Heimskringla - 17.10.1934, Blaðsíða 8

Heimskringla - 17.10.1934, Blaðsíða 8
8. SlÐA nclMSKRINGLA WINNIPEG, 17. OKT. 1934 FJÆR OG NÆR Séra Eyjólfur J. Melan mess- ar næstkomandi sunnudag á Lundar kl. 2. e. h. ¥ ¥ ¥ Séra Guðm. Árnason messar næstkomandi sunnudag, 21. október, í Árborg, kl. 2 e. h. Kvenfélag Sambandssafnaðar í Winnipeg efnir til sölu á heimatilbúnum mat n. k. fimtú- dag í samkomusal kirkjunnar á verk. Banning St. Allur vanalegur, íslenzkur matur, svo sem blóð- i Jón Jón Jónsson fyrv. þingm. frá Danskt Garðar, N. D., kona hans og sonur voru stödd í bænum. Jón var að leita sér lækninga. ¥ ¥ * Bridge spil Ungrastúlkna félagið C. G. I. c T. efnir til spilasamkomu í fundarsal Sambandskirkju mið- vikudagskveldið 24. þ. m. kl. 8. Sækið þessa samkomu og, styrkið félagsskap þessara ungu stúlkna, þær eru að vinna þarft mör, rúllupylsa og kæfa verður þar á boðstólum. Einnig kaffi- sala o. fl. Segja konumar svo frá, að þær hafi reynt að haga þessari sölu svo til, að í bænum séu hvergi betri kaup þennan dag, en hjá þeim og þær óttist enga samkepni. Þessa sölu er því vert að hafa í huga. * * * Séra Guðmundur Áraason fór s. 1. mánudag suður til Akra, N. D. til að jarðsyngja konu, HaJlgerði Stefánsson er dó s. 1. föstudag. Jarðarförin fór fram í gær. ¥ * ¥ íslenzku kensla Foreldrar er ætla að senda böm sín á íslenzku skóla Þjóð- ræknisfélagsins eru beðnir að minnast 'þess að hann byrjar nú á laugardaginn þann 20. kl. 9.30 a» morgni í Jóns Bjaraa- sonar skóla. Verður hið nýja ungmennablað Baldursbrá not- að við kensluna og eru böm mint á að koma með ársgjald sitt fyrir blaðið sem er aðeins 50c. * * * Jón Laxdal frá National City, Cal., kom til bæjarins fyrir helgina vestan frá Saskatchew- an. Hefir hann verið hér eystra nokkra daga. Hann lagði af stað heim til sín í byrjun vik- unnar. ¥ * * Steindór Pétur Einarsson frá Winnipeg og ungfrú Guðrún Thórðarson, dóttir Jóns Thórð- arsonar í Sinclair, Man.( voru gift 12 ökt. í Winnipeg af Dr. Rognv. Péturssyni. Jóhannsson og kona hans frá Wynyard, Sask., komu til bæjarins í gær úr hálfsmán- aðar kynnisför í Dakotabygð. Þau halda vestur á morgun. Af ferðalaginu og viðtökunum syðra létu þau hið bezta. ¥ * * Jóhann P. Sæmundsson frá Árborg, Man., kom til bæjarins s. 1. mánudag. Hann var að leita sér lækninga við gigt. * ¥ ¥ Bergþór Thorvardsson póst- mestari og kaupmaður að Akra, N. D., var staddur í bænum í byrjun síðast liðinnar viku. * * * Ámi J. Jóhannsson frá HaJl- son, N. D. og kona hans vorú í bænnm í kynnisför fyrir helg- ina. Dr. A. V. Johnson tannlæknir verður staddur í Riverton þriðjudaginn 23. október. Verið vel til fara . . . Það borgar sig Skoðlð haust og vetrarfötin yðar. I*ér verðið hissa hve illa þau líta út. Quinton’s steypibaðs hreinsun tekur úr þeim alla b|etti og óhreinindi, skýrir upp vigindi og lit og gefur vefnaðinum lifandi áferð, og með sérstakri pressun ná þau alveg sínu upphaflega lagi. Símið 42 361 Strax ARÐMIÐAR EIMSKIPAFÉLAGSINS Hr. Árni Eggertsson umboðs- maður