Heimskringla - 15.06.1932, Blaðsíða 8
8 BLAB&ÍÐA
HEIMSKRI N GLA
WINNIPE 15. JÚNÍ 1932.
Úrvals fatnaður
KARLMANNA
á hinu sanngjarnasta verði
bíður yðar í verzlun—
Humphries Ltd.
223 Portage Ave.
við Liggett’s hjá Notre Dame
FJÆR OG NÆR.
Messað í sambandskirkju á
venjulegum tíma n. k. sunnu-
dag. Sunnudagaskólaböm eru
beðin að koma í kirkjuna kl.
11 f. h., og verður skólanum
sagt upp fyrir sumarið og verð-
launum útbýtt.
* * *
Höfundur fyrra kvæðisins
aftan við æfinminningu Mrs.
Margrétar Robbinson, í Hkr. 1.
júní, er talinn séra Fr. A. Fr.,
en höfundurinn er Sigurður
skáld Jóhannsson í Burnaby, B
C., en séra Friðrik skrifaði
kvæðið upp og láðist að setja
neitt nafn undir, og töldum vér
því víst að kvæðið væri eftir
hann.
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til útsölu í fundarsal
kirkjunnar miðvikudaginn og
fimtudaginn 15. og 16. þ. m.
Margskonar nauðsynjavaraing-
ur verður þar til sölu á mjög
vægu verði, svo sem matur,
fatnaður og fleira. Munið eftir
staðnum og tímanum.
* * ♦
Þessi vísa varð til á dögun-
um um vegleysurnar í Coldwell
sveit. Mátti heita ófær braut
milli Oak Point og Lundar. —
Ferðamenn sögðu:
Við erum komnir langt á leið,
Lundar næsti staður.
En — nú er eftir Skúlaskeið,
og Skúli er Brackenmaður.
* * *
Manni dettur ósjálfrátt í hug
þegar verið er að berja í brest-
ina með stefnusvik Bracken-
stjórnarinnar í þjóðeignamál-
inu, þessi vísuhelmingur Káins:
“Ef þú brýtur boðorðin,
berðu skít í sárið.'’
Annað hefir ekki verið til af-
sökunar en að almenningur sé
því ekki um kominn að ráða yf-
ir auðsuppsprettum landsins.
Barnakerra til sölu á mjög
lágu verði, í Ste. 8 Ivanhoe
Block, Wellington Ave.
* * *
Upplýsinga óskað.
um heimili og verustað Rich-
ard Brown (Braun, er hingað
’luttist frá Kaupmannahöfn með
móður sinni frú. Kristínu Magn-
úsdóttur Brown (Braun) fyrir
mörgum • árum síðan, var um
tíma í Winnipeg og við Leslie,
Sask., Þeir sem kynnu að vita
hvar maður þessi er niður kom
inn, eru beðnir að senda upp-
lýsingar um það á skrifstofu
Heimskringlu.
* * *
RÚSTIR f NORÐUR-AFRÍK.U.
Hin forau rómversku skatt-
lönd í Norður-Afríku stóðu með
miklum blóma fyrstu aldirnar
eftir Krists burð. Síðar, þegar
Arabir höfðu farið herskildi yf-
ir þessi lönd, komust þau í
mestu niðurníðslu; eyddust þá
margar blómlegar og merkileg-
ar borgir, hurfu í sandinn og
gleymdust. Síðustu 50 árin hafa
fornfræðingar lagt mikið kapp
á að grafa upp rústir þessar,
og orðið stórkostlega mikið á-
gengt. Hefir sandurinn varð-
veitt hinar fornu byggingar
furðu vel.
Mbl.
FARID EKKI VILTi
Greiðið atkvæði No. 1 með
R. W. B. Swail
Conservative frambjóðanda í Winnipeg
Frambjóðandi hinna ýngri manna.
RALPH MAYBANK.
Árið 1929 var Ralph Maybank
kosinn bæjarráðsmaður í annari
kjördeild í Winnipeg með mikl-
um atkvæðafjölda.
0
í tvö ár gegndi hann þessu
embætti og komu í ljós hans
miklu leiðtogahæfileikar, dugn-
aður og góðgjara skilningur á
hinum erfiðu högum almenn-
ings.
Ananð árið var hann formað-
ur þeirrar nefndar, sem sá um
að hjálpa þeim, sem atvinnu-
lausir voru. Gegndi hann því
vandasama verki með mikilli
góðgimi, og svo hagkvæmlega
að flestir munu vel við una.
Mr. Maybank er aðeins 42
ára að aldri, en hann hefir ver-
ið afar starfsamur um æfina.
Hann hefir verið algengur
verkamaður, járabrautamaður,
blaðamaður, lífsábyrgðar um-
boðsmaður og námsmaður. Síö
an hann var fjórtán ára hefir
hann sjálfur jafnan brotist á-
fram og jafnan vitað hvað hann
vildi. Nú stundar hann lög-
mannsstörf í lögmannafélaginu
Maybank and Gunn.
