Heimskringla - 28.07.1944, Blaðsíða 1
We recommend for
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF
//
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend for
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LVIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 28. JÚNI 1944
NÚMER 39.
3’léttayli’llit og, Hm3agnit
Frá stríðinu
Fréttir á þriðjudagskvöld frá
Normandíu, voru þær, að banda-
mönnum væri að ganga betur.
Bardagar hafi lengi verið háðir
um borgina Caen, uppi í miðju
landi, en ekki hefir tekist að reka
Þjóðverja þaðan. Hefir her
bandamanna þó mikið unnið á
og slitið samgöngur að sunnan
og norðan. En Cherbourg
(Skerjaborg), hafnborginni
miklu, hafa þeir náð og eru
sagðir byrjaðir að gera við hina
miklu höfn þar, er Þjóðverjar
eyðilögðu eins og þeim var unt.
Segja þó verkfræðingar, að inn-
an viku muni bandamenn geta
flutt þangað herlið og vopn í
stórum stíl.
Hérað þetta, Normandí, sem
bandamenn hafa lent í, er eitt
kunnasta hérað á Frakklandi, af
fornsögum Islendinga. Þar sett-
ust Norðmenn að á 10. öld. Þar
er hafnborg mikil er Le Havre
heitir, sem bandamenn eru
komnir nærri og þar er og Rou-
en, sem áðiír hét Rúðuborg og
var fyrrum höfuðborg í Nor-
mandí. Þar sátu Norðmenn og
höfðingjar þeirra kölluðu sig
“Rúðujarla”. 1 dómkirkju fornri
þar, er sagt að Gönguhrólfur
hvíli — o. s. frv., o. s. frv.
Forsætisráðhena Islands
Dr. jur. Björn Þórðarson
Þegar ný stjórn var skipuð á
íslandi í desember 1942, var dr.
jur. Björn Þórðarson valinn
stjórnarformaður. Hann er þjóð
kunnur og reyndur lögfræðing-
ur.
Utanríkisráðherra íslands
Vilhjálmur Þór
Með skipun nýrrar stjórnar á
slandi 1942, var Vilhjálmur Þór
bankastjóri og maður þaulkunn-
ugur viðskiftalífinu bæði inn á
Við og út á við, kjörinn utanrík-
ismálaráðherra íslands. Hann
starfaði um skeið hér vestra,
heimsótti Winnipeg-lslendinga
og varð hér mörgum persónu-
lega kunnugur.
Rússar hafa verið að draga
saman lið til áhlaupa á borgina
Vitebsk, norðvestur af Smol-
ensk. Borg sú hefir geysimikla
hernaðar þýðingu fyrir Þjóð-
verja. Eru líkurnar að Þjóð-
verjar haldi henni ekki lengi.
Þegar Rússar hafa náð henni,
geta þeir bæði sótt suðvestur til
Minsk eða norður í Latvíu og úr
annari hvorri þessari átt, haldið
í áttina til Berlínar.
1 Finnlandi eru Rússar sagðir
á hraðri leið til Helsinki, höfuð-
borgar Finnlands. Þjóðverjar
virðast ekkert liðsinna Finnum.
▲
1 flug og sjóorustu sem Kyrra-
hafsfloti Bandaríkjanna og floti
Japana háðu 19. júní, milli Phil-
ipseyja og eyjanna Marianas
söktu Bandaríkjamenn 14 her-
skipum, úr ýmsum flokkum
'(herskipi, 3 tundurspillum, olíu-
flutningaskipum og vista- og her-
mannaflutningaskipum) og eyði-
lögðu 353 flugför. Bandaríkja-
flotinn tapaði engu skipi, en eitt
eða tvö sködduðust eitthvað. -
Hófu Japar sóknina og voru vel
útbúnir og töldu sig færa að
mæta Bandaríkjaflotanum. En
leikslokin urðu þessi, þegar loks
til orustu var lagt.
