Heimskringla - 16.03.1932, Qupperneq 8
8. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 16. MARZ 1932
FJÆR OG NÆR.
Próf. S’gurður Nordal.
Dr. Sigurður Nordal er vænt-
anlegur hingað til borgar á
mánudag eða þriðjudag eftir
páska. Kemur hann hingað sem
gestur Þjóðræknisfélagsins,'og
dvelur hér um nokkra daga. —
Hann flytur fyrirlestur mið-
vikudagskvöldið þann 30. þ.
m.. Umræðuefni hans verður:
‘íslenzkur skáldskapur’’. Dr.
Nordal er mælskumaður mikill,
manna fróðastur um íslenzkar
bókmentir, þeirra sem nú eru
uppi. Ætti heimsókn hans að
verða til hinnar mestu ánægju
og eftirnfinnileg í sögu vorri
hér. Fyrirlesturinn verður flutt-
ur í Fyrstu lútersku kirkjunni
og byrjar stundvíslega kl. 8 e.h.
Nánar auglýst í næsta blaði.
* * *
Séra Ragnar E. Kvaran flyt-
ur guðsþjónustu í Riverton á
sunnudaginn kemur, 20. þ. m.,
kl. 2 e. h.
• • •
Fyrirlestrar í Nýja fslandi.
Athygli skal vakin á fyrir-
lestrum þeim, sem séra Ragn-
ar E. Kvaran efnir til í Nýja
íslandi og hefjast í Árborg á
laugardaginn, kemur, kl.*3 e. h.
Á öðrum stað í blaðinu er birt
greinargerð fyrir þessu eftir sr.
R. E. K., sem vér viljum fast-
lega ráða lesendum til að renna
augum yfir.
* * *
“Fróns”-fundur.
Næstkomandi föstudag, 18.
marz, heldur “Frón" fund í
samkomusal Sambandskirkju.
Verður Bókasafnsmálinu ráð-
stafað á þeim fundi. Einnig fara
fram skemtanir, svo sem ræð-
ur og söngur. Æskilegt er að
félagar í “Fróni’’ fjölmenni.
• m *
Útför séra Magnúsar sáluga
Skaptasonar fór frain frá kirkju
Sambandssafnaðar s. 1. föstu-
dag, að viðstöddu fjölmenni. —
Ræður fluttu dr. Rögnv. Pét-
ursson og séra Benjamín Krist-
jánsson. Li^íið var flutt suður
til Souris, N. D., og fór þar
greftrunin fram s.l. mánudag.
’ ROse.I
1'
THKATRE
!
j Sin\KV FO.Y In |
í NIGE WOMFN !
Thur. and Fri. This Week
I
Conx'dy 4— f artoon — Y
Seturday and Monday
aeiuraay ana aionaay ▼
I LASCA oí the {
j RIO GRANDE í
* Comet.y — Cartoon — Mfffl
Furðuleg leður-kvoða.
Sparar hvrrrl fJdlakylHn
marKii dollara
Blessun é
um hallæris tíma.
— hvorki notaö-
ur hamar, nagiar
etJa fleygrr —
Sparnahar leðurk voðu má
drepa ein* og smjöri á
brautJ, storknar á einni
nóttu, myn ’ar vatnshelda
mjúka húfí á sólann, er
eykur endi igu hans um marga
mánuöi. Má nota til aö biMa hæla,
gúmmí, bílrjaröir, bílaþök o. fl.
Ytteina ein .stierti, hauknrinn kost-
nr Mendur (M). SkÓMÓIuu fer ekki
Irain fir 10e. Kniiplö lie'nn le
ECONOMY SALES CO.
I70A >1 a rket St., Wln iiipeic. >lan.
Útsölu og umboösmenn ó-ka t
Tengdasonur hins látna, dr. M.
B. H,alldórsson frá Winnipeg,
fór suður til þess að vera við
greftrunina. Einnig Mrs. Anna
Adams frá Botteneau, N. D.,
er til Winnipeg kom, er henni
barst andlátsfregn föður síns.
