Heimskringla - 01.06.1938, Page 3

Heimskringla - 01.06.1938, Page 3
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1938 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA inna hermannaskála og varnar- virkja. Ekkert af þessum virkj- um hefir verið bygt fyrir það fé, sem áætlað er á fjárlögum til hermála. Þrjú af þeim eru í Suður-Jótlandi, öll nálægt landa- mærunum. Hermennirnir þar hafa lengri þjálfunartíma en annarsstaðar. Hvað Danmörk veitir saman- lagt mikið fé til hermálanna er almenningi leyndarmál. Það er meira en flesta grunar. En þessi vígbúnaður fer samt ekki fram með neinni leynd. En öll þau hergögn, sem Danir hafa keypt á undanförnum árum, eru mið- uð við varnir. Það eru loftvarn- arbyssur, varnarfallbyssui gegn skriðdrekum o. s. frv. Hins- vegar hafa þeir ekki fengið sér skriðdreka eða önnur hernaðar- t;eki, sem notuð eru til árásar. Danmörk vill þannig sýria er- lendum þjóðum, að hún vígbýst aðeins í varnarskyni. Þegar Hitler kom til valda, vildu sumir foringjar nazista senda stormsveitir inn í Suður- Jótland og láta taka það með valdi. Það hefði verið auðvelt þá, en er elcki jafn auðvelt nú. Þjóðverjar vita að þeir eiga vísa talsverða inótstoðu. Þess vegna beina þeir athygli sinni meira í aðrar áttir, þangað sem er meiri fengs von.—N. Dbl. DÁN ARFREGN Látin í Riverton, Man., þann 22. maí árdegis, að heimili Mr. og Mrs. Guðjón Johnson, öldruð kona og einstæðingur, Guðrún Kristjana Sigurjónsdóttir Hall- dórsson. Hún var fædd að Kvíslarhóli í Tjörnesi í Suður- Þingeyjarsýslu, 28. des. 1866. — Foreldrar hennar voru Sigurjón Halldórsson og Dóróthea Jens- dóttir Búkk. Var föðurætt móð- ur henar komin frá Nikulúsi' Búkk, norskum eða dönskum manni, er settist þar að, og gift- ist þar Karínu Björnsdóttur kaupmanns, og hefir ættmargur orðið. — Guðrún ólst upp hjá foreldrum sínum fram yfir ferm- ingaraldur, en fór þá að vinna í vistum, bæði á Tjörnesi, í Axar- firði, og síðar um mörg ár í Húsavíkurbæ. Þrítug að aldri keypti hún leyfi til þess að þurfa ekki að binda sig í ársvistum. Sum síðari árin á íslandi vann hún á Akureyri. Til Canada fluttist hún árið 1914, ásamt Jónu Björgu systur sinni og Indriða Árnasyni manni hennar og börnum þeirra. Þau settust að á Gimli, og þar dvaldi Guð- rún um all-mörg ár, en fluttist til Árborgar, árið 1931, var hún þá til heimilis hjá Tryggva Ingjaldssyni og Hólmfríði konu hans. Um nokkur síðustu ár, átti hún heima í Riverton, vann hún þar um hrlð, á heimili Mr. og Mrs. Th. Hallgrímsson, en síðar hjá Mr. og Mrs. Jónas Magnússon á Ósi, um nokkur ár. Sjálf átti hún lítið heimili', og hugði þar á fagra elli, eftir annir æfidagsins. Hún fékk slag tveim- ur dögum áður en dauða hennar bar að höndum, tók þá Mrs. Sig- ríður Johnson hana að sér og flutti hana á sitt heimili, hjúkr- aði henni, og þar andaðist hún. Guðrún var næst elst af sjö börnum, er ein systir á Gimli, sem fyr er sagt, en hin systkinin munu á Húsavík og í því um- hverfi. Meðal þeirra er Kári, hreppstjóri og sýslunefndarmað- ur. Hin systkinin eru: Karin, Halldór Nikulás, bóndi og smið- ur, býr á Húsavík, Sigríður Jakobína gift, sama staðar, Guð- laugur, dó ungur. Að eðlileglei'kum var Guðrún útlendingur hér vestra. Hún inti af hendi dygga þjónustu, og varð vel til vina. Sjálfstæði var að eg hygg, mjög áberandi ein- kenni hennar. Einmana var bún, en batt mjög fasta trygð við þá er sýndu henni hlýleik