Á Italíu hefir bandahernum
gengjð lítið síðustu viku, enda
sagt að Þjóðverjar hafi þar eflt
lið sitt.
ÞINGVELLIR A ÍSLANDI
Mynd þessi er af hinum sögufræga stað Islands, Þing-
völlum. Þar var nú lýðveldi þjóðarinnar endurreist 17. júní
1944, á sama staðnum og það var stofnað 930.
Roosevelt sendir forseta
íslands árnaðaróskir
X
Roosevelt Bandaríkjaforseti
sendi Sveini Björnssyni árnaðar-
óskir 17. júní í tilefni af að hann
var kosinn fyrsti forseti Islands
eftir stofnun lýðveldisins á ís-
landi.
Cordell Hull ríkisritari Banda-
ríkjanna, sendi einnig utanríkis-
málaráðherra Islands, Vilhjálml
Þór heillaóskaskeyti.
Skeyti Roosevelts hljóðaði
þannig:
“Innilegustu heillaóskir í til-
efni af kosningu yðar í forseta-
stöðu hins nýstofnaða lýðveldis
á Islandi. Fyrir eigin hönd og
Bandaríkjaþjóðar óskum vér ís-
lenzkri þjóð hagsældar.”
Skeyti Hulls ríkisritara:
“Á þessari örlagaríku stund í
sögu íslands, óskum vér þjóðinni
hags og heilla.”
—(Úr Chr. Sc. Monitor).
Ottawa-reikningarnir
Stjórnin í Ottawa gerir ráð
fyrir að þurfa með 6 biljón dali
til stríðs- og stjrónarreksturs á
árinu, sem fer í hönd 1. júlí.
Áætlaður reikningur yfir
þetta, sem Hon. J. L. Ilsley, fjár-
málaráðherra lagði fram í þing-
inu í gær, gerir ráð fyrir tekj-
um er nema $5,152,000,000, en
telur það ekki muni hrökkva til
og þörfin láti nærri að vera
$6,000,000,000.
Stjórnin gerir ráð fyrir að tæp-
ur helmingur þessa f jár fáist með
sköttum og að rúmar þjár biljón-
ir ($3,200,000,000) verði að taka
að láni. Er það 320 miljón döl-
um meira en á síðasta ári.
Nokkur hluti skattsins hefir
undanfarin ár verið skyldusparn-
aður, eða lán, til stjórnarinnar.
Þann hluta skattsins á að fella
niður frá 1. júlí 1944. Að öðru
leyti er tekjuskatturinn sá sami.
Engin skattahækkun á sér stað.
Tollur er numinn af akur-
yrkjuverkfærum, skilvindum og
þess háttar. Afnuminn er og
10% herskattur á þessum vörum.
Skuld Canada er talin hátt á
elleftu biljón ($10,689,000,000).
Vextir á skuldinni námu á ár-
inu $243,000,000.
97% af skuld Canada, er inn-
anlandsskuld, þ. e. handhafar
verðbréfa eru Canadamenn.
Um reikninga þessa er ýmis-
legt sagt. Stjórnarandstæðingar
telja tollafnámið á búnaðará-
höldum kosningabeitu. Liberöl-
um og þar á meðal blaðinu Free
Press, þykir slæmt, að reikning-
arnir skuli vera hærri en nokkru
sinni fyr.
Útför dr. B. J. Brandsonar
Útför dr. B. J. Brandsonar, er
lézt 20. júní, fór fram frá Fyrstu
lútersku kirkju s. 1. laugardag.
Var útförin hin fjölmennasta,
sem vænta mátti, þar sem verið
var að kveðja einn hinn víðfræg-
asta mann í hópi Vestur-lslend-
inga. Séra Valdimar J. Eylands
flutti útfararræðuna, og lagði út
af orðunum: “Prins og mikill
maður er í dag fallinn”, úr ann-
ari Samúelsbók, 3 kapítula. —
Söngflokkurinn söng undir
stjórn frú B. Violet ísfeld: “Yea,
Tho I Walk” og Kerr Wilson
söng “Crossing the Bar”.
