Heimskringla - 29.03.1933, Page 5

Heimskringla - 29.03.1933, Page 5
WINNIPEG, 29. MARZ 1933 5. StÐA I HEIMSKRINGLA um kalda gang er bergmálaði hvert fótmál mitt. Með sjálfum mér varð eg að játa að þessi einkennilega þrenning sem lifði á eftirlaunum og í hverra umsjá, frúin sem kastalan átti, hafði eftirskilið hann, einnig hinir fornfálegu húsmunir er voru í umsjónar- fólks stofunni, höfðu haft ó- notaleg áhrif á mig, jafnvel þó eg hafði fyrirfram ásett mér að halda góðu jafnvægi. Mér fanst alt þetta tilheyra einhverju öðru löngu liðnu tímabili, tímabili því sem andar og draugar gengu ljósum loga í mannheim- um og þegar vanaleg skynsemi gerði óskynsamlegar athuganir, tímum þeim sem galdrarnornir voru álitnar áreiðanlegar og draugar ómótmælanlegir. Til- veruástand fólks þessa virtist jafnvel draugalegt. Sniðið á föt- um þess líktist því, að hafa átt tilveru sína í fyrir löngu dauð- um heilum, og húsmunimir og það sem prýða átti setustofuna bar draugalegt eikenni fram- liðinna frekar en nútíðarmanna. Gangurinn hvar eg var stadd- ur, var langur og skuggalegur með rakabólum sem glitruðu á veggjunum, kuldalegur eins og það sem er dautt og stirnað. Með sterkum ásetning fleygði eg þannig löguðum hugsunum á bug. Nístandi kuldasúg lagði í gegnum þennan rangala og ljósið blakti á kertinu líkast því að það mundi þá og þegar slokkna, en skuggar mínir nötr- uðu og skulfu við hvert fótmál. Bergmálið ómaði upp og niður hringstigann, og einn skuggi fylgdist fast á hælum mér en annar flúði rétt á undan mér, og hvarf í dimmunni framund- an. Loksins kom eg á breiða áfangatröppu. Um drykklanga stund nam eg þar staðar og hlustaði því mér heyrðist sem þytur stæði af einhverju sem klyfi loftið rétt á eftir mér. Sannfærður um að þögn og kyrð ríkti alstaðar í kringum mig ýtti eg opnri hurðinni með klæðinU yfir og staðnæmdist í hinum þögula gangi þar fyrir innan. Áhrifum þeim sem eg varð fyrir hafði eg tæplega búist við. Tunglsljósið sem skein inn um stóran glugga rétt undan stig- anum lýsti upp með silfruðu endurskini alt umhverfis en um leið gerði skuggana en dimmri. Allir hlutir virtust vera á rétt- um stað og það var eins vel hugsanlegt að þessi staður hefði verið yfirgefin í gær eins og fyrir ári síðan. Það voru kerti í kertistjökunum og ef nokkurt ryk hafði fallið á gólfábreiðum- ar var það svo jafnt að það var ekki sýnilegt við kertisljós. Djúp þögn ríkti yfir öllu. Eg var rétt í þann veginn að halda á- fram en nam snögglega staðar. Nokkrar líkneskjur úr bronsi stóðu á stigapallinum og voru þær að hálfu leyti huldar mér af hornskoti veggjarins, en skuggar þeirra féllu framúr- skarandi greinilega á hina hvítu tigulveggi og líktist því að eitt- hvað lægi þar í leyni reiðubúið að grípa mig. Á augnabliki þrengdi þetta sér á meðvitund mína. Um stund stóð eg sem stirnaður í sömu fótmálum. Svo með hendina í vasanum sem hélt skammbyssunni, gekk eg áfram, og sá þá að þetta var lík- neski af Gamminum og Æsku- manninum (Ganymede and Eagle). Atvik þetta setti taug- ar mínar aftur í samt lag og postulíns Kínin er vaggaði stöð- ugt höfðinu og stóð á útskorna borðinu vakti tæplega eftirtekt mína. Hurðin að Rauða herberginu og tröppurnar upp að því voru í dimmasta horninu. Eg lýsti með kertinu alt í kring um mig til þess að ganga úr skugga um hvað viðhorfði