Heimskringla - 06.09.1933, Síða 5
WINNIPEG, 6. SEPT. 1933.
HEIMSKRINGLA
t
5. SlÐA.
hversstaðar í stefnu milli Langa
gilseggjar og Blátinds, því að
þangað var gosmökkinn að sjá.”
Svo sýndi Oddur mér á
landbréfi hvar hann hygði eld-
gíginn vera, og seinna kom í
ljós, að hann hafði alveg rétt
fyrir sér.
“Vér vitum annars ekkert um
það hvernig eldgígurinn er, því
að enginn maður hefir síðan
komið á þær slóðir. Enginn
veit hverjar breytingar hafa þar
orðið á landslagi.”
Þetta var nóg — eg var ein-
ráðinn í því að fara þangað. —
Eg hafði enga eirð í mínum
beinum, og vildi komast sem
fyrst á stað. Og hefði eitthvað
hamlað því, að eg gæti leitað
uppi eldgíginn í sumar, þá hefði
eg komið aftur næsta sumar.
Það fann eg á mér.
Morguninn eftir vorum við
ferðbúnir. Oddur bauðst til að
fylgja mér. Það var 26. júní.
— Þetta var erfitt ferðalag,
margra klukkustunda hörð bar-
átta við erfiðleika náttúrunnar.
Pyrstu 10 kílómetrana, fram í
Bæjarstaðaskóg, gátum við far-
ið ríðandi, en þá tóku við bratt-
ar hlíðar, svo að ekki var hægt
að koma hestunum við. —
Skildum við þá eftir í kofa
nokkurum, sem þar er, og lögð-
um á brattann. Þar rann nið-
ur heitur lækur, fyrsta merkið
um jarðhitann, sem ólgar undir
jöklinum. — Það var glampandi
sólskin, og var engu líkara en
alt legðist á eitt með að gera
mér ferðalagið sem skemtileg-
ast. En hitinn! Hann ætlaði
að steikja okkur og það lá við
að við brendum okkur á fingr-
um, ef við snertum á grjótinu.
Það var enginn hægðarleikur
að kölngrast þarna upp í lausa-
grjótinu. Altaf hrapaði undan
fæti, og ekki mátti maður stað-
næmast augnablik, því að þá
hefði maður farið fótskriðu nið-
ur brattann og hrapað fram af
hengiflugi. Undan hverju spori
rann malarskriða og kastaðist
fram af klettabrúninni. Svitinn
streymdi af enni niður í augun
og hálfblindaði mann. Hjartað
barðist ákaft og það sogaði í
okkur af mæði. Hvað eftir ann-
að var eg kominn að því að
gefast upp. En þá varð mér
litið upp á brúnina og þá hugs-
aði eg með mér: “Hinum megin
við hana er hið ókunna töfra-
land.” Það gaf mér nýjan þrótt.
1 fimm klukkustundir stóð
þetta ferðalag, en þá vorum við
komnir upp á hina 1069 metra
háu Langagilsegg, og fyrir fót-
um okkar lá gígurinn og um-
hverfi hans. Loftið var svo
hreint og tært og það var svo
bjart að við gátum hæglega
glöggvað okkur á öllu. Fjarst
var hin kúpta brún Vatnajökuls.
Til vinstri — í eitthvað 20 km.
fjarlægð — hið jökulkrýnda
Grænafjall, og þar blasti einnig
við hið bláa Grænavatn. Til
hægri voru hamraveggir Kjósa-
botns.
Eg dró upp landabréfið, sem
dönsku mælingamennirnir
gerðu af þessu svæði árið 1905
°g athugaði hverjar breytingar
hafa orðið á landslaginu. Yst á
eitthvað 2 km. löngum fjallrana
er eldgígurinn. Hann er nú
fullur af margsprungnum ís, en
glögglega má þó greina hina
hringmynduðu lögun hans, því
að ísinn þar hefir annan lit en
jökullinn umhverfis. Gígurinn
mun vera um 200 m. í þvermál.
Alt um kring er kolsvart, en
ekki gat eg komist að því hvort
það mundi vera vegna ösku.
