Heimskringla - 28.09.1938, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 28. SEPT. 1938
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
JÓNAS JóNSSON ALÞM.
Að kvöldi þann 23. ágúst s. 1.
var kirkja Lúterstrúarmanna í
Seattle fullskipuð eitthvað yfir
200 manns var þar saman komið
til þess að sjá og heyra fyrver-
andi dómsmálaráðhei-ra íslands
og núverandi Alþingismann
Jónas Jónsson.
Það er engum blöðum um það
að flétta að það var óblandin
ánægja alira sem þarna voru
saman komnir að geta hlustað
á mann sem staðið hefir fremst-
ur í fylking frelsis og framfara
heima á ættjörðinni bæði sem
áhrifmikill stjórnmálamaður og
óviðjafnanlegur leiðtogi á ýms-
um öðrum sviðum þjóðinni til
hags og hamingju.
Alþingismaður J. J. kom fyrir
mín augu sem viðkunnanlegur
alþýðumaður vingjarnlegur og
yfirlætislaus engin reigingur
eða stolt í framkomu hans eins
og vildi stundum brenna við
hjáí sumum embættiismönnum
heima þegar eg var unglingur.
Eins og Vestur-íslendingum
er kurinugt er J. J. að ferðast á
meðal landa í Vesturheimi á
vegum Þjóðræknisfélagsins í
Winnipeg til þess að tengja
sterkari bpndum frændþjóðirn-
ar austan hafs og vestan, hann
er að mínum dómi mjög vel til
þess fallin. Því bæði er maður-
inn vel máli farinn og fjölment-
aður.
J. J. talaði bæði á ensku og ís-
lenzku í fullan hálftíma og beinti
hann ræðu sinni aðallega til
ungu kynslóðarinnar; mest var
það yfirlit yfir sögu vora frá
landnámstíð til vorra daga, og
svo hvatningsorð að læra og
reyna að halda við móðurmál-
inu. Hann sýndi einnig fram á
hvað íslenzkan væri mikilsverð
og lærdómsrík frá mentalegu
sjónarmiði þar sem hún hefð
verið aðal tungumál um alla
norðurálfu í fornöld og enn-
fremur gat hann þess að ensk-
an væri mjög auðug af orðum
sem væri upprunnin frá norræn-
unni.
Þar næst talaði J. J. hátt upp
í klukkutíma á íslenzku og
skýrði frá framförum á ætt-
jörðinni nú í síðast liðin aldar-
fjórðung; hann gat þess að
þjóðskuldin væri orðin nokkuð
há, sem lægi í augum uppi þar
sem akvegir væru komnir um
þvert og endilangt landið og
brýr yfir fjölmargar ár og fljót,
en ekki kvaðst hann vera hrædd-
ur um að skuldirnar yrði þjóð-
inni að fótakefli.
Hann kvaðst róa að því með
öllum árum að samband milli
Englands og íslands yrði ávalt
sem ákjósanlegast og þó það
kynni að koma fyrir að þýzkur-
inn legði undir sig Danmörk og
reyndi að gera fsland að her-
stöð mundu Bretar aldrei líða
þeim það, á meðan nokkur fleyta
sem þeir réðu yfir væri ofan
sjávar, • þeir mundu ekki kæra
sig um nð þýzkurinn hefði her-
stöðvar sínar rétt við dyrastaf-
inn hjá sér. Ræðumaður mint-
ist á það að íslendingar væru
lítið farnir að hugsa um hvað
þeir mundu gera viðvíkjandi
skilnaði frá Danmörk 1943. “Vér
viljum aðeins ^áta umheiminn
vita að við erum færir um að
ráða okkur sjálfir. Þó við sé-
um smáþjóð, sagði J. J.
Áherslu lagði J. J. á að sam-
band milli Vestur- og Austur-
íslendinga yrði ávalt sem bezt.
