Heimskringla - 28.03.1934, Qupperneq 2
tí. SIÐA
HEIMSKRINOLA
WINNIPEG, 28. MARZ 1934
NÝJAR HAGSMÁLA STEFNUR
(Þýtt og samantekið af J. A. R.)
Athugasemd Þýðanda: Með því
eg hefi orðið þess var að nokkur
misskilningur og jafnvel rang-
færslur hafa farið á flot — bæði
í blöðum og manná á milli — í
sambandi við stefnu og stofnun
hins yngsta af stjórnmála flokk-
um vorum, sem alment gengur
undir nefninu C. C. P. þá hefir
mér hugkvæmst að landinn ætti
það skilið að stefnuskrá flokks-
ins væri snúið á íslenzku, með
því líka að íslendingar taka
mjög mikinn og góðann þátt í
framgangi þessarar nýju stefnu,
yfirleitt talað, og eru jafnan
fræðslufúsir í mannfélagsmál-
um og væri þá vel ef þetta ætti
einnig eitthvert erindi “heim”
til gamla ættlandsins. Heims-
krnigla hefir sýnt mér þá dreng-
lund og góðfýsi að koma þessu
á almanna færi og ber slíkt að
þakka og virða, þegar tekið er
tillit til blaðamenskuvenju þessa
lands. Stefnuskrá C. C. P. kem-
ur þá hér fyrir almennings
sjónir, ásamt skýringum stofn-
enda, lítið eitt styttum þar sem
um upptekningar virtist að
ræða; þá er og áformið að gera
samanburð á þessari stefnu og
annari enn nýrri og róttækari,
til þess að sýna að C. C. P.
stefnan er aðeins miðlunar veg-
ur, miðað við það sem koma
verður ef mannkynið á að frels-
ast á hagfræðilega vísu. Þetta
áform verður þó að hlýta lög-
um heilsu og kringumstæða,
með framkvæmd. Ákjósanlegt
væri ef lesendur vildu leggja
rækt við þær spumingar sem
kynnu að koma upp við lestur
þessa máls, og þá helst stinga
þeim niður á blað, hver veit
nema Kringla gamla gerði sitt
til að birta þær, og stutt svör
við þeim, þetta gæti orðið stór
ávinningur öllum viðkomendum.
Loks vildi eg skora á ritstjóra
1 Lögbergs að birta stefnuskrá
| síns flokks, svo víðtækari sam-
anburður yrði mögulegur.
Stefnuskrá C. C. F.
Inngangsorð stofnenda: C. C.
F. er samband ýmsra félaga
sem starfa að stofnun Sam-
vinnu Samveldis í Canada, þar
sem grundvallar tilgangurinn
með umsjá og skipulagning
framleiðslu, útbýtingar og við-
skifta, sé uppfylling mann-
legra þarfa, í stað fjárgróða.
Vér viljum útrýma núverandi
auðréttar stefnu (Capitalism)
með hennar arfgengna órétti og
mannúðarskorti, en setja í
hennar stað félagsskipulag, þar
sem ofríki og áníðsla einnar
stéttar á annari, sé afnumin
með öllu, þar sem hagsmuna-
leg áformun komi í stað fyrir
stjórnlaust einstaklings fram-
tak og samkepni, þar sem ó-
menguð lýðræðis sjálfstjórn,
bygð á hagsmuna jafnrétti,
verði framkvæmanlega. Núver-
andi fyrirkomulag felur í sér
hóflausan ójöfnuð auðs og tæki-
færa, með gengdarlausri sóun
og örygðarleysi, og dæmir á
nægta tímum, múga manna til
örbygðár og óvissu. Vajldið
hefir meir og meir safnast í
hendur örfárra auðsafnenda og
stóriðnreka, sem ábyrgðarlaust
reka og semja, öll lög og rétt í
þágu eigin hagsmuna. Þegar
einstaklings gróði er höfuð
hvötin til hagsmuna fram-
kvæmda, þá rambar þjóðfélag
vort milli dillandi tímabils als-
nægta, og á hina hlið hrapandi
kreppu gljúfurs. Með þessu er
ástand alþýðumannsins sem
áður var harðsótt óvissa, gert
enn tvísýnna. Vér trúum að
þessu verði aðeins útrýmt með
ráðsettri félags hagfræði, þar
sem náttúru auður og aðal
framleiðslu og útbýtingar tæki
— séu í eign og yfirráðum og
starfrækslu fólksins sjálfs.