Það er furðulegt hvað alt hef-
ir breyst hér við gosið. Á 10—
15 ferkílómetra svæði er komið
alveg nýtt landsjag. Stórt jökul-
vatn er algerlega horfið og þar
er nú aðeins jökull. Á öðrum
stað hefir myndast mjög vog-
skorið vatn. Út úr Skeiðarár-
jöki hefir myndast 1 km. lang-
ur og 2 J/2 km. breifhir jökul-
rani, sem gengur til austurs.
Fjöll, sem á kortmu eiga að
vera þakin jökli og sajó, eru nú
alauð.
Eg gerði þarna leiðréttingar
við kortið og tók margar mynd-
ir af umhverfinu.
Við vorum mjög ánægðir út
af því, að hafa náð tamarki
okkar, og hafa fengið gott veð-
ur, að við gátum séð glögglega
allar þær breytingar, *em þarna
haaf orðið. Hlóðum við nú
vörðu, skrifuðum nöfn okkar á
miða, létum hann í flösku og
stungum flöskunni í vörðuna.
Síðan gengum við á Blátind.
— Hann er 1195 metra hár.
Eftir það fórum við að hugsa til
heimferðar. Ferðalagið niður
eftir var mjög skemtilegt. Við
rendum okkur blátt áfram nið-
ur hjarnskaflana. Oddur fór á
undan, og gætti þess vel að
sneiða hjá jökulsprungum. Svo
stakk hann broddstafnum sín-
um alt í einu í hjarnið og hékk
á honum. Veifaði hann svo til
mín að nú mætti eg koma. Eg
lagðist flatur á hjarnið og brun-
aði niður. Eg hafði eki ann-
ars að gæta en halda réttri
stefnu á Odd, og fara ekki fram
af hengifluginu í staðinn. Alt
gekk vel og Oddur greip mig á
fluginu. Þannig gekk þetta
hvað eftir annað.
Að lokum komumst við heim
til Skaftafells og vorum þá dauð
uppgefnir. En lengi störðum
við á fjallabrúnina, sem við
höfðum gengið á — ekki með
eftirvæntingu, því að nú viss-
um v*ð hvað þar var á bak við.
—Lesb. Mbl.
FRA ÍSLANDI
Frh. frá 1. bls.
Skríða féll nýverið á bæinn
Jökul í Saurbæjarhreppi, skemdi
mikið af bæjarhúsunum og eyði
lagði tún og engjar að mestu,
svo talið er að jörðin sé óbyggi-
leg upp frá þessu. — Eitthvað
af kindum lenti í skriðunni, en
óvíst hve margar. — Fólkið hef-
ir yfirgefið bæinn.
* * *
Páll Torfason
frá Flateyri átti 75 ára afmæli
hinn 31. júlí. Hann dvelur nú í
Kaupmannahöfn, og í tilefni af
afmælinu flutti “Politiken”
grein um hann daginn áður og
hét greinin “Merkilegur íslend-
ingur, sem lagði drög að stofn-
un íslandsbanka og hinu fyrsta
ríkisláni íslands”. Greininni
fylgir merkileg mynd af Páli.
* * *
Þórður Þorbjarnarson
læknis frá Bíldudal, er nýlega
kominn hingað heim frá Ame-
ríku. Hann hefir stundað nám
við fiskiðnfræðaháskólann í
Halifax, hinn eina háskóla
þeirra tegundar í heiminum.
Lauk hann burtfararprófi þaðan
í vor með ágætum vitnisburði.
Hann starfar fyirr Fiskifélag ís-
lands í sumar, en í haust fer
hann til Engla'nds til farmhalds-
náms.
* * *
Sigurjón Egilsson
frá Laxamýri fór utan í fyrra
sumar, gekk á úrsmiðaskólann
í “Teknolokisk Institut” í Kaup-
mannahöfn og lauk þar prófi í
sumar með ágætiseinkunn. Und
irbúningsmentun sína hafði Sig-
urjón fengið hjá Stefáni úrsmið
Thorarensen í Reykjavik. í
lok námsins skilaði Signrjón
“sveinstykki” eins og venja er
til og var lokið á það miklu
lofsorði. Þó var heiður hans
gerður mestur með því að
“Haandverkerforeningen” dan-
ska sæmdi hann hinni stóru
slifurmedalíu sinni og fylgdi
skrautprentað bréf með, undir-
ritað af stjórn félagsins. Var
Sigurjóni boðið á árshátíð fé-
lagsins og var krónprinsinn þar
heiðursforseti og afhenti hann
Sigurjóni medalíuna og bréfið.
