- steininn að mannréttindum og einstak- lingsfrelsi í heiminum. Og víst er um það, að áhrif þessarar miklu þjóðar hafa í þessu efni verið feikilega mikil út á við, eins og vikið var að hér að framan. En þá vaknar sú spurning hvort að auð- söfnun og velgengni hennar hafi rýrt þessi áhrif út á við, svo að hún hafi, eins og ýmsir eru að halda fram, glatað sínu þjóðareðli fyrir hana? Það er eftirtektarvert með Bandaríkja- þjóðina, að hím virðist sér þess ekki með- vitandi vlirleitt, að hún hafi eiginlega nokkur áhrif út á við. Hin svonefnda Monroes-kenning virðist hafa náð mjög miklu tangarhaldi á hugsun hennar, enda mun það ekki hafa getað dulist, að ef lifa ætti í sátt og friði við umheiminn, eins og þjóðin æskti, væri ráðið að.lifa eftir þein-i kenningu. En auðvitað gat sú kenning ekki komið til fullnustu í veg fyrir ýms áhrif út á við. Eftir að þjóðin auðgaðist svo r»g efMist, að hún fór að reka viðskifti eríendis, og sérstaklega eft- ir að hún fór að veita öðrum þjóðum peningalán, var cumflýjanlegt að áhrif hennar kæmu fram í heimspólitíkinni. Það getur vel veríð, að Bandaríkja- maðurinn, sem þú hittir á förnum vegi, mótmæli því að þetta eigi sér stað- og að stjóm Bandaríkjanna búi alt annað í huga en að láta sig heimspólitíkina nokkru skkifta. En sannleikurinn er sá, að hún hlýtur að láta sig hana skifta, hvort sem að henni er vel við það eða illa, og hvort sem henni er það sjálfrátt eða ósjálfrátt. Jafnvel algert afskiftaleysi hennar hefir áhrif á rás viðburðanna og sögu þjóðanna út um heiminn. Er oss eitt dæmi í huga, er það sýnir sérstak- lega, en það var þegar Bandaríkjaþjóðin neitaði að samþykkja ábyrgðina, sem Wilson forseti lofaði Frakklandi árið 1919, en sem þær afleiðingar hafði f för með sér, þótt afskit'taleysi mætti kalla, að Frakklandi var skipað í annan flokk meðal heimsþjóðanna í stað hins fyrsta. Bandaríkin hafa ávalt haldið því fram, að skaðabætur Þýzkalands. komi þeim ekkert við, nema auðvitað sá hluti, sem þeim ber. En þær komu þeim við, þegar ljóst varð, að Evrópulöndin gátu því að- eins rétt iðnað sinn aftur við, eftir stríð- ið, og með því borgað fyrir vörurnar, er Bandaríkin seldu þeim, að þau gætu feng- ið lán til lengri tíma. En nú gátu fjár- málamennirnir bandarísku ekki lánað Evrópulöndunum fé* nema að ástand þeirra landa í pólitískum skilningi væri viðunanlega trygt. Og hvað var þá gert? Þá var gripið til þeirra ráða að semja við þessi lönd um að einstaklingar frá Bandaríkjunum gerðust nokkurskonar aðilar í stjórnmálaathöfnum Evrópuþjóð- anna, að því er fjármál snerti. Landritari Charles Evans Hughes átti hugmyndina að þessu og bar hana fram árið 1922, og upp úr henni var Dawes samnmgurinn svonefndi sniðittn, sem undirstaöa er þessara lánveit.inga Bandaríkjanna til Evrópuþjóðanna. Afleiðingin af þessari stefnu er sú, að nærri helmingur allra þjóða heimsins hafa nú í þjónustu sinni Bandaríkja- menn sem fjármálaráðunauta. Hjá því verður ekki komist, ef Bandaríkin eiga að samþyltþja lánveitingar til þessara þjóða. Til dærnis ao taka, er nú Charles S. Deney, fyrrum aðstoðar fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, fjármálaráðunaut- ur í Póllandi. Samkvæmt samningi um ráðningu hans, hefir hann rétt til að veru einn af þeim, er fjármálareikninga Pól- lands semja, og ennfremur til að kveða niður (veto) veitingar til vissra verka, ef honum sýnist. Hvers vegna? Vegna þess að nema því aðeins að hann álíti fjárhag ríkisins tryggan, fær Pólland ekki lán frá Bandaríkjunum. Og fái það ekki lán þar, fæst það eðlilega hvergi annarsstað- ar. Þessu til frekari skýringar, skal benda á, að fýsi Pólland t.d. að leggja járnbraut sem frá viðskifta sjónarmiði er einskis verð, en sem þýðingu getur haft, ef til ófriðar kæmi milli þess