Heimskringla - 21.12.1932, Síða 7
WINNIPEG 21. DES. 1932
HEIMSKRINGLA
7. Sfi)A
í DRAUMI EÐA VÖKU.
Frh. frá 3. bls.
Kandídatinn kinkaði kolli til
samþykkis og Holgeir hélt svo
áfram:
“Mennirnir stigu upp, sem
svaraði til þeirra hæstu og göf-
ugustu eiginleika — tilfinninga
— og þegar þeir komu í þann
heim, sem samsvaraði eðli
þ>eirra og tilfinningum, stönzuðu
þeir og þar áttu þeir heima. —
En í hverjum himni voru mörg
mismunandi stig — eða gráður. j
Sumar voru hærri, sumar lægri
— í hinum sama himni, þrátt
fyrir það að þar voru engar
ákveðnar skiftingar og alt rann
saman í eina heild. En milli
hinna aðskildu himna getur
hafa verið einhver skilgreining.
því í hvert skifti, sem eg sá inn
í nýjan heim, þurftu augu mín
að opnast á ný. En hið sama
lögmál gilti alstaðar, að mann-
eskjumar fóru þangað, sem eðli
þeirra og upplag benti þeim til.
Eg sá samt einn, sem ekki fór
eins hátt og eðli hans benti til,
þrátt fyrir það þó hann kæmist
hátt, langt yfir flesta aðra, —
það var í sjálfan heilagleikans
himin. Eg sá hann koma .Hann
steig viðstöðulaust upp, gegnum
alla himnana. Á andliti hans
var svo undurblítt kærleiksbros.
Eg sá hann stíga inn í guðs há-
tignar himinn. Og eg sá hugsan-
ir hans endurspeglast, og eg
vissi að hann náði því hæsta
takmarki, sem nokkur maður
getur náð. En þá stanzaði hann
—en eg skildi ekki hvers vegna
— og á sama tíma sá eg allan
æfiferil hans á jörðinni. En
hvernig mér birtist það get eg
ekki gert grein fyrir.
Það var suðaustur í hinum
heitu löndum. Trén ýoru fögur
en ekki afar stór. Þau voru
skuggsælli en þau tré, sem við
sjáum hér. Blóm og allskonar
skrautjurtir uxu þar miklu
stærri og fjölbreyttari, en hér
hjá oss.
1 slíku landi hafði verið heim-
kynni þessa manns, er hann
lifði hér á jörðinni.. Hann var
prestur, en ekki á sama hátt
og prestar vorir. Hann var
meira sem múnkur, en um leið
meira en múnkur. Eg veit ekki
hvað eg á að kalla slíka menn,
en þeir eru til í Austurlöndum.
Þeir, sem sáu hann, nærri því
tilbáðu hann. Hann var lærður
maður og vitur, og hann sá
hvað í mönnunum bjó. En sér-
staklega var hann hógvær og
kærléiksfull sál. Eg sá hans
jarðnesku mynd, þrátt fyrir það
að hann hlaut að vera dáinn.
Hár hans var hvítt sem nýþveg-
in ull, augu hans ljómuðu sem
skínandi sól. Þau voru svo
hrein, að fólk, sem sá hann, féll
honum til fóta og skriftaði fyr-
ir honum. Það hélt að hann
væri heilagur. Það var eins og
fólkið tryði honum fyrir öllum
vandamálum sínum. Það var —
ef svo mætti að orði kveða —
eins og fólkið hefði hengt á
hann allar byrðar sínar og ervið
leika; og hann var orðinn svo
vanur þessu að næstum mátti
segja, að þetta væri sem klæðn-
aður hans, án þess að hann vissi
af því.
Hann var svo glaður, og hann
vissi að alt líf sitt hafði verið
mÖnnum til blessunar. Það var
ástæðan fyrir hinu fagra brosi
sem ljómaði í andliti hans. En
alt það góða, sem hann hafði
ekki getað komist hjá að vita
um sjálfan sig, það varð eins og
mótverkandi þungi, sem hélt
honum frá að geta komist
hærra — þrátt fyrir það að eðli
hans stefndi til hærri himna.
