Heimskringla - 02.11.1932, Qupperneq 2
2 BLAÐ6IÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG, 2. NÓV. 1932.
ÍSLENSKAN HÁSKÓLAGREIN
MEÐAL STÓRÞJÓÐANNA
SigurSur Nordal prófessor
segir frá.
Sigurður Nordal prófessor
kom heim með Lyru í fyrra-
kvöld. Hann fór að heiman í
ágúst 1931 til þess að taka við
árs embætti því við Harvard-
háskóla, sem kent er við pre-
fessor Charles Eliot Norton.
Mbl. hafði tal af Nordal í gær
og skýrði hann frá á þessa leið:
Fyrirlestra mína við Harvard-
háskóla nefndi eg “Spirit of
Icelandio Literature’’. Var efni
þeirra að miklu leyti um áhrif
íslenskra bókmenta á sögu
þjóöarinnar. Meginþorri áheyr-
enda minna hafði enga undir-
stöðuþekkingu um ísland eða
íslenskar bókmentir. Varð eg
að haga fyrirlestrunum eftir
því. Um bókmentimar sjálfar
var tilgangslítið að ræða mikið,
því að þýðingar á ensku voru
of fáar fyrir hendi, svo að hægt
væri að vitna í þær.
Áheyrendur hafði eg fleiri, en
eg hafði gert mér nokkrar von-
ir um, að óreyndu. Auk há-
skólastúdenta voru þar og kenn
arar og annað mentafólk.
— Verða fyrirlestrarnir ekki
gefnir út? —
— Harvard-háskóli á útgáfu-
réttinn að fyrirlestrunum. Þeir
verða gefnir út á næsta ári.
En auk þess býst eg við, að
þeir komi síðar út á íslensku, í
nokkuð annari mynd.
Fyrirlestra hélt eg við tvo há-
skóla aðra þar vestra, í Iþöku
og í Minneapolis. Ennfremur
hélt eg fyrirlestra fyrir Norður-
landabúa í Chicago.
En annars langar mig ekki til
þess að segja neina ferðasögu.
Eg vil heldur minnast ofurlítið
á framtíð íslenskra fræða við
háskóla stórþjóðanna.
Á ferð minni um Ameríku,
England, Frakkland og víðar
hafði eg tækifæri til að kynn-
ast fjölda mörgum sem starfa
að íslenskukenslu í sambandi
við kenslu í Norðurlandamálun-
um.
Er eg í engum vafa um að ís-
lensk fræði geta átt afarmikla
framtíð við háskóla víða um
heim._
íslenskan þarf að komast í
eðlilegt samband við aðrar
fræðigreinir, sem stundaðar eru.
Varla nokkur háskólanemandi
leggur stund á Norðurlanda-
málin út af fyrir sig. Til þess
að gera íslenskukensluna al-
menna, þarf hún t. d. í ensku-
mælandi löndum að komast í
samband við enskukensluna.
Nú er það t. d. svo í Harvard,
að gotneska er skyldunámsgrein
fyrir þá stúdenta sem læra
ensku. En þetta er bygt á úr-
eltum skoðunum. Alt má læra
í málfræði af íslensku, sem
menn nú læra af gotneskunni.
En engar gotneskar bókment-
ir eru til. Er því ólíku saman
að jafna við íslenskuna, þegar
þess er gætt, að íslenskunámið
opnar nemendunum aðgang að
þeim auðugustu forngermönsku
bókmentum sem til eru.
Eg hefi mikla von um, að
þessu verði breytt við Harvarð
á næstu árum, þar verði ís-
lenskan tekin í staðinn fyrir
gotneskuna eða a. m. k. gerð
jafnrétthá henni. Og þegar
Harvard háskóli ríður á vaðið,
má búast viÓ að flestallir ame-
rísku háskólarnir fari að hans
dæmi.
Sumarnámsskeið fyrir erlenda
stúdenta í islenzku
Yfirleitt fékk eg í ferð minni
tækifæri til þess að skilja bet-
ur en áður, hve mikla framtíð
íslenzkan á sem háskólagrein.
Má búast við því að aðsóknin
að íslenzku deildinni við há-
skólann hér fari sívaxandi. Er
það skylda okkar að efla þessa
deild með sem beztum kenslu-
kröftum, og veita henni þá að-
búð sem okkur sæmir.