og Þýzkalands, mundi Deney óðara kveða slíkt niður. Þannig koma áhrif Bandaríkjanna í Ijós samkvæmt þessum áminsta Dawes samn- ingi. í 14 af 20 lýðveldum Suður-Ameríku eru bandarískir fjármálaráðunautar. En hitt er þó enn eftirtektarverðara, að Bandaríkin ráða nokkru um, hvaða stefn- um ýmsar Evrópuþjóðirnar fylgja. Árið 1925 valt tilvera fascismans á ít- ah'u á því, að landið fengi lán. Stríðs- skuldirnar var ekki hægt að greiða, og Bandaríkin kváðust ekki veita ítalíu lán fyr en samið væri um greiðslu þeirrar skuldar. En þegar það loks tókst, varð af samningi milli landanna með þeim á- kvæðum, er Bandaríkin settu að því er stefnu ítölsku stjórnarinnar snerti, er að mun breytti til bóta ráðríkisstefnu Musso- linis. Hið sama er að segja um áhrif Bandaríkjanna á stefnu Pilsudskis í Pól- landi, Horthy í Ungverjalandi, Machado á Cuba, Leguia í Perú og Borno á Haiti. Lánin til allra þessara landa hafa veitt verið með vissum ákvæðum, að því er stefnu stjórnarinnar áhrærir til alheims , friðar. En það er ekki aðeins til þessara smærri þjóða-spámanna, sem Bandarík- in tala með myndugleika í þessu efni. Það kom frá Washington krafan um það árið 1922, að Bretland minkaði sjóher sinn. Og jafnvel Bretlandi þýddi ekki móti því að hafa. Það vissi mjög vel, að Bandaríkin gátu hvenær sem var komið upp stærri sjóher en þeirra. Og það þurfti þá einnig á láni að halda frá Bandaríkj- unum, sem því var ómissandi til þess að tryggja lánstraust sitt. Það gat því ekki annað gert en að samþykkja kröfuna, og var í raun og veru þröngvað til þess. Á- hrif Bandaríkjanna komu þar vissulega fram út á við, í ekkert takmörkuðum skilningi. Það væri annars fjarri öllu eðlilegu að gera sér í bug, að éins voldug og auðug þjóð og Bandaríkjaþjóðin er. hefði engin áhrif út á við. Og hitt væri ennþá meiri fjarstæða, að ímynda sér, að þjóð með annari eins menningu og hennar, hefði enga stefnu í alþjóðamálum eða stæði á sama á hvern hátt áhrif sín kæmu fram eða ynnu. Enda er engu slíku til að dreifa. Bandaríkjastjórnin hefir ákveðna stefnu í alheimsmálum. Og hún er sú, að þröngva þjóðum heimsins til friðar. Hún hefir meira að segja ekki látið sitja við játn- inguna eina í þessu efni, heldur hefir hún lagt raunverulega grundvöllinn að fram- kvæmdum friðarhugsjónarinnar, með Kel- loggs samningnum svonefnda. Það munu færri hafa tekið eftir því, hve samningur þessi rígbindur þjóðirnar, sem undir hann hafa skrifað, til að halda friðinn. Og það er mikil furða, að sumav áköfustu hernaðarþjóðir heimsins skyldu ganga að honum. í honum stendur, að engin þjóð geti farið í stríð með það að yfirskyni, að það sé þjóðmálastefnu henn ar samkvæmt eða óumflýjanlegt. Það virðist strax sem þetta slái vopnin úr höndum þeirra, að hrinda af stað stríði. Sú þjóð, sem á er ráðist af annari, sem þá rýfur samninginn hefir rétt til að verja sig. En síðan koma allar samnings þjóð- irnar saman til að dæma um, hver ófrið- ar þjóðin hafi rofið samninginn og sé völd að stríðinu. Þegar þær hafa kveðið upp sinn dóm, sker Bandaríkjaþjóðin, sem æðsti dómari úr því, hvor þjóðin sé hin seka. Og hún hefir vald til að hegna henni með því að skipa svo fyrir, að eng- in þjóð skifti við hana eða láni henni fé, eða að fleiri þjóðir grípi til vopna á móti henni. Það var þessi samningur, sem Bandaríkin notuðu sem vopn, síðast liðið- ár, á fundinum, sem haldinn var í London á Englandi til þess að mínka sjóher þjóðanna. Með þeirri tillögu Bandaríkjanna voru að vísu ekki allar þjóðirnar er þar voru en hjá því getur varla farið, að á þær þjóðir, sem tillög- unni andæfðu verði sérstaklega litið þannig að þeim búi stríð í huga. Sú stefna getur því orðið þeim dýrt spaug síðar meir. Af þessu sem þegar er tekið fram, er það augljóst, að fyrir