Heimskringla - 19.04.1939, Blaðsíða 8
8. SíÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 19. APRÍL 1939
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
N. k. sunnudagsmorgun í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg fer
fram Boy Scout Church Parade
sem skátaflokkur kirkjunnar
tekur þátt í. Eru allir foreldrar
og börn velkomin á þessa guðs-
þjónustu. Hún fer fram á ensku.
Kvöldguðsþjónustan verður með
sama móti og vanalega. Fjöl-
mennið.
Sunnudagaskólinn kemur sam-
an kl. 12.15.
* * *
Messur í Vatnabygðum
Sunnudaginn 23. apríl: Messað
í Leslie kl. 12 á hádegi (seir.i
tíminn) sumrinu heilsað.
Jakob Jónsson
* * *
Séra Guðm. Árnason messar
á Gimli, Man., sunnudaginn 23.
Meðtekið í útvarpssjóð Hins
Sameinaða Kirkjufélags
eftir útvarpsguðsþjónustu í
Sambandskirkjunni 26. marz,
1939:
Bjarni Sveinsson,
Keewatin ..............$1.00
Dr. S. E. Björnsson,
Árborg ................ 1.00
S. Thorvaldson, Riverton —- 2.00
Með þakklæti,
P. S. Pálsson,
796 Banning St. Winnipeg
* * *
Meðtekið í blómasjóð sumar-
heimilis barna að Hnausum frá
Miss Hlaðgerði Kristjánsson,
Winnipeg, til minningar um Mrs.
Margréti Jóhannsd. Markússon,
$3.00.
Kærar þakkir,
Mrs. P. S. Pálsson
* * *
Kappræða á Geysir
“STAPINN”
hið umfangsmikla leikrit eftir
Jaokb Jónsson frá Hrauni, verð-
ur sýnt í satmkomusal ;Sam-
bandskirkju þrjú kvöld 1, 2 og 3
maí. Vegna þess hve margir
leikendur eru og mikið verk við
allan útbúnað þá er ekki líklegt
að leikurinn verði neitt tekinn
út um bygðir íslendinga eins og
leikfélagið hefir gert með önn-
ur leikrit. Er því æskilegt að
sem flestir í nærliggjandi bygö-
um og bæjum sem langa að sjá
leikinn viti um þetta og geri þá
ráðstafanir að koma til Winni-
peg. Kappkostað hefir verið að
gera alt sem bezt úr garði og er
óhætt að segja að þetta er einn
umfangsmesti leikur sem leikfé-
lagið hefir tekist á hendur að
sýna. Nánari auglýsingar verða
í næstu blöðum.
B. E. Johnson
apríl.
* * *
Sunnudaginn 30. apríl, messar
séra Albert E. Kristjánsson í
Unitara kirkjunni í Vancouver.
Messan hefst kl. 1.30 e. h. og
verður á íslenzku. íslenzki söng-
flokkurinn í Vancouver aðstoðar
við messuna. Kirkjan ér á 10
Ave., hálfa block fyrir vestan
Granville St. Mælst er til að
sem flestir fslendingar sæki
messuna.
* * *
Laugardagsskemtikvöldin ”
sem haldin hafa verið í Sam-
komusal Sambandskirkjunnar
undanfarnar vikur, undir um-
sjón yngri kvenna safnaðarins,
fara fram í apríl mánuði á
hverju laugardagskveldi undir
umsjón ungmennafélagsins. —
Kvöldin verða með sama hætti
og áður, og eru allir safnaðar-
menn og vinir beðnir að fjöl-
menna.
Á samkomu sem haldin verður
á Geysir í Nýja íslandi, þriðju-
daginn 25. apríl, verður meðal
annars til skemtana kappræða
milli séra Guðm. Árnasonar og
Heimis Þorgrímssonar. Von á
góðri skemtun. Fjölmennið.
* *
Árborg, Man.,
15. apríl 1939
Eg hefi tekið á móti $15.00
gjöf í blómasjóð Sumarheimilis
ísl. barna að Hnausa, í minn-
ingu um Svein Pálsson, nýlega
látinn í Riverton. Þeir sem
gáfu þessa upphæð eru: Mr. og
Mrs. Thorvaldson, $10.00; og
Kvenfélag Sambandssafn. í Riv-
erton, $5.00.