Hann |kvað æskilegt að Vestur-
og Austur-íslendingar skiftust á
mönnum, sérstaklega að prestar
að heiman kæmu hingað og þjón-
uðu söfnuðum hér vestan hafs
um tíma, og eins að vestur-ís-
lenzkir prestar færu heim og
þjónuðu) þar um tíma.
Þá mintist J. J. á vestur-ís-
lenzku blöðin, Heimskringlu og
Lögberg, hann kvað þau ómiss-
andi til viðhalds tungu vorri og
þjóðerni í landi þessu, og þar af
leiðandi ættu landar að styrkja
•þau af fremsta megni. Hann
kvaðst því fylgjandi að blöðin
héldu áfram að koma út bæði.
Það skapaði heilsusamlega sam-
kepni þó skoðunarmunur væri
stundum, ef ekki væri farið
út yfir friðsamleg og skynsam-
leg takmörk.
J. J. ber óefað mikinn hlýhug
til okkar Vestur-íslendinga og
þar sem hann er viðurkendur
bæði mikilhæfur og víðsýnn
leiðtogi á stjórnmálasviði ís-
lands, erum við vissulega glaðir
að hann heimsótti okkur og flyt-
ur vinarkveðju á milli frænd
þjóðanna austan hafs og vestan.
Vér þökkum því AJþingis-
manni Jónasi' Jónssyni fyrir
komuna hingað vestur. Vér
þökkum honum fyrir alúðlega
framkomu og að síðustu þökkum
vér honum fyrir hlýleg orð töluð
í okkar garð.
Vér óskum honum allrar ham-
ingju á óförnum leiðum og það
er ennfremur okkar fylsta ósk
að hann haldi áfram að vera leið-
togi íslenzku þjóðarinnar á
brautum frelsis og frama.
J. J. Middal.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Verlunarjöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 4.6 miljónir króna
Verzlunarjöfnuðurinn var ó-
jhagstæður um nálægt 4.6 miljón-
ir krónur um síðustu mánaða-
mót. í fyrrra var hann óhag-
stæður um 2.7 milj. um sama
leyti.
í ágústmánuði í ár nam verð-
mæti útfluttra vara 7559 þús.
kr. en innflutningur nam 3977
þús. kr. Hefir þá alls verið
flutt inn á ári fyrir 34889 þús.
kr., en út fyrir 30297 þús. kr.
Á sama tíma í fyrra nam út-
flutningurinn 34,663 þús. kr.
—N. Dbl. 9. sept.
* * *
Stórfeld ávísanafölsun
Lögreglan hefir hina síðustu
daga haft til meðferðar ávísana-
fölsunarmál allvíðtækt. Er þess-
um rannsóknum, sem Ragnar
Jónsson, fulltrúi lögreglustjóra
hafði með höndum, lokið.
Hefir danskur maður, Carl
Christensen, játað á sig sektina,
ásamt þremur mönnum öðrum,
Þórarni Vigfússyni, Hverfisgötu
98, Magnúsi Jónssyni, Bröttu-
götu 8B og Ragnari Kristni
Pálssyni, Bröttugötu 6.
Alls var um að ræða þrjár
ávísanir, sem þeir félagar höfðu
falsað og tekist að selja. Hljóð-
uðu þær samtals upp á 3681
krónu. Eina þessara ávísana
hafði Þorsteinn Þorsteinsson
kaupmaður í Keflavík keypt, úti-
bú Landsbankans að Selfossi
aðra, en útibú útvegsbankans á
Akureyri hina þriðju. Hljóðaði
hin síðastnefnda ávísun upp á
1894 krónur og var gefin út á
nafn Ragnars Jónssonar, pr.
Smjörlíkisgerðin h.f. Játaði
Christensen að hafa búið til
stimpil smjörlíkisgerðarinnar,
sem hann notaði við þessa föls-
un.
Lögreglunni hefir tekist að ná
1655 krónum af fénu.
Afbrotamennirnir bíða nú
dóms.—N. Dbl. 9. sept.
