Heimskringla - 19.04.1939, Side 7
WINNIPEG, 19. APRÍL 1939
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ÞEGAR ÞJÓÐIN
FAGNAÐI GULLFOSSI
Sigurður Pétursson skipstjóri,
sjómaður í 44 ár
UM næstu mánaðamót eru 24
ár liðin síðan Sigurður Pét-
ursson sigldi Gullfossi í fyrsta
sinn frá Kaupmannahöfn, hinu
fyrsta millilandaskipi, sem ís-
lendingar eignuðust eftir margra
alda yfirráð annara þjóða 'yfir
flutningum til og frá landinu.
Eg hitti Sigurð að máli er
Gullfoss fór héðan síðast, og
spurði hann dálítið um siglingar
hans. En Sigurður skipstjóri
er, eins og allir vita, yfirlætis-
laus maður með afbrigðum, er
vill sem minst segja um það, er
honum sjálfum viðkemur.
— Hve langt er síðan þú byrj-
aðir sjómensku? spyr eg Sigurð.
— Það var árið 1895, að eg
gerðist háseti á fiskiskútu, þá 14
ára. 3 ár var eg skipstjóri á
fiskiski[tj föður míns, ,Milly.
Eftir það var eg eitt ár skip-
stjóri á skipi, sem hét Bergþóra,
og fór á því tvær ferðir til Nor-
egs. Árin 1907—09 var eg stýri-
tnaður á fljótbátnum Ingólfi sem
hafður var í Borgarnesferðum,
síðan stýrimaður á Thore-skip-
inu Austra og á Mjöni var eg
stýrimaður um það leyti sem
Eimskipafélagið var stofnað.
— Hafðir þú nokkurn sérstak-
an undirbúning undir starf þitt
hjá Eimskip?
— Já. Eg fór á skóla loft-
skeyta manna í Svendborg til
þess að læra þar loftskeytafræði
og tók próf þar sem loftskeyta-
maður. Þá var farið að hafa
loftskeyti á skipum, þó það væri
heldur fátítt. En hugmyndin
var, að skipstjórarnir sjálfir
hefðu það starf með höndum á-
samt skipstjórninni.
Þegar svo Gullfoss hljóp af
stokkunum, var ófriðurinn skoll-
inn yfir, og loftskeytatæki feng-
ust ekki í skipið, eins og til stóð.
Og þegar þau fengust, þá voru
þau harla lítið notuð. Því mað-
ur var ekki að gera sér leik að
því meðan á ófriðnum stóð, að
láta vita hvar maður væri stadd-
ur á hafinu. Enginn vissi hvað-
an voðinn gat kpmið í þá daga.
En eg fékk aldrei not fyrir mína
loftskeytatækni, því það þótti
ekki gerlegt að hafa það öðruvísi
er til kom, en sérstakur loft-
skeytamaður væri á skipinu.
— Var það ekki ill æfi að vera
á sjónum meðan á ófriðnum
stóð?
— Tvisvar hittum við kaf-
báta, það var alt og sumt. Én
Gullfoss var líka mikið af ófrið-
arárunum í Ameríkuferðum. Eg
hugsaði ekki um annað en skipið,
og að skipstjórn öll færi sæmi-
lega úr hendi, farþegunum liði
bærilega. Og umgengni á skip-
inu væri góð. Þá var mér um-
hugað um, að spár sumra manna
um að við íslendingar hefðum
reist okkur hurðarás um öxl með
stof n u n Eimskipafélagsins,
reyndust hrakspár. Að við yrð-
um að sýna, að við værum menn
til þess að stjórna skipi eins og
Gullfossi, og láta þá stjórn fara
vel úr hendi. Þetta var mín
hugsun. Annað komst þar ekki
að.
