Heimskringla - 28.09.1938, Síða 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytlme
In the 2-Glass Bottle ^ ®
LIl. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 28. SEPT. 1938
NÚMER 52.
HELZTU FRETTIR
För Chamberlains
til Godesborg
í síðasta blaði féll frásögnin
niður af stríðsmálum Evrópu,
þar sem Chamberlain var að
leggja af stað til Godesberg á
fund Hitlers í annað sinn til að
fá hann til að skrifa undir
samningana sem Brétar og
Frakkar höfðu gert uppkast að
og um það voru að veita Þjóð-
verjum Sudeten-héruðin, með
ýmsum ákvæðum einnig um, að
Hitler færði ekki meira út stakk-
inn, og tryggingu fyrir því, að
Tékkóslóvakíu-lýðveldið héldi á-
fram að vera til, þó minna væri
en áður. Þessa samninga vildi
Hitler ekki þýðast, én gerði í
þess stað nýjar kröfur, sem í því
voru meðal annars fólgnar, að
hann sendi her sinn nú þegar
inn í Sudeten-héruðin. í hinum
nýju kröfum Hitlers, er einnig
farið fram á, að efnalegt og
pólitískt sjálfstæði Tékkósló-
vakíu sé í höndum Þjóðverja. —
Með þennan nýja samning Hitl-
ers átti Chamberlain að fara til
Tékkuóslóvakíu stjórnarinnar og
fá undirskrift hennar.
Með þessu lauk annari ferð
Chamberlains á fund Hitlers.
Eftir heimkomu Chamberlains
vrar sagt, að Tékkóslóvakíu hefðu
verið sendar kröfur Hitlers. En
með því að þær voru svo frekar,
að hvorki Bretar eða Frakkar
gátu að þeim gengið, lögðu þess-
ar þjóðir ekki hart að Tékkum
með að samþykkja þær. Er nú
heldur ekki líklegt talið að
Tékkar geri það. En Hitler
krefst þó svars við þeim fyrir
fyrsta október og hótar stríði,
verði ekki vel við kröfum hans
snúist. (Sjá meira um þetta mál
á ritstjórnarsíðu).
Ræða Hitlers í
Sudeten-málinu
Hitler kanslari hélt ræðu í
Berlín s. 1. mánudag í Sudeten-
málinu, sem útvarpað var um
allan heim. Var það hans síð-
asta tilraun, að ögra Benes for-
seta Tékka til að samþykkja síð-
ustu kröfur sínar í Sudeten-mál-
inu, sem ætlast er til að Tékkó-
slóvakía svari fyrir lok þessarar
viku eða 1. október. Auk þess
átti ræðan eflaust að vinna
heiminn á mál Hitlers.
Það er mjög hætt við, að
hvorttveggja hafi mishepnast.
Ræðan byrjaði með skrumi um
herstyrk Þýzkalands og um
biljónir eyddar í að byggja
herinn upp. Benes úthúðaði
ræðumaður fyrir allskonar ó-
svífni og að hafa unnið stærri
þjóðir með lygum á sitt band til
verndar Tékkum, sem kölluðu
sig þjóð, en væru aðeins 7 milj-
ónir að tölu. Og þeir leyfðu sér
fyrir þetta að standa uppi í hár-
inu á þjóð, sem tíu sinnum væri
stærri. Hann sagðist frá fyrstu
hafa ætlað sér Sudeten héuðin
og kvaðst hafa hugrekki til að
segja heiminum það, að hann
tæki þau með hervaldi þegar
sér sýndist, ef annars væri ekki
kostur.
Stjórnmálamenn kvað hann
nú fáa uppi í heiminum. Utan
•Þýzkalands væri aðeins einn:
Mussolini.
Kommúnista og lýðræðis-
stjórnum í heiminum kagði hann
að þyrfti að steypa; slíkt stjóm-
skipulag gerði heiminum mikla
bölvun.