* * *
7 sólarhringa hrakningur á
vélbát, með bilaða vél
Fyrra sunnudag fór vélbátur-
inn Keilir frá Keflavík í veiðiför,
með dragnót upp í Mýrabugt, en
á mánudagskvöld bilaði vélin og
reyndist deáel véjarinnar
sprungið inn. Lagðist báturinn
þá við akkeri og lá þannig í 6
sólarhringa og náði hvorki sam-
bandi við land né önnur skip og
er þó ekki nema 2 y2 míla til
lands og talsverð bygð. Bátur-
inn dró upp neyðarflagg og
þeytti þokulúður á daginn en
kynti bál um nætur, en alt kom
fyri ekki. Þann 5. þ. m. gekk
vindur til austur og gat þá bát-
urinn bjargað sér á segium út
úr skerjunum og komst á 24
stundum til Keflavíkur. Fjórir
menn voru á bátnum, og var
allur matur þrotinn og vatn al-
'veg að þrjóta.—N. Dbl. 9. sept.
* * *
Aldarafmæli Torfa í Ólafsdal
Sunnudaginn 28. ág. voru 100
ár liðin frá fæðingu Torfa
Bjarnasonar í Ólafsdal. Ríkis-
útvarpið mintist hans þá með
ræðu, er Metúsalem Stefánsson
flutti.
Torfi fór á unga aldri til Skot-
lands, og dvaldi þar rúml 1 ár
við jarðyrkjustörf og einnig við
framleiðslu landbúnaðarverk-
færa í verksmiðju einni. Skömmu
eftir heimkomu sína settist hann
að búi í Ólafsdal, er þá var
rýrðarjörð, og gerðist þegar
hinn mesti búsýlumaður og bún-
aðarfrömuður. Stofnaði hann
búnaðarskóla á heimili sínu,
hinn fyrsta hér á landi, og starf-
rækti hann í 27 |ár. Auk þess
smíðaði hann ýms landbúnaðar-
verkfæri, er hér höfðu ekki
þekst áður.
Hann flutti fyrstur til lands-
ins skozku ljáblöðin, sem út-
rýmdu á skömmum tíma gömlu
einjárnungunum og juku afköst
sláttumannsins að miklum mun.
Búfræðingar frá ólafsdal
fluttu hvarvetna með sér þýð-
ingarmiklar nýjungar í búnað-
arháttum og glæddu áhuga
bændanna fyrir umbótum á
jörðum sínum. Á þann hátt
markar Torfi í ólafsdal tíma-
mót í sögu landbúnaðarins hér
á land.—fsl. 2. sept.
m * *
Vestmannaeyingar vilja koma á
flugsamgöngum milli
lands og eyja
Allmargir menn í Vestmanna-
eyjum stofnuðu félag með sér
síðastliðinn sunnudag með þv'
markmiði, að koma á fót flug-
samgöngum milli Eyja og lands.
Framkvæmdarnefnd var kosin
þess að hrinda af stað rannsókn-
um á skilyrðum til þessa. f
nefndinni hlutu sæti þeir Hall-
dór Guðjónsson kennari, Hinrik
Jónson bæjarstjóri og Kristján
Linnet bæjarfógeti. Mikill á-
hugi er fyrir þesu máli meðal
Vestmanneyinga.—Vísir 2. sept.
* * *
Ný bók eftir F. B. A.
í sept. kemur í bókaverzlan-
irnar hér á Akureyri bók eftir
Frímann B. Arngrímsson, sem
nefnist: Minningar frá London
og París. Geir Jónasson magi-
ster hefir búið bókina undir
prentun, en *bókaútgáfan Edda
Ak. er útgfeandi hennar. Verð-
ur það allstór bók, 11 arkir. —
Mörgum mun leika hugur á að
lesa og eignast þessa eflaust sér-
kennilegu og skemtilegu bók.
—fsl. 26. ág.
* * *
Samsæti (á Akureyri)
til heiðurs vestur-íslenzka
skáldinu Guttormi J. Guttorms-
syni var haldið í Skjaldborg á
þriðjudagskvöldið. — Sóttu það
um 50 manns. Sig. Eggerz bæj-
arfógeti setti samsætið, en sr.