Það vantaði ekki að maður
væri mintur á það fyrsta árið,
að fólk yrði að treysta skipstjór-
anum á fyrsta skipinu. Á hverri
höfn kom múgur og margmenni
um borð í skipið til að skoða
það hátt og lágt, og dást að
þessari miklu nýjung með þjóð:
inni. Mér eru minnisstæðastir
gömlu menirnir, sem komu sum-
ir langar leiðir til að sjá skipið
og fagna því. Þeir voru svo
hrifnir af að þeir fengu að lifa
þá tíma að landsmenn tækju
siglingarnar aftur .í sínar hend-
ur. Þeir létu óspart hrifning
sína í ljós. Og svo voru öll kvæð-
in og kviðlingarnir sem skipið
fékk. Mér þykir verst að eg
skyldi ekki hafa haldið þeim
kveðskap öllum saman. En eg
hafði ekki hugsun á því í þá
daga. Hún komst ekki að fyrir
umhugsuninni um starfið sjálft.
— Hvénær lagðir þú á stað í
fyrstu ferðina?
— Það var 1. apríl 1915 að
Gullfoss fór frá Höfn. Við kom-
um til Reykjavíkur 16. sama
mánaðar. Viku urðum við að
liggja í Leith í þeirri ferð. Það
var venjan þá, að viðdvölin var
svo löng þar. Öll skipsskjölin
varð að senda til London. Og þar
voru þau rannsökuð nákvæm-
lega, hvort ekkert væri í skip-
inu sem ekki mátti þar vera sam
kvæmt vilja Breta. Frá Reykja-
vík fórum við til Vestfjarða. —
Meðan við vorum í þeirri ferð,
varð hér bruninn mikli. Þá
iNNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth...........
Antler, Sask.......
Árnes..............
Árborg.............
Baldur.............
Beckville..........
Belmont............
Bredenbury.........
Brown..............
Churchbridge.......
Cypress River......
Dafoe..............
Ebor Station, Man...
Elfros.............
Eriksdale..........
Fishing Lake, Sask.
Foam Lake..........
Gimli..............
Geysir.............
Glenboro............
Hayland............
Hecla..............
Hnausa.............
Húsavík............
Innisfail..........v
Kandahar...........
Keewatin...........
Langruth...........
Leslie.............
Lundar.............
Markerville........
Mozart.............
Oak Point..........
Oakview............
Otto...............
Piney..............
Red Deer...........
Reykjavík..........
Riverton...........
Selkirk............
Sinclair, Man......
Steep Rock.........
Stony Hill.........
Tantallon..........
Thornhill..........
Vfðir..............
Vancouver..........
Winnipegosis.......
Winnipeg Beach.....
Wynyard............
.........J. B. Halldórsson
........K. J. Abrahamson
.......Sumarliði J. Kárdal
.........G. 0. Einarsson
.......Sigtr. Sigvaldason
.........Björn Þórðarson
............G. J. Oleson
..........H. 0. Loptsson
.......Thorst. J. Gíslason
—......H. A. Hinriksson
..........Páll Anderson
..........S. S. Anderson
.......K. J. Abrahamson
.......J. H. Goodmundson
..........ólafur Hallsson
..........Rósm. Árnason
..........H. G. Sigurðsson
.............K. Kjernested
........Tím. Böðvarsson
.............G. J. Oleson
.........Slg B. Helgason
.......Jóhann K. Johnson
.........Gestur S. Vídal
..........John Kernested
.......Ófeigur Sigurðsson
..........S. S. Anderson
.........Sigm. Björnsson
............B. Eyjólfsson
.......Th. Guðmundsson
Sig. Jónsson, D. J. Líndal
.... Ófeigur Sigurðsson
.........S. S. Anderson
........Mrs. L. S. Taylor
..............S. Sigfússon
.............Björn Hördal
..........S. S. Anderson
.......ófeigur Sigurðsson
.............Árni Pálsson
.......Björn Hjörleifsson
....Magnús Hjörleifsson
.......K. J. Abrahamson
.............Fred Snædal
.............Björn Hördal
.........Guðm. ólafsson
.......Thorst. J. Gíslason
..........Aug. Einarsson
.......Mrs. Anna Harvey
....Finnbogi Hjálmarsson
..........John Kernested
..........S. S. Anderson
í BANDARÍK.JUNUM:
Akra........,.........................Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier...v...........................Jón K. Einarsson
CrystaJ...............................Th. Thorfinnsson
Edinburg..............................Th. Thorfinnsson
Garðar................................Th. Thorfinnsson
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson../.............................Jón K. Eiinarsson
Hensel..................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ágmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.....................................S. Goodman
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarsson
Upham..................................E. J. BreiðfjörO
The Viking Press Limited
Winnipeg; Manitoba
brunnu skrifstofur Eimskipafé-
lagsins í Edinborg.