Við enga háskóla í heimi er
hægt að læra íslenzku á jafn-
stuttum tíma og hér, því nem-
endurnir læra svo mikið af
hinu lifandi máli í kringum
sig. —
Frá Ameríku, Þýzkalandi og
Svíþjóð eru nú komin tilmæli
um ,að háskólinn hérna komi
á fót sumamámsskeiðum fyrir
stúdenta frá þessum þjóðum.
Alt er enn óráðið um tilhög-
unina á námsskeiðum þessum.
En ganga má að því vísu, að
hugmyndin um námsskeið í ís-
lenzku og íslenzkum fræðum
hér við háskólann hljóti að kom
ast í framkvæmd áður en langt
um líður.
FRÁ ISLANDI
EIMSKIPAFÉLAG REYKJA-
VÍKUR NÝSTOFNAÐ.
Nýlega hafa nokkrir menn
stofnað með sér hlutafélag, er
þeir nefna “Eimskipafélag
Reykjavíkur’’. Er tilgangur fé-
lagsins að taka að einhverju
leyti í sínar hendur flutninga
milli íslands og miðjarðarhafs-
landanna á fiski héðan og salti
þaðan. Hafa þessir flutningar,
sem kunnugt er fram til þessa
verið svo til eingöngu í hönd-
um erlendra félaga.
Er vel að menn hafa nú haf
ist handa til þess að gera til-
raun til að koma flutningum
þessum í innlendar hendur.
Félagið hefir keypt skip í
Noregi. Á skipið að heita Hekla.
Er það “nýklassað", kemur
hingað í nóvemberbyrjun. Það
rúmar 1200 tonn af fiski.
Skipstjóri er ráðinn Rafn
Sigurðsson, nafnkunnur dugn-
aðarmaður. Er hann kominn til
Oslo til þes sað taka við skip-
inu. Með honum er Faaberg
skipamiðlari.
1 stjórn Eimskipafélags Reykja-
víkur eru þeir Richard Thors,
Pétur Magnússon, Einar G. Ein
arsson, Theodór Jakobsson og
Þorlákur Bjömsson.
* Mbl.
* * * *
SLYS f ÞJÓÐLEIKHÚSINU.
OF MIKIL ÞVAGSÝRA.
er mjög algeng orsök fyrir gigt,
Sciatica og bakverk. Séu nýrun í ó-
lagi, safnast fyrir of mikil þvag-
sýra. Takið inn Gin Pills, er strax
veita bót, meðan nýrun eru að kom-
ast aftur í lag. 218
D0MINI0N 0F CANADA
4 prósent LÁN—1932
Ríkisstjórnarinnar
V \
Fjármálaráðherra býður almenningi til kaups
$80,000,000
í 4 prósent verðbréfum Dominion of Canada
Vöxtuberandi frá 15 október 1932 er greiðast á tvennum mismunandi
tímabilum, sem hér segir:
$25,000,000—3 ÁRA 4% VERÐBRÉF, GJALDDAGI 15. OKTÓBER 1935
$55,000,000—20 ÁRA 4% VERÐBRÉF, GJALLDAGI 15. OKTÓBER 1952
En innleysanleg á nafnverði auk vaxta, um eða eftir 15 oktober 1947.
Höfuðstóll greiddur, án affalla, i gjaldgengum eyri Canada á skifstofum Fjármálaráðherra, og
Höfuðríkisfjárheimtumanns í Ottawa eða á skrifstofum aðstoðar ríkisfjárheimtumanna í Halifax,
Saint John, Charlottetown, Montreal, Toronto, Winnipeg, Kegina, Calgary, og Victoria.
Vextir borgaðir á hverjum hálfs árs fresti, 15 apríl og 15 október, í gjaldgengum
eyri Canada, án affalla, við öll ótbú allra. hinna löggiltu bankastofnana í Canada.
Upphæðir Verðbréfa:
3 ÁRA VERÐBRÉF $1,000
20 ÁRA VERÐBRÉF $500 og $1,000
Inntektir af lání þessu verða notaðar til þess að borga $34,449,950 í verðbréfum er
falla í gjalddaga 1. nóvefnber 1932, og til þess að kosta fyrirtæki og leysa úr þörf-
um stjówiarinnar og Canadian National Railways.