* * *
4 andarnefjur gengu á grunn
11. ágúst innair við Krossanes
í Eyjafirði og náðust allar. —
Eru þær gríðarstórar qg munu
vigta um 5 tonn hver.
MINNI ÍSLANDS
Flutt á fslendingadegi í Wynyard, Sask. 2 ág.
1933.
“Hann einbúi gnæfir svo langt yfir iágt
Að lyngtætlur stara’ á hann hissa,
Og kjarrviðinn sundlar að klifra svo hátt
Og klettablóm táfestu missa.
Þó kalt hljóti nepjan að næða hans tind
Svo nakinn, hann hopar þó hvergi,
Hann stendur sem hreystinnar heilaga mynd
Og hreinskilnin—klöppuð úr bergi.”
(St. G. St.)
I.
Að minnast þín ísland er alvanalegt
í orði, sem frumsamið stóð:
Að éta það eftir, og yrkja það upp
Og eigna sér hálfstolið ljóð,
Eg vil ekki byrja að braga það stef
Og byrla þér hugsjóna-tál,
Og því verður umgerð um erindið þitt
Öll; óbrotin háttur og mál.
II.
Eg byrja þar sögu er sé eg þig fyrst
í sjónum á kafi og ferð—
Og þorskur og ýsa á afrétti var
—lllhveli og hákarla mergð.
Mig furðaði stórum hvað fórstu þér hægt
Á förinni hafinu í—:
Því hreinsunareldurinn hafði þig brent
Og hlaupið var upp, undan því.
Og þorskur og ýsa urðu’ áhyggjufull
—Illhveli og hákarl, ei neitt—
En sléttbakur kvaddi og kom sér á burt
Úr kreppunni.—Fanst nokkuð heitt.—
En hákarlinn át það sem heima til félst,
Hann hafði’ ekki fyr étið steikt,—
En fanst þetta afbrigði aðdáanlegt,
Og ýsan var fyrirtak rekyt.—
Það hlýnaði í sjónum er hnjúkana þú
Og hálsana upp hafðir rétt,
Og hlíðarnar fæddust:—Hver einasta ein
Var ómyndug hraunsteypa grett.
Jt —T ’
' í ■ . .V.
Og þetta var áður en Örkin var bygð
—En alt var þó hafið sem blóð—
Og hákarlinn dauður; og illhvelin eins
Öll afmáð, sem stórsyndug þjóð.
III.
Að hákarlinn þrifist ei þaðan í frá
Að þverneita kalla eg synd—
Því þú hefir margsinnis vorðið hans vör.
—Á veiðum í annari mynd.—
IV.
Eg hleyp yfir tímann er hlýloftið milt
Með hásumars regnskúr og sól,
Sem tók til að búa út brúðarskart þitt,
Hinn blómsáða grænslegna kjól.
Og eins yfir vetrarins valdið, á því
Að vefa þér skautbúnings lín.
Þú manst þegar útlagir afburðamenn—,
Og óþokkar flúðu til þín?
Við könnumst við söguna síðan þann dag—
Og sjáum að margt er þar gott!
“Hann einbúi gnæfir svo langt yfir lágt”
Að lífið ber framfara vott.
Jak. J. Norman.
verða samkvæmishæfir, en hér
Yale verða stúdentar að gal-
andi bjánum,
neðan í því.
er þeir fá sér
FriSun.
Norðmenn hafa ákveðið
friða alla erni þar í landi.
að
Fimmburar.
ítölsk blöð skýra frá því, að í-
tölsk kona hafi eignast fimm-
bura. Mussolini tók sér ferð á
hendur til að óska foreldrunum
til hamingju.