* * *
Þorsteinn Þorláksson, að 930
Minto St., Winnipeg, andaðist
að heimili sínu s.l. laugardág.
Hann var 73 ára að aldri. Til
Vesturheims k©m hann 1873.
S^ttist fyrst að í Milwaukee,
Wis., en hefir síðan búið hér
í Manitoba og Norður Dakota,
lengst af í Selkirk og Winnipeg.
Þorsteinn var bróðir séra Stein-
gríms Þorlákssonar. Á lífi er
kona hans, einn sonur og sjö
dætur; búa fimm þeirra í Banda
ríkjunum, en tvær í Winnipeg,
Mrs. Alex Johnson og Beatrice,
ógift. Sonur hans Paul er til
heimilis í Winnipeg. Jarðarför-
in fer fram kl. 2 í dag (miðviku
dag) frá íslenzku lútersku
kirkjunni í Winnipeg.
* • *
Dr. Ríkarður Beck frá Grand
\
Forks, N. D., kom til bæjarins
s.l. föstudag og dvaldi hér fram
á þriðjudagsmorgun. Með hon-
um fór.suður Vigfúsína móðir
hans, er búið hefir hér í Win-
nipeg, en mun nú gera ráð
fyrir að dvelja hjá syni sínum
þar syðra.
* * *
Séra Egill Fáfnis frá Glen-
boro, Man., var staddur í bæn-
um fyrir helgina. Hann flutti
bindindisræðu á fundi stúkunn-
ar Heklu s. 1. fimtudag.
• • •
Guðrún Þórarinsdóttir, að 812
Garwood St. hér í bænum, lézt
s.l. laugardag á King George
sjúkrahúsinu. Hún var 70 ára
að aldri. Fædd var hún á Hall-
dórsstöðum í Suður-Þingeyjar-
sýslu á íslandi. Kom til Ame-
ríku 1890. Jarðarförin fór fram
í gær. Séra B. Kristjánsson
jarðsöng. Hinnar látnu verður
minst síðar.
* * *
Páskaguðsþjónustur heldur G.
P. Johnson sem hér segir: Á
sunnudaginn 20. þ. m. kl. 2 e.
h. í Rockomes skólahúsinu í
Silver Bay bygðinni. Á föstu-
daginn langa ensk messa í
Lundarkirkju, kl. 2.30 e. h.
Á páskadag kl. 2.30 íslenzk
messa í Limdarkirkju. Fólk -er
beðið að fjölmenna við messur
þessar. Allir velkomnir. .
Móðirin: “Því teygir þú þig
svona yfir borðið, Villi? Hef-
irðu ekki tungu í munninum?”
Villi: “Jú, mamma, en arm-
leggir mínir eru lengri en tung-
„ ^ »*
an.
ENDURMINNINGAR
Eftir Fr. Guðmundsson.
Frh.
Benedikt hafði gaman af
draumum og draugasögum, og
fanst mér honum vera margt
af því vottur um framhald lífs-
ins. Eftir að við á kvöldin höfð-
um lokið störfum á sýslufund-
i
ÁRSFUNDUR í
Viking Press Limited í
í
Ársfunc'ur Viking Press Limited verður haldinn fimtu- 5
daginn 17. þ. m. kl. 4 e .h. á skrifstofu félagsins, 853 |
Sargent Ave., Winnipeg, Man. Fyrir fundi liggja hin
venjulegu ársfuhclarstörf, svo sem kosning embættis- |
manna, taka á móti (cg yfir fara) skýrslum og reikn- *
ingum félagsins o. fl. Hluthafar eru beðnir að mæta
stundvíslega, og ef um fulltrúa er að ræða er mæta |
fyirr þeirra hönd, að ifbúa þá með umboð, er þeir geta "
lagt fyrir fundinn til staðfestingar. |
Winnipeg, Man., 4. marz 1932.