Þetta nýja félagsskipulag sem
vér stefnum að, hyggur þó ekki
á algert niðurbrot einstaklings-
ins með herreglugerð. Ekki
heldur munum vér koma í bága
við siðvenjur minniliáttar þjóð-
eða trúflokka. Það sem vér leit-
um eftir er fullkomin samrým-
ing og skipulagning allra hags-
muna útvega sem skapað geti
meiri tómstundir og ríkulegra
einstaklingslíf fyrir sérhvern
borgara landsins. Þessi þjóð-
arhags ummyndun getur tekist
með stjórnmála starfi, þannig
að kosin sé stjórn sem innblás-
. in sé hugsjón Samvinnu, Sam-
veldis, studd af meirihluta fólks-
ins. Vér trúum ekki á bylting
með ofbeldi. Vér vitum að báðir
| hinir gömlu flokkar í Canada
, eru verkfæri auðvalds ítakanna,
| og því óhæfir til þjóðfélags upp-
byggingar, og hver sem yfir-
; borðs misklið þeirra á milli
kann að vera, eru þeir heit-
bundnir að framkvæma einung-
j is skipanir stórsýslu ítakanna,
sem hafa fétrygt þá. C. C. F.
hyggur á stjórnvöld til þess eins
að binda enda á þessi auðréttar
yfirráð í stjórnmálalífi voru,
það er lýðræðis hreyfing, sam-
band bænda, verkamanna,
mannréttinda (socialista) fé-
laga, fétrygð af sínum eigin
meðlimum, og hygst að ná á-
formi sínu með lögheimildum
meðulum. Vér leitum styrktar
allra sem trúa því að tími sé til
komin að hefja víðtæka endur-
reisn hagsmuna og stjórnmála
stofnana vorra og þeirra sem
viljugir eru að vinna saman að
framkvæmduni eftirfarandi
stefnu atriða:
1. Ráðsett áformun:
Stofnun ráðsettrar þjóðfélags-
eigna hagfræði, til eflingar
og þroska allra þjóðnytja,
og jöfnun skifta þjóðar inn-
tektanna.
Hið fyrsta spor í þessa átt,
] verður stofnun Alþjóðar Ráð-
lags nefndar er samanstandi af
nokkrum hagfræðingum, verk-
fræðingum og hagstöðufræðing-
um, með aðstoð viðkomandi
iðnfræðinga. Verkefni nefnd-
arinnar verður að ráðstafa og
skipuleggja alla framleiðslu, út-
býting og viðskifti á vaming
og þjónustu sem útheimtist til
öflugrar framkvæmdar þessarar
hagstefnu. Sömuleiðis sam-
^ rýming athafna þjóðlagðra iðn- |
! greina, einnig sjá um nauðsyn-
legt jafnvægi milli neyzlu og!
j framleiðslu, svo og halda uppi j
stöðugri rannsókn í öllum
greinum þjóðarhagsmála ogj
j þannig safna ábyggilegri fræð-
slu til framtíðar ráðlags og á-
forma.