Mig langar til að leðirétta það
sem að eg sendi seinast í blaðið í
gjafalista. Jón J. Thorsteinson
gaf 20 kl.tíma vinnu en ekki 10.
Fyrir þessar gjafir er innilega
þakkað.
Emma von Renesse
Arsskemtun
Laugardagsskólans í Fyrstu lútersku kirkju
LAUGARDAGSKVELDÍÐ, 22. APRÍL, kl. 8.15
•
SKEMTISKRÁ:
Ávarp forseta........Séra Rúnólfur Marteinsson
Barnakór nemenda skólans
Framsögn ljóða
Smáleikir og hljóðfærasláttur
Ræða.................Séra Valdimar J. Eylands
•
Aðgangur 25c—Börn innán 12 ára fá ókeypis aðgang
Fyllið kirkjuna—æskunnar og íslenzkunnar vegna!
HLJÓMLEIKAR
KARLAKÓRS ISLENDINGA í WINNIPEG
Concert Hall—Auditorium
MIÐVIKUDAGINN 26. APRIL kl. 8.30 e. h.
SÖNGSKRÁ:
O, Canada
öxar við' ána...................H. Helgason
Áin niðar......................S. Þórðarson
Lýsti sól, stjörnustól......S. Sveinbjörnsson
Það árlega gerist.............ísólfur Pálsson
yor...........................H. T Petschke
•
Oh Sleep Why Dost Thou Leave Me.-...Handel
Oh Yet, Just So......................Bach
Gertrude Newton
Hæ, tröllum á meðan við tórum.....Svenskt
Söngfuglarnir .................. Lindblad
Bí, bí og blaka.........fsl. radds. S. Einarsson
Brennið þið vitar..............Páll ísólfsson
Romance in G Major.........................Beethoven
Captain Francassa......................M. C. Tedesco
John Waterhouse
Caro nome (úr óperunni Rigoletto)................Verdi
Gertrude Newton
Ár vas alda (ísl. lag frá 10. öld)..Radds. af Þ. Jónsson
Víst ert þú Jesús kóngur klár (ísl lag frá 14. öld)
• Radds. af P. fsólfsson
Landsýn................................ Edvard Grieg
Indian Scherzo.................................:..Kolar
John Waterhouse
Ólafur Tryggvason........................... Reissiger
Bára blá...................ísl. lag radds. S. Einarsson
Sverrir Konungur, S. Sveinbjömsson, radds. R. H. Ragnar
God Save the King.
Aðgöngumiðar kosta 50c og 75c
Fást hjá meðlimum Karlakórsins, meðlimum “The Young
Icelanders” og S. Jakobson.
Sumarmálasamkoma
Hin árlega sumarmálaskemtui
Kvenfélags Sambandssafnaðar
Winnipeg, fer fram sumardag
inn fyrsta 20. þ. nj. í Sambands
kirkjunni. Skemtiskráin er meí
lang bezta móti og ættu engir ac
missa af þessu tækifæri fyrir á
nægjulega kvöldstund. Meða
annará syngur Mr. Pétur Mag
nús nokkur lög. Mr. Pálm
Pálmason spilar violin solo, Dr
Rögnvaldur Pétursson flytui
ræðu, og Mr. Ragnar Stefánssor
hefir upplestur. Miss Ragm
Johnson hefir sungið á samkom
um hérlendra manna, kemur
fyrsta sinn fram á íslenzkr
samkomu. Miss Esther Lind ei
góðkunn og velhæf píanóleikar
auk þess að vera æfð í söng 0£
söngstjórn. Hún æfði söngflokl
skólabarna á General Wolfe Jun
ior High School sem vann fyrsti
verðlaun í sinni deild í Winnipej
Musical Festival s. 1. mánud. —
Sá flokkur skemtir með nokkrun
lögum og mega menn búast vi?
hinni ágætustu skemtun. Ac
skemtiskránni lokinni, fara fran
veitingar í fundarsal kirkjunnar
Fjölmennið!
