Alþýðublaðið - 08.05.1960, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 08.05.1960, Blaðsíða 4
du fy 6100 pund TEIKNARI Istanbul-blaðsins Milliyet sýnir að tilraunir stjórnmálamanna til þess !að ganga af j>rentfrelsinu dauðu bera þveröfugan árangur. Myndin, sýnir enn fremur hve hugrakkir margir ifiyrkneskir blaðamenn eru í baráttu gegn hálfeinræði stjórnarinnar. Tyrkir berjast viö prentfrelsiö Í3TÖÐUGT berast nýjar frétt- ir af mótmælafundum og ó- ■eirðum í Tyrklandi. í flestum fítærri borgum landsins eru inerlög í gildi. Fyrir nokkrum vikum bannaði ríkisstjórnin alla pólitíska starfsemi í þrjá xnánuði og jafnframt hefur enn verið hert á eftirliti með blöðum og fréttastofum. Það er ekki sízt ritskoðunin, sem ’ -stúdentar og stjórnarandstæð- íngar í Tyrklandi eru að mót- mæla. Síðan Adnan Menderes for- eætisráðherra kom til valda 1950, eftir einar af fáum heið- arlegum kosningum í Tyrk- iandi, hafa rúmlega 1000 tyrk neskir ritstjó.rar og blaðamenn verið dæmdir fyrir „gagnrýni á stjórnina“, „móðgun við Tvrkland“ eða annað því um Mkt og flestir hinna dæmdu hafa verið fangelsaðir. adgerðir Alþjóðlega blaðastofnunin í "Zu rich hefur undanfarið ár mánaðarlega sent út skýrslu ™ þá blaðamenn, sem dæmd- ir hafa verið í Tyrklandi. í október 1958 mótmælti stofn- unin aðgerðum stjórnarinnar gegn blöðunum, en auðvitað án árangurs. í desember síðast liðnum valdi stofnunin aðra aðferð. Hún skoraði á blöð um heim allan að fordæma aðgerð ir tyrknesku stjórnarinnar og gaf þessi aðferð góða raun. Flest leiðandi blöð heimsins andmæltu takmörkun ritfrels- isins. í Ankara var fyrirskip- að að ekkert tyrkneskt blað mætti birta skýrslur blaða- -stofnunarinnar. En það hug- rekki, sem leitt hefur til þess, að í fangelsum Tyrklands er a.m.k. einn blaðamaður frá hverju blaði, birtist í því, að flest tyrknesku blöðin birtu I skýrslurnar og sum höfðu . -eyðu þar, sem birta átti bann .• stiórnarinnar. Ríkisstjórnin mótmælti harðlega aðgerðum hlaðastofnunarinnar, IPI, og f.yrir forvitnissakir skulu hér ibirtar glefsur úr einij stuðn- ingsblaði stjórnarinnar um IPI. Greinin ber fyrirsögnina „Hvað ert þú, IPI?“ Svikahreyfing, grundvöll- uð af þremur eða fjórum mönnum, sem hegða sér eins og hundar, . . . þú skalt vita, að ef þú stingur hundshaus þínum innfyrir landamæri Tyrklands, verður hann af höggvinn . . . Ef þú ert að reyna að beita fjárkúgun skulum við segja þér, hvað þú færð. Við hrækj um í andlitið á þér. DÓMAR Listinn yfir dæmda blaða- menn í Tyrklandi er leiði-. gjörn lesning. Þeir eru svo allir dæmdir fyrir hið sama og allir hafa þeir skrifað eitt- hvað, sem kemur sér illa fvrir stjórnina. Hér eru nokkur dæmi frá síðustu mánuðum: Margir ritstjórar og nokkr- ir blaðamenn voru dæmdir fyrir að hafa birt glefsur úr grein um Tyrkland, sem birt- ist í bandaríska blaðinu Indi- anapolis Star. Einhver sann- leikskorn hafa sennilega verið í þeirri grein. Mörg blöð birtu frásagnir af því, að einn af leiðtogum ÞESSI teikning er úr Ankara- blaðinu Ulus. Fangavörðurinn segir við fangelsisstjórann: „Fangarnir í klefa 10 hiðja um leyfi til þess að gefa út blað.“ inn á gullstól af hrifnum sim Gulek, hefði verið bor- stjórnarandstöðunnar, Ka- stuðningsmönnum sínum í bæ einum í Tyrklandi. Stjórnin heimtaði, að þetta yrði „leiðrétt“. Daginn eftir birtu flest blöðin „leiðrétt- ingu“ stjórnarinnar og mynd af Gulek, sem sannaði, að blöðin höfðu sagt rétt frá mótttökunum. Dómar eru enn ekki fallnir í þessu máli. 13, janúar sl. var ristjóri í Zongulak dæmdur í eins árs og f jörutíu daga fangelsi fyr- ir að móðga borgarstjórann og hjón, sem gefa út blað í Mersin, voru dæmd í 10 mán aða fangelsi fyrir sömu sak- ir. STÆRSTA MÁLIÐ Það mál, sem mesta athygli hefur vakið undanfarna mán- uði, er dómurinn yfir the grand old man tyrkneskra blaðamanna, hinum 72 ára rit- stjóra Ahned Emin Yalman, útgefanda blaðsins Vatan. Hann var dæmdur í 15 mán- aða fangelsi fyrir að birta fyrr nefnda grein úr Indianapolis^ Star. 7. marz var hann settur íl fangelsi í Istanbul. Fjöldi blaðamanna fylgdi lionum að fangelsishliðinu og af- henti hann þeim skriflega yfirlýsingu frá læknum sín- um um það, að hann hefði of háan blóðþrýsting og gengi með hjartasjúkdóm. „Ef ég dey í