og vináttu. Trúmensku og skyldu- rækni sýndi hún í störfum sín- um. Traustið á Guð varpaði ljósi á torsótta æfileið hennar. Útförin fór fram frá heimili Johnsons hjóna, þann 23. maí, að viðstöddum kunningjum hinnar látnu. — Akureyrarblöð- in eru vinsamlegast beðin að birta þessa dánarfregn. S. ólafsson MIÐSUMARSBLÍÐA Jörðu víða júní glóð Jurtum prýðir lengi, Faðmlög býður blíð og góð Brosir hlíð og engi. Himinskrúðans skíra gull, Skreytir flúð og rjóður, Daggarúðans dýra full Drekkur knúður gróður. Lífsins kallai* lausnarstund Lendur allar grónar— Liljur vallar bregða blund Braga snjallir tónar. Ljósið fría um landið, kær Leigir hlýja sólin, Svo að nýja grasið grær, Og glitra skýja bólin. íslands mesta unun var Að er gestir sðttu, Lóur og þrestir léku þar Á ljósum festri nóttu. Þá var kátt um klyf og drög Kosin sátt og gaman. Dag og nátt um land og lög Ljósin áttu saman. Fremsta sætið öld af öld Á, sem bætir fle^ta Júní nætur vara völd Vart þær rætur bresta. Guð út breiðir Ijf og ljós Lömum eyðir skæðri, Veginn greiðir gróðrar-rós, Á götur leiðir æðri. Lífs við kynni lán og þor Lýðir finna á jörðu. örlög tvinna eilíf spor Ógnum linna hörðu. M. Ingimarsson VfSINDALEGUR ÁRANGUR AF PÓLARLEIÐANGRI RÚSSA Rússnesku heimskautafararn- ir, prófessor Schmidt, Papanin og félagar þeirra, hafa nú dvalið um hríð í heimalandi sínu. Árang urinn af hinni hættulegu för er talinn mjög mikilsverður og hafa leitt í ljós ýmislegt það, sem kollvarpar fyrri hugmynd- um um heimskautið. Höfuð niðurstöður þeirra má greina í sjö liði. Þeir hafa 1 fyrsta lagi mælt dýpi hafsins á þeim slóðum, þar sem aldrei fyrr hafa menn á ferð verið. Yfir sjálfu heimskautinu söktu þeir rannsóknartækj um til botns. — Þar var 4290 metra dýpi og það var sex klukkustunda vinna að draga þau upp á yfirborðið aft- ur. Þeir framkvæmdu 33 slíkar djúpmælingar. f öðru lagi gerðu þeir félagar mikilvægar athuganir á haf- straumunum á 2000 kílómetra stóru svæði', ekki aðeins á yfir- borði sjávarins heldur og á mis- munandi dýpi. Segulrannsóknir þeirra eru einnig stórmerkilegar. Með hjálp þeirra er nú hægt að nota venjulega áttavita í flugleið- angrum, þar sem áður varð að nota margbrotinn útbúnað, sök- um segultruflana. Þeir gerðu í fjórða lagi' marg- víslegar mælingar á seltu sjávar- ins og hitastigi og gerðu þá ó- væntu uppgötvun, að i þessum norðlægu höfum er tiltölulega hlýtt sjólag frá Golfstraumnum, 200—700 metra undir yfirborð- inu, en mjög kaldur sjór undir og ofan á. Hvað dýralífið snertir hefir 'það reynst að vera miklu fjöl- skrúðugra en haldið var. Á þessum nyrztu slóðum er mikið af ísbjörnum, rostungum og kröbbum, auk ýmissa smádýra, sem tæpast eru greinanleg nema í smásjá. Það kom á daginn, að fuglar halda sig ekki æfinlega í námunda við fast land, eins og hefir verið staðföst trú manna. Þá hafa leiðangursmenn aflað sér og öllum heiminum mikillar, nýrrar, veðurfræðilegrar þekk- ingar. Fjórum sinnum á dag sendu þeir umheiminum veður- skeyti. Það kom mönnum á ó- vart, að í nánd við heimsskautið ríkja ekki sífeld staðviðri og góðviðri. Sumarhitinn veldur sveipum og stormum. Prófessor Schmidt telur að mikið af þeim óveðrum, sem geysa í Evrópu, ðigi þar upptök sín. f sjöunda og síðasta lagi höfðu þeir með höndum rannsóknir, sem vörðuðu þyngdaraflið og að- dráttarafl jarðar. Jörðin er ekki algerlega hnöttótt og hafa slíkar rannsóknir mikla þýðingu