Því hærra sem sálin stígur,
eftir því þyngist það létta, eft-
ir því sem hærra er stígið,
verða lítil afbrot stærri.”
Kandidatinn slóð á fætur og
horfði rannsakandi augum á
Holgeir, eins og hann vildi sjá
og skilja hvað væri á bak við
hið ljúfmannlega bros sem lék
um varir hans. Holgeir sá það
og sagði:
“Bara að eg fengi leyfi til að
sjá þetta einu sinni aftur.”
“Hvað?”
“Að sjá þig svona vingjam-
legan fyrir framan mig og gera
gabb að mér.”
“Eg er ekki vanur að gera
gabb að yður,” svaraði kandí-
datinn.
“Nei,” sagði Holgeir.. “Eg
meinti ekki yður. Eg var að
hugsa um drengina í skólan-
um, sem svipar t*il yðar. Þeir
hlógu aldrei að mér, þegar eg
kunni lexfuna mína vel, og eg
hélt altaf með sjálfum mér að
eg kynni vel. En þegar eg kom
upp að kennarapúltinu og átti
að gera grein fyrir kunnáttu
minni, þá varð oft frammistað-
an í molum og drengirnir hlógu
að mér. En stundum, þegar eg
kanske hugsaði sem minst um
hverju eg skyldi svara spurn-
ingum kennarans, þá ef til vill
Canada Metal
Company, Limited
i 24 498 301 Chamber St., Wpg.
ÓSKAR LESENDUM HEIMSKRINGLU OG ÖLLUM
ÍSLENDINGUM NÆR OG FJÆR
GLEÐILEGRA JÓLA OG HAGSÆLS NÝÁRS
VERZAR MEÐ ALLSKONAR MÁLM og JÁRNSMÍÐAR
Tryggingln felst
V
i nafninu!
Pantið um nýárið beztu tegundirnar
ÖL, BJÓR og STOUT
frá gömlu og vel þektu ölgerðarhúsi
GlefíillegÉtt BiyáipS
RIEDLE BREWERY
STADACONA OG TALBOT
PHONE 57 241
svaraði eg öllum spurningun-
um rétt, og þá brostu drengim-
ir á vissan hátt, alveg eins og
þeir vildu segja: Hann stóð sig
vel; hann kunni vel núna. Og
eg sá það á því, hvernig þeir
brostu, að þeim þótti vænt um
að eg gat staðið mig vel. Þér
mintuð mig svo mikið á þá, að
mér fanst eg varla geta gert
nokkurn greinarmun á þeim og
yður.’
“Þetta er í annað sinn í dag
að þér líkið mér við skóla-
dreng,’’ sagði kandídatinn.
“Eg meinti ekkert ilt með
því,” svaraði Holgeir. “Mér datt
alls ekki í hug að lítilsvirða yð-
ur.”
, “Það er líklega þess vegna,
að yður verður það eins og ó-
sjálfrátt,” sagði kandídatinn. —
“Það er eins og með lexíurnar,
að þegar þér hugsið sem minst
um hvað þér ætlið að segja, er
eins og það komi af sjálfu sér.
— Veðrið er svo yndislegt, og
það er blæjalogn, — eigum við
ekki að koma út og sitja í
blómsturgarðinum, og horfa á
hversu dýrðlegt að sólarlagið
er?”
Þeir gengu út og kandídat-
inn settist á nýjan tágabekk er
var í garðinum. Hjá bekknum
var steinn, sem hafði orðið eft-
ir, þegar gamall garður, sem
þar var, hafði verið rifinn og
efnið — grjótið og moldin —
flutt í burtu. Holgeir settist á
steininn. Þeir sátu þegjandi og
horfðu yfir akrana. Hinir dýrð-
legu geislar kvöldsólarinnar
vörpuðu svo undaðslega mild-
um blæ yfir nágrennið, og þeir
horfðu hugfangnir á alla þessa
dýrð. Og þeir sáu daginn hverfa
inn í skaut hins liðna, — dag,
sem búinn var að vera og aldrei
kæmi aftur.