Er við komum aftur hingað,
vorum við sendir til New York,
eftir hveitifarmi.
— Hvað voruð þið lengi til
New York?
— Við vorum ekki nema 9
daga. Það var fljótasta ferðin
sem við fengum hér á milli, skip-
ið nýtt, tómt, veðrið gott. Þegar
kom í þá miklu höfn varð eg
ennþá hreyknari yfir Gpllfossi
okkar en eg áður hafði verið.
Því þar í þeim skipagrúa þótti
hið íslenzka skip svo fallegt. Til-
fellið er, að Danir hafa lag á að
smíða falleg skip. Og þeir hafa
lag á að smíða skip, sem eru
bæði fyrir farþega og flutning.
Ameríkumönnum fanst allur frá-
gangur á Gullfossi svo nettur, að
hann minti á smækkað úthafs-
skip.
— Voru Ameríkuferðirnar
annars ekki oft erfiðar?
— Veðrin í Atlantshafinu eru
vitaskuld þau sömu hvort maður
fer hér milli landa eða yfir þvert
hafið. En mismunurinn er
þessi, að við vorum svo lengi í
hafi í vesturferðunum, að við
fengum þetta kannske þrenn ó-
veður í sömu ferðinni, hvert eft-
ir annað með stuttu tímabili. En
hér er svo stutt milli íslands og
Skotlands t. d. að hreppi maður
eitt ofviðri á þeirri leið, þá er
maður kominn nálægt landi áður
en það næsta skellur yfir.
Gullfoss er náttúrlega ekki
smíðaður fyri slíkar langferðir.
Og aðgæslu þurfti að hafa á því,
að kolabirgðir entust yfir hafið.
Eg tók ein 60 tonn af kolum í
poka á þolfarið og setti þau í
kolahólfin jafnóðum og hólfin
tæmdust. Samt varð eg eitt sinn
að fara til Halifax eftir 16 daga
ferð yfir hafið til þess að fá kol
til að komast til New York.
Þegar við komum úr fyrstu
Ameríkuferðinni fórum við aft-
ur í siglingar til Hafnar. Og
þeim héldum við svo áfram þar
til hinn ótakmarkaði kafbáta-
hernaður byrjaði í febrúarbyrj-
un 1917.
Rétt áður en hann skall yfir
vorum við í Stafangri að losa
kjöt. Við vorum á eftir áætlun
og reyndum að flýta okkur eftir
megni. Uppskipun var lokið um
nóttina, svo við sigldum þaðan
kl. 4. En ef við hefðum verið |
kyrrir þar til morguns, hefðum I
við fengið skeyti um að sigla til |
Englands og taka þar kol. Átti í
sá kolafarmur að nást áður en |
þýzku kafbátarnir slógu hring j
um England. En þá fyrirskipun !
fengum við ekki og fórum því til |
Hafnar og lágum þar fram í
Apríl. Þá sigldum við beina leið
til Reykjavíkur, og vorum síðan
í Ameríkuferðum uns stríðinu
lauk.
— Hafa siglingar ekki orðið
miklum mun auðveldari með hin-
um nýjustu tækjum, en þær voru
fyrir 24 árum?
— Jú. Þar er mikill munur á,
eins og gefur að skilja. Tækin
sem eru notuð við siglingarnar,
gera okkur sjómönnum mögu-
legt að komast fljótar leiðar
okkar en áður var.