Eimskipafélags íslands vestanhafs biður Heimskringlu að tilkynna hluthöfum félagsins hér vestra, aðhann sé við því búinn að taka á móti arðmiðum frá hluthöfum fyrir síðastliðið í fb^ð til leigu Rjól til sölu Danskt nefntóbak í bitum eða skorið til sölu hjá undirrituðum. Panta má minst 50c virði af skorau neftóbaki. Ef pund er jpantað er burðargjald út á land Sendið pantanir til: The Viking Billiards 696 Sargent Ave., Winnipeg * * ¥ G. T. Spil og Dans verður haldið á föstudaginn i þessari viku og þriðjudaginn í næstu viku í I. O. G. T. húsinu, Sargent Ave. Byrjar stundvís- lega kl. 8.30 að kvöldinu. Ágætir hljóðfæraflokkar leika fyrir dansinum. — Lofthreins- unar tæki af allra nýjustu gerð eru í byggingunni. Fyrstu verðlaun $15.00 og átta verðlaun veitt þar að auki. ínngangur 25c. Allir velkomnir. ¥ ¥ ¥ Miðaldra ráðskona getur fengið vist á heimili á Gimli. Jafnframt hússtörfúm verður að annast veika konu. Upplýsing- ar gefur S. Lárusson, Gimli. Ennfremur má síma 87 472 í Winnipeg eftir þeim. ¥ ¥ ¥ Miðaldra kvenmaður óskast á heimili í grend við Wynyard, Sask., yfir vetrarmánuðina. — Kaupgjald eftir samkomulagi. Skrifið S. R. ísfeld, Wynyard, Sask. ¥ ¥ ¥ Safnaðarnefndin biður þess getið, að engin messa verði í Sambandskirkju í Winnipeg næstkomandi sunnudag. ¥ ¥ ¥ ár 1933 og greiða út á þá. Fé- lagið greiðir 4% hlutafé í arð fyrir það ár. Hluthafar sendi enga aðra arðmiða! Áritun: Árni Eggertsson 1100 McArthur Bldg., Winnipeg, Man. ¥ ¥ ¥ Daniel Halldórsson frá Hnaus um, var staddur í bænum í morgun. Fimm-herbergja íbúð með Sleeping Balcony, bálaskúr og öllum vanallegum þægindum, upphitun o. s. frv. er til leigu í vestur bænum. Leigan er 35 dalir. Ritstjóri vísar á. Togleður hringin af göml- um “bílum” hefir ekki þótt arð- vænleg eign, samt eru þeir farn- ir að hækka í verði í Ástralíu, síðan hugvitsmanni í því landi tókst að búa til úr þeim prent- svertu. ¥ ¥ ¥ Áhaldið sem haft er til að mæla hita frá stjörnunum, er svo smátt, að það vegur álíka og einn þúsundasti partur úr vatnsdropa. ¥ ¥ ¥ Áhald er nú fullgert til að grafa holur fyrir girðinga stólpa sem kvað vinna fljótt og fyrir- hafnarlaúst og gengur fyrir loftþrýstingi. Það áhald kemur heldur seint á markaðinn til að verða landnámsmönnum í Can- ada að liði. ¥ ¥ ¥ Eðlisfræðingar skírðu minstu parta efnisins, sem þeir kunnu tölum að felja, nafninu mole- cule, svo slöguðu efnafræðing- ar á sömu slóðir, eftir sinni kunnustu og nefndú þær smæ- stu eindir, er þeir þóttust finna, nafninu atom. Nú hamast hvor- i tveggja að rannsaka þessar smæstu skorður nefndra vís- indagreina. ¥ ¥ ¥ Þeir sem hafa sent loftför með margvíslegum áhöldum, sjálfvirkum, út í himingeiminn, segja að loftið þar sé altaf eins, líkast purpura, eða rauðlblátt á litinn. ¥ ¥ ¥ Léttasta lofttegund, sem menn vita af, er kallað hydro- gen, en hið þyngsta, osmíum, er 251,000 sinnum þyngra, ef þið viljið vita það. Á SUÐUREYJUM HITT OG ÞETTA íslenzki birdge- og taflklúbb- urinn spilar næstkomandi fimtu dagskvöld í J. B. skóla. Tvenn