þar sem eg var staddur, áður en eg opnaði hurðinga. Einmitt á þessum stað hafði sá er síðastur gisti Rauða- herbergið fundist örendur, og minning um sögu þessa vakti ó- notalegan forboða í huga mér Eg leit um öxl á dimma brons- líkneskið í tunglsljósinu og ríkti í snatri opnri hurðinni að Rauða herberginu en hafði næmar gætur á framganginum. Eg gekk inn, lokaði hurðinni á eftir mér og sneri lyklinum er stóð í skráargatinu að innan- verður og hélt kertinu upp hátt til að geta sem best kynt mér staðinnu er eg hafði sókst svo eftir að sjá, Rauða herbergi Lorraine kastarans, þar sem hún ungi jarl hafði mist lífið, eða öllu heldur hvar hann hafði fyrst hafið stríðið við dauðann, því hann hafði opnað hurðina og dottið á höfuðið niður tröpp- urnar sem eg var nýtbúinn að ganga upp. Þetta urðu hans endalok, endalokin á dirfð og hugrekki hans að reyna að yfir- stíga hindurvitni og draugasög- ur kastalans, og eftir mínu á- liti, var heilaslag í þessu tilfelli, mjög hentugt til að styrkja og viðhalda orðróminum um reim- leika kastalans. Það voru aðr- ar enn eldri sagnir, sem höfðu loðað við þetta herbergi, sagnir lítt trúanlegar, er áttu rót sína að rekja langar leiðir til baka, sagnir um mjög kjarklitla konu er varð fyrir voveiflegum dauð- daga sem orsákaðist af gam- anleik manns hennar með að hræða hana. Og ef manni varð litið í kring í þessu skuggalega stóra herbergi með þessum dimmu gluggum, mörgu skáp- um og skotum, dökkmórauðu tjöldum og hrikalegu húsmun- um gat maður gjörla gert sér grein fyrir að innan slíkra veggja frjófgaðist vel hindur- vitni og hjátrú myrkvanna. Ljóstíran á kertinu mínu var máttvana til að lýsa upp jafn- stórt herbergi, og náði birta þess ekki yfir herbergið og skildi þar af leiðandi eftir heilt haf úti við um herbergið, af dreyrrauð- um hugsjónum og ráðgátum, — skugga af varðliði myrkvanna er stóðu utanvið hring ljóssins. Og þögulleikinn og einveran ríkti þar yfir öllu. Eg varð að viðurkenna að eitthvað í þessu stóra herbergi hafði óviðfeldin áhrif á mig. Eg reyndi að yfirstíga þessa tilfinn- ingu. Eg ásetti mér því að grannskoða bvern krók og kima þar eg var staddur og með því móti koma í veg fyrir að ímyndunaraflið léti sér hug- kvæmast nokkuð sem í raun og veru ekki átti sér stað og þar með útrýma öllum innbyrluðum hugsjónum. Eftir að hafa full- vissað sjálfan mig um að hafa læst dyrunum, gekk eg í kring í herberginu, og rannsakaði í- tarlega hvern einasta hlut hús- búnaðarins, fletti ábreiðuna af rúminu og opnaði hengiblæjur þess eins langt og þær til létu. Á einum stað virtist taka greini- lega undir við hvert stig en há- vaðinn sem af því varð var svo smár að það virtist frekar auka á þögnina en draga úr henni. Eg lyfti upp gluggablæjunum og horfði eftir að gluggarnir væru læstir. Athygli mitt drógst að smárykkornum er féilu nið- ur. Eg hallaði mér út um gluggan og sá að þetta kom frá aðalstrompi kastalans. Til að halda huganum við mitt ákvarð- aða vísindalega áform gekk eg í kring og bankaði hingað og þangað á veggina til að finna út hvert á þeim væru nokkrar leynidyr, en eg hætti áður en verkihu var lokið, því mér varð litið á andlit mitt í speglinum — öskugrátt. Það voru tveir stórir speglar í herberginu. Hver þeirra hafði tvær útskornar smáhillur og á hverri þeirra stóðu kertisstjakar