— Það er ekki hægt að hugsa
sér meiri hjálp við siglingarnar
en miðunartækin og bergmáls-
dýptarmælinn. Með því að fá
miðanir og geta séð dýpið án
þess að stöðva skipið eða tefja,
getum við oft haldið áfram, þar
sem við hefðum orðið að halda
kyrru fyrir eða fara mjög hægt
án tækja þessara.
En því er ekki að neita, að það
er hugsanlegt, að maður haldi á-
fram lengur en góðu hófi gegnir,
er maður hefir þessi tæki. Því
það er alveg sama hvað tækin
eru góð, að ef maður sér sama
og ekkert út frá skipinu, þá má
maður ekki fará inn á þröngar
hafnir eða leita lands. En sjáist
ákveðna vegalengd þá er hægt að
halda áfram.
Þó hraðinn aukist með hverju
ári og kröfurnar til þess að skip-
in haldi áætlun, verða menn
altaf að nota tækin með var-
kárni, gefa sér nægan tíma, láta
enga vanstillingu komast að. —
Þegar eg þarf að gæta sérstakr-
ar varúðar í skipstjórn, vil eg
helst ekki sjá nokkurn mann —
vil helst loka mig úti frá far-
þegum og hugsa mitt mál í næði.
— Hvenær hefir þú fengið
hann einna krappast á Gullfossi
þessi 24 ár?
— Það er ekki gott að gera
greinarmun á því, hvenær við
höfum fengið verst sjóveður.
Mér hefir aldrei fundist að við
hafa komist í neina verulega
hættu, segir Sigurður. Og með
hinu góðláta brosi sínu vill hann
eins og gefa til kynna, að hafi
hann einhverntíma átt erfiða
daga á sjónum, þá sé hann bú-
inn að gleyma því. V. St.
—Lesb. Mbl.
- NAFNSPJÖLO -
=*
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finnJ á skrifatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimlll: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 153 Thorvaldson & Eggertson Lögfræðingar 705 Confederation Life Bldg. Talsíml 97 024
OrricE Phone Res. Phone 87 293 >72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MKDICAL ARTS BUILDINQ OrncE Hodes: 12-1 4 P.M. - 6 P.M. »ND BT APPOINTMENI W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKl R LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfl 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa etnnig skrifstofur að Lmidar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miðvikudag i hverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannesion 272 Home St. Talsiml 80 877 ViOtalstlmi kl. 8—5 e. h. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Leetur ÚU meðöl < vlðlögum Viðtalstímar kl. 2 4 *. h. 7—8 að kveldinu Simi 80 867 666 Victor 8t.
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg' A. S. BARDAL selur líkkistur og annaat um útíar- ir. Allur útbúnaður sá besU. — Ennfremur selur hann allskonar minnlsvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE 8T. Phone: 36 607 WINNIPEG
Gunnar Erlendsson Pianokennarl Kenslustofa, 796 Banning St. Sími 89 407 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage and Furniture iloving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Axrnajt allftkx?nar ílutnlnga fram og aítur um bœinn. Rovatzos Floral Shop «06 Notre Dame Ave. Phone »4 954 Freeh Cut Fiowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouqueta & Funeral Designs Icelandic spoken
DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Office 88124 Res. 36 883 MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 354 BANNING ST. Phone: 26 420
ið hvíldar og hressingar og auðg-
að anda sinn að þekkingu og
áhuga fyrir góðum málefnum.
410 Medical Arts Bldg.
Dr. K. J. AUSTMANN
SUMARDVÖL OG
NÁMSSKEIÐ
Balinn er iðgrænn og sléttur,
skógurinn angandi og yndislegur
á þrjá vegu, en Winnipeg-vatn
til austurs, örfandi, töfrandi í
sínum margvíslegu blæbrigðum,
mislynt eins og mannkynið:
stundum rósamt, slétt eins og
spegill; stundum hamslaust eins
og óður jötunn, upprás sólar á
því er fögur, mánaskinið eins
og glitrandi silfur, og myndirnar
af ströndinni við og við dásam-
legar.