* *
Sveinn A. Skaftfell og Einai
Magnússon í Selkirk voru stadd-
ir í bænum s. 1. mánudag.
* * *
W. J. Líndal, K.C., lagði af
stað s. 1. föstudag til Ottawa.
Hann hefir ýms lögfræðisstörf
með höndum fyrir stjórnina og
fer austur í því sambandi. En í
vestur leið stendur hann við í
Toronto; hefir verið beðinn af
Empire klúbbnum að flytja þar
erindi um “The Nordic”. Lof-
aði Mr. Líndal því á sama tíma,
að bjóða ritstjóra Globe and Mail
og Mr. Church þingmanni að
hlýða á mál sitt, því hann ætlaði
að minna þá á ættir íslendinga
svo þeir töluðu af meiri þekk-
ingu um þá næst, en þeir gerðu
síðast, er þeir mintust þeirra.
* * *
Þann 29. marz s. 1. andaðist í
Gladstone, Man., Oddný Ander-
son, ekkja Stefáns Andersons,
sem dó í sama bæ í febrúar mán-
uði árið sem leið. Hin framliðna
var 87 ára, fædd á Þórormsstöð-
um í Seyðisfirði. Foreldrar
hennar: Margrét og Sigfús Ein-
arsson. Systkini: Sigríður, Jón,
Eiríkur, nú dáinn, og Mrs. Mar-
grét Bergson sem er enn á lífi.
Oddný heitin giftist Stefáni
árið 1885, hann var frá Steins-
stöðum í Skagafirði, þau barn-
laus en ólu upp Sigfús systurson
Oddnýjar, hann dó úr flúnni
1918.
Hin framliðna dvaldi lengst
æfi sinnar í Winnipeg, utan eitt
ár á Gimli, þegar bólan geysaði
þar, og sjö árin síðustu, er hún
átti heima hjá Mrs. S. A. Sigurð-
son í Gladstone. Hjá þeirri konu
dvöldu hin framliðnu hjón sín
síðustu fjórtán æfiár, bæði í
Winnipeg og í Gladstone.
Oddný sál. var stilt og vel
huguð og einstök góðvilja mann-
eskja, hennar markmið í lífinu
var að láta gott af sér leiða.
SARGENT TAXI
SIMI 34 555 or 34 551
7241/2 Sargent Ave.
Hjónavígslur framkvæmdar
að 493 Lipton St. af séra Rúnólfi
Martinssyni:
3. apríl þau Sveinn Jóhann-
son og Jóhanna Pearl Coghill,
bæði frá Riverton, þar sem einn-
ig verður heimili þeirra.
18. apríl, þau Paul Edwin
Austman og Jóna Thóránna Sig-
urðsson, bæði frá Silver Bay.
Heimili þeirra verður þar einnig.
* * *
Egill Reykjalín, merkisbóndi í
Sherwood, N. D., dó að heimili
sínu 12. apríl, 68 ára að aldri.
Hann lifa kona hans Kristín
Freysteinsdóttir Reykjalín og
sex börn: Freysteinn, heima;
Rose, skólakennari; Pansy,
skólakennari, Halldór og Russell
er hafa flugflutningsstöð í Sher-
wood, William í Chicago. Einn
bróðir Egils heitins er á lífi:
H. H. Reykjalín í Chicago. Jarð-
arförin fór fram s. 1. fsötudag.
Fóru Mrs. Jónas Thorvaldson
j ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG I
ÍSLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
i 45 Home St. Winnipeg, Man. I
Allir íslendingar í Ameríku |
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir j
Tímarit félagsins ókeypis) !
$1.00, sendist fjármálarit- í
ara Guðm. Levy, 251 Furby í
St., Winnipeg, Man. i
Guðsþjónusta í Konkordia
kirkju kl. 2 e. h. 23. þ. m. Eftir
guðsþjónustuna lesið með ferm-
ingarbörnum. S. S. C.
* * *
Frá Stórstúkuþingi
Þann 11. og 12. apríl hélt
stórstúka Manit&ba & N. W. 56.
ársþing sitt. Var þingið sett af
stórtemplar Dr. W. A. Cooper.