Lánið er heimilað með samþykki sambandsþings Canada og legst, bæði að höfuð-
stól og vöxtum, sem útgjalda liður gegn hinum sameinuðu tekjum ríkissjóðs
Canada.
Upphæð lántökunnar að þessu sinni eru $80,000,000. Fjármálaráðherra, áskilur sér
þau réttindi, samt sem áður, að veita eða hafna, að öllu eða að nokkru leiti þeim
kaup áskriftum er honum kunna að berast, þó með því skilyrði, að sölu úthlutan
auki ekki höfuðstól lántökunnar meira en sem svarar $25,000,000. Umsóknir eru
ekki gildandi nema gerðar séu á umsóknarblöðum útgefnum af Kings’ Printer.
SÖLUVERÐ:
3 ára verðbréf, 99.20 og veXtir, er nema við gjalddaga 4.28%
20 ára verðbréf, 93.45 og vextir, er nema við gjalddaga 4.50%
Borgun greiðist við unisókn að fullu eða ef um 3 ára verðbréfin ræðir, við úthlutun verðbréfslns.
Áskriftir hefjast með 31 október, 1932, og Ijúkast um eða fyrir 16. nóvember, 1932, með eða
án frekari tilkynningar, eftir því sem fjármálaráðherra ákveður. A móti áskriftum taka öll
útbú hinna löggiltu bankastofnana í Canada, og tilskipaðir verzlunarmenn, og má fá hjá þeim
hin lögskipuðu umsóknar eyðublöð.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
OTTAWA, 31. OKTÓBER, 1932.
Undanfarna daga hafa verka
menn frá Landssmiðjunni verið
að setja upp járnsperrur í hinn
mikla turn á Þjóðleikhúsinu hjá
Hverfisgötu. Hafa unnið að
þessu verki 10 menn. í gær
voru þeir að hnoða saman járn-
bita, sem liggja þversum yfir
turninn yfir leiksviðinu og er
gímald niður úr um 20—30 m.
hæð. Verkamennirnir stóðu á
pöllum efst í turninum. Voru
pallar þesSir festir með krók-
um í járnbita, en pallarnir sjálf
ir voru gerðir úr stoðatrjám og
borð á njilli.
Tveir menn voru að vinna á
öðrum enda þessa fleka, þeir
Ásgeir Jónsson og Einar Guð-
brands Sigurbrandsson. Veit þá
enginn fyrri til en stoðartré í
pallinum brotnar undan þeim.
Hafði það brostið sundur í
miðju. Báðir menniráir féllu
niður, en það varð Ásgeiri til
lífs, _að hann náði í járnbita
í pallinum, gat haldið sér uppi
á honum og síðan vegið sig
upp. En Einar Sigurbrandsson
féll niður alla leið, lenti á járn-
bita í leiksviðsgólfi og hékk
þar. Þegar að honum var kom-
ið var hann örendur. Hafði höf
uðið brotnað og mikið var líkið
meira skemt eftir fallið.
Einar heit. Sigurbrandsson
hefir unnið í Landssmiðjunni
um hríð. Hann var aðeins 22
ára að aldri, ættaður vestan
af Sandi, en átti nú heima að
Bergstaðastræti 25 b. — Hann
mun hafa fluzt hingað til bæj-
arins árið 1930.
Mbl.
* * *
Verzlunin við útlönd.
í ágústlok síðastliðinn hafði
útflutningurinn numið 24.7
milj. kr., en innflutningurinn
21.9 milj. kr. Verðmæti útflutn
ingsins fyrstu átta mánuði árs-
ins var 1.7 milj. kr. minna en
í fyrra, en innflutningur á sama
tíma var 7.3 milj. kr. minni en
í fyrra. í september mun út
flutningur hafa verið meiri en
innflutriingur og verzlunarjöfn-
uðurinn því batnað þann mán-
uð.
* * *
Loftslagsbreyting.
Tveir danskir vísindamenn,
dr. Poul Nörlund og húsameist-
ari Roussel eru nýlega komnir
heim eftir fornleifarannsóknir
í Grænlandi í sumar. Báðir
hafa þeir fundið nýjar órækar
sannanir þess, að í Grænlandi
hafi landkostir verið mun betri,
er íslendingar reistu þar bú, en
þeir eru nú. Rústir eru bæði í
Eystribygð og vetsribygð af
stórum bændabýlum, sem haft
hafa mikla áhöfn, en þar sem
slíkur búskapur sem þá var, er
útilokaður nú á dögum sakir
hagleysis og slægjuskorts.