með kertum í. Eg kveikti á þeim öllum hverju eftir annað. Arin- inn var reiðubúinn til að kveikja í eld og sýndi það ófyrirsjáan- Jega nærgætni umsjónarkon- unnar. Eg kveikti eldinn, til að fyrirbyggja að mér gæti orðið kalt og með því koma í veg fyrir hroll er að mér sótti. Þeg- ar eldurinn tók að brenna sneri eg að honum bakinu til að geta notið sem best varma hans og athugaði herbergið aftur. Eg hafði dregið borð og hæginda stól að eldinum fyrir framan mig og á borðið lagði eg skammbyssuna. Hin nákvæma skoðun herbergisins hafði haft mjög smáan árangur í för með sér; þögnin og myrkrið úti í frá virtist örfa ímyndunaraflið. Brestirnir og hreyfingarnar í eldinum höfðu engin værðará- hrif á ásigkomulag mitt. Skugg- arnir í hinum afskekta enda herbergisins virtust vera að taka á sig einhverja óljósa ólýsan- lega mynd sem svo þægilega getur brugðið fyrir í huganum í kyrð og einveru. Til að ganga úr skugga um að alls ekkert væri þar gekk eg með kertið í hendinni þangað og setti það niður á gólfið og skildi það þar eftir. Þegar hér var komið, virtust taugar mínar vera komnar í allnokkum æsing, jafnvel þó eg fyndi með sjálfum mér enga á- stæðu til þess. Hugsanir mín- ar vóru samt algerlega skýrar. Eg fullvissaði sjálfan mig um að ekkert yfimáttúrlegt gæti komið fyrir og til að stytta mér stundir fór eg í huganum að níma Ijóð út af munnmæla sögum kastalans. Nokkur af þessum erindum mælti eg upp- hátt, en ómurinn af málrómi mínunr var alls ekki viðfeldin. Af sömu ástæðum hætti eg við upphátt samtal við sjálfan mig er stefndi að því að sanna að reinrleikur og draugar væru bara hugarburður. Hugsun mín stefndi þá til þessa þriggja gam- almenna er voru niðri í búsinu og við það efni reyndi eg að halda honum. Þessir gráu og dumbrauðu litir sem hvíldu yfir herberginu, höfðu ógeðfeld áhrif á jafn- vægi mitt. Ljósið í afherberg- inu er blakti og snarkaði af súgnum er stóð af eldinum á aminum, gerði það að verkum að skuggarnir og endurskugga- myndir þeirra blöktu til og frá, sem léku þeir þegjandi dans- leiki. Eg fór að hugsa upp ráð við þessu og datt þá alt í einu í hug vaxkertin er eg hafði séð í ganginum og eftir drykklanga stund gekk eg að dyrunum með kertisljós í’hendinni og opnaði þær. Eg skildi hurðina eftir opna og hélt út í ganginn, sem var upplýstur af tunglsljósi og kom snart til baka með tíu kerti. Kerti þessi setti eg á víð og dreif um herbergið og festi þau á skrautmunina sem dreifð- ir voru víðsvegar um það. Eg kveikti svo á þeim en hagaði því svo til að þau voru helst þar sem skuggarnir höfðu áður hvílt sem þéttastir. Á endanum hepnaðist mér að koma ljósun- um svo fyrir af þessum sautján kertum að það var ekki þuml- ungs 'stór blettur nokkursstað- ar, sem skugga sló á. Eg hugs- aði að þegar draugurinn kæmi, gæti eg varað hann við að falla ekki um þau. Herbergið var nú ágætlega lýst. Það var eitt- hvað skemtilegt og hugðnæmt við að sjá öll þessi litlu ljós vera að smá brenna niður kertin ei* gerði mér grein fyrir að tíminn væri smátt og smátt að líða. En alt um alt, var það eitt- hvað sem eg bjóst við að kæmi fyrir er hvíldi sem martröð yfir mér. Eg hélt á úrinu mínu í hendinni og vaktaði mínútuvís- irinn færast hægt og hægt að miðnætti. Þá, kom eitthvað fyrir í afher- berginu. Eg sá ekki ljósið slokkna, eg bara sá að -þar