Kandídátinn sat og horfði á
skuggana lengjast og fegurð
kvöldsólarinnar fölna, — og
skugga næturinnar breiðast yfir
hauður og haf. Honum fanst
eins og þetta minna sig átakan-
lega á hverfulleik lífsins. Hann
sneri sér að Holgeir til þess að
segja eitthvað, en hann gat
ekkert sagt, fyrir undrun yfir
þeirri tign lífsins, sem ljómaði
af ásjónu hans, sem hann gat
hvorki mælt né vegið eftir nein-
um stærðfræðisreglum.
Kandídatinn sat og horfði á
dagsetrið, þangað til honum
fanst það vera sjálft lífið, sem
var að hverfa, og dró hann og
verk hans með sér út í hina
takmarkalaus hringiðu ljóss og
myrkurs.
“Guð er þá — ekkert?” sagði
hann með hægð. “Eða ber ekki
að skilja draum yðar svo?”
“Það getur verið,” svaraði
Holgeir.
“Eftir því er enginn guð til,”
sagði kandídatinn.
“Jæja,” sagði Holgeir.
“Annaðhvort er hann til eða
ekki,’ sagði kandídatinn.
“Nei,” sagði Holgeir svo und-
ur blíðlega.
“Það þriðja getur' ekki átt
sér stað,” sagði kandídatinn og
dálítill ergelsisblær mótaðist á
andliti hans.
“Viljið þér að eg segi yður
hvað eg írtiynda mér um það?”
sagði Holgeir.
“Já,” svaraði kandídatinn.
“Munið þér eftir Hansínu? —
Hver var það sem elskaði hana
og líka drap hana.
“Það voruð þér."
“Munið þér eftir Vissingröd
malara. Hver var það sem hat-
aði og fyrirgaf?”
“Eg segi með aðdáun: það
voruð einnig þér.”
“Hver er það sem nú situr
hjá yður?”
“Fyrst þér spyrjið eftir því,
þá er því til að svara, að það
eruð einnig þér.”
“En ef eg nú segi yður,, að
jafnvel liárin á höfðinu á mér
séu ekki mín, og eg verði þeirra
ekki var, heldur en þau séu þar
ekki; og finn ekki að augu mín
sjá, heldur aðeins að það er
séð; og ekki að eyru mín heyra
heldur aðeins að það er heyrt;
og að eg finn ekki andardrátt
minn, sem minn, heldur að það
á sér stað: ekki að fætur mínir
ganga og hendur mínar vinna,
einungis að þetta á sér stað.
Hver er þá þessi “eg”, sem að-
hefst og framkvæmi, sem elsk-
aði og drap, sem hataði og fyr-
irgaf, sem hvorki elska né hata
framar, sem hvorki gleðst né |
hryggist, sem hvorki þekkir
vilja né takmark?"
“Viljið þér þar með segja mér
að þér séuð alls ekki til?”
“Það gæti verið.”
“En þér eruð þó hér með húð
og hári.”
“Ef svo er, þá getur “það
þriðja" átt sér stað.”
“Þér munið það sem þér
í gerðuð, og þess vegna eruð það
þér, sem sitjið hér, — sá sem
verknaðinn vann.”
“Það var ekki eg, sem gerði
það.”
“Ekki þér?”
“Hans gamli sagði einu sinni
við mig: Þú hefir hreint ekki
verið þú sjálfur, þegar þú fyrir-
fórst Hansínu. En eg hefi ekki
fremur verið eg sjáflur, þegar
eg hefi gert einhverjum gott.
Eg var altaf á valdi einhverra
máttarvalda, og vissi lítið um
sjálfan mig. Já, það kom fyrir
að eg hataði sökum ástar, að
eg drap sökum meðaumkunar.