Nefndin verður ábyrgðarfull
fyrir ráðuneytinu og starfar í
samverki með stjórnarráðum j
liinna ýmsu þjóðlögðu iðn-
greina. Það er þegar víst, að í
j öllum iðnaðar löndum verði að
I viðhafa einhverja tegund ráð-
| settrar áformunar, sem taki við
| af upplausnar verkunum kapi-
j talismans. C. C. P. mun sjá
j um að Canada þurfi ekki að
sækja þjóðarráðsmensku sína í
i hendur síngjarnra auðkýfinga,
heldur að hún komi frá opinber-
um þjónum, sem hafa alþjóðar
hag fyrir augum, og séu ábyrgð-
arfullir fyrir allri þjóðar heild-
inni.
2. Þjóðfélags rekstur fjármála:
Þjóðnytjun allra fjármála-
tækja bankareksturs, gjald-
eyri, lánveitu, og trygginga,
svo náð verði algerðum
umráðum yfir gjaldeyri,
lánveitingum og verðlagi,
einnig framlögun til nýrra
þjóðþarfa framleiðslu tækja
Ráðsett áformun komi að litl-
um notum, ef hið opinbera vald
ekki hefir ráð á öflum þeim er á-
formin krefjast. En þau öfl út-
heimta jrfirráð fjármála, svo og
þeirra lífsþarfa iðngreina og
þjónkana, sem í einstaklinga
höndum kynnu að verða notuð
til að hindra og spilla fram-
kvænjd hins opinbera valds. —
Umráð fjármála er hið fyrsta
spor til umráða allra hagsmála.
Einkaréttar bankarnir verða að
leggjast undir þjóðeign og leys-
ast undan öllum einstaklings
gróða ítökum. Banka kerfi sem
þannig er stofnað verður að
stjórnast frá miðstöðvar banka
sem yfirráð hafi lángengis og
meðal verðlags, og einnig ann-
ist útlent viðskifta gengi.
Alþjóðar innleggs nefnd (In-
vestment Board) skal saman
safna ónotuðum afgangi fram-
leiðslunnar og leiðbeina um
notkun hans til félagslegra þarfa
fyrirtækja, eftir því sem Ráð-
lags nefndin leggur fyrir trygg-
inga félög sem nú veita aðal
farveg til innleggs sparisjóðum
einstaklinga, en sem heimta ó- j
nauðsynlega há iðgjöld fyrir
veitta þjónustu, verða einnig að
leggjast undir þjóðeign.
3. Þjóðfélags eign:
Þjóðfélags nytjum (Sam-
bands, fylkja og sveita)
flutningstækja, skeytasam-
banda, rafafls og alls ann-
ars iðnaðar og þjónustu
sem nauðsynlegt er til fé-
lagslegs ráðlags, starf-
ræksla þeirra undir yfir
umsjón Ráðlags nefndar, af
hæfustu mönnum sem laus-
ir séu frá dægur þrasi póli-
. tískra afskifta.
Opinber nytjatæki verður að
starfrækja í alþjóðar hag, en
ekki til einstaklings gróða fjár-
glæfra trúða. Náttúru auður
vor verður að nytjast á sama
hátt. Það á:form stefnir til
framhalds og aukningar þjóð-
eigna fyrirtækja sem flestar
stjórnir í Canada hafa þegar að
nokkru byrjað á. Einungis með
þannig löguðu þjóðeigna fyrir-
komulagi, starfræktu með ráð-
settri hagsýni geta aðal iðn-
fyrirtæki vor bjargast frá eyð-
slusamri samkepni stígandi of-
vexti og ofauknum höfuðstóls
byrðum, sem eru óhjákvæmileg
afleiðing kapitalismans. Ein-
ungis með ríkjandi þjóðeignar
starfrekstri geta full not mið-
stöðva umráða og múga fram-
leiðslu yfirfærst til alþýðu neyt-
enda.
Flutningatæki, skeytasam-
bönd og rafafl, verða að ganga
á undan á iðnlista þeim sem
þjóðeignaður verður. Hitt ann-
að svo sem námu taka, pappírs-
vinsla, útbýting mjólkur, brauðs,
kola og gasolíu, þar sem óhófs-
;róði, sóun, eða fjártekju hrekk-
ir eru mest iðkaðir, kemur þar
næst.