Líkmenn voru Dr. C. W.
Burns, Dr. Charles Hunter, Dr.
B. H. Olson, Hjálmar A. Berg-
man dómari, G. F. Jónasson og
J. K. Ólafson.
A. S. Bardal var útfarar-
stjóri. Grafið var í Brookside
grafreit.
Mannlaus flugför
Um miðjan júnímánuð byrj-
uðu Þjóðverjar að nota nýtt vopn
í stríðinu. Það voru mannlaus
flugför.
Hafa þau síðan verið notuð til
sprengjuárása á England; að þau
hafi til nokurs annars verið not-
uð, fara enn engar sögur af.
Um skaða sem af þeim hafa
hlotist getur ekki. Er því haldið
leyndu vegna þess, að það gætu
verið Þjóðverjum þarfar upp-
lýsingar.
En að þau séu ægilegt vopn, er
ekki að efa. Skaðar hafa af þeim
hlotist, en ekki neitt svipað því,
er í árásunum miklu gerðist fyr-
ir nokkrum árum. 1 ræðu, sem
Herbert Morrison, ráðherra, er
um öryggi heima fyrir sér, gat
þess í ræðu s. 1. föstudag á þing-
inu, að þetta leynda vopn hefði
engin veruleg áhrif haft á hern-
aðarframleiðsluna og ensku
þjóðina hefði það ekki á nokkurn
hátt bugað.
Flugförunum er ekki stjórnað
af geislum. Þau eru knúin af
sjálfvirkum vélum. Þau eru í
líkingu við Spitfire flugvélar, en
miklu minni. Þau virðast geta
flogið um 150 mílur, eða nægi-
lega langt til að komast til Eng-
lands. Þau fljúga fremur lágt og
fara þráð-beint; ferðhraðinn er
mikill, frá 250 til 350 milur á
klukkustund. Sprengjur sem þau
flytja, eru um eina smálest að
þyngd, en sterkar og eldfimar.
Mannlausu-flugförin koma oft
svo þétt, að 8 eða 9 sjást á lofti
í einu, en stundum einstök. Að
möguleikar séu til að bæta eða
fullkomna þetta nýja vopn, eru
auðvitað allar líkur til.
Varnir gegn þessu eru ekki
sagðar aðrar en þær, að skjóta
flugförin niður áður en þau kom-
ast alla leið. Hefir það að ein-
hverju leyti tekist. En helzt
mun þó gert ráð fyrir, að reyna
að stemma á að ósi og sprengja
um stöðvarnar sem flugur þessar
koma frá. En þar munu nú sterk-
ar byssur fyrir til varnar og óvíst
að það sé svo auðvelt.
Á mánudag, þegar þetta er
skrifað, halda þessi mannlausu
flugför áfram komum sínum,
ýmist þétt eða strjált, en af
ferðum þeirra segir ekki annað
en það, sem í grein þessari er
getið.
|
P. M. Dahl dáinn
Nýlega er látinn í þessum bæ
nafnkunnur norskur blaðaútgef-
andi, er P. M. Dahl hét. Hann
var fæddur í Noregi og flutti
ungur til Svíþjóðar. Til þessa
lands kom hann fyrir 42 árum.
Hann hefir verið útgefandi
norska blaðsins Norröna og sven-
ska blaðsins Canada Tidningen.
Mr. Dahl stóð hér framarlega í
fylkingu norskra og svenskra
forustumanna.
skeiði fyrir æskuna, sem á s. 1.
sumri.
Fulltrúar frá söfnuðum í
Manitoba og Saskatchewan sóttu
þingið og gestir víðsvegar að,
þar á meðal frá Blaine, Wash.
Báru skrýslur með sér, að starf
ið hafði gengið furðanlega vel í
söfnuðunum, þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika, eins og þá er stafa af
flutningi fólks úr einum stað í
annan í þágu iðnaðarstarfs
landsins og ungra manna í her-
inn.
