Heimskringla - 03.05.1939, Síða 3
WINNIPEG, 3. MAÍ 1939
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
Hún sem eftir er skilin minn-
ist sameiginlegra sigurvinninga
honum við hlið, sem nú er horf-
inn sjónum, — sigurvinninga í
þarfir heimilis þeirra að hon-
um nærstöddum og fjarverandi,
sigurvinninga við uppeldi hinna
mannvænlegu barna þeirra, en
börnin sem henni eru eftirskilin,
ásamt minningu um ágætann
eignmann og dáðríkan dag, hon-
um við hlið samfara vissunni um
handleiðslu Guðs eru henni nú
huggun og ljós á leið.
Útförin fór fram á föstudag-
inn langa frá kirkju Bræðra-
safnaðar í Riverton, þar sem
hinn látni, átti ásamt ástvinum
sínum sitt andlega heimili. —
Óvenju miljill mannfjöldi var
viðstaddur. Listrænt orgelspil
Mrs. dr. Thompson snerti við
hjörtum manna með þeirri snild
sem henni er lagin. Söngurinn
allur, og þá sér í lagi þýður ein-
söngur Mr. F. V. Benidictson
auðgaði sorgarstundina angur-
blíðu dýpstu samúðar, — er lét
fólk finna til nálægðar Guðs,
mitt í harmi þrungnum straum-
hvörfum mannlegs lífs.
Sigurður ólafsson
ÍSL AN DS-FRÉTTIR
Aldursrannsóknir á þorski
benda til vaxandi afla
Árni Friðriksson magister er
nýlega farinn til útlanda í erind-
um Faxaflóanefndar. Áður en
hann fór, hafði hann fengið
tækifæri til að fá allvíðtækar
aldursrannsóknir og mælingar á
þorski frá fjórum verstöðvum á
þessari vertíð, Reykjavík, Kefla-
vík, Vestmannaeyjunv og Horna-
firði.
Eins og lesendum blaðsins er
kunnugt hefir Árni haldið því
fram, að hinn mikli þorskafli
sem hér var um og eftir 1930
stafaði að verulegu leyti af því,
hve vel tókst með þorskklakið
árin 1922 og 1924. Síðan voru
léleg klakár til ársins 1930. Það
ár hefir Árni talið að verið hafi
gott klakár, og því vonast eftir
að þorskafli myndi aukast að
mun, þegar sá árgangur kæmi
að verulegu leyti í gagnið.
Með aldursrannsóknum á
þorskinum á þessari vertíð hefir
það komið í ljós, að 58% af afl-
anum hér í Reykjavík er 8 og 9
ára þorskur, frá árunum 1930 og
1931 og í Vestmannaeyjum eru
þessir árangrar 59% af aflanum,
en þar er árangurinn frá 1931
meiri en frá 1930. í Keflavík
eru þessir tveir árangur 42% af
afla. Þessar tölur benda til þess
að þær spár og aflamagn fari
vaxandi næstu árin.
í Hornafirði byrjaði afli ó-
venjulega snemma í ár. Þar eru
yngri “árgangar” ríkjandi í afla,
31% frá árinu 1933 og 49% frá
árinu 1934, ókynþroska þorskur,
sem er að alast upp við Austur-
land. Svo mikið er af þessum
ungþorski að hann bendir líka
til vaxandi aflabragða.
—Mbl. 12. marz.
* * *
íslenzka stjórnin viðurkennir
stjórn Francos á Spáni
Tilkynning frá ríkisstjórninni
31. marz 1939.
Að fengnum konungsúrskurði
'hefir stjóm Francos hershöfð-
ingja í Burgos í dag verið til-
kynt, að stjórn hans væri af ís-
lands hálfu viðurkend sem lögleg
stjórn Spánar.
Samskonar tilkynning mun
stjórninni í Burgos einnig hafa
borist frá stjórnum hinna Norð-
urlandaríkjanna samkvæmt áður
gerðu samkomulagi þeirra um
að ákvörðun um viðurkenningu
skyldi tilkynt Francostjórninni
samtímis af hálfu allra Norður-
landaríkjanna.—Mbl. 1. apríl
* * *
Hið nýja gengi
(Alþingi samþykti frumvarpið
um gengislækkun 4. apríl í neðri
deild með 24:8 atkvæðum, en í
efridfiild með 11:5 atkvæðum).
