Heimskringla - 21.12.1932, Side 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 21. DES. 1932
Orvals fatnaður
KARLMANNA
á hinu sanngjarnasta verðí
bíður yðar í verzlun—
Humphries Ltd.
223 Portage Ave.
við Liggett’s hjá Notre Dame
Guðsþjónustur í Sambands-
kirkju um hátíðarnar, verða
sem hér segir:
Samkoma sunnudagaskólans
á laugardagskvöld, kl. 7.30
Jólaguðsþjónusta á jóladag
kl. 11 árdegis.
Gamlárskvöld, miðnætur guðs
þjónusta kl. 11.30.
Nýársdag á venjulegum tíma
kl. 7 síðdegis.
* * *
Borgið Heimskringlu!
Þótt útistandandi áskriftar-
gjald sé ekki mikið hjá hverjum
einstökum manni, skiftir það
þúsundum dala, þegar saman
kemur. Ensk blöð eru borguð
fyrirfram eða á hálfsmánaðar
fresti. Hví þurfa íslenzku blöð-
in að bíða árlangt eða jafnvel
Arum saman eftir áskriftargialdi
sínu ? Án íslenzku
Sendið gluggatjöldin yðar til viðurkendrar hreingemingaatefn-
trnar, er verkið vinnur á vægu verði
Pei&E'lase Jmmdry
55, 59 PEARL STREET
“Verkhagast og vinnulægnaat”
StMI 22 818
megum við ekki vera. En til-
vera þeirra hvílir á skilvísi kaup
endanna. Viljum vér því mælast
til að allir, sem blaðinu skulda,
reyni að gera því einhver skil
fyrir áramótin, sem í hönd fara.
Vér vitum að allir geta ekk'
greitt skuld sína að fullu, en
sá er enginn^ sem ekki getur
greitt eitthvað af henni. Og
hversu lítið sem er frá hverjum,
er mikið, þegar saman kemur,
og greiðir veg blaðsins ótrúlega.
* * *
Mrs. Helga Björnsson, ekkja
Jóns Björnssonar frá Baldur, dó
s. 1. fimtudag að 715 Victor St.
í Winnipeg. Hún var 90 ára
gömul. Með manni sínum kom
hún til Ameríku 1876. Var hún
stjúpmóðir Tómasar heitins
Johnson, sem um skeið var
dómsmálaráðherra þessa fvlki=
Lík Helgu var flutt til Baldur.
bar sem maður hinnar látnu er
jarðaður.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sfmi: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repatr Servio®
tíanning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Rxpert Repair and Complete
Garage Service
Gas. Oils. Extras. Tires,
Batteries, Etc
Jón Sigurðsson bóndi við
blaðanna Eriksdale, andaðist að heimili
________ sínu á mánudaginn var, 83 ára
að aldri. Hann var hið mesta
hraustmenni og var á ferli
morguninn sama og hann lézt.
I Jón var ættaður úr Suður-f>ing-
I eyjarsýslu. Hann var bróðir
I Kristíönu, móður þeirra Bald-
urs heitins ritstjóra Sveinsson-
ar og Benedikts Alþingismanns
og landsbókavarðar í Reykja-
vík. Hann var giftur Pálínu
Þórðardóttur frá Litla-Eyrar-
landi í Eyjafirði. Er hún á lífi
ásamt sex börnum þeirra, er
svo heita: Sigurður, bóndi í
Swan River; Hermann bóndi í
Churchbridge: Aðalsteinn bóndi
að Eriksdale; Mrs. Anna For-
sythe í Eriksdale; Emma, skóla-
kennari í Eriksdale, og Mrs.
Margrét Stone í Winnipeg.
Jarðarförin fer fram frá Er-
iksdale á fimtudaginn í þessari
viku.
* * *
Nokkuð af kvæðum og grein-
um, sem ætlast var til að kæmu
í þessu blaði, verða að bíða
næsta4' blaðs. Erii höfundarnir
beðnir afsökunar á því.