Var þingið ágætlega sótt, erind-
rekar frá utanbæjar stúkum.
Áhugi meðal meðlima virðist
vera að aukast, ánægjuleg fjölg-
un meðlima á árinu, ýms mál
til eflingar félagsskapnum
voru rædd og ákvarðanir teknar,
gagnvart útbreiðslu starfsemi.
Hástúku umboðsmaður Hreiðar
Skaftfeld setti eftirfarandi syst-
kini í embætti fyrir næsta ár:
PGCT—A. S. Bardal
MESSUR og FUNDIR
f kirkju Spmbandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funalr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsea
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ROSE
THEATRE
--Sargent at Arlington-
THIS THURS. FRI. & SAT.
Dori Ameche—Arleen Whelan in
“GATEWAY”
also the Ritz Brothers in •
‘STRAIGHT, PLACE & SHOW’
Speciai Kiddies Sat. Matinee
Sat. Mat. Only
Bill Boyd in
“SUNSET TRAIU”
systir ekkjunnar og Oddur Mel-
sted mágur hennar, frá Winni-
peg, suður til að vera við jarð-
arförina.
Foreldrar Egils heitins voru
þau merkishjón Halldór Frið-
riksson Reykjalín, sonur séra
Friðriks Jónssonar er síðast var
prófastur á Stað í Reykjanesi í
Barðastrandasýslu, og Sigurrós
systir Egils á Laxamýri og
þeirra bræðra. Þau bjuggu síð-
ast á Kvennabrekku í Dalasýslu
og með þeim fluttist Egill vestur
um haf 1874, þriggja ára að
aldri. Settust þeir fyrst að á
Gimli, en bjuggu síðar um 5 ár í
Mikley á Winnipegvatni; árið
1879 fluttust þeir til Dakota.
. Egill var mesti myndar maður
í hvívetna, tók mikinn þátt í
bygðarmálum og heimilið var
fyrirmynd. Voru hjónin sam-
taka um það að gera það sem
prýðilegast og skemtilegast fyrir
hvern er að garði bar. Og gest-
risni var þar eins og hún er bezt
og íslenzkust.
* * *
Hinn 28. marzmánaðar s. 1.
andaðist af afleiðingum hjarta-
bilunar, samkvæmt ónákvæmum
fréttum, sonur Stefáns Einars-
sonar í Upham, N. D., Magnús
að nafni. Bar dauða hans að í
bænum Oroville í Californíu. —
Magnús var aðeins fertugur, er
hann lézt. Fyrir rúmum 15 ár-
um síðan skyldi hann við föður-
húsin og leitaði út, út í ókunnan
heim æskumanninum. Dvaldi
hann á ýmsum stöðum í Cali-
forníu, Arizona og Mexico við
gullgröft og er hann dó var hann
í þjónustu námafélags mikils þar
í Oroville, sem er miðstöð fjölda
slíkra námamanna. Var lík hans
flutt til Upham þar sem faðir
hans og systkini flest, eru til
heimilis. Fór jarðarför hans
fram frá kirkju Melanchthon
safnaðar 8. apríl, að viðstöddu
fjölda fólks, enskum og ís-
lendingum. Hann var til moldar
borinn í íslenzka grafreitnum.
Sr. E. H. Fáfnis jarðsöng. Mag-
nús syrgja faðir og stjúpmóðir
og sjö systkini: Einar bóndi við
Russel, N. D.; Höskuldur og
Oddur að Garðar, N. D., og Jósep
oóndi við Upham; Margrét
hjúkrunarkona að Burlington,
Wash.; Mrs. J. O. Almquist við
Upham og Bergthóra við nám á
háskóla í Grand, Forks, N. D.
Bróðir einn Gunnar að nafni, féll
í stríðinu.
Magnús var vinnuvargur hvar
sem hann fór, öðlaðist traust og
GCT—Dr. W. A. Cooper
GC—H. Gíslason
GVT—Mrs. V. Magnússon
GSW—Mrs. C. O. L. Chiswell
GSLW—W. H. Steel
GSEW—R. H. Gray
Gr. Chap.—Mrs. A. S. Bardal
GS-^-Miss S. Eydal
GAS—S. Paulson
GrT—Mrs. G. Jóhannson
GrM—Mrs. W. A. Cooper
GDM—Mrs. H. Cooney
GG—Alvin Cooney
GS—S. Mathews
GM—Mrs. H. ísfeld.