fyrir lausn ýmissa fræðilegra spurn- inga, viðvíkjandi því atriði. Heimsskautafararnir höfðu með sér ógrynni af filmum, ljós- myndavélar og jafnvel kvik- myndavél. Allan tímann voru þeir lausir við hverskonar sjúkleika og kvilla. Það er heilnæmt í nánd við heimsskautið! Líðan þeirra hefir því verið góð. Matvæli þeirra voru einkum þurkuð mjólk, þurkuð egg, þurkað græn- meti, þurkað kjöt. Auk þess ost- ur og smjör, sykur, kaffi, kakao og te. Te drukku þeir oft á dag. Þrátt fyrir góða líðan stóð hugur þeirra mjög heim, einkum þegar líða tók að ferðalokum. — Hvað tvo yngstu leiðangurs- mennina snerti, átti sinn þátt í því frétt, sem þeim hafði borist að heiman. Þeir höfðu báðir orðið feður meðan á ferðinni stóð, annar eignast son, en hinn dóttur. Þakklætið, sem þeir uppskera fyrir afrek sín hjá valdhöfum fósturjarðar sinnar, og launin, mun þó enn óráðið, og tvísýnt á hvern veg því verður háttað. —N. Dbl. HUNGURSNEYÐ yfirvofandi í Kína MANNSLÁT Fimtudaginn 12. maí lézt 01- geir Austman í Spy Hill, Sask.; Hann var við sáningu á jörð sinni eina mílu austur af Spy Hill þorpinu. Virðist sem ó- kyrð hafi orðið á hestunum er fyrir sáningarvélinni voru og hann hafi hlaupið fram fyrir þá, en ekki getað stöðvað þá. Vélin fór yfir hann og hlaut hann af því bráðan bana. Olgeir Austman kom vestur um haf 1888 frá Seyðisfirði með foreldrum sínum þriggja ára | gamall. Nam hinn látni land það er hann hefir þar búið á s. 1. 36 ár. Hann var verkmaður mikill og hraustmenni. Er hið sviplega fráfall hanns hrygðarefni mikið hinum mörgu vinum hans. f desember 1914 giftist hann Guð- línu Thordarson, er kom til þessa lands frá ólafsvík á ís- landi. Eignuðust þau 6 börn, 4 stúlkur og 2 drengi, er nú syrgja | ásamt móður sinni, góðan föður j og eiginmann. Hann á og einn bróður á lífi', Philip. Hinn látni átti sex lönd (quar- ter sections) með góðum bygg- ingum á og ágætu íveruhúsi. — Stendur það nú alt þar sem áður var auðn ein og ber vitni um framtak og starfsþrek hins látna. Jarðarförin fór fram 13. maí frá heimilinu. Séra Sigurður S. Christopherson jarðsöng, ásamt Dr. Gilbert, í Spy Hill, Sask. — Var jarðarförin hin fjölmenn- asta. Sýndu bygðarbúar eftir- lifandi skyldmennum hins látna samhygð sína, ekki einungis með nærveru sinni, heldur einnig með blómagjöfum og á margan annan hátt. Mótstaða Kínverja við Su- chow hefir styrkt þær vonir, að Kínverjum muni hepnast að hindra frekari sókn Japana. — Stríðsfréttaritari' Karl von Wieg- land, sem dvalið hefir í Kína, tel- ur þó horfumar fyrir því ekki líklegar. — Yfir Kína, segir hann vof- ir nú geigvænlegri hungursneyð en dæmi eru til áður í sögu landsins. Um 30 milj. manna hafa flúið orustuhéruðin og halda suður og vestur á bóginn. Alt þetta fólk er heimilislaust, hefir ekkert fyrir sig að leggja og ekki að neinu að hverfa. Það er máske stærstu fólksflutningar sögunn- ar, sem styrjöldin í Kína hefir komið af stað. Nákunnugir menn telja að í Sichuanhéraðinu einu hafi 20 milj. manna neyðst til að yfir- gefa heimili sín. Ástandið í hér- uðunum meðfram Gula fljótinu, sem stundum er nefnt “kirkju- garður Kína,” er meira en geig- vænlegt. Þarna búa um 70 milj. manna. Bæði yfirvöld Kínverja og Japana horfast hér í augu við óviðráðanlega örðugleika. Ástandið er enn verra sökum þess, að kínverski herinn hefir, samkvæmt gömlum hernaðar- venjum lagt landið á bak við sig í einskonar eyði. Hann hefir