Chamberlain þakkaði hann
samt sem áður friðartilraunir
sínar. Og milli frönsku og
þýzku þjóðarinnar sagði hann
alt vera bróðurlegt. Ef hann
fengi Sudeten-héruðin, skyldi
hann aldrei, hvað gamall sem
hann yrði, biðja um nein fleiri
lönd í Evrópu. Hann virtist
jafnvel iðrast þess, að hafa ekki
tekið samningum Chamberlains
og skoraði nú á Benes, að
standa við fyrri loforð sín.
Um liðna tíð og afleiðingar
stríðsins 1914 fyrir Þýzkaland
og hvernig það hefði ávalt ver-
ið kúgað þar til hann kom ti!
sögunnar, fór hann mörgum orð-
um. Á hitt mintist hann ekki,
að herstefna hans væri búin að
steypa þjóðinni efnalega og
hafði kostað landið svipað og þó
það hefði átt í tveggja til
þriggja ára stríði síðustu stjórn-
arár hans.
Ræðan var óslitið æsingamál
ogfull mótsetninga, í'aðra rönd-
ina hóflaust hernaðargort, hina
iðrunarandvörp. Það mun vafa-
samt, að nokkur þjóðar leiðtogi
hafi nokkru sinni flutt heiminum
annan eins hrotta- og illmælgis-
boðskap. Göbbel, er kynti Hitl-
er útvarpshlustendum minti á
öskur-apa.
Þrjú stórveldi sameinast
á móti Hitler
í gær var Hitler varaður við
því í skeyti frá London, að ef
hann réðist á Tékkóslóvakíu,
gæti hann átt vísa von á að þar
yrði einnig að mæta Frökkum,
Bretum og Rússum.
Þetta er eitt ákveðnasta
skeytið, sem Hitler hefir verið
sent og er nú eftir að sjá hvort
hann lætur við það skipast.
Þessar þrjár gömlu sam-
bandsþjóðir sáu sér ekki annað
fært, en að taka þessa afstöðu,
eftir að hafa íhugað síðustu
kröfur Hitlers í Tékkóslóvakíu-
málinu, þar sem ráð er fyrir
gert, að svifta landið frelsi með
öllu og þjóðina tilverurétti.
Chamberlain heldur ræðu
í gær í útvarpið
Neville Chamberlain, sem bar-
ist hefir öllum mönnum harðara
fyrir að koma viti fyrir Hitler
og aftra honum frá að fara í
stríð, hélt ræðu í útvarpið í gær
og kvaðst ekki vonlaus enn um
að ennþá fengist lausn á Sudet-
en deilunni á friðsamlegan hátt
eða líkt því og Jfram á var farið
í fyrri samningunum. En hann
varaði þó brezka þegna við því
að vera á hverri stundu búna
við kalli um að fara í stríð. —
Chamberlain hefir sent mann
tvisvar, síðan hann kom heim
úr Godesberg-ferðinni á fund
Hitlers með friðar-boð, en um ut-
komuna er óljóst, nema þetta að
Chamberlain heldur ekki alla
von úti um frið.
Rússar ráðfæra
sig við Breta
Litvinoff utanríkismálaráð-
herra Rússa, sendi brezku
stjórninni skeyti s. 1. mánudag,
um að eina ráðið sem Rússa-
stjórn sæi til að stöðva Hitler
og bjarga friðinum væri að láta
hann vita að her væri að mæta
frá lýðræðisþjóðunum, ef hann
hefði sig í frammi.
EXTRA
Síðustu fréttir frá Evrópu, rétt áður en
blaðið fer í pressuna, herma, að Hitler hafi tjáð
sig fúsan að hætta við herútboð sitt og mæta á
fundi á morgun í Munich, þar sem Neville Cham-
berlain, Daladier, Hitler og Mussolini komi sam-
an til að íhuga hvað híögt sé að gera til að aftra
stríði. Hitler hefir slegið af kröfum sínum í
Sudeten-málinu, en býðst til að ganga að fyrstu
samningum Breta og Frakka.