* * *
Til leigu
Stórt og bjart hliðarherbergi
með balkoní, án húsgagna. Sími
35 909. 591 Sherburn St.
* * *
íslendingar!
Þér sem eruð bókamenn og
bókavinir! Munið eftir því, að
þér aukið þægindi yðar, og
prýðið alt í kring um yður, með
því, að láta binda og gylla bækur
yðar. Þá þurfið þér ekki annað,
en að renna augunum yfir kjöl-
inn á bókunum, til þess að finn'a
bókina, sem þér þurfið á að
halda. Sendið því bækur yðar,
sem fyrst, í band eða viðgerð,
til Davíðs Björnssonar að
“Heimskringlu”. — Stafirnir
þryktir í gull eða silfur á kjöl-
inn, eftir því sem óskað er. —
Miklu efni úr að velja í mörgum
litum. Verkið vel af hendi leyst.
ÞJÓÐVERJAR HELGA SÉR
LANDNÁM NORÐMANNA
VIÐ SUÐURHEIMSKAUTIÐ
Þýzka stjórnin hefir nú, að
þ.ví er segir í Lundúnafrétt,
helgað sér allverulegan hluta af
landi því á Suðurheimskauts-
meginlandinu, ,sem Norðmenn
höfðu helgað sér 14. janúar.
Er það þýzki landkönnuðurinn
Richter, sem verið hefir í föru
þarna syrða, og tekið landið í
nafni þýzku stjórnarinnar. —
Kveðst þýzka stjórnin þó ekki
vilja gera neinar ráðstafanir í
málinu fyr en Richter sé heim
kominn og búinn að gefa
skýrslu.
14. janúar s. I. var í ríkisráði
Noregs gefin út konungleg til-
skipun um, að sá hluti Suður-
heimskautsmeginlandsins, sem
liggur á milli Falklandseyjaný-
lendunnar að vestan og áströlsku
Suðurheimskautsnýlendunnar að
austan, væri lagt undir norska
ríkið. Landsvæði þetta liggur
beint suður undan suðurodda
Afríku og er tæpar 3 miljónir
ferkílómetra að stærð með 4000
kílómetra strandlengju.
Réttarfarslega byggja Norð-
menn tilkall sitt til landsins á
því, að norskir vísindaleiðangrar
hafi rannsakað landið og að
norskir hvalvaiðamenn hafi
haft þar bækistöðvar sínar.
—Mbl.
Sumarmálasamkoma
undir umsjón Kvenfélags Sambandssafnaðar
SUMARDAGINN FYRSTA 20. APRÍL
í Sambandskirkjunni I Winnipeg
Vocal Solo................._.Mr. Pétur Magnús
Violin Solo...............Mr. Pálmi Pálmason
Choral Numbers...General Wolfe Junior High School
Vocal Ensemble (under the direction of Miss Esther Lind)
I^æða.................Dr. Rögnvaldur Pétursson
Vocal Solo................Miss Ragna Johnson
Upplestur...............Mr. Ragnar Stefánsson
Piano Solo..................Miss Esther Lind
Kl. 8.15 e. h. Inngangur 25c
. Veitingar ókeypis
Winnipeg River Timber Co. Ltd.
Seven Sisters, Manitoba
og tiltrú þeirra er hann vann
fyrir, og reyndist sannur dreng-
ur hvar sem leið hans lá. Er því
þungur harmur kveðinn, að ást-
vinum hans öllum, er hann svo
ungur hverfur oss sjónum. En
minningin varir og græðir sárin.
hafa á hendi mikið upplag af þurrum byggingarvið af
öllum tegundum, til sölu á sanngjörnu verði.
Upplýsingar, príslistar, prufur af efni að—
720 Mclntyre Block, Winnipeg, Sími 96 233
Páll Sigurdson, eígandi