sprengt stíflugarða og brýr, brent heilar borgir og flutt allar vistir í burtu. Allir stíflugarðar meðfram Gula fljótinu hafa ver- ið eyðilagðir og þegar vatna- vextirnir koma, leggjast stór landssvæði undir vatn og lífi milj. manna er hætta búin. Skuggar hungurneyðarinnar hvíla yfir þeim héruðum, sem styrjöldin hefir á einn eða annan hátt náð til. Bændurnir hafa yfirgefið jarðir sínar, akrarnir leggjast í órækt, enginn sáir og þess vegna verður ekki hægt að reikna með neina uppskeru, þeg- ar líður á sumarið.—N. Dbl. FYRSTI ÁGÚST Þann 22. apríl s. 1. voru 100 ár iin síðan fyrsta gufuskipið uk við fyrstu ferð sína yfir Jantshafið. Skipið var hjóla- ipið “Sirius” og var það marg- vikur á leiðinni yfir hafið. fslendingadagsnefndin er nú að vinna af kappi við að undir- búa hátíðahald “fslendingadags- ins,” sem haldið verður að Gimlr fyrsta ágúst í sumar. Það verður af fremsta megni vandað til hátíðahaldsins. Og margt verður þar til skemtunar, sem svein og svanna mun langa til að verða aðnjótandi. Og þess má geta að ýmislegar skemtanir fara þar fram í sumar, sem ekki hafa verið þar áður, og má þar til nefna sund, kappróður, lang- stökk (running broad) og margt fleira. Þar kveða góðskáldin okkar kvæði fyrir minni fslands og Vesturheims. Og ágætir ræðu- menn flytja áhrifarík minni fyr- ir fslandi' og Ameríku. Þar verð- ur og söngur, sem alla heillar og sitthvað fleira, sem enginn má missa og síðar verður skýrt frá. Og ekki er óhugsandi að þar verði einnig góður gestur að heiman sem marga mun langa til að heyra og sjá. Munið eftir því íslendingar að í fjörtíu og níu ár hefir þessi samkoma Winnipeg fslendinga verið ein af okkar vinsælustu og mest eftirsóttu alíslenzku skemt- unum hér vestan hafs. Þá leik- ur “Ástkæra ylhýra málið” á flestra vörum og ótal myndir rísa og birtast oss í gegnum ljóð og lag úr djúpi' minning- anna og tengir oss traustari böndum “við land og fólk og feðra tungu.” fslendingar! Hafið það í huga að “íslendingadagurinn” verður haldinn að Gimli fyrsta Ágúst, og þangað eigið þið öll að koma, sem getið, til að gleðjast með glöðum og fullkomna daginn með nærveru yðar. Davíð Björnsson . <"iK _ in tÁe impkúvement -y ci/ui (jftíoídu, cfokúin ckopA* fFDlRAL GRAINIíMITED Áai frecctttf Q MCJHÍœh cf ^ CROP TESTING PLAN FORFEÐUR MANNKYNSINS 'C'LESTIR kannast líklega við, að á síðustu áratugum hafa orðið til og dáið út fjölmörg kyn hunda og annara húsdýra vegna áhrifa mannanna. En líklega hafa færri gert sér það ljóst, að á sama hátt hefir líka farið hjá mannkyninu, vegna áhrifa nátt- úrunnar, því að á liðnum öldum hafa kynflokkar þess verið margfalt fleiri en nú. Þeir hafa komið fram hver af öðrum, lifað og dáið út, ýmist fullkomlega eða svo, að þeir hafa skilið eftir sig nýja kynflokka, sem síðar hafa blandast og breyst alt til dagsins í dag. Leifar ýmissa þessara frummanna, — manna, sem líktust öpum og öpum, sem líktust mönnum, — finnast nú í jarðlögum, mýrum og gömlum hellum víðsvegar í veröldinni. Og öðru hvoru koma þessir út- dauðu kynflokkar jafnvel fram meðal nútímamanna, og þó lík- lega oftast Neanderthalmaður- inn, sem sumir vilja telja Char- les Darwin, Beethoven og Schmeling hnefaleikkappa í ætt við! Sá þessara frummanna, sem er nærri jafn frægur og mestu stjórnmálamenn nútímans, er Pekingmaðurinn, Sinanthropus pekinensis, þótt hann hafi verið uppi fyrir heilli miljón ára. Nú í yetur þaut