Bandaríkjunum vakir, að neyta orku sinnar til að þröngva á friði á meðal þjóða heimsins. Stjórn landsins dylst það ekki, að sú ábirgð fylgir því, að vera ein langvoldugasta þjóð heimsins, að vernda og vinna að sameiginlegri velferð mannkynsins. Og með þessu er þá svarað spurning- unni um það hvort þjóðar-eðlið hafi mik- ið spilst við velmegun þá, sem Banda- ríkin hafa átt við að búa. Við saman- burðinn á því hvernig þau nota auð sinn og ýmsar eða flestar aðrar þjóðir heims- ins gera, sem í botnlausar skuldir horfa ekki í að sökkva sér til þess að halda uppi stríðum og manndrápum mannkyn- inu til eilífrar bölvunar, kemst hver og einn fyrirhafnarlítið og án þess að hugsa mikið þar um að nokkurnveginn réttri niðurstðu um það. Og hvílíkt böl og eyði- leggingu hefði það ekki í för með sér fyrir heiminn, ef Bandaríkin notuðu all- an sinn auð, og alt það fé er þau gætu að láni fengið þar að auki, í sama tilgangi og aðrar þjóðir nú gera? Oss virðist, að hvað sem um Banda- ríkin hefir verið sagt, að sagan muni enn vitna um það, sem áður, að þau séu að minsta kosti hornsteinninn eða undir- staðan sem einstaklings frelsið og mann- réttindum í heiminum hvíla að ekkert leitlu leyti á, og að það verði ekki sízt fyrir áhrif þeirra, að ofan á þá undirstöðu verði bygt. Ameríku-þættir 5 Þar lauk síðasta þætti, er íbú- ar Ameíku, þ. e. Indíánarnir voru dreyfðir út um alla álfunna, h. u. b. 50C0 árum fyrir Kristsburð. Hvernig að þeir spjöruðu sig áfram fyrst eftir komuna hingað fara ekki greinilegar sögur af. En á samt af þvi, sem að þvi lítur, skal þó minst hér. Frá sjónarmiði nútíðarinnar er þægilegt, að hugsa sér þessa fyrstu íbúa landsins sem þrjá mannflokka, eftir menningar stigi þeirra. Einn flokkurinn verður þá í Norður- Ameríku. Annar í Mið-Ameríku og sá þriðji í Suður-Ameríku. Þó þeir séu allir af einum og sama stofni í Asiu upphaflega sprotnir hafa þeir talsvert breyst við ver- una hér og lífsskilyrði sem hver þeirra átti um sig við að búa. Eskimóarnir sem 1 Norðrinu búa ætla menn einna óbreyttasta af- komenda fyrstu mannnnna sem hing- að komu frá Asíu. Og hafi þeir sest að í nyrsta hluta þessarar álfu af þvi, að þeir voru vanir svipuðu loftslagi í Asiu, eins og sumir ætla, bendir það til þess, að menn hafi farið að flytja hingað æði snemma. Um menningarstig eskimóanna er það að segja, að þeir eru engan veginn villimenn (Savages). Sið- ferðis og trúarhugmyndir þeirra eru eftirtektaverðar. Einn af hinum fyrri landkönnuðum, sem tungu þeirra hafði numið, reyndi að skýra fyrir þeim hvað stríð væri. Honum hepnaðist ekki að koma þeim í skiln- ing um það sum part vegna þess, að þeir gátu ekki séð neina skyn- samlega ástæðu fyrir stríðum en einnig auðvitað, vegna þess að þeir skyldu ekki ástandið til neinna muna hjá þjóðum heimsins. A bein grafa þeir af talsverðri list eins og kunnugt er. Og það er ein ástæðan fyrir því, að ýmsir ætla þá af hellabúunum í Evrópu koma, sem yfirleitt er þó ekki lagður neinn trúnaður á. En annars er menningarstig þeirra mjög lágt borið saman við frænda þeirra um mið bik Ameríku, en hærra þó en Suður- Ameríku ibúanna. 6 I Mið-Ameriku, þ. e. a. s. að með- töldum Bandaríkjunum og norður hluta Suður-Ameríku, hafa Indíán- arnir komist á talsvert hátt menn- ingar-stig. En með því að þar er um svo marga ólíka mannflokka áð ræða, verður í þessum kafla ekki farið út í að lýsa þeirri menningu neitt. Það bíður þar til á þessa helztu mannflokka verður frekar minst, því þeir eru svo ólíkir sem mest má verða. Sannleikurinn er sá, að enda þótt þeir séu allir af einum ætt stofni, eru þeir eins ó- likir hver öðrum og Evrópu þjóðirn- ar eru, t. d. Englendingar, Þjóð- verjar og Skandinavar. Og þeir sem kunnugastir eru þvi, halda því fram, “áð um ekki færri en 100 