fangelsinu væri það hæfilegur endir á lífsbaráttu minni fyrir frelsinu. Eg hef enn ekk; misst trúna á fram- tíð Tyrklands“. í fangelsinu fögnuðu margir samstarfs- menn hans honurn. Þegar lesinn er listinn yfir dómarana yfir blaðamönnum verður ljóst, að í mörgum til- fellum er um að ræða viljandi brot á hinum ólýðræðislegu prentfrelsislögum . . . til þess eins að sannleikurinn fái að koma í ljós. Það er ótrúlega fjölmennur hópur blaðamanna og ritstjóra í Tyrklandi. sem þorir að berjast gegn kúgun- inni. Það er ekki síza sú stað- TOGARAR Bæjarútgerðar Reykjavíkur seldu afla sinn erlendis í aprílmánuði, samtals 720 tonn fyrir 56.100 sterlings- pund í 4 veiðiferðum. í mán- uðinum lönduðu togarar út- gerðarinnar samtals 1839 tonn- um í Reykjavík, þar af 262 tonnum af saltfiski. Samtals lönduðu togarar BÚR því 2668 tonnum í aprílmánuði. Sölur erlendis voru sem hér segir: B.v. Hallveig Fróðadótt- ir 177 tonn fyrir 16.912 pund. B.v. Jón Þorláksson 180 tonn fyrir 16,545 pund. B.v. Pétur Halldórsson 158 tonn fyrir 11. 604 pund. B.v. Þorkell máni 205 tonn fyrir 11.039 pund. í Reykjavík lönduðu þessir togarar: B.v. Ingólfur Arnar- son 227 tonn, B.v. Skúli Magn- ússon 451 tonn, B.v. Jón Þor- láksson 101 tonn, B.v. Þor- steinn Ingólfsson 341 tonn, B.v. Pétur Halldórsson 254 tonn, B.v. Þormóður goði 440 tonn og B.v. Þorkell máni 25 tonn. B.v. Pétur Halldórsson land- aði í Reykjavík 36 tonnum, er ekki var leyft að selja í Eng- landi, þar eð kvóti var fullur. Þá landaði B.v. Þorkell máni 25 tonnum, er hann aflaði á leið heim úr söluferð. Þessar tölur eru báðar teknar með aðl ofan. Nú stunda fjórir togarai Bæjarútgerðar Reykjavíkur ís- fiskveiðar, þrír veiða í salt, en, einn er á leið til viðgerðar f Þýzkalandi. Sumardvalar- heimilið að Jarðri í SUMAR verður starfrækt að Jaðri sumardvalarheimilí fyrir börn. Starfsemin hefst um miðjan næsta mánuð, og verður henni hagað með líkia sniði og undanfarin ár. Dval- argjald verður það sama og undanfarin ár. Til þess að mæta auknuna kostnaði við reksturinn án þess að grípa til hækkunar vist- gjalda, hefur stjórn sumar- starfsins ákveðið að efna til merkjasölu á morgun. Merkin verða afgreidd til sölu í dag» í Góðtemplarahúsinu frá kl. 10 fyrir hádegi. Mikill glímuáhugi - - - Framhald af 11. síðu. úrslit þau að Eysteinn Þorvalds son vann. Annar varð Svavar Guðmundsson og þriðji Grétar Sigurðsson. í drengj aflokkunum urðu úr- slit þessi: Drengir 16—19 ára: Jón Helgason 1 vinn. Njörður Jónsson 0 — |Drengir 14—16 ára: Gunnar Ingvarsson 3 ■— Jóhann Ei'narsson 2 — Jón Sveinsson 1 — Drengir 13 ára: Sveinn Leósson 2 ■— Jósep Hólmjárnss. 1 — Ragnar Svarsson 0 — Drengir 12 ára og yngri: Sigurður Bjarklund 3 — Pétur Hákonsson 2 — Eiríkur Þorsteinss. 1, •— Dómarar leystu starf si'tt vel af hendi, og er það meira en. hægt er ,að segja um þá oft áð- ur, en batnandi manni er bezt að lifa og álít ég þetta stórt spor í rétta átt. Vonandi halda þeir áfram ,að bæta dóma sína, því það hefur mjög miki'ð að segja að taka hart á því ef mað- ur níðir keppanda sinn niður, en það kom einmitt fyrir í þessu móti að keppandi' níddi mót- reynd, sem veldur því, að hinn aldni ritstjóri býst við betri tíð. herja sinn niður, en dómararn- ir tóku það ekki gilt og létu þá glíma aftur. — Samt skorti dómarana kjark til ,að dæma vítabyltu, en það hefðu þei'r átf að gera í þessu tilílelli, en nóg um dómarana. Við væntum enn betri dóma á Íslandsglímunni, sem glímd verður í íþróttahúsinu að Há- logalandi í dag kl. 17 e. h. Við óskum, að sem flestii’ komi og sjái þessa þjóðaríþrótt okkar. Sv. Þormóðsson. Framhald af 3. síðu. Engar hætur innheimtur þangað til halli útflutningssjóðs er greiddur, 3) Eins og í(ram kemur í ofan- sögðu er því enginn fótur fyr- ir því að skatturinn verði lækkaður í heild. Skiptar skoðanir komu fram í upþ- ’hafi um það hve há prósetnu- tala skattsins ætti að vera, ent það er ekkert aðalatriði þar sem hér er um að ræða að innheimta ákveðna heildar- upphæð. Þar sem útvegsmenn og vi'nnslustöðvar hafa nú óskað eftir því að dreifa inn'heimt- -unni yfir lengri tíma, hefur ekki þótt nei'n ástæða til að standa á móti því. (Frá sjávarútvegsmála- ráðuneytinu.) 8. maí 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.