Gengislækkunin nemur 21.89
—21.80%. f gær var gengi er-
lends gjaldeyris skráð sem hér
segir:
Mynt í fyrrad. í gær
Sterling 22.15 27.00
Dollar 474.50 577.75
R.mark — 191.61 233.54
Fr. frc 12.66 15.45
Belg 79.75 97.51
Sv. frc Líra 106.55 129.70
F. mark Peseta 9.93 12.00
Gyllini 251.76 307.19
Tékk.sl. kr. .. ...... 16.53 20.15
S. Kr 114.31 139.34
N. kr 111.14 135.84
D. kr 100.00 120.54
—Mbl. 5. apríl.
* * *
Guðmundur Daníelsson
bóndi á Svignaskarði
Hann andaðist að heimili sínu,
Svignaskarði í Borgarhreppi í
gær. v
Guðmundur var athafnamaður
mikill og dugandi bóndi. Reisti
hann mikið hús í Svignaskarði
og rak þar gistihús á sumrum af
miklum skörungsskap. Hefir
mikill fjöldi Reykvíkinga og
annara dvalist þar sér til hress-
ingar, en nærri allan ársins hring
er gestkvæmt í Svignaskarði.
Guðmundur var drengur góð-
ur, og munu margir sakna þessa
alkunna framkvæmdamanns.
—Vísir, 28. marz.
* * *
18 íslenzkir stúdentar
í Svíþjóð
Samkvæmt heimildum frá
skrifstofu háskólans í Stokk-
'hólmi eru nú 18 íslenzkir stú-
dentar við nám í Svíþjóð. — Þar
af eru 8 á Stokkhólms háskóla, 7
á Tekniska högskolan, 1 á Tand-
lakarinstitutet og 1 á Lunds
universitet.
Styrkir til íslenzkra stúdenta
í Svíþjóð frá “Svenska Kooperat-
iva förbundet” og “Wenner
Grenska-samfundet” námu 400
krónum árið 1937—1938 og 10,-
000 krónum árið 1938—39.
Sænska nefndin til eflingar
samvinnu norrænna háskóla-
manna, en formaður hennar er
Sven Tunberg prófessor, hefir
greitt íslenzkum stúdentum
þessar upphæðir þannig, að §
hlutar teljast vaxtalaus náms-
lán, sem greiðast skulu smám
saman eftir að próf hefir verið
tekið, en $ er hreinn náms-
styrkur.—Mbl. 31. marz.
* * *
Tveir karlmenn og eitt barn
fórus í bruna í Höfnum
Það raunalega slys varð í
Höfnum í gærkveldi, að húsið
Kotvogur brann til kaldra kola
og brunnu inni tveir fullorðnir
karlmenn, Helgi Jónsson frá
Tungu og Guðjón Guðmundsson
og 7 ára telpa, dóttir Helga,
Þórdís að nafni.
Húsið Kotvogur var stórt tim-
burhús, 2 hæðir, eign Helga heit-
ins. Hafði Helgi útgerð, átti
tvo báta og var annar þeirra á
sjó, þegar þetta skeði.
Eldurinn kom upp um kl 10 í
gærkveldi, og kviknaði út frá
gaslukt. Breiddist eldurinn óð-
fluga út, og varð húsið álelda á
svipstundu. Stigi lá úr eldhús-
inu og upp á efri hæð hússins,
og var það eina uppgangan. —
Þegar kviknaði í, var Helgi uppi
í húsinu ásamt syni sínum, dótt-
ur sinni, Þórdísi, og vinnumanni
sínum, Guðjóni. Þeir Helgi og
sonur hans leituðu útkomu og
fóru út á skúr áfastan við húsið.
En Helgi sneri aftur, til þess að
reyna að bjarga dóttur sinni, en
kom ekki aftur. Brunnu þau
þar þrjú inni, Helgi, dóttir hans
og vinnumaðurinn.
Formaðurinn, sem á sjó var,
bjó á neðri hæðinni. Kona hans
bjargaði sér og börnum sínum
á þann hátt, að hún kastaði börn-
unum út um glugga og stökk
sjálf á eftir.
í húsinu bjuggu 25 manns.