var aldimt orðið og mér varð -bylt við, líkast því eg hefði séð ein- hvern ókunnugan gest. Hinn myrkvi skuggi var aftur kom- inn á sinn stað. “Ja, hvert í horngrýti,’, sagði eg upphátt, það — þetta hlýtur að vera gustur í Jagi. Eg tók eldspýtu- kassan af borðinu og gekk í hægðum mínum yfir um her- bergið, til að kveikja aftur á kertunum, sem slokknað hafði og eg draup niður að kveikja á þeim. Það vildi ekki kvikna á fyrstu spítunni en um leið og kviknaði á þeirri næstu var sem eitthvað starði á mig á veggnum beint á móti. Ósjálfrátt varð mér litið við og sá eg þá mér til undrunar að dautt var á báð- um kertunum sem stóðu á borð- nu hjá arininum. Eg stóð á fæt- ur í snatri. “Næsta einkenni- legt,” varð mér að orði. “Ætli eg hafi gert þetta sjálfur í hugs- unarleysi?” Eg gekk til baka og kveikti aftur á öðru kertinu, en um leið og eg gerði það sá eg ljósið á kertinu hjá speglinum hallast og slokkna og á sama augna- bliki hitt ljósið sem hjá því var fara á sömu leið. Ljósin dóu líkast því að alt í einu hefði verið gripið með fingrum utan- um kveikinn og ekki eftir skil- ið hvérki reykur eða skar á honum. Á meðan eg stóð gap- andi af undrun yfir þessu slokn- aði ljósið hjá rúminu og skugg- arnir virtust hafa stigið annað stórt skref gagnvart mér. “Þetta dugar ekki!” hrópaði eg en um leið sloknaði á öðru kertinu og svo á hinu, sem stóðu á hillunum. “Hvað gengur á?” kallaði eg og einhver sérkennilega hár tónn heyrðist í röddinni. Um leið og eg slepti orðinu slokn- aði á kertinu hjá klæðaskápn- um og kertinu sem eg hafði ný kveikt á í afherberginu. “Hafið ykkur hæg,” sagði eg, “eg hefi þörf á þessum kertum.” Rödd- in í orðum mínum var sem hún kæmi langt að og ólík mínum eigin málróm. Eg gerði marg- ítrekaðar tilraunir að kveikja á firspýtunum til að geta kveikt aftur á kertunum er stóðu á arinhyllunni en hendur mínar skulfu svo að eg misti hvað eftir annað brennisteinsins á fir- spýtukassanum. Þegar mér loksins hafði hepnast að kveikja á þeim voru bæði kertin í fjær enda herbergisins slokknuð. Me£ einni firspýtu hepnaðist mér að kveikja aftur á stærra kertinu hjá speglinum og einnig kertunum á gólfinu rétt hjá dyr- unum, svo sem snögvast virtist að eg væri að komast á undan þeim sem væri að slökkva á þeim. En áður en varði slökkn- aði á fjórum kertum í einu, sitt í hverju homi herbergisins. í 'hasti kveikti eg en á einni fir- spýtu, en í ráðaleysi stóð eg sem steini lostinn og vissi ekki hvar eg ætti næst að ráðast í að kveikja. Á meðan eg stóð í þessu ráða- leysi var sem ósýnileg hendi þrykti út ljósunum sem stóðu á borðinu. Eg hljóðaði upp af ótta og hljóp yfir í afherbergið og þaðan yfir í hornið hjá glugganum, en á meðan eg kvekti þessi þrjú ljós höfðu -bæði ljósin hjá arininum sloknað á ný. Mér datt nýtt ráð í hug og setti logandi firspýtu á stál- klædda skjalaskápinn er stóð í horninu og greip kertisstjakann með kertinu er tilreyði herberg- inu. Með því að brúka hann í stað þess að kveikja á spýtun- um bjóst eg við að geta orðið á undan, en alt fyrir þetta virt- ist hin stöðuga slökknuarað- ferð vera að ná yfirráðunum og skuggarnir sem eg stríddi á móti og óttaðist komust stig af stígi nær mér, fyrst á þessa hlið og svo á hina. Eg var að verða óður yfir hættunni af hinu komandi myrkri er þrengd- ist kringum mig og alt