* * *
Föstudaginn 16. des. voru
þau Graham Bain og Lola Da-
vidson, bæði til heimilis í Wln-
nipeg, gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni.
Hjónavígslan fór fram að heim-
ili foreldra brúðarinnar, Mr. og
Mrs. Júlíus Davidson, 1079
Downing St. Fjöldi skyldmenna
og annara vina var þar viðstadd
ur og undi sér hið bezta í un-
aðslegu samsæti. Heimili ungru
hjónanna verður fyrst um sinn
á heimili foreldra brúðarinnar.
ííicíi mtu
(áðkum
um JÓLIN og NÝÁRIÐ
frá aðalstöðvum Heintzman Piano og
heimsins beztu Radio-tækjum.
J.J.H.M9LEAN
329 PORTAGE AVE.
MacDonald Shoe Store
SÍMI 29 201 — 494 *MAIN ST.
Óskar öllum hinum mörgu viðskiftavinum sínum
GLEÐILEGRA JÓLA og HAGSÆLS NÝÁRS,
Einhver vinsælasta skófatnaðarbúðin í vestur-
landinu.
MACDONALD SHOE STORE
Brennið koium og sparið peninga
BEINFAIT, Lump $5.50 tonnið
DOMINION, Lump 6.25 —
REGAL. Lump 10.50 —
ATLAS WILDFIRE, Lump 11.50 —
WESTERN GEM, Lump 11.50 —
FOTTHILLS, Lump 13.00 —
SAUNDERS CREEK “BIG HORN”, Lump 14.00 —
WINNIPEG ELECTRIC KOPPERS COKE 13.50 — '
FORD or SOLVAY COKE 14.50 —
CANMORE BRIQUETTS 14.50 —
POCAHONTAS Lump 15.50 —
MCpURDY CUPPLY fO. | TD.
Builders’ Supplies ^^anc J^Coal
Office and Yard—136 Portage Avenue East
94 300 - phones - 94 309
OPIÐ BRÉF.
Frh. á 8 bls.
(Frah. frá 5. síðu)
að standa í skilum.
Síðastliðin tvö ár hafa skatt-
innheimtur numið um 75 pró-
sent af öllum álögðum skött
um, sem eðlilega hefir haft það
í för með sér, að sveitin hefir
ekki getað staðið í skilum með
afborganir skuldabréfa.
Með nýrri virðingu (jarða-
mati) í sveitinni hyggst svo
sveitamálaráðgjafinn að auka
svo á skattabyrði þeirra, sem
goldið hafa þessi 75 prósent
fyrirfarandi, að nemi hinum
25%, sem upp á vantar, og rétta
þannig fjárhag sveitarinnar. —
þessu mótmæli eg á þeim grund
velli, að skattar séu nú sem
stendur, eigi aðeins hæfilega há-
ir í hlutfalli við gjaldþol manna,
heldur mikið fremur alt of há-
ir, þar sem nú má svo að orði
kveða, að allar afurðir bænda
og fiskimanna séu svo að segja
einskis virði.
í úrsögn minni stendur m. a
þetta:
“If the government has the
interest of the Municipality at
heart they should declare
moratorium on payments due
at present time.’’
Bið eg lesendur mína að gæta
þess vel að leggja réttan skiln-
ing í orðið “moratorium’’, og
blanda því ekki saman við “debt
, adjustment’’, eins og eg hefi
orðið var við að mönnum hætt-
ir við. Moratorium þýðir gjald-
frestur en ekki uppgjöf skulda.
Að þetta sé engin skerðing á
virðing okkar sem borgara þessa
lands, má benda á hliðstæð
dæmi, þar sem stórveldi heims-
ins eru að fara þessa sama á
leit.
Gjaldþol manna á þessum
síðustu og verstu tímum nær
ekki að minni hyggju fram yf
ir hinar brýnustu þarfir, svo
sem fátækrastyrk, sjúkratillög
og viðhald skúla.