Eg var sem leikfang á valdi
einhverra máttarvalda lífsins.”
“Þessi máttarvöld léku með
yður að vild sinni. Hvað voruð
þér þá sjálfur?”
“Eg var stríðið á milli þess-
ara máttarvalda. Af því lærði eg
að þekkja sjálfan mig, og finna
það, seni gæti frelsað mig frá
því.”
“Hvað var það?”
“Það var guð.”
“Og hvað svo?”
“Bg veit ekki af öðru en
frelsuninni.”
En þetta, sem þér kallið guð,
sem þrýsti yður í gegnum stríð-
ið til frelsis, var auðvitað yðar
eigið manngildi.”
“Þá hefði það varla getað
enzt, þegar lífsstefna mín
sveigðist inn á aðrar og ólík-
ar brautir. — En eg er að
hugsa um drauminn minn, sem
kanske var virkileiki og alls
ekki draumur. Það búa í oss
tilfinningar, sem við verðum
oft mjög lítið eða ekkert var-
ir við, fyr en vér höfum frels-
ast frá því að vera stríðið á
milli máttarvaldanna. Mínar
beztu tilfinningar voru ekki eg
sjálfur, fyr en eg var orðinn
frjáls. Máske himnarnir séu
guðs kærleikstilfinningar fyrir
heiminum. Guð sjálfur lætur sig
litlu skifta sína himna.”
“Af hverju heldurðu það?”
Holgeir horfði rannsakandi á
kandidatinn og sagði:
“Látið þér yður ekki verða
bylt við það, sem eg nú segi. —
Eg óska ekki, að eg hefði aldrei
frarnið illvirkið. Það er mér
eins nærri og kært — og það
er eins fjarri mér og eins laust
við mig, eins og blómaknippi,
sem eg batt saman, þegar eg
var í skólanum, til þess að gefa
Hansínu. Það var af kærleiks-
kend, að eg hjálpaði litlu börn-
unum, og það var einnig af
kærleikskend, að eg barði lilífð-
arlaxist á stærri börnunum. Eg
elskaði og drap. Hvar sem j
þessi tegund kærleika hefir yfir j
höndiria. þar er og hatur. Það ,
er þess vegna að eg óska eigi að j
eg hefði sloppið við að fremja j
mína stóru yfirsjón. ‘ Ef það!
hefði ekki komið fyrir, hefði eg
aldrei orðið frjáls, og aldrei til
fulls lært að gera mér rétta
grein fyrir, að piín beztu verk
voru nauða lítils virði, að jafn-
vel þau voru blendingur af ást
og hatri.’
Kandídatinn horfði undrandi
á liann og sagði:
“Voruð það þá ekki þér, sem
drápuð Hansínu?’\
“Nei. — Eg ímynda mér, að
þannig líti guð á sinn himinn
og sitt helvíti, og segi: hvorki
þetta eða hitt er mitt.”
N a fi ÍS PJ iöl ld |
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd BldK-
Skrifstofusími: 23674
Stundar sérstaklegra lungnasjúk
dóma.
Er a?J flnna á skrifstofu kl 10—12
f h. og: 2—6 e h.
Helmili: 46 Alloway Ave
Tnlsfml: 33158
DR A. BLONDAL
602 Medlcal Arts Bldg
Talsími: 22 296
Stundar sérslaklega kvensjúkdóma
og barnasjúkdðma. — AB hltta:
kl. 10—12 « h. og S—6 e. h.
Heimlll: S06 Vlctor St Simi 28 130
Dr. J. Stefansson
219 NEDICAL AHTS BLDG.
Horni Kennedy og: Graham
Stnndar elngöugu auifna- eyrnn
uef- ok kverkR-Hjflkdðma
Er a5 hitta frá kl. 11—12 f. h
og kl. 3—6 e. h
Talafml: 21834
Helmill: 638 McMillan Ave 42691
DR. L. A. SIGURDSON
216-220 Medlcal Arts Bldg.