Var fólkinu komið fyrir til
bráðabirgða á bæjunum 1 kring.
—Alþbl. 4. apríl.
Tveir íslenzkir listamenn
heiðraðir
Listaháskólinn danski hefir
veitt Sigurjóni Ólafssyni mynd-
höggvara Eckersbergsheiðurs-
peninginn, sem er verðlaunapen-
ingur fyrir afrek í myndhöggv-
aralist og Jóni Engilberts list-
málara hinn svonefnda van Gogh
styrk, en hann er fólginn í 800
króna peningaverðlaunum og ó-
keypis för til Hollands, og má
einungis veita hann ágætum
listamönnum til þess að kynna
sér hollenzka málaralist.
—Alþbl. 30. marz.
HIN FYRSTA HVÍTA
MÓÐIR í AMERÍKU
ÍSLENZKA KRÓNAN
LÆKKUÐ í VERÐI
Gengislækkunarleiðin valin til
hjálpar útgerðinni
Glæsilegur sigur Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara
Ásmundur Sveinsson mýnd-
höggvari hefir nú unnið sinn
stærsta listamannssigur. En sig-
ur hans er jafnframt stórkost-
legur heiður fyrir íslenzku þjóð-
ina.
Framkvæmdanefnd hinnar
miklu heimssýningar í
York hefir samþykt að
Viðræður stjórnmálaflokkanna
undanfarinn mánuð hafa nú leitt
til þess, að í dag er lagt fram á
alþingi frumvarp um lækkun
gengis íslenzkrar krónu og aðr-
ar ráðstafanir í sambandi við
það, sem samkomulag hefir
náðst um milli þingfolkkanna.
Samkvæmt frumvarpinu lækk-
ar gengið ca. 21%. — Verður
því sterlingspund framvegis
skráð á 27 krónur íslenzkar í
stað kr. 22.15. Strax og leið A!-
þýðuflokksins um útflutnings-
verðlaun var hafnað, setti hann
það sem ófrávíkjanlegt skilyrði
fyrir því að hann ætti nokkurn
hlut að þessum málum, að inn í
löggjöf um gengislækkunina
yrðu sett ákvæði til varnar því
að gengislækkun þrengdi kosti
verkafólks, sjómanna og lág-
launáfólks yfirleitt, er horfið
yrði að því að lögbinda
New kaupgjaldið í landinu um ákveð-
taka in tíma.
mynd hans “Hin fyrsta hvíta1 ^ ^aupgjald í landinu er
móðir” og hafa hana á aðalsýn- samkvæmt frumvarpinu, ^ lög-
ingarsvæðinu. Verður henni bundið í eitt ár, en að 3 mánuð-
komið þar fyrir á mjög góðum um liðnum verður reiknuð út
og áberandi stað. ^vísitala er gildir fyrir alt landið
Myndin táknar hina fyrstu hækkar kaup þá samkvæmt
hvítu móður, er leit Ameríku og henni 1 ákveðnu hlutfalli við
steig þar á land, íslenzka konu, dýrtíðaraukningu þá, sem orðið
sem horfir hátt og lyftir syni!hefir- Nær hetta tiJ allra sió-
sínum nöktum móti hinum nýja manna og verkafólks ogauk þess
heimi. til allra fastlaunaðra fjölskyldu-
Með því að taka þessa glæsi- manna> sem^ hafa í kaup undir
legu höggmynd hins íslenzka kr> 600.00 á mánuði, aðrir fá
höfundar, sýna Ameríkumenn í ekki. kauphækkun, þó að dýrtíð
verki enn eina viðurkennnigu á aukist.
því, að islendingar fundu Vín- ■ ^uk t’essa ei’u í frumvarpinu
land hið góða. Er það góð árétt- ákvæði um, að hvorki húsaleiga
ing á þeirri viðurkenningu, er nú vextir í bönkum megi hækka
þeir gáfu okkur Leif heppna að blutaráðnir sjómenn geti
1930, er nú gnæfir á Skóla- notið verðuppbótar, vegna hækk-
vörðuhæðinni. |aús verðs á fiski og síld. Nefnd
í gær tal su> sem a a^ reikna út kaup-
Alþýðublaðið hafði
af Ásmundi Sveinssyni í vinnu-
stofu hans að Freyjugötu 43.