Benjamín Kristjánsson mælti
fyrir minni heiðursgestsins. —
Auk þeirra töluðu: Sigurður
Guðmundsson skólameistari, —
séra Þorvarður G. Þormar og
Helgi Valtýsson, en skáldið
þakkaði. Ennfremur var sungið
milli ræðnanna. Samsætið var
haldið af tilhluntun Stúdentafél.
Ak.—fsl. 26. ág.
* * *
Út Borgarfjarðarhéraði
Heyskapur hefir gengið ágæt-
lega í héraðinu og nú vjða langt
komið að slá tún öðru sinni.*—
Sumstaðar voru tún eins vel
sprottin, er síðari sláttur hófst,
og í sláttarbyrjun í sumar. — í
Borgarnesi og grend hafa nokk-
urir blettir verið þríslegnir.
Mæðiveikin virðist víðast í
rénun, en á ýmsum bæjum er fé
enn að hrynja niður, t. d. í
vesturhreppum Mýrasýlu.
—Vísir 30. ág.
* * *
Esja seld úr landi
Strandferðaskipið Esja hefir
verið selt ríkistjórninni í Chile
Voru kaupsamningar undirritað
ir í Kaupmannahöfn í gær og j
annaðist Pálmi Loftsson frkv.-'
stjóri sölima f. h. ríkistjórnar-j
innar. Kaupverðið er 350,000
ísl. krónur, en Esja var smíðuð
1923 og kostaði um 1 milj. kr.
(800 þús. danskar).
Söluverðið er talið gott. Skip-
ið mun ekki verða “klassað” áð-
ur en afhending fer fram, en
til stóð að “klössun” færi fram
og fylgir henni allmikill kostn-
aðúr.
Alþngi heimilaði að selja Esju
og kaupa nýtt mótorskip í henn-
ar stað. Hefir verið leitað til-
boða um smíði á nýju skipi er
verður 1100—1200 smálestir, og
hefir rúm fyrir 150—165 far-
þega og helmingi stærra lestar-
rúm en Esja.
Afhending á Esju fer fram í
október. Lætur ríkistjórnin í
Chile sækja hana hingað á sinn
kostnað. Skipið verður notað
til strandferða við Chile.
—.Vísir, 30. ág.
* * *
Fannkoma á Norðausturlandi
Veður hefir verið mjög hryss-
ingslegt á Norðausturlandinu
tvo síðustu daga. í gær var þar,
hriðarveður af austri og gerði
alhvíta jörð niður til sjávar í
Þistilfirði, á Langanesi og í
Vopnafirði.
Hefir snjóað í þessum bygðar- J
lögum í öllum mánuðum ársins, j
þótt eigi hafi kveðið jafn mikið
að því í júní og júlí sem nú.
—N.; Dbl. 30. ág.
* * *
Sauðfjárslátrun hafin
Sauðfjárslátrun var hafin í
gær í Reykjavík, Hafnarfirði,
Siglufirði, á Akureyri, Eyrar-
bakka og við ölfusarbrú. Er það
nokkuru síðar heldur en verið
hefir undanfarin sumur.
Verðið á dilkakjötinu hefir
hér í Reykjavík verið ákveðið
kr. 1,80 , heildsölu, en kr. 2,10
hvert kg. í smásölu.
Jafnframt lækkar verð á
frystu kjöti og verður það selt
á kr. 1,20 hvert kg. í heildsölu,
en kr. 1,40 í smásölu.
Verð á nýju kjöti er því hið
sama og um þetta leýti í fyrra.
—N. Dbl. 30. ág.
