Heimskringla - 24.01.1934, Page 3
WINNIPEG, 24. JANÚAR, 1934.
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
f LEIT AÐ HINU
HORFNA ATLANTIS
Eftir Richard Clevering,
fyrrum ritstjóra hins vísindalega
enska tímarits “Outlook”
Þýtt hefir G. E. Eyford
Mikið hefir verið rætt og ritað
mhi hið horfna meginland, er
munnmælin segja að verið hafi
í Atlantshafinu. Magar bækur
hafa verið um það skrifaðar, og
feiknin öll af allra handa get-
gátum og lítt rökstuddum á-
gizkunum verið hrúgað saman.
Þeir sem lesið hafa, Marcot
Deep, eftir Sir Conan Doyle,
kannast við hugsmíðar hans og
lýsingar á hinu frábæra fólki,
er hann hugsaði sér að lifði á
botni Atlatnshafsins. Hann
hefir líklega ýkt þessar inn-
blásnu líkingar á alda gömlum
þjóðsögnum, sem gengið hafa,
um hið horfna land í Atlants-
hafinu.
I>að er líklegt að fjöldi fólks
hafi aldrei heyrt Atlantis (svo
hét hið horfna land) nefnt á
nafn. En í hugum þeirra sem
kannast við nafnið og hinar
gömiu sagnir, sem settar hafa
veirð í sambandi við það; má
ganga að því nokkum veginn
vísu, að þeir munu líta á slíkt
sem þjóðsagnir og tilbúning.
En spursmálið er, hvort þess-
ar æfa gömlu sagnir séu ekki
meira en draumórar og heila-
spuni löngu liðinna sæfara. Nú
tíma vísindi, og hin undra verðu !
rannsókna tæki, sem stöðugt er j
verið að finna upp, gera vísinda!
mönnum vorra tíma, mögulegt
að leiða margt það í ljós, sem
um óra tíð hefir verið í myrkr-1
unum hulið.
Þjóðverjar hafa nýlega stofn-
að til nýrra vísindalegra rann-
sókna á lögun og legu Atlants-
hafs botnsins; þessar rannsókn-
ir verða framkvæmdar með
nýjum og áður óþektum áhöld-
um. Menn gera sér miklar vonir
um, að þessi fyrirhugaði rann-
sóknaleiðangur, muni leiða
margt það í ljós, sem Atlants-j
hafið hefir hingað til haldið'
leyndu fyrir augum manna. —
Leiðangur sá. sem hér um ræð-
ir, sem greifinn Byron Kuhn de
Prorock stendur fyrir, er aðal-
lega farinn, í þeim tilgangi að
auðga þékkingu manna í forn-i
fræði og jarðfræði; útbúnaður|
sá er greifinn ætlar að hafa
til ferðarinnar er: jakt, stór
kafara klukka, og kafbátur af
nýjustu gerð.
Frá jaktinni verður klukkan
látin niður og dregin upp. —
Klukkan sjálf er mjög ólík þeim
kafara klukkum sem áður hafa'
verið notaðar og þykir vera
gerð af hinni mestu list og hug-
viti. Hún er afar sterkbygð, úr
þanstáli, til þess að þola hinn
afskaplega þrýsting er á henni
liggur á miklu' dýpi. Þrír glugg-
ar eru og á henni.
Innan í klukkunni er haglega
gerður stóll, sem athugunar
manninum er ætlaður. Er hann
svo gerður að hann snýst með
hverri hreyfingu klukkunnar,
en heldur sér þó altaf láréttum.
Athugunar manninum er ætlað
að taka ljósmyndir af sjávar-
botninum, og til þess að fá birtu
til myndatökunnar, er klukkan
útbúin með afar sterkum raf-
magns ljósum sem lýsa langt út
frá henni, og er svo til hagað
að snúa má í allar áttir. Tele-
fon samband verður milli
klukkunnar og jaktarinnar, og
útbúnaður fyrir byrgðir af
hreinu andrúmslofti, fyrir
manninn sem í klukkunni er. —
Menn bfða með eftirvæntingu,
þess árangurs sem verða kann
af þessum rannsóknum, og því
ljósi sem þær kunna að varpa á
ýms spursmál sem fornfræðin
er að reyna að ráða fram úr.
Hvað eiginlega hafa menn
hugsað sér að Atlantis hafi
verið?