þesskonar mannflokkka sé að ræða. Málin sem þeir tala eru alt að þvi 150, , en svo eru mörg þeirra mjög lík, þó afar mörg virðist lítið eiga sameiginlegt. Og um skyldleika þess ara mannflokka má eflaust svipað segja og um skyldleika Evrópuþjóð- anna, að hann er ef til vill ekki vit- und nánari en þeirra, þegar til alls kemur. En ástæðan fyrir því getur verið sú, að auk þess sem þeir hafa lifað aðskildir svo öldum skifti, er líklegt að sumir þeirra hafi ekki til Ameríku komið fyr en öldum seinna og því ef til vili verið orðnir mjög ólíkir fyrirrennurum sínum, þegar þeir fóru hingað frá Asíu. Það er með öðrum orðum eins mikil ástæða til þess að halda, að Indíánamir, er við köllum einu nafni, séu eins bland aðir- og Evrópu- eða Asiuþjóðimar. og að með eins miklum rétti megi um þá tala sem margar þjóðir, sem þjóðflokka hins eldra heims. I fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið þangað. 7 En sá hópur þessara fyrstu inn- flytjenda, sem inn i skóga Suður- Ameríku flæktist og suður á eyjarn- ar og syðstu odda álfunnar, var5 einhvern veginn útundan að því er alla menningu snerti. Er t. d. oft haldið fram, að hinir svonefndu Fu- egianar séu á eins lágu menningar- stígi og nokkur annar mannflokkur í heiminum. En ekki eru þó allir í- búar eyjunnar, er þeir bera nafn af, eins. Yahganarnir heita hinir lægstu þeirra, og þó undarlegt sé, líkjast þeir að ýmsu leyti í háttum hinum lægstu mannflokkum á Astralíueyj- unum og Tasmaníumönnum. Þeir ganga naktir vetur og sumar og lifa fádæma fáskrúðugu og aumlegu lifi. Þeim er ókunnugt um nokkur trúar- brögð, og trúa ekki á neina anda eða æðri mátt, samkvæmt því sem trúboða, er dvaldi á meðal þeirra í 20 ár, segist frá. Þeir hafa enga hugmynd um siðferðileg efni, og þaff sem gerir þá ólika Indíánum me5 öllu, er að þeir hafa engin samtök sín á milli, sem lúta að verndun ætt- arinnar. Það er einmitt i sambandi viS þennan mannflokk, sem ýmsir fræði- menn halda, að hér hafi menn verifF áður en hinir eiginlegu Indiánar komu hingað. En flestum virðist líkleg'ra, að mönnum þessum hafi farið aftur, að úrætting hafi átt sér stað þar, vegna hinna erfiðu lifs* kjara og því séu þeir ólíkir Indiánum orðnir. Patagóníu Indíánarnir, sem næst þeim standa að menningu, eru þeim þó ekki mjög frábrugðnir, og- hið sama má segja um Amazon- Indíánana. Og Indíánaflokkur einrr er til í Braziliu, er að þvi leyti er líkur Yahgan mannflokkinum, að>' hann leggur enga rækt við vernrf ættbálks síns, og er yfirleitt aF lágri tegund villimanna. Ef úrætting og afturför hefir ekki orðið hjá þessum flokkum, hafa fyrstu inn- flytjendurnir hingað ekki einu sinnr verið á eins háu menningarstigi og nýrri steinaldarmenn voru. Og séu þeir af ennþá eldri mönnum komn- ir, þá vandast málið, að gera grein fyrir hvaðan þeir komu og hvenær og hvernig hingað. Og i því sambandi koma mannr einnig í hug Carib Indíánarnir. Þeir voru til skamms tíma, hvort sem þeir eru það enn að einhverju leytí eða ekki, mannætur. A meðal þeirra i Braziliu er flokkur manna, sem þeim undarlega villimannasið fylgdi. er barn fæddist í heiminn, að kon- an gekk til vinnu sinnar strax eftir- fæðinguna, en faðirinn lagðist á sængina og tók við lukkuóskum ná- búa sinna. Þótt undarlegt megt heita,, átti þessi sami siður sér stað hjá mannflokki þeim, er Baskar eru nefndir, og í héruðuntim í Pyrenea- fjöilunum í Evrópu býr, og er sagt að hann hafi haldist við hjá þeim fram á 18. öld. Baskarnir eru taldir- að vera leifar af ný-steinaldarmönn- um í Evrópu, og að þeir og þessr Indiánaflokkur í Braziliu, hafi nokk urntíma haft neitt saman að sælda, er ekki hægt að gera sér neinft grein fyrir. En þvi einkennilegra er það með þenna sið þeirra.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.