Heimskringla - 10.05.1939, Page 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. MAf 1939
FJÆR OG NÆR
Mæðradagsguðsþjónustur
Haldið verður upp á mæðra-
daginn við báðar guðsþjónust-
urnar í Sambandskifkjunni í
Winnipeg n. k. sunnudag, við
ensku guðsþjónustuna kl. 11 f. h.
og við íslenzku messuna kl’. 7.
Goodtemplara félagið hefir ráð-
gert að sækja kvöldguðsþjónust-
una, og er vonast eftir að sem
flestir utanfélagsmenn komi
einnig í kirkju við það tækifæri.
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árnesi s.d. 14. maí
kl. 2 e. h.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Lundar sunnudaginn þann 14. þ.
m. Ársfundur safnaðarins eftir
messu.
Þann 21. þ. m. messar séra
Guðm. á Langruth.
* í}í *
Vatnabygðir sd. 14. maí
( mæðr adaCgur inn)
Kl. 11 f. h.: Sunnudagaskóli í
Wynyard.
Kl. 11 f. h.: Messa í Leslie,
(fsl.) M. S. T.
Kl. 2 e. h.: Ensk messa í Wyn-
yard.
Kl. 4 e. h.: Ensk messa í
Grandy.
Jakob Jónsson
* :(! *
Inn á skrifstofu Heimskringlu
leit s. 1. fimtudag Gísli bóndi
Ólafsson frá Lundar, Man. Kom
hann til bæjarins til að sjá leik-
inn “Stapann”, sem sýndur hef-
ir verið 1 þrjú kvöld í samkomu-
sal Sambandskirkju. Með hon-
um komu barnabörn hans þrjú,
Haraldur, Eiríkur og ólöf Halls-
son. Mr. Ólafsson fylgist vel
með fréttum af ættjörðinni eins
og fleiri iandar vestra. Hingað
kom hann fyrir 50 árum frá Bót
í Hróarstungu, átti 50 ára gift-
ingarafmæli síðast liðið sumar,
er 75 ára að aldri, en lítur út
sem væri 20 árum yngri.
* * *
9
Stúkan Hekla heldur fund n.k.
fimtudagskvöld.
Carnival Tea
Yngri kvenna deild Sambands-
safnaðar er. að efna til “Carnival
Tea” sem fer fram laugardaginn
13. þ. m. í samkomusal Sam-
bandskirkju á Banning St. Fjöl-
breytt •skemtiskrá fer þar fram
auk annars, þar á meðal Fashion
Parade sem sýnt verður bæði
eftir hádegi og að kvöldi til, og
double quartette úr karlakórn-
um sem syngur um kvöldið. Á
meðan á skemtuninni stendur
verða margir ágætir drættir til
boðs í “Fish Pond” og seinna um
kvöldið verður dregið um “Steel
Bridge Set” borð og stóla, sein
happadrættismiðlar hafa iverið
seldir á undanfarnar vikur. Eru
allir beðnir að minnast þessarar
skémtunar og fjölmenna.
* * *
Grein um leikinn “Stapann”
birtist í næsta blaði Hkr.
* * *
Þann 3. maí voru gefin í
hjónaband Lillian Jóhannsson,
Lundar, Man., og Hafsteinn
Bjarnason frá Winnipeg að
heimili foreldra brúðurinnar í
grend við Lundar. Foreldrar
brúðurinnar eru Jón Jóhannsson
og Helga kona hans en brúðgum-
inn er sonur Jakobs Bjarnasonar
í Winnipeg og Vilborgar konu
hans. Séra Guðm. Árnason
gifti. Fjöldi ættingja og vina
brúðurinnar var viðstatt gift-
inguna.
* * *
Föstudaginn 12. maí kl. 6 e. h.
hefir Kvenfél. Sambandssafnað-
ar í Árborg ákveðið að hafa
skemtisamkomu og al-íslenzka
máltíð, s. s. hangiket, rúllupylsa,
kæfa, súr svið, harðfisk, reykt-
an lax, íslenzk kryddsíld, skyr
og rjómi og margt fleira af þ. h.
Meðal þeirra sem skemta verða
G. J. Guttormsson skáld með er-
indi um íslandsferð. Þá verður
stúlku söngflokkur undir stjórn
Miss S. M. Bjarnason, ennfrem-
ur Lilja og Jóhannes Pálsson,
samspil. — Komið allir og hafið
skemtilegt kveld.
Aðgöngumiðar: 50c fyrir full-
orðna, 25c fyrir börn.
