Heimskringla - 26.05.1948, Blaðsíða 1
Always ask for the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Wiunipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
Always ask for the
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Wianipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 26. MAl 1948
NÚMER35.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Klögumál og rannsóknir
Eigi hefir dagblöðunum hér í
borg orðið um annað tíðræddara
undanfarið, en umkvartanir til
stjórnarinnar frá félögum þeim,
er framleiða byggingarefni, yfir
ólöglegri verzlun, ‘Grey Market’
og óhæfilega háu verði á nöglum
til húsabygginga.
Hefir Rt. Hon. C. D. Howe,
viðskiftamála-ráðherra tilkynt.
að forstjórar endurreisnarmála-
deildarinnar hafi tekið kærur fé-
laganna til greina, og að rann-
sókn hafi þegar verið hafin í má!-
inu. En samkvæmt ummælum
ráðlherrnas, virðist eigi mikið
hægt að gera.
Kvað hann deildina, (The Re-
construction Dept.) engin mót
mæli geta hafið við því, þótt ein-
hver keypti naglabirgðir
Bandaríkjunum, og seldi þær svo
hér í Canada með hvaða verði
sem væri. Alt slíkt væri aðeins
viðbót við þær birgðir sem búist
hefði verið við að yrðu í Canada.
Ekki heldur gæti deildin haft á
móti því, að verzlunarmiðlar
keyptu hráefnið í Bandaríkjun
um, flyttu það inn í Canada til
samningsbundinnar iðnaðar-
framleiðslu, og seldu svo nagla-
framleiðsluna með óhæfilega háu
verði. Ef almenningur væri fús
á að greiða slíkt verð fyrir nagla,
þá gæti deildin ekki mótmælt
því. Fólkið væri ekki neytt til
að kaupa þá. W. E. Uren, einn af
aðaleftirlitsmönnum verðlags-
nefndar iSambandsstjórnarinnar.
fékk þær sannanir fyrir ólög-
legri naglaverzlun, að verzlunar-
miðlar í Toronto hefðu keypt
naglaefni í Bandaríkjunum, vír
á 6% cent pundið, látið framleiða
úr því nagla í Canada, og selt þá
síðan í Toronto á $13.23 kútinn;
er það nálega helmingi meira en
vanalegt og eðlilegt verðlag.
Slíkar aðgerðir, sagði Mr.
Uren að þyrfti sannarlega að
rannsaka, og ef lögsókn kæmi
þar til greina, væri það endur-
bóta-deildin og stríðstíma verð-
lags- og viðskiftanefndin, sem
eftir slíku ættu að líta. Ekkert
hámarkverð er á nöglum, en þeir
eru ein tegund þess nauðsynja-
varnings, sem stjórnareftirlit
getur komið til greina með, að
jafnt. og réttlátlega sé útýtt.
Alvarleg flóðhætta
víða enn
Áflæði í The Pas-héraðinu,
eykst nú má heita daglega. Eru
milli 175 og 200 bændabýli um-
flotin vatni á því svæði, en það
er að mestu landsvæði, sem
stjórnin hefir úthlutað hermönn-
um til akuryrkju og búskapar.
Hefir um 100 manns neyðst til
að flýja heimili sín. Geysilegir
vatnavextir eru enn í þremur
stórám á þessu svæði, Saskatch-
ewan-ánni, Carrot-ánni og The
Pas. Hefir fólkið orðið að flýja
á bátum til bæjarins, The Pas,
með alla sína búslóð og hundruð
gripa og búpenings.
Standa fyrir rétti sínum
Húsmæðra-sambandið í Mani
toba, (neytendafélagið) fór til
verks nýlega, og krafðist þess
að stjórnin skyldi heildsala og
framleiðendur til þess að láta
neytendur njóta nokkurs hluta
hagnaðarins af afnámi þess 8%
söluskatts, er nýlega var tilkynt.
Kröfuskjalið var lagt fram af
Mrs. Anne Ross, forseta sam-
bandsins, og var þar tekið fram,
að slík löggjöf væri nauðsynleg
með tilliti til aðgerða verðlags-
nefndar þingsins, en sú nefnd
hefði uppgötvað að hin stóru
matvörubirgðafélög færu eftir
þeirri meginreglu, að ná öllu út
úr viðskiftunum sem mögulegt
væri.