Hann hefir verið áhugasam-
ur og duglegur og látið mikið
til sín taka í frjálslynda flokkn-
um, og verið honum til mikils
gagns. Það verður litið eftir
hag Winnipegbæjar ef Mr.
Ralph Maybank kemst á þing.
H. P. A. HERMANSON
Þessi vinsæli og mæti Svíi,
sækir undir merkjum hinna eig-
inlegu liberala í þessum kosn-
ngum í Winnipeg. Hann kom til
Canada árið 1903, og var bóndi
um skeið í grend við Buchanan
Sask. Árið 1917 var hann kos-
inn á þing, og var þingmaður
þess kjördæmis þar til 1925, að
hann flutti til Winnipeg. Var
hann hér kjörinn til að vera
ræðismaður Svía. Mr. Herman-
son er í miklu áliti og hinn
gegnasti maður í hívetna.
ROSE
THFATRK
TUE., WED.. JUNE 14-15
Free Silverware
To All Ladies
BIG BERRY SPOON GIVEN
THIS WEEK
A Plcture Kvcry Mothcr and All
thc Membcro of thc Family
Shonhl Scc
JAMES DIJNN and
SALLY ELEIRS in
Over the Hill
THUR., FRI., JUNE 16-17
ELECTION RESULTS
ANNOUNCED
F R E E To All Ladies:
WEDGWOOD A CO.
DINNERWARE
ShowinK:
LLOVD HUCiHES and
DOROTHY SEBASTIAN In
The DECEIVER
MESSUR OG FUNDIR
I kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnaðamefndln: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálpamefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveid í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Shngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
ENDURMINNINGAR
Eftir Fr. Guðmundsson.
Frh. frá 7, bla.
að til við vorum komnir inn
fyrir landhelgi Áraessýslu, í
Biskupsbrekku, þar sem Jón
Vídalín gaf upp andann. Þá var
regnið upp stytt og vindurinn
orðinn logn. Skamt fyrir vest-
an veginn í brekkunni, sunnan
við lækinn, fundum við nokkra
tjaldsteina í grasinu, og gerð-
um okkur í hugarlund, að þar
hefði tjald Jóns biskups staðið,
og á þeim bletti settumst við
niður, og borðuðum hið sein-
asta af nestinu okkar, — hang-
ið og súrt sauða- og nautakjöt,
með dönsku skonroki og þykku
smjörlagi ofan á. Varð okkur
þá brjóstbetra eftir hrakninginn
á Kaldadal, og tókum við til að
finna hitann í sjálfum okkur
á ný.
Það kom af sjálfu sér og lá
svo opið fyrir, að við mundum
fara að tala um Jón biskup
Vídalín, á meðan við borðuð-
um og hvíldum hestana. Þegar
eg minnist skugganna í fjalla-
kinnunum, þá þykir mér næst
til að geta, að klukkan hafi
vísað nokkurn veginn mitt á
milli nóns og miðaftans. Við
höfðum ekkert getað talað sam-
an allan daginn, fyrir veðrinu,
sem lamdi okkur. Nú var þó
fenginn friður, kyrð og sólskin,
og við líka komnir út fyrir rík-
istakmörk Eiríksjökuls og Oks-
ins. En það eru samtök þeirra
fjalla á milli, að líða engan
slæpingshátt á Langahrygg í
Kaldadal. Þar er örkvisum eng-
ing vægðar von. Á hina síðuna
lagði náttúran til umtalsefnið
handa okkur. Eg lét í Ijós þá
skoðun, að ekki mundi það nú
hafa verið sannfæring Jóns
biskups Vídalfns, alt sem hann
kendi- Jakob þoldi illa þessa
hugmynd, og sagði að okkur
hætti of mikið við því, yngri
mönnunum, að taka ekki sam-
tíðina til greina með forfeðr-
unum. Á uppvaxtartíð Jóns bisk-
ups hefði ekkert annað verið
kent en óskeikulleiki biblíunn-
ar, og því alt gott og gilt, sem
í henni stóð. Hans tíðar andi
svo gerólíkur því, sem nú ryddi
sér til rúms, að alþýðan hefði
þá hneykslast á því, ef bók-
stafnum hefði ekki verið ræki-
lega fylgt, í staðinn fyrir það
að fjöldi manna í okkar sam-
tíð hneykslaðist á bókstafnum,
ef andi málsgreinanna væri ekki
afhentur í nútíðarljósi.
“Hvað þá um mótsagnirnar
í hugsun og orðum biblíuhöf-
undanna?” sagði eg.
“Alþýðan varð ekki vör við
neinar mótsagnir,”’ svaraði
hann.