Phone 21 834 Office tímar 2-4
HeimiU: 104 Hom? St.
Phone 72 409
Dr. A. B. INGIMUNDSON
Tannlseknir
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sími: 22 296 Heimilis: 46 054
Símið pantanir yðar
Roberts Drug Stores
Limited
AbyggUeglr lyfsalar
Fyrsta flokks afgreiðsla.
Níu búðir — Sargent and
Sherbrooke búð—Sími 27 057
“Eftir þessu að dæma,” sagði
kandidatinn, “ætti lífið að vera
stríð háð á milli and-
stæðra náttúruvalda, hvaðan
að vitundarlíf vort stafar, og
guð verund, sem er sambundin
heiminum, og þó laus við hann
— eins og vér mennirnir.”
Holgeir hristi höfuðið og
sagði:
“Þetta, sem þér eruð að segja
eru aðeins heilabrof yðar um
hann; en hver slík ímyndun,
sem vér gerum oss um hann,
fjarlægir oss honum. Það er
ómögulegt að hugsa sér hann.
Hann veröur ekki myndaður
eða mældur, en hann verður að
vera lifaður. Við getum verið
honum nær, jafnvel þegar við
höldum, að hann sé ekki til, en
finnum oss í samræmi við
hann. Já, hann er í því smáa,
og alstaðar að finna. Hann er
hvers manns eign. — Já, guðs
huldu- bústaðir eru með alfara-
veginum, svo augljósir, að eng-
inn veitir þeim eftirtekt. En eng
inn getur sagt neitt um hann,
nema það að hann er. En það
sem hægt er áð segja er það,
að það er guð fyrir hvern, sem
finnum hjá oss þörf fyrir hann,
og þessi þörf birtisf í þeirri
þrá, sem maðurinn hefir eftir
sannleikanum. Eg bið ekki fram
ar til guðs, en eg er jafn róleg-
ur fyrir það, eins og eg hefði á-
valt verið á bæn. — Eg er í full-
um friði við sjálfan mig og til-
veruna. — Þetta er kanske lof-
söngur yfir því, að lífið er þegar
búið og eg finn að eg er frjáls.”
“Hin eilífa ró,” sagði kandí-
datinn Holgeir leit til lians og
sagði:
“Já hið auða rúm.” —
Hann horfði á dagsetrið, þar
sem dagurinn og nóttin voru
að fallast í faðmlög og verða
eitt.
“Nú er það búið,” sagði liann.
“Já,’ ’svaraði kandídatinn og
bneigði höfuðið til samþykkis.
G. E.
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bkif.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
(SLENZKIR LÖGFKÆÐINOAB
á oðru gólfi
325 Maln Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skrifstofur »0
Lundar og Gimli og eru þ&r
að hitta, fyrsta miðvikudag 1
hverjum mánuði.
Telephone: 21613
J. Christoplierson,
Islenzkur Lógfræðingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
A. S. BARDAL
selur likkistur og ann&st um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá beitl.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarUa og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phonei 86 607 WINNIPBA
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
OH. S. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.O.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
MARGARET DALMAN
TEACHBH OF PIANO
HS4 BANNING ST.
PHONEt 26 420
Dr. A. V. Johnson
fslenzkur Tannlæknir.
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúsinu.
Sfmi: 96 210. Heimllis: 33328
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
BaKicaice and Furnltnrf Honlag
762 VICTOR ST.
SIMI 24.500
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K. C.
lalenzkur lÖKÍrœtdnKnr
Skrifstofa: 411 PARIS BLDO.
Simi: 96 933
i
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
Tnlaimli 2S S88
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆ3KNIH
614 Someriet Block
Purtage Avenne WINNIPWil
BRYNJ THORLAKSSON
Söngstjóri
Stillir Pianos og Orgel
Siml 38 345. 594 Alverstobe St.