STAPINN
Leikrit í 4 þáttum eftir Jakob Jónsson frá Hrauni
verður sýndur í GIMLI PARISH HALL,
FÖSTUDAGINN 19. MAf, kl. 8.45 að kveldi
Baksýn, III. þáttur
“Stapasveit” á Islandi
Fyrir beiðni margra er sáu leikinn í Winnipeg og
annara sem ekki höfðu tækifæri að sjá hann þar,
verður hann endurtekinn eitt kvöld
MÁNUDAGINN, 22. MAf kl. 8 e. h.
í Samkomusal Sambandssafnaðar
Verður það síðasta tækifæri að sjá leikinn
á þessum slóðum
Leikstjóri er Árni Sigurðsson
Baksýn, II. þáttur
W. J. Líndal, K.C., kom fyrir
helgina heim úr ferð sinni til
Ottawa, en hann fór þangað fyr-
ir þrem vikum til að leysa af
hendi lögfræðisstörf í sambandi
við breytingar á lögum um
hveiti eða kornsölu. Á leiðinni
heim nam hann staðar í Toronto
og flutti þar fyrirlestur um “The
Nordic” í Empire klúbbnum. —
Benti hann á að einu þjóðirnar
sem lýðræðishugsjóninni ynnu,
væru norrænar þjóðir eða þjóðir
með norrænt blóð í rífum mæli í
æðum. Væri þar fyrst að telja
Norðurlandaþjóðirnar og íslend-
inga, þá Breta og Bandaríkja-
menn. Þjóðverja taldi hann of
suðræna til að teljast þar með;
og Hitler kæmi ekki til mála.
Þegar menri gættu að hvernig nú
stæði á í heiminum, blasti sönn-
unin við augum fyrir þessu. fs-
lendingar með þúsund ára gam-
alt alþingi, væru ef til vill óræk-
asta sönnunin, sem á væri hægt
að benda, um að norrænum þjóð-
um væri lýðræðishugsjónin í blóð
borin. Var að máli hans gerður
mikill rómur og föluðu mörg
blöð ræðuna til birtingar. ís-
lendingar voru lofi ausnir í eyru
Mr. Líndals og voru ritstjóri
“Globe and Mail” og Mr. Church
þar engir eftirbátar og töldu
íslendinga nú með beztu borg-
urum; sögðu það verið hafa mis-
skilið er þeir sögðu í sambandi
við frumvarp Mr. Thorsons á
þingi, af blöðum að vestan að
dæma. Mr. Líndal virðist því
þarna hafa nokkuð að gert í
þágu landa sinna og á af þeim
þakkir fyrir það skilið.
* * *
Óli Jónasson frá Árnesi, Man.,
kom til bæjarins s. 1. þriðjudag.
Hann er á leið vestur til Van-
couver Island til að sjá sig um.
* * *
Karlakór íslendinga syngur á
Mountain, laugardagskvöldið 20.
maí. Lögin sem sungin verða,
eru hin sömu og á samkomunni í
Auditorium; auk þess verður
ýmislegt fleira á skemtiskránni
á milli söngsins. Nánar auglýst
síðar.
* * * /
í bréfi sem Heimskringla með-
tók s. 1. föstudag frá Mr. Sof-
foníasi Thorkelssyni segir: “Nú
er eg á leiðinni suður með strönd
Ameríku áleiðis til Panama. Býst
við að lenda í New York 9. maí
og dvelja þar til hins 15. Líð-
anin er hinn allra ákjósanleg-
asta! Eg hefi skemt mér og
hvílst ágætlega vel. Eg bið að
heilsa Winnipeg---------”
* * *
DVÖL—I. hefti, 7. árg., er ný-
komið út. Árgangur þessa á-
gæta tímarits kostar nú aðeins
$1.50.
Útsölumaður Dvalar í Vestur
heimi er:
Magnús Peterson
313 Horace St., Norwood, Man.
* * *
Mánudaginn *3. maí voru þau
Markús Markússon frá Hnausa,
Man., og Mary Materuk frá
Shorncliff, Man., gefin saman í
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni, að 493 Lipton St. —
Heimili þeirra verður að Hnausa.
* * *
Þann 5. þ. m. voru gefin sam-
an í hjónaband af séra S. S.
Ohristopherson þau Jón Ander-
son og Annie Schnider, Heimili
þeirra hjóna verður í Þingvalla-
bygð í grend við Bredenbury.
SARGENT TAXI
SIMI 34 555 or 34 557
7241/jj Sargent Ave.
Guðsþjónusta í kirkju Lög-
bergs safnaðar kd. 14. þ. m. kl.
2 e. h. í kirkju Konkordía safn.