í stuttu' máli sagt, menn hafa
ímyndað sér, að einhverntíma f
fymdinni, hafi meiri parturinn
af því flatarmáli er Atlantshafið
nú tekur yfir, verið þurt land,
eða að minsta kosti einn óslitinn
eyja klasi, og að stærsta eyjan
hafi heitið “Atlantis”, og menn
hafa hugsað sér að innbyggjar-
ar hennar hafi verið þjóð, sem
komist hafi á býsna hátt menn-
ingar stig.
Fyrstu eða elstu sagnir um
Atlantis, sem menn vita um,
eru í leturfærðar af hinum
mikla gríska heimspeking Plato.
Hann segir sögu þessa þannig
að langa langafi sinn hafi heyrt
spekinginn Solon segja frá
henni og telur hann sína heim-
ild fyrir sögunni góða og gilda.
Hann segir söguna á þessa leið:
að fyrir vestan Herculesar
stólpa (Gibraltar) hafi verið
víðlent og voldugt keisaradæmi,
sem tók yfir margar eyjar og
stórt meginland, sem hét At-
Þegar Mount Pelée í Vestur-
Indíum gaus síðast, gafst jarð-
fræðingum hið bezta tækifæri,
til að athuga og rannsaka,
þann mismun sem verður á
myndun þess hraungrjóts, sem
storknar undir vatni, og hins
sem storknar á landi undir á-
hrifum loftsins. Rannsóknir
þessar hafa leitt til þess, að
nú geta jarðfræðingar, með
fullri vissu ákveðið um hraun-
grjót sem finst á sjávarbotni,
hvort það hefir storknað á
landi, eða á botni hafsins. í
þessu áminsta gosi úr Mont
Pelée, klofnaði el!dfl)óðið, og
rann í tveim kvíslum, önnur í
sjóinn, og stornkaði strax, en
hin stöðvaðist á landi, og tók
margar vikur að storkna og
kólna. Með smásjá rannsókn-
um á sýnishornum af báðum
þessum hrauntegundum, hafa
lantis en stjórnendu’r Atlantis menn fundið hina afar ólíku
voru ekki ánægðir með þau
lönd sem þeir réðu yfir, svo
myndun þeirra.
auknu þekkingú
Við þessa
manna, á
þeir lögðu á stað í leiðangur, til myndun hrauntegundanna, hafa
þess að vinna meiri lönd undir
ríki sitt. Þeir héldu austur á
bóginn og lögðu fyrst undir sig
Libyu, og alt austur á Egypta-
land. Þeir lögðu og undir sig
alt land norðan megin við mið-
jarðarhafið, og þar með Tyr-
rheníu (ítalíu), en þeir stað-
næmdu'st ekki þar og héldu alt
austur á Grikkland. Þegar hér
er komið sögu Solons fer hún
að blandast þjóðernislegu stæri-
læti, sem kemur fram í því, að
Grikkir hafi borið svo mikið af
öðrum þjóðum að hreysti og
vitsmunum, að þeir einir af öll-
um þjóðunum í kringum mið-
jarðarhafið, hafi reynst færir
um, ekki einungis að standa af
sér árásir Atlant-inga, sem
aðrar þjóðir gátu ekki reist
hraun molar þeir, sem slæddir
voru upp úr Atlantshafinu 1898,
sem fyr er getið, og nú eru
geymdir í Musée de l’Ecole des
Mines, í París, reynst að vera
þeirrar tegundar, er storknar á
þurru' landi, ef þessir hraun-
molar hefðu verið úr neðan-
sjávar eldgosi og þannig storkn-
að á botni hafsins, þá hefðu
þeir orðið algerlega holulausir,
tinnu harðir, kristallar. Hin ó-
hjákvæmilega niðurstaða, af
þessum rannsóknum verður því j
sú, að sá eldgýgur, sem þessir
umræddu hraunmolar eru úr, i
hafi verið býsna liátt yfir sjávar,
mál, þegar það eldgos hefir átt
sér stað, sem þeir eru leifar af.
Auk þess staðhæfa jarðfræðing-
ar að hraun sem storknað hefir
rönd við; heldur að reka þájá landi, undir áhrifum loftsins,
burt úr öllum löndum, er að | sé að mestu eða öllu uppleyst
miðjarðarhafinu lágu, alla leið og horfið, innan 15,000 ára ef
vestur fyrir Gibraltar og þá það lægi undir sjó. Þetta sýnis-
heim í sitt land Atlantis. — jhorn sem hér um ræðir, eru
Hvort Solon heffir verjð að því leifar af gömlu hrauni í
segja sannsögulega sögu, eða uppleysingu, og ef ályktanir
aðeins munnmæla sögu, er eng- jarðfræðinganna eru réttar, þá
in til frásagnar um. Hann lýsir hefir hraun þetta runnið innan
í frásögn sinni af skáldlegri
mælsku, hinni dæmafáu hreysti
15,000 ára.