Fjárhagsáætlun ríkisins, sem
nýlega var tilkynt, var einnig
vegin og léttvæg fundin í kröfu-
skjali húsmæðrafélagsins, sökum
þess að í henni var ekki minst á
lækkun persónulegra inntekta-
skatta og væri með því aðal þungi
skattabyrðarinnar eftir sem áður
á herðum almennings, þess hluta
þjóðarinnar, sem hið háa verð-
lag kæmi harðast niður á.
f skjalinu stóð einnig, að enn-
þá einu sinni hefði stjórnin
brugðist meginþorra almenn-
ings í Canada.
Hættulegt fordæmi
Mikið hefir verið látið af, og
það með réttu, hversu Bretar eru
konunghollir, og hafa tilbeðið
og dýrkað konungs-fjölskyldur
sínar um ár og aldir, og gera enn
í dag.
Hið eina er virðist hafa vegið
salt á móti konunga og drotn-
inga dýrkuninni, er helgi ensku
kirkjunnar, eða flestra deilda
hennar.
Varð hið mesta uppþot og íra-
fár nýlega hjá prestum og pré-
látum mótmælenda-kirkjudeild-
anna á Englandi yfir því, að
Elizabeth prinsessa ásamt Philip i urðu þau 48. í hlutfalli við hverja
hertoga, á nýafstöðnu ferðalagi^ 10,000 íbúa.
þeirra til Frakklands, gerðu sig' N
sek í því, að taka þátt í veðreið-j Tilkynning um flug-póst
um og dansleik á sunnudegi
Paris. Fyltust sem sagt fjölmarg-
Mr. Bertrand, aðal-póstmeist-
ari Canada, lýsti því yfir í neðri-
ir forustumenn ensku kirkjunn- .
, i deild þingsins nýlega, að eftir
ar heilagri vandlætingu yfir , ,, ,. *. ,,
, 6 ■' 11. juh næstkomandi yrði allur
þessu hættulega fordæmx, er rxk-
iserfinginn og egtamaki hennar
júlí næstkomandi yrði
bréfapóstur fluttur loftleiðis,
hvort sem á honum væru flug-eða
almenn frímerki. Á þessi breyt-
ing við bréf, sem vigta aðeins
eina únzu, eða minna. Þýðir
reglum. En nu hefir Roman kaþ- , „ , , ,, * . , .
xi!L ..™._ A..Í. 1 betta að bref með venjulegu 4-
centa frímerki verða flutt í flug-
hefðu sett, og töldu það stór-
brot gegn helgi kirkjunnar, og
öllum siðferðislegum velsæmis-
ólska kirkjan, eða “The Arch-
deacon of Lewis”, einn af yfir-
mönnum hennar, komið hinum
pósti hvar sem er í Canada.
, . ,, Þessi breyting er þó aðeins
ungu hjonum til bjargar, — lat- ,, .. ... , . ,
, . , , | akveðin til reynzlu einhvern
íð litilsvirðingu sina opinberlega . , .. , . , .
, . r . „ . . vissan tima, þar til það symr sig
í ljosi fyrir vandlætingasemi og
öfgum
haldið
ensku kirkjunnar, og
fram dansi
og
öðrum
i hvort hún getur staðist f járhags-
lega.
skentunum á sunnudögum!
Kjörinn milligöngumaður
Sameinuðu þjóðanna
Hinn sænski greifi, Folke
Bernadotte, var kosinn meðal-
gangari Sameinuðu þjóðanna í
I
I Fræknasta flughetja
I Canada ferst
Síðastliðinn fimtudag lét
George Beurling, hinn frægi
flugherliði frá Montreal, lífið í
flugslysi nálægt, eða á Urbe
flugvellinum í Rómaborg, ásam't
Palestínu nýlega. Bernadotte öðrum manni. Var Beurling í Ev-
greifi, sem er vara-forseti Rauða rópu á leið til Palestínu, og hafði
Krossins í Svíþjóð, var valinn af
hinum fimm stórveldum til þess
starfs. Greifinn er náfrændi
Gustavo Svíakonungs, og gegndi
hann meðalgengilsstarfi milli
Héinrich Himmler og yfirvalda
ákveðið að gerast sjálfboðaliði í
flugher Gyðinga í Palestínu-
stríðinu.
