Heimskringla - 21.12.1932, Qupperneq 1
ÍThat your Christmas be a|
íjoyous one is the sincere wishi^
of
Pe*»iKs
I
5 Cleaners ¥ Dyers ¥ Furriers
s
Have your Clothes Dry
Cleaned now, before
Xmas.
Call 37 266
PertJís
s
XLVII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 21. DES. 1932
NÚMER 12
Ur bréfi fangans
Á MÁNUDAG.
Aftakan.
‘Sad Doom’’.
Svar til þín eg set í brag;
syng eg þér mitt harmalag:
Mig á að hengja á mánudag.
Sunnudags þá sólin rís
samt er mér enn gleði vís:
Part eg fæ af paradís.
Líf mitt, þó eg láti í ól,
lít eg drottins náðarsól,
fæ þar betri og fegri jól.
LÍFLÁTSDÓMAR.
Við hötum það, að hengja menn.
Og höldum því samt við.
l?ví menning vor er ekki enn
á æðra komin svið.
Við látum þá lífinu tapa.
í>eir brotið hafa boðorð lífs.
Um bót er lítil von.
Og enginn veit um öldur kífs,
hver á hinn dæmda son.
En hann er þó sem barn og okkar bróðir.
Og aftakan — það augnablik,
er allra þjóða tjón.
Um aldir mikið ólánsstryk
og ein hin versta sjón:
Yð lögum murka líf úr hinum seka.
Við hræðumst öll það hrikaverk
og hreyfum þó ei hönd,
Því lögin eru löng og sterk
og landsmál okkar vönd.
Við teljum öll: Það verði svo að vera.
DÓMSINS FINGRAFÖR.
Að drottinn hafi dáið fyrir oss,
er draumsjón helg. Og þó svo vönd að skilja.
Og vér sem fjösum mest um kvöl og kross,
vér kunnum ei að fylgja hans dæmi og vilja.
Vér höfnum því, að hann sé okkar líf,
og hann sé okkar bezta leiðarstjarna.
Því annars mundi kulda og tímans kíf,
ná kærleiks mót, á vegi foldar barna.
Sú kærleiksmynd, sem kenning hans er háð,
hún kennir öllum lífsins ráð að vanda,
og vekur hjá oss hreinan dug og dáð,
og dýrðarsjón til fegri og betri landa.
Og þó varð eitt um afdrif hans og kjör,
að öldum sárnar þvílík harmasaga.
Og þó má enn sjá dómsins fingraför
og formið alt, í skýring vorra laga.
Jón Kernested.
SKULDAMÁL.
Evrópu og Bandaríkjanna.
Um mál þessi hefir staðið tals
▼erður styr undanfarið. Eins
og kunugt er féll nokkuð af
skuldum Evrópuþjóðanna í gjald
daga 15. desember s. 1. Vildu
Evrópuþjóðirnar fá að minsta
kosti gjaldfrest á þeim. ef ekki
algerða uppgjöf, en Bandaríkja-
stjórnin var ekki neitt hrifin af
því, sem ekki var von. Það eru
fæstir hrifnir af því að lána fé
og fá það ekki goldið aftur. Um
skuldir þessar er vanalega tal-
að sem stríðsskuldir, en sann-
leikuriiín er sá, að það eru ekki
stríðsskuldir, heldur lán, sem
veitt hafa verið að mestu ef ekki
öllu leyti síðan Í918, með það
eitt fyrir augum að vernda Ev-
rópuþjóðirnar frá gjaldþroti, og
gefa þeim kost á að rfsa úr
öskudyngjunni, sem þær láu í
eftir stríðið.
Af þessum skuldum féllu nú
15. desember s .1. $124,934,421
í gjalddaga. Ellefu Evrópuþjóð-
ir skulduðu þetta. Var skuld
hverrar um sig, að samanlögð-
um höfuðstól og vöxtum, er hér
segir:
Bretland
Frakkland
Pólland
Belgía
Norður-Slóvakía
ítalía
Eistland
Finnland
Latvía
Lithuania
Ungverjaland
$95,550.000
19,261,432
4,327.980
2,125.000
1,500,000
1,245,437
356.370
18Ó.9S5
148,852
92,386
40.700
Heíinökríngla óskar
lesendum sínum og öll-
um Islendingum fjær og
nær, af alhug gleðilegra
jóla.