í úrsögn minni stendur enn
fremur þetta:
“I resent the implication from
the Municipal Commissioner
that the chief aim of a muni-
cipality is to retain its credit
to see that the debenture hold-
ers receive 100% of their
j money when due. I feel that
j the class of investors that de-
j serve first consideration from
| municipal, provincial or domi-
i nion governments, are tþose
I who have invested all theirs, as
i well as lifetime of effort in
building a home, improving a
homestead in order to make a
I living out of it. To protect their
investment is of infinitely more
importance to me than of those
who have money to invest in
debentures, which vry often is
only accumulation of wealth
over and above theír absolute
needs.”
Eg bið lesendur fnína að at-
huga, að í þessari málsgrein er
þungamiðjan tveir flokkar af
“investors”. í öðrum flokknum!
eru menn þeir, sem hafa fé af-
lögu til ýmsra arðvænlegra fyr-
irtækja, menn sem stjórnirnar
eru handgengnar og beygja sig
fyrir. í hinum flokknum eru
menn þeir, sem í daglegu tali
eru ekki flokkaðir sem “invest-
ors”, en sem eg nú gerist svo
djarfur að halda fram að séu
í raun og veru veigameiri in-
vestors en hinir. Þeir menn, er
leggja alt sitt fram, alt sem
þeir hafa til umráða, til að
byggja upp heimili og umbæta
þau, byggja upp vegi og halda
þeim við, gera óræktar-skóga
og mýrarfláka að sáð- og beiti-
landi. Þetta er sá flokkur manna
sem að minni hyggju er að
leggja dýrari verðmæti til bygg-
ingar þjóðfélaginu í heild, og
ætti að véra tekinn til greina
eigi aðeins til jafns við hinn
flokkinn, heldur umfram.
í stað þess virðist svo sem
stjórnarvöldin séu ekki ánægð
fyr en þau hafa lagt svo þung-
ar skattabyrðar á herðar þess-
um mönnuirt, _að þeir rísa ekki
lengur undir þeim, þreytast að
lokum á erfiðleikunum og leggja
árar í bát. Fjöldi þessara manna
hverfa svo til borganna, sem
begar eru fleytifullar af atvinnu
lausu fólki, verða þar styrkþeg-
ar stjórnanna, sem í sjálfu sér
er nægilega lamandi, svo að
með tímanum er siðferðisþrek
og viðleitni til sjálfsbjargar
drepin að fullu og öllu. Þegar
stjórnirnar standa svo uppi ráð-
þrota með að leggja þessu fólki
lífsviðurværi, kóróna þær alt
saman með að básúna hið svo-
kallaða “back to the land move-
meqt’’. Nú er þessum mönn-
um boðið peningatillag til þess
að byrja með búskap á landi,
og þar að auki mánaðarleg til-
lög til nauðsynlegasta lífsvið-
urværís. Slík er hringferðin þá
orðin. Hvílík stjórn!
Væri nú ekki viturlegra að
gefa landeigendum gjaldfrest á
gömlum skuldum og gera þeim
þannig mögulegt, að sitja áfram
á óðulum sínum, heldur en að
knýja þá um skör fram og
skerða þannig þeirra mjög svo
takmörkuðu lífsþægindi, í því
eina augnamiði að hlaða und-
ir og hlúa að þeim flokki manna
sem alls ekki eru þess þurfandi,
sem alls ekki mundu líða neitt
við það, þótt þeir þyrftu að bíða
um skeið eftir arði. Þeir mundu
samt sem áður hafa meira fyr-
ir sig að leggja heldur en hin
fullkomnustu lífsþægindi krefj-
ast.
Með þetta, sem nú er sagt,
fyrir augum, skrifaði eg úrsögn
mína til oddvita þessarar sveit-
ar og sveitarmálaráðgjafans. Og
sem oddviti þessarar sveitar
hyggst eg að framfylgja þessu
máli, og held því til streitu, svo
menn eigi lengur gangi að því
gruflandi, hver af þessum tveim
flokkum liggur stjórninni næst
hjarta.