í umboði stjórnarnefndar: ®
M. B. HALLDÓRSSON
Forseti.
RÖGNV. PÉTURSSON
Ritari.
I
MP
um, þá bað hann, að einhver
segði draugasögu eða góðan!
draum. {lann var seinn til að
láta í ljós álit sitt um drauma,
og sagði ekkert, ef honum þóttu
þeir vitlausir. En skilningur
hans og útlistun á mörgum
draumum var lærdómsríkur og
yndislegur á að hlýða.
í eitt skifti sem oftar var
hann nótt hjá mér, og talaði
hann þá mikið við mig um und-
irvitund mannsins, en eg hafði
ekkert skilið við það hugtak
áður, og trúði engu um það.
En hann gerði mér það alt
skiljanlegt á sína vísu. Hon-
um var það ekki síður eðlilegt
að vera vingjarnlegur og mild-
ur, og hógvær og útlistandi, en
að yera tannhvass með fossandi
aflyrða mælsku, þegar hann
var ómjúkt leikinn. Hann sagði
að undirvitundin væri í raun
og veru óútlistanlegt, en yrði
séreign margra manna, að
skilningi til, fyrir óaflátanlega
eftirlöngun að gera sér grein
fyrir því, sem hún hefði með-
ferðis af því sem reynslan sann-
aði mönnum, að væri rétt, og
væri til orðið eða orsakað í
daglegða lífinu. Upphafsstarf
hennar líktist mest uppsettum
vef, þar sem ótal þræðir lægju
að einum dúk, sem ofnar væru
í myndir af öllum viðburðum,
orsökum og afleiðingum, sem
kvísluðust út frá manninum
sjáifum, eða orsökuðust fyrir
utan að komandi áhrif, og
þræðirnir og dúkurinn yndist
eins og af einum rif á annan í
vöku og svefni mannsins, og
þar fyrir utan snerist þessi ljós-
kvoðu myndadúkur stöðugt eins
og hjól frammi fyrir andlegu
sjóninni, og bæri þá með sér
margt af því sem maðurinn
kannaðist ekkert við, en sem
þó af sérstökum ástæðum skild
ist og réttlættist seinna, og ann-
að, sem aldrei skildist til hlít-
ar, sem náttúruöflin orsökuðu.
Eins og gefur að skilja, þá
man eg ekki — eftir 40 til 45
ár — orðfarslega útlistun Bene
dikts um undirvitundina, en að-
hyltan skilning hans og skoð
un man eg rétt, og þó eg síðar
margsinnis læsi útlistun sálár-
fræðinga og dulspekinga í þess-
um efnum ,þá varð ekkert af
því mér til' aukins skilnings,
fram yfir það, sem Benedikt
hafði prentað í huga minn. -
Myndir úr öllum áttum þrýst á
móttökuspjald mannsandans,
sanna ekki eins vel ótalfalda
þátttöku þúsundanna, sem á-
hrifunum valda og myndirnar
orsaka, eins og þræðirnir sinn
úr hverjum stað, sem allir vef-
ast inn í dúkinn, með mismun-
andi litum og tilkynningum, er
setja svipinn á myndirnar og
valda framtíðar áhrifunum. Við
höfðum báðir orðið fyrir því
að vera staddir á þeim stöðum,
þar sem okkur fanst við vera
gagnkunnugir ,og höfðúm þó
aldrei fyr á þær stöðvar kom-
ið. Eg kom einu sinni á Hof-
mannaflöt, efst í Árnessýslu,
þar kannaðist eg strax við heild
arsvipinn eins og gamlan kunn-
ingja. Svo fór eg að líta eftir
sérstökum einkennum, hvort
þau væru ennþá á sínum stað.
Jú, þau voru það; og svo leið
þetta frá eins og þægilegur
svimi, og eg fór að verða eðli-
lega ókunnugur.