Sex af þessum þjóðum bofo
nú greitt skuldir sínar. Munu
það vera til samans um $98,-
722,910. Og þessar þjóðir eru:
Bretland, Slóvakía, Finnland,
ítalía, Latvía og Lithuania. —
En þær þjóðir, sem neita að
greiða skuldir sfnar, eða hafa
að minsta kosti ekki gert það
enn, eru Frakkland, Ungverja-
land, Belgía, Pólland og Eist
land. Alls nemur skuld þeirra
$26,211,511.
Höfuðstóll þessarar skuldar
er f raun og veru miklu minni
en áfallnir vextir. T. d. er tveir
þriðju af skuld Breta óeroldnir
vextir. Og öll skuld Frakklands,
Belgíu, ítalíu og Lithuaniu eru
ógoldnir vextir, en ekki höfuð-
stóll.
Þegar Bretar komust að raun
um, að Bandaríkjastjórninni var
ekki gefið um að veit.a frest á
greiðslu þessarar skuldar, létu
þeir það strax gott heita, en
fóru þó fram á að þessi síðasta
borgun yrði til greina tekin.
einhverjir samningar yrð”
ar gerðir um greiðslu á skuldun-
um. En fundur um það mun
verða haldinn á þessum vetri á
Englandi að líkindum. Höfðu
Bretar þau orð að sjálfsagt væri
að greiða skuldir sínar meðan
hægt væri, en Bandan'kjastjórn-
in tilkynti að frest veitti hún
ekki á skuldinni er í gjalddaf'a
féll 1. desember.
Með Frakka var aftur öðru
máli að gegna. Þeir eða þingið
neitaði að greiða skuld sína, oe
hafði það þær afleiðingar, að
Tleniotstjómin varð að segja af
sér. Að svo fór, er þó álitið
ldaufaskap Herriots sjálfs að
kenna. Hann heldur fyrst fram
í þinginu stefnu Frakka, og
Breta að nokkm leyti, í skulda-
málum og sýnir fram á að
ráðið til þess að fá Hoover til
að gera nýja samninea, um
skuldirnar, sé að fresta þessari
greiðslu. Að þvf búnu snýr hann
við blaðinu og telur FrakklonH
verða að standa við samninga
sína ,hvað sem það kocti Fn
þá voru þingmenn orðnir svo
æstir á móti Bandaríkjastjórn-
inni, að þeim kom ekki til hue-
ar að sinna neinni skyldukvöð,
er Herriot kvað á þeim hvíla,
og skáru því þannig úr máli á
mótf honum, að greiða pVv--
skuldina, sem í gjalddaea féll
15. desember.
Sfðan að stjórain f411 befir
auðvitað alt snúist um bað. að
mynda nýja stjóra, en skulda-
málin hafa legið í láginni.
Ef þessi synjun Frakka að
greiða skuld sína, hefði nú
hina minstu vitund stuðst við
getuleysi þeirra að borga, hefði
hún haft afar víðtæk oe ill á-
hrif á gengi, hlutabréf,
eignamarkað, og öll viðskifti
heimsins. En raunin hefir orðif?
sú, að engin truflun hefir á þeim
orðið þrátt fyrir gerðir Frakka.
Sýnir það Ijóst, að þeir geta
greitt skuldina, enda er
land nú með bezt stæðu lönd-
um heimsins.
Joseph Paul-Boncour, sem nú
hefir tekið að sér stjórnarfor-
mensku, lætur auðvitað ekkert
fyrst um sinn uppi um þetta
vdðkvæma skuldamál. En sitt
af liverju bendir á, að Frakkar
muni, er frá líður, greiða skuld
sína. Hefir svo mikið hesrrst,
bæði á forseta Frakklands og
stjórnarformanninum nýskipaða
að Frakkland geti ekki nafns
síns vegna gengið á gerða samn j
inga í þessu skuldamáli fremur J
en öðrum málum.
KERR SEGIR FRÁ NOTKUN
HÁSKÓLAFJÁRINS.
James Kerr, aðstoðar bók-
haldari Machray and Sharpe fé-
lagsins, var yfirheyrður af rann
6Óknarnefndinni í háskólamál-
inu s. 1. föstudag. Um leið og
yfirheyrslan byrjaði, hvort ó-
umflýjanlegt væri að hann
svaraði hverri einustu spum-
ingu. Kvað Turgeon dómari
formaóur i'annsóknaraefndar-
innar svo vera. Fór Mr. Kerr þá
fram á, að sér væri full vernd
veitt af dómstólunum. Var eng-
in fyrirstaða á því af hálfu
rannsóknamefndarinnar.