— Þykir þér þetta ekki glæsi-
legur sigur?
“Mér þykir að sjálfsögðu vænt
um þennan sigur, þetta hefir
gengið alveg eins og í æfintýri
og mig dreymdi ekki einu sinni
um það, að myndin yrði tekin
til sýningar á aðalsýningarsvæð-
inu. Eg hafði gert myndina í
þeim tilgangi að hún yrði sýnd á
sýningarskála okkar íslendinga
— en þessu bjóst eg ekki við.”
— Hafðirðu boðið íslenzku
sýningarnefndinni myndina?
“Þegar eg sigldi síðast vorum
við Ragnar E. Kvaran landkynn-
ir samskipa. Þá skýrði eg hon-
um frá hugmynd minni og leizt
honum vel á hana, að því er
hann sagði. Eftfr að eg kom
heim fór eg að vinna að henni
og kom Kvaran oft á vinnustofu
mína og fylgdist með verkinu.
Síðar komu þeir Vilhjálmur Þór
og Haraldur Árnason. Þeir á-
kváðu að taka myndina þegar
hún var fullgerð — en þeir hafa
augsýnilega talið myndinni hæf-
ari stað á aðalsýningarsvæðinu
— og einnig glæsilegra fyrir
landið. Eg er þeim öllum mjög
þakklátur fyrir það, sem þeir
hafa gert í þessu máli.”
— Er myndin seld ?
“Nei, eg lít ekki svo á. Aðal-
sýningarnefndin hefir aðeins á-
kveðið að taka myndina til sýn-
ingar. Það verður að steypa
hana upp í fastara efni, þar sem
gjaldsvísitöluna verður tilnefnd
af Hæstarétti, Alþýðusambandi
íslands og Vinnuveitendaf. fs-
lands. Flutningsmenn frum-
varpsins eru ráðherrarnir Skúli
Guðmundsson og Eysteinn Jóns-
son og alþingigmennirnir Finnur
Jónsson og Pétur Ottesen.
—Alþbl. 3. apríl.
STJÓRN STAUNINGS
FÉKK ÖRUGGAN
MEIRIHLUTA
mjög stór, um 3 metrar á hæð.”
—Alþbl. 30. marz.
Frú Summerskill, þingmaður í
neðri málstofu brezka þingsins,
mun leggja fyrir þingið nýtt
lagafrumvarp, er skyl^ar alla
eiginmenn að gefa konum sínum
skýrslu um fjárhagsafkomu sína
tekjur og útgjöld, þar eð komið
hafi í ljós, að 75% giftra kvenna
í Englandi hefir ekki hugmynd
um hvaða laun eiginmennirnir
hafa, og því síður hvernig þeir
fari að eyða þeim.
Úrslit kosninganna, sem fram
fóru í Danmörku í gær, bæði til
fólksþingsins og landþingsins,
sýna aðeins óverulegar breyt-
ingar á fylgi flokkanna, sem
enga þýðingu geta haft á stjórn
landsins.
Alþýðuflokkurinn hefir að
vísu tapað 5 sætum í fólksþing-
inu sem hafa skifst á milli hinna
þýðingarlausu flokksbrota naz-
ista og kommúnista. En meiri-
hluti Stauningstjórnarinnar í
fólksþinginu er öruggur eftir
sem áður, eða 77 sæti á móti 71
sæti, sem stjómarandstæðingar
hafa allir til samans.
En auk þess ber þess að gæta,
að þessar kosningar stóðu aðeins
um eitt mál: stjórnarskrárbreyt-
inguna, þ. e. a. s. afnám lands-
þingsins ,og annar stærsti flokk-
ur stjórnarandstæðinga, hægri
flokkurinn (íhaldsflokkurinn),
hefir þegar lýst yfir fylgi sínu
við hana, |þannig að stjórnar-
skrárbreytingunni er sýnilega
hún er’nú í gipSi. My"ndin ei4trygður yfirgnæfandi meirihluti
Fulltrúatala flokkanna í fólks-
þinginu er samkvæmt kosninga-
úrslitunum eftirfarandi (tölurn-
ar í svigunum sýna fulltrúatölu
þeirra fyrir kosningarnar).