Samt hefir veðráttan græn-
lenzka breyzt mjög til batnað-
ar hin síðari ár, svo sauðfjár-
búskapur í Eystribygð er nú í
hröðum vexti. Selveiðin aftur
á. móti þver með hlýindunum.
Skilyrði landsins eru að breyt
ast til landbúnaðar, fjarlægjast
skilyrðum veiðiþjóðarinnar Eski
móa.
Þegar Eiríkur rauði nam þar
Iand, voru þar engir skrælingj-
ar. Er eðlilegt að tengja sam-
an þetta tvent. Milt loftslag í
Grænlandi, góðir landskostir
undir bú, engir skrælingjar. Svo
kólnar loftslagið. Selurinn kem-
ur til sögunnar og með honum
skrælingjarnir. — Landskostir
versna. Bændaþjóðin missir lífs
skilyrði sín. Nú eru góðæri
landnámsaldarinnar aftur að
rísa upp, og selurinn að hverfa.
Nú verður það verkefni vís-
indamanna að skera úr þvf,
hvernig samhengið er milli
grænlenzkrar og íslenzkrar
veðráttu. Má búast við að lofts-
lagsbreytingin þar komi fram í
góðæri hér? Og er sönnunin
fyrir því, að mildara loftslag
var á Grænlandi á 10. öld, en
það hefir verið þar undanfarn-
ar aldir, einnig sönnun þess, að
hér á íslandi haff verið mild-
ara loftslag á landnámsöld en
það varð síðar?
* * *
Mataræði.
Björn O. Björnsson prestur f
Ásum í Skaftártungu, hefir á
undanförnum árum gengist fyr
ir því, að bændur í sóknum
hans ykju við garðyrkju sína
umfram það, sem enn tíðkast
hér á landi. Eru nú á hverjum
bæ þar ræktaðar fleiri tegundir
matjurta en áður, að því er
hann hefir' sagt blaðinu, svo
sem salat, spinat o. fl.
Hér á árum áður var hin ís-
lenzka prestastétt rík að for-
göngumönnum á sviði landbún-
aðar. Er vissulega enn í dag
mikið verkefni fyrir mentamenn
sveitanna, að ganga á undan
með góðu eftirdæmi um ýmis-
konar nýbreytni til þjóðþrifa.
Mun sú tilgáta mörgum þykja
sennileg, að seinlæti og deyfð
fslendinga eigi að einhverju
leyti rót sína að rekja til fjör-
efnaskorts í daglegri fæðu
þeirra. En grænmeti, einkum
það sem etið er ósoðið, er að
sögn heilsufræðinga vorra tíma
einhver hinn mesti og bezti
heilsugjafi sakir ríkidæmis af
fjörefnum.
Mbl.
NÝAR VITAMINRANNSÓKNIR.
Á síðustu árum hefir verið
lögð vaxandi áherzla á rann-
sóknir á vitaminum eða fjör-
efnum og fræðimenn eru stöð-
ugt að gera nýjar uppgötvanir
á sviði þeirra. Nýjustu og merk-
ustu rannsóknirnar hafa gert
tveir doktorar í Cambridge á
Englandi, Bowden og Snow. —
Þeim hefir tekist að framleiða
og einangra A-vitamin. Vitamin
eru, eins og kunnugt er, efni
eða eiginleikar í efnum, sem
eru nauðsynlegir fyrir viðhald
lífsins. Það mun hafa verið
austurrískur læknir, Kramer að
nafni, er fyrstur benti á gildi
vitaminanna, eða á það, að
grænmeti og ávextir eða ávaxta
safi, gæti læknað sjúkdóma, t.
d. skyrbjúg. Menn veittu vita-
minum fyrst athygli vegna
þeirra áhrifa, sem skortur þeirra
gat haft. En menn voru fram
á síðustu tíma alveg óvissir um
eðli þeirra. Menn greina milli
sex vitamintegunda, A, B, C,
D. E og G, og koma þau eins
og kunnugt er fyrir t. d. í lýsi,
grænmeti, eggjum, smjöri o.
s. frv.
Fræðimenn héldu fyrst, að
sennilega væri ekki unt að
greina vitaminin sjálfstæð úr