* * *
190 þjóðflokkar í Rússlandi.
Nýlega fór fram manntal í
Rússlandi og var þá um leið
gert yfirlit um það, hve marg-
ir þjóðflokkar væri til í landinu.
Megin hluti þjóðarinnar er
Rússar, eða 52%, Ukrainemenn
eru 22%, Hvítrússar 3%, Gyð-
ingar 1.7% o. s. frv. En alls
eru taldir í ríkinu 190 þjóð-
flokkar. Eru sumir fámennir
t. d. í einum flokknum er að-
eins talinn einn maður og heit-
ir það kyn Buduk.
* * *
Manna kynbætur.
Berlín 26. júlí.
Birt hafa verið í málgagni
stjórnarinnar ný lög, sem ríkis-
stjórnin hefir látið ganga í
gildi. Samkvæmt þeim er
heimildi — ef vísindin telja gild-
ar ástæður fyirr hendi, — að
gera menn ófrjóva. Til dæmis
ef fullvíst þykir að afkomend-
urnir muni taka í erfðir hættu-
lega sjúkdóma og tilhneigingar,
svo sem geðveiki, blindu, heyrn-
arleysi, ofdrykkjuhneigð o. s.
frv.
EITT FRÍMERKI
fyrir 53,160 krónur.
HITT OG ÞETTA
Minnismerki
hefir verið reist á Mount Grey-
lock, hæsta fjalli ríkisins Massa-
chusetts, í Bandaríkjunum. Var
það reist til minningar um her
menn frá Massachusetts, sem
féllu í heimsstyjöldinni. Minn-
ismerkið er 70 fet á hæð og sést
úr fimm ríkjum.
* * *
Helgoland.
Á eins árs stjórnarafmæli
Hitlers á að skíra eyna Helgo-
land upp og nafna hana Hitlers-
ey. Þar á að reisa voldugan
vita. —
* * *
Stærst í heimi.
í Strassburg er verið að
smíða kirkjuúr fyrir dómkirkj-
una í Messina. Úrskífan verður
30 metrar í þvermál.
* * *
Lítt læsileg handrit
eru nú lesin á þann hátt, að
tekrtar eru myndir af þeim með
“infra”-rauðum geislum. Þá
kemur letrið í ljós.
* * *
Áhrif víns.
í London var nýlega selt á
uppboði hið fræga 1-penny frí-
merki frá Mauritius. Ungur
frímerkjakaupmaður keypti það
fyrir 2400 sterlingspund. Það
er kunnugt um þennan mann,
að hann kaupir frímerki fyrir
Georg Bretakonung.
Kennari einn við Yale háskól-
ann komst svo að orði í ræðu
til stúdentanna: Frakkar verða
skrafhreifnari við vín, Þjóðverj-
ar syngja og spila, Englendingar i frímerki frá Mauritius.
Eins Penny frímerkið frá
Mauritius er hið dýrasta frímerki
í heimi, og 20 miijónir frí-
merkjasafnara eiga ekki heitari
ósk en þá að eignast það.
Það þótti því viðburður, er
frímerki þetta var sett á upp-
boð í London. Eg hefi vart lif-
að skemtilegri stund heldur en
á því uppboði. Þangað voru
komnir frímerkjakaupmenn og
frímerkjasafnendur frá 17 þjóð-
um. Uppboðið fór fram í hinum
fornfræga uppboðssal Plum-
ridge-frímerkjafirma á Chan-
cery Lane.
Frímerkið var eign H. P.
Manus, stærsta hollenska tó-
baksformans, og hafði Manus á
sínum tíma keypt það í París
fyrir 11,000 gullpund. — Svo dó
hann, en sonur hans setti allar
eigur hans á uppboð, þar á
meðal þetta fræga og dýrmæta
Hinn aldraði uppboðshaldari
gekk upp á pall; var hann kjól-
klæddur og ávarpaði aðkomu-
menn með ræðu áður en upp-
boðið hófst. Hann gat þess, að
ekki væri til í heiminum, svo
að menn vissi, fleiri en fimm
frímerki af þessari tegund. Ei6t
þeirra ætti Georg Bretakonung-
ur, annað væri í hinu svonefnda
Tamplingsafni í British Mus-
eum, hið þriðja væri í eigu hluta
félags í Ameríku, hið fjórða
væri vart teljandi því að það
væri skemt, en þetta væri fimta
frímerkið og líklegast best af
þeim öllum.