Þá skýrði Mr. Kerr frá þvf,
að í apríl 1924 hefði verið um
$500,000 sjóðþurð að ræða hjá
Machray and Sharpe félaginu.
Um það hefði aðal bókhaldari,
Mr. Shanks, vitað. Einnig Mr.
Machray og Mr. Fred J. Sharpe,
félagi Machray’s. Til þess að
jafna þenna halla, hefði verið
gripið til háskólafjárins og ann-
ars fjár, er félagið geymdi fyrír
kirkjur og St. John skólann. —
Bankarnir kröfðust auðvitað,
að skuldin á reikningi félags-
ins hjá sér yrði greidd, og það
var ekki með öðru móti hægt
en að selja verðbréf háskólans
og verðbréf annara stofnana f
vörzlum félagsins.
Viðskifti Machray and Sharpe
félagsins voru mikil á þessum
árum. Kvað Mr. Kerr félagið
hafa tekið inn á einum mánuði
(desember) frá $300,000 til
$400,000. Tekjur þessar voru
vextir og höfuðstóll af lánum.
Þá var Mr. Kerr spurður um;
hvernig hann hefði komist að
þessu. Kvað hann þá sögu til
þess vera, að hann hefði um
tíma árið 1924 orðið að hafa
með liöndum störf aðal-bókhald
ara, Mr. Shanks. Hann hefði
þreyttur verið og orðið að taka
sér hvíld frá störfum, vegna
vanheilsu. Fór hann þá vestur
að hafi og var í burtu rúma 2
mánuöi. En tveimur dögum áð-
ur en Mr. Shanks tók sér hvíld-
ina, sagði hann Mr. Kerr frá
hvernig sakir stæðu fyrir félag-
inu. ' Kvaðst han nsjálfur og
hafa komist að raun um þetta,
þegar bankinn átti orðið erind-
ið við sig um skuldagreiðslu fé-
lagsins. Sagðist hann oft sinn-
is hafa orðið að láta segja er-
indrekum bankans, að hann
væri ekki á skrifstofunni, til
þess að losna við að lenda í
höndúnum á þeim. ;
Þegár Mr. Kerr var spurður,
hvers vegna hann hefði ekki
sagt stöðu sinni lausri frá svona
starfi, kvað hann sér það oft í
hug hafa komið, en hann hefði
liaft fyrir fjölskyldu að sjá og
ekki átt vísa vinnu annarstaðar.
Sér- hefðu verið greiddir $200
á mánuði í laun, með loforði
um launahækkun síðar. Auk
þess hefði Machray sagt sér, að
ðllu væri óhætt; því félagið ætti
eignir er næmu $1,500,000. Og
ráð yr$u fundin til þess að
vinna upp þenna halla, er Mr.
Shanks kæmi til baka. Þá yrðu
reikningar allir gerðir upp til
fullnustu og jafnaðir.
En var þessi virðing á eign-
um félagsins ekki of há að yð-
ar áliti? spurði rannsóknar-
nefndin. Svaraði Mr. Kerr því á
þá leið, að sín skoðun væri, að
hún hefði þá verið mjög nærri
sanni. En aldrei hefði þó orðið
af því, að neinn reikningajöfn-
uður væri gerður, og kröfum
bankans hefði Machray orðið
við með þrí, sýknt og heilaet í
ein sex ár, eða fram að árinu
1930, að selja verðbréf háskól-
ans og annara stofnana.
Mr. F. J. Sharpe, félagi Mr.
Machray, var yfirheyrður í eina
fjóra eða fimm daga s.l. viku.
Hefir ekkert á þeirri yfirheyrslu
verið að græða. Mr. Sharpe hef-
ir alla jafna tjáð, að hann hafi
ekki fylgst svo með fjármálum
félagsins, að hann hafi vitað
hvernig hagur þess stóð. En til
þess að kynna sér það, hefir
hann beðið um frest á yfir-
heyrslu þar til eftir áramót. Var
sumum í rannsóknarnefndinni
óljúft að veita þann frest. —
Virtist þeim að Mr. Sharpe hefði
þegar haft nægan undirbúnings
tíma til þess að kynna sér fjár-
mál félags síns. En frestur þessi
hefir þó verið veittur.