þ. 21. og safnaðarfundur að lok-
The „Young Icelanders will
hold their next meeting at the
home of Harold Johnson, 1023
Ingersoll St., Sunday evening,
May 14, commencing at 8.30.
Prof. Skúli Johnson will be the
guest speaker.
* * *
Jón Bjarnason Academy
Ladies’ Guild are planning to
have their annual lilac tea on
the 19th of May in the school,
afternoon and evening.
* * *
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar hefir sinn árlega vor
bazaar þann 17 þ. m. í kirkj-
unni.
* * *
íslenzk guðsþjónusta verður
haldin í dönsku kirkjunni á
Burn stræti og nítjándu götu í
Vancouver sunnudaginn 14. maí,
kl. 1.30 e. h. Tækifæri verður
til altarisgöngu fyrir þá er óska.
Þeir, er sjá þessa auglýsingu,
eru beðnir að útbreiða messu-
boðin.
K. K. Ólafson
* * *
Prestakall Norður-Nýja-fslands
Áætlaðar messur um 3. fyrstu
sunnudaga maí-mánaðar:
14. maí: Árborg, kl. 11 árd.
14. maí: Geysiskirkju kl. 2 síðd.
Safnaðarf. eftir messu.
21. maí: Framnes Hall, kl. 11
árd.
21. maí: Riverton kl. 2 síðd.
21. maí: Breiðuviíkurkirkju, kl.
8 síðd.
S. Ólafsson
* H: *
Jóns Sigurðssonar félagið I.O.
D.E., hefir beðið “Heimskr.” að
minna fólk á, sem ekki hefir enn
eignast bókina “Minningarrit
íslenzkra hermanna”, sem félag-
ið gaf út fyrir mörgum árum
síðan, að enn gefist því kostur á
að eignast bókina, því fáein ein-
tök eru enn eftir óseld hjá for-
'feeta félagsins, Mrs. J. B. Skapta-
son, 378 Maryland St., Winni-
peg. Bókin kostaði upphaflega
$10.00 í góðu bandi, en er nú
færð niður í þriðjung þess
verðs, auk burðargjalds. Pant-
anir ætti að gera sem fyrst, því
ólíklega endist upplagið lengi úr
þessu.
* * *
Deild yngri kvenna í Sam-
bandssöfnuði í Winnipeg, sem
staðið hafa fyrir Saturday Night
Club skemtununum, efnir til
Carnival Tea laugardaginn 13.
maí, eftir hádegi og ,að kvöldi.'
* * *
Karlakór íslendinga í Winni-
peg, syngur á Mountain laugar-
daginn 20. maí. Samkoman er
undir umsjón Karlakórs íslend-
inga á Mountain. Nánar aug-
lýst síðar.
* * *
Til leigu
Stórt og bjart hliðarherbergi
með balkoní, án húsgagna. Sími
35 909. 591 Sherburn St.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir íslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
ISLANDS-FRÉTTIR
Maður drukknar
Á páskadag vildi til það slys,
að lunglingsmaður, Bjarní M.
Jónsson frá Flögu í Skaftár-
tungu drukknaði í Kúðafljóti.
Var hann í póstferð suður í
Álftaver og austur í Meðalland,
er slysið bar að. Fór hann frá
Leiðvelli í Meðallandi á leið upp
í Skaftártungu síðdegis á páska-
dag. Á mándagsmorgun sáust
hestar Bjarna frá Hrífunesi í
Skaftártungu og var þá hafin
leit að honum. Hafði hans eigi
fyrr verið saknað, þar eð ekki
hafði verið ráð fyrir gert að
hann kæm heim fyrr en á mánu-
dag. Fanst líkið við Kúðafljót,
vestan við Leiðvelli. Fljótið var
vatnslítið þessa daga.
Bjarni var rösklega tvítugur
að aldri, ættaður úr Reykjavík,
en hefir lengi dvalið að Flögu.
—Tíminn, 13. apríl
*
Kveðjusamsæti
Tíminn hafði fregnir af því í
gær, að vopnfirðingar hefðu á
sunnudagskvöldið haldið Gunn-
ari Gunnarssyni hreppstjóra á
Ljótsstöðum og Guðrúnu dóttur
hans kveðjusamsæti í samkomu-
húsinu í Vopnafirði, en Gunnar
er á förum að Skriðuklaustri á
Fljótsdalshéraði, þar sem Gunn-
ar skáld, sonur hans, sezt að á
komandi vori. Sátu hófið um
150 manns. Var Gunnari gefinn
vandaður göngustafur, útskor-
inn. Gunnar eldri flytur ein-
hvern næstu daga að Skriðu-
klaustri, en Gunnar skáld kemur
sennilega heim í maímánuði.