Roosevelt tekur í
strenginn með Chamberlain
Franklin D. Roosevelt, for-
seti Bandaríkjanna, sendi Hitler,
Benes og Chamberlain skeyti
26. sept. viðvíkjandi ófriðar-
horfunum. Hann sagði í skeyti
til Hitlers, að Sudeten-málið
jværi engin ástæða fyrir verald-
arstríði og þyH'ti ekki að vera
það. Hann benti á ábyrgðina
sem á þjóðarleiðtogum hvíldi í
jþessu efni, Að steypa heimin-
um út í annað veraldarstríð
væri aðeins til að siga miljónum
manna út i dauðan, en varanleg-
j ur friður væri ekki fenginn með
jþví fremur en blóðbaðinu 1914.
Hitler svaraði skeyti þessu á
þá leið, að Roosevelt hlyti að
skilja, hve ill kjör Sudeten-
Þjóðverjar ættu við að búa.
Roosevelt sendivhonum í gær
annað skeyti og heldur í því hinu
sama fram, að hlutaðeigandi
þjóðir geti með aðstoð hlut-
lausra þjóða jafnað Sudeten-
deiluna.
U. S. með Bretum
Blaðið New York Herald Tri-
bune skýrði frá því í morgun,
!að ráðuneyti Bandaríkjastjórn-
j ar hafði eftir útvarpsræðu
j Chamberlains í gær, sent honum
skeyti og tjáð honum og Bretum
fyigi sitt.
|
j Tékkóslóvakía neitar
kröfum Hitlers
bergh kunni því illa, og loks
misti hann þolinmæðina með
öllu og bað náungann að hypja
sig sem snarast á brott. Þegar
maðurinn hvörki svaraði Lind-
bergh eða gerði sig líklegan til
að fjarlægjast hann, gerði Lind-
bergh sér hægt um hönd og sló
hann niður. G.P.U.-maðurinn,
er var meðvitundarlaus í 5 mín-
útur eftir höggið, hefir látið svo
um mælt, að Lindbergh muni
ekki vera síðri sem hnefaleika-
maður en flugmaður,
Eftir þennan atburð hefir
enginn nósnari verið á hælum
Lindberghs.—N. dUi.
Jan Mazaryk, sendiherra
Tékka í Bretlandi afhenti brezka
ráðuneytinu í gær ákvörðun
sína um að ganga ekki að síð-
ustu kröfum Hitlers. Að leyfa
erlendri þjóð að senda her lengst
jinn 1 land áður en samningar
! væru undirskrifaðir, væri svo
frekt og ósanngjarnt, að því yrði
,að mótmæla. Að öðru leyti kváð-
|ust Tékkar, jafnvel þó fórna
yrðu einhverju af ríki sínu,
jverða með hverjum þeim tillög-
um, er Bretar og Frakkar sæu
iað til friðar gætu leitt.
j
Lindbergh í Rússlandi
Lindbergh flugkappi dvelur í
Moskva um þessar mundir. Er
hailn hafður þar með í ráðum
um nýtt Norðurpólsflug Rússa.
En Rússar treysta Lindbergh
víst ekki fullkomlega, að minsta
kosti létu þeir G.P.U. mann veita
honum stöðuga eftirför. Lind-
Fellibylur með ægilegum
vatnavexti í ám, varð s. I.
fimtudag, 500 yianns að bana í
Atlantshafsríkj.unum nyrðri í
Bandaríkjunum. Harðast leikin
voru ríkin Massachusetts, New
Jersey, New York, New Hamp-
shire og Pennsylvania. Eigna-
tjón er metið úm 500 miljón
dalir.
* * *
Hreyfimynda-leikarinn heims-
kunni, Clarke Gable frá Holly-
wood er staddur í Winnipeg
um þessar múndir. Hann skemt-
ir sér hér við að skjóta andir.
