Heimskringla - 14.01.1948, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 14. JANÚAR 1948
5. SIÐA
SKRAUTRITAÐ SKJAL
útbúið af samsætisnefndinni á
áttugasta afmæli
Dr. Sigurðar Júlíusar Jóhannes-
sonar
Sigurður Júlíus Jóhannesson
læknir
og Frú Halldóra Þorbergsdóttir
Áttatíu ár er meira en meðal
manns æfi að árum til, því ald-
urstakmarki hefur þú, Sigurð-
ur Júlíus Jóhannesson, náð í
dag. En það er þó ekkj árafjöld-
inn sem mestu varðar í lífi
manna, hvorki í þínu né annara,
heldur það, hvernig að æfidög-
Sr. Philip Pétursson afhendir Dr.
Sig. Júl. Jóhannessyni skraut-
ritað ávarp frá Þjóðræknisfél.
um þeim, sem menn eiga yfir að
ráða er varið; hvernig að lífs-
kröftunum er beitt í þjónustu
samtíðarmannanna, og hve
miklu rækt að menn leggja við
sinn eiginn sálar og líkams
þroska.
Það er óþarft að fara mörgum
orðum um það mikilvæga lífs-
atriði í þínu tilfelli, Sigurður,
mannfjöldinn sem hér er sam-
an kominn er áhrifameira vitni
í þeim efnum en nokkuð það er
vér fáum sagt. Hugur samferða-
nxanna þinna allra til þín er hlýr
og einlægur. Þökk þeirra fyrir
sporin mörgu sem þú hefur stig-
ið til að hlynna að þeim sem
sjúkdómar þjáðu og vonleysið
veikti er sönn og fjölskvalaus,
því þeir vita að aðalatriðið sem
fyrir þér vakir, og hefur ávalt
vakað er að líkna í nauð og létta
þraut.
Og þú skalt vita að það eru
fleiri en þeir sem hér eru stadd-
ir í kvöld, sem hugsa til þín
með hlýjum huga og hjartans
þökk. Það gera allir þeir, sem
þú hefur létt þrautir og þjáning-
ar hvort heldur að þeir eru fjær
eða nær.
Vér þökkum þátttöku þína,
Sigurður, í hinum sérstöku
menningarmálum vorum Vest-
ur íslendinga sem hefur verið
hrein, drengileg og djörf á þeim
sviðum, sem þú hefur látið þig
varða.
Og vér þökkum ljóðin þín un-
aðslegu, ljúfu og þýðu.
Vér þökkum og þér, frú Hall-
dóru, fyrir þátt þann, sem þú
átt í hinu góða og göfuga hlut-
verki manns þíns. Fyrir heimil-
ið friðsama og farsæla, sem þú
bjóst honum, þar sem hann á-
valt gat notið hvíldar og endur-
næringar, hvað þreyttur sem
hann var.
Þjóðræknisfélag Íslendinga í
Vesturheimi •
Philip M. Pétursson
vara forseti
H. E. Johnson ritari
Almennur ársfundur elliheim-
ilisnefndarinnar í Vancouver,
verður haldinn þriðjudaginn 20.
Jan. n. k. kl. 8 e. h. í Hastings
Auditorium, 828 E. Hastings St.,
Vancouver.
* ★ *
f Arabellu kvæði sr. H. E.
Johnson í síðasta blaði, varð
prentvilla í fyrstu hendingu í
næst stíðustu vísu; þar stendur:
Árin blæða eftir synd, en á að
vera: Örin blæða o. s. frv.
HEIM SKRINGLA
ÞAKKLÆTI
Mitt innilegasta þakklæti
votta eg fyrir mína eigin hönd,
konu minnar og dætra, öllum
þeim, sem með nærveru sinni,
símskeytum, bréfum, blómum
eða á annan hátt tóku þátt í því
ágæta samkvæmi, sem okkur
var haldið í lútersku kirkjunni
í Winnipeg 10. þ. m. í tilefni af
því, að eg varð þá áttræður.