Þegar um afturskilun náttúru
auðæfa til þjóðfélagsins er að
ræða, eða yfirfærslu iðntækja
frá einstaklings eign til þjóðar-
imráða, gerum vér ekki ráð fyr-
ir sérstakri lögnáms upptöku
stefnu, heldur kjósum vér sem
staðfastasta og jafnaðarfylsta
yfirfærslu til Samvinnu Sam-
veldisins. Það er óhugsanlegt
að ákveða reglur eða stefnur
sem fylgt yrði í sérstökum til-
fellum í óvissri framtíð. En
vér heimtum ýms víðtæk skil-
yrði. Velferð samfélagsins verð-
ur að ganga á undan kröfum
einstaklings auðs. Ef nú hags-
muna kringumstæður ríkisinS
krefðust þess, þá væri lögtak
auðs, miklu fremur réttlætan-
legt, en lögtak mannslífa, sem
þó tíðkast á stríðstímum. Vér
viðurkennum nauðsyn uppbóta
í vissum kringumstæðum, ein-
staklinga og stofnána, sem
verða að fá fullnægjandi við-
hald meðan á yfirfærslunni
stendur, eða þangað til Ráðlags
tilhögunin hefir komist í full-
an fetil. En C. C. P. stjórn mun
ekki bjarga við gjaldþrota finn-
um til að bæta upp hlutabréfa
pröngurum eða skuldabréfa
pröngurum eða skuldabréfa
höldum. Hún mun og ekki
FIMTÁNDA ÁRSÞING
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
Framh.
Lagði þá dagskráarnefnd fram svo-
hljóðandi skýrslu um þingstörf:
Dagskrámefnd leggur til að þingmál
séu tekin fyrir í eftirfarandi röð, jafn-
framt þvi, sem nefndin áskilur sér rétt til
að auka við dagskrána, ef þörf gerist.
1. Þingsetning.
2. Skýrsla forseta.
3. Kosning kjörbréfanefndar
4. Kosning dagskrámefndar
5. Skýrslur- embættismanna.
6. Skýrslur deilda.
7. Skýrsla milliþinganefndar.
8. Fjármál.
9. írtbreiðslumál.
10. Fræðslumál.
11. Samvinnumál við Island.
12. Crtgáfa Tímaritsins.
13. Bókasafn félagsins.
14. Minjasafn.
15. Sextugs afmæli þjóðræknishreyfing-
arinnar.
16. Lagabreytingar
17. Kosning embættismanna.
18. Ný mál.
a. Kirkjulegt samband við Island.
b. Söfnun sögugagna um vestur-
flutninga.
19. Ólokin störf
20. Þingslit.
Asmundur P. Jóhannsson gerði tillögu
og Margrét Byron studdi að skýrslan sé
viðtekin. Samþykt.
Var þá komið fram yfir hádegi og gerði
dr. Rögnv. Pétursson tillögu studda af
Margréti Byron að fundi sé frestað til
kl. 1.30.
Fundur var settur kl. 2. e. h. Fundar-
bók lesin og samþykt.
Fjármál
Tillaga frá dr. Rögnv. Péturssyni studd
af S. B. Benediktssyni að forseti skipi 3
manna fjármálanefnd er starfi yfir þing-
ið.
Samþykt.
Forseti tilnefndi þessa: A. P. Jóhanns-
son, Loft Mathews og Jón Janusson,
Foam Lake.
Þá var lesin skýrsla Rithöfundasjóðs
nefndar er sýndi að safnast hefði á ár-
inu $145.27.
Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og
Asm. P. Jóhannsson studdi að skýrslan
sé viðtekin og þeim Jónasi Jónassyni og
G. J. Oleson, Glenboro og Jóni Kerensted,
Winnipeg Beach, sérstaklega þakkað starf
þeirra. Samþykt.
ftbrciðslumál
Páll Guðmundsson, Wynyard, mintist
á ýmsa erfðiieika er deildir hefðu við að
stríða . ytestar þessar deildir sagði hann
hefðu bókasöfn og væri æskilegt ef hægt
væri að kaupa bækur í stórum stíl frá ein-
hverri miðstöð og skifta svo upp á milli
deilda, og hafa bókaskifti. Einnig kvað
hann heppilegt ef mögulegt væri að
senda mann einu sinni á ári til deildanna
til þess að hjálpa til við samkomuhöld.
Jón Jóhannson, Wynyard, sagði að æski-
legt mundi einnig að stjórnarnefndin
hefði altaf við og við bréfaviðskifti við
deildimar .jafnvel þó það yki á verk
nefndarinnar. Séra Guðm. Amason
lagði áherzlu á að fá lestrarfélög þar
sem þau væru út um bygðir til að
ganga í Þjóðræknisfélagið sem deildir
svo styrkur yrði fyrir hvortveggja.
J. P. Sólmundsson fanst stjómarnefnd-
in hafa verið lintæk á síðustu ámm í
störfum sínum gagnvart útbreiðslumál-
um.
Páll Guðmundsson gerði tillögu og Jón
Jóhannsson studdi að forseti skipi 5
manna nefnd í þetta mál. Samþykt.
Þessir vom skipaðir: Jón Jóhannsson,
Wynyard, Jóhann P. Sólmundsson, Páll
Guðmundsson, Wynyard, Guðm. Arnason
og Matthildur Friðriksson, Kandahar.
Fræðslumál
Tillaga frá S. B. Benediktssyni studd
af séra Guðm. Amasyni að 3 manna
nefnd sé skipuð í þetta mál. Samþykt.
Ótnefndi forseti: Próf. Richard Beck,
Jón Asgeirsson og Hjálmar Gíslason.
Samvinnumál við fsland
Gerði próf. Richard Beck tillögu og
Jón Asgeirsson studdi að forseti skipi 5
manna nefnd. Samþykt.
Skipaði forseti í nefndina: Dr. Rögnv.
Pétursson, Mrs. Eiríksson, Selkirk, Próf.
Richard Beck, Bjarna Skagfjörð, Selkirk
og Friðrik Sveinsson.
Þá gat forseti þess að bendingar hefðu
komið um hvert æskilegra væri að erindi
það er dr. Rögnv. Pétursson ætlaði að
flytja á þinginu yrði flutt að kvöldinu kl.
8 og annar staður fenginn, þar eð Good-
templara húsið fengist aðeins til kl. 6
þenna dag. Sagði hann að Sambands-
kirkja væri fáanleg og ef þingheimur
æskti þess mætti breyta tímanum.
Urðu um þetta nókkrar umræður og
gerði J. P. Sólmundsson tillögu studda
af Sig. Vilhjálmssyni að fyrirlesturinn sé
hafður í Sambandskirkju kl. 8. að kveld-
inu .
Breytingartillögu gerði A. P. Jóhanns-
son studda af S. B. Benediktson að byrja
fyrirlesturinn kl. 4. og 45 mínútur svo
fyrirlesari hafi nægan tíma fyrir erindi
sitt. Var þá gengið til atkvæða og
breytingartillagan samþy.kt með 43 at-
kvæði gegn 30.
Var þá lesin skýrsla milliþinganefndar
í Iþróttamálum. Var hún lesin af Jón-
asi W. Jóhannssyni og er sem fylgir.
Skýrsla
Milliþinganefndar í Iþróttamálum
Verkahringur þessarar milliþinganefnd-
ar er kosin var á síðasta þingi var ein-
gön'gu sá, að stjórna hockey samkepni
um “Horn” Þjóðræknisfélagsins, sem gef-
ið var hinni uppvaxandi íslenzku kynslóð
og þeirra leikbræðrum til minnis um
Þúsund ára afmælihátíð íslands 1930.