verðlaun veitt. ¥ ¥ ¥ Laugardaginn, 6. okt. voru þau Ronald Stefánsson frá Sel- kirk, Man. og Olga Merle Mof- fatt frá Cardale, Man., gefin saman í hjónabandi af séra Rún ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton St. Heimili þeirra verður í j Sfelkirk. ¥ ¥ ¥ Laugardaginn, 13. okt. voru j þau Barney Brandson og Isa- I bell de Keruzee, bæði til heim- ilis í Winnipeg, gefin saman í | hjónaband af séra Rúnólfi Mar- I teinssyni, að 493 Lipton St. — , Heimili þeirra verður í Winni- ! peg. ¥ ¥ ¥ Munið að dr. J. S. Bonnell | flýtur fyrirlestur fimtudaginn 8. nóv. í Fyrstu lútersku kirkju á Victor St. Umtalsefni: Rúss- land, eins og mér kom það fyrir sjónir. Karlmanna klúbburinn gengst fyrir að fá erindi þetta flutt, sem verða mun hið fróð- legasta. Byrjar kl. 8.15 e. h. — Aðgangur seldur. ÝSQðððeðeððeesosossðseðeosoððOSCSoðSðsoQOQQSOðseoGeor 1 SAMKOMA MÁNUDAGINN 22. OKT. f G. T. HÚSINU Byrjar kl. 8.15—stundvíslega 8 PROGRAM X i. Ávarp forsetans. 8 2. Dans, Miss Marilyn Fredrickson o 3. amanyrði: H. Gíslason 8 4. Einsöngur: Mrs. Olga Irwin X 5. Nýmæli: Dr. Sig. Júl. Jóhannesson 8 6. Pianospil: Albert Stephensen O 7. Ræða: Dr. B. J. Brandson 8 8. Kvæði, framort:Magnús Markússon 5 9. Einsöngur: Mrs. R. Gíslason 10. Framsögn: Miss Mabel Thorgeirson 11. Kvæðabrot: Lúðvik Kristjánsson 12. Þjóðsöngvar. Inngangur ekki seldur, en samskot tekin Allur arður af samkomunni gengur í Jarðskjálfta samskotin til íslands Menn, sem hafa lítið að gera Henry Mess í Meford, Banda- ríjum, er úrsmiður, en hann hefir þó gefið sér tíma til þess að bora stoppunál að endilöngu, frá oddi að auiga. Þetta var ekkert áhlaupaverk; hann var tvö ár að því. Japanskur stærðfræðingur lét sér detta það í hug, að hægt mundi að byggja hús, þar sem allir íbúar jarðar gæti átt heima. Og nú fór hann að reikna hvað húsið þyrfti að vera stórt. Hann komst að þeirra ni- ðurstöðu að það þyrfti að vera 312 metrar á hæð. 13 kílómetra langt og 102 hæðir. Á því yrði að vera 2,3 miljarðar glugga, í því 1.5 miljarðar herbergja og gangamir í því 60 km. langir. Hann álítur að það muni ekki þurfa að kosta meira en 300 miljónir — en þá er sjálfsagt miðað við japönsk vinnulaun. ¥ ¥ ¥ Flöskupóstur Fiskimær nokkur á Hjalta- landi vildi endilega eignast fall- egan sjómann, en henni leist ekki á neinn þar í grendinni. Hún skrifaði því biðilsbréf og lét það í flösku ásamt mynd af sér og kastaði svo flöskunni í hafið í þeirri von að hún færð^ sér gæfu. Nú vildi svo til að ensk skúta fann flöskuna á reki, og það er ekki að orðlengja, allir skip- verjar urðu ástfangnir þegar þeir sáu myndina af stúlkunni. Og nú voru sett upp öll segl og siglt til Hjaltlands þar ' sem stúlkan átti heima og allir skip- verjar, 23 að tölu, buðu henni hönd sína og hjarta. Hún valdi skipstjórann — og það hefði fleiri ' stúlkur gert í hennar sporum. ¥ ¥ ¥ Altaf er að finnast eitt gler öðru sterkara. Ein nýlega til- búin glerategund er svo traust, að hita má í eldi og bregða svo í kalt vatn, án þess brotni. í sumar