Alþýðuflokkurinn ..63 (68)
Róttæki flokkurinn .. ..14 (14)
Stjórnarflokkarnir hafa
þannig alls ..77 (82)
Vinstri flokurinn ..30 (28)
Hægri flokkurinn ..26 (26)
Bændaflokkurinn .. 4 (5)
Kommúnistafl .. 4 (2)
Danski nazistafl .. 3 (0)
Retforbundet .. 3 (4)
Slésvíkurfl............ 1 (1)
National Samvirke
(Purschel) ......... 0 (0)
Dansk Samling
(Sörensen) ......... 0 (0)
í Stjórnarandstæðingar
hafa því samtals —.71 (66)
Eins og þessar tölur sýna hafa
stjórnarflokkarnir, Alþýðufloklc-
urinn og róttæki flokkurinn,
þrátt fyrir hið lítilfjörlega tap
Alþýðuflokksins, fullkomlega
haldið velli.
Af flokkum stjórnarandstæð-
inga hefir vinstri flokkurinn
(stórbændaflokkurinn) unnið 2
ný sæti, kommúnistar 2 ný sæti
og nazistaflokkur Fritz Claíisens
3. Hinsvegar hefir hinn hálf-
nazistiski Bændaflokkur tapað I
og Retsforbundet 1.
Það vekur sérstaka eftirtekt,
að hið nazistiska flokksbrot
Purschels, fyrverandi formanns
hægri flokksins, fékk engum
manni komið að. Sjálfur “for-
inginn” féll. Sömu útreiðina
fékk nazistaflokksbrot Arne
Sörensens.
Slésvíkurflokkurinn, sem
studdur er af þýzka minnihlut-
anum á Suður Jótlandi, hefir
staðið í stað og á eftirleiðis 1
fulltrúa á þingi eins og áður.
—Alþbl. 4. apríl.
SAMS KO T
Vestur-íslendinga fyrir eir-
líkan Leifs Eiríkssonar,
íslandi til auglýsingar
í Ameríku.
Gjafaskrá nr. 18.
Bismarck, N. D.:
Jón Ing-var Arman
M. O. Arman .
Gunnar Olgeirsson
John W. Johnson
Seve W. Arrpan
P. E. Halldórson
C. W. Leifur
Tacoma, Wash.:
Dr. og Mrs. J. Arnason
Johnson .
Portland, Ore.:
B. G. Skúlason .
Frá Þingvallabygð, Church-
bridge og Bredenbury, Sask.
(John Gíslason, safnandi):
Bjöm Thorbergson ........... 100
Mr. og Mrs. John Gíslaaon .... í.oo
Mr. og Mrs. Kristján Johnson .50
Mr. og Mrs. Gísli Markússon .. .50
Mr. og Mrs. E. G. Gunnarson.. .25
Mrs Ingibjörg’ Árnason .......25
Mr. og Mrs. B. Eyjólfsson.....25
Mr .0g Mrs. G. Eyjólfsson .... .25
Haraldur Valberg ............. 25
T. S. Valberg ......“.........25
Mr. og Mrs. H. Marvin ........30
Mr. og Mrs. D. Westman ..... .25
Mrs Kris'tin Hinrikson .... 1.00
Miss Sigríður Markússon.......25
Mrs. A. O. Olson .............50
Ben Sigurðsson ...............25
Mr. og Mrs. G. S. Breiðfjörð .50
Mr. og Mrs. R. G Hadmann......25
Mr og Mrs. M. Sveinbjömson .50
Mr. og Mrs. G. Sveinbjörnson .50
Mr. og Mrs. B. M. Olson.......25
Mr. og Mrs. G. C. Helgason....25
Mr. og Mrs. S. B. Johnson.....25
Mr. og Mrs. John B. Johnson .25
Mr. og Mrs. Geo. Debmann......25
Mr. og Mrs. O. Sveinbjömson .25
Mr. og Mrs. John Laxdal ......25
Mr. og Mrs. M. Bjamason.......50
Mr. Einar Einarson ...........25
Mr. og Mrs. H. Sigurðson......25
Rev. S. S. Christopherson.....50
Miss Gerða Christopherson.....25
Mr. og Mrs. S. B. Reykjalín...25
Mr. og Mrs. A. Loptson .......50
Mr. og Mrs. O. Gunnarson......50
Mr .0g Mrs. Magnússon ........25
W. Magnússon .......c.........25
Mr. og Mrs. B. E. Hinrikson....50
Klein’s Store ............ 50
Mr. og Mrs. Christ. Thorvaldson ,.25
Mr. og Mrs. Hjálmar Loptson .25
Mr. og Mrs. E. Hinrikson.......50
Mr. og Mrs. Eyj. Gunnarson.....25
Mr. og Mrs. K. Kristjánsson....50
Mr. og Mrs. G. F. Gíslason.....25
Mrs. Gróa G. Gunnarson .......25
Mr. og Mrs. Ami Eyjólfson .... .25
Winnipeg, Man.:
B. E. Johnson ............. 1.00
Hannes Pétursson ..........10.00
Dr. M. B. Halldórsson ...... 2.00
Mr. og Mrs. A. S. Bardal ... 5.00
Mr. og Mrs. P. S. Bardal ... 5.00
Alls ....................$ 93.05
Áður auglýst ............ 2,413.60
Samtals ...........,.....$2,506.65
—Winnipeg, 1. maí, 1939.