Sérstaklega þakka eg þeim
sem unnu að undinbúningi sam-
kvæmisins og stjórnuðu því, að
ógleymdum öllum þeim, sem þar
komu fram með: ræður, kvæði,
söngva og ávörp. Einnig þakka
eg innilega hinar miklu gjafir
frá Þjóðræknisfélaginu og Good
Templara reglunni; og síðast en
ekki sízt skrautritað ávarp frá
Þjóðræknisfélaginu.
Við gleymum aldrei þessu
kveldi.
Sig. Júl. Jóhannesson
Heillaóskaskeyti bárust frá þeim,
er hér segir:
I. —Frá íslandi;
1. Ríkisstjórn íslands — Stef-
án Jóhann Stefánsson,
forsætisráðherra.
2. Alþýðusamband Islands.
3. Rarnablaðið Æskan.
4. Bekkjarbræður og samstud-
entar.
5. Félag Vestur-lslendinga —
Hálfdán Eiríksson, Þórar-
inn Viíkingur, Guðni Sig-
urðsson, Jakob Jónsson.
6. Fanney, Ingólfur og fjöl-
skylda.
7. Jósef Björnsson, Svarfhóli.
8. Lárus Sigurjónsson, Rvík.
9. Magnús V. Jóhannesson,
Reykjavík.
10. Stórstúku íslands.
II. Þjóðræknisfélagið á íslandi
— Sigurgeirs Sigurðssson
Ófeigur J. Ófeigsson
Henrik Sv. Björnsson
Friðrik Hallgrímsson
Benedikt Gröndal
12. Frændfólkið í Reykjavík.
II—Hér vestra:
1. W. L. Mackenzie King, for-
sætisráðherra Canada.
2. Mr. og Mrs. Árni Helgason,
Chicago.
3. Mr. og Mrs. Einar Johnson,
Steep Rock
4. Guttormur J. Guttormsson,
Riverton
5. Guðrún Thorsteinson, Wpg.
6. G. J. Oleson, Glenboro
7. Ingibjörg og Gunnar B.
Bjömson, Minneapolis
8. Halldór Hermannsson, New
York
9. H. A. Bergman, Winnipeg
10. Ingibjörg Hósíasdóttir, Moz-
art
11. J. Ragnar Johnson, Toronto
12. J. T .Thorson, Ottawa
13. Icelandic Lutheran Congre-
gation, Vancouver, Sölva-
son
14. Lundar og umhverfi — H. E.
Johnson, L. Sveinson, V.
J. Guttormson, D.'J. Lin-
dal, Helga Thorgilson.
5. Lovísa Frímannson Fenton,
Struthers, Ohio
6. Liberals, South Centre Win-
nipeg — Norman E.
Wright, Grace C. Piggot.
7. Mr. og Mrs. Mundi Grímson,
Mozart
8. Mr. og Mrs. Ragnar H. Rag-
nar, Edinborg
9. Richard Beck, Grand Forks
0. Ralph Mayibank, Ottawa
1. Sigurlína Kjartanson og fjöl-
skylda, Washington
2. Stanley Knowles, Ottawa
3. Margrét og Haraldur "Sig-
mar, Vancouver
4. Isak og Jakobína Johnson,
Seattle
5. Rannveig K. G. Sigbjömson,
Leslie
6. Wynyard og umhverfi — H.
S. Axford, G. Benediktson
Auk þessa fjöldi af heillaóska
pjöldum.
Til öðlingsins áttræða,
dr. Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar
Sigurhetjan áttatíu ára,
þér yfir skerin lyfti tímans bára
í góðravona höfn, þitt glaða sinni
greiddi leið að mörgu vinar-kynni.
Þín læknishönd var lögð að hjarta sárum,
þú leiðst með þeim er grétu sorgar-tárum;
þín gleði var að græða þá sem líða
en glæða vonir þeim er sjúkir stríða.