fóru tveir Svíar um Suðureyjar, Orkneyjar og Hjalt- land til þess að rannsaka hve mikið lifði þar enn af fomnor- rænni menningu og siðum. Fóru þeir hjólandi frá Leith þvert yfir Skotland og síðan á hjólum um állar eyjarnar. Annar þeirra, Sven T. Kjellström, segir svo frá: — Þegar maður kemur til Suðureyja og sér elstu þorpin þar, finst manni sem maður sé horfinn x000 ár aftur í tímann. En þegar maður kynnist betur, kemst maður að raun um, að þar er margra alda bragur á. Sums staðar býr fólkið í mold- arkofum og eru hlóðir á miðju gólfi, en sumsstaðar eru ný- tískuihús. — Þáu hefir heil- brigðisráðið látið byggja. En yfirleitt er óhætt að fullyrða að hvergi í Evrópu búa menn fá- tæklegar og fomlegar heldur en á Suðureyjum. Ibúarnir lifa á landbúnaði eingöngu, enda þótt nógur fiskur sé í sjónum umhverfis eyjaraar. Kunnust framleiðsla þar er hið svonefnda Harris Tweed, fyrirtaks dúkur, sem notaður er í spartfatnað. t hverju koti er spúnnið á rokk og það er daglegur viðburður að mæta konum með vefjar- stranga á bakinu. Eru þær á leið til kaupmannsins með hann. Fólkið er skrafhreyfið, en það kann ekki nema graut í ensku, og margt af eldra fólk- inu talar ekki annað en írsku. Margt í þjóðlífi þess svipar til þjóðlífs Færeyinga. Á Orkneyjum er alt með öðr- um svip. Þar eru ekki sjálfs- eignarbændur, heldur eru það nokkrir óðalseigendur sem eiga allar eyjamar. Þar er þó al- menn vellíðan og menning. — Allir lifa á landbúnaði. En á Hjaltlandi stunda menn aðallega útveg. — Lesb. Mbl. GRÆNLANDSÞÆTTIR M. FL. Frh. frá 5 bls. að byggja á, þá er konungur færi að skylda svo og svo marga íslendinga að flytjast vestur, hvort þeir vildu eða ekki, þ. e. með öðrum orðum: manntalið átti að vera eiijskon- ar hótun um nauðungarflutn- ing Íslendinga af landi burt, eins og kemur fram í bréfinu til Gottorp. Ekki er kunnugt um, að fleiri en 3 sýslumenn hafi sinnt þessgri mánntalsfyr- irs'kipun amtmanns, þ. e. Sig- urður Sigurðsson eldri sýslu- maður í Saurbæ fyrir Árnes- sýslu (ritað 20. des. 1729), Nikulás sýslumaður Magnússon i fyrir Rangárvallasýslu (fyrir jól 1729, en ekki afhent fyr en 11. maí 1730) og Steindór sýslu maður Helgason fyrir Hnappa- dalssýslu (tekið á héraðsþing- um í sept. 1729 og undirritað af sýslumanni 17. okt.). Manntöl þessi eru í eign minni og mestu merkisrit. Sérstaklega er mann- talið í Árnessýslu vandað, alt með hinni ágætu hendi Sigurð- ar eldra sýslumanns. Manntalið í Rangárvallasýslu er ófull- komnara, með því að þar er sleppt úr sumum bæjum og heimilisfólk ekki talið á ýmsum heldri bæjum (!), t. d. hjá prestum, sýslumanni, lögsagn- ara, prestsekkjum o. s. frv., og mæt'ti ætla, að það væri með vilja gert af sýslumanni, til þess að þjónustufólk þessara heldri manni yrði ekki flutt nauðugt til Grænlands, þá er nöfn þess væru ekki skrásett(!). Og manntalið í Hnappadalssýslu gefur jafnvel dálitla bendingu í þessa átt, því að þar má heita, að annar hver maður sé ein- hverjum kvilla haldinn (t. d.: “karlæg(ur), mjög