Biskupskosning
fer fram í næsta mánuði og
skal vera lokið um mánaðamót-^
in. Eiga atkvæðisrétt hinir
starfandi prestar þjóðkirkjunn-
ar, alls 103, þrír guðfræðikenn-
arar og núverandi biskup. í
prófkosningu er stjórn Presta-
félagsins lét fara fram, tóku 98
menn þátt og félllu atkvæðin á
átta menn. Hlaut Sigurgeir Sig-
urðsson prestur á fsafirði flest
atkvæði, 32, Bjarni Jónsson
dómkirkjuprestur 27, Magnús
Jónsson prófessor 16, séra Þor-
steinn Briem 9, séra Björn Mag-
nússon 7, Ásmundur Guðmunds-
son prófessor 3, Friðrik Rafna?
prestur á Akureyri 3 og Guð-
mundur Einarsson prestur á
Mosfelli 1. Hinn nýi biskup tek
ur við embættinu um áramótin.
—N. Dbl. 1. sept.
* * *
Síldveiðin
er mikið að glæðast að nýju
og barst í gær meiri reknetasíld
heldur en nokkru sinni áður á
þessu sumri, alls um 4000 tunn-
ur. Mest var síldin sögð við
Málmey og Drangey. Komu
mörg skip þaðan með góðan afla
og fleiri voru væntanleg í gær-
kvöldi og í nótt. Einnig var
talsverða síld við Rauðunúpa og
Haganesvík, en þó voru torfurn-
ar fremur þunnar og verulega
góð köst fengust þar ekki. í
Eyjafjarðarmynni varð einnig
vart við stórar síldarvöður.
—N. Dbl. 1. sept.
* * *
V ínlandsferðirnar
Prófessor Halldór Hermanns-
son flytur á vegum háskólans 3
fyrirlestra um “Vínlandsferðirn-
ar og samband þeirra við fund
Ameríku á 15. öld.” Fyrirlestr-
arnir ræða í fyrsta lagi um
ferðir norænna manna vestur
um haf og landafundi þeirra þar,
heimildirnar fyrir þessum ferð-
um og áreiðanleik þeirra, og
hvar vætna megi, að lönd þau,
er fundin voru, hafi legið. Þar
næst um það, hvort frásagnir
um þessar ferðir hafi borist til
útlanda og hvort þær hafi haft
nokkur áhrif á seinni tíma
menn, einkum Christopher Col-
umbus og John Cabot. Sýndar
verða skuggamyndir af gömlum
kortum til skýringar. — Fyrir-
lestrarnir verða fluttir í Odd-
fellowhúsinu 5., 7. og 9. sept. og
hefjast kl. 8, og er öllum héimill
aðgangur.—N. Dbl. 4 sept.
* * *
Sænska stjórnin
hefir veitt 4000 króna styrk
sænskum studenti til að nema
við Háskóla íslands. Styrkþeg-
inn á jafnframt að annast
kenslu í sænsku máli og bók-
mentum við Háskóla fslands.
—N. Dbl. 1. sept.
* * *
Dómar um leikrit
Tryggva Sveinbjörnssonar
Við frumsýningu á hinu nýja
leikriti Tryggva Sveinbjörnsson-
ar á Konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn, yar hvert sæti
uppselt. Viðstaddir voru meðal
annara Hermann Jónasson for-
sætisráðherra og Sveinn Björns-
son sendiherra. — Áhorfendur
tóku leikritinu mætavel, og var
höfundur kallaður fram að sýn-
ingu lokinni.
Leikdómarar eru ekki á eitt
sáttir um verkið. “Politiken”
hefir ýmsar athugasemdir fram
að færa. “Berlingske Tidende”
lætur svo um mælt, að tilsvörin
séu full af lífi og borin uppi af
mannlegum skilningi. “National-
tidende” telur leikritinu ábóta-
vant, að því er rittækni snertir,
en segir, að í því gæti tilfinn-
ingadýptar og kyrrlátrar alvöru-
hygðar, sem sé sjaldgæf orðin í
dönskum leikritaskáldskap. “Jyl-
landsposten” kallar leikritið fróð
legt skáldverk um hjónabands-
vandamál, auðugt að vel upp-
bygðum og leikrænum viðburð-
um. “Berlingske Aftenavis” tel-
ur leikritið skemtilegt og segir,
að hin fimlega upphugsuðu atvik
og tilsvör geri það skiljanlegt,
að áheyrendur hafi stöðugt lát-
ið í Ijósi hrifningu sína og að
síðustu kallað fram höfundinn.