Faðir minn hafði haft vinnu-
mann árin 1872 og 1873. Þá dó
hann, varð úti, og hefi eg áður
getið um það. Þessi vinnumað-
ur var kallaður Brynki, sá sami
er Kristján Jónsson kvað um
þessa langhendu:
“Fatast lán. fjölgar götum,
förlast vit, hörð eru örlög,
Brynki hrín, brettast granir,
bölv heyrist, augun hvölvast,
tár hníga, tóbak ýrist,
titrar negg, skjálfa leggir,
slást fingur, stamar tunga,
stynur brjóst, rassinn hóstar.’’
Þó eg væri við jarðarför
þessa manns, þá sá eg hann
nú á franskri fiskiskútu eftir
1890; sami vöxturinn, sama
andlitsfallið og andlitsdrætt-
irnir. Bölvið heyrðist, tárin
hnigu, tóbakið ýrðist, neggið
titraði, leggirnir skulfu og
stamaði tungan, — alt það
sama, nema nú talaði hann
frönsku og kunni ekkert í ís-
lenzku, og kannaðist ekkert við
mig, en eg glápti á hann eins
og naut á nývirki. Hvað fing-
urnir gátu verið líkir í laginu,
og hreyfst á sama hátt!
Nú, þessu líkar sögur hafði
Benedikt að segja mér, og hið
ófríða andlit hans var orðið svo
geðfelt og brosandi, vinar sam-
úðin hafði hrakið grimmu póli-
tísku þráadrættina alla burtu
úr svipnum, þó hann væri með
sínum skilningsríku yfirburðum
og fljótandi mælsku áhrifamik-
ill, eins og þýzki járnkanslar-
inn Bismarck, þá var hann líka
á heimili og út í frá hinn lítil-
látasti og mildasti alþýðumanna
bróðir, þegar hann var skilinn
og naut samúðar á sínum hug-
þekku ánægjuefnum.
Eg sagði Benedikt oft drauga-
sögur og drauma. Þegar eg
frétti eitthvað slíkt, sem mér
þótti eftirtektarvert, þá raðaði
eg því á minnið vegna Bene-
dikts Sveinssonar, alveg eins og
Stephan G. leið snjótitlingana
á strástakknum, vegna Þor-
steins Erlingssonar í þessari
vísu:
“Um þessara fugla þorratöf
því er til að gegna:
Eg tók þá af guði á gjöf,
greyin, Þorsteins vegna.”
Það var hjá mér vinnumað-
ur, Jakob Þorkelsson að nafni,
greindur karl og mjög sér-
kennilegur. Hann út af fyrir sig
er efni í langa og merkilega
sögu, en eg má ekki vera að
því að segja ykkur frá honum
eins og vert væri núna, bara að
mér gleymist það ekki seinna.
Ailir voru hissa hvað eg hafði
hann í nrörg ár. Það hafði eng-
inn getað haft hann nema eitt
ár áður, og þó var hann orðinn
fimtugur. Hann var einskonar
dulspekingur að náttúrunni til.
Eg reiddist oft við hann, eink-
um þegar við vorum að smala
fé. Þegar við komum þar, sem
jörðin leit út fyrir að bera eða
bar með sér einhver forn mann-
virki, þá stanzaði hann og varð
allur að augum og athygli,
snerist og taiaði, mest hálf orð,
eins og við sjálfan sig, og það
var eins og hann heyrði ekki
til mín, þó eg segði honum að
koma, okkur lægi á að smala
fénu. Eg lærði aldrei að berja
menn, en eg bálreiddist við
hann og skammaði hann fyrir
slórið; en það hafði engin áhrif
á hann, og þá kom hann ekki
til sögunnar aftur fyr en mér
var runnin reiðin, og var þá
orðin vísindamaður; háfði svo
fjarskalega margt og áhrifa-
mikið að segja mér. Þarna hafði
verið bær, baðstofa, búr og eld-
hús. Og hann vissi mikið um.
hvernig maður sá hefði verið,
sem fyrstur hefði bygt upp
þenna bæ, greindarmaður eða
máske skýjaglópur, og eins hitt
hvað mörg hundruð ára gam-
alt þetta var, o. s. frv.