nafn hans enn einu sinni um allan hinn mentaða heim: efri kjálki úr honum hafði fundist. Sú tilkynning kom frá Peking Union Medical College, PUMC, þar sem mannfræðingar vinna stanslaust þrátt fyrir stríð og neyð, og dr. Franz Weiden- reich athugar rólega hin gömlu bein hinna fornu manna og dreg- ur af þeim ályktanir, til að auka þekkingu okkar sem mest á sviði mannfræðinnar. f raun og veru eru aðeins til leifar tuttugu og fjögurra Pek- ing-níanna í Frummannasafninu í Peking. En það voru aðeins hauskúpur, neðrikjálkar og ýms líkamsbein, þar til efrikjálkinn fanst í vetur þarna í Lao Niu Kou í hellafjallinu við bæinn Chou Kou-Tien í suðvestur frá Peking, þar sem allar minjarnar hafa fundist. f safninu eru auk þess nokkur hundruð tannir úr “Pek- ingþjóðinni” og steináhöld, sem fundist hafa meðal beinarusls- ins. Fyrir nokkrum mánuðum birt- ust ýms erlend blaðaviðtöl við dr. W'eidenreich, sem er þýzkur vísindamaður, er sér um geymsl- una á leifum þessa ógeðfelda frænda forfeðra okkar. í þeim viðtölum lét dr. Weid- enreich meðal annars í ljós, að tennur Pekingmannsins líktist mjög tönnum Mongólanna, en séu þó dáltið stærri, og að neðri- kjálkinn minni mjög á Eskimóa, Lappa og hina fornu Norðmenn, er blandast höfðu Löppunum. — Pekingmaðurinn er sem sagt Mongóli, en hefir auk þess vissa beinplötu í afturhluta hauskúp- unnar, sem aðeins finst í kúpum hinnar útdauðu Inca-þjó!ðar í Suður-Ameríku. Auk þess vant- ar hann framvaxna höku, eins og sjimpansinn og órangútang- inn, en heilinn er mjög stór, þótt ennið sé lágt og afturhalt. Hend- urnar eru nær alveg eins og hendur nútímamannsins, en fæt- urnir eru frumstæðir mjög. Og augnabrúnirnar eru með stórum beinbogum. Dr. Weidenreich kvað auðséð ættarmót með Sin- anthropus og Neanderthalmann- inum, sem og að Pekingmaður- inn væri maður, en ekki api, eins og margir héldu þar til steiná- höldin fundust. En eftir fund efrikjálkans í vetiir varð þó dr. Weidenreich að bæta við, að þeg- ar hann hefði verið settur á kvenkúpuna, sem hann tilheyrði, minni hún miklu meir á apa en ætlað hafði verið fyr. Það lítur út fyrir, að allir þessir tuttugu og fjórir menn, sem leifarnar hafa fundist af, Frh. á 7. bls. All-Canadian victpry for pupils of DOMINION BUSINESS COLLEGE at Toronto Exhibition Pupils of the DOMINION BUSINESS COLLEGE, Winnipeg, were awarded FIRST PLACE in both Novice and Open School Championship Divisions of the Annual Typing Competition. Miss GWYNETH BELYEA won first place and silver cup for highest speed in open school championship with net speed of 92 words a minute.. Mr. GUSTAVE STOVE won first place and silver cup for highest speed in Novice Sec- tion of typing contest. His net speed was 76 words a minute. Miss HELEN BRIX, another D. B. C. pupil, won second place for accuracy in the novice division! Miss DOROTHY MAXWELL, a D. B. C. student, came fourth in the open school championship section! The Dominion sent four pupils to Toronto and they won two firsts, a second and a fourth place! The contest officials announced at the Coliseum before an audience of 9,000 people that the Dominion Business College, Winnipeg, had the best showing of any com- mercial school in the competition! There were 107 contestants! ENROL NOW DOMINION BUSINESSCOLLEGE WINNIPEG FOUR SCHOOLS: THE MALL— ST. JAMES — ST. JOHN’S — ELMWOOD

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.