Ú R V ALSRITGERÐIR
JóNASAR JóNSSONAR
Eins og skýrt hefir verið frá
í íslenzku blöðunum hér vestan
hafs, hefir Samband ungra
Framsóknarmanna á íslandi haf-
ist handa um útgáfu á úrvals-
ritgerðum Jónasar alþm. Jóns-
sonar, og kemur fyrsta bindi
þeirra út seint á þessu hausti.
Fyrir nokkrum dögum barst
mér bréf frá Jóni Helgasyni
blaðamanni í Reykjavík, þar sem
hann fór þess á leit, fyrir hönd
Sambands ungra Framsóknar-
manna, að eg safnaði áskrifend-
um meðal íslendinga í landi hér
að úrvalsritgerðum Jónasar
Jónssonar. Er mér mjög ljúft
að verða við þeim tilmælum, og
vænti, að þau fái verðskuldaðar
undirtektir. Jónas alþingismað-
ur er bæði gjörhugull og framúr-
skarandi ritsnjall, og þarf því
enginn að draga í vafa, að rit-
gerðir hans séu hinar athyglis-
verðustu fyrir margra hluta
sakir; enda eru fjölmargar
þeirra ýmsum kunnar hér vestra
úr íslenzkum blöðum beggja
megin hafsins.
Til Guttorms J. Guttormssonar
Hart er að þurfa að hrósa þér
á hreinum sannleiks nótum;
en kynleg játning kemur hér
og kannske á afturfótum:
Á Fróni gerast flestir nú
fleipnir, grunnir, hálfir,
svo íslenzkari’ ert allur þú
en vér heima sjálfir.
Fjórir bræður
Myndin sem hér fylgir, er af
f jórum bræðrum úr frumbyggja-
sveit íslendinga hér vestra. Eru
þeir komnir af hinni nafnkunnu
Hafnarætt, sem kemur víða við
sögu Austlendingafjórðungs. —
Faðir þeirra bræðra var Guð-
mundur Ásgrímsson, ættaður frá
Vopnafirði í Norður-Múlasýslu,
en móðir þeirra var Ingibjörg
Sveinsdóttir, og var hún dóttur
dóttir Jóns sterka, frá Höfn í
Borgarfirði eystra.
Hafa þessir bræður allir verið
búséttir norður við Manitoba-
vatn, í hinni svonefndu Álfta-
vatnsbygð, og hefir farnast vel,
hafa ætíð verið vinmargir, enda
drengir hinir beztu, og ötulir
starfsmenn á öllum sviðum.
Lesið frá vinstri til hægri handar:
Sveinn Guðmundsson ...........fæddur 1858
Einar Guðmundsson ............fæddur 1861
Guðmundur Guðmundsson ........fæddur 1863
Páll Guðmundsson..............fæddur 1866
Jak. Thor.
Upphafsbindi ritgerðasafnsins
er annars ágætlega lýst í þess-
um orðum Jóns blaðamanns
Helgasonar: “Fyrsta bindi rit-
gerðasafnsins kemur útúm mán-
aðamótin nóvember-desember og
hefir inni að halda margar
minninga-greinar og afmælis. Er
þar fjallað um líf og æfi á þriðja
tug íslendinga, er starfað hafa'
samtíða höfundinum. Er það
alt í senn, að Jónas Jónsson hef-
ir ritað um þetta fólk af næmari
skilningi, meiri kunnleika, meira
réttdæmi, meiri stílsnild heldur
öðrum hefir auðnast. Þessar
ritgerðir eru því margar mjög
traustar og góðar heimildir um
umbótabaráttpj þjóðarinnar hina
síðustu áratugi.”