Hann átti, eins og vitað er,
einhverja hina glæsilegustu
frægðarsögu að baki sér úr síð-
Sambandsþjóðanna við lok síð-^ asta alheimsstríðinu. Hafði skot-
asta stríðs. Ef öryggisráðið á-, ið niður 31 óvina flugför. Hann
kveður að það þurfi milligöngu-j var aðeins 26 ára að aldri.
mann ,eins og Sir Alexanderj Jarðaður var hann í Rómaborg
Cadogan frá Bretlandi lagði til,
er líklegt að Bernadotte greifa
verði trúað fyrir starfinu.
Herskylda á friðartímum
J. Harper Prowse, herþjón-
ustu-fulltrúi í Alberta þinginu,
samkvæmt ósk ættingja hans.
Krýningarathöfn á
Niðurlöndum
Samkvæmt fréttum frá Amst-
erdam, er krýningar athöfn Júl-
íönu krónprinsessu til drotning-
I ar yfir Niðurlöndum, ákveðin 6.
og formaður frjálslynda flokks-: . , ., ,. -
. , i september næstkomandi, og a
xns x Alberta, bar fram þa kroful n ag fara fram - hinni w
nýlega, að almenn herskyldu-. kirkju . Amsterdam> er
stefna yrði upp tekxn x allrx Can- ^ var . f3 öld> en sem hefir
ada. Lagði hann til, 1 ræðu er, _ ..
_____ verxð svo mxktf endurnyjuð, að
hann hélt fyrir “United Services
hún er kölluð “Nýja kirkjan”.
Ljóð Guttorms J. Guttormssonar
gefin í fyrsta skifti ut á Islandi
í“
Belgian Congo”
Frá Brussels bersj sú frétt, að
Belgía hafi látið það uppi ný-
í gær kom í bókabúðir heildar-
útgáfa af ljóðmælum Guttorms
J. Guttormssonar skálds á Víði-
völlum við íslendingafljót í
Manitoba. Hefir Arnór Sigur-
% jónsson búið bókina undir prent-
un, en útgefandi er Iðunnarút-
gáfan í Reykjavík.
Guttormur skáld Guttormsson
er flestum íslendingum kunnur
af orðspori, jafnt austan sem
vestan. Hann er feeddur vestra
5. desember 1878 og hefir alið
þar allan sinn aldur. Foreldrar
hans voru Jón Guttormsson stúd-
ent frá Arnheiðarstöðum í Fljóts
dal og Pálína Ketilsdóttir frá
Bakkagerði í Borgarfirði. Þau
voru meðal fyrstu vesturfaranna
sem settust að á Nýja-íslandi.
Býr Guttormur á föðurleifð
sinni, Víðivöllum, ásamt konu
sinni, Jensínu Daníelsdóttur Sig-
urðssonar frá Hólmlátri á Skóg-
arströnd.
Guttormur tók snemma að
yrkja og hefir gefið út fjórar
Ijóðabækur, Jón Austfirðing, —
Bóndadóttur, Gaman og alvöru
og Hunangsflugur auk þess sem
hann hefir skrifað mörg leikrit.
En þetta er fyrsta bók hans, sem
kemur út hér heima.
Þótt hann hafi aðeins einu
sinni komið til íslands, í boði
ríkisstjórnarinnar 1938, er hann
eitt af mestu kjarnaskáldum ís
lendinga og öndyegisskáld þeirra
í Vesturheimi síðan Stephan G
Stephansson dó.
—Tíminn 16, apr.
Institute, 1. Að 1. júlí ár hvert.j
yrði öllum karlmönnum, er náð . ,
hefðu 18 ára aldri gert að skyldu KeiSa heiSt()Övai
að mæta til skráningar á mismun-
andi liðsöfnunarstöðvum um
þvert og endilangt landið.
2. Aðeins þeir, er eigi gætu
íerðast skyldu undanþegnir.
3. Heræfingatíminn yrði l.ár,
og yrði 4 fyrstu mánuðum þess
tímabils varið til undirstöðuæf-
inga. Að þeim tíma liðnum yrði
vopnabirður kendur, og annað
viðvíkjandi reglulegum hernaði.
4. Eftir eins árs herþjónustu-
æfingar yrðu svo liðsmenn
skyldir að gegna herboði um 4.
ára þjónustu í varaliðsdeildum
landsins, landher, sjóher og flug-
hersþjónustu.