sjálfs- vald var óðum á förum. Laf- móður stökk eg frá kerti til kertis í þeirri vonleysis von um að geta yfirbugað hið óum- flýjanlega myrkravald er eg var í bardaga við. Eg fekk skeinu á lærið af því að reka mig á borðið; eg hrasaði yfir stól sem eg fleygði út í loftið og eg greip í dúkinn á borðinu og dró hann af því um leið og eg féll á gólfið. Eg misti haldið á kertastjakanum, en þreif undir eins annan um leið og eg komst á fætur. Ljós- ið sloknaði á honum í sama vetfangi og eg kipti honum til mín af borðinu, líklega af gust- inum sem kom af hraðanum sem eg'var í, en um leið dó á síðustu tveim Ijósunum, það var samt birta í henberginu, birtan af eldinum sem sló rauðum bjarma á loftið og hindraði myrkrið frá því að umkringa mig algerlega. Eldurinn! Já auðvitað eldurinn! Það hlaut að vera hægurinn hjá að pota kertunum inn um grindina og kveikja þar. Eg sneri á leið þangað sem logarnir dönsuðu á milli hálf- brunna kolanna og slóu rauð- um bjarma á húsmunina. Eg gekk tvö stig í áttina að arinin um, en án nokkurs fyrirvara og alt í einu minkuðu logarnir og hurfu og bjarmi þeirra var horfinn, og um leið og eg reyndi að íta kertinu gegnum grindurnar, skall myrkrið yfir mig, líkast því að augu mín hefði lokast og rejo-ðist utan- um mig og eg var sem hnept- ur römmum fangbrögðum. Öll sjón vár horfin og um leið alt sjálfsvald. Og það var ekki einungis þetta voðalega myrkur sem hremdi mig heldur einnig var eg gripinn. af óstöðvandi ótta. Kertið féll úr greipum mér. Eg sló út báðum höndum líkast því eg vildi berja dimm- una á burt og eg hrópaði af öll- um mætti einusinni, tvisvar sinnum, ÞRISVAR SINNUM. Eg hlýt einhvernveginn að hafa brölt á fætur, því eg man að tunglskinslýsti gangurinn kom alt í einu í huga mér og með höfuðið framundan mér og -höndurnar utanum andlitið setti eg á sprett í áttina að dyrun- um. En því miður var eg búinn að gleyma hvar dyrnar voru og rak eg mig því hroðalega á rúmgaflinn. Eg skjögraði til baka og sneri við, en annað- hvort var það eitthvað sem hitti mig með heljarafli eða eg rak mig á eitthvað af þessum þungl- amalegu húsmunum er þar voru. Mig rámar í að hafa ver- ið barinn hingað og þangað í myrkrinu og að síðustu hafa fengið heljar högg á ennið, og einnig þeirri hryllilegu tilfinn- ingu er gagntók mig er eg var að reyna til að verjast falli og koma undir mig fótunum. Þetta fanst mér ætla aldrei að líða, en svo hefi eg hlotið að missa alla meðvitund því eg man ekk- ert eftir þetta.--------- Eg opnaði augun og það var dagsljós. Höfuðið á mér var alt í reifum og maðurinn með visnu hendina stóð yfir mér og vakt- aði hvern drátt í andliti mínu. Eg leit alt í kringum mig og reyndi að átta mig á hvað hefði skeð og um stund var mér um megn að geta það. Eg skotraði augunum yfir í hornið og sá þar gömlu konuna, ekki sitjandi og starandi, ekki lengur sem ein- hverja ófreskju. Hún var að hella nokkrum dropum af ein- hverju meðali úr litlu bláu glasi í drykkjar staup. “Hvar er eg staddur”, mælti eg, “mér finst eg kannast við ykkur, en samt get eg ekki komið því fyrir mig hver þið eruð.” s Þau sögðu mér þá hvað fyrir hafði komið, sögðu mér um Rauða draugaherbergið og eg hlustaði á undrandi. “Við fund- um þig í dögun,” sagði sá með visnu hendina, “og enni þitt og varir þínar vóru blóði drifnar.” Með sjálfum