Að rækta blóm í andans akurlendi
var iðja þín með þreyttri kærleiks hendi,
og vekja bros á barnsins rósa-vömm
en bliíðka þeirra geð með hlýjum svörum.
Ellihmmir blessa þig og biðja,
að borgist nú þitt kærleiksþel og iðja,
þér brosi haust í fögru friðar-skini • »
svo farsæld skáldsins gleðji þína vini.
Þú áttir leið með öllum sem að stríða
upp á við til fegri og sælli tíða,
þitt guðsríki var gert af manna höndum
í gróðrar-h'fsins fögru drauma-löndum.
Þú ert fólksins skáld með eld í æðum,
þitt andans stál er hert á sannleiks glæðum;
þú geymdir aldrei tál í tildurs orðum,
en traust þitt mál, sem spámannanna forðum.
Lista-skáldið, íslenzkur í anda,
er aldir líða munu ljóð þín standa
og geisla fögru vonarljósi á veginn,
á vökumannsins brautir sólar megin.
Þér lýsi sól í afturelding lífsins
eftir skúraföll í hreti kífsins
og ehgla hendur breiði blessun sína
á brautina við héðangöngu þína.
H. E. Johnson
FJÆR OG NÆR
AFMÆLISKVEÐJA
til Dr. Sigurðar Júlíusar
J óh annessonar
Heill þér áttræðum, Sigurður
Júlíus Jóhannesson! Þú hefir
borið gæfu til þess að ná háum
aldri að ámm, en varðveita jafn-
framt æsku andans, sumarið hið
innra, hvernig sem viðrað hefir
á langri æfileið. Glaðvakandi
hefir þú einnig haldið í brjósti
þér hugsjónaást þinni og djúp-
stæðri samúð með samferða-
mönnunum á lífsleiðinni, og með
öllum mönnum hvarvetna. Því
gengur þú enn beinn í baki og
léttur á fæti. Trúin á morgun-
roðann hefir haldið þér ungum.
Og þessar göfugu lífsskoðanir ^
þínar og djúpa líftrú em skráð-|
ar gullnum rúnum í mannúðar-:
verkum þínum í læknisstarfinu. I
í framsækinni afstöðu þinni til
þjóðfélagsmála og margþættri
þátttöku þinni í bindindismál-
unum og öðmm félagsmálum,
sem horfa landslýðnum til bless-
unar og bóta. Hvergi eru hug-
sjónaást þín, framsóknarandi og
mannúð þó ritaðar fegurra letri
en í hjartaheitum kvæðum þín-
um, faguryrtum og léttstígum,
sem klappa'þýtt á vanga, eins og
sumariblærinn á æskuárum þín-
um heima á ættjörðinni.
Kvæðin þín bera því einnig
fagurt vitni, að þú berð í brjósti
heita ást til hennar og heima-
þjóðarinnar, þrátt fyrir að kalla
má fimtíu ára fjarvistir; og
margvíslegur skerfur þinn til
þjóðræknisviðleitninnar vestur
hér á rætur gínar í sama jarð-
veginum, sonartrygðinni við
okkar sameiginlegu móður, ætt-
landið.
Fyrir trúnaðinn í orði og verki
við hugsjónir þínar, sem marg-
háttuð nytja-störf þín bera vitni,
hyllum við þig á þessum degi,
áttræðisafmæli þínu. Hjartans
þakkir fyrir það alt, og þá eigi
síður hugheilustu þökk fyrir ó-
brigðula vináttu, nú ladarfjórð-
ungsgamla. Megir þú sem lengst
njóta hlýjunnar go birtunnar,
sem leikur um þig á heiðursdeg-
inum, og megum við sem lengst
njóta samfylgdar þinnar! Lifðu
heill, áttræði unghugi!
Þinn einlægur.