Samkepninni var stýrt af Mr. J. Snydal
er skipaði forsæti í nefnd þessari. Með
honum eru í ráði J. Walter Jóhannsson og
Karl Thorláksson.
Hockey samkepni þessi fór fram dag-
ana 25. og 27. febrúar 1933.
Skautaflokkar þeir er þátt tóku í
samkepninni voru 6. Utanbæjar frá Sel-
kirk, Gimli og Arborg og frá Winnipeg:
Pla-mors, Moming Glory og Falcons. Sig-
urvegarar urðu Falcons og hlutu þeir
“Homið” fyrir árið 1933.
Fyrir sérstaka velvild Mr. Fred Hutchi-
son’s, forráðamanns Olympic skautaskál-
ans, komst nefndin að góðum samning-
um við þann skautaskála og fóm leik-
amir þar fram. Nefnd þessi hafði engu
fé yfir að ráða og varð þessvegna að
bera sína eigin byrði.
Þessi sama nefnd hefir einnig séð u-
undirbúning að samskonar skautasam-
kepni þetta ár, 1934, er haldin verður
snemma í marz á Olympic skautahringn-
um. Þar sem útlit er fyrir eins góða
þátttöku að þessu sinni og í fyrra, vilj-
um vér biðja alla góða íslendinga að
styðja þetta málefni eins og þeim er
mögulegt.
Feb. 20. 1934. A þingi Þjóðræknisfélags
ísl. í Vesturheimi.
Jack Snydal
J. Walter Jóhannsson
C. Thorlaksson.
Gerði Asm. P. Jóhannsson tillögu og
S. B. BenediktsSon studdi að skýrslan sé
viðtekin. Samþykt.
Crtgáfa Tímaritsins
Tillaga frá Asgeir Bjamason, Selkirk
studd af S. B. Benediktssyni að forseti
skipi 3 manna nefnd í málið. Samþykt.
Skipaði forseti í nefndina: Séra Guðm.
Amason, Þórð Bjamason, Guðm. Eyford.
Bókasafn félagsins:
Séra Guðm. Amason gerði tillögu og
S. B. Benediktsson studdi að 3 manna
nefnd sé sett í málið. Samþykt.
Crtnefndi forseti þessa: G. P. Magnús-
son, Jónas Jónasson, Halldór Gíslason.
Minjasafnið
Sig. Vilhjálmsson gerið tillögu og B.
E. Johnson studdi að 3 manna nefnd sé
skipuð í málið. Samþykt.
Tilnefndi forseti: Friðrik Sveinsson,
Guðmann Levi og Grettir L. Jóhannsson.
Sextugs afmæli Þjóðræknishreyf-
ingarinnar í Vesturheimi.
Asgeir Bjarnason, Selkirk, gerði tillögu
og séra Guðm. Amason studdi að 5
manna nefnd sé skipuð af forseta í þetta
mál. Samþykt. Voru þessir tilnefndir:
A. P. Jóhannsson, séra Guðm. Arnason,
Elin Hall, Jón Jóhannsson, Jón Janusson.
Lagabreytingarnefnd
Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og
Margrét Byron studdi að þessi liður sé
lagður yfir þar til stjórnnefndin hafi gert
grein fyrir tillögum sínum í málinu.
Samþykt.
Ný mál
Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu og
Guðmann Levi studdi af 3 manna nefnd
sé skipuð til að athuga og taka við til-
lögum um ný mál, að undanteknum A.
lið á dagskránni. Samþykt.
Tilnefndir: Dr. Rögnv. Pétursson, J. P.
Sólmundsson, Hlaðgerður Kristjánsson.