Jarðfræðingarnir
hafa og
og hugrekki Aþeninga og.veitt því mikla eftirtekt, hversu
Grikkja í þessari ægilegu viður- mikj] þking er, á jarðmyndun
eign. Það er áætlað að þessir Evrcpu og Norðu'r-Ameríku, og
atburðir hafi átt sér stað um samsvarandi líking milli Afríku
9,600 f. Kr. Samkvæmt sögu
Salons fóru nokkru seinna af-
og Suður-Ameríku. Margir
fjallarmar beggja megin hafs-
skapleg flóð og jarðskjálftar, ins> eru eins og þverbrotnir í
yfir meginland Atlantis og í; sundur, við hafið; sem bendir
þeim umbrotum láðs og lagar,
hafi það sokkið undir bylgjur
Atlantshafsins.
Ef að sagnirnar um hið
horfna Atlantis hefðu ekkert
við að styðjast annað en frá-
sögn Platos, þá mætti líta svo á
að hún væri að einhverju eða
öllu leyti hugmyndasmíð hans,
til að hefja þjóð sína í áliti
meðal annara þjóða með því að
vegsama herfrægð og hreysti
forfeðra sinna.
Vísindamenn hafa alt fram
til síðustu tíma, lítinn sem eng-
an trúnað lagt á þessa fornu
sögu; en nú eru fornfræðingar
og jarðfræðingar farnir að vera
miklu varfærnari í, að neita
sannsögulegu gildi hennar, eft-
ir því sem meiri rannsóknir og
fleiri uppgötvanir eru’ gerðar á
lögun og legu á botni Atlants-
hafsins.
Sumarið 1898 var mjög mikils
verð uppgötvun gerð þessu máli
til skýringar. Það var verið að
leggja sæsíma frá Brest til Cape
Cod. Síminn slitnaði þegar
komið var 500 mílur, suður
fyrir Azores eyjar, á 1700 faðma
dýpi, þegar verið var að slæða
upp endann á símanum, vildi
svo til að gripkló sú er til þess
var notuð, hafði fests í hraun-
botni, og þegar hún var dregin
upp, var hún full af grjóti og
leir. Steinar þessir voru rann-
sakaðir með smásjá og kom þá
í ljós, að þeir voru leifar af
eldhrauhi. Við nánari djúp-
mælingar sem gerðar voru þar
í kring á stóru svæði, fundu
menn að hafsbotninn var há-
fjöll og djúpir dalir.
til þess að þeir hafi náð miklu
lengra, ef ekki alveg saman. —
Azores eyjarnar, Tristan d’
Acunha, og St. Páls klettarnir,
eru mjög sennilega hinar síð-
ustu sjáanlegu leifar af afar
stóru meginlandi, sem einhvern-
tíma hefir legið milli Afríku og
Suður Ameríku', en sokkið í sjó.
Á líkan hátt hafa Vestur-Ind-
isku eyjarnar, einhvern tíma
verið samfeldur hluti af stóru
meginlandi, sem legið hefir inn-
an hins alþekta jarðskjálta
beltis.
Á síðastliðinni öld, unnu Eng-
lendingar, Þjóðverjar og Banda-
ríkjamenn, mikið að því að
mæla dýpi Atlantshafsins, sem j
hafði margskonar vísindalegan ■
árangur í för með sér. Eitt af,
slíku var það að nákvæmur
landslags uppdráttur var gerður
af botni Atlantshafsins. Upp-
dráttur þessi sýnir fjallgarð
mikinn, er liggu'r frá írlandi
suður Atlantshaf, alt að Suður-
Ameríku, nálægt því er Amazon
fljótið fellur í sjóinn, þar beytir
fjallgarður þessi stefnu til suð-
austurs alt til St. Páls kletta, og
svo þaðan til Ascension eyja, og
svo beint suður til Tristan d’
Acunha eyja, sem virðast að
vera hinn syðsti hnúkur á þess-
um mikla fjallgarði.