Verði afstaða stjórnarinnar
sú, að málaleitun minni verði
enginn gaumur gefinn, tek eg
þá afstöðu til málanna, að rétt-
mætri kröfu sé misboðið, og get
eg ekki á annan hátt betur
sýnt mótmæli, en með því að
segja af mér oddvitastöðunni.
Eg kýs ekki að vera oddviti
þess sveitarráðs, sem er þröngv
að til þess að vera voðfeldur
leppur stjómarinnar; sveitar-
ráðs, sem er þröngvað til þess
að gerast hagsmunalegur böð-
ull stjórnar á kostnað gjaldend-
anna. Eg er þess vegna fast á- j
kveðinn í því að segja af mér
sem oddviti, verði mér ekkertj
ágengt í þessu máli.
Hygg eg að hér hafi eg gert |
gjaldendum þessarar sveitar
Ijósa grein fyrir stefnu minni,
svo að þeir geti á væntanlegum
fundum í hinum ýmsu bygðum
víðsvegar um sveitina, rætt
þessi mál og tekið ákveðna af-
stöðu til þeirra. Það er augljóst
mál, að þeim mun sterkara j
WONDERLAND
Föstudag og laugardag
28. og 24. des.
“CONGORILLA”
Aðalleikandl:
MARTIN JOHNSON
Mánudag og þrlðjudag,
26. og 27. des.
GEO. M. COHAN
in
“PHANTOM
PRESIDENT”
Mlðvikudag og fimtudag,
28. og 29. des.
“NEW MORALS
FOR OLD”
Aðaileikandi:
LEWIS STONE
Open every day at 6 p. m. —
Saturdays 1 p. m. Also Thurs-
day Matinee.
ii&tiesnePti&iusnisniGtD/vtuSHus’ti/s’MS’V
fylgi, sem gjaldendur veita
sveitarráðinu í þessum málum,
þeim mun líklegra er að þau nái
fram að ganga.
Eg má geta þess, að á nýaf-
MESSUR OG FUNDIR
i kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegk
ki. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálpamefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjuin
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Siuinudagasköiinn: — A hverjuO
sunnudegi, kl. 11 f. h.
stöðnum fundi, sem haldinn var
í Framnesbygð, þar sem svo
að segja allir bygðarbúar voru
mættir, var tillaga samþykt í
einu hljóði þess efnis, að gefa
mér eindregið fylgi til fram-
kvæmda í þessu máli.
Virðingarfylst,
B. J. Lífmann.
McFadyen Company
Limitcd
Óska hinum mörgu íslenzku skiftavinum sínum
GIeðilegr& Jóla
Og
Farsæls Nyáirs
Jóls)° og
frá
ANDREWS. ANDREWS. BURBIDGE
and BASTEDO
Barristers, Solicitors, Etc.
101—111 BANK OF NOVA SCOTIA BUILDING
Comer Portage Ave. and Garry St.
WINNIPEG MANITOBA
Með þökk til fslendinga fyrir viðskiftin á liðnu ári
og innilegri ósk um gleðileg jól og
farsælt nýtt ár.
Maryland & Sargent
Service Station
BENNIE BRYNJÓLFSSON, Eigandi
MODERN DAIRIES
LIMITED
Sími: 201 101
St. Joseph og La Verandrye, St. Boniface
Mjólkursölufélagið vinsæla hefir til sölu allar
mjólkurafurðir, svo sem Mjólk, Rjóma, Smjör o. fl.
óskar öllum viðskiftavinum sínum, sem og lánds-
búum
Gleðilegtca Jóla ©g
aróveeKDS og farsaöls Hýárs
HVER SEM KAUPIR NAUÐSYNJAR SÍNAR AF
“MODERN” FÆR HREINA OG HEILNÆMA
MJÓLK. BETRI MJÓLK FÆST EKKI HÉR í BÆ.