Svo hófst uppboðið. í saln-
um var dauðaþögn, svo að
heyra hefði mátt flugu anda.
Aðstoðarmaður uppboðshaldara
hélt frímerkinu hátt á loft og
var það límt á fallegt spjald.
Til hliðar við það á spjaldinu
var stór ljósmynd af því, og
vottorð hins konunglega breska
frímerkjasafnarafélags um það
að frímerkið væri egta og eins
ljósmyndin, og að um þetta frí-
merki hefði verið ritaðar hundr-
að bækur, og sérstakar ritgerðir
í þúsundir frímerkjaverðskráa.
Uppboðshaldari bað menn þá
að gera boð í frímerkið. Hinn
kunni danski frímerkjasafnari,
C. Nissen mælti lágt:
—Sjö hundruð sterlingspund.
Rétt hjá honum sat ungur
Englendingur — hann getur
ekki veríð nema 35 ára gamall
— og hann kallaði þegar hárri
röddu:
— Átta hundruð sterlings-
pund.
Svo hækkuðu þeir tilboðin
þangað til komin voru 2000
sterlingspund. Þá varð hlé á,
og allir stóðu á öndinni. Svo
fóru keppinautarnir að hækka
sig, en nú voru það 50 punda
yfirboð. Að lokum spyr upp-
boðshaldari hvort enginn bjóði
betur . Hann trúir ekki sínum
eigin eyrum. Á þetta fágæta
frímerki að fara fyrir svo lágt
verð? En þegar komin voru
2400 sterlingspund, slær hann
þó hæstbjóðanda frímerkið. Þá
var eins og öllum létti og menn
keptust um að óska hinum unga
kaupanda til hamingju með
þessi reifarakaup. Hann er
brosandi út undir eyru af á-
nægju. Þetta var enginn annar
en Thomas Allen, sem kaupir
frímerki fyrir safn Bretakon-
ungs.-------
Það er heimskreppunni að
kenna að ekki hefir fengist
meira fyrir frímerkið, þennan
litla litaða snepil, sem límdur er
á óhreint umslag, og svo ósé-
legur, að ef umslagið með hon-
um lægi einhvers staðar á götu,
þá myndi engum manni detta í
hug að gera sér það ómak að
beygja sig til þess að taka það
upp.
Þá er boðið upp 2 penny frí-
merki frá Mauritius, en menn
eru ekki sólgnir í það, enda er
það ekki jafn sjaldgæft og hefir
lítið gildi nema sami sé eigandi
Frh. á 8. bls.
Hæsti maður í heimi
heitir van Albert, og er Hollend-
ingur. Hann er 264 sentimetrar
á hæð. Hann fe.rðast um og
sýnir sig. Mágur hans er í fylgd
með honum. Hann er nákvæm-
lega 2 metrum lægri eða 64
sentimetrar.
* H- *
Skýrslur
er hægt að fá um marga hluti.
Hagstofudeild í París hefir
reiknað út, að í fyrirtnyndar-
hjónabandi kyssi konan mann
sinn 72,000 kossa á 20 árum.
* * *
Piparsveinaskattur
er lögleiddur í Þýzkalandi. Mæl-
ist vel fyrir hjá þeim sem fjöl-
skyldumenn eru.
* * *
Miðstöð þjóðanna.
Svon nefnist talsímastöð í
London. Þaðan er talsíma-
samband út um heiminn. Mælt
er að þar sé hægt að fá tal-
símasamband við 32 miljónir
símnetenda.
AUKA MÍLUR
■
AN
AUKA KOSTNADAR
SÖKUM ÞESS AÐ ÞÆR ENDAST LENGUR
Seiberling “Special Service” Bílgjarðir
En Kosta Minna En Vanalegar Bilgjarðir
Seiberling Sales & Service
SIS PORTACE AVENUE SIMI 35 398