Jóhann P. Sólmundsson tók þá til máls
um A. liðinn á dagskránni er fjallaði um
kirkjulegt samband við ísland. Gat hann
þess að hann hefði hreyft þessu máli á
þingi hins Lúterska kirkjufélags s. 1.
sumar og einnig á þingi Sambandssafn-
aða og kvaðst hann vona að málið yrði
tcliið til umræðu á þessu þingi. Séra
Guðm. Amason gerði tillögu studda af
Gísla Arnasyni að þessu máli sé vísað til
væntanlegrar samvinnumálanefndar.
Samþykt.
Var þá fundi frestað til kl. 4. o-
45 mínútur.
Þegar kl. vantaði 10 minútur í 5. byrj-
aði dr. Rögnv. Pétursson á erindi sínu:
Upphaf Vesturferða og Þjóðminningarhá-
tíðin í Milwaukee 1874. Var húsfyllir
og flutti ræðumaður erindi sitt með snild
sem hans ea vandi. Var það ítarlegt
og fróðlegt og er óskandi að almenn-
ingur fái að sjá það á prenti áður en
langt um líður. Að loknu erindi bað
A. P. Jóhannsson þingheim að votta
ræðumanni þakklæti sitt fyrir þetta
snjalla erindi með þvi að rísa á fætur,
og var það gert með lófaklappi.
Var þá kl. orðin 6 og frestaði forseti
fundi til kl. hálf tíu næsta morguns.
Fundur settur kl. 10. f. h. af forseta.
Síðasta fundargerð lesin og samþykt.
Var þá lesin fjármála og bókasafns-
skýrslur Fróns, sem hér fylgja.
Crtgjöld
Borgað í húsaleigu ..............$ 65.00
Borgað i kennaralaun ............ 246.00
Kostnaður við Mótið .............. 47.39
Kostnaður við skemtifundi ......... 7.00
Auglýsingar ....................... 9-00
Ritföng, bækur og frímerki og
prentun fyrir Mótið ......... 12.90
Innköllunar laun .................. 13-U
Borguð gömul húsaleiga ........... 20.00
Meðlimagjöld ..................... 45.80
Eldsábyrgð á bókasafni ............ 6.60
$472.80
Inntektir
í sjóði frá fyrra ári ............$ 65.50
Samskot á fundum .................. 14.99
Meðlimagjöld ..................... 108.55
Tillag frá aðalfélaginu .......... 150.00
Inntektir af Mótinu .............. 148.50
Kenslugjöld frá nemendum ........... 5.25
Gjafir til Mótsins ................. 6.67
$499.46
Ctgjöld ........................... 472.80
I sjóði ............................$ 26.66
Skýrsla bókasafnsins
Bækur safnsins i ár ........... 641
Bækur safnsins í fyrra ........ 608
Safnið aukist á árinu um ...... 55 bækui
Bækur í útláns standi ......... 586
Bækur í útlans standi i fyrra 563
Fleiri bækur í útlans standi 23 að tölu
Safnið aukið á árinu að verðlagi 33
bækur bætt við safnið ...........$28.00
Bækur bundnar .......;........... 10.55
Alls aukið að verðlagi ..........$38.55
Bækur bundnar á árinu ...............
Inntektir á árinu ...............$79.13
Utborgað á árinu ................ 78.55
I sjóði í banka .................$ -68
Meðlima tala ....................... 49
Húsaleiguskuld ..................$32.00
S. B. Benediktsson gerði tillögu og Ari
Magnússon studdi að skýrslurnar séu við"
teknar. Samþykt.
Þá tók Asm. P. Jóhannsson til máls
um auglýsingar í Tímaritinu. Mintist
hann á erfiðleika að safna auglýsingurn
síðustu árin. Mæltist hann til að Þeir
er styrktu félagið með auglýsingum '
Tímaritinu fengju að njóta viðskifta l®"
lendinga, og einnig að fólk mintist &
Timaritið við auglýsendur ef þeir ættu
viðskifti við þá.
Las hann upp lista af auglýsendum og
endurtók beiðni sina að Islendingar létu
þá njóta viðskifta sinna.
Framh.