Hann kunni og ósköpin öll
af draugasögum, og það var
alt saman satt. Nú hafði eg
draugasögu handa Benedikt,
af því, sem Jakob hafði sjálfur
orðið fyrir. Og Jakob var hjá
mér á þeim tíma, sem Benedikt
var kominn og skyldi heyra
söguna. Jakob var heldur stagl-
samur, svo eg afréði að segja
söguna sjálfur, en Jakob skyldi
sitja hjá og segja til, ef eg færi
skakt með eitthvað. — Benedikt
lúrði uppi í rúmi, hafði aftur
augun og handlék hökutoppinn,
eins og hann var vanur. En sag-
an er þannig:
Jakob kom að prestsetrinu
Presthólum í Núpasveit, seint
á degi í skammdeginu, og bað
hann að lofa sér að vera- um
nóttina, sem var strax velkom-
ið. Um háttatíma var honum
sagt, að hann yrði að sofa
frammi í stofu, en að margir
kvörtuðu um að reimt væri í
stofunni, og gæti hann fengið I
mann til að sofa hjá sér, ef i
hann vildi. Nei, hann kunni ekki j
að hræðast og kaus að Vera
einn. Þá var honum fylgt til
rúms og boðið að hafa hjá1
sér ljós, því nóttin ,var dimm,)
en hann neitaði því, sagð-1
ist hafa gaman af draug- [
um, og ekki mega missa af!
þeirri skemtun, ef hún stæði til. j
Var þá farið með ljósið og hann
háttaði ofan í gott rúm.
En ekki er liðin nema lítil
stund, þegar stofuhurðin er
opnuð og inn í.stofuna kemur
hvítklædd vera og lætur hurð-
ina aftur á eftir sér; gengur síð-
an að fótagafli rúmsins og
stendur þar litla stund, en færir
sig svo fram með rúminu. Þá
spyr Jakob, hver þar sé, en fær
ekkert svar. Veran kemur fram
á móts við höfuð hans og beyg-
ir sig niður yfir brjóst hans,
eins og hún ætli að leggjast of-
an á hann. Jakob var viðbragðs-
harður, þegar honum þótti þess
þurfa, og nú tók hann viðbragð
eins snögt og hann gat, og
greip með báðum höndum utan
um veru þessa, en brá heldur
en ekki í brún, þegar hann
fann ekki til neins í fanginu. En
á sama augnabliki heyrði hann
háan brest og eldglæingar fuðr-
uðu út um alla stofuna, en þá
sá hann ekkert af veru þessari.
Vakti hann að vísu um stund
og hugsaði málið, en svaf svo
vært til morguns.
“Þetta er nú lítils verð og
leiðinleg draugasaga, sem eg
hefi sagt þér, Benedikt,” komst
eg þá að orði. — “Nei, hún er
alt af merkileg. Þessi saga er
stöðugt að endurtaka sig um
alt iand, með aðeins litlum
breitingum," sagði hann. “Slík-
ar verur eru framliðnir menn
á fyrsta stigi. Þeir hafa búið
yfir hefnd og hatri til mann-
anna þegar þeir fluttu héðan,
og hafa gaman af að hrekkja
og glettast til við þá. Hafa hins
vegar mjög þægilega vaid á,
okkur óskiljanlegum, efnum í
loftinu. Við notum segulafl til
þess að snúa áttavitanum. Þeir
nota það afl máske til þess að
snúa handarhöldum á hurðar-
skrám. Þeir hafa auðveldlega
ráð með að nota rafmagn til
þess að framleiða bresti og eld-
ingar í litlum stíl en á sama
hátt og gerist í þrumuveðrum.
Við getum ennþá ekkert um
þetta fullyrt, en svo margir
verða fyrir þessu, að það á sér
stað.”