í þessu umhverfi, einar tvær
mílur fyrir norðan Gimli-bæ er
heimili fyrir dvalar-fólk, sem
tilheyrir “Canadian Sunday
School Mission”. Bandalag lút.
kvenna hefir fengið það leigt
fyrir vestur-íslenzka æsku til
gamans og alvöru dagana, 12. til
21. ágúst á þessu sumri.
Félagsskapurinn, sem starf-
rækir þetta mót hefir nú þegar
mörgu góðu til leiðar komið. —
Hann gefur út ársrit, Árdís;
hann hefir safnað konum saman
um nytsamleg málefni, þar sem
konur hafa flutt hvetjandi og
fræðandi erindi, og ekki sízt, það
hefir komið á fót mjög heil-
brigðu og nauðsynlegu fræðslu-
starfi um kristindóminn í ýms-
um bygðum. Nú vill þessi vin-
sæli og góði félagsskapur safna
ungu fólki saman, þar sem það
getur haft ánægjulega dvöl, not-
Þessháttar mót tíðkast nú
mjög í umheimi vorum, í raun
og veru út um öll Bandaríkin og
Canada. Á þessa staði sækja
hópar hinna ungu og jafnvel
þeirra sem ekki eru svo mjög
ungir. f réttu ástandi sameina
þessi mót ætíð þetta tvent: un-
aðinn af fjálsu lífi burt frá
borgarykinu og þroskann sem
andleg fræðsla veitir. Fjöldi
manna hverfur svo heim af þess-
um mótum hæfari tli starfsins
sem þeir eru að inna af hendi og
ánægðir yfir sumardvölinni. Hún
færði þeim líkamlega og andlega
blessun.
Á þessar friðarherbúðir sum-
arsins hefix- tvívegis verið minst
í “Sameiningunni”. í ágúst, 1938
stendur meðal annars: “Þetta
starf hefir einnig náð til íslands.
Drengjavinurinn frægi séra
Friðrik Frikriksson hefir komið
þessu á stað þar. Ungmennafé-
lagið hans hefir reist sér sumar-
bústað uppi í fjöllum, og njóta
ungu mennirnir þar mikillar
gleði og nytsamlegrar andlegrar
fræðslu.”
Að þessu máli hefir Banda-
lagið, með aðstoð nefndar frá
kirkjufélaginu lúterska, verið að
vinna í vetur og er þetta komið
á nokkurn r^kspöl. Búist er við
að nokkur hópur manna og
kvenna taki þátt í að annast um
kenslu, íþróttir og skemtanir.
Sumir hafa nú þegar heitið að-
stoð sinni.
Stundar eingöngu
Augna, eyma, nefs og kverka
sjúkdóma
10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h.
Skrifstofusími 80 887
Heimasími 48 551
Mikið meira en hér verður
sagt þurfa Vestur-íslendingar að
vita um þetta mál, enda verður
nóg fræðsla síðar í té, en þetta
er ritað til þess að vekja um-
hugsun. Þetta hefir hepnast ef
löngun almennigs segir: “Mætt-
um við fá meira að heyra.”
Eg hygg, að umsjónarnefndin
geri sitt ítrasta til þess að mótið
fari vel fram og að þeir sem það
sækja hafi verulegt gagn og
gaman af veru sinni þar. Hvort
það hepnast eða ekki er þá kom-
ið undir því hvernig almenning-
ur styður málið og þar er að-
sóknin aðal skilyrðið.
Vel færi á því að menn, í hin-
um ýmsu bygðum tækju nú þegar
að athuga málið og ræða. Má
vera, að sumt unga fólkið, sem
hefir löngun til að fara, þurfi
aðstoð nokkra frá söfnuðum eða
félögum. Gjaldið verður sett
eins lágt og nokkur kostur er á,
en að sjálfsögðu er það óumflýj-
anlegt, að menn borgi eitthvað
fyrir dvölina.
Eg óska þessu máli allrar
blessunar. Með hæfilegum sam-
tökum er eg sannfærður um að
fyrirtækið verður til mikils góðs.
Rúnólfur Marteinsson