Við yfirheyrslu Mr. Sharpe,
kom það í ljós, að fjárupphæðir
höfðu árlega verið fluttar úr
vaxtareikningi — investment
funds — til lögfræðisdeildar fé-
lagsins. Nam það frá $10,000 til
$13,000 á ári. Fé þessu var skift
milli eigenda. í þessa lögfræðis-
deild lítur út fyrir að fé þetta
hafi verið . greitt, hvort sem
veltureikningurinn sýndi hag
eða ekki. En á 10 árum hefir
sannast að Sharpe hafi einsam-
all á þenna hátt skamtað sér
$80,927, fram yfir það, sem tal-
in voru regluleg laun hans.
Yfirheyrsla þessa máls held-
ur áfram upp úr áramótunum,
enda þótt hún háfi nú þegar
staðið yfir ærinn tíma. Er ekki
óeðlilegt, þóitt ýmsir séu farnir
að fleyja því; að hún muni
kosta fylkið um það er lýkur,
annað eins og háskólatapið
nam. En hvað munar Manitoba
búa um það í þessu góðæri?
GOÐMANN.
AMY JOHNSON
Flugkonan djarfa, Amy John-
son? kom til London um hele-
ina úr flugferðalaginu frá Cape-
town í Suður-Afríku. Er vega-
lengdin um 6200 mflur. Fiau"
Amy hana á 7 dögum og 7
klukkustundum. Eins osr kurtn-
ugt er, flaug hún leið þessa
suður á 4 dögum, 6 klst. og 55
mín. Var hugmynd hennar að
fljúga til baka á skemri tíma,
en vegna illviðra tókst það ekki
En heilu og höldu komst
hún alla leið heim. Var
við lendinguna fagnað með kost
um og kynjum á Englandi. Og
eitt af því fyrsta, sem hún lét
uppi við fréttaritara, var að sig
langaði, svona þegar hún væri
búin að sofa úr sér þreytuna,
að reyna flugið vestur yfir At-
lantshaf.
Það þótti dirfska, er hún
lagði um hæl upp í þetta flug
Setjaast hann kunni
að söngkoforte,
sem hinn pólski
Paderewski,
Greiða kjóllöfin,
gullinkömbum,
frá sitjanda,
er settist niður.
Hann sínu hári
haga kunni
eins og skýi
fyrir andlits tjungli,
meðan aðrir
á öndu stóðu
algapandi
af eftirvænting.
Hann kunni að halda,
of hljóðum nótum,
loftklippum liðugra,
langra fingra,
hrífa ósæis
ægi-geislum
lista óljóss,
áhorfendur.
Hann kunni að láta
— af hreinni Iist —
í veðri vaxa
að hann vissi mikið,
Kynni svo margt
að í myrkri væri,
hverju á
hann ætjti að byrja.
; i
Standa hann kunni
upp frá strengkoforte
sem hinn rússneski
Rachmaninoff.
Engir voru
hang áheyrendur,
því lag að leika
lærði hann aldrei.
Hugðu menn hann
svo hátt fyrir ofan
alla aðra,
ei yTði heyrður,
líkt sem hann væri
leðurblaka
með hljóð svo há
að þau heyrðust eigi.
Sá hefir mestar
sæmdir unnið,
æðstum orðstír
fyrir íþrótt sína,
mesta aðdáun
allra hlotið
Víkinga, Vinda
og Vestur-Gauta.
Sá hefir farið
með fylstan kvið
frá veizluborðum
í Vesturhópi,
hæstum lofköstum
hlaðinn verið,
hyltur lárviðar-
laufa kóngur.
— En þú hinn þjálfaði
þagnarrofi
marar þjóðgleymdur
við þraut og örbirgð,
deyr án syrgjenda,
og síðan hrapar,
að öllu búnu,
um eilífð niður.
Gutt. J. Guttormssor
frá Capetown norður, eftir flug
ið frá Englandi suður. En vil
það á auðsjáanlega ekki al
sitja. Taugar hennar virðas
ekki mikið hafa slaknað vil
áreynsluna af þessum tveimu
flug-hreystiverkum sínum.
Guðlaugur ólafsson, að Gimll
Man., lézt s. 1. fimtudag. Hann
átti um langt skeið heima f
Winnipeg, en var á ellihælinu
á Gimli er hann lézt.