Eitt af því sem talið mun
verða með því bezta er fram fór
í sambandi við þingið, var út-
varpsmessa á sunnudagskvöldið.
Flutti séra Eyjólfur Melan ræð-
una, sem afbragð þótti og birt er
í þessu blaði. Ennfremur var
söngur kirkjunnar sérlega val-
inn og góður við þetta tækifæri.
1 sambandi við kirkjuþingið,
var þing Kvennasambandsins
haldið. Með því að það fór fram
á sama tíma og á öðrum stað en
fundir' kirkjuþingsins, kunnum
FALLINN
*
Eggert Stefánsson
Á laugardaginn var barst þeim
hjónum, Gufímundi A. Stefáns-
syni og konu hans Jóhönnu, að
1124 Dominion St., hér í bæ, sú
harmafregn frá herráði Canada,
að sonur þeirra, Eggert, hefði
fallið á vígvelli Fraklands þann
8. þ. m.
Eggert heitinn var aðeins rúms
vér ekki frá starfi þess að segja,j21 árs að aldri, fæddur 9. apríl
en vonum að það verði á öðrum 1923 í Winnipeg. Hann á, auk
stað gert. En samkomu efndi það
til á laugardagskvöld, • er hið
bezta var rómuð, flutti frú
Andrea Johnson frá Árborg þar
áheyrilega ræðu.
Fyrirlestur um Adult Educa-
tion flutti ungfrú Stefanía Sig-
urðsson einn dag þingsins.
1 stjórnarnefnd voru þessir
kosnir: Hannes Péturson forseti
(endurkosinn), séra Philip M.
Pétursson ritari (endurkosinn),
sem jafnframt er útbreið^lumála
stjóri fyrir American Unitarian
Association, Sveinn Thorvald-
son, M.B.E., vara-forseti; Páll S.
Pálsson féhirðir, J. B. Skaptason
vara-féhirðir, B. E. Johnson
vara-ritari, Mrs. S. E. Björnson,
foreldra sinna, þrjú systkin á
lífi, bróður, Stefán Halldór, sem
er í læknaliði lofthers Canada og
er nú sem stendur í Rivers, Man.,
og tvær systur, Helgu (Mrs.
Johnson), er býr í Kingston,
Ont., og Ólöfu, í foreldra húsum.
Einnig mörg önnur nákomin
skyldmenni bæði hér og heima á
Islandi.
Eggert heitinn ólst upp í Win-
nipeg og naut þar skólamentun-
ar sinnar, í Wellington skólan-
um, General Wolfe og Daniel
Mclntyre.
Hann var kunnari í vestur
parti Winnipeg-borgar en flestir
aðrir íslenzkir jafnaldrar hans,
því á skólaárum sínum bar hann
Árborg, eftirlitsmaður sunnu-| út Winnipeg Tribune á hverjum
dagaskóla starfsins. Sæti á, degi, og er því slepti vann hann
stj órnarnefndarfundum eigají búð Gunnlaugs Jóhannssonar
ennfremur Mrs. J. E. Melan, sem og síðar hjá Steindóri kaupmanni
Jakobssyni í búð hans, og þaðan
gekk hann í herþjónustu.
Hann innritaðist 5. janúar
1943 í Winnipeg Rifle herdeild-
ina, og fór með henni austur um
var kosin forseti Kvenna-
sambandsins og prestarnir séra
E. J. Melan og séra H. E. John-
son.
Áhugi lýsti sér mikill í sam-
þyktum orðum og athöfnum haf f ágúst mánuði sama ár, og
þingsins í því, að vinna að efl
ingu og útbreiðslu hins góða mál
efnis sambandskirknanna.
FJÆR OG NÆR
FÁEIN ORÐ UM
KIRKJUÞINGIÐ
Eins og á var minst og aug-
lýst í síðasta tölublaði Heims-
kringlu og þó öðrum blöðum ef-
laust mikið betur, hélt hið Sam-
einaða Kirkjufélag íslendinga í
Norður Ameríku, þing sitt um
síðustu helgi. Stóð það yfir á
þriðja dag. Skal hér þess getið
er maður í bráðina fremst af
man.