Richard Beck
Dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson og frú
10. janúar 1948
Kaupið Heimskrinjflu
Borprið Heimskrinjrlu
Við hyllum þig vor mæti íslands mögur,
fríá mUnans grunni hljómar vinalag;
við áttatíu áramótin fögur
þú enn þá stendur hreinn og frjáls i dag.
Þinn bróðurandi ör að létta húmi
var okkur jafnan bót við mein og stríð,
það eðli geislar yfir tímans rúmi
með eilíft sigurvald á hverri tíð.
Með glaða lund þú gekst að okkar fundum,
hvert göfugt mál þér brann í hjartarót,
og þó að bitrir byljir mættu stundum
þú beygðir ei frá þinni stefnu hót.
Þín drenglund var og dáð að réttu metin,
en dýpst og bezt þín líkn við sjúkrahag,
þó lækki sól og fækki stunda fetin
stóð fólk þér aldrei nær en þenna dag.
Þitt prúða fljóð, sem húsið bygði heima
var heilladísin þín á langri braut,
með dygð og trygð, sem góðar konur geyma
sem göfug brúður Njáls í hinstu þraut.
1 þökk og ást frá margra vina munni
að megi ykkur haustið skína blítt,
unz svífur fley að síðstu lendingunni
í sæluhöfn að byrja lífið nýtt.
M. Markússon
Þjóðræknisstarfið
Mrs. Hólmfríður Daníelson
fór til Gimli, s. 1. mánudag til
þess að aðstoða við íslenzku
kenslu Þjóðræknisdeildarinnar
þar, og halda fund með kennur-
unum.
Þar sem Mrs. Danielson hefir
ferðast fyrir hönd Þjóðræknis-
félagsins hefir henni verið tek-
ið af einstakri vinsemd og álúð.
Segir hún að ekki einungis em-
bættismenn og aðrir meðlimir
deildanna hafi sýnt áhuga fyrir
menningarstarfi því sem Þjóð-
ræknisfélagið beitir sér fyrir,i
heldur hafi íslendingar yfirleitt
látið í ljósi ánægju sína yfir því,
og allmargir gefið sig fram til
þess að taka þátt í því.
Fjórir íslenzku skólar eru nú
starfræktir, þar sem tuttugu og
þrír kennarar gefa af tíma sín-
um og kröftum, og um 250 börn
og unglingar eru innritaðir. —
Einnig eru tvö stór “Study
Groups” (fræðslu félög) starf-
andi þar sem fólk kemur saman
til þess að kynna sér íslenzkar
bókmentir. Er alt útlit fyrir það
að fleiri og fleiri muni vilja taka
þátt í þessari menningartilraun,
og er samskonar starf algengt
meðal hérlendra fræðslu félaga,
t. d. “The Burns Society” “The
Dickens Fellowship” og fl.
Ein deild Þjóðræknisfélagsins
er að æfa tvo ísl. leiki og er það
bæði skemtilegt og uppbyggilegt
starf, þar sem það, gefur ungu
fólki æfingu í að tala íslenzku
um léið og það nýtur tilsagnar
í leiklist.
Þjóðræknisdeildin “Grund” í
Argyle hefir boðið Mrs. Daniel-
son að heimsækja bygðina, sitja
fund með deildinni á föstudags-
kveldið 16. þ. m. og ferðast um
meðal bygðarfólks til þep að
styrkja starf deildarinnar í þágu
íslenzkra menningarmála.
★ * *
í bréfi til Jóseps B. Skapta-
sonar frá Magnúsi G. Guðlaugs-
syni, Clairmont, Alta., getur
þess að hann (Magnús) sé að
flytja alfarinn vestur til Van-
couver.
* ★ ★
A musical program put on by
the choir under the able direc-
tion of Mr. Stefan Solvason, a
colossal Home Cooking Sale and
Icelandic refreshments for every
one will feature-the big Valen-
tine Concert and Tea on Wed.,
Febuary 4th.