Frh.
HVER VILL STYÐJA ÞETTA.
Frh. frá 5 bls.
félaginu gæti orðið til hagsæld-
ar.
Er þá fyrst á að minnast
bankastofnanir. — Höfuðstóll
margra þeirra mun saman
standa af fjársafni stóreigna-
manna, sem ekki leggja fátæk-
um mikið liðsinni .1 öðru en
með því, er lögskyldur ákveða,
vitandi að með háum vöxtum
vöxtum er með lögvernd er ver-
ið að pína fé út úr mörgum
fátækum lánþega, sem með
harðfylgi er að berjast fyrir
lífsframdrætti sínum og sinna,
auk margra annara löglegra út-
gjalda, sem erfitt veitir að fá
rönd við reist.
Ef nokkur syndsamlegur
breyskleiki er til í heimi veru-
leikans, er ekki ólíklegt að
hann eigi rætur sínar að rekja
til þeirrar dýrslegu maura-
mannlegs eðlis.
Ef þjóðfélag eins ríkis eða
lýðveldis mætti trúa manndygð
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Mcssur: — á hverjum sunnudcgi
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
j Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
f imtudagsk vel di.
Sunnudagaskölinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
sinna stjórnarþjóna, ættu þeir
að hafa umsjón og ábyrgð á
ríkisbanka, er skifta mætti í ‘
deildir eftir staðháttum, af-
nema alla prívat banka. Og sá
ríkisbanki ætti ekki að lána
peninga neinum einstakling
með hærri vöxtum en 2—3%,
gegn veði eða sjálfsskuldar-
ábyrgð. Sanngjarnt mundi vera
að hafa hærri vexti til félags-
stofnana, er ekki væru sýnilega
til almenningsheilla.
Nú er hér nokkuð mikið sagt!
En væri þetta ekki hin eðlileg-
asta og skynsamlegasta hag-
nýting þeirra peninga, sem
liggja í sjóðsafni einstaklinga,
mannfélaginu til útörmunar.
Vitanlega er fjarstæða að
svifta nokkurn mann fullum
eignarrétti á auðsafni sínu,
heldur aðeins umráðarétti á
því, sem fram yfir er hans þarf
ir, að það fengi ríkið að ein-
hverju leyti að nota til þjóð-
nytja þarfa, með vægum kjör-
um.
En sársaukalaus mundi ekki
áminst breyting verða öllum
hlutaðeigendum. Hjá þvd yrði
varla komist.
Þegar athugað er, hvaðan
auður er kominn, þá mun fer-
illinn alloft verða rakinn til
undirstétta mannfélagsins, sem
ríki eða lýðveldi ber lagaleg
skylda til að annast um, að
ekki líði skort á sómasamlegu
lífsviðurværi. Þó að þessa hafi
hingað til ekki verið gætt, svo
sem borið hefir á í stjórnarfars-
legum stefnum, munu fáir mót-
mæla að svo bæri að vera, þar
sem á því byggist viðhald og
velgengni þjóðfélagsins, í hvaða
landi, sem um er að ræða.
Hugvekja þessi get eg búist
við að eigi lítið erindi til kaup-
enda Heimskringlu. Sannleik-
urinn mun vera sá, að íslenzk-
ar ritsmíðar um stjórnmál
munu lítil áhrif geta haft á hið
enska þjóðfélag. En hvað sem
um það er, mundi mér líka, að
fleiri léti í ljós skoðanir sínar á
þessu alvarlega málefni.
Með vinsemd og heiilaóskum.
Lundar 8. febr. ’32.
G. Jörundsson.
‘Mercury’
The New
All-Weather
Coal
Phone 42 321
For a Ton
Today
“ARCTIC”
----------------------1
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117, Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Servlce
Banning and Sargent
Slmi 33573
Heima »lml 87136
Expert Repair and Complete
Garage Senrice
Gm, OiU, Extras, Tirea,
Batteries, Etc.