“Alþýðan, segir þú, en við er-
um að tala um Jón biskup. Er
ekki líkast til að geta, að hann
hafi verið skilningsríkur mað-
ur, og mun hann ekki hafa
orðið var við mótsagnir, sem
eru líklegar til að hafa verið
þröskuldur á sannfæringarvegi
hans?” sagði eg.
“Hvað viltu til nefna?’’ segir
hann.
“Fordæminguna,’’ svara eg,
“eða eilífa útskúfun, sem mér
finst að flestir leggi sama skiln-
ing í, og hvaða ráð hefir jafn-
vel skilningsríkasti maður til
þess, að sameina í einni per-
sónu alfullkomna kærleikann
og fordæminguna?’’
“Eg held þú leggir ekki rétt-
an skilning í orðið fordæmdur,”
segr Jakob. “Það þýðir ekki
fyrirfram dæmdur, heldur fyrsc ,
dæmdur og þá útskúfaður, eftir
verðskuldan sinni; það er eins
og forréttur, er fyrsti réttur.
Hvað sem hins vegar kærleik-
anum við kemur, hjá sömu per-
sónu, þá dugar ekki að gleyma
jafnvæginu með öllum eigin-
leikum guðs. Það verður að
taka réttlætið til greina.”
“Ef réttlætið og kærleikur-
inn verða ásátt um fordæming-
una, er þá munað eftir alvizk-
unni? Fór það fram hjá henni
þegar við fæðingu barnsins, að
það mundi á hérvistar dögum
verðskulda útskúfuu? Mundi þá
ekki réttlætið og kærleikurinn.
hafa komið í veg fyrir fæðingu
þess til jarðlífsins?”
“Við hugsum eins og þú læt-
ur í Ijós,” segir Jakob, “af því
samtíð okkar ekki einungis
leyfir það, heldur knýr okkur
til skilnings á þessum efnum.
En Jón biskup Vídalín, þó að
skilningsríkur væri, hafði enga
ástæðu til að spreyta spóann
við þessi umhugsunarefni. Þörf
alþýðunnar krafðist þess ekki,
og embættiseiður hans fyrir-
bauð það. Það var á þeirri tíð
óþarft og óleyfilegt príl. Og
minstu þess einmitt á þessum
stað, að þeim varð að trú sinni
og bænir þeirra voru heyrðar.
Jón biskup sat á þingi- Móðir
hans var mikið veik og fann
að hún var aðfram komin, og
bað um að sent yrði til Jóns
síns, hún þyrfti að finna hann
áður en hún létist. En biskups-
frúnni var hálfkalt til tengda-
móður sinnar, og tafði ferð
þessa sem hún gat, og afleið-
inginn varð sú, að móðir Jóns
var dáin, þegar hann kom heim,
og furðaði þó alla, hvað voða-
lega hann flýtti ferð sinni. Jón
komst að brögðum konu sinn-
ar, og vítti hana harðlega, og
endaði með því að segja henni
að muna eftir því, að biðja guð
í öllum sínum bænum, að hún
mætti úttaka hegningu fyrlr
þessa yfirsjón sína meðan hún
lifði hér á jörðinni. Það má
nærri geta að biskupinn hefir
vakað yfir þessu bænahaldi
konu sinnar, og fulla ástæðu
höfum við til að líta svo á, að
hún hafi verið bænheyrð á þeirri
stundu er hún kom hér í tjald
manns síns, í þessari brekku,
og hann var nýlátinn, þegar
hún var til taks að leggja hon-
um alla sína ástúð og umiinn-
un. Eða er nú bænum okkar
svarað skýrar á þessum dög-
um?”
Eg hneigði mig til samþykk-
is og gerði mér í hugarlund, að
hún hefði gengið með morgun-
sólunni inn í austurenda tjalds-
ins, og eg reyndi að gera mér
J. A.
JOHANNSON
Garage and Reparr Servica
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
grein fyrir ástandi hennar, eða
hvort það væri ekki ómaksins
vert, að reyna að sjá sporin
hennar andlega. Gat ekki verið
að á þessum stað færi um mig
sá straumur, sem þvægi af mér
efasemdirnar, læknaði mig,
lífgaði og leyfði mér útsjón inn
á andlega ríkið, og sannfærði
mig um að allar götur liggja
heim, úr hvaða átt sem komið
er, fyrir yfirburði kærleikans.
Frh.
RAÐVENDI
Og
HAGSÝNI
löggjafarþinginu dregur
Manitoba upp úr díkinu.
GREIÐIÐ
ATKVÆÐI MEÐ
Til
sumar
heilsubótar
Drekkið meira af
hreinni, kostamik-
illi, gerilsneyddri—
CITY
MILK
Pantrð hana í dag að mjólk
ursölumanninum er fer um
götuna, eða símið—
87 647