The Womens Auxiliary of the
Icelandic Lutheran Church of
Vancouver, purchased a beau-
tiful Minchen Electri Organ on
Jan. 7, of this year and the pro-
ceeds of the concert will go to
the Organ fund, Which was
founded by Mrs. Jónína Jóhn-
stone three years ago.
Mrs. John Sigurdson, the pre-
sident will open the fete at 7.45
o’clock and the place is the
Social hall of the church, corner
19 and Bums.
The Tea Convener, Mrs. Jón-
ína Johnston, will be assisted by
Mrs. Fisher, Mrs. N. Ogg, Mrs.
Wm. Mooney, Mrs. R.C. Hughes,
Mrs. J. Peterson, Mrs. Brynjólfs-
son and Mrs. Mathíason.
The Icelandic Meat stall will
have Mrs. S. J. Sigmar in charge
and those assisting are Mrs. G.
Grimson, Mrs. Gunnar Gudman-
son, Mrs. H. Sigmar, Mrs. Har-
old, Mr. A. Sædal.
Candy stall decorated in the
valentine motif will be in charge
of Mrs. H. Sumarlidason.
Cakes, cookies and bread will
have Mrs. G. Sanders and Mrs.
A. T. Anderson as conveners,
with Mrs. G. M. Steinbach, Mrs.
H. Ireland, Mrs. S. Solvason and
Mrs. J. Jónsson assisting.
Mrs. Ivan Hambly will have
Charge of the raffle, while Mrs.
I. Skordal will sell skyr in con-
tainers, assisted by Mrs. Jónína
Tucker, Mrs. Oli Bjarnason and
Mrs. G. Gunnarson.
★ * *
Messur í Nýja Islandi
18. jan. — Riverton, íslenzk
messa kl. 2 e. h.
B. A. Bj arnason
★ ★ ★
Liðagigt? Gigt? Allskonar
gigt? Gigtarverkir? Taugagigt?
Bakverkir? Sárir ganglimir,
herðar og axlir? Þreyta? Við
öllu þessu ættuð þér að taka
“Golden HP2 Tablets”, þær
bæta yður fljótt. (Ein HP2 Tab-
let, fjórum sinnum á dag með
heitu vatni). 100 pillur $2.50 í
öllum lyfjabúðum.
» * *
Wedding Invitatlons
and announcements
Hjúskapar-boðsbréf
og tilkynningar,
eins vönduð og vel úr garði
gerð eins og nokkurstaðar er
hægt að fá, getur fólk fengið
prentuð hjá Viking Press Ltd.
Það borgar sig að líta þar inn og
sjá hvað er á boðstólum.
SYKUR T0MATAR
1270 til 14% sykurefni
Fyrstir allra tómata er framleiða
þroskaða ávexti
Hugsið yður marga
sæta tómata ávexti
með meiru en 12%
sykur. Ekkert líkt þvi
nokkru sinni áður.—
Veitið athygli fegurð
og jafnvægi 1 i m a
ivaxtarins, oft tvö fet
á lengd. Þær eru
smærri en vanalega,
an útlitið og sætleik-
inn er svo mikill, afi
ekkert líkt því hefii
áður sézt. Þær halda
sér vel og eru fjarska
góðar í fína rétti, sal-
at, sósur og juice o.s.
frv. —ómótstæðileg.
Verið fyrstir að ná i
)ær. Pantið nú.
(Pk. 15$ póstfrítt)
FRÍ—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1948
Stœrri en nokkru sinni fyr 36
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og fjölbreyttasta
islenzka vikublaðið
"PKÞ'
♦ COUNTER SALESBOOKS
!
Í
Kaupmenn og aðrir sem
þannig lagaðar bækur
nota, geta fengið þær með
því að snúa sér til vor.
Allur frágangur á þessum
bókum er hinn vandað-
asti. Spyrjist fyrir um
verð, og á sama tíma takið
fram tegund og fjölda
bókanna sem þér þarfnist.
The Viking Press Limited
853 Sargent Ave. Winnpieg, Man.