—N. Dbl. 4. sept.
Þér sem notiS—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
WrgOlr: Henry Ave. Kaat
Sími 95 551—95 552
Skrtfstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ANÆGJA
SJÓNVARP í
ÞÝZKALANDI
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
(Þjóðtrúin um hæfileikann til
að sjá gegn um holt og hæðir
er nú orðinn að veruleika. Eitt
af síðari nýmælunum á sviði
tækninnar er sjónvarpið — víð-
varp mynda. Það þótti á sínum
tíma saga til næsta bæjar, að
hægt væri að heyra mál manna
í mikilli fjarlægð, án þess að um
nokkurt þráðsamband væri að
ræða. Á síðustu tímum hefir
bætzt við nýtt undrunarefni á
þessu sviði. Auk þess að geta
hlustað á frásagnir og marg-
víslega tónlist í fjarlægum lönd-
um og landshlutum, eiga menn
þess nú kost að sjá með eigin
augum atburði, sem gerast í
mikilli fjarlægð. — f eftirfar-
andi grein segir nokkuð frá fyr-
irhuguðu sjónvarpi í Þýzka-
landi.)
Sjónvarpinu þokar nú æ lengra
á veg. Á Englandi hófst það á
s. 1. ári, en árangur af þeirri
starfsemi þar er ekki góður, enn
sem komið er. Ástæðan er talin
sú, að það hafi verið byrjað of
snemma, tæknin í þessum efnum
hafi ekki verið komin á nægilega
hátt stig.
Nú hafa Þjóðverjar, að því er
bezt verður séð, tekið forystu í
þessum efnum. Telja ^>eir sig
standa öllum þjóðum framar,
hvað snertir tækni í sjónvarpi.
Fyrir skömmu síðan var stór
útvarpssýning í Berlín. Við opn-
un sýningarinnar lýsti útbreið-
slumálaráðherrann, dr. Göbbels,
því yfir, að sjónvarp yrði nú
gefið frjálst, og mundi það vænt-
anlega komast inn á hvert heim-
ili í Þýzkalandi innan skamms.
Sjónvarpið mun fara fram frá
3 stöðvum, sem eru í Berlín,
Brocken í Harzen og við Frank-
furt am Main. Tvær þær síðar-
nefndu standa á fjallatoppum.
Því hærra, stöðvarnar standa,
því stærra svæði nær sjónvarp
þeirra yfir.
Frh. á 7. bls.
All-Canadian victory for pupils of
DOMINION BUSINESS
COLLEGE at Toronto Exhibition
Pupils of the DOMINION BUSINESS COLLEGE,
Winnipeg, were awarded FIRST PLACE in both
Novice and Open Schooi Championship Divisions of
the Annual Typing Competition.
Miss GWYNETH BELYEA won first place
and silver cup for highest speed in open
school championship with net speed of 92
words a minute..
Mr. GUSTAVE STOVE won first place and
silver cup for highest speed in Novice Sec-
tion of typing-contest. His net speed was
76 words a minute.
Miss HELEN BRIX, another D. B. C. pupil,
won second place for accuracy in the novice
division!
Miss DOROTHY MAXWELL, a D. B. Q.
student, came fourth in the open school
championship section!
The Dominion sent four pupils to Toronto
and they won two firsts, a second and a
fourth place!
The contest officials announced at the Coliseum before an
audience of 9,000 people that the Dominion Business
College, Winnipeg, had the best showing of any com-
mercial school in the competition!
There were 107 contestants!
ENROL NOW
DOMINION
BUSINESSCOLLEGE
WINNIPEG
FOUR SCHOOLS: THE MALL—
ST. JAMES — ST. JOHN’S — ELMWOOD
(