Fjallgarður þessi er að meðal-
tali 9000 fet yfir hafsbotninn,
hvoru megin, það þarf þess
vegna ekki að vera nein fjar-
stæða, að ímynda sér að eyjar
þær sem að framan eru' nefndar
séu hinir hæstu tindar, og há-
sléttur, á meginlands fjallgarði,
sem sokkinn er í sjó. Sá var og
annar vísindalegur árangur af
hafdýpis mælingum þessum, að
sanna það að fjallgarður þessi,
er alla leið norður og suður,
alsettur eldgýgum. Mönnum er
kunnugt um að eldsumbrot í
Atlantshafi erú mjög tíð, og oft
stórkostleg.
Um 150 mílur vestur af Gib-
raltar, einmitt þar sem Plato
hugði hið forna Atlantis hei’ði
verið, kom í ljós við mælingam-
ar, að á fárra mílna svæði
grynkaði um 1100 faðma, sem
ótvírætt benti til, að þar væri
um hásléttu eða fjalllendi að
ræða.
Með slíkar upplýsingar
styðjast við, verða hinar gömlu
sagnir, um stórt meginland í
Atlantshafinu miklu sennilegri.
Að minsta kosti þarf hér eftir
ekki að telja það, sem óhugsan-
legt, eða bláberar ágizkanir.
Það er álit margra viður-
kendra fræðimanna, að þetta
umrædda land hafi smátt og
smátt, á löngu tímabili, sokkið
undir yfirborð hafsins, sem af-
leiðing flóða og ægilegra elds-
umbrota.
Þá eru og margar líffræiSi-
legar sannanir er menn þykjast
hafa, þvf til stu'ðnings að hið
horfna Atlantis hafi átt sér
stað. Ein slík sönnun, meðal
annara sem bent er á, er Monk-
Selurinn, sem heldur sig æfin-1
lega nærri landi, og hefir aldrei |
fundist út á Tiafi. Ein tegund j
þssa selakyns heldur sig með-
fram ströndum miðjarðarhafs-1
ins, og aðrir hópar sömu teg-
undar, halda sig meðfram eyj-
unum í Vest-Indíum. Þessir
selir sömu tegundar, aðskildir
mörg þúsund mílna breiðu út-
hafi, sem enginn veit til að,
þeir séu til í. Líku máli er að
gegna með sækýrnar, þær halda !
sig meðfram ströndum Suður-,
Amerku og Afríku. Þær lifa
að miklu leyti á þurru landi. —j
Hið breiða úthaf sem aðskilur'
þessi láðs og lagar dýr bendir!
óneitanlega í þá átt, að for-1
feður þeirra hafi haldið sig með- j
fram ströndum lands eða landa, i
sem nú eru horfin. Þá er það
holu höggormurinn. Hann hef-
ir enga útiimi, og sem slíkvir
ekki vel fallinn til langferða,
þessi ríegund höggorma halda
sig í miðjarðarhafslöndunum, i
Afríku og Ameríku; það er al- j
gerlega ómögulegt fyrir þá að
komast yfir Atlantshaf. En þá j
er hvergi annarstaðar að finna,1
en í hinum ofangreindu löndum. I
Sérsstakar tegundir maura, af
amerískum stofni er að finna í
Azores eyjunum; svo er og um
melflugur og sumarflugur, sem
heima eiga í Canary eyjunum:
maurar, melflugug og sumar-
flugur, eru öll mjög skammlíf,
gætu ekki með nokkru móti
komist yfir Atlantshafið. Sama
er að segja um ýmsa jarðorma,
sem óhugsandi er að gætu kom-
ist yfir hafið, en eru þó bæði í
Ameríku og Evrópu, sömu teg-
undar og þeir sem finnast á
flestum eyjum Atlantshafsins.
Spursmálið er: Hvemig hafa
þessi ýmsu dýr borist þangað,
sem þau nú eiga heima? Þeirri
spurningu er ef til vill ómögu-
liígt að svara með fullri vissu,
en eitt er víst, þau hafa ekki
farið sjóleiðina milli Ameríku
og Evrópu. Skýringar á því
máli verður að leita annarstað-
ar. Hin eina hugsanlega skýr-
ing á því máli, verður sú að
einhvern tíma, í afar löngu lið-
inni tíð, hafi verið land þar sem
nú er Atlantshaf, en brotnað
frá Ameríku og Evrópu, og
sakkið í hafið. Upplýsingar þær
sem mannfræðin gefur í þessu
sambandi, eru ekki hvað minnst
lum varðar og mæla sterklega
með því að fjölbygt meginland
hafi einhvem tíma legið milli
Ameríku og Evrópu í Atlants-
hafinu, cg helst verið áfast við
báðar þessar heimsáífúr, að
minsta kosti á pörtum.