Canada skarar fram úr
Skýrslur frá aðalstöðvum láns
og byggingarfélaga- sambands-
ins í Ottawa sýna, að á síðastl.,
ári hefir Canada orðið efst á
blaði af þeim 5 þjóðríkjum, sem
talin eru að hafa komið mestu í
verk á sviði húsabygginga. Sam-
kvæmt rannsóknarskýrslum fyr-
nefnds Sambands, er höfðu inni
að halda ársfjórðungs yfirlit —
1948, — Housjng Progress
Abroad”, hafði Canada komið í
verk á árinu 1947 að reisa 63 hús
fyrir hverja 10,000 íbúa.
Þessu til samanburðar voru 62
hús reist í Bandaríkjunum, fyrir
hverja 10,000 íbúa á síðastliðnu
ári. í Nýja Sjálandi voru þau 61.
hlutfallslega .í Svíþjjóð 59 og á
Bretlandseyjum og Ástralíu,
FRÚ ELMA GÍSLASON
sem góðan orðstír hefir hlotið sem söngkona í þessum bæ, efnir
til söngsamkomu 1. júní í Sambandskirkjunni. Er söngskrá
frúarinnar all-löng og fjölbreytt og gefst nú tækifæri, er
margur hefir þráð, að hlýða á söngkonuna í heildarverki, er
söngkröftum hennar öllum ættu að g'era góð skil. Þeir sem
hafa á frú Elmu hlýtt um langt skeið í einsöngvum, og sem
úti hafa verið of fljótt fyrir flesta, munu nú fagna að hlýða á
hana í langri söngskrá í fyrsta sinni. Heimskringla vill vekja
eftirtekt á söngsamkomu þessari, því hún er skemtilegur
viðburður í sönglífi íslendinga hér.
lega, að hún ætli sér að verða
fyrsta landið í Evrópu til þess
að fylgja dæmi Bretlands í því,
að byggja herstöðvar í Afríku,
til þess að stjórnarráðuneytið
geti leitað þangað ef svo færi,
að heimalandið yrði yfirunnið í
öðru stríði.
Vikið frá embætti
Frá Finnlandi berst sú frétt,
að Juho K. Paasikivi, forseti,
hafi nýlega vikið Jrjoe Leino,
innanríkismála-ráðherra, f r á
völdum.
Leino var svæsinn kommúnisti.
og er sagt að hafnarverkfall í
Helsinki hafi byrjað þá nálega
samstundis, er kommúnistar
stóðu fyrir. Stjórnarráðuneytis-
fundi var skotið á í mesta skyndi,
til þess að ráða fram úr uppþot-
inu er varð, þegar Leino var vik-
ið frá. Paasikivi forseti skipaði
Eirxo Kilpi, fyrverandi menta-
málaráðherra, í stað Leinos til
bráðabirgða. — Verkfallsmenn
hafnarinnar kröfðust þess að
Leino væri haldið við völd; neit-
aði hann einnig að segja af sér,
en var þá, eins og áður er sagt,
vikið frá.
On Saturday, April 24th, a number of those interested in the commercial fishing industry in
Winnipeg district, left on a trip East to visit the Drummondville Cotton Company Ltd., mill at
Drummondville, Que. In addition to visiting the mill stops were made at Montreal, Ottawa, Tor-
onto and Niagara Falls.
This is one of the first trips known, of this type, where those interested in commercial fish-
ing have had an opportunity of witnessing how nets and twine, (in which they are vitally inter-
ested), are manufactured. The trip was arranged by Park-Hannesson Ltd., distributors of Blue-
nose fishing equipment in Mid-Western Canada, with the co-operation of the Drummondville
Cotton Co. Ltd., Montreal.
In the above photo, are those attending at mill visit, reading from left to right, are: (Stand-
ing) W. Needham, Supt. Drummondville Cotton Co., Drummondville, Que.; J. W. Barrie, Sales
Managar, D. C. Co., Montreal, Que.; Ted Kristjanson, Gimli, Man.; R. E. Park, Park-Hannesson
Ltd., Winnipeg; Fred Adamson, Supt. Fish Net Division, Drummondville, Que.; Alex Curr,
Northern Lakes Fisheries Ltd., Winnipeg; Erle Dahlman, Riverton, Man.; Steve Stephanson,
Selkirk, Man.; Oli Freeman, Thicket Portage, Man. (Sitting) Walter Bessason, Selkick, Man.;
Carl Lindstrom, Kenora, Ont.; T. L. Hallgrimson, Hallgrimson Fisheries Ltd., Winnipeg; J. B.
Johnson, Gimli, Man.; S. F. Roberts, Selkirk Fisheries Ltd., Winnipeg.