—Tíminn, 18. apríl.
MESSUR og FUNDIR
i kirkju SambandssafnaOar
I
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funair 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
KvenfélagiO: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn &
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
VERKEFNI NÝJU STJÓRNAR
INNAR Á fSLANDI
Frh. frá 5. bls.
langvarandi aflabrest, verðlækk-
unar og markaðshruns, er þess
brýn þörf, að þjóðin standi sam-
an sem heild — og keppi sem
heild að sameiginlegu marlki.
Þegar og stöðugt syrtir að í al-
þjóðamálum og stríðshættan
virðist vaxa ört með hverjum
degi, vænti eg þess af hverjum
góðum fslendingi, að hann skilji
það sjónarmið, að það sé nauð-
syn, að þjóðin mæti þeim erfið-
leikum, sem ófriður myndi valda,
sem heild en ekki í hörðum deil-
um hver við annan.
Af þessum ástæðum göngum
við til samstarfs, því þótt við
séum allir hinir sömu flokks-
menn og við höfum verið, erum
við þó fyrst og fremst íslending-
ar, sem höfum þær skyldur, að
horfa yfir flokkssjónarmiðin
þegar, og að svo miklu leyti, sem
við.erum sannfærðir um, að líf
þjóðarinnar og heill krefst þess.
Að þetta sjónarmið verði ríkj-
andi í samstarfinu, bæði í ríkis-
stjórninni og hjá þjóðinni, tel eg
vera grundvöll þess, að sam-
starfið megi takast.
Ef félagsheildir, stéttir eða
einstaklingar, sem standa að
baki ráðherrum í ríkisstjórninni,
sýna ásælni í því að fá dreginn
sinn taum eitt fet framar því,
sem réttlátt er, samanborið við
aðra, og framar því sem alþjóð-
arheill leyfir, og látið verður
undan þeirri ásælni, þá mun
samstarfið, 'að mínu áliti sem
forsætisráðherra, mistakast.
Til samstarfsins er stofnað til
þess að stjórnin geti haft nægi-
legan styrkleika og öryggi til
þess að framkvæma hvert mál
eingöngu frá sjónarmiði almenns
réttlætis^jg alþjóðarheilla, — en
án tillits til krafna frá félags-
heildum, stéttum eða einstakl-
ingum, framar því sem þetta
sjónarmið markar. —
Ef þessarí reglu verður fylgt í
samstarfinu, þá hygg eg að það
verði þjóðinni til blessunar, —
og eg vil vona að svo verði.
—Tíminn, 18. apríl 1939.
ROSE
THEATRE
---Sargent at Arlington-
xms THURS. FRI. & SAT.
Wayne Claire
Morris Trevor
All in Natural Colors
“VALLEY OF THE GIANTS”
also'
The Dionne Quintuplets in
“FIVE OF A KIND”
Cartoon
Thurs. Night is GIFT NIGHT
Fri Nite and Sat. Matinee
Ch. 10 ‘Hawk of the VVildemess'
ínm messu.
Á hvítasunnudaginn guðsþjón-
usta, ferming og altarisganga.
S. S. C.
Bréf
Stephans G. Stephanssonar,
fyrsta bindi, er nú komið vest-
ur. Er bókin til sölu hjá Mag-
núsi Peterssyni bóksala, 313
Horace St., Norwood, Man., og
hjá dr. R. Péturssyni á skrif-
stofu Heimskringlu. Verðið er
$1.75. Ágætari og verðmætari
bók er ekki hægt að hugsa sér,
en þessa. Skrifið sem fyrst eft-
ir henni.
FOR MOTHER’S DAY
NOTHING IS MORE APPROPRIATE THAN
A BOX OF THE FAMOUS
Laura Secord Cartdies
(Canada’s Finest)
And for Sunday Dinner Don’t forget . . .
HARMAN’S FRESH HOME MADE ICE CREAM
The Best in the City
Harman's Drus Store Sargent Pharmacy
Portage at Sherbrook Sargent at Toronto
Phone 34 561 Phone 23 455
ROLLER SKATE
WINNIPEG ROLLER RINK
Langside and Portage
Special Rates to Parties
30 838
Winnipeg River Timber Co. Ltd.
Seven Sisters, Manitoba
hafa á hendi mikið upplag af þurrum byggingarvið af
öllum tegundum, til sölu á sanngjörnu verði.
Upplýsingar, príslistar, prufur af efni að—
720 Mclntyre Block, Winnipeg, Sími 96 233
Páll Sigurdson, eigandi