Fornfræðingum. er það vel
kunnugt að fyrir mörgum þús
undum ára barst til Evrópu
mannflokkur sá er kallaður er
C'ro Magnon eða Arigancian,
eftir þeim stöðum þar sem leif-
ar þessara þjóðflokka hafa
fundist. •
Árið 1852 fundust leifar af
áður óþektum mannflokk í helli
hjá Ariganca, og nokkru síðar
fann M. Lartet, franskur forn-
fræðingur fimm beinagreindur,
í nokkurs konar grafhvolfi ná-
lægt þorpinu Cro Magnon, við
Les Eyzies, það kom brátt í ljós
við samanburð þessara fudnu
beinagrinda, að þær heyrðu til
hinum sama kynstofni. Sir
Arthur Kieth hefir nákvæmlega
skoðað, og athugað beinagrind-
ur þessar, hann segir að þær
tilheyra hinum bestgefna mann-
flokki, til sálar og líkama, sem
nokkru sinni hafi á jörðinni lif-
að. Þessar Cro Magnon og
Ariganca beinagrindur, mældust
að vera yfir sex fet á hæð að
meðaltali, herða breiðar, og
fremur handleggja stuttar, í
hlutfalli við fótleggja hæðina,
það eru glögg einkenni þess að
þeir hafa verið langt á undan
öðrum samtímis mannflokkum,
að þroskun og líkams fegurð.
Höfuðlagið ber vott um að þeir
hafi haft hátt enni, hátt og
þunt nef, og há kinnbein ,og
sterklega höku. Það hefir og
verið áætlað, eftir nákvæmum
mælingum á höfuð kúpunum, nð
lieila stærð Cro Magnon kvanna
hafi verið meiri en meðal heili
nútíma karlmanna.
Margir fleiri greftrunar staðir
Cro Magnon manna, en þeir
sem hér eru nefndir, hafa fund-
ist, meðfram suðvestur stönd-
um Evropu og vestur strönd Af-
ríku, sem gefa miklar upplýs-
ingar um þennan horfna mann-
flokk.
Það hafa og fundist margs-
lags leifar eftir þá, sem bera
með sér að þeir hafi verið búnir
að þroska með sér listræna
menningu, á háu stigi.
Veggirnir í þessum Biscayan
hellum, þar sem flestar menjar
eftir þá hafa fundist ,eru aðdá-
anlega skreyttir uppdráttum og
málverkum, svo og manna og
dýra myndum, sem gerð eru af
hinni mestu nákvæmni, í því,
að láta öll hluföll halda sé^, og
sýna þau bæði yndirþokka og
listhæfni á háu stigi. Ýmsir
munir og skrautgripir hafa og
fundist í þessum hellum, þar á
meðal, höfuðskraut eða koffur,
búið til úr skrautlega litum
skeljum, gert af hinu'm mesta
hagleik. Margt af munum þeim
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Birgfiir: Henry Ave. Gagt
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
er fundist hafa bera greinilega
vott um fegurðar tilfinningu og
skarutgirni Cro Magnon manna.
Ennfremur hafa fundist ýms á-
höld og smíðatól, úr tinnu, sem
þykja gerð af hinni mestu list;
svo og ýmislegir munir úr beini
og horni, sem sýna bæði hug-
vit og lagvirkni. Þessi Cro
Magnon þjóðflokkur hefir hald-
ið til í suðvestur Evrópu, þegar
hinir öpum líku villimenn, sem
kallaðir hafa verið Neanderthal-
menn, voru dreifðir til og frá
um álfuna.
Að þroskast til slíkrar menn-
ingar sem Cro Magnon menn
höfðu náð, tekur langan tíma,
slík þroskun vinst ekki á fáum
öldum, menning þeirra hefir
vafalaust verið ávöxtur mörg
þúsund ára stöðugar þróunar
En hvar og hvaðan bárust þeir
til Evrópu?