Þingið var á margan hátt á-
nægjulegt. Starfið hafði gengið
heldur betur á árinu, en oft áður,
bæði í útbreiðslumálinu og ken-
slumálum. Nýju og myndarlegu
riti á íslenzku hafði verið hleypt
af stokkunum, er miklum vin-
sældum hefir átt að fagna. Það
heitir Brautin og er ritstjórinn
séra Halldór E. Johnson. Þá
höfðu ný spor verið stigip í
kenslumálunum, er að því lúta
að greiða veg æskunnar að
kijkju, sem í strjálbýli stendur
ver að vígi með þetta en í þétt-
býli. Hefir séra Eyjólfur J. Mel-
an, Mrs. Melan og Mrs. S. E.
Björnson leyst af hendi mikið
starf í þágu þessa máls. Á
Hnausum er gert ráð fyrir náms
dvaldi í Englandi þar til að
árásin var hafin á Frakkland í
byrjun þessa mánaðar.
Eggert var mesti efnis piltur
til sálar og líkama, kurteis í allri
framkomu og kom sér hvarvetna
Séra Halldór Johnson, sem hið bezta. Er því sár harmur
verið hefir nokkrar vikur vestur, hveðinn að skyldmennum hans
í Wynyard og þjónað sambands-; °S vinum og söknuður öllum
söfnuðum vestra, kom heim til Þeim er nokkur kynni höfðu af
Winnipeg um miðja s. 1. viku.
Hann flutti ræðu á íslendinga-
degiíium í Wynyard. Sagði hann
hátíðina aldrei hafa verið betur
sótta.
* * *
Heimskringlu hefir verið láð
það, að geta ekki nafna ýmsra er
skemtu á lýðveldisdeginum á
Hnausum. Var sérstaklega bent komunni gátum vér ekki nafna
á nafn Péturs Magnús, er skemti tveggja manna, er mæltu fáein
með einsöng og ágætlega vel orð sem gestir á hátíðinni. Látum
eins og ávalt. Að yfir þetta sást, vér þau nú fylgja þessari bragar-
stafar að ekkert litlu leyti af því, bót; mennirnir sem vér eigum
að nafns hans var hvorki getið í við voru Hon. D. L. Campbell er
hinni sérprentuðu lýðveldis- j ávarpaði áheyrendur af hálfu
skemtiskrá er prentuð var, né í forsætisráðherra þessa fylkis,
auglýsingum blaðanna um lýð- ennfremur Hannes Pétursson er
veldisdaginn, en blaðamenn einnig ávarpaði samkomugesti.
honum.
Vinir hans senda hinar
innilegustu samúðarkveðjur til
foreldra og skyldmenna hins
fallna ungmennis, er gaf sitt dýr-
mætasta í þarfir lands og þjóðar,
friðar og frelsis í heimi þessum.
Sv.
verða að nota slíkt sér til minnis,
Iþróttir fóru og fram á hátíð-
því þegar einn og sami maður, iuni, en úrslit þeirra var ekki
verður að hripa niður á stuttum i kostur á að fá þá til birtingar.
tíma frásögn af þremur samkom-, Hkr. vonar að íþrjóttanefndin
um, auk allra annara brýnna j geri við hentugleika grein fyrir
frétta félagslegra og almennra, þessu.
er ekki öllum hent, að muna íj * * *
svip hvert atriði, sem fram fer. Guðbjörg Ingimundarson,
Það geta einnig komið til mála
þau réttindi blaða, hvað félags-
legar sögur skuli ítarlega sagð-
ar. í fréttinni af Hnausa-sam-
kona Guðjóns Ingimundarsonar
trésmiðs, 75 ára að aldri, lézt 26.
júní, að heimili þeirra hjóna,
812 Jessie Ave., Winnipeg.
\