Vil eg bæta því við, að í
nefndu bindi verða meðal ann-
ars ritgerðir um þessa menn og
konur, og eru þó hvergi nærri
allir taldir: Einar H. Kvaran
Hallgrím Kristinsson, Jón Bald-
vinsson, Jón Þorláksson, Krist-
björgu Marteinsdóttur á Yzta-
felli, Magnús Helgason, ólöfu
Bjarnadóttir á Egilsstöðum, Sig-
urð Jónsson á Yztafelli, Svein
Ólafsson í Firði og Tryggva Þór-
hallsson.
Þegar tekið er tillit til þess,
hversu framarlega þeir menn,
sem þar er lýst, hafa staðið í
menningarbaráttu þjoðar vorrar
á undanfórnum áratugum, verð-
ur augljóst hið mikla sög'ilega
gildi minningargreinanna um þá,
jafnhliða snild frásagnarinnar.
Þetta fyrsta bindi ritgerða-
safnsins verður 220-250 blaðsíð-
ur að stærð í Skírnisbroti, prýtt
allmörgum myndum, Það verður
selt áskrifendum 6 $1.10 óbund-
ið, en $1.65 í vönduðu bandi. Er
verðið mjög lágt fyrir svo stóra
bók, eftir því sem nú gerist,
enda mun bókhlöðuverðið eitt-
hvað hærra.
Þar sem hér er um mjög
merkilegt rit að ræða, og höf-
undurinn á vinsældum að fagna
meðal landa sinna hér í álfu,
veit eg að margir þeirra muni
vilja gerast áskrifendur að því.
Geta þeir hinir sömu skrifað
beint til mín, og væri æskiíegt,
að andvirði bókarinnar fylgdi.
Verður ritið svo á sínum tíma
sent áskrifendum, burðargjalds-
frítt. Kjósi menn það heldur,
geta þeir vitanlega fengið bók-
ina senda gegn póstkröfu.
Einnig væri mér þökk á því,
ef einhverjir í íslenzku bygðun-
um hérlendis vildu taka að sér,
að safna • áskrifendum að rit-
gerðasafninu í heimabygð sinni.
Hefi eg fyrirliggjandi eyðublöð,
sem safnandi gæti síðan sent til
mín að nafnasöfnuninni lokinni.
Richard Beck,
—Úniversity Station,
Grand Forks, N. Dak. U.S.A.
Stalin heilsuveill
Stalin, sem lengi hefir verið
heilsutæpur mjög, hefir hætt að
leita sér lækninga hjá inn-
lendum læknum. Hann hefir
komist að þeirri niðurstöðu, að
þeir leggi sig fram um að brjóta
niður heilsu hans í stað þess að
hjálpa honum.
Nú hefir einvaldurinn leitað á
náðir frægs, indversks töfra-
manns, sem kvaddur hefir verið
til starfa síns austan frá Ben-
gal. Hann hefir þegar verið um
hríð í Moskva.
Eitt mesta mein Stalins er
andvökurnar. Við minsta þrusk
þýtur hann upp, nötrandi eins
og hrísla. Slíkt getur líka hent
um hábjartan daginn. Það skeði
til að mynda nú fyrir skömmu,
er hann í lyftu einni sá mann,
sem líktist Trotsky mjög mikið.
Vesalings maðurinn, sem svo
mjög bar ytri einkenni Trot-
zkys, var þegar tekinn höndum
og fluttúr í fjarlægt og afskekt
hérað, svo að Stalin gæti verið
óhultur.
Aldís Magnússon frá Lundar,
Man., dó síðast liðinn laugardag
á Almenna sjúkrahúsinu í Win-
nipeg; hún var 51 lárs. Líkið
verður flutt norður að Lundar
til greftrunar.
* * *
Tilkynning
Hér með leyfi eg mér að til-
kynna fólki að fyrsta (1.) okt.
næstkomandi flyt eg að 272
Home St. Er það örskamt fyrir
sunnan Portage Ave., í Thelma
Apts, á fyrsta gólfi nr. 4. Verð
eg þar til viðtals frá kl. 3 til
5. e. h. Tálsími sami: 30 877.
Sig. Júl. Jóhannesson