Það er nokkurnvegin full
sannað að þeir hafa ekki komið
að austan — þessa vanalegu
þjóðbraut mannanna — og því
síður hafa þeir komið að norð-
an. Þeir hafa hlotið að koma
frá vestri, eða suðvestri. Að
þeir hafi komið landveg er
nokkurnvegin víst, því ekki
hafa fundist neinar menjar, sem
bendi til þess að þeir hafi haft
skip, eða nokkur farartæki til
sjóferða, enda hefr engin mynd
eða uppdráttur af bát eða skipi
fundist eftir þá. Að öllum kring-
umstæðum athuguðum, þá virð-
st sem þeir hafi ekki verið langt
að komnir; þess vegna hafa
flestir þeir fræðimenn sem þetta
mál hafa rannsakað, hallast að
þeirri niðurstöðu, að þeir hafi
verið afkomendur þeirrar þjóðar
er Atlantis bygði. Ennfremur
má benda á þessu máli til skýr-
ingar hið svokallaða Basque
tungumál; það er alveg óskylt
þeim tungumálum, er þekkjast í
Evrópu, það líkist helst tungu
hinna frumstæðu þjóða, er
Ameríku bygðu. Svo er og
höfuðlag Cro Magnon manna,
Frh. á 7. bls.
OOD
WOOL
er nafn á nýrri vöru, er við framleiðum, og til þess er höfð að stoppa með
veggi og loft á húsum.
WOOD-WOOL stopp er búið til úr viði, þannig, að hann er táinn I næfur
þunnar agnir og síðan blandaður Calcium.
WOOD-WOOL innibyrgir hita og útilokar kulda 14.14 prócent betur en
mosi, sem hér er seldur til þess fyrir hátt verð.
WOOD-WOOL endist jafnlengi og húsið ef ekki kemst að því vatn, en
þolir þó nokkum raka.
WOOD-WOOL hefir þann kost fram yfir mosa og mörg önnur efni sem
alment eru höfð í stopp á húsum, að í því geta ekki kviknað pöddur
eða melur, ekki heldur geta mýs né rottur haldist þar við, vegna þess
efnis sem það er blandað (Calcium). Þetta Calcium ver einnig viðinn
(stoppið) fúa og rýmum.
WOOD-WOOL er sérstaklega hentugt í loft (plastered ceiling) vegna létt-
leika, er það nálægt hálföðru pundi á hvert ferfet með 3%-4 þuml. þykt.
Heimildir fyrir því sem hér hefir verið sagt eru fengnar frá skýrslum
Sambandsstjórnarinnar og Manitoba háskólans, sömuleiðis frá verk-
fræðingi þeim, er hefir haft WOOD-WOOL til rannsóknar.
WOOD-WOOL er selt fyrir miklu lægra verð en nokkurt annað stopp. —
Þrjátíu cent pokinn og nægir hann í gott stopp a 10 ferfetum eða 3
cent á fetið á lofti (ceiling).
WOOD-WOOL stopp borgar verð sitt efnalega á hverju ári og í mörgum
tilfellum tvisvar sinnum, svo mikið sparar það í eldivið; auk þess hefir
hefir það þau þægindi í för með sér að jafnheitt verður í öllu húsinu.
WOOD-WOOL ver hitanum að komast inn á sumrum engu siðar en út á
vetrum. Þau hús sem vel eru stoppuð með WOOD-WOOI. verða aldrei
mjög heit á sumrin.
WOOD-WOOL hefir nú þegar verið sett í mörg hús, og hafa eigendur þeirra
tjáð okkur bréflega, að þeir álíti WOOD-WOOL það bezta, léttasta,
hreinasta og ódýrasta stopp er þeir þekki. Segja þeir að það spari
eldsneyti að stórum mun en hafi þó gert heimilin sín miklu notalegri
og jafnari að hita.
WOOD-WOOL stopp er framleitt og blandað undir nákvæmu eftirliti og
getum við þvi látið ábyrgð fylgja hverri pöntun svo það að alt reynist
eins og við lofum.
Verkfræðingur með sérþekkingu í þessum efnum er sendur til fólks í bæn-
um og veitir hann þvi ráðleggingar um það, hvemig WOOD-WOOL,
stopp eigi að setjast í hús, þannig að það komi að sem bestum notum.
Þessar leiðbeiningar geta allir fengið sem þeirra æskja.
Utanbæjar fólk getur skrifað eftir upplýsingum og sýnishomi af—
WOOD-WOOL.
THORKELSSON’S
BOX MANUFACTURERS
WINNIPEG, MAN. SfMI 22191
Soffanías Thorkelsson, framkvæmdarstjóri—Heimilis sími 27 224