mér furðaði eg mig á að hafa nokkurntíma haft ímugust á fólki þessu. í dags- birtunní virtist mér þessi þrjú gamalmenni vera bara eins og fólk vanalega gerist. Maður- inn með augnaskýluna hafði hneigt höfuðið á bringu niður, líkt og hann væri í svefni. Það tók mig langan tíma að geta áttað mig á hvað fyrir mig hafði komið. “Trúir þú því nú,” sagði maðurinn með visnu hendina, “að að það sé reimt í herberginu?” Hann tal- aði nú til miín sem vinur er hann væri að hughreysta, en ekki sem óvelkomins gests. “Já,” svaraði eg, “Það er reimt í herberginu.” “Og þú hefir séð það með eigin augum, en við sem höf- um átt hér heima alla æfi höf- um aldrei litið það. Við höf- um aldrei þorað það. Segðu okkur er það gamli jarlinn sem-----?” “Nei, það er ekki,” svaraði eg. “Eg sagði þér þetta,” svaraði gamla konan með staupið í hendinni, það er auðvitað vesal- ings unga greifinnan sem varð svo hrædd að-----” “Það er alls ekki,” svaraði eg, “það er hvorki draugur af jarli eða draugur að greifinnu í herberginu, það er enginn draugur þar, en annað marg- falt verra ,eitthvað óáþreifan- legt og ósýnilegt----” “Þá hvað ?” “Það allra versta sem til er, og sem getur ásótt mannlega veru og í fátækt sinnar nektar er kallaður Ótti! — ótti sem hvorki gefur af sér ljós eða hljóð og sem útilokar alla vits- muni, sem myrkvar deyfir og umkringir. Hann elti mig inn ganginn og barðist við mig inni í herberginu-----” Eg þagnaði snögglega. Það varð stundarþögn. Eg þreifaði með hendinni upp að reifunum. “Ljósin slökknuðu hvert af öðru og eg flúði.” ----- Maðurinn með skýluna lagði -höfuðið undir flatt svo hann gæti séð mig um leið og hann sagði: “Það er rétt sem það er. Eg vissi að það var það. Vald Myrkvanna! Hugsa sér að setja slíka formæling á nokkurt heimili. Það varir óendanlega. Þú ósjálfrátt finnur til þess á hverjum degi jafnvel á hinum bjartasta sumardegi, það hylst í fellingum blæjanna, fylgir þér á eftir hvert sem þú flýrð. í rökkrinu skríður það eftir göng- unum og fylgir þér, svo þú vogar ekki að snúa um hæl, það er rétt sem þú hefir sagt. Ótt- in ríkir í þessu herbergi Dimm- ur Ótti .... og þar mun hann hafa hæli sitt eins lengi og þetta syndarinnar bús stendur. Lauslega þýtt. B. P. ROOSEVELT FORSETI fæst ekki líftrygður Það er almenn skoðun f Bandaríkjunum að Coolidge fyr- verandi forseti hafi dáið fyrir örlög fram, og orsökin sé sú, að hann hafi ofreynt sig meðan hann var forseti. — Það er versta og mest heilsuspillandi staða sem til er í Bandaríkjunum, segja amer- ísku blöðin. Og vegna þessa hafa lífsábyrgðarfélögin tekið sig saman um það að líftryggja ekki forseta Bandaríkjanna framvegis. Þetta bitnar fyrst á Franklin D. Roosevelt. Prestur hafði gert boð á und- an sér að hann ætlaði að hús- vitja í barnaskóla. Kennarinn skrifaði þá upp þær spurningar sem hann ætlaði að leggja fyrir börnin, og lét hvert barn læra svar við þeirri spurningu sem fyrir það yrði lögð eftir röð. — En nú vildi svo óheppilíga til, þega prestur húsvitjaði, að einn dregurinn var veikur. Prestur spurði þann næsta; — Hvernig byrjar trúarjátn- ingin? — Eg trúi á Jesúm Krist — byrjaði drengur. — Nei, barnið mitt, þú trúir á gúð föður. — Nei, það geri eg ekkl. Hann sem trúir á guð föður, er veikur í dag. — Lesb. Mbl.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.