Rögnv. Pétursson,
forseti
Ásm. P. Jóhannson,
féhirðir
SJÓNVARP FYRIR FJÖLDANN
AÐ VERÐA VERULEIKI
Sjónvarp fyrir fjöldann er
ekki lengur draumur eða hug-
sjón, sem bíða verður eftir lengi,
að gerð verði að veruleika. —
Fyrir nokkrum vikum var hnefa-
leikakepni milli tveggja nafn-
kunnra hnefaleikamanna, Boon
og Danahar (Boon sigraði í 14.
lotu) sjóvarpað í Englandi 0g
sjónvarpið sýnt í stað kvik-
mynda í þrem stórum kvik-
myndahúsum í London.
Myndirnar voru afburða skír-
ar og greinilegar. Einn eða tveir
smávægilegir gallar komu í ljós,
eins og vænta mátti, þar sem hér
var um að ræða fyrstu tilraun,
en annars gátu áhorfendurnir
fylgst með því, sem var að ger-
ast á hnefaleikapallinum eins og
áhorfendurnir, sem sátu næst
pallinum, þar sem hnefaleika-
kepnin fór fram.
í Englandi gera menn ráð fyr-
ir, að áður en langt um líður
muni almenningur í Bretlandi
geta fylgst með öllum stórvið-
burðum við sjónvarpið sitt og
þess verði jafnvel ekki langt að
bíða, að farið verði að sjónvarpa
atburðum, sem gerast á megin-
landi Evrópu til Englands.
Sjónvarpstæki kosta nú alt
frá 22 stpd. (kr. 487.00) upp í
3300 krónur. í Englandi er gert
ráð fyrir að seljist á árinu, sem
nú er að byrja 40 þús. sjónvarps-
tæki. Er unnið af fullum krafti
í sjónvarpsverksmiðjum til þess
að 'hægt sé að fullnægja eftir-
spurninni.—Mbl. 31. marz.
Hildur litla er búin að fá
margar ákúrur frá mömmu
sinni, — en á jólunum fær hún
mynd, — fallega glansmynd af
Jesúbarninu. Út frá höfði barns-
ins stafar geislabaugur, — en
Hildur fær ekki skilið, hvað hann
á að þýða, og byrjar að spyrja
mömmu sína að því. Mamman
kemst í vandræði, en stamar loks
út úr sér, að þetta sé helgigloría,
sem geislar út frá góðu fólki,
sem aldrei geri neitt Ijótt.
Hildur horfir þá drykklanga
stund á móður sína, virðir hana
vandlega fyriír sér og segir loks:
“En mamma! Hvernig stendur
þá á því, að þú hefir ekki neina
helgigloríu ?”
Borgarabréf, Fasteignabréf,
Tryggingar Skírteini
eru verðmæt skjöl—geymið þau á óhultum stað!
• Þér megið ekki við að missa eignarbréf sem
þessi. Fyrir minna en lc á dag, getið þér geymt þau
í stálskúffu við Royal Bankann. Biðjið um að fá
að skoða þessa öryggisskúffu á útibú bankans næsta
við yður.
™^ROYAL BANK
OF CANADA
--- ,"==>■ ==Eignir yfir TnA? PTTfT ~~~