heilsuveik- (ur), kviðslitin(n), brjóstveik- (ur), fótaveik(ur), haltur (hölt), mist flesta fingur á annari hendi” o. s. frv.). Það er auðvitað, að þar í sýslu hafa ekki verið fleiri meinagemsar, en tiltölulega annarsstaðar, en sýslumaður hefir • sett þessar lýsingar á heilsufarinu í mann- talið, sakir ótta fólksins, að það yrði flutt nauðugt til Græn- lands, ef ekki væri sérstaklega tekið fram á einlhvern hátt, að það væri ekki flutningsfært sakir sjúkleika, og lýsir þetta greinilega hinum mikla ugg al- mennings við væntanlegt harð- ræði, enda mun einmitt þessi fyrirskipun amtmanns um manntalið í samhandi við nauð- ungarflutninga hafa snúið hug- um margra frá Grænlandsför, þeirra er áður höfðu látið skrá- setja sig og séð eftir því flani. Hvort fleiri en þessir 3 sýslu- menn hafi hlýtt skipun amt- manns um manntalið hefi eg ekki fundið rök fyrir, en sé svo þá eru þau manntöl (t. d. úr Gullibringu- og Kjósarýslu,*) Borgarfjarðar-, Mýra- og Snæ- fellsnessýslu! nú eflaust glötuð fyrir löngu, en líklega hafa þau aldrei verið gerð. Að amtmaður snýr sér í þessu Grænlandsmáli aðeins til sýslumanna í suðvest- urhluta landsins( frá Jökulsá á Sólheimasandi til Skraumu) mun stafa af því, að skipinu, sem átti að flytja Grænlands- MESSUR og FUNDIR í kirkju SambandssafnaOar Mcssur: — á hverjum sunnudegi kl. 7. e. h. Safnaðarnefndin: Funóir 1. íöstu- deg hvers mánaðar. Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðju- dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngflokkurinn: Æfingar á hverju fimtudagskveldi. Sunnudagaskólinn: — Á hverjum sunnudegi, kl. 11. f. h. farana vestur, hefir verið ætlað að koma aðeins á suðurlands- hafniraar (Eyrarbakka austast og Stykkishólm(?) vestast), enda var þaðan styzt til nýlend- unnar Godthaab. Amtmaður hefir ætlað, að nægilegt væri að smala aðeins þennan hluta i landsins ,eins og einnig reynd- ist, ef enginn bobbi hefði komið í bátinn. Framh. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Lesið Heimskringlu Kaupið Heimskringlu Borgið Heimskringlu iTiTiTiíiíiíiiiTiTiTiTiTiíiTiTiTiiniiiTiiiitTiTiTin coMPigft: pRiy^plcjus *) Annars sést ekki, að amtm. hafi fyrirskipað þar alment manntal. Hefir ef til vill slep.pt því þar, með því að þetta var undir handajaðri hans, og honum kunnugast. an<J ecor'on'V . course* \ ; ionBusi^CoU^mUnea ^ °f traT eveo*** 5Uper' t00• , viKetHer y<~ "T, C — vnk to jecretartal tockkeepmg pra?'T tHe Domituon tup- mai\. í°' i gerytHiOt 1 rV- í-jtTcoV- text books. U) Kere for “e ter tuióon m tHose vJHo pr j , c\esv toorns- ty jtudenö í°r ^tdeai'eJ. Don’t arrenged >t . tHíDom- put off v,r'trr'g cosayou ''"°"P,0,FTÍ V.^ n°,Hing..n<i^ , Ttud‘ of'.'Str^mÍfc.ned»:’ MAIL THIS COUPON I0-DAY! To tKe Secretery : Dominion Business College Winnipeg, Manitob® Without obligation, pleíise send me full particulars of your courses on “Streamline” business training. Addrets ...................................... ^cDominion BUSINES^ COLLEGE ON IHE MPUt • WINMIPEG

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.